Alþýðublaðið - 23.07.1960, Síða 1
§ ‘. 'Jl‘vZfl'i1 (MfeWWUMMWWMt*
Harður
árekstur
UM HÁLF NÍU leytið í
gærkvöldi, varð mjög
harður bifreiðaárekstur í
Lækjargötu, Bifreiðinni
R-10410, sem er af Mosk-
witz-gerð, var ekið norð-
ur Lækjargötu, en á móts
við númer 6 við Lækjar-
götu, ætlaði bifreiðarstjór
inn á R-10410 að beygja
til hægri og aka suður
götuna, Skall þá bifreið-
in R-9026, sem er af Chev
rolet-gerð, af miklu afli á
hægri hlið R-10410, með
þeim afleiðingum að R-
10410 valt og stórskemmd
ist. Skemmdir á R9Ö26
voru smávægilegar.
Ljósm. Gísli Gestsson.)
Ætlaði rétt að láta ykkur vita,
að Laugardagssíða Hauks er á
13. síðu og viðtal við Sigríði
Geirsdóttur í Opnunni.
SAMKVÆMT bókum
rannsóknarlögreglunnar
upplýsist ekki nema um
lielmingur þeirra þjófn
aða, sem hún f jallar um á
ári hverju. Á því sést að
alltaf er mikið um þjófn
aði, sem ekki tekst að upp
lýsa, en þess ber að gæta,
að mestur hluti þeirra
þjófnaða sem hér eru
framdir, eru smávægilegt
hnupl, og upp kemst um
flesta eða alía stórþjófn-
aði.
Árið 1959 komu 949 þjófn-
aðarmál til meðferðar hjá rann
sóknarlögreglunni, en nú eru
450 þeirra upplýst. Tölulega séð
gæti þetta lýst all alvarlegu á-
standi, en svo er þó ekki. Menn
kæra jafnvel hnupl á hjólkoppi
af bíl, sem þeir hafa allt eins
getað týnt í akstri og stundum
kemur fyrir að maður kærir
peningaþj ófnað eftir fyllirís-
nótt, þótt hann geti enga skýr-
ingu gefið á því, hve miklum
peningum hann hefur evtt. —
Hann trúir því bara ekki að
peningarnir séu horfnir og kær
ir, en þessi mál eru öll tíund-
uð og koma til frádráttar, sem
óupplýst mál, þegar yfirlit er
gert yfir ársstarfð. Og sem bet-
ur fer eru það einmitt smámál
á borð við fyrrgreint, sem eru
lángflest að tiltölu. Það er því
ekki að undra, þótt málaskráin
sé dálítið óhagstæð tölulega
séð.
Það verður séð á málaskránni
— að tala bjófnaða og upp-
lýsstra mála breytist lítið frá
ári til árs. Ári'ð 1958 eru þjófn-
aðir til dæmis 963 og þar af upp
lýstust 431. Þessar jöfnu tölur
gefa annað og eftirtektarverðra
til kynna, en þann mikla grúa
smáhnupls, sem þær ótvírætt
benda til. Tölurnar benda til
þess, að rannsóknarlögreglan
sé of liðfá. Væri fjölgað í henni
mundi hlutfallið breytast og
bilið mirmka milli þjófnaða og
óupplýstra mála, og yrði þeim
fækkað mundi bilið minnka. —
Þetta er skoðun þeirra, sem
gerst þekkja til og hún er afar
trúleg.
Braut bryggju
HVALVEIÐISKIPIÐ Hvalur V.
,,bakkaði“ í fyrrakvöld um níu-
leyti'ð inn í Togarabryggjuna.
Gerðist þetta með þeim hætti,
að skipið, sem var að leggja frá
bryggju, „bakkaði“ íheldur
langt með þeim afleiðingum, að
nokkrir bitar í bryggjunni brotn
uðu Tjón varð talsvert.
RANNSÓKN olíumáls
ins er ekki lokið, og verð
ur henni haldið áfram af
fullum krafti næstu vik-
urnar. Alþýðublaðið leit
aði í gær fregna af fram-
haldi málsins, en ekki
vildu kunnugir spá um,
hvenær rannsókninni lyki.
Aðspurðir staðfestu rann-
sóknardómaramir tveir,
Gunnar Helgason og Guð
mundur Ingvi Sigurðsson,
að rannsókninni væri ekki
lokið, en vísuðú að öðru
leyti til skýrslunnar frá í
gær og káðust ekki hafa
annað um málið að segja
á þessu stigi.
Þegar rannsókninni lýkur
muuu dómararnir gefa skýrslu
til ríkisstjórnarinnar.
Þeir voru skipaðir af utanrík-
isráðherra, en dómsmál á flug-
vellinum heyra undir utanrík-
isráðuneytið.
Hins vegar hefur málið í
rannsókninni farið langt út fyr
ir ramma flugvallarins, og heyr
ir að því leyti undir dómsmála-
ráðuneytið.
Ráðherrar ákveða, er þeir
hafa kynnt sér skýrslur rann-
sóknardómaranna, málshöfðun
eftir því sem þeim þykir efni
standa til.
EINN góðviðrisdaginn fyr
ir skömmu gekk kona hér
í bæ þrisvar sinnum út úr
húsi sínu með misjafnlega
löngu millibili, og er
ekki í frásögur færandi.
Hitt vakt undrun hennar,
að í hvert þessara þriggja
skipta kom rauð bifreið
fyrir horn og ók hjá.
Konunni þótt þetta
undarlegt, að hún sneri
sér til Vikunnar og
hana að ráða þetta.
an gat ekki orð|ð við
beiðni konunnar, þar sem
blaðið ræður aðeins
drauma, og heyrði þetta
því ekki undir þann
þar sem konan var vak-
andi. Þess má geta að Al-
þýðublaðið fékk óvænta
ráðningu á fyrirbærinu
hjá rannsóknarlögregl-
unni. Þegar einn af vask-
ari mönnum þar í hópi
heyrði um konuna og
rauðu bílana þrjár, sagði
hann strax: Konan á eftir
að giftast Indíána og eiga
með honum þrjú börn.