Lögberg - 01.03.1934, Blaðsíða 1
47. ARGANGUR
i WINNIPEG, MAN., FIMTUDAGINN l.MARZ 1934
NÚMER 9
FRA I5LANDI
Skœrur með Rússum og
Japönum
Flugvélar Rússa sveima yfir Manchuriu. Japan sendir
advörunarskeyti til Moscow.
BALFARAFéLAG
STOFNAÐ í REYKJAVIK
Fyrir skömmu héldu nokkrir
menn í Reykjavík undirbúningsfund
undir stofnfund bálfarafélags hér á
landi.—Þessir menn boÖuðu síðan
til stofnfundar í gær, 6. febr., og
var hann haldinn í Kaupþingssaln-
um.
Dr. Gunnl. Claessen skýrði frá
undirbúningi þessa stofnfundar og
stakk upp á Birni Ólafssyni stór-
kaupmanni sem fundarstjóra og til-
nefndi hann Ágúst Jósefsson til
fundarritara.
Hér á landi vöktu þeir Guðmund-
ur Björnsson fyrv. landlæknir og
Steingrímur Matthiasson læknir
fyrst máls á líkbrenslu og skrifuðu
um það í Skírni 1905 og 1913. —
Dr. Claessen hélt fyrirlestur hér í
Reykjavík 1915 um bálstofur.
Sveinn Björnsson, sendiherra, bar
fram á Alþingi 1915, frumvarp til
laga um bálfarir hér á íslandi og
öðlaðist það þá gildi. 1930 var
nefnd skipuð til þess að gera tillög-
ur um tilhögun bálfaranna. Nefnd-
in lagði til að bálstofa yrði bygð i
gamla Kirkjugarðinum við Ljós-
vallagötu. Lá málið síðan og var
ekkert gert í því fyr en Ágúst Jó-
sefsson gerði fyrir skömmu fyrir-
spurn til borgarstjóra um það, hvað
málinu liði. Hefir borgarstjóri nú
gert ráð fyrir að bálstofan verði
bygð sunnanvert við kirkjugarðinn
og íalið húsameistara ríkisins að
gera uppdrátt að bálstofu og áætla
kostnað.
—Eftir frásögn N. dagbl.
FRA ISAFIRÐI
Aðal fundur verkamannafélagsins
Baldur var haldinn hér 30. jan. Á
þriðja hundrað manns sóttu fund-
inn. í stjórn voru kosnir: for-
maður Hannibal Valdimarsson ög
meðstjórnendur Sigrún Guðmunds-
dóttir, Sverrir Guðmundsson, Jón
Brynjólfsson og Halldór Ólafsson
múrari. Stjórnin hlaut 177 atkv., en
listi kommúnista 35 atkvæði. —
Samkvæmt tillögu tveggja verka-
manna var 4 kommúnistum vikið úr
félaginu rrteð 117 atkv. gegn 42, en
eftir tillögu Finns Jónssonar var
samþykt að láta hina brottviknu
halda vinnuréttindum. — Aðal-
fundur íþróttafélags ísfirðinga var
haldið 31. jan. Stjórnin var end-
urkosin og er ' hún þannig skipuð :
formaður Grirnur Kristjánson og
meðstjórnendur: Baldvin Kristjáns-
son og Guðmundur Lúðvíksson.—
Aflatregða er nú hér •og gæftaleysi.
Tveir enskir botnvörpungar hafa
komið hingað síðustu daga, annar
með vír í skrúfunni, en hinn með
bilað stýri.—N. dagbl. 4. febr.
FRA AKUREYRI
Skákþing íslendinga hefst á Ak-
ureyri 11 febr. Skákkonungur ís-
lands, Ásmundur Ásgeirsson, er á
Akureyri um þessar mundir og tefl-
ir fjölskákir við skákfélag Menta-
skólans og þreytti hann fjölskák
samtímis við 31 nemanda úr Menta-
skólanum á Akurevri og vann 18,
gerði 7 jafntefli og tapaði 6.
—N. dagbl.
SILFURBRÚÐKA UP
áttu 5. febr. Þórður Sveinson lækn-
ir á Kleppi og kona hans. Þðrður
og kona hans eiga nú 7 uppkomin
börn, 6 pilta og eina stúlku. —
Þórður Sveinsson hefir verið lækn-
ir á Kleppi siðan spítalinn byrjaði
og átti hann 25 ára starfsafmæli í
fyrravetur.—N. dagbl.
SOGSVIRKJUNIN
Síðastliðið vor var tveimur norsk-
um verkfræðingum, A. B. Berdal
og Jacob Nissen falið að rannsaka,
hvernig hagfeldast mundi vera að
haga framhaldsvirkjunum til full-
nægingar rafmagnsþörf Reykjavik-
ur og gera tillögur þar að lútandi.
Þessir verkfræðingar hafa nú
sent bæjarstjórn tillögur sínar, og
er aðalniðurstaða þeirra sú, að
hentugast sé að virkja Ljósafoss í
Soginu.
Stofnkostnaður þessarar virkjun-
ar verður samkvæmt áætlun verk-
fræðinganna þessi:
Aflstöðin í Ljósafossi,
samkv. uppdrætti nr.
•100 og áætlun nr. 7, kr. 4,490,000
Háspennulína til Rvíkur 465,000
Spennistöð við Rvík 375,000
Aukning bæjarkeríisins 1,500,000
Samtals kl. 6,830,000
—Eftir frásögn Vísis.
IBUATALA SIGLUFJARÐAR
var um síðustu áramót 2,329, eða
um 150 manns fleiri en um áramótin
1932—33. 67 börn fæddust á ár-
inu, dauðsföll voru 27, 30 börn
fermdust og 18 hjónavígslur fram-
kvæmdar.—N. dagbl.
SKJ ALD ARGLÍM A
ARMANNS •
verður næstkomandi þriðjudag (6.
febr.). Glímumenn verða frá tveim-
ur félögum, Ármann og K. R. Frá
Ármann: Lárus Salómonsson
(glímukóngur), Georg Þorsteinsson,
Ágúst Kristjánsson og Skúli Þor-
leifson. Frá K. R.: Ingimundur
Guðmundsson, Jóhannes Bjarnason,
Jóhann Ingvarsson og Ágúst Sig-
urðsson.—N. dagbl.
NÝLATINN
er að Vestur-Fífholtshjáleigu í Vest-
ur- Landeyjurrt, Daníel Halldórsson
á 99. aldursári.
BILFÆRT
er, nú frá Akureyri um Vaðlaheiði
og alla leið til Húsavíkur. Sigurður
á Fosshóli fór nýlega þessa leið.—
N. dagbl. 3. febr.
VATNAVEXTIR I BORGAR-
FIRDI OG AUSTANFJALLS
Miklir vatnavextir voru í Norð-
urá á fimtudagskvöld og aðfaranótt
föstudags. Var flóðið svo mikið að
flæddi yfir allan dalinn, og var það
álíka mikið og flóðið mikla í sumar.
Bifreiðaferðir teptust alveg svo
pósturiún að norðan komst ekki til
Borgarness fyr en á síðari hluta
föstudags. Skemdir urðu á vegin-
um við Ferjukotssíkið. Er því ekki
bílfært þessa leið eins og stendur,
og er talið að taki 3—4 daga að gera
við þetta.—Austanf jalls urðu einnig
miklir vatnavextir. Uppfyllingin
báðumegin við brúna á Eystri-Rang-
á eyðilagðist, og eru samgöngur því
algjörlega teptar þar austur yfir.
Byrjað er að gera við skemdirnar,
og mun það taka nokkra daga. —
Vatnið er nú að mestu hlaupið úr
ánum. Þverá óx einnig mikið, en
engar skemdir hafa þó orðið,
N. dagbl. 4. febr.
ATVINNULEYSINGJA-
TALNING
hér í Reykjavík lauk í gærkvöld, 3.
febr., og hafði staðið í þrjá daga.
Alls gáfu sig fram 526 atvinnuleys-
ingjar og voru þar á meðal nokkrar
konur.—N. dagbl.
IIUDSONSFLÓA BRAUTIN
FULLGERÐ
Sambandsþingið afgreiddi þann
23. febrúar, 550,000 dollara f járveit-
ingu til Hudsonsflóa brautarinnar,
og verður henni lokið að fullu, þeg-
ar fé þetta hefir verið notað. Allur
kostnaður við brautina hefir orðið
53 miljónir dollara; þar með talinn
kostnaðurinn við Nelson höfnina,
sem siðar var hætt við.
Manion, j árnbrautarmálaráðgj afi,
segir að umferð og flutningur með
brautinni muni stórum aukast á
komandi sumri. Hann sagði einnig
að stjórnin væri nú að semja við
brezku félögin um lækkun á vá-
tryggingargjöldum og myndi þá hag-
kvæmara að nota sjóleiðina til
Churchill en verið hefir.
ENN UM KOSNINGAR
Síðustu daga hafa ýmsir verið að
geta þess til að kosningar til sam-
bandsþings væri í vændum. Segja
blaðamenn frá Ottawa að margt
bendi til þess að svo geti orðið, svo
sem löggjöfin um stofnun aöal-
banka, rannsóknarnefnd þingsins,
meiri tilhliðrunarsemi gagnvart and-
stæðingum í stjórnmálum, og margt
annað, sem aukið gæti vinsældir
stjórnarinnar.
Hæpið er þó að trúa þessum orð-
rómi, enda mjög ólíklegt að stjórn-
in vilji eiga undir því að gariga til
kosninga í sumar.
DIMITROFF LÁTINN LAUS
Búlgaríumennirnir þrír, Dimit-
roff, Taneff og Popoff, sem kærðir
voru um að vera valdir að þinghús-
brunanum i Berlin sið;.sthðið vo»,
hafa nú verið látnir lausir. Rann-
sóknarrétturinn í Leipzig sýknaði þá
alla fyrir nokkrum vikum. en Göring
lét halda þeim í gæzluvarðhaldi, og
óttuðust margir að þeim yrði mis-
þyrmt af leynilögreglu hans.
Rússar höfðu boðið mönnum
þessum þegnréttindi, og til Rúss-
lands voru þeir sendir. Þeir flugu
til Moscow, og var þeim þar tekið
með mestu virktum.
Hin djarfa og karlmannlega fram-
koma Dimitroffs fyrir réttinum
vakti almenna aðdáun, og urðu mörg
stórblöð Evrópu til að taka svari
hans. Hann segir að Nazistar hafi
sjálfir látið brenna þinghúsið.
RANNSÓKNARNEFNDIN I
TORONTO
Nefnd sú, sem skipuð var af
stjórninni til að rannsaka verzlunar-
og iSnaðarmál landsins, hefir und-
anfarandi daga verið að grenslast
eftir kjörum verkafólks í Toronto.
Nú hefir sannast að márgir kaup-
menn og verksmiðjueigendur borga
svo lágt kaup, að þeir, sem hjá þeim
vinna, verða í mörgum tilfellum að
þiggja styrk af borgarráðinu. Víða
fá heimilisfeður ekki meira en 10
dollara kaup á viku. Aðrir vinna
9 stundir á dag, fyrir 15 cents á
klukkustundina. Eftirlitsmenn lag-
anna segja að auðvelt sé að fara í
kringum lámarksákvæði kaupgjalds,
og virðist þau koma aS litlu gagni.
Frumvarp hefir verið lagt fyrii
kongress Bandaríkjanna þess efnis,
að stjórninni ^sé falið að leggja al-
gert bann við innflutning á fiski til
Bandaríkjanna.* Þetta snertir aðal-
lega fiskiveiðamenn þessa lands og
gæti svo farið að sú atvinnugrein
eyðilegðist nteð öllu, hér í fylkinu
að minsta kosti, ef lögin ná fram að
ganga. Bland, þingmaður demo-
krata frá’ Virginia, er höfundur
frumvarpsins, og því líklegt að
stjórnin sé því ekki mótfallin.
VICTOR ROSS LATINN !
1
Victor Ross, varaforseti Imperial
Oil félagsins er nýlátinn í Toronto,
57 ára að aldri.
Mr. Ross var einn af hæfustu
framkvæmdarstjórum þessa lands,
og maður gáfaður.
Félagið, sem hann starfaði fyrir
er nátengt hinu alþekta Standard
Oil. of New Jersey félaginu, og eitt
stærsta auðfélag hér i landi.
Mr. Róss var canadiskur að ætt
og fékst lengi við blaðamensku, þar
til hann var gerSur að aðstoðar-
manni Walters C. Teagles, sem þá
var forseti Imperial Oil.
FJA RHA GSAÆTLUN
FYLKISINS LÆGRI
Bracken stjórnarformaSur lét þess
getið í þinginu á þriðjudaginn var,
að fjárhagsáætlunin fyrir næsta ár,
yrði talsvert lægri en í fyrra. Á-
ætluð útgjöld eru nú $13,563,973,
en í fyrra $14,537,023.
Fjárlögin hafa ekki enn verið
lögð fyrir þingið, en talið líklegt að
svo verði gert á föstudaginn. Fjár-
málaráðherra, E. A. McPherson, er
nú sem stendur við slæma heilsu, og
því líklegt að Bracken muni sjálfur
bera framl fjárlagafrumvarpið.
SÓSÍALISTAR SIGRAÐIR I
AUSTURRIKI
Þessa dagana ber lítið til tíðinda
í Austurríki. Sósíalista-byltingin
var brotin á bak aftur af mikilli
grimd, og hefir stjórn Dulfuss
kanzlara tekist að koma á bráða-
byrgðar friði.
Nazistar styrkjast óðum, en til að
draga úr áhrifum þeira, er nú mik-
ið talað um að koma Archduke Otto
Hapsburg til valda. Hann er af
gömlu Hapsburg-ættinni og hefir
gert tilkall til arfleifðar sinnar á-
rangurslaust í mörg ár.
ítalir hafa nú 75 þúsund hermenn
á landamærum Austurríkis, sem
reiðubúnir eru að skerast í leikinn,
ef þýskir nazistar geri nokkra til-
raun til að ná landinu undir sig.
KOMMÚNISTAR DÆMDIR
1 FANGELSI
Kommúnistar tveir, M. J. Forkin
og William Skinner, voru á mánu-
daginn var, dæmdir í fangelsi fyrir
þátttöku sína í verkfallinu hjá Park-
hill Bedding Co. verðstæðinu hér í
borg þann 24. júlí s. 1.
Þótti það sannað að báðir þessir
menn hefðu æst til óspekta og
skemda í verkstæðinu og kvað
Whitla dómari það varða við lög.
Skinner var dæmdur til eins árs
fangavistar, en Forkin aðeins til
f jögra mánaða, enda varð ekki sann-
að að hann hefði gert neinar skemd-
ir, aðeins reynt til að æsa verkalýð-
inn.
Forkin er vel þektur hér í borg
fyrir afskifti sín af opinberum mál-
um. Hann sótti um borgarstjóra-
stöðuna, sem talsmaður kommúnista,
síðastliðið haust.
Samt þykir líklegt að ráðstöfun
þessi mæti nokkurri mótspyrnu af
hálfu hinna öflugu fiskifélaga í
norðurríkjunum, sem fengið geta
betri og ódýrari vöru frá Manitoba
og norður-vötnunum, en að austan,
eftir því sem fróðir menn segja.
Stjórn Bandaríkjanna vill, eins og
gefur að skilja, bæta hag fiskimanna
sinna, en óskandi væri að þvi yrði
við komið án þess að eyðileggja
þann markað, sem við Canadamenn
höfuð ætíð átt vissan þar í landi,
fyrir fiskframleiðslu okkar.
Fregnir frá Tokio segja að flug-
vélar Rússa sjáist nú hvað eftir ann-
að yfir Manchuriu og Kóreu. Einn-
ig er sagt að Rússar hafi skotið nið-
ur japanska flugvél og sært flug-
manninn. Óvinátta með þessum
þjóðum fer nú dagvaxandi og óttast
sumir að til ófriðar rnuni draga með
vorinu.
Utanríkisráðuneytið í Tokio hefir
sent aðvörunarskeyti til Moscow, og
heimtar að Rússar láti af óspektun-
um. Flestir álíta þó að Rússar vilji
Lýðskólar í Manitoba
í “Lögbergi” 16. nóvember síðast-
liðinn var ritgerð, “150 ára minning
Grundtvigs.” Var þar minst á meðal
annars, og með eftirfylgjandi orð-
um á starf hans við stofnun lýð-
skóla í Danmörku:
“Á lýðskólunum skyldi fyrst og
fremst lögð áherzla á móðurmáls-
kenslu og þjóðleg fræði yfirleitt . . .
Hann hafði í sannleika sagt vakið
þjóð sína, — vakið hana til viður-
kenningar og umhugsunar um fortíð
sína og fornnorrænar bókmentir . . .
Danir eru taldir einna bezt mentaða
þjóðin á Norðurlöndum, eigi sizt
hvað félagslíf og samtök snertir . . .
Dönsk bændastött hefir í mörgu til-
liti verið brautryðjandi annara
Norðurlandaþjóða, svo sem í sam-
vinnu f élagsskapnum.’ ’
Nú hefir alda borist yfir haf og
land frá Danmörku og starfi
Grundt-vigs biskups til Manitoba.
Er vonandi að alda sú endurnýist
hér og breiðist víða um land. Þann-
ig eru málavextir: I sumar sem leið
fengu sex fræðimenn frá Ameríku
styrk til Danmerkurferðar, að kynn-
ast skólafyrirkomulagi þar, sérstak-
lega lýðháskólum þeim, sem kendir
eru við Grundtvig biskup. Einn af
þessum sex var Mr. Andrew Moore,
eftirlitsmaður miðskóla hér í fylki.
Voru menn þessir um þrjá mánuði
á ferðalagi sínu, og þegar heim kom
var auðheyrt á Mr. Moore, sem er
maður vel gætinn, að honum þótti
rnjög svo mikið til koma, það sem
hann hafði til lýðskólanna séð. Tal-
aðist svo til að hann flutti fyrirlestur
um danska skólafyrirkomulagið fyr-
ir Manitou Bbard of Trade, og fá-
um öðrum gestkomandi, snemma í
haust sem leið.
Mr. Moore skýrði þar hvernig
þjóðmegun öll heíði verið á mjög
lágu stigi í Danmörku, sérstaklega
eftir stríðið langvaranda, sem er
kent við Napoleon, og svo eftir stríð-
ið við Austurrriki og Prússland ár-
ið 1864, og hvernig lýðháskólarnir
hafi tekið mjög stóran þátt í að end-
urreisa þjóðina.
Skólar þessir liafa lagt áherzlu á:
(1) Föðurlandsást.
(2) Tilhlýðilegt útlit hvað jarð-
yrkju snertir.
(3) Að losa fólk frá stéttavaldi,
og kenna almúganum að nota mátt
sinn stjórnarfarslega.
(4) Víðsýn menning til undir-
stöðu sérfræðisnáms á búnaðarskól-
um, og gott siðferði.
(5) Að undirbúa ungt fólk að
mæta skynsamlega lifsbaráttunni.
Þeir hafá séð að landmaðurinn
verður að hafa andlegt samrými við
náttúruna umhverfis, og starf þeirra
hefir leitt til stórkostlegra umbóta á
landbúnaði og landsháttum, þar til
sveitalíf í Danmörku aðlaðar á sinn
hátt fram yfir bæjarlif. Mr. Moore,
í útvarpsræðu nýfluttri, sagði að
ekki berjast að svo stöddu, en Jap-
anir hafi ekki eftir neinu að bíða
og vilji eflaust láta til skarar skríða
sem fyrst.
Nýlega afgreiddi japanska þingið
280 miljón dollara fjárveitingu til
hers og flota. Það er stærsta upp-
hæð, sem enn hefir fengist til her-
útbúnaðar þar í landi á friðartím-
um.
Rússar eru einnig smeikir og greiða
offjár til landhersir.s og flugliðsins,
sem hvorttveggja er nú mjög öflugt.
mælikvarði lífs (standard of living)
væri á hærra stigi hjá dönskum
bændalýð en hjá nokkrum öðrum
bændalýð í heimi. Óneitanlegt er, að
við öll, hvar sem í heimi er, kjósum
ekki þann bezta mælikvarða, sem til
er, og skortir oft það andlega eða
sálfræðilega, og það, sem lýtur að
samúð við náungann.
Hvað viðvíkur kenslu á lýðhá-
skólunum dönsku, fyrir utan ofan-
nefnd fög, má nú telja söng, sögu
þjóðarinnar og líkamsæfingar. Ekki
alls fyrir löngu kom Niels Bukh til
Winnipeg, með líkamsæfinga-flokk,
og þótti þeim, sem á horfðu, að
hann myndi eiga fáa jafningja.
Maður mundi ætla að samvinna,
stjórn og hagfræði myndi teljast
hér með námsgreinum, en til að
víkja aftur að orðum Mr. Moore:
“samvinna er ekki kend, hún er
þáttur i daglegu lífi þar,” og góð
þekking á stjórnfræði kemur af
fjörlegum umræðum um pólitísk
málefni. Samfélögin dönsku eru
heimsfræg, og myndu þau vart vera
til, ef ekki hefði verið fyrir lýð-
skólana. ■
Nú skal víkja með fáum orðum
til Manitou. Álit þeirra, sem heyrðu
á fyrirlestur Mr. Moore var, að þótt
kringumstæður í Danmörku og í
Canada væru ólikar, þá væri hug-
myndin mjög góð og uppbyggileg,
og mætti nota kjarnann. Eftir
nokkrar umræður og umhugsun var
stofnað til “Manitou Folk School.”
Bezt þótti að fara hægt í byrjun, og
er stórt bil milli lýðskóla í Dan-
mörku og hins svonefnda lýðskóla i
Manitou. Hér fylgja nokkur at-
riði, sem skýra stuttlega frá félags-
skipun og starfi:
1. Fimrn manna stjórnamefnd
(directorate), sem gerif- jafnan
grein fyrir starfi sínu til Board of
Trade.
2. Stjórnarnefnd kýs formann
skólans, og þarf hann ekki að vera
meðlimur Board of Trade.
3. Til að byrja með eru fimm
kennarar, og þar sem að álitið er að
fastakennarar við barnaskólann og
miðskólann hafi nægilegt starf af
því tæi, eru þessir fimm heimamenn
í þorpinu.
4. Skóli er á hverju þriðjudags-
kveldi, og skiftast námsgreinar
þannig:
(a) 8.00—8.25Landslög og
stjórnfræði.
(b) 8.25—8.40 Söngur.
(c) 8.40—9.05 Bókmentir.
(d) 9.05—9.20 Umheimsfréttir.
(e) 9.20—9.35 Líkamsæfingar.
5. Þess má geta hér, að menta-
málastjórinn hefir góðfúslega lánað
endurgj aldslaust, kennaraskólabygg-
inguna, og kennararnir setja ekki
kaup.
6. AHir, sem vilja, átján ára og
yfir, fá ókepis aðgang, og unglingar
(Framh. á bls. 8)
Innflutningsbann á fiski