Lögberg - 04.01.1934, Síða 4

Lögberg - 04.01.1934, Síða 4
4 LÖGBERG, FÍMTUDAGINN 4. JANÚAR, 1934 Hogberg Oefl8 Ot hvern fimtudas af f H K COLUMBIA P R E 8 8 L 1 M I T B D 69 5 Sargent Avenúe Winnipeg, Manitoba Utan&skrift ritstjórans. EDITOR LÖGBERG. 69 5 SARGENT AVE. WINNIPEG, MAN. VerO $3.00 um drið—Borgist fyrirtrnm rbe “Ijögrberg” is printed and published b> The Columbia íTese, Limited. 695 Sargent Avs.. Winnipeg. Manitoba. PHONE8 S6 327—86 328 Nýársgjöfin “Orður og titlar úreit þing eins og dæmin sanna, • notast oft sem uppfylling í eyöur verðleikanna.” Steingr. Thorsteinsson. I fjórtán undanfarin ár hefir canadiska þjóðin lifað lífi sínu, þolað súrt og sætt, horfst í augu við kreppuna og sigrast á margvísleg- um örðugleikum án utanaðkomandi metorða- plástra; hún er í eðli sínu demókratisk þjóð, með litlar mætur á titlaregni eða prjáli. Ekki er það nema maklegt, að þeirra manna og kvenna, er öðrum fremur hafa skarað fram úr landi og' þjóð til nytsemdar og vegs, sé verðug viðurkenning sýnd; en sú viðurkenn- ing er þá alla jafna miklu fremur falin í trausti og samúð hlutaðeigandi þjóðar, en málmblöndnum mannvirðinga teiknum. Að sjálfsögðu verður ekki deilt um það, þá um úthlutan titla ræðir, og það vonandi í fleiri tilfellum en hitt, að máltækið forn- kveðna, “þeim heiður, sem heiður ber” eigi við; þó dylst það engum hugsandi manni, að hér er um tvíeggjað sverð að ræða, er beita má á næsta mismunandi hátt eftir því hver á heldur. Margir líta vafalaust svo á, að hér sé ekki um það mikilvægt málefni að ræða, að ástæða sé til að gera út af því pólitískt gern- ingaveður. Um hitt. munu þó sennilega ekki verða mikið skiftar skoðanir, að þjóðin hafi vænst einhverrar veigameiri nýársgjafar frá hendi Mr. Bennetts, en þeirrar, sem nú er raun orðin á, og það því fremur, sem kjörnir fulltrúar hennar afgreiddu á sambandsþingi 1919 tillögu til þingsályktunar með miklu afli atkvæða, er í sér fal bein mótmæli gegn inn- leiðslu titla í þessu landi; hefði þetta að minsta kosti átt að hafa verið Mr. Bennett allglögg bending um vilja þjóðarinnar í máli þessu. Foringi frjálslynda flokksins, Mr. Mac- Kenzie King, er auðsjáanlega mótfallinn þessari nýju ráðstöfun Mr. Bennetts, eins og glögglega má ráða af eftirfarandi yfirlýs- ingu hans, er fréttasambandið canadiska flutti þjóðinni á nýársdaginn. Yfirlýsingin er að efni til á þessa leið: “Tilkynning forsætisráðgjafans um það, að hann hafi mælt með því við hans hátign konunginn, að vissum canadiskum borgurum yrði veittir titlar, ber ljósan vott um það, hve hann skoðar sig me|5 öllu óháðan þinginu, og þá ekki síður vilja þjóðarinnar, eins og hann, fyrir munn kjörinna fulltrúa hennar, greini- legast kemur fram í neðri málstofunni. 1 þeirri deild hins canadiska þjóiðþings, var borin fram og afgreidd, 1919, þingsályktunar tillaga, að hans hátign konunginum, mætti allra mildilegast þóknast að veita eigi þegnum sínum í landi hér, titla, eða önnur skyld virð- ingarmerki, eftir þann tíma, að undanskyldu því, ef um sérstök afrek á sviði sérmentunar eða embættisrækslu væri að ræða. Tíu árum síðar, eða á þinginu 1929, var mál þetta reifað á ný, og kom þá ennfremur skýrt og ákveðið í ljós að vilji þingsins í þessu tilliti var öldung- is óbreyttur. Kom þá fram uppástunga um það, að þingsályktunartillagan frá 1919 skyldi tekin til yfirvegunar á ný, og sérstök þing- hefnd sett til þess að íhuga það, hvort leyfðir skyldu titlar hér í landi eða ekki. Úrslitin urðu þau, að uppástungan var feld frá nefnd með 114 atkvæðum gegn 40. Af þessu er sýnt, að þingsályktunar tillagan frá 1919 heldur enn sínu fulla gildi, þó forsætisráð- gjafinn í nýársboðskap sínum telji hana hvorki bindandi, né heldur hafa nokurt laga- legt gildi. Um kjarna þessa máls verður vafalaust ítarlega rætt, er þing kemur saman, innan mánaðar eða svo; en á meðan væri ekki úr vegi, að alþjóð manna glöggvaði sig á því, hve vilji kjörinna fulltrúa hennar hefir verið að vettugi virtur; tneðferð þessa máls er enn eitt ájireifahlegt dæmi þess, hvert feiknadjúp er staðfest milli núverandi stjórnar og þjóðar- innar sjálfrar, og hve átakanlega henni veit- ist það örðugt, að átta sig á þeim hinum marg- víslegu þróunarstefnum á .sviði samfélags- málanna, er verið hafa upp á síðkastið að skjóta rótum, svo að segja um allan hinn mentaða heim. Eins og nú hagar víða til, með æsinga og öfgastefnur í algleymingi með mörgum þjóðum, með atvinnuleysi og jafnvel örbirgð hér með oss, verður það enn óskiljanlegra, að stuðlað skyldi vera til nýrrar stéttaskifting- ar innan vébanda þjóðarinnar með innleiðslu titla og annara skyldra virðingarmerkja. Væri frekari sannana þörf til þess að ’ leiða það í ljós, hversu núverandi stjórn hefir gersamlega brugðist trausti þjóðarinnar, þá þyrfti vitanlega ekki langt að leita. Þetta síðasta gerræði, er að minsta kosti eitt aug ljóst dæmið enn um það, hvert stefnir.” Svo skamt er síðan að þessi nýjasta ráð- stöfun Mr. Bennetts varð heyrinkunn, að enn liafa hvergi nærri öll blöð látið í ljós álit sitt um hana. Blaðið Winnipeg Free Press hall- ar mjög á forsætisráðgjafa; Montreal tíazette hallast á sveif Mr. Bennetts, en ýms frönsku blöðin eystra, eru sögð að vera óð og uppvæg yfir tiltækinu. Náttúra og siðmenning Oft verður barnánginn Mannkyn að hnjóta um þessar leikfangs-völur sínar, borg- ir, áður en það vex í manndómi til Guðs í- myndar á Jörðu; það er þeirri menningu, sem eigi er ginningar og tál. Engin ástæða er samt að örvænta, eða leggja árar í bát. Há- stig sannrar þjóðmenningar er, að skapa eða þroska gervalt mannkyn í mynd hinnar víð- feðmustn og fegurstu tíuðs hugmyndar, sem að^sjálfsögðu verður í innilegri sambúð við dýrð og dásemdir náttúru Jarðar, utan borga. —Meinið hefir verið og er, að mestu siðmenn- ingar-þjóðir fara einþykknislega eftir kenj- um og keipum yfirboðs-siðmenningar, meta meira mannasetningar í einangruðum borg- um, heldur en lögmál Guðs í óspjallaðri nátt- úrufegurð Jarðar. —Þegar um líf og þrosk- un alheims-hnattar, eins og Jarðar, er að ræða, þá má uppistaðan eigi vera skammsýni og ívafið eigi bamslegasta bráðlæti. Þroska- skeið menningar er eigi sex þúsunda ára, hvað þá tvö þúsunda ára gamalt. Það er, eða verður, eigi einungis sex miljónir ára, heldur, til dæmis að taka, sex miljónir alda. — Sið- menningin er gelgjuskeið menningar-þrosk- ans, enn langan tíma. En upp úr því vex ódæma langt, dýrlegt skeið, sannarlegs mann- þroska. Varir, meðan menn dvelja á brjóst- um, blessaðrar móður Moldar. Auðmýkt og lítillæti barnsins, en eigi þótti og ofmetnaður vísindalegrar þekkingar, er sérkenni þeirrar menningar, sem átt getur von á löngu lífi og farsælu. Vart er öðru lík- ara, en að vísindalegur siðmenningar-hroki nútímans sé eigi háfleygari en það, að hann trúi því eigi, að mestu og beztu þjóðir sið- menningar-landanna komist nokkurn tíma svo langt og hátt, að þær verði neitt annað né betra en rándýr þau og morðvargar þeir, sem þær nú óneitanlega eru, sér til of lítillar frægðar. Meðan svo fer fram, er óhjákvæmilegt að siðmenningin, með fráhvarfi sínu frá náttúr- unni, haldi áfram um aldir að brjóta sjálfa sig á bak aftur og gefa framtíðinni viðvörun hins lánlausa, illa fordæmis, Það er til annað sterkara og betra vald í tilverunni en “sið- menningin.” Því valdi nevðist hún loks til þess að lúta, þegar hún hefir “hlaupið af sér” klaufir og horn, einþykkni og óróa, með sárum lexíu-sviða, frá bezta kennaranum,— reynslunni. t Skapadóntur æðstu máttarvalda tilverunn- ar hefir undantekningarlaust hvílt yfir gjör- ræðis- og síngirnis-siðmenningu heimsveld- anna, fyr og síðar. Nú hallar og sýnilega undan fæti, niður í glötunina, fyrir heims- siðmenningu mestu Norðurálfuþjóða, enda er kiígun og hatur máttarvöld þeirra. Spámann- leg orð, sem enn eiga eftir að rætast, enda þótt þau hafi ræzt, er þýðing Matth. Joch. á A- kvæðaskáldinu, eftir vísindamanninn og skáldið L. Uhland, þessi: “Vei, vei þér, höllin háa . . . (Auðkent af O. B.) unz þú ert auðn og aska, og ilira bófa dys.” Orðræða meistarans mesta — 2000 ára gömul — gildir enn. “Heimurinn” hyllir ofbeldi, og fellur enn, sem ætíð áður, á sínum eigin bola-brögðum. Eín Ilmin, sem einnig elskaði liljur akursins og blóm merkurinnar, lifði, sá og kendi, að heimurinn—hinn vondi og vilti — yrði að vinnast fyrir gwösriki á Jörðw, með samúð, ást og samhjálp, en eigi með hnefa-“ rétti, ” né sverði. — —Jörð. Nýtt merkisrit Saga Iiiríks Magnússonar, eftir Stefán Einarsson. Reykjavík 1933. Eiríkur Magnússon ól mestan hluta aldurs síns erlendis, í rauninni alt frá því að hann varð fulltíða maður. Eigi að síður var hann þó í hálfa öld einn þeirra manna sem allra mest bar á í íslenzku þjóðlífi og nafn hans var á hvers manns vörum., Um þvert og endilangt ís- land var varla það barn er komið væri til vits og ára, að eigi kynni það að nefna “meistara Eirík.” Hann átti hér andstæðinga og þar á meðal þá, sem sízt verða til smá- menna taldir ; en hversu hamrammir andstæðingar hans sem þeir voru, efast eg þó um að nokkur þeirra hafi verið fjandmaður hans. Vini og dáendur átti hann um alt. Þó að við vissum nú ekkert um hann annað en þetta, þá myndi það ærið nóg til þess að við skildum það, að hann var ekki neinn meðalmaður, heldur mjög svo óvenjulegur mað- ur. Það er sannast að segja, að Ei- rikur Magnússon var einn af allra gáfuðustu og glæsilegustu skörung- um íslendinga á 19. öldinni, sem þó var svo óvenju auðug að miklum mönnum og merkum. Það er því ekki að undra þótt margur biði æfi- sögu hans með mikilli óþreyju frá því er það vitnaðist, að farið væri að rita hana. En sú óþreyja mun þó hafa verið blandin nokkrum kvíða hjá fjölda manns, og sannar- lega var hún það hjá þeim, er þessar linur ritar. Það var í sjálfu sér mikið vandaverk að rita sögu Eiriks vegna þess, hve harðsnúinn og margvíslegan þátt hann tók í þeim málum, er mest skiftu mönnum í flokka, og vegna þess, hve sorglega honum lenti saman við annan af- burðamann þjóðarinnar á bæði ís- lenzkum og erlendum vettvangi. Ofan á þetta bættist, að sá sem rita átti söguna, var náfrændi Eiríks og ritaði fyrir honum enn þá náskyld- ari menn. Það mátti undur heita ef hann kæmist vel frá slíku verk- efni, hversu hugðnæmt sem það ann- ars var í sjálfu sér. Eg tók bókina til lesturs undir eins og hún kom út. En þó að eg byrjaði með nokkrum kvíða, gat eg ekki slitið mig frá henni fyr en eg hafði lokið við hana og hafði hún þá kostað mig nálega heila vöku- nótt. Ekki er bókin gallalaus fremur en önnur mannanna verk yfir höfuð. Ýmislegt er ósagt, sem lesandann langar til að fá að vita. En vafa- mál er hvort þetta má teljast til galla, því einhver takmörk varð höf- undurinn vitanlega að setja sér og óskemtilegir eru þeir skrifarar, sem verða að setja á pappírinn alt það er þeir vita. Smíðalýti eru það, að höfundurinn vitnar stundum til þess sem “áður segir,” enda þótt það, sem hann á þá við, hafi alls ekki verið áður sagt, heldur aðeins að því vikið eða komið í námunda við það. En svo endurtekur hann sig stund- um að þarflausu. Þá er og þýðing- in á erlendum orðum stundum svo * ónákvæm, að nærri stappar að rangt megi heita. en bót er það, að allur þorri lesenda mun skilja erlendu orðin. Alt eru þetta hreinir smá- munir. Sama er að segja um mál- lýtin. Þau mættu að vísu missa sig, en þau eru færri en nú tíðkast i íslenzkum bókum, og yfirhöfuð er málið á sögunni gott. En kostirnir eru alt annað en smámunir. Þeir eru svo stórkost- Iegir að þær eru vist ekki margar íslenzku æfisögurnar frá síðari tím- um, sem alls og alls standi þessari jafnfætis. Hún er fjörlega og skemtilega rituð og hún er geysilega fróðleg. En það sem prýðir hana allra mest og langmestan sóma gerir höfundinum, er sú merkilega óhlut- drægni og hreinskilni, sem hann virðist hafa gert sér að leiðarstjörnu. Þessi fágæti og mikli kostur prýðir bókina frá upphafi til enda. Eng- um er hlíft við viðburði sannleikans og enginn er skreyttur með ódýru selzt-sem-gull órökstuddrar lofdýrð- | ar. Hvort heldur það er sjálf söguhetjan eða hinir leikendurnir á | sviðinu, þá verða þeir allir að koma til dyranna eins og þeir eru klædd- ir, hver og einn með ágæti sitt, ó- fullkomleika og bresti. Hættulegasta skerið á þessari leið var að sjálfsögðu þáttur Guðbrands Vigfússonar. En jafnvel ekki á þessu skeri mun verða sagt að höf- undurinn steyti. Það hefði lika ver- ið hörmulega leiðinlegt ef tilraun hefði verið gert til þess að hefja Eirík á kostnað Guðbrands. Báðir voru afburðamenn og ágætir, en báðir höfðu mjög verulega ágalla, sem ekki varpa lengur skugga á frægð þeirra. Eiríkur er tvímæla- laust þeirra glæsilegri, en í flestra augum ætla eg að Guðbrandur verði stórfenglegri. Það er aldrei nein mærðarfroða í því, sem Halldór Ilermannsson segir, og vanur er •hann að vega orð sín. Dómur hans um Guðbrand í nýjasta bindinu af Islandica er stuttorður, en þar er hvert orð öðru sannara, og undir þeim steini má Guðbrandur vel sofa. Bók sú, sem hér um ræðir, er ekki um Guðbrand, og það væri varla sanngjarnt að ætlast til þess, að mikilleiki hans kæmi þar í ljós. En eftir þetta myndi margur óska þess, að Stefáni Einarssyni gæfist tækifæri til þess að gera Guðbrandi sömu skil og hann hefir nú gert | Eiríki, því þótt eitt sinn hafi verið I merkilega um hann ritað á islenzku, | þá er nú miklu við að bæta. Hvergi í víðri veröld ríður íslandi I eins á að eiga góðan fulltrúa eins \ og á Bretlandi. Þá átti það þar | mikjlúðuga fulltrúa er þeir voru þar tveir þessir frábæru menn, er I með yfirburðum sínum heilluðu hina beztu menn þeirrar þjóðar, sem j sízt er uppnæm fyrir smámunum. Við stöndum berskjaldaðri þar núna j en þá gerðum við. Dálítið barnalega er það talið upp i i formála bókarinnar, hve margir “meistarar” hafi lesið prófarkirnar (sbr. “Meistara sjö, eg mæla kann”). Ekki hefir þó lesturinn tekist svo, að óaðfinnanlegur sé, og honum á sennilega að kenna um “Annie Johnston” (bæði í texta og registri-. En fyrri kona A. W. Johnstons hét Amy, og það er leið- inlegt að sjá hana rangnefnda í ís- lenzku riti. Svo mikið eigum við íslendingar þeirri ágætu konu að þakka (eins og líka manni hennar), að nafn hennar ættum við að muna. O jæja, við gleymdum Rask í fyrra, og ætli við gleymum ekki Morris að ári ? Hafi þeir allir þökk, sem á einn eða annan hátt hafa að því stuðlað að bók þessi er orðin til. X. —Vísir. Frá Tengchow Það sem mestu hefir einkent safnaðarlifið síðastliðinn vetur, er trúarvakning. Fjöldi safnaðarmeð- lima hafa vaknað við vondan draum og orðið þess varir, sér til mikillar skelfingar, að þeir voru án lífs í Guði, þess vegna að annað hvort höfðu þeir dregist aftur úr, eða þá að þeir i hjarta sínu aldrei höfðu gefist Guði. Þá hefir Drottinn einnig gefið fjölmörgum óskírðum áhangendum safnaðanna, trúnemum “afturhvarf til lífsins.” En trúað fólk hefir endurnýjast og tekið miklum framförum. Það þykir okkur einna gleðilegast við þessa hfeyfingu, að hún þegar virðist hafa náð útbreiðslu um alt land, svo að ekki er um annað tal- að, hvar sem trúað fólk kemur sam- an; vakningaprédikararnir f lestir eru innlendir menn auk einstöku er- lendra kristniboða; vakningin held- ur áfram víðast hvar sem sem hún hefir rutt sér rúm, er ekki nein skyndihreyfing, heldur varir og verður landlæg. — Nú óskar maður þess eins, að trúarvakning þessi læsi sig út á meðal heiðingjanna og fái verulega þýðingu fyrir trúboðið í framtiðinni. Hér á stöðinni er ungur maður, trúaður, Sung Eni að nafni, sem frú Kirstín Pétursdóttir í Reykja- vík hefir kostað til náms tvo undan- farna vetur, í von um að hann verði okkur samverkamaður síðan. Móð- ir þessa pilts er ekkja og heitir Sung Da-Shá; hún öðlaðist líf í Guði fyrir mörgum árum. Auk drengj- anna sinna þriggja hefir hún áunnið marga ættingja sinna og vina fyrir Drottinn, og er það ekki sízt vitnis- burði hennar og fórnfúsu sjálfboða- starfi að þakka, að í Changtsuen, þar sem hún er básett, er nú blóm- legur söfnuður. Fyrir tilstilli konu einnar á íslandi getur Sung Da-Shá nú loksins gefið sig alla að trú- boðiny, og hefir aðstoðað við ferða- tjaldið og á námskeiðum í vetur; annars hefir hún, sakir fátæktar og einstæðingsskapar átt við þröngan kost að búa. Sung Ení virðist ekki munu verða eftirbátur móður sinnar. Eg hefi komist að því, að hann vitnar oft fyrir kennurum sínum og skóla- bræðrum um Drottinn, margir hafa beðið hann að lesa fyrir sig í biblí- tinni og kenna sér að biðja, og æfin- lega kemur heill hópur ungra manna með honum á samkomurnar. Það var bæði honum og okkur mikið gleðiefni, er nokkurir skólabræðra hans frelsuðust á samkomunni i vet- ur; f jórir þeirra voru skríðir nú fyrir nokkrum dögum. Að gefnu tilefni þykir mér rétt að geta þess hér, að samverkamenn mínir i Kínasambandinu norska eru (eins og flestir aðrir lúterskir kristniboðar, sem eg þekki til) mjög varkárir, þegar taka á fólk upp í söfnuðinn. Því að fólki er alls ekki veitt skirn, sem ekki hefir eignast persónulega frelsisreynd, þótt það standi mjög framarlega hvað þekk- ingu og siðgæði snertir. Börn skír- um við því aðeins, að foreldrin séu bæði kristin. Sé þau eldri en 5—6 ára, er beðið með að skíra þau, þangað til þau geta ákvarðað sig sjálf. Mér er kunugt um, að sumir baptistar halda, að sakir barnaskírn- arinnar verði söfnuðir okkar eins konar þjóðkirkjusöfnuðir, fullir af óendurfæddum og veraldlegum með- limum. En hver er þá ástæðan til að margir baptistasöfnuðir taka jafnvel ekki íslenzkum þjóðkirkju- söfnuðum fram í neinu? í baptista- söfnuðum, sem eg hefi þekt í mörg ár, er að vísu all-blómlegt safnaðar- líf, en lútersku söfnuðirnir hér þola þó samanburðinn. — Annars er þess að gæta, að það er kvöldmáltíðin fremur en skírnin, sem er aðgrein- ing trúaðra og vantrúaðra innan kristnu safnaðanna, bæði hjá bapt- istum og hjá okkur. Það er takmark okkar að á öllum stöðum, þar sem haldið er uppi reglubundnum samkomum, verði stofnaðir sunnudagaskólar fyrir unglinga og börn. Þetta hefir til þessa tekist ágætlega á f jórum stöð- um einungis, og eigum við það fyrst og fremst að þakka góðum stuðn- ingi frá lesendum barnablaðsins “Ljósberinn” í Reykjavík, sem fyr- ir nokkrum árum gáfu hér með um- komulausu barni, en hafa nú fyrir tilmæli ■ mín leyft að meðgjöfin gengi til þessa. Á hausti komandi vonum við að geta byrjað sunudagaskóla á þrem nýjum stöðum, enda höfum við klófest ungan áhugamann trúaðan, sem vill gefa sig allan að unglinga- starfseminni innan safnaðanna a. m. k. nokkurn hluta ársins. Sunnudagaskólarnir hér eru frá- brugðnir venjulegum sunnudaga- skólum að því leyti, að svo margt fullorðið fólk sækir þá. Við verðum því að hafa sérstakan flokk eða bekk fyrir það. Þetta erum við að vona að geti orðið til þess, að sú venja komist nú á hjá okkur, sem er algeng allsstaðar í Kóreu, að safn- aðarfólkið alt komi saman til biblíu- lestrar og bænagjörða í einn klukku- tima á undan samkomunni. Ólafur Ólafsson. —Bjarmi. 15. okt. 1933.

x

Lögberg

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.