Lögberg - 21.03.1935, Page 1

Lögberg - 21.03.1935, Page 1
48. 4RGANGUR WINNIPEG, MAN„ FIMiTUDAGINN 2I.MARZ 1935 NÚMER 12 Frá Islandi SíSastliðinn sunnudagsmorgun kom þýzkur togari til SeySisf jarðar meS veikan mann og var hann lagS- ur á sjúkrahúsiS. Brotsjór hafSi gengiS yfir skipiS viS Hjörleifs- höfSa á laugardaginn og tekiS út tvo menn.—Tíminn 5. febr. # # * Nýlátin er Halldóra Stefánsdótt. ir, ekkja Eymundar í Dilksnesi í HornafirSi. Var hún fædd 1844, dóttir Stefáns Eiríkssonar alþingis- manns i Árnanesi. HafSi Halldóra dvaliS hjá dóttur sinni í Dilksnesi aS undanförnu.—Tíminn 5. febr, # # # MeSalnyt kúa á Seljalandi, kúa- búi ísafjarSarkaupstaSar, var á ár- inu 1934, 3180 kg., en meSalnythæS hjá öllum nautgripafélögum lands- ins 2700 kg. Ein kýr, Branda, 7 ára gömul, mjóIkaSi 6095 kg. meS fitu- magni um 4%. Branda er frá StaS- arfelli á Fellsströnd.—Tim. 5. febr. # # ' # Á Laugarvatni hefir tjald veriS notaS til gufubaSa þangaS til í haust, aS reistur var timburskúr yfir hver- inn og hefir þaS reynst til mikilla bóta. Hafa nemendur aS jafnaSi í vetur fengiS sér gufubaS eftir leik- fimisæfingar. Líkar þeim þaS svo vel, aS þeir myndu fyrir enga muni vilja missa af þeim þægindum. Má geta þéss í sambandi viS þetta, aS Ásgeir Ásgeirsson fræSslumála- stjóri fékk því komiS til leiSar á seinasta þingi, aS nokkur fjárhæS var veitt á þessa árs fjárlögum til aS koma upp gufubaSstofu í finsk- um stíl viS alþýSuskólann á Núpi. Bendir reynslan af gufubaSinu á Laugarvatni til þess aS góSs árang- urs megi vænta af þeirri frarn- kvæmd.—Tíminn 5. febr. # # # Nýlátinn er í Borgarnesi GuS- mundur Jónsson póstur, einn hinna einkennilegu eldri manna, minnis- stæSur öllum er kyntust honum vegna sinna hnittilegu tilsvara, á- ræSis og óvenjulegu framkomu. Eru mörg tilsvör GuSmundar landfræg. ■—Tíminn 5. febr. * # # EimskipafélagiS hefir auglýst mikinn afslátt á fargjöldum fyrir >á er vilja sækja brezku sýninguna í London, er hefst 18. þ. m. Á þess- um brezku sýningum í London er sérstaklega margt aS sjá af allskon- ar iSnframleiSslu Breta, og iSrar tæplega nokkurn aS sjá sýninguna, sem kann aS vera á ferð í Englandi um þaS leyti sem hún stendur yfir. Eru þessar sýningar haldnar árlega l,m þetta leyti.—Tíminn 12. febr. # # # f Borgarnesi er atvinnuleysi að vetrinum og fábreyttir atvinnuvegir eins og kunnugt er. LinuveiSari var ^eyptur þar af samvinnufélaginu Grimi siSastl. haust og er hann nú 1 fiskflutningum til Englands, en ráðgert aS hann byrji fiskveiSar um usestu mánaSamót. Borgnesingar ei u ðúnir að koma sér upp dálitlu af fiskverkunarreitum og hafa þeir i huga aS bæta viS þá, þegar líSur á veturinn og þurka sjálfir á þeim fisk þann, er línuveiðari þeirra vænt. anlega veiðir.—FarþegaskipiS, sem Borgnesingar eru aS láta smíða ytra ei búist viS að verSi lokið viS upp úr miðjum mai. Og er ætlunin aS þaS geti hafiS ferðir sínar milli eykjavíkur og Borgarness rétt fyr- Ir eða um i- júní. En þangaS til annast “SuSurlandiS” þessar mili- ferSir.—Tíminn 12. febr. # # # Þorsteinn Sigurgeirsson gjaldkeri í BúnaSarbanka íslands, andaðist í Landsspítalanum síSastl. föstudag, eftir uppskurS.—Tíminn 12. febr. # # # Úrkoman i desember 1934 var aS meðaltali 36% umfram meSallag. Hún var mikil á NorSur- og Aust- urlandi, en minni.en venjulega sunn- anlands og vestan. Á stöSum, þar sem meSalúrkoma er kunn, var hún tiltölulega langmest í Höfn í Borg- arfirSi eystra, 396% umfram meS- allag eða fimm sinnum meSal úr- koma, en minst á Hvanneyri 62% neðan viS meðallag eða rúml. þriðj- ungur úr meðalúrkomu. Úrkomu- dagar voru 6—9 fleiri en venjulega austanlands en annarsstaðar voru þeir í meðallagi eða neSan viS þaS. Mest mánaSarúrkoma varS í Fagra- dal eystra, 367.8 mm. og líka mest sólarhrings úrkoma, 69.9 mm. — Tíminn 12. febr. BÍLAVEBZLUN BANNSÖKUÐ FjármálaráSgjafi Sambands- stjórnarinnar, Hon. N. E. Rhodes, hefir tilkynt, að hann hafi faliS toll- ráðinu (The Tariff Board), aS hefja nú þegar rannsókn á bíla- framléiSsílu ' og bílavérzlun lands- ins, meS þaS fyrir augum aS graf- ast fyrir rætur hins geysilega verð- munar á bilum hér í landi og sunn- an landamæranna. FOBSÆTISRAÐGJ AFINN RÚMFASTUR Rt. Hon. R. B. Bennett, forsætis- ráðgjafi, er enn rúmfastur, og ólik- legt taliS aS hann VerSi fær um aS sinna þingstörfum fyrst um sinn; hefir fjarvera hans tafiS framgang þingmála. SíSastliSinn mánudag lagSi þó settur forsætisráðgjafi, Sir George Perley, fram frumvarp stjórnarinnar í þinginu um stofnun 15 manna f járhagsráSs; er þaS einn hlekkurinn i umbótakeSju Mr. Ben- netts. SKIFTIR UM PRESTA- KALL Dr. J. S. Bonnell, prestur við Westminster kirkjuna og einn af hinum áhrifamestu kennimönnum þessarar borgar, hefir afráðið aS flytja héSan í næstkomandi maí- mánuði og takast á hendur prests- þjónustu viS Eifth Avenue Presby- tera söfnuðinn i New York. HON. J. D. McGREGOR LÁTINN SíSastliSinn föstudag lézt aS heimili sínu hér i borginni, Hon. J. D. McGregor, fyrverandi fylkis- stjóri i Manitoba, eftir rúma hálfs- mánaðarlegu. Mr. McGregor var einn hinna mestu athafnamanna Vesturlandsins og þó víðar væri leit- aS; varS hann víSfrægur fyrir af- skifti sín af búpeningsrækt og sýn- ingum í þvi sambandi. Hinn látni fylkisstjóri var í heim þennan borinn aSAmherstburg þann 29. dag ágústmánaSar árið 1860; barnaskólamentun hlaut hann í bæn- um Vindsor i Ontariofylki, en flutt- ist til Vestur-Canada áriS 1877. Reisti rann fyrst bú i Alberta, og fékk snemma orS á sig fyrir marg- víslegar umbætur á sviSi búpen- ingsræktarinnar. Lengsta og áhrifa- mesta starfskafla langrar æfi varði hann þó hér i fylki; átti hann lengst af heima í Blrandon, en stundaði jafnframt búskap i stórum stíl. Mun Manitobafylki lengi bera minj- ar framtaks hans og viturlegrar for- sjár. Konu sina misti Mr. McGregor fyrir mörgum árum. Þrjú börn þeirna eru á lífi, tveir synir og ein dóttir. Mr. McGregor var höfSinglegur maSur og mikill aS vallarsýn. Hann hafði alla daga mikinn áhuga á opin- berum málum og átti oftar en einu sinni kost á útnefningu til sambands- þings undir merkjum frjálslyndu stefnunnar. JarSarförin fór fram í Brandon aS viðstöddu fjölmenni. TFKJUR AUKAST Samkvæmt fregnum frá Ottawa þann 15. þ. m., hafa tolltekjur sam- bandsstjórnarinnar aukist um $23,- 892,352 á síðastliSnum ellefu mán- uSum, boriS saman viS jafnlengdar tímabil á undan. PRÓF. MacLEOD DEYR I ABERDEEN SíSastliSinn laugardag lézt í Aberdeen, prófessor James Richard MacLeod, heimsfrægur fyrir upp- götvun á meðölum gegn sykursýki, ásamt Dr. Banting; hlutu þeir félag- ar báðir NóbelsverSIaun i læknis- fræði áriS 1923. Prófessor Mac- Leod var 58 ára aS aldri. FRIÐRIK DANA-PRINS OG INGIRlÐUR PRINSESSA HIN SVENSKA. Slmað er frá Stc.kkhólml þann 15. þ. m., að þau Friðrik rfkis- erfinjri íslands og Danmerkur, og Inírirfður prisessa hin svenska, hafi þá um daginn opinberað trúlofun sfna. Er brúðarefnið dóttir Adolfs rfkiserfingja Svía. Frá konungshöllinni svensku var birt svohljóð- andi tilkynning: “Ingirfður prinsessa hins svenska, hefir með samþykki Gústafs Svíakonungs heitið Friðriki ríkiserfingja Danmerkur og íslands eiginorði.” Úr borg og bygð Miss Rósa Hermanssonn brá sér norSur i Nýja ísland seinni part fyrri viku í heimsókn til ættingja og vina. Hún kom hingaS aftur á mánudagsmorguninn, en fór sam- dægurs vestur til Elfros, Sask., til þess að heilsa upp á frænda sinn Jóhann Magnús Bjarnason skáld. Á sunnudagskveldiS kemur leggur Rósa af stað heim á leiS til Toronto. Mr. O'li Anderson frá Baldur, Man., var stadur í bo'rginni um helgina. Dr. B. J. Brandson fór suður til St. Paul, Minn., í fyrri viku, til þess aS sitja læknaþing, er þar var háð. Kom hann heim aftur um helgina. Dr. Ó. Björnson fór vestur til Melville, Sask., í vikunni sem leið, og var nokkra daga aS heiman. Mrs. DavíS GuSmundsson frá Árborg, liggur á Almenna sjúkra- húsinu hér í borginni um þessar mundir. Þeir prófessor Skúli Johnson og Dr. Rögnvaldur Pétursson, fluttu fyrirlestra viS Manitoba háskólann í vikunni sem leiS. Sá fyrnefndi um fornbókmentir fslendinga, en hinn síðarnefndi um nútíma bók- mentir þjóSarinnar. í síðasta blaði var þess getiS, aS Dr. Kristján J. Austman frá Wyn- yard. lægi allþungt haldinn á Al- menna sjúkrahúsiu hér í borginni Hann er nú, sem betur fer, talinn á batavegi. Bjart og gott herbergi, án hús- gagna, fæst nú þegar til leigu að 591 Sherburn St., sími 35 909. Dr. Tweed verður í Árborg á fimtudaginn þann 28. þ. m. Mr. Márus Doll frá Mikley, ligg- ur á Almenna sjúkrahúsinu hér í borginni um þessar mundir. Mrs. Skúli Sigurgeirsson frá Mikley, er stödd í borginni; kom hún til þess aS vitja föður síns, Márusar Doll í sambandi viS veik- indi hans. ÁkveSið hefir veriS að sýna leik- inn “MaSur og kona” á Gimli föstu- dagskvöldiS 5. apríl og í Riverton þriðjudagskvöldiS 9. apríl. VerSur þetta nánar auglýst í næstu blöðum. MEN’S CLUB Fundur Karlaklúbbs Fyrsta lút- erska safnaSar síðastliSið þriðju- dagskvöld, var ágætlega sóttur, og hinn ánægjulegasti. RæSumaSur var Mr. J. C. Downie, fangavörður viS Headingly fangelsiS; erindi hans fróSlegt og mannúðlegt. Hjálmar A. Bergman, K.C., þakkaði Mr. Downie fyrir hönd klúbbsins meS stuttri en prýSilegri ræðu. Mr. Thor Johnson skemti meS einsöng, en hr. Ragnar H. Ragnar lék meS- spilið. Eramreidd var ágæt mál- tíS, en borðbæn flutti Dr. B. B. Jónsson, samkvæmt venju á fund- um klúbbsins. Forsetinn, Dr. A. Blöndal hafSi fundarstjórn meS hendi, og kynti meSlimum ræSu- manninn. Better Home Makers Club will demonstrate (food talk) before the Sr. Ladies’ Aid of First Lutheran Church, in the church parlors 2.30 p. m., Wednesday, March 27, 1935. No charge for admission. Miss Mary Jackson frá Elfros, Sask., dvaldi tvær undanfarnar vik- ur hér í borginni, vegna veikinda systur sinnar, Mrs. H. B. Einarsson frá Wynyard. Þær systur héldu heimleiSis á þriðjudagskvöldiS, og er Mrs. Einarsson á góðum bata- vegi. SíSastliSinn sunnudagsmorgun lézt aS Baldur, Man., Miss Lilly Snædal, skólakennari, vinsæl stúlka og vel aS sér ger. Hún lætur eftir sig aldurhnigna móður, frú Karó- linu Snædal; eina systur, Mrs. Óli Anderson og bróður Jack Snædal aS Shoal Lake hér í fylkinu. Jón Bjarnason Academy Gjöf Á. P. Jóhannson, Winnipeg $100.00 Fyrir þessa höfðinglegu gjöf, sem er árstillag hr. Ásmundar til skólans, vottast hér meS vinsamlegt þakklæti. S. IV. Melsted, gjaldkeri. íþróttafélagiS “Fálkinn” heldur ársfund sinn þriðjudaginn 2. apríl n. k. í fundarsal SambandssafnaSar. FRÓNSFUNDI FRESTAÐ Vegna ófyrirsjáanlegra atvika, hefir fundinum, sem Frón gerði ráS fyrir að halda 20. marz, veriS frest- aS til MÁNUDAGSINS 25. MARZ. Þetta eru menn beðnir aS athuga. Skemtiskrá fundarins verS- ur sú sama og auglýst var síSustu viku. RÓSA HERMANSSON Þú tón á þinni tungu átt, meS ‘töf raríkum hreim, og heiðskírt loft svo himinblátt í helgidómi þeim. Frá draumalandsins dularmátt mig dreymir sólar-ey, sem hófst upp við þinn hjartaslátt og hljómar — gleym mér ei. G. A. S. Mr. Alex. Johnson, Jr. heldur concert og dans í Community Hall, Riverton. á máudaginn 25. marz, kl. 8.30 e. h. FJÁRLÖG MANITOBA- FYLKIS Á miðvikudaginn þann 13. þ. m. lagSi Hon. E. A. McPherson, fylk- isféhirS^r, fram fjárlagagrumvarp stjórnarinnar fyrir 1935-36, og skýrði innihald þess í all ítarlegri ræðu. ÁætlaSar tekjur á fjárhagsárinu, sem endar þann 30. apríl 1936, $14,- 050,193.26; áætlaS er aS útgjöldin nemi $14,083,067.46. Skattar haldast óbreyttir frá því sem nú er. EndurskoSuð f járhags- áætlun fyrir ár þaS, sem nú er að líSa, bendir til aS tekjurnar verði $240,032 hærri en áætlað var. Skuldir fylkisins nema i alt $121,- 028,067.46, og hafa aukist um $2,- 698,845.29 á árinu. Af fé því, sem stjórnin hefir tek- iS til láns, hefir hún endurlánaS bæja- og sveitafélögum $1,700,000. SíSan 1930, hefir $29,978,433.23 veriS variS í atvinnuleysisstyrk inn- an vébanda fylkisins, er þannig hef- ir veriS lagður fram: Sambands- stjórn $10,720,977.07; fylkisstjórn $10,574,569.95; sveitahéröS $8,- 682,866.21. Miss Rósa Hermannsson Söngsamkoma Miss Rósu Her- mannsson í Fyrstu lútersku kirkju, síSastliSiS fimtudagskvöld, var í heild sinni hin ánægjulegasta; söng- skrá all-f jölbreytileg, aS sókn mikil og þaS, sem mest var um vert, söng- urinn viðasthvar góður og meS köfl- um beinlínis ágætur. Þeir, sem á hlýddu urSu aðnjótandi hlýstreymis frá söngnum; aS söngkonan hafi orSiS hliðstæðrar samúðar vör frá hinum fjölmenna vinahópi, er kom- inn var saman í kirkjunni, þarf ekki aS efa. Miss Rósa Hermannsson hefir dvalið í Toronto síðastliSin fimm ár og stundaS skrifstofustörf. En samfara látlausri dagsönn hefir hún meS sjaldgæfu viljaþreki og elju, þjálfað svo rödd sína, að hún er farin, aS minsta kosti með köfl- utn/aS syngja eins og sá, sem vald hefir. Framfarir þær, sem söng- konan hefir tekiS, og þaS viS hjá- verkanám einungis, benda óneitan- lega til annars meira, veittist henni kostur á óskiftu framhaldsnámi, þó ekki væri jafnvel nema árlangt eða svo. Gott hefSi veriS til þess að vita, ef vinir hennar hefðu verið þess umkomnir aS gera henni slíkt kleift. ViSkvæmu lögin söng Rósa alveg vafalaust bezt, og sennilega verSa þaS lika einmitt slik lög, er hún syngur ávalt bezt. Þessu til stuSn- ings nægir aS vitna í meðferS henn- ar á “En Svane” eftir Grieg; “Wonne Der Wemuth” eftir Beet- hoven og “Virgm’s Lullaby” eftir Max Reger; raddmýkt hennar á mið tónum og lágtónum var slík aS þaS minsti mann á vísuna “Eg andi ljóSi út í loftiS.” En þaS er síSur en svo aS rödd Rósu sé einskorSuS viS lágstemd lög; raddmagniS er mikiS og gild ástæSa til þess aS ætla, aS viS aukiS nám nái hún ákveSnara sjálfsvaldi yfir sterkum hátónum, en hún nú hefir, og leggi í þá meiri þýSleik. MeSferS Rósu -á “Draumalandi” Sigfúsar Einarsson og “Kvöldbæn” Björgvins GuSmundssonar, mun seint úr minni líSa þeim, er á hlýddu; var tjáning þessara laga há- listræn og lotningarfull. ÞjóSlögin íslenzku í skrautbún- ingi Sveinbjörnssons, voru einnig prýSilega sungin; einkum og sérí- iagi þó “GóSa veizlu gjöra skal” og Fífilbrekka gróin grund.”— • Miss Lillian Scart, söngdómari dagblaSsins Winnipeg Free Press, fer næsta lofsamlegum orSum um söng Rósu, og er hún þó ekki ávalt mjúk í máli i dómum sínum. Ragnar H. Ragnar var viS hljóS- færiS og lék meSspiliS aS lögunum yfir höfuS af góSri samúS. FRÁ ÞÝZKALANDI. Þau tíSindi hafa gerst aS alræSis- maSur ÞjóSverja, Hitler, hefir lýst yfir því, aS þjóSin telji sig aS engu leyti lengur háSa þeim ákvæSum Versalasamninganna, er aS takmörk- unum vigvarna lúta. Samkvæmt þeim fyrirmælum mátti fastaher Þýzkalands ekki fara fram úr 100,- 000. Nú hefir Hitler skipaS svo fyrir aS fastaherinn skuli vera 480,000 manns, auk þess sem hann hefir sett á herskyldu. Þrátt fyrir þetta ítrekar Hitler samt þaS, aS ÞjóSverjar kjósi friS; þessi ráS- stöfun sé einungis tekin vegna þess auSsjáanlega kapps, er aSrir þjóSir leggi á auknar vígvamir.

x

Lögberg

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.