Lögberg - 08.02.1934, Side 1

Lögberg - 08.02.1934, Side 1
47. ARGANGUR J WINNIPEG, MAN., FIMTUDAGINN 8. FEB. 1934 |j NÚMER 6 Alvarlegt uppþot í París Herinn lcallaður út til að verja þinghúsið. Tuttugu manns drepnir, mörg hundruð sœrðir ÓeirÖir þær, sem verið hafa í París síðustu vikur náðu hámarki sínu í fyrradag þegar stórir hópar borgarbúa gerðú tilraun til að umkringja þinghúsið. Daladier forsætisráðherra lét þá kalla út herinn, þegar sýnt var að lögreglan fékk ekki við neitt ráðið. Sló þá í bardaga og tókst loks að tvístra uppreistarmönnunum, en márgir láu eftir, sumir dauðir en aðrir hættulega særðir. Upptökin að þessum vandræðum eða í tjöldum. Landið sjálft, Reykjanesið, er nú eign ísafjarðar- bæjar. Nær það frá ysta odda þess, þar sem sundlaugin er, og inn að ^ svonefndum Rauðagarði, en það 1 % eru um 4 km. Nesið er mjótt, frýtt I $ I 5 - KIRKJAN ^ 1 Messur í Fyrstu lútersku kirlcju sunnudaginn 11. fehrúar, 1934. 1. Ardegis-messa (ensk) kl. 11 f. h. I)r. C. W. Gordon (Ralph Connor) prédikar 2. Síðdegis-messa (íslenzk), kl. 7 e. h. Ræðuefni: “ Undirbúningur undir föstuna.” Úr bænum voru hrun Bayonne bankans á dög- unum, en síðan hefir margt komið fyrir, sem æst hefir borgarbúa og virðist óánægjan með stjórnina orð- in mjög almenn. Þegar Jean Chi- appe lögreglustjóri Parísar var sett- ur af embætti í vikunni sem leið, urðu konungssinnar (Royalists) og facistar hálfu verri en áður, þvi hann var talinn þeim hlyntur. Einn- ig hafa kommúnistar látið mikið til sín taka og heimta aS stjórnin láti Hinn 30. jan. s. 1. var útför Christian Benedictssonar, sem lézt í Winnipeg þann 24. jan., haldin frá íslenzku kirkjunni í Baldur. Séra E. H. Fáfnis jarösöng. Fjölmenni enskra og íslenzkra fyltu kirkjuna á kveðjustundinni. Nokkur hluti deildar þeirrar úr I.O.O.F., sem heimilisfang á í Baldur, og sem hinn framliðni tilheyrði sýndu virð- ing og kveðju hinum burtkallaða bróður, með því að bera einkenni reglunnar og fylkja sér í raðir með- fram leið þeirri, er líkfylgdin fór. Fjöldi blómsveiga og minningar- spjalda á kistunni sýndu hver ítök hinn látni átti í hjörtum samferða- fólksins. Æfiatriði hans hafa áður verið birt í Lögbergi. Symphony Concert Symphony Orchestra Winnipeg- borgar, undir stjórn Mr. Bernard Naylors, hélt hljómleika sína í sam- komuhöllinni á sunnudaginn var. Aðsókn var mikil og segja stórblöð- in að aldrei hafi hljómleikarnir tek- ist betur. Má það heita stórgróði fyrir borgina,-að hafa eignast jafn- góða hljórrtsveit, og eiga allir þeir þakkir skilið, sem að því hafa stuðl- að. Tilkynning til auglýsenda Utgefendur vikublaðanna Heims- lvringlu og Lögbergs gera hér með kunnugt að framvegis verða ekki lúrtar ókeypis í fréttadálkum blað- anna umgetningar um samkomur og fundahöld og öll þau mót, sem að- gangur er scldur að, hvort heldur það er með föstum aðgöngueyri eða samskotum. Hið sama er að segja um auglýsing herbergja til leigu, Silver Tcas, spilakeppni, landsölu og annað þessháttar. Alt þetta er í sjálfu sér auglýsingar, serri ber að borga á því verði, sem auglýsingar eru seldar. Svo mikið hefir borist t)löðunum af þessu tæi, að stórri fjárhæð nemur, er þannig hefir tek- ist burtu frá venjulegum auglýsinga- tekjum, er fjárhagur blaðanna rná naumast við að gefa, enda eigi sann- gjarnt að ætlast til þess. Þá verða og þessar umgetningar þvi aðeins teknar, að borgun fylgi, er nemur 5oc á þumlungi dálkslengdar. Þessa eru hlutaðeigendur beðnir að minn- astM Hlutafélögin, VIKING PRESS, LTD. COLUMBIA PRESS, LTD. ENGAR KOSNINGAR / AR Eftir fréttum frá Ottawa að dæma, verða engar kosningar þetta ár. Stjórnin ætlar auðsjáanlega að láta kjörtímabilið renna út. af völdum. Báðir þessir flokkar, sem nú virðast hafa mikið fylgi, heimta stjórnarskifti. Aðal spurningin, þessa stundina, er það, hvort stjórnin getur treyst lögreglunni og hernum. Sumir ætla að óánægjan með stjórnarfar lands- ins sé oröin svo megn, að erfitt sé að koma í veg fyrir innbyrðis ófrið. Ástandið er í fylsta máta ískyggi- legt, því ef að stjórnin fellur, verða kommúnistar og íacistar að berjast um völdin. Senator Robert Forke lézt á Al- menna sjúkrahúsinu, föstudaginn 2. febrúar, eftir þunga legu. Bana- mein hans var hjartabilun. Mr. Forke var um eitt skeið leið- togi bændaflokksips á þingi, og gætti áhrifa hans töluvert um eitt skeið, þar sem flokkur hans réði úrslitum flestra mála i sambandsþinginu eft- ir kosningarnar 1925. Þegar flokkurinn klofnaði og King-stjórnin féll, 1926, náði Forke þingsæti i Brandon-kjördæmi, gekk síðan i ráðneyti Kings sem innflutn- ingsmála-ráðgjafi þar til hann sagði af sér þeirri stöðu 1929 og hlaut þá útnefningu til efri málstofunnar. Robert Forke var hinn ráðvand- asti til orða og verka og talinn mjög hygginn maður. Forke var af skozkum ættum og fluttist ungur til þessa lands. Hann tók land í nánd við Pipestone og bjó þar í grend alla æfi. Víðar er Reykjanes en á Suðurlandi Eftir Böðvar frá Hnífsdal 1. “Þá gekk Flóki upp á fjall eitt hátt, ok sá norðr yfir fjöllin fjörð einn fullan af hafísum . . .” Eigi eru menn á eitt sáttir um það, hvaða f jörS Flóki hafi þar séð, ætla sumir, að hann hafi gengið á Glámu upp og séð Arnarfjörð, en aðrir hyggja það Isafjarðardjúp verið hafa. ísafjarðardjúp, sem nú nefnist venjulega, “Djúp” eða “Djúpið,” þar um sveitir, hét forðum daga einu nafni ísaf jörður, eins og sjá má víSa af íslendingasögunum, t. d. Há- varðarsögu ísfirðings. Sá segir og svo um Þuríki sundafylli, sem nafn það hlaut, er hún fylti sund hvert með fiski, þegar hallæri var á Há- logalandi: . . . “hon setti ok Kvíar- mið á Isafjarðardjúpi, ok tók til á kollótta. af hverjum bónda í ísa- firði.” Hlýtur þar að vera átt við alla bændur umhverfis Djúpið, þvi að allir höfðu not af miðinu, hefði og sú kjölkunnuga kona fengiS fá- ar kollóttar af þeim bændum ein- um, er þá bygðu firðina, en nú heita ísafirðir. Landnáma getur um mann, er Helgi hét, son Hrólfs ór Gnúpufelli. Fór hann til Islands, að ráði frænda sinna, leitaði fyrir sér um landnám í Eyjafirði, en þar var þá albygt; .... “eftir þat vildi hann útan ok varð aftrreka í Súg- andafjörð; hann var um vetrinn með Hallvarði, en um várit fór hann at leita sér bústaðar, hann fann fjörð einn ok hitti þar skutil í flæð- armáli, þat kallaði hann Skutilf jörS . . . . ” Út í fjörð þennan innan- verðan gengur eyri ein, sem lengi var nefnd “Tangi” í daglegu máli. A þeirri eyri hefir snemma risið upp kaupstaður fyrir ísfirðinga eða Djúpmenn. Sá bær heitir nú ísa- f jarðarkaupstaður, og er því Skut- ilsfjörðurinn langtum þektari, bæði nær- og fjærsveitis, með nafninu ísafjörður, heldur en með hinu upphaflega heiti. Raunar er það algengt mjög, aS þorp eða sveitir, er að einhverjum firði liggja, taki nafn af firðinum, sbr. Seyðisfjörð, Patreksfjörð o. fl. En til þess að kaupstaðurinn á Eyri við Skutil- fjörð flyti nafnið Isafjörður, varð það nafn fyrst að færast yfir á SkutilfjörSinn sjálfan. Hvenær og hvers vegna það hafi gerst, vita *menn vist ógjörla, en sumir ætla, að farmenn þeir, sem sigldu um Djúp- ið fyr á öldum, hafi þar eigi litlu um ráðið. Hafi þeir vitað, að Djúpið hét öðru nafni ísafjörður, en trúlegast verið ófróðir um ör- nefni, svo sem heiti smáfjarða, er úr Djúpinu skárust í land inn, eða sveitir þeirra, er að lágu. Þess vegna hafi þeir fært heildarnafniS yfir á þann takmarkaða hluta svæð- isins, er þeir áttu erindi til, þ. e. a. s. verzlunarstaðarins. Virðist xþetta eigi ólíklega til getið, einkum ef gera mætti ráð fyrir, að þessi nafna- víxl hafi ekki orðið landlæg, fyr en á þeim tima, er Danir réðu sigling- um hér við land, því að þeir hafa sjaldan verið burðugir í framburði né skilningi islenzkra staðarnafna, sízt þá. Þá virðist og, að hið upp- haflega nafn Djúpsins, ísafjöiður, hafi þokast lengra og lengra undan, því að nú á dögum er það f jörður sá, er liggur inn úr Djúpinu inst, sem ber það heiti. Fjörðurinn næst fyrir vestan liann heitir Reykjarf jörður, en nes- ið á milli þeirra Reykjanes. 2. Þarna á Reykjanesinu, eða í "Nesinu,” eins og sagt er við Djúp, mun hafa farið fram sundkensla, einhvern hluta sumars, síðastliSin 40 ár. Eins og að líkindum lætur, þá hafa skilyrðin lengi verið harla bágborin, nema hvað náttúran hefir lagt til nóg af heitu vatni, en því fremur er skylt að þakka áhuga þeirra manna, er að þessum náms- skeiðum hafa staðið fyr og síðar— þrátt fyrir erfiðar aðstæður. Nú er það Isafjarðarbær, sem rekur sundskólann þarna, en sýslan leggur einnig fram nokkurt fé til styrktar starfrækslunni. Nýbygður sundskáli stendur nú þar yzt á Nesinu við sundlaug þá, er áður hafði reist verið og notuð um nokkura ára bil. Eru þar svefnskálar fyrir 20 drengi og 20 stúlkur, ásamt öðru húsrúmi, sem nauðsynlegt er til slíkrar starfsemi. Húsið er hitað með vatni frá hver- unum í kring. I framtíðinni mun það einnig verða notað fyrir heima- vistir barna á vetrum, því að ráð- gert er, að tveir næstliggjandi hreppar reisi þarna barnaskóla á sumri komanda. Sundlaugin er rúmgóð, 30 sinn- um 12 m. að stærð, en skjólgarður er enginn umhverfis hana. Er það bagalegt, því að all-vindasamt er þarna á Nesinu. Ókostur má það og teljast, að ekki er hægt að fá kalt steypibað, er upp úr lauginni kemur. Raunar er það erfiðleikum bundið að kom'a því í kring, því að kalt vatn fyrirfinst alls ekki utan til á Nesinu, og yrði því að dæla sjó til laugarinnar. Það er ýmsu ábótavant þarna ennþá, en það kemur smám sam- an. Síðastliðið ár voru reistir átta búningsklefar á einum vegg laug- arinnar, og var að því stór bót. Áður urðu menn að afklæðast úti og hrjóstrugt, einkum utan tll. — Jarðhitinn skapar þar þó nokkra ræktunarmöguleika. Nú býr þar þýskur maður, Ernest Fresenius, sem hefir leigt landið til ræktunar og ábúðar. 3- Síðastliðið sumar var eg í Nesinu hálfs mánaðar tíma. Eg hafði ver- ið þar áður fyrir nokkrum árum og lært að synda hjá Hirti Kristmunds- syni frá Rauðamýri, sem þá var þar sundkennari. Síðan hafði alt af verið kært með okkur Hirti. Nú, þegar eg vissi, að Hjörtur var kaupmaður á Árngerðareyri, fanst mér “vík milli vina,” en þó vel fær. Brá eg mér því yfir Isafjörðinn eitt laugardagskvöld, að finna hann. Vorum við saman um kvöldið og skemtum okkur við að rifja upp fornar endurminningar, eins og gengur og gerist. Gengum við um úti, okkur til skemtunar, unz komið var fram yf- ir miðnætti. Eg ætlaði að vera þar hjá Hirti um nóttina, og ef til vildi lengur, sem og varð. Dvöl sú reyndist mér hin skemti- Iegasta, því að alt lagðist þar á eina sveif, Hjörtur, sem eg hafði ekki séð um óratíma, Sigurður Þórðar- son, húsbóndinn, sem er maður skemtilegur með afbrigðum, og kona hans, Ásta. Eins og Atli sagði um hinn göfugasta landnámsmann,- Geirmund heljarskinn, að eigi myndi hann skorta mat, svo mætti og segja um heimili þeirra hjóna, að þar skortir hvorki hús, vistir né höfingskap, er gesti ber að garði. 4- Morguninn eítir stigum við Hjörtur, ásamt Sigurði Þórðarsyni, á hestbak og hleyptum úr hlaði. Riðum við sem leið lá til Rauða- mýrar, en þar ’oýr merkisbóndinn /Halldór Jónsson. Steig hann á bak hesti sínum og reið með okkur niður að ánum, því að við höfðum vörpu meðferðis og ætluðum að draga á fyrir silung. Þeir bændur voru þá spölkorn á undan. Mér varð litið á Halldór bónda, þar sem hann reið niður traðirnar. —Því skyldi enginn trúa, að þetta væri hálf áttræður öldungur, sem unnið hefir baki brotnu alla æfi, hugsaði eg. Nei, Halldór var enginn öldung- ur, þrátt fyrir aldurinn. — Hann var enn þá ungur i hreyfingum og enn yngri í anda. Ungur fékk hann beztu búnaðarmentun, sem þá var hægt að fá á Norðurlöndum, og nú hefir hann ræktað jörðina í meira en hálfa öld. Hann var full- ur áhuga, þegar hann byrjaði. Það voru fleiri. Hann er fullur áhuga enn, eftir öll þessi ár. Það eru færri. — Hann vinnur enn að aukn- um jarðabótum á jörð sinni og þvert á móti venjulegu lögmáli aldursins, virðist hann æ færast í meira og meira, eftir því sem aldursárin hans færast nær áttunda tuginum. — Hann gengur enn þá eins og víking- ur að hverju verki, og það er haft eftir honum, að hann vilji helst deyja við orfið eða rekuna.—Mætti honum verða að ósk sinni, því að slíkum bardagamönnum hæfir það eitt, að falla í miðri orustunni með vopn i höndum. Eg hrökk upp úr þessum hug- leiðingum við það, að Hjörtur á- varpaði mig: —Eg býst við, að það sé ekki nokkur branda i ánum. Þær eru svo vatnslitlar núna. (Framh. á bls. 5) SAMKOMA. Kvenfélag Fyrsta lúterska safn- aðar (yngri deildin) heldur sam- komu (concert and tea) í kirkjunni á þriðjudagskveldið 13. febrúar klukkan 8.15. Þær Mrs. G. F. Jónasson, Mrs. Ben. Baldwin, Mrs. Page og Mrs. Czerivinski taka ámóti gestunum. Hinn velþekti söngflokkur “The Vesper Choir” skemtir um kveldið, undir stjórn Mr. Archer McFadyen, og meiga menn eiga von á góðri skemtun. Þessir taka þátt í skemti- skránni: Mrs. Olga Irwin, Mrs. Gladys Whitehead, Mrs. Sigrid Olson, Miss Eva Eagleton, Miss Mary Lawson, Mrs. Maude Scarath, Mr. Linton Kent, Mr., Mr. Arthur Deihl, Mr. A. Thomson Hay, Mr. (íeorge Douglas og Dr. J. Lawson. Til aðstoðar verður Mr. Isaac Law- son. Organisti Mr. Herbert Sadler. Samkoma karlaklúbbsins Karlaklúbbur Fyrstu lútersku kirkju hélt samkomu sína á þriðju- dagskveldið 30. jan. eins og auglýst hafði verið. Samkoman var í alla staði hin vandaðasta og skemti fólk sér hið bezta. Forseti klúbbsins, Mr. Fred. Bjarnason stjórnaði samkomunni. Skemtiskráin byrjaði með þvi að átta manna flokkur söng þrjú ís- lenzk lög: “Tárið,” “Táp og fjör,” og “Kvöldklukkan.” Söngurinn tókst ágætlega. Þessir menn voru í flokknum: Mr. J. Bjarnason, Mr. M. Paulson, Mr. A. Ingjaldson. Mr. J. Marteinsson, Mr. A. Bardal, Mr. H. Bíardal, Mr. V. Bardal og Mr. L. Melsted. Þar næst flutti Dr. Jón Stefáns- son erindi, sem hann nefndi “The Old Argyle Settlement,” og fylgdu því myndir af flestum frumherjuni bygðarinnar, sem Dr. A. Blöndal sýndi. Erindi Dr. Jóns var mjög fróðlegt og ágætlega samið. Dr. Blöndal sýndi þar næst mynd- ir af nokkrum verkum Einars Jóns- sonar myndhöggvara og hafði lækn- irinn teiknað þær og útbúið þannig, að hægt var að sýna þær með skuggamy ndavél. Voru teikning- arnar prýðilega gerðar eins og við mátti búast af Dr. Blöndal. Næst söng flokkurinn tvö lög: “The Minstrel Boy” og Negro spiritual; var gerður góður rómur að hvorutveggja. Mr. Gunnlaugur Jóhannsson las þá upp “Gamankvæði um gamla ís- lendinga” og hlóu menn dátt að vís- unum, enda voru hær vel fluttar. Seinasta atriði á skemtiskránni var áframhald af “Family Album” Dr. Blöndals, og nefndi hann það “Our Girls of Yesterday”; var ó- spart •hlegið að ýmsum þessara mynda. Að lokum voru bornir fram ís- lenzkir réttir og settust þá allir að borðurn. Flestum sem þarna voru kom sam- an um að sjaldan hefði þeir notið betri skemtunar. Lögberg þakkar kærlega öllurn þeim, sem hafa orðið við áskorun blaðsins um að greiða áskriftargjöld sín, sérstaklega vill það þakka þeim sem borgað hafa fyrirfram. Yfir- leitt má segja að áskrifendur hafi brugSist mjög vel við tilmælum blaðsins, þótt enn séu allmargir, sem nokkuð skulda. DÁNARFREGN. Mrs. Sigríður Goodman, 932 Minto St., Winnipeg andaðist sunnudaginn 4. febrúar, fimtíu og átta ára að aldri. Hin látna verður jarðsungin frá Fyrstu lútersku kirkjunni á mið- vikudaginn 7 febrúar, kl. 2 e. h. Mrs. Goodman var elzta barn þeirra hjóna Þorvarðar heitins og Guðrúnar Sveinson. Hún var tví- gift, fyrri maður hennar var Har- aldur Sigurðsson. en seinni maöur Jón Goodman. Systkini hinnar látnu eru þau Mrs. C. B. Julius, Mr. J. J. Swan- son, Mr. S. Swanson í Edmonton, Mrs. H. G. Hinriksson og Mrs. J. Drysdale. Einnig voru uppeldis- syskini hennar þau Mr. Oli Björn- son og Mrs. J. E. Peturson frá Hensel, N. D. TILMJELI. Lögberg vill mælast til þess að vinir blaðsins, fjær og nær, sendi því allar þær fréttir, semi almenning kann að varða. Fréttir úr borginni og hinum ýmsu bygðum Islendinga eru lesendum ætíð kærkomnar og vill blaðið gjarnan prenta eins mikið af þeim og rúm leyfir i það og það skiftið. Heimilisiðnaðarfélagið heldur næsta fund að heimili Mrs. C. S. Johnson, 985 Warsaw Ave., á mið- vikudagskvöldið 14. febrttar. Þægi- legast mun vera að taka “Stafford car” á horni Stafford og Warsaw og ganga svo hálfa aðra “block” vest- ur. Þetta verður ársfundur deild- arinnar og meðlimir því beðnir að f jölmenna. Stjórnarnefnd deildarinnar Frón er nú að undirbúa hið árlega íslend- ingamót, sem haldið verður mið- vikudagskvöldið 21. febrúar, í Goodtemplarahúsinu. Verður mjög vönduö skemtiskrá. Má sérstaklega minnast á Ófeig lækni Ófeigsson er flytur erindi, og söngvarann Sigurð Skagfield, sem í sjálfu sér ætti að verða hvöt fyrir íslendinga að troð- fylla húsið. Rausnarlegar, íslenzk- ar veitingar verða frambornar og sérstakt leyfi fengið svo fólk megi daúsa til kl. 2 eftir miðnætti. Is- lendingamótið er æfinlega stærsta og fjölsóttasta samkoma Islendinga á vetrinum og er vonast eftir að það verði ekki sízt nú. Auglýsing- ar um skemtiskrá og annað fleira viðvíkjandi mótinu koma í næstu blöðurrl. Ur bænum Robert Forke látinn \

x

Lögberg

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.