Alþýðublaðið - 23.07.1960, Síða 16
ÝMSIR framámenn blökkumanna í Suður-Afríku flúðu land í vor, þegar allt setlaði
um koll að keyra jjar.. Og margir fóru til lítils nágrannaríkis, sem er eins og eyja
umlukt Suður-Afríku sambandsríkinu. Það er fjallalandið Basutoland. Það er undir
brezkri stjórn, og allt með friði og spekt. —Flóttamennirnir (sem sjást á myndinni)
eru allir ákveðnir í að fara aftur til Suður-Afríku, þegar þeim er það óhætt. — Þeim
finnst lífið heldur tilbreytingalítið í fásinninu í fjöllunum og þrá að komast í
heimaland sitt.
41. árg. — Laugardagur 23. júlj 1960. — 164. tbl,
OKENNILEGUR sjúkdóm-
ur kom upp fyrir skömmu í
Grená í Danmörku. Það er
9000 manna borg, og lágu 5000
manns veik sa.mtímis. Veik
indin eru: Höfuðverkur, hiti,
beinverkir, uppsala eða a. m.
k. velgja.
En það undarlega er, að
slí'kt ókennilegt fár geysaði á
sama tíma í fyrra sumar og
Iýsti sér nákvæmlega eins.
Læknar standa höggdofa,
vita ekkert hvað til bragðs
eigi að taka, þekkja ekki sjúk
dóminn.
23. FEBRUAR 1956 kom
mesta geislun, sem um getur
frá sólunni í átt til jarðar.
Fyrst kom, með hraða ljóssins,
bylgja últra-f jólublárra
geisla og röntgen-geisla. All-
ar útvarpssendingar á jörðu
niðri trufluðust í rúma klukku
stund. Stuttu síðar kom
geimgeislaský og allar flug-
samgöngur lögðust niður á
heimsskautasvæðunum.
Og enn meira gekk á, síma
viðtöl urðu fyrir miklum trufl
unum og ráfmangsþræðir
hættu að leiða í bili.
Þessar truflunar allar ollu
miklu tjóni, og ólag á útvarps
sendingum getur þý'tt hættu
fyrir skip og flugvélar.
í stjörnuathugunarstöðinni
við háskólann í Colorado, en
það er ein af fáum stöðvum,
sem eingöngu rannsakar sól-
ina, er nú verið að vinna úr
gögnum þennan eftirminni-
lega dag, og er nú langt komið
að skýra sólgos og annað slíkt.
Sólgos verða oft nálægt
blettunum á sólu, en þeir eru
„kalidr“ staðir á hinu ofsa-
heita yfirborði hennar. Ekki
er þó vitað um samband gosa
og sólbletta,.
Framhald á 14. síðu.
■V l
í fyrra var talið, að orsök-
in væri meingað vatn úr sér
stakri borholu, er reyndist ó-
hrein og ekki hefur verið not-
uð síðan. Nú virðist það ekki
geta verið tilfellið, úr því að
faraldurinn kom upp á ný.
Menn gizka á, að þetta
konií úr fæðunni, og talað er
um vírus og svoleiðis.
eru frá hinum ríku iðnaðar-
löndum Englandi og Vestur-
Þýzkalandi.
1957 fluttust 165.295 menn
frá Vestur-Þýzkalandi, fyrir
utan þá, sem fóru til her-
námssvæðis Rússa. 40.000
fóru til Bandaríkjanna og
23.000 til Sviss.
Þúsundir manna flytjast
líka til Vestur-Þýzkalands.
1959 var innflytjendafjöld-
inn 435.000. Flestir þeirra
voru frá Austur-Þýzkalandi,
en margir komu frá Ítalíu,
Austurríki og Sviss.
1958 fluttust 95.000 Bretar
úr landi, flestir, eða rúm 37
þúsund fóru til Ástralíu. Að-
eins 16.000 héldu til Kanada
miðað við 61.000 árið áður.
Allt að því jafnmargir
komu til Bretlands og flutt-
ust þaðan. 50.000 fluttust
þangað frá írlandi einu sam-
an. Nokkur þúsund komu frá
Vestur-Indíum.
Talsverðir fólksflutningar
eru árlega milli Norðurland-
anna, en nákvæmar tölur um
það eru ekki til.
Fjöldi manns flytur árlega
frá HoIIandi. Síðastliðið ár
fluttust þaðan 54.076 manns
til Ástralíu, Bandaríkjanna,
Kanada og Nýja-Sjálands. —
Allmargt manna frá Indónes
íu flytur þangað í staðinn.
Til Austurríkis kemur ár-
lega straumur flóttamanna
frá löndunum handan járn-
tjaldsins.
Rúmlega 30.000 flytjast
árlega frá Portúgal, einkum
til Brazilíu.
London, júlí. (UPI).
NÆR því ein milljón Evr-
ópubúa flytja milli landa á
ári hverju. Þeir flytja til
annarra Evrópulanda, Ame-
ríku, Afríku, Asíu eða Ástra
líu og búa þar alla tíð síðan
eða aðeins um sinn.
Frá hinni alltof fjölmennu
Ítalíu fará menn um heim
allan. Árlega fara þaðan
milli 150-200.000 manns og
gerast innflytjendur í öðr-
um löndum og heimsálfum.
Ekki eru til nákvæmar
skýrslur um hvert þeir fara,
en margir fara til Frakk-
lands og Þýzkalands og fá at
vinnu í hinum f jöruga iðnaði
þessara landa.
Innan Ítalíu eru líka mikl-
ir mannflutningar. Bændur
frá hinum fátæku héruðum
sunnan til í landinu hópast
til hinna auðugari norður-
héraða og leita sér atvinnu.
Uin það bil 30.000 ítalir
koma árlega til Frakklads,
og rúm 20.000 til Þýzka-
lands. Talið er að 725.000 ít-
alir séu búsettir í Frakk-
landi.
Hálf önnur milljón ítala
býr í Bandaríkjunum.
Næst fksíir útflytjendur
Vænn teygur
;! ÞEGAR enskir stúdentar
;! keppa um það, hver geti
I! hellt í sig mestu af öH í
;! einum teyg, nota þeir glös
1! eins Og það, sem sést á
|! myndinni, Það tekur hálf-
;! an annan lítra, og teygur-
;! inn er 10—15 mínútna
)! langur.