Lögberg - 19.04.1934, Page 8

Lögberg - 19.04.1934, Page 8
LÖGBERG, FIMTUDAGTNN 19. APRÍL 1934 Ur bœnum og grendinni G. T. spil og dans, verður hald- iS á föstudaginn í þessari viku og þriðjudaginn í næstu viku í I.O.G.T. húsinu *á Sargent Ave. Byrjar stundvíslega kl. 8.30 að kvöldinu. 1. verðlaun $15.00 og átta verð- laun veitt, þar að auki. Ágætir hljóðfæraflokkar leika fyrir dans- inum.—Lofthreinsunartæki af allra nýjustu gerð eru i byggingunni. — Inngangur 25C.—Allir velkomnir. Skuldar-fundur í kvöld (fimtu- dag) Sófanías Hafstein, óðalsbóndi frá Pikes Peak, Sask., kom til borg- arinnar á dögunum. Hann kom hingað með hóp gripa, sem hann seldi á markaðinum hér í borg. Síð- an fór hann í kynnisför til Nýja Is- lands og svo til Lundar, Man., þar sem hann bjó fyrir mörgum árum. I fréttabréfi frá ársfundi Gimli- safnaðar, nýlega hér í blaðinu, hef- ir misprentast nafn Mr. Þórðar bónda ísf jörð, er lengi var formaður safnaðarins. Nafnið byrjaði með röngum upphafsstaf. Þetta leið- réttist hér með. Mr. Jakob Helgason, sem dvalið hefir í borginni í vetur, er nú flutt- ur á bújörð sína í nánd við Dafoe, Sask., þar sem hann verður í sumar. Mr. og Mrs. Ingólfur Bjarnason, sem dvalið hafa hér í borg, í Hecla Apt., í nokkur undanfarin ár, hafa nú flutt sig til Leslie, Sask. Veitið athygli auglýsingu Thor- lakson og Baldwin, sem birtist á öðr- um stað hér í blaðinu. Mr. Bald- win, sem i mörg ár starfaði fyrir Dingwalls, hefir nú gengið í félag með Carl Thorlakson. Þeir félagar geta nú leyst af hendi alt, sem að gulL og úrsmíði tilheyrir. Þeir Lawrence Ingimundarson, Oscar Eyjólfsson, Clifford Shew- felt, Andy Walterson og J. Johnson, allir frá Lundar, Man., komu til borgarinnar á laugardaginn var. Þeir komu á bíl, og munu vegir orðnir slarkfærir þaðan að norðan. Margir íslendingar komu til borg- arinnar á mánudaginn, norðan frá bygðunum við Manitobavatn. Þessa er blaðinu kunnugt um, frá Lundar, Man.: Dr. Númi Hjálmarsson, K. Byron, J. B. Johnson og kona hans, Mrs. S. Thorgrímsson, D. Lindal, I. Lindal, L. Breckman, E. Fjeldsted, J. Halldórsson, G. Sigurdsson, K. Ólafsson, E. Ólafsson, I. Johnson. Frá Silver Bay komu þeir Heiðmar Björnsson og Joe Austmann. Jón Bjarnason Academy—Gjafir: Bjarni Marteinsson, Hnausa, Man.............$ 3-°° K. Valgarðsson, Gimli, Man................ 5-°° Taflfél. íslendinga í Wpeg. 25.00 G. W. Goodall, Wpeg........ 1.00 S. Sigurdson, Calgary Alta... 2.00 Mrs. Anna Austman, Sylvan, Man............... 2.00 B. Thorbergson, Bredenbury 5.00 Glenboro Ladies’ Aid, Glenboro, Man............ 10.00 Th. Björnson, Hensel, N.D... 3.00 Kvenfélag Vídalíns safnaðar, Hensel, N.D.............. 10.00 Kvenfélagið “Liljan”, Hnausa, Man.............. 10.00 Lutheran Ladies’ Aid, Baldur, Man.............. 10.00 Ungtemplarastúkan Nr. 7, I.O.G.T., Gimli, Man.... 10.00 Með vinsamlegu þakklæti, S. W. Melsted, gjaldk. 673 Bannatyne Ave., Winnipeg, Man. Munið eftir sumarmálasamkom- unni í Fyrstu lútersku kirkju í kveld (fimtudag.) Gott og hlýtt herbergi til leigu með sanngjörnu verði, á mjög hent- ugum stað, 762 Victor St., Sími: 24500. Til leigu 1 eða 2 herbergi, 660 Victor St., sími 71 177. Sigurður Vopnfjörð frá Árborg kom til borgarinnar á föstudaginn. Hann hélt heimleiðis á þriðjudag- mn. “The Road to the City,” leikur- inn, sem nemendasamband Jóns Bjarnasonar skóla sýndi á miðviku- dags- og fimtudagskveld í síðustu viku, tókst vel og var leikinn fyrir 1 fulu húsi bæði kvöldin. Leikendur fóru flestir vel með hlutverk sín, og var fólk mjög ánægt með þessa skemtun. Frímann Skaptason frá Ashern, Man., og Leo Barnes, frá Silver Bay, Man., komu til borgarinnar á miðvikudaginn í fyrri viku. Þeir innrituðust báðir í Jóns Bjarnason- ar skólann, til að ljúka tólfta bekkj- ar námi í vor. Mr. J. Helgason, Mrs. B. Bjarna- son og Mrs. J. Marteinsson, öll frá Langruth, Man., komu til borgar- innar á þriðjuðaginn. Margir fleiri munu hafa komið þaðan úr bygð, þótt blaðinu sé ekki um þá kunnugt. =t= Messuboð FYRSTA LOTERSKA KIRKJA Guðsþjónustur næsta sunnudag, 22. apríl, verða með venjulegum hætti: ensk messa kl. 11 f. h. og ís- lenzk messa klukkan 7 að kvöldi. Messur í Gimli prestakalli næsta sunnudag, þ. 22 apríl, eru áætlaðar þannig, að morgunmessa, verður í gamalmennaheimilinu Betel á venju- legum tíma, en kvöldmessa, kl. 7, í kirkju Gimli-safnaðar, ensk messa. —Þessu er fólk beðið að veita at- hygli og sinna að því er bezt má verða. Sunnudagin 29. apríl verður mess- að í Geysiskirkju kl. 2 síðdegis, ensk messa í Arborg kl. 7.—S. Ó. Guðsþjónusta í kirkju Konkordia safnaðar boðast næsta sunnudag þ. 22. apríl, kl. 1 eftir hádegi.—S. S. C. Séra H. Sigmar messar í Fjalla- kirkju sunnudaginn 22. apríl, kl. 2 e. h. Sama kveld er ensk messa í JAkra undir umsjón ungmennafélags- ins, kl. 8 að kveldi. Offur til trú- boðs á báðum stöðum. Mannalát Ólína Kristin G. Stadfeld, 67 ára, dó þann 14. apríl í Riverton, Man. Jarðarförin fór fram frá Sambands- kirkju kl. 2 á miðvikudag og frá útfararstofu Bardals kl. 10.30 á fimtudagsmorgun. Hin látna lætur eftir sig eiginmann og átta syni, alla fullorðna. Hjónavígslur Gefin saman í hjónaband á prests- heimilinu í Árborg Mr. Axel Wil- helm Hákonson frá Riverton, Man., og Miss Clara Ingibjörg Thordar- son, Hnausa, Man. Framtíðarheim- ilið verður í Riverton, Man. Sókn- arpresturinn gifti. Gefin saman í hjónaband á heimili Mr. og Mrs. George Sigurðsson í Riverton, Man., Mr. Óskar Hólm Jörundsson, Lundar, Man., og Miss Grace Luella Sigurdsson kjördóttir Sigurðssons hjónanna. Framtíðar- heimili ungu hjónanna verður við Lundar, Man. All-fjölmennur hóp- ur vina og kunningja viðstaddur. Séra Sigurður Ólafsson framkvæmdi giftinguna. Mr. og Mrs. O. Anderson frá Baldur, Man., komu til borgarinnar um helgina. Mrs. B. J. Johnson frá Glenboro kom til borgarinnar í síðustu viku, og dvaldi nokkra daga. Gefin saman í hjónaband af séra Sigurði Ólafssyni í Árborg, Mr. Harold Densley, Árborg, Man., og Miss Sigurrós Guðmundsson, River- ton, Man. Sól í fangi víðavang vermir langar stundir; lög og tanga, lón og drang leggur vanga undir. Sigurjón Friðjónsson. Ljósmynd bjargar manni frá rafmagnsstóln um. í Los Angeles í Bandaríkjunum var skrautgripasali nokkur dæmdur til dauða nýlega fyrir það, að hafa myrt verzlunarfélaga sinn. Sam komulag þeirra á milli hafði ekki verið gott, að sögn verzlunarfólks- ins. Einhverju sinni fóru þeir tveir á skemtisiglingu út á höfnina í Los Angeles, en aðeins annar kom lif- andi úr þeirri för. Hann bar það, að félagi sinn hefði klifrað upp í siglu skemtisnekkjunnar, en hrapað niður á þilfarið og brotið hauskúp- una. Dómararnir trúðu ekki þeirri skýringu, einkum vegna þess að læknir sá, sem skoðaði líkið, áleit að maðurinn hefði verið drepinn með einhverju barefli. Var því kveðinn upp dauðadómur yfir sak- borningnum. Blöðin skýrðu allrækilega frá þessu máli. Suður-Ameríkumaður nokkur, sem hafði verið í Los Angeles og tekið mynd af höfn- inni þar, las frásögnina, og þá rifj- laðist það upp fyrir honum, að á | myndinni sást skemtisnekkja og að maður var að hrapa niður úr reið- anum á henni, en annar sat við stýr- ið og horfði skelfdur á. Sendi nú myndatökumaðurinn dómstólnum þessa ljósmynd og þektust báðir mennirnir á henni. Afleiðingin varð sú, að málið var tekið fyrir að nýju og nú var skrautgripasalinn sýknað- •ur.—Lesb. Mbl. Hestavernd í Englandi Það hefir verið venja i Englandi að flytja út alla afsláttarhesta. Hafa þeir aðallega verið fluttir til Frakk- lands og Spánar. En þar hefir þeim ekki verið slátrað, eins og eig- endur þeirra hafa ætlast til, heldur hafa hinir frönsku kaupendur látið þá ganga sér til húðarinnar fyrir vögnum, en Spánverjar hafa notað þá sem reiðskjóta á nautaötum sín- um. Hafa þeir keypt hestana svo lágu verði, að lítið gerir til þótt naut- in tæti þá lifandi í sundur með horn- unum. En þetta hefir vakið al- menna gremju í Englandi, og nú hefir breska þingið samþykt lög, sem banna útflutning á afsláttar- hestum.—Lesb. Mbl. Nokkur orð um vorn ÁBYRGSTA HREINSAÐA IS Þegar vér segjum að Arctic’s hreini og glæri is sé hreinni en drykkjarvatn yðar, þá er þar farið með staðreynd, sem auðvelt er að sanna. Ábyrgstur is er búinn til úr sama vatninu og þér drekk- ið, EN áður en þetta Shoal Lake vatn er sett í frystuvélarnar, þá er það tví-sýgjað og hreinsað. Þessi aðferð gerir það að verkum, að ísinn ve'rður hreinn og tær sem krystall, og það sem betra er, Arctic ísinn kostar ekki einu centi meira en vanalegur ís, sem tekinn er úr ám eða vötnum. Hvað sem yður kann að vera sagt, þá verið þess fulviss, að þessi tegund af is fæst hvergi nema hjá Arctic, og verður fluttur til yðar af starfsmönnum vorum, sem búa í nágrenni yðar. “LATIÐ ARTIC FÆRA YKKUR IS.” The Arctic Ice and Fuel Co. Ltd. Phone 42 321 Tvennir tímar Rússneskur fursti, Alexander Dabischa-Cotromanisz og kona hans, voru nýlega tekin föst í Berlin og kærð fyrir það, að hafa dvalist þar síðan 21. október s. 1. án þess að hafa gild vegabréf. Vegabréf, sem þau höfðu áður voru þá fallin úr gildi, og höfðu ekki verið endur- nýjuð. Var furstinn dæmdur í 50 marka sekt og kona hans í 20 marka sekt fyrir vanrækslu um endurnýj- un vegabréfa. Það upplýstist við yfirheyrslur í málinu að þau hjónin höfðu flúið frá Rússlandi þegar stjórnarbylt- jingin varð þar. Hafði furstinn áð- ur verið stórríkur maður, en um 12 ára skeið hefir hann haft ofan af fyrir sér með því að vera bílstjóri í Berlín. Tekjur hans af því hafa þó ekki hrokkið og var hann kominn í sveitarskuld.—Lesb. Mbl. ■ 224 NOTRE DAME AVE. Winnipeg, Man. Phonb 96 647 MEYERS STUDIOS LIMITED Largest Photographic Organiza- tion in Canada. STUDIO PORTRAITS COMMERCIAL PHOTOS Family Groups and Children a Specialty Open Evenings by Appointment LAFAYETTE HOLLYWOOD Studioa Studlos t*9 PORTAGE Av. SASKATOON Wlnnipetr, Man. Sask. We SpeclaUze in Amateur Developing and Printing THE WATCH SHOP WATCHES JEWELLERY CHIXA DIAMONDS SILVERWABE - SPECIAL ORDERS - ENGRAVING - DESIGNING PROMPT SER.VICE TO MAIL ORDERS Marriage Licenses Issued THORLAKSON & BALDWIN WATCHMAKERS & JEWELLERS 699 SARGENT AVE., WINNIPEG. Murphy’s 715«/2 Ellice Ave. PHONE 37 655 SPECIALIZING IN Fish and Chips per Order 15c Fish per Order 5c Chile Con Carne per Order 16c Salisbury Snacks lge. lOc small 5c Orders Delivered Anywhere 11. a. m. to 12.30 a.m. CURB SERVICE Open Sundays from 4 p.m.—1 a.m. Til Sölu 80 ekrur af landi, 60 ekrur akur og engi—eina mílu frá Gimli. Góðar byggingar, boraður brunnur, io kýr, mjólkursala 2,400 pund á mánuði. Nokkur ungviði, 3 hestar og nauð- synleg akuryrkjuverkfæri. Th. Isfjörð, -eigandi. M. KIM FURRIER 608 Winnipeg Piano Bldg. Now is the time to get your fur coat repaired, remodelled and stored. Prices lower during the quiet season. Ask for MR. GEORGE SIGMAR Representative. Who will give you special service. Phone 86 947 “Sum lög eru svo ströng að pau nd hvergi nærri tilgangi sinum.,, KARLMENN! Hið nýja klæSi í okkar vor-yfir- höfnum sýna glögglega hvers vegna að vörumerkl Firth’s er I svo miklu áliti. Pantið eina þessa yfirhöfn og takið eftir hve kraginn fer vel, hvað hún fer vel yfir axlirnar, hvað alt sniðið er gott og hvað sérstakir og smekklegir litirnir eru. ORÐ í TlMA TÖLUÐ Pantið strax alfatnað eða yfir- höfn, fyrir 21. aprll, og sparið peninga yðar. Tilsniðin föt .$19.50 til $40.00 Yfirhafnir ...$17.00 til $35.00 Buxur við gömlu fötin $5 og yfir Firth Bros. Ltd. 41 ?y2 PORTAGE AVE. Gegnt Power Bldg. ROY TOBEY, Manager. Talslmi 22 282 Jörð tímarit með myndum Afgreiðsla: Lækjargötu 6A, Reykjavík, Iceland Stærð árgangs 250 blaðsíður, “Sameiningar”-brot Greiðist við pöntun. Verð $1.25 PertKs Þér fáið aldrei betri fata- hreinsun fyrir jafn litla pen- inga, eins og hjá PERTH’S Smá viðgerðir ókeypis—öll föt ábyrgst gegn skemdum. Fötin sótt til yðar og skilað aftur. Sanngjarnt verð. Alt þetta styður að því að gera PERTH’S beztu fatahreinsun- arstofuna. 482 & 484 P0RTAGE AVE. Sími 37 266 Jakob F. Bjarnason TRANSFER Annut grelðlega um alt, sem aS flutningum lýtur, sm&um eða stór um. Hvergi aanngjamara verð HeimlU: 762 VICTOR STREET Sfml: 24 500 Distinguished Citizens Judges, Former Mayors, Noted Educationists, Editors, Leading Latvyers, Doctors, and many Prominent Men of Affairs—send their Sons and Daughters to the DOMINION BUSINESS COLLEGE When men and women of keen discernment and sound judgement, after full and painstaking enquiry and investigation, select the Dominlon Business College as the school in which their own sons and daughters are to receive their training for a business career, it can be taken for granted that they considered the many ad- vantages offered by the Dominion were too impnrtant to be over- looked. The DOMINION BUSINBSS COLLEGE today offers you the best business courses money can buy, and that at a cost that brings it easily within your reach. An ordinary business course no longer fills one’s requirements. It is the extra measure of skill and knowledge conferred by a Do- minion Training that singles one out for promotion in any modern business office. It has always been a good investment to secure a Dominion Train- ing—but today, more than ever, it is important that you secure the best obtainable in order to compete worthily ln the years to come. Onr Schools are Located 1. ON THE MALL. 2. ST. JAMES—Ooraer College and Portage. 3. ST. JOHNS—1308 Main St. 4. ELMWOOD—Corner Kelvln and Mclntosh. JOIN NOW Day and Evening Glasses You May Enroll at Any One of Our Four Schools With Perfect Confidence. 1

x

Lögberg

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.