Lögberg - 24.05.1934, Blaðsíða 5
LÖGBERG, FIMTUDAGINN 24. MAl, 1934
5
Systkinamyndir
IV.
ASBJÖRN EGGBRTSSON
Bróðir Ásbjörn er stór maður
vexti. Hefir hann auðsjáanlega ver-
ið skapaður til þess að verða lög-
regluþjónn og taka fasta fanta og
illmenni, því hann er sterkur eins
og Ormur Stórólfsson.
En svo þarf líka á kröftum að
halda til þess að vera kjötsali, því
þeir þurfa oft að lyfta stórum
skrokkum — en þá atvinnu hefir
bróðir Ásbjörn stundað um mörg
ár.
Þessi bróðir er auðþektur frá öll-
um öðrum mönnum, og að ýmsu
leyti einkennilegur. Ennið er hátt
og nokkuð kúpt; hefir það stækk-
að að minsta kosti um þriðjung við
það að hárið hefir fallið hurt úr
kollvikunum, þangað til þau ná
saman ofan á höfðinu framarlega.
En fyrir framan þau og á milli
þeirra hefir hárið orðið eftir á dálitl-
um bletti, sem lítur út eins og eyja
eða hólmi, sem staðist hefir og brot-
ið af sér allar bylgjur aldurs og
áhyggja, sem þar hafa ólgað og oltið
alt í kring.
Bróðir Ásbjörn var afskaplega
hárprúður á yngri árum og var því
af mörgum nefndur Absalon. Minn-
ir mig að bróðir Gunnlaugur Jó-
hannsson skipaði prestsembættið
þegar Ásbjörn hlaut þá skírn.
Bróðir Eggertsson kembdi hárið
æfinlega upp og aftur, þannig að
hvert einasta hár á öllu höfðinu
vissi aftur, og heldur hann þeim sið
enn þann dag i dag. Minnist eg þess
glögt að bróðir Bbrgþór Jósefsson,
fyrverandi stórritari á íslandi gerði
hári sínu sömu skil.
Eftir að bróðir Ásbjörn staðfesti
ráð sjtt, fór hárið að smá þynnast,
og er það nú orðið býsna gysið á
háhöfðinu. Hverju það er að kenna
veit eg ekki; systir Eggertsson gæti
sjálfsagt bezt skýrt frá því. Illa
trúi eg því samt að hún hafi reitt
það af honum í áflogum, því eg hefi
það fyrir satt, að þau séu bæði geð-
spök og rólynd.
Alt af hefir bróðir Eggertsson
verið skegglaus eins og Njáll; þó
rakar hann sig oft, enda er hann hið
mesta nettmenni i siðum og klæða-
burði, og hefir alt af verið.
Hann er móeygður og eru augun
gletnisleg ; full af einhverju þægi-
legu vinarbrosi. Bar sérstaklega
mikið á þessu meðan hann var ógift-
ur, ef hann umgekst kvenfólk; enda
hafði hann mikla kvennahylli, ef eg
man rétt. Hann gerir svo vel að
leiðrétta mig, ef eg fer með rangt
mál.
Áður fyr var bróðir Ásbjörn tein-
réttur, en nú hallast höfuðið ofur-
lítið fram á við, eins og það væri
þungt af hugsunum. Er það heldur
ekki að ástæðulausu, því á honum
hvíla að miklu leyti þyngstu fjár-
málaáhyggjur stúkunnar Skuld;
hefir hann borið þær byrðar hraust-
lega og hvíldarlaust um mörg ár.
Þegar bróðir Ásbjörn situr á
fundum má oft sjá hann róa ofur-
lítið til beggja hliða, alveg eins og
hann hafi gert sjálfan sig að vogar-
skálum, og sé að vigta eitthvað ná-
kvæmlega. Hefi eg það fyrir satt
að hann sé þá að reikna það út hvort
mæzt geti útgjöld og tekjur hússins
yfirstandandi ársfjórðung.
Bróðir Ásbjörn er ekki brúna-
þungur, en samt hefir hann þann
eiginleika að geta látið brúnirnar
síga út og niður ef honum býr eitt-
hvað þungt í skapi. Á hann ekki
langt að sækja þetta, því hann mun
vera kominn í beinan karllegg frá
Agli Skallagrímssyni; en eins og
þeir muna, sem lesið hafa íslend-
ingasögurnar, gat hann hleypt ann-
ari augabrúninni upp i hársrætur
og hinni samtímis langt niður á
kinn.
Bróðir Ásbjörn er höfðinglegur
maður, andlitið fremur stórskorið,
en reglulegt og vel lagað; nefið og
hakan í stærra lagi og kinnbeinin
allhá. Hann er enn þá rjóður í
andliti og blóðroðnar oft út undir
eyru eins og feimin stúlka, ef mn
einhver viðkvæm mál er að ræða.
Svipurinn er góðlegur og glað-
legur, og l>reiðist um alt andlitið
einhvers konar sólskin þegar vel
liggur á honum, en alvöruský, ef
honum þykir, eða ef eitthvað blæs
á móti.
Bróðir Ásbjörn er tryggur maður
og trúr; það hefir staðlyndi hans
sýnt í Goodtemplarareglunni; þar
heíir hann staðið og starfað í meira
en aldarfjórðung.
í öllum embættum mun hann hafa
verið, sem stúkan Skuld á til, og
gegnt þeirn öllum með stakri sam-
vizkusemi. Oftast hefir hann ver-
ið þar við einhver f jármál riðinn, og
æfinlega reynst þar ráðvendnin
sjálf.
Hann hefir oft þótt harður í horn
að taka þeim, sem um húsaleigu áttu
að semja og ógjarn á það að gefa
nokkuð eftir fyrir hönd félagsins.
Um það voru eftirfarandi visur
gerðar einhverju sinni:
“I öllum störfum einlægur,
með allra beztu sálum;
en þykir heldur harðdrægur
í húsaleigu málum.
Þar ræður hann og ríkir einn
í ráðsmannsstöðu settur;
hann þibbast alveg eins og steinn,
eða’ öllu heldur klettur.”
Það var siður Goodtemplara í
gamla daga að fara skemtiför til Sel-
kirk einu sinni á ári; var þá feng-
inn stóreflis vagn, sem rúmaði um
20 manns, og hestum beitt fyrir.
Ásbjörn og aðrir, sem reiðhjól
áttu, fóru þá lausríðandi, en hinir
óku í vagninum. Einungis þeir
efnuðustu áttu reiðhjól í þá daga.
Ásbjörn var einn þeirra. Einu
sinni var svo blautt, að ekki var far-
andi á reiðhjólum, varð því bróðii
Ásbjörn að gera sér gott af því að
vera með okkur hinum. Fengum
við rigningu og illa færð. Ein-
hverju sinni gengu hestarnir ofui'-
lítið út af brautinni og fór þá eitt
hjólið niður. Hestarnir komust ekki
áfram.
Ásbjörn tók svipu, sem hann hafði
fengið að láni hjá Guðmundi kaup-
manni Jónssyni og sló svo rösklega
i hestana að svipan bro’tnaði, þó hún
væri ný úr búðinni; stökk hann þá
út ásamt fleirum og ýtti svo kná-
lega á vagninn að upp úr komst. Þá
orti einhver þessar vísur:
“Hvað sem okkur hlekkist á,
hvernig sem það gengur,
ef innanborðs er Ásbjörn, þá
enginn kvíðir lengur.
/
Hann er jötunn, sterkur, stór,
stundum brýtur keyri,
hamur eins og Ása-Þór,
öllu kraftameiri.”
Stúkan Skuld á merkilega sögu.
Einu sinni í fyrndinni var hún skip-
uð svo dugandi fylkingum manna
og meyja, að þar voru saman komn-
ir allir beztu leikkraftar Vestur-ís-
lendinga. Var þá stofnað félag inn-
an stúkunnar, og nefnt “Leikfélag
Skuldar.” Var það nafn kunnugt
um alla Norður-Ameriku. Meðal
annars lék þetta félag “Pernillu”
eftir Holberg, og ferðaðist með
þann leik um allar bygðir Vestur-ls-
lendinga að heita mátti, beggja meg-
in línunnar. Var það leikið 28 sinn-
um alls; sjálfsagt oftar en nokkur
annar leikur hér vestra fyr eða síðar.
í þessum leið var bróðir Ásbjörn
Eggertsson ein aðal persónan; hann
lék dómarann. Var svo mikið orð
á því gert hversu svipmikill hann
var og tignarlegur í embættissætinu,
að dómaranafnið festist við hann og
Absalons nafnið lagðist þar með
niður. Þegar hann gegndi þessari
dómarastöðu, var kveðin um hann
vísa; hún er svona:
“Ef við deilum við dómarann,
þá drynur i honum röddin hás;
hann er til með að taka mann
í tukthúsið—og skella’ í lás.”
Þetta verður látið nægja um bróð-
ur Ásbjörn, þótt margt fleira hefði
mátt til tína. Hann hefir æfinlega
verið og er enn einn hinna allra á-
byggilegustu manna, sem undir
merki stúkunYiar Skuldar hefir svar-
ist, og liggur aldrei á liði sínu.
Sig. Júl. Jóhannesson.
Erlent trúboð
Trúboð kristninnar hefir ætíð
skifst í trúboð heima fyrir og trúboð
út á við. Það hefir ætíð haldist við
meðvitund um tilætlun frelsarans,
að lærisveinar hans skyldu vera Vott-
ar hans “I Jerúsalem og í allri Jú-
deu og Samaríu, og til yztu endi-
marka jarðarinnar.” Nær og fjær
áttu þeir að taka að sér að vitna í
orði og verki um Jesúm Krist, sem
hina sönnu hjálpræðisvon mann-
anna.
Aldrei hefir þetta verið tekið al-
varlegar en meðal kristinna manna
á frumskeiði kristninnar. Þegar á
dögum postulanna var kristindóms-
erindið flutt um öll lönd er náð var
til, að likindum eins langt vestur og
til Spánar og eins langt austur og til
Indlands. Lærisveinarnir trúðu því
hiklaust að með þessu væri þeir ekki
aðeins að framfylgja boði og hug-
sjón frelsarans, heldur lika að
tryggja velferð kristninnar heima-
fyrir.
Þeir áttu að vera súrdeigið, sem
sýrði alt deigið, ekki aðeins hjá
einni J)jóð, heldur hjá öllum þjóðum.
Samlikingin minti á að þeir gætu
ekki látið öðrum í té það, sem þeir
ættu ekki sjálfir. En þeim var ljóst
að ekki máttu þeir sitja kyrru fyrir
heima í skjóli þess, að þar væri þörf-
in svo brýn. Þeir yfirstigu alla
erfiðleika til að ná sem víðast til.
Með réttu er litið á þetta sem blóma-
öld kristninnar. Þá var engin deila
um það hvort sinna ætti erlendu trú-
boði. Að hafna því hefði þá verið
jafngilt því að hafna kristindómin-
um sjálfum. Þegar litið er á að
aldrei hefir Jyistnin verið fátækari
en á þessari tíð, en torfærur og erf-
iðleikar yfirgnæfandi í sambandi
við ferðalög og annað, verður ljóst
að sigurför kristninnar um heiminn
hvíldi ekki á mannlegum útreikn-
ingi heldur á guðlegri handleiðslu.
Þeir sem þá héldu uppi merki kristn-
innar, vissu á hvern þeir höfðu sett
traust sitt. Þfeir áttu skerf af anda
hins mikla postula, er sagði: “Alt
megna eg fyrir hans kraft er mig
styrkan gerir.” Þeir vissu líka að
súrdeig, sem ekki endurnýjast við
að sýra út frá sér, eyðilegst og verð-
ur fánýtt til annars en að vera kast-
að út.
Aldir hafa liðið og umskifti ver-
ið mörg. Oft hefir skygt á þessa
hugsjón og framkvæmd hennar, en
aldrei hefir húji horfið til fulls.
Þegar horfurnar hafa verið verstar
hefir trúboðsáhugi kristninnar ris-
ið upp aftur úr ösku sinnuleysis og
eigingimi, til að hefja flugið hærra
en áður.
Ætíð hefir trúboðsviðleitnin út á
við verið spegilmynd af ástandi
kristninnar heimafyrir. Erlent trú-
boð hefir ætíð borið keim af þeirri
kristni, sem að þvi hefir staðið.
Kpstur og löstur heimastarfsins hef-
ir eðlilega loðað við starfið út á við.
Þessu er einnig svo farið nú. Eg
býst við að flesta kosti og lesti
kirkjulífsins heima fyrir megi finna
i einhverri mynd í trúboðsviðleitn-
inni erlendu. Er þetta í alla staði
eðlilegt. Trúboðsstarfið er ávöxtur
heima kristninnar. Vont tré getur
ekki borið góðan ávöxt, ekki heldur
gott tré vondan ávöxt. Ófullkom-
leika og kosti kristninnar er því að
sjálfsögðu að finna í nokkuð svip-
uðum hlutföllum á heimasviðinu óg
hinu erlenda. Það gæti varla öðru-
vísi verið.
Alvarlega hugsandi og upplýstir
kristnir menn í samtíð vorri finna til
þess að þörf. er á sið bót og vakn-
ingu innan kristninnar á öllum svið-
um. Slík auðmýkt er þarfasta eign
kristinna manna. Annars verður
hugur kristninnar aðeins að láta alt
sitja við það sem«er. En það verð-
ur henni hvorki til viðreisnar né
verulegs viðhalds. Hún verður að
brýna til nýrra sigurvinninga, ef
menn eiga að safnast að merki henn-
ar. Kirkjan er ekki í erfiðleikum
nú, vegna þess að hún liafi seilst
langt yfir skamt í viðleitni sinni,
heldur vegna þess að hún hefir ekki
verið nógu stórhuga í því að koma
að áhrifum Jesú Krists á öllum svið-
um mannlegs lífs. Það er meinið
við starfsemina heima fyrir og starf-
semina út á við. Meðvitundin er
ekki nógu rík að kristninni sé al-
vara, hvorki hjá þeim sem utan við
eru eða kirkjunnar mönnum sjálf-
um. Kristnin réttir ekki við með því
að fella niður hugsjónina, sem ligg-
ur til grundvallar erlendu trúboði,
heldur með því að vera henni trúrri.
Bnda hafa jafnvel róttækustu til-
lögur innan kristninnar hvað erlcnt
trúboð snertir ekki gengið lengra en
að benda á að ýmsar breytingar
þurfi að verða á tilhögun starfsins.
Mönnum, sem athuga, er ljóst að
trúboðshugsjónin og framkvæmd
hennar er nú eins og áður óaðskilj-
anleg frá kristindóminum sjálfum.
Útbreiðslustarf kristninnar á að
hvíla á frjálsum fúsleik lærisvein-
anna, sem uppfræddir eru í Guðs
orði, að fórna fyrir Guðs ríki. Á
þeim grundvelli hefir trúboðið bor-
ið sína fegurstu ávexti. Ef sú hugs-
un kemst að, að erlent trúboð sé
nokkurskonar aukaskattur á kristn-
inni, má búast við því að það verði
álíka vinsælt og aðrir skattar. En
erlent trúboð, sem helzt við fyrir
frjálsan áhuga þeirra, sem ielska
frelsarann og nieðbræður sína, er
það eina trúboð, sem fullnægir hug-
sjón frelsarans. Slíkt trúboð þarf
að eflast með kristninni. Úr því
verður aldrei skattur.
Fyrir sjálfboða áhuga kom erlent
trúboð á dagsskrá kirkjufélags vors.
Séra Jón Bjarnason eignaðist bjarg-
fasta sannfæringu fyrir því, að trú-
boðsáhugi væri slagæð kristninnar.
Hann vakti hjá öðrum hina sömu
frjálsu sannfæringu. Dæmi hans og
áhrif vöktu ekki einungis áhuga hjá
mörgum hér vestra heldur líka
heima á ættjörðinni. Eins og kunn-
ugt er hefir aukinn áhugi fyrir er-
lendu trúboði þar orðið samferða
vaknandi áhuga fyrir lifandi krist-
indómi alment. Til allra heilla er
þetta algerlega sjálfboðastarf og á
svo að vera. Svo er það einnig í
raun réttri hjá oss. Kirkjufélag vort
leggur engan skatt á neinn til þess
málefnis. Það heldur uppi hugsjón-
inni og gefur mönnum tækifæri til
að styðja hana í verki.
Hvers væntir þá kirkjufélag vort
af söfnuðum sínum, prestum, ein-
staklingum og félögum i samhandi
við þetta mál ? Að menn kynni sér
málið hleypidómalaust, skoði það í
ljósi hinnar kristnu opinberunar og
í ljósi sögunnar, og fylgist sérstak-
lega með því merkilegasta, sem er
að gerast á þessu sviði i samtíðinni,
eftir því sem ástæður leyfa, en sitja
ekki fastir í því að einblína á ann-
marka, er þeim kann að finnast á
starfinu. Að þessu athuguðu og
bornu fyrir brjósti með bænarhug,
eiga menn að komast að niðurstöðu
um afstöðu sína og skyldu.
Um þetta leyti árs er það venja í
kirkjufélagi voru að minnast þessa
trúboðs og þeirrar hluttöku, sem
við tökum í því i sambandi við starf
trúboðshjónanna, séra S. O. Thor-
láksson og konu hans, í Japan. Er
þá fólki voru einnig gefinn kostur
á að bera fram frjálsar gjafir til
starfseminnar. í prédikunarstólum
kirkna vorra og í félögum innan
safnaðanna þyrfti málið að vera rætt
á grundvelli þeirrar beztu þekking-
ar, sem er fyrir hendi. Það bezta,
sem hugsað er og ritað um málið á
erindi til fólks. Bræðralagshugsjón
kristninnar á svo brýnt erindi til
samtíðar vorrar, sem eina úrlausnin
á hinum mörgu vandkvæðum í
mannlegri sambúð á öllum sviðum,
að þörf er á því að útbreiðslustarf
kristninnar og hugsjón þess falli
ekki í vanrækslu. Kunnugt er að
geta fólks alment í efnalegu tilliti er
nú ekki mikil. Enda er hverjum
einum í sjálfsvald sett hvort og hvað
hann getur gefið. Hann á það við
sína eigin samvizku frammi fyrir
Guði. Svo á það að vera um öll
kristileg mál. Einungis þannig geta
þau eignast það frjálsa fylgi, sem
um varðar. En þá má heldur ekki
vanrækja að halda uppi fræðslu, svo
að málin líði ekki fyrir það, að þeim
sé ekki gaumur gefinn. Ekki held-
ur má það fyrnast að gildi gjaf-
anna fer ekki eftir stærð, heldur
eftir hjartalagi þess, er gefur.
Minsta gjöfin getur orðið stærst,
þegar fórnað er af fúsleik, jafnvel
af litlu.
Allar gjafir safnaða, einstaklinga
og félaga, ber að senda til féhirðis
kirkjufélagsins, hr. S. O. Bjerring,
550 Banning St., Winnipeg.
K. K. Ólafsson.,
forseti kirkjufélag$ins.
—Sam.
NÝ—þægileg bók
í vasa
SJÁLFVIRK
— EITT BLAÐ I EINU —
pægilegri og betri bók í vasann.
UundraÖ blöð fyrir fimm cent.
Zig-Zag cigarettu-blöð eru búin
til úr bezta efni. Neitið öllum
eftirlíkingum.
ZIG-ZAG
Útför
GUÐRÚNAR A BIRKINESI
Þegar vinir mínir syrgja, kvistast
ávalt eitthvað utan úr sjálfum mér,
þó eigi sé beinlínis höggvið í minn
eiginn sifjarunn.
Um lát Guðrúnar heitinnar á
Birkinesi norðan við Gimli, var get-
ið í síðasta blaði. Útför hennar fór
fram á miðvikudaginn þann 16. þ.
m., og hófst með húskveðju á heim-
ilinu, er tveir prestar, þeir séra Jó-
hann Bjarnason og séra Sigurður
Ólafsson tóku þátt í; töluðu þeir og
báðir við hina veglegu kveðjuathöfn
í kirkju lúterska safnaðarins á
Gimli, sem og í Kjarna-grafreit
suður í bygðinni, þar sem þessi á-
gæta og ástúðlega landnámskona var
lögð til hinstu hvílu við’ hlið manns
síns, sem látinn var fyrir mörgum
árum. í kirkjunni söng einsöng, frú
Pálína Einarsson.
Börn Guðrúnar heitinnar eru:
Jón, stórbóndi og útvegsmaður á
Birkinesi, kvæntur Jakobínu Jósefs-
son; Sigrún, gift Vilhjálmi Árna-
syni á Gimli og Guðmundur, hár-
skurðarmeistari í Winnipeg, kvænt-
ur Kristínu Valgarðsson. Tvö börn
manns síns af fyrra hjónabandi,
Björn, útvegsmann á Gimli, og
Stefaníu McRitchie í Winnipeg, ól
Guðrún heitin upp og gekk þeim í
móðurstað.
Útförin fór fram, að viðstöddu
afarmiklu fjölmenni, undir umsjón
Mr. Paul Bardals.
Börn hinnar látnu ágætiskonu og
stjúpbörn, báðu mig fyrir þeirra
hönd, að þakka öllum hjartanlega,
er viðstaddir voru kveðjuathöfnina,
sem og þeim, er blóm sendu á kist-
una.
Að fengnum nægilegum upplýs-
ingum um uppruna Guðrúnar heit-
innar og ætt, verður hennar nokkru
ger minst hér i blaðinu.
E. P. J.
Þakkarávarp
Við undirskrifuð, getum ekki
undan felt að minnast með innileg-
asta þakklæti allra þeirra, er sýndu
okkur hlýhug, hluttekning og hjálp
í sorg okkar og raunum, við fráfall
minnar góðuv konu Karólínu G.
Thorkelsson, er skildi við okkur svo
skyndilega og flutti til æðra lífs 24.
marz 1934.
Eg vil fyrst minnast á þær góðu
konur, er fyrstar komu okkur til
hjálpar, Mrs. O. Magnússon og
Mrs. H. Guðmundsson, er þvoðu
líkið og lögðu til, með þeim mynd-
arskap, sem frekast er unt. Svo vil
eg minnast þeirrar þriðju merku og
góðu konu, Mrs. K. Péturson, sem
kom þegar kistulagt var, 30. marz,
ásamt manni sínum, og kom þá með
líkkjól og líkdúk, sem saumaður var
í af henni sjálfri með mikilli list og
hagleik þessi orð: "í Jesú nafni!”
Eff hygg slikt muni vera fátítt;
minnist því þess hér sérstaklega með
hjartans innilegu þakklæti, til þeirra
hjóna Mr. og Mrs. Kristján Pét-
ursson—og ennfremur vil eg itreka
þakklæti mitt til Mr. og Mrs. Ólafur
Magnússon. Hann var hjá mér að
nóttunni í fulla viku mér til skemt-
unar og þau hjón gerðu bæði mér og
fólki mínu allan þann greiða, sem
mögulegt var. Hýstu fólk mitt og
fleiri, ásamt með þeim góðu hjónum
Mr. og Mrs. Hávarður Guðmunds-
son, og sem líka hýstu sumt af fólki
rnínu, og þar utan gerðu okkur þann
stóra velgerning að sjá um heimili
okkar á meðan við vorum í burtu,
sem var nærfelt vika í alt. Og þessa
rnörgu velgerninga, fyrir enga borg-
un.
Bæði af þeim og þeim, sem eg
hefi tilgreint getum við ekki annað
en þakkað með hjartans innileik, og
eins þeim mörgu sem heiðruðu ininn-
ingu hinnar látnu með nærveru sinni
við húskveðjuna. — Sérstaklega
þakka eg líka minum kæra viðskifta-
vin, Mf. B. Eggertsson, við Vogar,
P.Ov Man., sem lánaði mér pen-
inga og styrkti á allan hátt, bæði
fyr og nú og hefir aldrei brugðist
mér í neyð og þörf.
Svo vil eg minnast minna kæru
vina og kunningja í WSnnipeg, sem
tóku á móti okkur með hlýhug og
innileik. Sérstaklega viljum við
þakka Mrs. O. Fellsted fyrir blóma-
krans er hún gaf og einnig dóttur
hennar, Mrs. Guðmundur Ander-
son, sem gaf annan blómakrans, til
minningar og af vinahug til þeirrar
átnu, sem þær þektu svo vel. Líka
þökkum við Mr. og Mrs. Guðmund-
ur Anderson fyrir rikulegar veiting-
ar og aðra góðvild okkur til handa.
Svo viljum við seinast og ekki
sízt, minnaxt þeirra góðu hjóna Mr.
og Mrs. Thorgrímsson, sem gáfu
okkur fæði og fleira, og greiddu
fyrir okkur á allan hátt—þökk sé
þeim, og þeim öllum, sem eg hefi
getið hér og einnig þökk þeim, er
eg kann að hafa gleymt, en hafa í
kyrþey gert okkur gott, án þess við
höfum orðið þess vör, eða getað
þakkað.
Eg bið svo alla, sem þetta ávarp
er stilað til—og hlut eiga að máli—
að fyrirgefa og taka viljann fyrir
verkið, að sýna þetta litilfjörlega.
Með þökk og virðing til allra, f jær
og nær!
Við trúum öll á eilíft líf fyrir
meðalgöngu vors drottins, og mikla
meistara Jesú Krists, sem leiddi í
ljós lifið og ódauðlegleikann, og sem
er vegurinn, sannleikurinn og lífið!
Hann biður fyrir oss, sinn blessaða
föður, og okkar allra almáttugan
guð, sem stýrir stjarnaher og stjórn-
ar veröldinni, og alt blessar, stórt
og smátt. Þetta almætti í samein-
ingu og heilagan anda, biðjum við
að styrkja okkur, og við biðjum að
verði ykkar hlutdeild, sem gott haf-
ið gert okkur og fleirum, og nái til
allra.
Með bestu óskum og kærleikshug,
Finnbogi Thorkelsson
Jón Thorkelsson
Lúðvík A. Thorkelsson
Mrs. Paul Sölvason
Mr. Ingvar P: Sölvason.
GENERAL
ELECTRIC
býður nýja fegurð
— ný þægihdi.
Skoðið hina nýju frystiskápa,
með ‘monitor top’ og “Stor-A-’
Dor" nú til sýnis hjá “Hydro.”
Þægilegir borgunarskilmálar.
SÍMI 848 134
Showrooms:
Cfti) ofWmnfpeá