Lögberg - 24.05.1934, Blaðsíða 3
LÖGBEKGr, FIMTUDAGINN 24. MAÍ, 1934
3
SOLSKIN
Sérstök deild ? blaðinu
fyrir börn og unglinga
Passíuleikamir í
Oberammergau
Rétt 300 ár eru sítian merkustu
helgileikirnir, sem sögur fara af,
hófust í Oberammergau í Bayern.
Eins og fyrir 300 árum eru það í-
búar þorpsins sjálfs, án íhlutunar
annarsstaðar frá, sem standa fyrir
leiknum og fara með öll hlutverkin.
Svo sem kunnugt er, er það píning-
arsaga Krists, sem er efni lcikanna
og eru þeir því réttnefndir passíu-
leikir, samanber passíusálma.
Tilefnið til þess, að passíuleik-
irnir hófust í Oberammergau, var
það, að skæð landfarsótt geysaði
yfir héraðið árið 1633 og hétu bænd-
ur því þá, ef sóttinni létti, að sýna
píningarsöguna í leik tíunda hvert
ár upp frá þvi. Sóttin rénaði í hér-
aðinu og þegar árið eftir, 1633,
sýndu þorpsbúar fyrsta passíuleik-
inn með aðstoð munkanna í Etdals-
klaustrinu í námunda við þorpið.
Síðan hafa leikirnir verið sýndir á
tiu ára fresti nokkurnveginn reglu-
lega, en voru þó á tímabili bannaðir
og stöku sinnum faríst fyrir sökum
ófriðar.
Munkarnir í Etdals-klaustri
sömdu fyrsta passíuleikinn, senni-
lega eftir enn eldri leik, en slíkir
leikir voru algengir mjög á miðöld-
um. Afrit af frumhandritinu, sem
leikið hefir verið 1662, er geymt í
Oberammergau, en presturinn Dai-
senberger (d. 1883) lagfærði text-
ann og færði í það form, sem nú er
haft við leikina.
Síðan eftir aldamót hefir verið
leikið 19I0, 1922 og 1930, en nú á
að leika aftur í sumar í tilefni af 300
ára minning fyrstu leikanna. Á
meðan á leikunum i Oberammergau
stendur, beinist að hinu litla sveita-
þorpi athygli manna hvaðanæfa í
heimi og tiigir þúsunda fara þang-
að pílagrímsför eða fyrir forvitnis-
sakir. Er óhætt að segja, að þorps-
búar lifi og hrærist fyrir passíuleik-
ina, eina, allir eiga þeir einhverja
hlutdeild í þeim og atvinnulíf þeirra
bvggist að miklu leyti á aðsókninni
að leikunum sjálfum og æfingaleik-
unum, sem fara fram milli aðaleik-
anna. Þorpsbúar eru hagleiksmenn
miklir og er eirkerasmíði og helgi-
myndaskurður aðalatvinnugrein
þeirra.
Leikirnir i Oberammergau eru
fyrir margra hluta sakir athyglis-
verðir og merkilegir. Ekki sízt vegna
þess, að allir leikendurnir eru ólærð-
ir leikarar, óbreytt bændafólk. Þar
sem langur tími liður milli þess að
leikið er, er það sjaldgæft, að sami
leikari fari með sama hlutverkið oft-
ar en éinu sinni, en hlutverkin hafa
þó sum hver gengið að erfðum í
sömu ættinni. Helstu “leikara-ætt-
irnar” i Oberammergau eru Lang-
og Rutz-ættin. Anton Lang,
skrautkerasmiður, lék hlutverk
Krists árin 1900, 1910 og 1922, en
1930 flutti hann formálann fyrir
leiknum. Það ár lék Alois Lang
hlutverk Krists. Þegar valið er í
hlutverkin i Oberammergau, er fyrst
og fremst farið eftir andlitsfallinu
og svipnum. Hárkollur og andlits-
farði þekkist ekki á þvi leiksviði;
fólkið í Oberammergau er m. a. þess
vegna óvenjulega hárprútt, karlar
láta hár og skegg vaxa og konur
klippa ekki hár sitt. Sögn er það, að
sami maðurinn hafi breytt svo um
svip, að hann hafi leikið hinn svip-
hreina Jóhannes postula sem ungl-
ingur, en Júdas á efri árum.
Leikirnir hafa alt af farið fram
undir berum himni og er svo enn að
öðru leyti en því, að skýli eitt mikið
hefir verið reist yfir áhorfenda-
svæðið og hljómsveitin sett á hreyf-
anlegan pall, sem skjóta má með
allri sveitinni á undir leiksviðið, ef
gera skyldi skúr meðan verið er að
leika. Leiksvæðið sjálft er mjög
stórt og innilukt af byggingum, sem
minna á hin undursamlegu leiksvæði
miðalda helgileikanna. Hér er þó
alt slétt og felt í einni stórri stíl-
hreinni byggingu í stað sundurleitra
og ósamfeldra “leikbása,” sem hver
var svið, ætlað sérstöku atriði, en
augað varð að leita uppi atvika-
keðjuna milli “básanna” og bók-
staflega að fylgja leikendunum til
“helju” eða “himna.” Fyrir miðju
er aðal-leiksvæðið, þar er leiktjöld-
um komið fyrir og þar gerast höfuð-
þættir leiksins, svo sem handtaka
Krists og krossfesting. Til hægri
og vinstri við aðal-leiksvæðið eru
hvelfd port, sem tákna götur og
borgarhlið Jerúsalem, um annað
þeirra heldur Kristur innreið sína í
Jerúsalem, um hitt ber hann kross-
inn. Út frá portunum eru enn sitt til
hvorrar handar breið þrep og and-
dyri með súlum og eru þar bústaðir
Pílatusar og Kaífasar. Loksins eru
inngangar sitt til hvorrar handar
fyrir kórana.
Mikill helgiblær er yfir passíu-
leikunum í Oberammergau, hrifn-
ing áhorfenda er og tíðast mikil og
endist alla æfi, mörgum manninum,
sem leikina sér. Inn á milli í passíu-
leiknum sjálfum, sem stendur dag-
langt og dögum saman, eru svo sem
til hvíldar og tilbreytingar sýnd sér-
stök atriði úr gamla testamentinu.
Þegar maður hugsar um hina há-
tíðlegu passíuleiki, sem óþreytt
bændafólk í fátæku sveitaþorpi suð-
ur í Bayern hefir haldið við lýði i
þrjár aldir, hvarflar hugurinn ó-
sjálfrátt til annars bygðarlags í öðru
landi, sem einnig er sögulega ná-
tengt yrkisefni passíuleikanna. Séra
Hallgrimur Pétursson var tvítugur
þegar fyrsti passíuleikurinn var
sýndur í Oberammergau, en passíu-
sálmar hans hafa nú einnig í nær-
felt þrjár aldir verið þjóð vorri ljós
í myrkri og huggun í raunum og
stríði, en þeir hafa varpað þeim
helgiljóma yfir bygðarlagið við
ITvalfjörðinn, að öll þjóði'n lítur
þangað með lotningu. Mér hefir
flogið í hug, þegar rætt hefir verið
um hina árlegu Hallgrímshátíð að
Saurbæ og hvað gera mætti til þess
að hún vekti sem mesta athygli og
þangað kæmu sem flestir lands-
manna á hverju sumri, að sýna
mætti passíuleik þar á staðnum, sem
í öllum höfuðatriðunum styddist við
sálma Hallgríms. Nú eru sálmarnir
síður en svo leikrænir í venjulegum
skilningi, en enginn les þá svo, að.
hann verði ekki var við hina þrótt-
miklu prédikun, sem í þeim býr, sér-
staklega þar sem skáldið ávarpar
lesandann beinum orðum. Út frá
því hefir mér dottið í hug, að passiu-
leikinn mætti sníða nokkuð eftir
formi hinna elstu grísku kórleika,
þar sem öflugur talkór er megin
undirstaða leiksins en auk þess
nokkurir gjörendur til andsvara og
til sýningar á nokkrum helstu at-
riðum passíunnar í lifandi myndum
(tableau). Þessi atriðf yrði sem
mest að sniða eftir leikunum í Ober-
ammergau, og væri sóknarprestur-
inn að Saurbæ, sem er skýr og at-
hugull maður og skáld gott, manna
vísastur til að hafa þau út hingað,
ef hann ætti kost á því að sjá leik-
ina í Oberammergau, en það er á-
kjósanlegast að þessir leikir séu sem
allra mest undirbúnir og fram-
kyæmdir af sóknarbörnum hans,
bændafólki, líkt og á sér stað í Ober-
ammergau.
Lárus Sigurbjörnsson. —Lesb. Mbl.
Dýrasögur
Sig. Júl. Jóhannesson þýddi.
I. ÞAKKLATT LJÓN.
Maður er nefndur Geoffrey de
la Tour; hann var einn þeirra fyrstu
sem fóru pílagrímsferðir til lands-
ins helga.
Einhverju sinni reið hann i gegn-
um þykkan skóg og heyrði skyndi-
lega ógurlegt hljóð, sem gaf það til
kynna að eitthvert dýr væri statt í
lífsháska.
Maðurinn flýtti sér þangað, sem
hann heyrði hljóðið og ætlaði að
reyna að bjarga dýrinu í hvaða hættu
sem það væri.
Þegar hann hafði farið spölkorn,
sá hann ljón, sem höggormur hafði
ráðist á.
Þótt ljónið væri afarstórt og
kraftamikiðl, gat þalð enga björg
sér veitt, því höggormurinn hafði
vafið sig utan um það, og því var
ómögulegt að losna eða verja sig.
Maðurinn hafði sverf, því hann
var riddari; hann dró það tafarlaust
úr skeiðunum og hjó höggorminn
í sundur í einu höggi; og hann gerði
það svo liðlega að hann særði alls
ekki ljónið.
Þegar ljónið var frelsað úr lífs-
háskanum féll það fram og fleygði
sér flötu fyrir fætur mannsins, til
þess að láta i ljósi þakklæti sitt. Og
svo fylgdi það honum eftir þetta
eins og trúr og tryggur hundur. Það
hlýddi honum að öllu leyti og var
hinn trúasti lífvcirður hans hvar
sem hann var og hvert sem hann
fór.
Loksins var pílagrímsferðinni
lokið og maðurinn bjóst til heim-
ferðar; hann vildi fara með ljónið
sitt með sér, en skipstjórinn aftók
það með öllu. Maðurinn varð því
að skilja ljónið eftir og kvaddi það
með söknuði eins og góðan vin.
Þegar skipið lagði frá landi gekk
ljónið fyrst fram og aftur á strönd-
inni og öskraði ógurlega. Eftir
nokkurn tima steypti það sér í sjó-
inn og synti á eftir skipinu. En
þrátt fyrir sína miklu krafta og
sterku löngun til þess að ná skipinu
þreyttist það og gafst upp eftir
skamman tíma—það sökk og kom
aldrei upp aftur.
II.
LJÓN OG HVOLPUR ■
Það er einþennilegt hvernig ljón-
ið fer að því að drepa dýr, sem það
ræðst á. Það leggur hramminn of-
an á dýrið og bókstaflega kremur
það til dauðs.
Einhverju sinni gerði það illmenni
nokkurt að kasta hvolpi í veginn
fyrir ljón, til þess að sjá hvernig
ljónið færi að því að drepa hann.
Hvolpurinn var dauðhræddur og
reyndi að forða sér, en gat það ekki.
Ljónið leit á hvolfinn, sá greini-
lega hversu hræddur hann var og
virtist hafa gaman af. En það
snerti hann ekki og gerði honum
ekkert mein. Eftir nokkurn tíma
sannfærðist hvolpurinn urn það að
Ijónið mundi ekkert ilt ætla að gera
sér; hann fór því smátt og smátt að
vingast við það og svo fylgdi hann
því inn í svínastíuna og settist þar
að. Þegar hvolpurinn var svangur
át hann fylli sina, en ljónið stóð
yfir honum á meðan og byrjaði ekki
að éta sjálft fyr en hvolpurinn hafði
fengið nægju sína. Það hagaði sér
gagnvart hvolpinum alveg eins og
móðir við barn, þegar lítið er um
mat og móðirin lætur barnið ganga
fyrir, en sveltur sjálf.
III.
KÖTTURINN HANS
MOHAMEÐS
Margar sögur eru til uin það hvað
illa sumum mönnum er við ketti og
hversu hræddir þeir eru við þá.
Napóleon mikli hafði svo mikla and-
stygð á köttum, að hann forðaðist
þá og taldi það óhamingjumerki, ef
köttur varð á vegi hans.
Aðrir miklir menn hafa verið hin-
ir mestu kattavinir. Einn þeirra var
Múhameð. Þessi saga er sögð um
hann:
“Múhameð spámaður var mikill
kattavinur; hann átti kött, sem hann
kallaði ‘Muezza.”
Konur í Cairo á Egyptalandi og
í Bagdag segja oft börnum sögur
um Múhameð og köttinn hans. Það
var einn góðan veðurdag að spámað
urinn sat og hugsaði djúpt Þá kom
kötturinn hans hún Muezza. Spá-
maðurinn hafði lagt handlegginn á
skrifborðið sitt; hann var í trevju
með fjarska víðum ermum; kisa
gerði sér hægt um vik og settist á
ermina hans, sat þar stundarkorn,
hringaði sig siðan í hnút og stein-
sofnaði.
Eftir nokkurn tíma þurfti spá-
maðurinn að standa upp og fara til
vinnu sinnar, en hann gat ekki náð
erminni sinni undan kisu, án þess
að vekja hana. Það vildi hann ekki
gera. Hann tók því skæri og klipti
ermina af treyjunni til þess að kisa
gæti haldið áfrarn að sofa þar í næði.
1 PROFESSIONAL AND BUSINESS CARDS |
PHYSICIANS crnd SURGEONS
DR. B. J. BRANDSON 216-220 Medical Arts Bldg. Cor. Graham og Kennedy Sts. Phone 21 834—-Office tímar 2-3 Heimili 214 WAVERLEY ST. Phone 403 288 Winnipeg, Manitoba DR. J. STEFANSSON 216-220 Medical Arts Bldg. Talsími 26 688 Stundar augna, eyrna, nef og kverka sjúkdóma.—Eír að hitta kl. 2.30 til 5.30 e. h. Heimili: 638 McMIBLAN AVE. Talsfmi 42 691 Dr. P. H. T. Thorlakson 206 Medlc&l Arts Bldg. Cor. Gr&ham og Kennedy Sts. Phonee 21 213—21 144 Res. 114 GRENFELL BLVD. Phone 62 200
DR. B. H. OLSON 216-220 Medieal Arts Bldg. Cor. Graham og Kennedy Sts. Phone 21 834—Office tfmar 4.30-6 Heimili: 5 ST. JAMES PLACE Winnipeg, Manitoba Dr. S. J. Johannesson Viðtalstími 3—5 e. h. 218 Sherburn St.~Sími 30877 DR. L. A. SIGURDSON 729 SHERBROOKE ST. Phone 24 206 Office tfmar: 3-6 og 7.8 e. h. Heimlli: 102 Home St. Phone 72 409
BARRISTERS, SOLICITORS, ETC.
H. A. BERGMAN, K.C. fslenzkur lögfrœðingur Skrifstofa: Room 811 McArthur Building, Portage Ave. P.O. Box 1656 PHONES 95 052 og 39 043 J. T. THORSON, K.C. fslenzkur lögfrœSingur 801 GREAT WEST PERM. BLD. Phone 92 755 W. J. LINDAL K.C. og BJORN STEFANSSON tslenzkir lögfrœSingar 325 MAIN ST. (á öðru gólfi) PHONE 97 621 Er að hitta að Gimli fyrsta þriðjudag í hverjum mánuði, og að Lundar fyrsta föstudag
G. S. THORVALDSON B.A., LL.B. tslenzkur lögfrœSingur Skrifst. 702 CONFEDERATION LIFE BUILDING Main St., gegnt City Hall Phone 97 024 E. G. Baldwinson, LL.B. íslenzkur lögfrœSingur Phone 24 206 729 SHERBROOKE ST. William W. Kennedy, K.C., LL.B. Fred C. Kennedy, B.A., LL.B. Kenneth R. Kennedy, LL.B. Kennedy, Kennedy & Kennedy Barristers, Solicitors, Etc. Offices: 505 Union Trust Bldg. Phone 93 126 WINNIPEG, CANADA
DRUGGISTS
DENTISTS
WINNIPEG DRUG
COMPANY, LTD.
H. D. CAMPBELL
Prescription Specialists
Cor. PORTAGE AVE. and
KENNEDY ST.
Win nipgg, Man.
Telephone 21621
DR. A. V. JOHNSON
tsienzkur Tannlceknir
212 CURRY BLDG., WINNIPEG
Gegnt pósthúsinu
Sími 96 210
Heimllis 33 328
Drs. H. R. & H. W.
TWEED
Tannlœknar
406 TORONTO GENERAL
TRUSTS BUILDING
Cor. Portage Ave. og Smith St.
PHONE 26 545 WINNIPEG
Take Your Prescrlption to
BRATHWAITES LTD.
PORTAGE & VAUGHAN
Opp. “The Bay"
Telephone 23 351
We Deliver
Dr. A. B. Ingimundson
Tar.nlœknir
602 MEDICAL ARTS. BLDG.
Sfmi 22 Heimilis 46 054
DR. T. GREENBERG
Dentist .
Hours 10 a. m. to 9 p.m.
PHONES:
Office 36 196 Res. 51 455
Ste. 4 Norman Apts.
814 Sargent Ave., Winnipeg
OPTOMETRISTS
MASSEUR
Harry S. NOWLAN
Optometrist
804 TORONTO GENERAL
TRUSTS BLDG.
Portage and Smith
Phone 22 133
Tel. 28 833
Res. 35 719
'c
305 KENNEDY BLDG.
(Opp. Eaton's)
G. W. MAGNUSSON
Nuddlœknir
41 FURBY STREET
Phone 36 137
SlmiC og semjiS um samtalstíma
BUSINESS CARDS
A. S. BARDAL
848 SHERBROOKE ST.
Selur lfkkistur og annast um út-
farir. Allur útbúnaður sá bezti.
Ennfremur selur hann allskonar
minnisvarCa og legsteina. ^
Skrifstofu talsími: 86 607
Heimilis talsfmí: 501 562
HANK’S
HAIRDRESSING PARLOR and
BARBER SHOP
3 Doors West of St. Charles Hotel
• - Expert Operators
We specialíze in Permanent Waving,
Pinger Waving, Brush Curling and
Beauty Cuiture.
251 NOTRE DAME AVE.
Phone 25 070
J. J. SWANSON & CO.
LIMITED
601 PARIS BLDG., WINNIPEG
Fasteignasalar. Leigja hús. Ut-
vega peningalán og eldsábyrgð af
öllu tægi.
Phone 94 221
A. C. JOHNSON
907 CONFEDERATION LIFE
BUILDING, WINNIPEG
Annast um fasteignir manna.
Tekur að sér að ávaxta sparifé
fðlks. Selur eldsábyrgð og bif-
reiða ábyrgðir Skriflegum fyrir-
spurnum svarað samstundis.
Skrifst.s. 96 7 57—Heimas. 33 328
00RES T4+/
* LTD.
28 333
LOWEST RATES IN THE
CITY
Furniture and Piano Moving
J. SMITH
Guaranteed Shoe Repairing.
First Class Leather and
workmanship.
Our prices always reasonable.
Cor. TORONTO and SARGENT
Phone 34 137
UÓTEL I WINNIPEG
THE MARLBOROUGH
SMITH STREET, WINNIPEG
“Winnipetps Douzn Toion HoteV*
220 Rooms with Bath
Banquets, Dances, Conventions,
Mnners and Functions of all kinds
Coffee Shoppe
F. J. FALL, Manager
ST. REGIS HOTEL
285 SMITH ST„ WINNIPEG
pœgilegur og rólegur bústaöur i
miðbiki borgarinnar.
Herbergi $.2.00 og þar yfir; með
baðklefa $3.00 og þar yfir.
Ágsetar máltíðir 40c—60c
Free Parking for Guests
HOTEL CORONA
26 Rooms with Bath,
Suites with Bath
Hot and cold vxiter in every room
Monthly and Weekly Rates
Upon Request
Cor. Main St. and Notre Dame
Ave. East.
J. F. Barrieau, Manager
THE
M c L A R E N HOTEL
Enjoy the Comforts of a First
Class Hotel, at Reduced Rates.
$1.00 per Day, Up
Dining Room in Connection
WINDSOR HOTEL
J. B. GRAY, Mgr. & Prop.
European Plan
Rooms $1.00 and up
Hot and cold running water
Parlor in connection.
197 GARRY ST. Phone 91 037
HOTEL ST. CHARLES
In the Heart of Everything
WINNIPEG
Rooms from $1.00 Up
Special Rates by Week or Month
Excellent Meals from 30c up
v
It Pays to Ad1 vertise in tt le “Lög berg”