Lögberg - 07.03.1935, Page 1
48. ARG4NGUR
WINNIPEG, MAN.. FIMfTUDAGINN 7. MARZ 1935
PHONE 86 311
Seven Lines
íoj!
„ yg*** For
-n«*]S5& ^ Better
xc„r. "° Dry Cleaning
and Laundq
NÚMER 10
MISS RÓSA HERMANNSSON
Samkvæmt áÖurgreindum fregnum, syngur Miss Rósa
Hermannsson í Pyrstu lútersku kirkju hér í borginni á fimtudags.
kveldið þann 14. þ. m., með aðstoð hr. Ragijars H. Ragnar píanó-
leikara. Miss Hermannsson er Islendingum hér í borg að góðu
kunn, ein^ og annarsstaðar þar sem leið hennar hefir legið; hún
hefir fallega rödd, sem vænta má að þjálfub síðustu ára hjá góðum
kennara, hafi þroskað til muna. Miss Hermannsson tók góðan og
mikinn þátt í íslenzku samfélagslifi meðan hún dvaldi í þessari
borg, og hún á það inni hjá oss Winnipeg-búum, að samkoma henn-
ar verði vel sótt, Komi til þess að Miss Hermansson ferðist eitt-
hvað út um nýbygðir vorar, að afstaðinni þessari fyrirhuguðu
Winnipeg samkomu, má víst telja að henni verði þar hvarvetna
vel fagnað.
Skýring
Betel tvítugt
Niðurlagsorð minnin garrœð'unnar
1. mars 1935.
Eftir Dr. Björn B. Jónsson.
AS síðustu skal eg fara örfáum
orðum um orsök vinsælda og vel-
gengni Betels.
Ekkert í tilverunni, stórt eður
smátt, gerist af handahófi. / Allir
hlutir lúta föstu lögmáli. Eitthvert
dásamlegasta lögmál tilverunnar er
lögmál það, er stjórnar sambandi
þarfar og fullnægju. Hvar sem í
tilverunni er réttmæt þörf, þar er og
réttmæt fullnægja þarfarinnar.
Stöðuvatninu stóru er þörf á
nýju vatni sér til viðurværis og til
næringar ótal smálífum, sem hreyf-
ast \ djúpi þess. Og sjá, sól á há-
um himni uppi bræðir snjó og jök-
ul á tindum fjalla og elfur renna ó-
stöðvandi, knuðar þunga helgrar
skyldu, unz þær að ósi skila djúpi
sending sólar og fjallagjöfum, rétt-
mætri þörf fullnægju að veita.
Pjólan bláa í fjötrum skuggans
þarfnast ástar himingeislans. Henni
er mál gefið, þó menn ei skilji, að
ákalla ylsól, að hún ást sér veiti.
Og sjá, stólkóngur stjarnahvelsins
kemur og krýpur að fótum f jólu og
lífgar hana ljóssins kossi.
Aldrei er fullnægja fyrirbúin
nema þörf sé réttmæt. Eigi gagn-
ar hús að reisa, ef enginn þarfnast
húss til leigu. En hvar sem er þörf
segir þörfin til sín sjálfkrafa og öll
orka alheims er skuldbundin þörf-
inni fullnægju veita. Það heitir
slys í náttúrunni en í mannlífi hand-
vömm, þá eigi kemur fullnægja
hverri þörf til bjargar.
Á dreifing víðri í álfu Vesturs
voru bogin bök og beygðar sálir út-
lendra ellimenna, slitin af rót ís-
lenzks ættstofns. Einstæð og alls-
laus sagði ellin tilveru Guðs frá
sinni þörf skjóls og skýlis. Það
hefir Alfaðir eðli skapað öllum
mönnum, að svo sem sól í upphæð
eygir tillit biðjanda blóms á bakka
elfar, svo eru sálir ýtasona, þeirra
er Kristi kærleik styðjast, heyrnar-
næmar á harmkvein bræðra, að ótil-
kvaddar og af eðlisnauðsyn koma
þær sjálfkrafa á vettvang þarfar.
Fyrir því blessast og blómgast
Betel, liknarhæli langferðamanna,
er þar loks hvíla lúin bein og öndu
örmædda, öruggir í forsjá Guðs og
góðra manna. Fyrir því mun aldregi
bjargar vant á Betel góða. Ár
munu liða og arfar taka úr áa hönd-
um ástfóstri líknarstofnun tvítuga
nú en tíræða síðar. Hvað sem verð-
nr um kynslóðir komandi, mun
^etel blessast og bjóða dyr opnar.
meðan til er á Vesturvegi islenzk
sal, ellihrum og einstæð á æfikveldi.
Yfir hvílir afmælisbarni örlát hönd
Þess Guðs hins góða, er glöggar
^onnum kann að greina allra hagi
°S þörfum aumstaddra fullnægju
veita.
°nr til dr. b. j. brand-
nONAR I WINNIPEG
Sjúkdóms fargi sigrast á,
sasmd og stilling hafin,
hrífnr margan helju frá
hond þín snilli vafin.
Á lífs gangi eg það finn
undrun lýsir sanna;
hefir fangaö heili þinn
hjartað visindanna.
þig skrýði auðnu ljós,
alheims prýðir salinn;
fer þín viða frægð og hrós,
fremstur lýða talinn.
Líknarsafn þitt listum steypt
Ijómar alt í kringum;
þút mun nafnið gulli greypt
geymast íslendingum.
Margrét J. Sigurdson.
“Villandi af ásettu ráði,” nefnir
Mr. McCaskill þá staðhæfingu J. C.
Davis að “Tuttugustu aldar félags-
skapur frjálslynds fólks í Mani-
toba” hafi enga viðurkenningu hjá
leiðtogjum frjálslynda flokksins.
Sannleikuýnn er sá að þessi fé-
lagsskapur hefir ekki einungis
munnlega viðurkenningu frá aðal-
leiStoga flokksins, Hon. W. L. Mc-
kenzie King, heldur einnig skrifleg-
ar heillaóskir. Þessi félagsskapur
er meðlimur í “hinu canadiska sam-
bandi frjálslyndra manna í Canada”
og er Sir Vincent Massey formaður
þess.
Mr. McCaskill mælti sVo um að
gaman væri að vita hvað komið
hefði Mr. Davis til þess að gera
þessa villandi og tilhæfulausu stað-
hæfingu.
Við þvi hefði fremur mátt búast
að vegna stöðu sinnar sem forseti
frjálslyndra manna í Manitoba hefði
hann glaðst yfir áhuga ungra frjáls-
lyndra manna. Hvaða synd skyldi
það vera sem vér hinir yngri frjáls-
lyndu menn höfum drýgt? Það er
oss ekki sagt. Er mögulegt að synd
vor sé sú, að vér höfum leitast við
að blása lífsanda í frjálslynda starf-
semi meðal hinnar yngri kynslóðar?
“Það var illa farið,” segir Mr.
McCaskill einnig, “að Mr. Davis
skyldi ekki kynna sér betur póli-
tíska starfsemi og áhuga ungra
manna *og kvenna á íslandi áður en
hann fór á stúfana í íslenzku blöð-
unurn.
Á eyjunni litlu, sem stofnaði
fyrsta varanlegt þjóðþing, hefir
unga kynslóðin átt drjúgan þátt í
öllum framförum.
Upphaf félagsskapar V(\j's á rót
sína að rekja til þess óheilla spors,
að þáverandi klúbbur ungra, frjáls-
lyndra manna lýsti því yfir í blöð-
um að hann væri hlyntur samein-
ingu liberala og Bracken flokksins.
Ósamþykkir aðferð þeirri, sem
notuð var og álítandi að hún væri
að öllu leyti ósamboðin frjálslyndri
stofnun—og sérstaklega gramir yf-
ir óheilla aðferð, sem síðar var beitt
til þessarar sameiningar, stofnuðu
ellefu ungirmenn nýjan klúbb. For-
seti þessa nýja klúbbs var K. Mc-
Caskill, og eftir tvö ár taldi nýi
klúbburinn 250 manns; komu f lestir
þeirra frá ungu fólki kirknanna, há-
skólans og Y.M.C.A.
Árið sem leið var stofnaður tutt-
ugustu aldar félagsskapur ungra
frjálslyndra kvenna og var Beatrice
Molloy forseti raná ; þetta félag tók
höndum saman við félag vort. í
fyrra gengust þessi félög sameigin-
lega fyrir flokksþingi með fulltrúum
úr öllum héruðum fylkisins og var
McCaskilI kosinn fyrsti forseti Sam-
einaðs ungs fljálslynds fólks í Mani-
toba—það er félagsskapar vor.
Á liðnu ári hafá 5 frjálslyndar
deildir ungs fólks bættst við: Norð-
ur Mið-Wúyúpeg með Árna Jó-
hannesson sem formann, Suður
Mið-Winnipeg nteð K. Howson sem
formann, East Kildonan með C. N.
Campbell sem formann, North Win-
nipeg og St. Bóniface. Sá er þetta
ritar er nú formaður þessa félags-
skapar. *
Flokkurinn heldur fylkis-flokks-
þing 8. og 9. marz (föstudaginn og
laugardaginn) í Fort Garry'hótel-
inu. Þangað eru allir velkomnir.
» \
Stefdn Hansen.
VARAFORSETI NEÐRI-
MÁLSTOFUNN AR
NÝLATINN
Síðastliðinn þriðjudag lézt i Ot-
tawa Armand I-avergne, varaforseti
neðri málstofu Sambandsþingsins,
fimtíu og fimm ára að aldri; var
hann fæddur og uppalinn í Quebec
fylki. Mr. Lavergne var fyrst kos-
inn á þing undir merkjum frjáls-
lyndu stefnunnar, en hneigðist æ
þvi meir í íhaldsátt, eftir því sem
árin færðust yfir hann, og náði
kosningu sem afturhaldsmaður í
einu Quebec kjördæminu í kosning-
unum 1930.
Úr borg og bygð
Mrs. Jónas A. Sigurðsson frá
Selkirk var í borginni dagana, sem
þjóðræknisþingið stóð yfir, ásamt
Elínu dóttur sinni.
Mr. og Mrs. Skagfjörð frá Sel-
kirk, komu til borgarinnar í fyrri
viku, til þess að sækja þing þjóð-
ræknisfélagsins.
Mr. Kristján Pálsson skáld frá
Selkirk, var staddur í borginni á-
samt frú sinni, meðan á þjóðræknis-
þinginu stóð.
Mr. Valdimar Eiríksson frá
Lundar, Man., kom til borgarinnar
snemma í fyrri viku, með son sinn
Sumarliða, til lækninga. Var Sum-
arliði skorinn upp á Almenna
sjúkrahúsinu af Dr. B. J. Brandson,
og líður vel að því er frézt hefir.
Mrs. Carl Fredrickson frá Kanda-
har, Sask., átti sæti á nýafstöðnu
þingi þjóðræknisfélagsins.
Mr. Guðmundur Grímsson háyfir-
dómari frá Rugby, N. D., var stadd-
ur í borginni um þjóðræknisþingið
ásamt frú sinni. Þau héldu heim-
leiðis á laugardaginn var.
Mr. J. K. Jónasson frá Vogar,
Man., var einn þeirra mörgu, er
þjóðræknisþingið sóttu. Lagði hann
af stað heimleiðis á laugardagin.n
var. Mr. Jónasson hefir dvalið á
Lundar í vetur, ásamt frú sinni,
en er nú kominn til heimilis sins að
Vogar. Biður hann Lögberg að
flytja hinum mörgu vinum þeirra
hjóna á Lundar og í grend, alúðar
þakkir fyrir ánægjulegar samvistir.
ÞAKARORÐ
Það hefir dregist alt of lengi fyr-
ir okkur undirskrifuðum að þakka
opinberlega öllum þeim á Mikley,
sem á einn eða annan hátt sýndu
okkur kærleiksríka hluttekningu við
hið sviplega og sorglega fráfall son.
ar okkar, bróður, tengdabróður og
frænda, Jóns Ásgeirs Karls Aust-
fjörðs, sem druknaði 7. september
síðastliðinn.
Eins þeim, sem sendu okkur bréf
með samhygð sinni. ÖIlu þessu góða
fólki þökkum við af hjarta og vitum
fyrir víst að Guð mun styrkja það
þegar því mest á liggur.
Mikley, 18. febr. 1935.
Mr. og Mrs. G. J. Austfjörð,
Sigurður Austf jörð,
Mr. og Mrs. Karl Grohn,
Mr. og Mrs. Hans Schwabe,
Jennie Gabel.
Jón Bjarnason Academy—Gjafir:
Th. Thorsteinsson, Beresford,
Man........................$ 1.00
Mrs. S. B. Johnson,
Dafoe, Sask............. 1.00
B. r. Jónsson, Sardis, B.C. .. 5.00
O. Pétursson, Winnipeg .. 12.00
Vinkona skólans, Langruth 5.00
C. G. Hjálmson og fjölskylda
Eckville, Alta.......... 1.80
Með vinsamlegu þakklæti,
S. W. Melsted,
gjaldkeri skólans.
Meimliðisiðnaðarfélagið heldur
sinn næsta fund að heimili Mrs. C.
S. Johnston, 985 Warsaw Ave. mið-
vikudaginn 13, marz kl. 8.
Robert D. Macauley hefir verið
útnefndur sem þingmannsefni í
Yukon sambandskjördæminu. Á
hann heima í Vancouver. Segja
sumir að hann verði kosinn gagn-
sóknarlaust, með því að engan fýsi
að sækja þarna undir merkjum
Bennett-st jórnarinnar.
Betel 20 ára
í flestum málum eru íslendingar
hér ílandi skiftir; í flestum málum
er hver höndin upp á móti annari.
Ósjaldan ber það við að nokkurt
mál vor á meðal eigi því láni að
fagna að þar leggi allir sameiginlega
hönd á plóginn.
Stöku sinnum hefir það komið
fyrir og hefir það þá greinilega
komið í ljós hversu miklu má koma
til leiðar.
Einn gróðurbletturinn á sundr-
unga eyðimörk vorri er eliheimilið
Betel. Það er eina stofnunin, sem
allir hafa svarið hollustu.
Hlýhugur berst úr öllum bygðum
íslendinga að þeirri stofnun og sól-
skin viðkvæmrar hluttekningar
leikur um hana.
Nú eru liðin 20 ár síðan þessi
þarfa stofnun var byrjuð. Til þess
að minnast þess viðburðar var hald-
in vegleg samkoma í Fyrstu lútersku
kirkjunni í Winnipeg föstudaginn 1.
marz. Kirkjan var full og skemti-
skráin ágæt. Dr. B. J. Brandson,
sem hefir verið ein allra sterkasta
I máttarstoð heimilisins stýrði þessu
samkvæmi. Eg var ekki kominn
þegar samkoman byrjaði og heyrði
því ekki hvað hann sagði.
Aðalræðuna um afmælisbarnið
flutti séra B„ B. Jónsson. Hann
sagði sögu stofnunarinnar frá byrj-
un í glöggum og skýrum dráttum.
Lýsti því þegar heimilið byrjaði í
litlu leigðu húsi á Winnipeg Ave.
og voru þar 10 gamalmenni í fyrstu. |
Séra Björn las upp nöfn þeirra
allra. Hann skýrði frá því hversu
hamingjan hefði svo að segja leitt
þessa stofnun frá upphafi; góðvilji
og einlægni kvenfélagsins, sem fyrst
hóf starfið virtist hafa vermt og
hvatt góða menn í öllum áttum til
styrktar og aðstoðar—0g ekki ein-
ungis það, heldur hefði tækifærin
skapast hvert á fætur öðru til þess
að færa út kvíarnar, þar sem vegir
hefðu opnast til þess að kaupa við
gjafverði hverja byggingufia annari
veglegri þangað til nú að heimilið
væri orðin stór og mikil stofnun rót-
fest á hinum sögufræga stað Vestur-
íslendinga—Gimli.
Séra Björn gat þess hversu
mikill hamingjuauki það hefði einn-
ig verið að tvær ágætar og fórnfús-
ar konur hefðu fengist til þess að
stjórna stofnuninni og líta eftir
gömlu börnunum — og nú þegar
þeirra dagur væri að kveldi komin,
hefði sú kona nú tekið þar við
stjórn, sem tvímælalaust tæki flest-
um fram í því starfi.
Séra Björn fór fögrum og verð-
ugum orðum ufn verk Dr. Brand-
sons og veglyndi þessari stofnun til
handa. Hann mintist hinnar stóru
gjafar Hjartar Thordarsonar og
fleiri og mintist þess með söknuði
að einn þeirra manna, sem bezt og
trúast hefði starfað heimilinu til
hags og heilla frá byrjun þess og
fram á þennan dag, gæti ekki mætt
á þessu samkvæmi vegna alvarlegra
veikinda.. Það var Jónas Jóhannes-
son, sem lengst af hefir verið fé-
hirðir stofnunarinnar. Samþykt
var í einu hljóði hluttekningar- og
þakklætisvottorð til hans.
Pálmi Pálmason og hljómsveit
hans lék nokkur lög og var góður
rómur gerður að.
Frú B. H* Olson söng tvisvar
snildarvel eins og æfinlega. Thor
Johnson og Guðmundur Stefánsson
sungu tvísöng; hafa þeir alloft
sungið saman áður og ferst það á-
gætlega. Gunnlaugur Jóhannsson
las upp langt kvæði vel og skernti-
lega, eins og honum er tamt; hann
er hrókur alls fagnaðar í samkvæm-
islífi íslendinga hér.
Aðdáanlegast þótti mér það á
þessari samkomu að þar kom fram
ung stúlka, sem heitir Vera McBain,
og söng þrjú íslenzk lög svo vel og
íslendingslega að ekki heyrðist blær
á framburðinum, sem gæfi það til
kynna að hún væri af öðru bergi
brotin en íslenzku. Sá á þakkir og
heiður, sem hefir kent henni, því
hann hefir sannað það hversu auð-
velt er að keniia ungu fólki tungu
vora—ætti ekki að vera erfiðara að
kenna hana unglingum af voru eigin
þjóðerni.
Á eftir samkomunni fóru fram
rausnarlegar veitingar í neðri sal
kirkjunnar.
Blessunaróskir og hlýhugur allra
Vestur-íslendinga hvilir áreiðanlega
yfir Betel — þangað stefnir hugur
margra hinna eldri þegar skuggarn.
ir lengjast.
Sig. Júl. Jóhannesson.
Bogaliát
Meðal hinna meiri háttar íþrótta
í fornri tíð, verður að telja boga-
listina, eða bogfimina. Geta forn-
sögur vorar víða hreystimanna og
kappa, er unnið höfðu sér mikið
frægðarorð fyrir bogalist.
Með Islendingum hefir þessi
forn-þjóðlega íþrótt lengi legið í
þagnargildi, að því undanteknu, sem
einn íslendingur hér vestan hafs, hr.
Halldór Methúsalems Swan, hefir
látið sér umhugað um hana og unn-
ið að endurvakning hennar.
í Bandaríkjunum víðsvegar, er
bogalistin í miklu afhaldi, og ár-
leg samkepni háð á ýmsum stöðum
í þeirri tegund skotfiminnar. Hér
i Canada hefir verið nokkuð öðru
til að dreifa.
Nú hefir þessi listfengi íslend-
ingur tekið sér það fyrir hendur að
framleiða í stórum stíl boga og örV-
ar, ér talin eru til beinna gersema
af þeim sem skil kunna á slíku smíði.
Er Halldór eini maðurinn í Vestur-
Canada, er slika framleiðslu stund-,
ar.—
Nú hefir þannig skipast til, að
sýning á þessari framleiðslugrein
Halldórs hefst þann 25. yfirstand-
ándi mánaðar í Eaton Annex, er
Eaton félagið góðfúslega bauð
fram og stendur yfir til 1. apríl.
Fara þar þann \tíma daglega
fram ókeypis æfingar í því að skjóta
með boga. auk þess sem tvo síðustu
dagana fer fram samkepni í þessari
iþrótt, er meyjar sem sveinar eiga
jafnan aðgang að. Það ætti ekki
að þurfa að hvetja íslendinga til
þéss að sækja þessa nýstárlegu í-
þróttasýningu; mikil aðsókn ætti að
vera sjálfsögð.
íslendingadagar margir og fjöl-
sóttir, eru árlega haldnir víðsvegar
um nýbygðir vorar. Skipa íþróttir
þar jafnan virðingarsæti og fer það
að vonum. Bogalistinni mætti þar
vel bæta við; ekki einhvern tíma
seint og siðar meir, heldur undir
eins á komanda sumri.
AUKAKOSNING 1
ONTARIO
Þann 5. þessa mánaðar fór fram
í Nipissing kjördæminu aukakosn-
ing til fylkisþingsins í Ontario.
Frambjóðendur voru tveir. Úrslitin
urðu þau, að, J. Harry Marceau,
liberal, var kosinn með 9,000 at-
kvæðum um fram gagnsækjanda
sinn Mr. E. J. Lawrence, C.C.F., er
hlaut 3,890 atkvæði. .
Reykjavík 8. febrúar.
Aftaka veður í dag, sunnanlands
og vestan; tjón víða allmikið. Tæp-
ast stætt á götum Reykjavíkur.
Skemdir á útvarps. og lofskeyta-
stöð.
I