Alþýðublaðið - 23.07.1960, Qupperneq 4
✓ ✓
Hljómsveit Guðmundar
Ingólfssonar lék í sam-
komuhúsi Njarðvíkur í
EINS og Laugardagssíðan
hefur áður skýrt frá, hef-
ur Hljómsveit Guðmund-
ar Ingólfssonar frá Kefla-
vík dvalizt á Siglufirði í
sumarleyfinu og skemmt
síldarfólkinu og öðrum
gestum. — Hljómsveitin
hafði Alþýðuhúsið á leigu
í mánuð og sá um rekstur
þess að öllu levti.
Aðsókn var mjög góð,
að sjálfsögðu þó langmest
í landlegum, en há var
jafnvel uppselt um hálf-
níu-leytið. Svo undarlega
vildi til, að landlegur voru
yfirleitt á mánudögum.
Annars er skemmst frá
að segja, að starfsemin
hjá strákunum gekk vel
og skiptust á dansleikir og
„relstauratiohirt!. Mikið
var að gera, — útvega
skemmianaleyfi, hengja
upp götuauglýsingar og
annast innkaup á veiting-
um. Að loknum kvöld-
skcmmtunuaam ræstu
þeir húsið og unnu jafn-
vel á plani, er tími vannst
vetur, svo og klúbhun-
um á Vellinum, en í vor
var hljómsveitin byrjuð
að leika í hinu nýja sam-
komuhúsi í Vogunum, —
Glaðheimum. — Ekki er
ákveðið, hvar þeir leika
næsta vetur, en þeir bú-
ast við að leika eitthvað í
klúbbunum. — Sennilega
leikur hljómsveitin á dans
leikjum út um sveitir um
næstu helgar.
Hljómsveitin er þannig
skipuð: Guðmundur Ing-
ólfsson (gítar) hljómsveit-
arstjóri, Þráinn Kristj-
ánsson (vibrafon), Sigurð-
ur Þórarinsson (píanó),
Siggeir Sverrisson (bassi)
og Pétur Östlund (tromm-
ur). Söngvarar eru Einar
Júlíusson (sjá litlu mynd-
ina) og Engilbert Jensen.
Umboðsmaður hljóm-
sveitarinnar er Ellert Ei-
ríksson. Sá hann um rekst
urinn fyrir norðan að m
mestu leyti.
SKÁKMENN skipta heim-
inum í 9 svæði, Sovétríkin,
Bandaríkin, Kanada, Mið-
Ameríku, Suður-Ameríku,
Asíu og þrjú svæði í Evrópu.
Þriðja hvert ár er haldið mót
á hverju svæði til þess að
velja þátttakendur á milli-
svæðamót, en það hefur verið
næsti áfangastaður fyrir neð-
an kandídatamótið. Tveimur
af þrem svæðismótum Evr-
ópu er nú lokið. Fyrra mótið
var haldið í Budapest og sigr-
aði Ungverjinn Barcza, hlaut
IOV2 v. Næstir urðu Bilek,
Ungverjalandi, Bertok og Mat
anovic, Júgóslavíu og van
Scheltinga, Hollandi allir með
10 vinninga.
Barcza er sá eini, sem á ör-
uggan rétt til þátttöku í næsta
millisvæðamóti, hinir verða
að tefla um næstp tvö sæti.
Síðan mótið var haldið í
Madrid og urðu þeir efstir og
jafnir Pomar, Spáni, Patisch,
Ungverjalandi, Gligoric, Júg-
óslavíu og Donner, Hollandi,
allir með IOV2 v. Þrír þeirra
komust á millisvæðamótið og
verða þeir því að tefla um
þrjú efstu sætin.
Síðasta mót Friðriks Ólafs-
sonar er nú að ljúka og virð-
ist lokabaráttan einkum
standa á milli stórveldanna,
Bandaríkjamannanna Resh-
ewskys og Evas annars vegar
og Kortsnoj, skákmeistara
Sovétríkjanna hins vegar.
Friðrik stendur spölkorn of
ar miðju í mótinu með efsta
sætið ofan við seilingarhæð.
Reshewsky og Evans hafa
komig mjög á óvart og verður
gaman að sjá skákir þeirra
frá mótinu. Kortsnoj hefur
aftur á móti af mörgum ver-
ið talinn líklegur sigurvegari
og ekki að ástæðulausu. Við
lítum nú á sigurskák hans við
Spasski annan sigurvegarann
í fyrra móti Friðriks í Argen-
tínu. Skákin er tefld á Skák-
þingi Sovétríkjanna í ár.
Hvítt: Kortsnoj.
Svart: Spassky.
1. d4, da.
2. c4. dxc4.
3. Rf3, Rf6.
4. e3, Bg4.
5. Bxc4, eS.
6. 0-0 a6.
7. De2. —
(7. Rc3 var einfaldari leikur).
7. —- Rc6!
(Kemur í veg fyrir að hvítur
geti leikið e4 strax).
8. Hdl, Bd6
9. h3, Bh5.
10. e4, Bxf3!
Framhald á 14. sjffu.
4 23. júlx 1960. — Alþýðublaðið
VEGNA blaðaskrifa um
starfsemi kvikmyndahússins
Laugarásbíó og leigusamninga
þess við erlenda kvikmynda-
framleiðendur, tel ég nauð-
synlegt að eftirfarandi atriði
komi fram til leiðréttingar á
villandi frásögn í þessu efni.
Samningar kvikmyndahúss
ins hafa verið lagðir fyair
Menntamálaráðuneytið og að
sjálfsögðu gjaldeyrisyfirvöld.
Sannast þar að kvikmvnda-
húsið hefur ekki yfirbeðið
myndir, heldur náð sérstak-
lega hagkvæmum samning-
um, sem miðaðir eru við
hundraðshluta af tekjum kvik
myndahússins og það er víst,
að ekkert kvikmyndahús í
Evrópu hefur náð hagkvæm-
ari samningum um þessar
myndii’.
Laugarásbíó hefur algjöra
sérstöðu meðal íslenzkra kvik
myndahúsa. í húsinu eru sýn-
ingartæki fyrir Todd A. O.
sýningarkerfi, sem er nú ský-
laust fullkomnasta tækni kvik
myndanna.
Eru kvikmyndasýningar
þessar raunar svo fi'ábrugðn-
ar venjulegum kvikmyndasýn
ingum, að varla er hægt að
tala um að þær eigi nema nafn
ið eitt sameiginlegt með venju
legum kvikmyndasýningum,
eins og þeir geta bezt borið
um, sem þær sjá. Öll gerð
þessara kvikmynda er marg-
falt dýrai'a en venjulegra, og
sjálf sýningartækin eru miklu
dýrari og viðameiri en venju-
legar kvikmyndasýningar-
vélar og eru auk þess dýrari
í rekstri. Þess má og geta að
sýningar á mynd eins og
South Pacific, taka mun
lengri tíma, en venjulegar
sýningar gera.
Það segir sig sjálft að að-
gangseyrir þessara kvik-
myndasýninga verður óum-
flýjanlega all miklu meiri en
annarra kvikmynda. Þessi
verðmunur er þó minni hér á
landi en nokkurs annars stað-
ar, þar sem Todd A. O. kvik-
myndir eru sýndar, vegna sér
staklega hagkvæmra samn-
inga, sem Laugarásbíó hefur
tekizt að ná. í Ameríku kostar
til dæmis um fjórum sinnum
meira að sjá Todd A. O. en
sambærilegar myndir, sem
sýndar eru við þpirra hlið hér
á landi. í Laugarásbíói er verð
mismunur Todd A. O. kvik-
mynda og venjulegra hins
vegar aðein.s helmingsmunur.
í flestum -Evi’ópulöndum er
aðgangseyrir Todd A. O. hins
vegar um þrefaldur, miðað við
venjulegar sýningar.
Það er því ekki rétt sem
haldið er fram, að nú þegar
Laugarásbíó. fullkomnasta
kvikmyndahús landsins, tekur
til starfa, og sýnir nýjustu
tækni kvikmyndanna með
helmingi minni verðmun en
annars staðar tíðkazt, að verið
sé að yfirbjóða leigu kvik-
mynda erlendis. Leiguverð
einstakra mynda í þessu kerfi
er vitanlega alveg óviðkom-
andi venjulegri kvikmynda-
leigu. Þar er enginn saman-
burður tiltækur eða til staðar
eins og skilianlegt er.
Það væri t. d. ekki hægt að
halda því fram, að verið væri
að sprengja upp bílverð á bíl-
um, þótt einhver keypti hing
að til lands dýrari gerð bif-
reiðar, en hér hafa áður
þekkst. 'Vitanlega myndi það
ekki verða til þess, að íslend-
ingar yrðu að kaupa alla sína
bíla á því verði, sem slíkur
lúxusbíll er seldur.
Þess má ennfremur minn-
ast að þegar kvikmyndahús
hér á landi hafa sýnt sérstak-
ar stórmyndir hefur aðgangs-
eyrir oft verið hækkaðui' um
þriðjung og jafnvel helming,
enda þótt ekki hafi verið um
neinar endurbætur að ræða á
sjálfri sýningartækninni, held
ur myndirnar sýndar með
hinni gömlu útfærslu.
Slík hækkun hefur komið
ti'l af því, að þegar uiii sérstak
ar stórmyndir (t. d. ,,Á hverf-
anda hveli“) er að ræða hef-
ur þurft að gera alveg sér-
staka leigusamninga um þær
og leiga þeirx'a verið mun dýr
ari, vegna hins mikla tilkostxx
aðar við töku myndanna.
Laugarásbíó, sem er ekki í
samtökum kvikmyndahúseig-
enda, eins og ranglega er sagt
frá í fréttum, ætlar að fara inri
á nýjar brautir varðandi val
kvikmynda og sýningu þeirra,
sem hvorki er réttmætt né
verjandi að standa á móti.
Má í þessu sambandi vekja
athygli á því að Sjómanna-
dagsráð hefur einmitt stefnt
að því að gefa almenningi kost
á að kynnast og njóta hins
bezta, sem nú á dögum er völ
á á sviði kvikmyndaiðnaðar-
ins. Hefur það nú verið gert
með því að koma upp hinu
nýja og vandaða kvikmynda-
húsi, sem eitt allra kvik-
myndahúsa hér í bæ er búið
fullkomnustu og nýjustu
tækjum, sem nú eru fááhleg
á heimsmarkaðinum.
Laugai'ásbíó mun eingöngu
sýna úrvals kvikmyndir og
mun starfsemi þess því í rauni
og sannleika um margt frem-
ur líkjast góðu leikhúsi, en
bíói. Enda hæfir ekki annað
hlutverki svo myndarlegu og
vel gerðu kvikm.húsi’ búnu
fuUkomnasta tækniútbún-
aði til a ðskila úrvalskvik-
myndum á eftirminnilegan
hátt til áhorfenda.