Lögberg - 02.05.1935, Blaðsíða 1

Lögberg - 02.05.1935, Blaðsíða 1
48. ARGANGUR WINNIPEG, MAN,’, FIMTUDAGINN 2. MAÍ 1935 NÚMER 18 Wilhelm H. Paulson fyrverandi þingmaður látinn Einn af vormönnum Vestur-íslendinga, Wilhelm Hans Paul- son, fyrrum fylkisþingmaÖur í Saskatchevvan, dó inn í sumariÖ á sumardaginn fyrsta, eftir langa og lithrigÖarika æfi, Wilhelm Hans Paulson var borinn í þennan heim þann 14. dag ágústmánaðar árið 1857 á HallfriðarstöÖum í Hörgárdal; voru foreldrar hans þau Páll Erlendsson og GuÖrún Magnúsdóttir. Til Vesturheims fluttist Wilhelm heitinn árið 1883; hafÖi hann árið áður mist fyrstu konu sína, Þóru, ásamt ungu barni. Önnur kona Wilhelms var Jónína Margrét Nikulásdóttir Jóns- sonar. Eignuðust þau fjögur börn, Þóru, gifta Alfred Albert i Seattleborg, Margréti, gifta Dr. Thorbergi Thorvaldssyni pró- fessor í Saskatoon, en Hilda og Valdimar dóu á ungum aldri. í hið þriðja sinn kvæntist Wilhelm árið i8gy, og gekk 'þá að eiga eftirlifandi ekkju sina, Önnu Kristínu, hálfsystur Jónínu Margrétar að faðerni til. Dætur þeirra erti þær frú Jónina Niko- lina Kapff i New York og May, er vinnur á Bureau og Ptiblica- tion skrifstofu fylkisstjórnarinnar í Saskatchewan. Systkini Wilhelms vóru Magnús, um eitt skeið ritstjóri Lög- bergs, Erlendur, fyrrum kaupmaður á Gratarósi, Páll, dáinn vestanhafs fyrir löngu, Margrét, Vilhelmina, hálfsystir, og Stefán prestur í Brooklyn. Eru þau öll látin að séra Stefáni undan- teknum. Framan af starfaði Wilhelm heitinn að verzlun í Winnipeg, en gekk siðar í þjónustu sambandsstjórnar sem umboðsmaður innflutningadeildar. Arið 1910 flutti hann sig, ásamt fjölskyldu sinni til Leslie þorps i Saskatchewan fylki, og stóð heimili hans þar jafnan siðan þar til fjölskyldan fór til Regina i haust er leið, til vetrardvalar, Iþar sem hann seig i síðasta blund- inn þann 25. apríl siðastliðinn. Árið 1912 var Wilhelm kosinn á fylkisþingið i Saskatchewan sent þingmaður hins nýstofnaða Wynyard-kjödæmis; átti hann sæti á þingi sem fulltrúi þess kjördæmis fram að síðustu fvlkis- koningum, að undanteknum nokkrum hluta eins kjörtímabils; þótti hann nýtur og samvizkusamur þingmaður, og naut óskifts trausts stjórnar sem samþingismanna; féll honum sú maklega viðurkenn- ing í skaut, að sækja Alþingishátíðina 1930, setn fulltrúi Saskat- chewan fylkis.— Wilhelm heitinn var maður háttprúður og glaðvær; hann var bráðmælskur jafnt á enska sem íslenzka tungu, og orðheppinn langt yfir það, sem algengt er. Umhverfið hýrnaði hvar sem leið hans lá, svo sem venja er til um þá menn, er sólarmegin ferðast i lífinu, hvað sem á móti blæs. Wilhelm Hans Paulson unni íslandi og íslenzkum fræðum hugástum; hann var ljóðmæltur, Ijóðfróður og ljóðelskur. Af skólagöngu hafði hann lítið að segja, en nam því meira af sjálfum sér og lífinu sjálfu. Áður en lik Wilhelms var flutt hingað, var haldin vegleg minningarathöfn í Regina, að viðstöddum ráðgjöfum fylkisstjórn. arinnar í Saskatchewan og öðru stórmenni, og fjölda vina víðs- vegar að. Jarðarförin fór fram frá Fyrstu lútersku kirkju hér i borginni siðastliðinn mánudag, að viðstöddu miklu fjölmenni. Þeir Dr. Björn B. Jónsson og séra Rúnólfur Marteinsson töluðu í kirkjunni, en frú Sigríður Hall söng þar aðdáanlega hið undur- fagra lag Björgvins Guðmundssonar, “Kvöldbæn.” Var kveðju- athöfnin öll hin virðulegasta og í fylzta samræmi við líf og minn- ingu þess mæta manns, sem verið var að kveðja. Likmenn voru Árni Eggertsson, J. J. Bildfell, Eggert Fjeld- sted, Peter Tergesen, P. N. Johnson og Hallgrímur Sigurðsson. Samúðarskeyti bárust ekkjunni víðsvegar að; þar á méðal frá forsætisráðherra íslands, Hermanni Jónassyni. Lögberg vottar ekkju og sif jaliði hennar djúpa hluttekningu í sorginni. Hafliði Guðbrandsson Skarð er enn fyrir skildi, þar sem fallinn er frá Hafliði Guð- brandsson, einn hinna gömlu, gildu landnema í Garðar-bygð. Hann andaðist í Winnipeg á föstudaginn var, 26 apríl. Heilsubilaður hafði hann verið hin síðustu missiri, en annars verið hraustleika- og atgerfis-maður alla æfi. Systursonur hans, dr. B. J. Brandson, stundaði hann af mikilli alúð í veikindunum. Hafliði heitinn var fæddur 30. des. 1859, á höfuðbólinu Hvíta. dal í Dalasýslu. Foreldrar hans voru Guðbrandur Sturlaugsson og Sigríður Guðmundsdóttir. Nitján vetra fluttist Hafliði til Vesturheims, árið 1878. Bar hann fyrst að gerði i nýbygð íslendinga í Minnesota og dvaldist þar tvö ár. Með þeim hjónum Jóni Brandssyni og konu hans. Margréti systur sinni og fleiru venslafólki fluttist Hafliði til Garðar í Norður Dakota árið 1880. Nam hann þar land og hjó þar síðan til dauðadags, samfleytt í 55 ár á sömu jörð. Gerðist hann gildur bóndi og þótti sæmdarmaður i hvívetna. Árið 1895 kvæntist Hafliði og gekk að eiga Steinunni Þórð- ardóttur. Var hún þá ekkja eftir Sigurð Sakaríasson, er búið hafði um hríð í Garðár-bygð og andast þar. Þau hjón Hafliði og Steinunn eiga eina dóttur barna. Heitir hún Sigurrós og er gift R. J. Wlork í San Benito, Texas. Systkini Hafliða heitins eru þrjú á lífi: Sturlaugur, alþektur athafnamaður í Minneota, nú mjög við aldur; Helga, eiginkona Böðvars Þorvaldssonar, kaupmanns á Akranesi; og Þórunn, giftist norskum skipstjóra, býr nú, ekkja, með börnum sinum nálægt Bergen í Noregi. Hafliði Guðbrandsson var maður hógvær eins og þeir, sem um er sagt að muni landið erfa, og hjartahreinn var hann eins og þeir. sem sagt er að muni Guð sjá. Þéttur var hann á velli og þéttur í lund, svo sem hann átti kyn til í föðurætt. Hann steig þungt til jarðar þar hann gekk, og ekki mundu smámunir hrekja hann af- leiðis. \ andur var hann að virðingu sinni og dagfarsgóður, guð- hræddur maður og góðgjarn. Áreiðanlega báru allir samferða- menn virðingu fyrir Hafliða Guðbrandssyni—þrekmenninu hóg- væra í Garðar-bygð. Ur borg og bygð Mr. og Mrs. G. J. Johnson að 109 Garfield St., fóru norður til Gimli á föstudaginn var, á hina árlegu samkomu lestrarfélagsins þar í bæn- um. í för með þeim voru séra Jakob Jónsson og ritstjóri þessa blaðs. Samkoma lestrarfélags- ins var skemtileg, og mátti heita vel sótt, er tekið er tillit til þess hve vegir innan bygða voru torfærir sakir rigninga. Mr. Peter Tergesen, kaupmaður á Gimli, var staddur í borginni nokkra undanfarna daga ásamt frú sinni. Miss Pearl Hanson, pianokennari frá McCreary, Man., kom til borg- arinnar um helgina. Ein af elztu og beztu íslenzku verzlunum í Wjinnipeg (Grocery and Confectionery), fæst keypt nú þegar gegn peningum út í hönd. Verð fyrir vörur og útbúnað frá $1100.00 til $1200.00. Upplýsingar veitir J. J. Swanson & Co., 601 Paris Bldg., Winnipeg, Man. Venisius Lindal og Emily John- son voru gefin saman í hjónaband af séra Birni B. Jónssyni þann 28. f. m. Heimili þeirra verður hér í borginni. Mr. William Pleasant, Akra, var staddtir i borginni á mánudaginn. Mr. J. G. Oleson frá Glenboro, var staddur i borginni um helgina, ásamt Láru dóttur sinni. Þau fóru heim á mánudagskveldið, ásamt Tryggva Oleson’, er stundað hefir háskólanám hér í vetur. Með þeim fór vestur í fyrirlestraerindum séra Jakob Jónsson. Jóns Sigurðssonar félagið, I.O. D.E., heldur sinn næsta fund á þriðjudagskveldið 7. maí að heimili Mrs. L. E. Summers, 204 Queens- ton St. Mrs. B. H. Olson, 5 St. James Place hér i borginni, fór suður til St. Paul á fimtudaginn var, ásamt Kathleen dóttur sinni, til móts við Dr. Olson, sem verið hefir á hálfs- mánaðar ferðalagi í Austur-Canada og suður um Bandaríki. Er þeirra von heim i dag. Miss Pálína Johnson frá Birki- nesi við Gimli, var stödd í borginni nokkra daga í fyrri viku. Mr. Wilhelm Kristjánson, skóla- stjóri frá Manitou, Man., var stadd- ur í borginni i fyrri viku. Mrs. Vilhjálmur Árnason frá Gimli, var/Stödd i borginni nokkra daga í fyrri viku. Hún fór heim á föstudaginn. Frú Anna Paulson, frá Regina, Sask., ekkja W. H. Paulson, hélt heimleiðis á mánudagskvöldið ásamt May dóttur sinni. Deild Nr. 4, kvenfélags Fyrsta lúterska safnaðar heldur sölu á heimatilbúnum mat á laugardaginn 4. maí, í fundarsal kirkjunnar; byrj- ar kl. 3.30 e. h. Verður þar til sölu rúllupylsa, brúnt brauð o. f 1., einnig kaffi og kaffibrauð. The Junior Ladies’ Aid of the First Lutheran Church, Victor St., will hold a “Calico Tea” in the church parlors, Wednesday, May 8, from 3 to 5.30 and 7.30 to 10.30 o’clock. A little sketch called “Wel coming the New Minister,” will be \ put on both afternoon and evening, by some of the ladies in the Aid. Those taking part: Mesdames J. Snidal, C. Carswell, L. Simmons, F. Thordarson, H. Wieneke, E. Steph- enson, J. Thordarson, A. R. Clark, O. Björnson, W. J. Johannson, W. R. Pottruff, J. D. Jonasson, H. Ben- son, O. R. Phipps, C. Jonasson. Mrs. O. V. Olafson and Mrs. D. Quiggin assisted by the president, Mrs. Paul Bardal and Mrs. B. B. Jónsson will receive the guests. The Calico Counter will be an attraction with many useful articles. Mrs. R. Broadfoot will be in charge. The Candy & Home cooking booth will be in charge of K. Backman. The tea promises to be one of the events of the season. Decorations fitting the name “Calico Tea,” will be carried out by the decorating committee, convened by Mrs. L. Johnson. Sketch will take place at 3.30 in the afternoon and 8 o’clock in the evening. Fréttir frá Gimli Jarðarför ungfrú Ámundínu Elin- borgar Jóhannson, dóttur Elíasar Jó- hannssonar á Gimli, fór fram frá kirkju Gimlisafnaðar, undir umsjón Bardals, þ. 23. april s. 1. Séra Jó- liann Bjarnason jarðsöng. — Hin látna unga stúlka var uppeldisdóttir Mrs. Elínar Thidriksson á Steins- stöðum í Víðinesbygð, sem er hin mesta merkiskona, og naut hún sama ástrikis hjá henni sem hennar eigin börn. Var Mrs. Thidriksson, sem nú er háöldruð kona, viðstödd við jarðarförina, ásamt sumum sinum nánustu ástvinum. Fjöldi fólks við jarðarförina, svo að kirkjan var al- skipuð. Mrs. Pauline Einarsson söng þar sóló. Miklar blómagjafir og hluttekning almenn — Móðir stúlkunnar, kona Elíasar, var Vil- borg Ámundadóttir, er andaðist, eft- ir langvint heilsuleysi, fyrir mörg- um árum. Bróðir hennar er Ágúst Ámundason i Selkirk. Var hann viðstaddur jarðarförina. Annar bróðir er Hjörtur bóndi Ámunda- son i Mikley.—Mr. Jóhannsson, faðir ungu stúlkunnar látnu, biður Lögberg að flytja alúðar þakkir öll- um er sýndu honum samúð og réttu honum vinarhönd í sambandi við þetta nýafstaðna sorgartilfelli. (Frá fréttaritara Lögb.) Jarðarför Mrs. Hólmfríðar Bryn- jólfsson, er andaðist að Steep Rock, hér í fylki, þ. 5. apríl s. 1., fór fram frá kirkju Gimlisafnaðar þ. 12. apríl s. 1., undir umsjón Bardals, að við- stöddum æði stórum hópi fornvina og ættingja hinnar látnu. Séra Jó- hann Bjarnason jarðsöng. — Þau Halldór heitinn Brynjólfsson og Hólmfríður kona hans bjuggu um langt skeið að Birkinesi við Gimli, þar sem J. B. Johnson útvegsbóndi nú býr. Hafði Halldór þar útgerð í allstórum stíl. Var hann hinn mesti dugnaðarmaður. Lézt árið 1907. Hólmfríður var dóttir Eggerts bónda Helgasonar, í Helguhvammi á Vatnsnesi, er var hinn mesti merk- ismaður, ágætlega viti borinn, prúð- ur maður og stiltur, lengi hrepps- stjóri og i sýslunefnd Húnvetninga. Lagði mikla stund á að kenna börn- um og unglingum bæði kristindóm og almenn fræði á vetrum; var elzt- ur barnakennari á Islandi er hann lézt árið 1910, þá áttræður að aldri. Fékk fyrstur bænda á íslandi heið- urslaun úr jarðabótasjóði Kristjáns konungs níunda. Var oft vegabóta- stjóri og fann upp verkfæri til að mæla vegi, er registeraði vegalengd, líkt og bílar nú gera. Vatnsmylnu sina, er var nokkuð frá bænum, út- bjó hann þannig, að þegar hún var búin með það korn, er hún hafði, þá stoppaði hún sig sjálf og dró upp flagg. Hefði Eggert senriilega orð- ið uppfyndingamaður, ef hann hefði átt heima í Vesturheimi.—Systkini Hólmfríðar, á lífi, eru Baldvin bóndi i Helguhvammi og Elísabet ekkja Tryggva Bjarnasonar, fyrr- um alþingismanns Húnvetninga. — Hólmfríður var löngum við sunnu- dagsskólakenslu í Gimlisöfnuði, þeg- ar hún átti hér heima. Dætur henn- ar eru sex á lífi: Margrét Jarvis, Lulu Island, B.C.; Árdís Robertson, White Rock, B.C.; Sæunn Howson, Barrhead, Alta.; Pálina Gíslason og Kristín Stefánsson, báðar að Steep Rock, og Brynhildur kona Skúla G. Skúlasonar, bónda i Geysisbygð. Þær Pálina og Brynhildur og menn þeirra viðstödd jarðarförina. Hinar dæturnar gátu ekki komið. Við- stödd var einnig systir Halldórs heitins, Mrs. Sæunn Anderson frá Árborg. SMÍÐA KAFBATA Samkvæmt fregnum frá Berlín þann 28. apríl síðastbðinn, hafa Þjóðverjar tólf kafbáta í smíðum. Er þetta talið skýlaust brot á Ver- sala s|amningunum og mælist illa fyrir. Auk þess er staðhæft að í ráði sé að auka sjóflota Þjóðverja að miklum mun. Sir John Simon, utanríkisráðgjafi Breta hefir lýst yfir því í þinginu, að yfirlýsing frá Iiitler þessu viðvíkjandi sé væntan- leg þann 15. þ. m. ALVARLEGT UPPÞOT 1 STONEY MOUNTAIN Síða^tliðinn laugardag varð al- varlegt uppþot í Stoney Mountain fangelsinu hér í fylkinu, er um tvö hundruð fangar tóku þátt í. Var einn fangi, Forsythe að nafni, skot- inn til dauðs. Við yfirheyrslu í sambandi við atburð þenna hafa gæzlumenn fangelsisins verið leyst- ir undan allri ábyrgð, og framburð. ur þess gæslumanns, sem skaut, ver- ið tekinn gildur, en hann kvaðst hafa skotið til þess að gera Forsythe óvígan og bjarga fangaverði. MINNING OG ÞÖKK Þann 18. apríl andaðist, eins og þegar hefir verið getið um, á sjúkra- húsi i Winnipeg, Miss Guðrún Sig- valdason, dóttir Mr. og Mrs. Jakob Sigvaldason, Víðir P.O., Manitoba. Hún hafði orðið snögglega og hast- arlega veik, en með því að brautir voru nærri með öllu ófærar, var flugvél fengin til þess að flytja hana til Winnipeg. Var uppskurður gerður, en ekkert stoðaði; dó hún þá sömu nótt. Hin látna var efni- leg stúlka, er naut trausts allra, er kyntust henni, hún var einkar hjálp- söm og i-ndæl dóttir og ógleymanleg systir, er hennar sárt saknað af ást- vinum, frændfólki og þeim, er kynt_ ust henni. Útförin fór fram frá heimili foreldra hennar, þann 23. apríl, og f jölmenti bygðarfólk mjög. Sóknarpresturinn járðsöng. S. Ó. ÞAKKARORÐ öllum þeim vinum og nágrönnum, skyldum og vandalausum, sem á einn eða annan hátt hafa aðstoðað okkur og auðsýnt kærleika og hlut- tekningu í sorg okkar við sviplegt fráfall okkar elskuðu dóttur og systur Guðrúnar Sigvaldason, vott- um við hjartans þakklæti og biðj- um Guð að launa. Mr. og Mrs. Jakob Sigvaldason, og börn þeirra. Víðir P.O., Man. Men’s Club Arsfundur Karlaklúbbs byrsta lúterska safnaðar var haldinn í sam- komusal kirkjunnar á þriðjudags- kvöldið, við mikið fjölmenni karla og kvenna. Var þetta fjölbreyttur skemtifundur, auk þess sem embætt- ismanna kosningar fóru fram. Fráfarandi forseti, Dr. Á. Blön- dal, flutti snjalla og áhrifamikla hvatningarræðu. Embættismenn kosnir fyrir næsta ár voru: Dr. Björn B. Jónsson, heið- ursforseti; T. E. Thorsteinsson, for- seti; Albert Wathne, vara-forseti; G. F. Jónasson, f jármálaritari; Lincoln Johnson, G. K. Stevenson; söngstjórar: S. K. Hall, Paul Bar- dal, Stefán Sölvason. UngmennajDÍngið í Winnipeg Ekki nema þrjár vikur til þings- ins. Enn þá vantar okkur undir- tektir frá sumum. Bara minnist þess að því fyr því betra, hvort heldur það snertir ykkur, hin ýmsu bygð- arlög, eða okkur, sem að þinginu stöndum. Innan skamms birtum við dag- skrána, og er gott þið séuð reiðu- búin að hugsa öll málin og leggja fljótan og 'greiðan skerf til lúkn- ingar þeim öllum. Okkar kjörorð mætti vel vera: “Allir sem einn í eindrægni!” Hvað getum við gert? Alt. Því ekkert stenst við því hetju- magni, sem felst í sál og hugsun æskunnar, sem á heilsu, hugsjónir, þor og þrautseigju og alt lífið fram- undan. Róm var ekki bygð á ein- um degi, svo þótt ekki vinnist alt i þetta sinn, má eiga von á að heyrist frá okkur seinna. Við gefumst aldrei upp. Hvað verðum við mörg í Winnipeg Victoríu-daginn. E. H. Fáfnis.

x

Lögberg

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.