Lögberg - 13.06.1935, Blaðsíða 1

Lögberg - 13.06.1935, Blaðsíða 1
48. ARGANGUR WINNIPEG, MAN., FIMTUDAGINN 13.JÚNÍ 1935 NÚMER 23 pessi mynd er af Sir Hubert Wilkins og konu hans. Sir Hubert er frægur landkönnuður og hemiskautafari. pau hjónin voru á skemtiferð til Evrópu. Ur borg og bygð Mr. Halldór Methusalems Swan, hefir nýlega komiÖ sér upp vönd- uÖu og fallegu sumarheimili á Fair Hills skemtistaÖnum, um 9 mílur héÖan úr borginni, þar sem áður var nefnt aÖ Birds Hill. Hefir hann þar allan útbúnaÖ til æfinga í bog- fimi, og er þegar farinn að fá mikla aÖsókn’ gesta. Félag það, er skemtistað þessurn ræður, hefir komið þar upp vönd- uðu, nýtízku gistihúsi, ásamt sund- laug og margvíslegum öðrum þæg- indum til íþrótta iðkana. Gera má ráð fyrir, að þeir, sem unna hinni fornu og þjóðlegu íþrótt, bogfim- inni, noti sér það tækifæri, er þeim nú býðst fyrir atbeina Mr. Swan, venji þangað komu sína að aflok- inni dagsönn og leggi ör á streng. Símanúmer G. M. Bjarnasonar málara er 38 979. Mr. B. I. Sigvaldason frá Árborg, fyrrum sveitaroddviti í Bifröst, var staddur í borginni á föstudaginn í vikunni sem leið. Mr. og Mrs. Edwin Stephenson fóru suður til Chicago í bíl síðast- liðinn sunnudag og ráðgerðu að vera í hálfsmánaðartíma að heiman. í bréfi til ritstjóra Lögbergs frá hr. Ásm. P. Jóhannssyni, dagsettu i Kaupmannahöfn þann 16. maí, seg- ist hann hafa hlustað á Karlakór Reykjavíkur í Tivoli kvöldið áður, sér til mikillar ánægju. Þeir Ás- mundur og Villi sonur hans sátu heimboð hjá sendiherra fslendinga í Katipmannahöfn, ásamt meðlim- um karlakórsins. Mr. Andrés J. Skagfeld, Mr. og Mrs. Sigurður Matthews og Mr. og Mrs. Guðmundur Breckman frá Oak Point voru stödd í borginni i fyrri viku, og sátu brúðkaup þeirra Miss Önnu Friðfinnsson og Mr. James Gray. Er brúðurin dóttur- dóttir Mr. Skagfelds. Ungmenni fermd í Breiðuvíkur- söfnuði, Hnausa, 26. maí: — Guðný Elín Einarsson, Daniel Sigmundur Sigmundsson, Edward Johnson. Ungmenni fermd í Árdalssöfnuði í Árborg, 2. júní: — Jakob Thor- steinsson, Andrés Marvin Erlends- son, Matthías Gunnsteinn Brands- son, William Norman Oddleifsson, David Guðmundsson, Kjartan Har- aldur Johnson, Valdina Sigvaldason, Sæunn Anderson, Halldóra Kathe- lyn Molly Anderson. Leiðréttingar við minningu Björns Jónssonar í Lögbergi, er út kom 11. apríl, 1935:— f blaðinu stendur: fæddur 13. júlí, en á að vera 14. júlí. í blaðinu stendur: tekinn til fóst- urs af Steinólfi Grímssyni og konu hans Guðrúnu Grímsdóttur, en á að vera Guðrúnu Guðmundsdóttur. f blaðinu stendur: þá f luttist hann til Guðbrands prests í Reyk- holti, en á að vera Guðlaugs prests í Reykholti. í blaðinu stendur: hrugðu búi 1882, en á að vera bjuggu á Ham- reandum i Stafholtssungum, þar til þau fluttust til Ameríku árið 1886. í blaðinu stendur: en þar sem komið var að vetri, dvaldi hann hinn fyrsta vetur hjá Vigfúsi Þorsteins- syni járnsmiði, en á að vera: Hann var þar meðan hann var að koma sér fyrir á sínu landi, bæði að heyja og hoka upp húsiskjóli; flutti sig svo um haustið á sitt land og var þar hinn fyrsta vetur. H. B. J. Fermingar framkvæmdar af séra Jóhanni Bjarnasyni, í Gimlisöfnuði, | á hvítasunnudag, voru sem hér seg- ! ir: Edwina Laufey Arason, Emily ] Sigríður Jóhannesson, Evelyn Rose, Torfason, Gerður Hansína Narfa- son, Sigríður Hólmfríður Daniels- son, Ciolet Stefanía Einarsson. — Nöfn stúlknanna hér talin eftir stafrófsröð fyrra skírnarnafns hverrar fyrir sig.— Meeting of the Young Peoples’ Society of the First Lutheran Church, Friday evening, June I4th. Election of bfficers. All members, please, be present. Skemtifundur hjá stúkunni Skuld i kvöld (fimtudag). Heklu og unglingastúkunni er boðið. Fjöl- mennið og hafið glaða stund. Dr. Tweed verður staddur í Ár- borg á fimtudaginn 20. júní. Séra Jóhann Bjarnason, sem þjónað hefir Gimli prestakalli í nokkur undanfarin ár, er í þann veginn að láta af því starfi. Hefir nú prestakallið samþykt að kalla séra Bjarna A. Bjarnason, son séra Jóhanns. Er búist við að hann taki þeirri köllun og byrji á starfi sínu þar undir eins og heilsa hans leyfir. En á meðan séra Bjarni er að kom- ast til fullrar heilsu aftur, hefir svo um samist, að séra Jóhann þjóni prestakallinu eins og hann hefir gert að undanförnu. Jón Bjarnason Acadeniy — Gjafir: Dr. Jón Stefánsson, W'pg.. .$100.00 Vinur skólans ............ 50.00 Lutheran Ladies’ Aid “Baldursbrá” per Mrs. M. Fredrickson, Baldur, Man. $10.00 Gardar Ladies’ Aid, per Mrs. John Hjartarson, Gardar, N. Dak.................... 10.00 Kvenfél. Glenboro-safn. (per Mr. G. J. Oleson) ........ 10.00 Mrs. W. H. Paulson Regina 10.00 Rev. og Mrs. N. S. Thorláks- son, Mountain ........... 10.00 L. H. Thorlaksson, Wpeg... 5.00 B. Thorbergsson, Bredenbury, Sask...................... 5.00 Mrs. C. B. Jónsson, Cypress River..................... 5.00 Thorsteinn J. Gíslason, Brown P.O., Man........... 5.00 í umboði skólaráðsins vottast hér með vinsamlegt alúðar þakklæti fyr- ir þessar góðu gjafir. N. W. Melsted, gjaldkeri skólans, 673 Bannatyne Ave., Wpeg. Til presta kirkjufclagsins. Á prestafundi, sem haldinn var að Mountain, N. Dak., 26. og 27, sept., síðastl., var ákveðið að reyna að hafa fund á undan kirkjuþingi', ef því yrði við komið og annir út af þingi væru því ei til fyrirstöðu. Var mér falin ráðstöfun. Tilkynni eg nú hérmeð prestunum, að ástæð- na vegna geti ekki orðið af fund- inum, en vonast eftir að við prestar geturn, í sambandi við þingið, ákveð- ið tíma og stað fyrir fund seinna. Mountain, N. Dak., 8. júni, 1935. N. S. Tliorláksson. Sjö börn voru ferrnd í Lundar söfnuði hvítasunnudaginn: Lillian Johnson, Margaret Ólöf Ólafsson, Jóhanna Fjóla Björnsson, Thelma Guðlaug Guðmundsson, Doris Murel Brown, Guðrún Margaret Sigfússon og Victor Raymond Goodman. Á safnaðarfundi í Lundar-söfn- uði voru eftirgreindir menn kjörnir erindrekar á kirkjuþing: Mr. Jón Halldórsson, Mr. Dan. J. Lindal. Til vara: Mr. Skúli Sigfússon, Mr. Gísli Ólafsson. Mr. Louis Hillmann frá Moun- tain, N. Dak., var staddur í borg- inni á fimtudaginn í vikunni sem leið. Til borgarinnar kornu á miðviku- daginn Dr. Richard Beck frá Grand Forks, N.D., ásamt frú sinni, tveim- ur börnum og móður. SIR SAMUEL HOARE Hinn nýi utanríkisráðgjafi Breta, sá, er viðtók af Sir John Simon, er tekist hefir á hendur forustu innan- ríkisráðuneytisins. Á laugardaginn þann 1. þ. m., voru gefin saman í hjónaband í Los Angeles, Cal., þau Miss Mary Deane Taylof og Mr. William E. Scheving, sonur þeirra Mr. og Mrs. Einar Scheving i San Diego. Hjóna- vígsluna framkvæmdi Rev. Hölding, prestur Wilshire presbytera kirkj- unnar. Allmargt vina var viðstatt giftingarathöfnina. Fréttir frá íslandi láta þess getið að hr. Sigfús Halldórs frá Höfnum, fyrverandi ritstjóri Heimskringlu, hafi tekið við ritstjórn Nýja Dag- blaðsins i Reykjavík, ásamt Gísla Gefin voru nýlega saman i hjóna- band hér í borginni, þau Miss Anna Friðfinnsson og Mr. James Gray. Hjónavígslan fór fram á heimili foreldra brúarinnar, Mr. og Mrs. Fred Friðfinnsson að 793 Nassau St. Rev. Wyman gifti. Heimili ungu hjónanna verður að Savant Lake, Ont. Aðalfundur Konkordia safnaðar var haldinn miðvikudaginn 5. þ. m. Prestur safnaðarins las upp skýrslu yfir starf sitt; kvenfélag safnaðar- ins sömuleiðis; þá las skrifari upp síðasta fundargjörning og féhirðir reikninga yfir síðastliðið ár. Presti safnaðarins og kvenfélagi og safn- aðarnefnd var þakkað starfið með þvi að rnenn risu úr sætum sínum. Forseti lét í ljós ánægju yfir starfi liðins árs; mintist þakksam- lega ungmennafélagsins, sem sýndi söfnuðinum mikinn hlýleik í starfi sinu; líka gat hann um konurnar í Bredenbury-bæ og grendinni, sem höfðu gefið kirkjunni ágæta vatns- þró, sem geymir vatn til þess að vökva tré og blóm umhverfis kirkj- una. Lika gat hann um tilboð frá Mr. og Mrs. Kristján Thorvaldson í Bredenbury um landgjöf, til viðbót- ar við grafreit safnaðarins. Var þetta hvorutveggja þegið með þökk- um. Safnaðarnefndin var endurkosin: Magnús Bjarnason, forseti; Árni Johnson, féhirðir; Björn Hinriks- son, ritari; G. C. Helgason og Eyj- ólfur Gunnarsson. Djáknar voru endurkosnir: Jón Gíslason, Björg Bjarnason, Sig- ríður Gunnarsson, G. Christopher- son. Þá voru kosnir erindrekar á kirkjuþing: Jón Gislason og G. C. Helgason, og til vara B. Hinriksson og G. Christopherson. A fimtudagskvöldið þann 30. mat 1935. (í samsæti, sem Þjóðræknis- félagið gekst fyrir) Léttvæg eru höggin hinstu, hallan ber eg skjöld. Þeir, sem gera tnest úr minstu mætast hér í kvöld. K. N. ENDURSKIPUN RÁÐUNEYTIS Þau tiðindi gerðust síðastliðinn föstudag, að Ramsay MacDonald lét af stjórnarforustu á Bretlandi, en við tók Stanley Baldwin. Heilsu- bilun olli embættisafsögn Mr. Mac- Donalds sem forsætisráðgjafa; ]>ó verður hann áfram. í ráðuneyt- inu. Hið nýja Baldwin ráðuneyti er þannig skipað: Forsætiðráðgjafi—Stanley Bald- win. Lord President of the Council— Ramsay MacDonald. Innanrikisráðgjafi — Sir John Simon. Fjármálaráðgjafi—Neville Cham- berlain. Lord Chancellor — Hailsham lá- varður. Utanríkisráðgjafi — Sir Samuel Hoare. Innsiglisvörður — Markgreifinn af Londonderry. Hermálaráðgjafi — Halifax lá- varður. Ráðgjafi sjálfstjórnarþjóðanna hrezku—J. H. Thomas. Flugmálaráðgjafi — Sir Philip Cunliffe-Lister. Indlands ráðgjafi — Markgreif- inn af Zetland. Skotlands ráðgjafi — Sir Godfrey Collins. Nýlenduráðgjafi—Malcolm Mac- Donald (sonur Ramsay MacDon- alds). Verzlunarráðgjafi—Walter Run- ciman. Flotaráðgjafi—Sir Botton Eyres. Monsell. Heilbrigðismálaráðgjafi — Sir Kingsley Wöod. Mentamálaráðgjafi—Oliver Stan- ley. Búnaðarmálaráðgjafi—Walter E. Elliott. Ráðgjafi opinberra verka—Wil- liam Armsby-Gore. Verkamálaráðgjafi—Ernest Wil- iam Brown. Ráðgjafi í sambandi við málefni Þjóðbandalagsins—Anthony Eden. Ráðgjafi án þess að veita forustu ákveðinni stjórnardeild-Eustace Percy lávarður. Hið endurskipaða ráðuneyti geng- ur undir nafninu þjóðstjórn, eða National Government. Þingrof er talið liklegt og að til kosninga verði gengið á öndverðu komandi hausti. NÝ hveitisölunefnd Sambandsstjórnin hefir lagt fyrir þing frumvarp til laga um stofnun hveitisölunefndar, er hafa skuli ó- ' takmarkað vald yfir allri hveitisölu. Nái lög þessi fram að ganga, er lík- legt talið að það geti til þess leitt að kornmiðlunarhöllinni í Winnipeg verði lokað. Sitthvað þykir þó benda til að frumvarp þetta muni sæta all gagngerðum breytingum. ÞINGMENSKU FRAMROÐ A fjölmennum fundi kjörinna fulltrúa, sem haldinn var í Beause- jour, var John M. Turner kjörinn sem merkisberi frjálslynda flokks- I ins í Springfield kjördæminu við næstkomandi sambandskosningar. Er hann maður 35 ára að aldri, út- skrifaður af Wesley College, en gegnir sem stendur forstöðu við Sutherland hótelið hér í borginni. Mr. J. Allison Glen, K.C., fyrr- um sambandsþingmaður, hefir ver- ið útnefndur undir merkjutn Liberal-Progressive kjósenda í Marquette, Mr. Howard Winkler í Lisgar, en í Macdonald kjördæmi hafa íhaldsmenn útnefnt Mr. W. H. Spinks, fyrrum fylkisþingmann. Orðsending til vina minua Kæri herra ritstjóri Lögbergs: Um leið og eg læt í haf, vil eg biðja blað þitt að gera svo vel og flytja ástúðlegustu þakkir mínar til íslendinga í Winnipeg, fyrir þær framúrskarandi viðtökur, sem eg varð aðnjótandi dagana 4. og 5. júni. Sérstaklega vil eg þakka for- setum allra íslenzku kvenfélaganna hin ágætu samtök þeirra og miklu fyrirhöfn — undir stjórn frú Jó- hönnu G. Skaptason, forseta Jóns Sigurðssonar félagsins, og að síð- ustu, rausnarlegt heimboð þeirra að heimili frú Skaptason, áður en eg lagði af stað með lestinni austur.— Sannarlega verður mér þessi stutta viðdvöl mín í Winnipeg alveg ó- gleymanleg! Ástar þakkir! Alúð- arfylstu kveðjur! Sömuleiðis sendi eg hjartans þakklæti og kærstu kveðjur til vina minna í Seattle, sem kvöddu mig með samsæti og vinagjöfum. — Kæru Vestur-íslendingar, hvar sem er, sem hafið auðsýnt mér velvild og vináttu, eg þakka ykkur öllum af hlýjum hug og óska ykkur framtíð- arheilla. Vinsamlegast, Jakobína Johnson. Montreal 7. júní, 1935. STÓRFLÓÐ VALDA MIKLU MANNTJÓNI Ný verið hafa geysað stórflóð í Nebraska-ríkinu, er valdið hafa hörmungum og tjóni. Hermt er að um 250 manns hafi þar látið líf sitt, auk þess sem orðið hafi víða hin gífurlegustu eignaspjöll. KREFST SAMSTEYPU- STJÓRNAR ’ Stofnaður er nýlega í Toronto félagsskapur, með 5,000 meðlimum, að sögn, er krefst þess, að stofnuð verði þjóðstjórn, eða samsteypu- stjórn úr hinum ýmsu stjórnmála- flokkum, að afstöðnum næstu kosn- ingum. Maður að nafni Basil B. Campbell, verkfræðingur i Toronto, er sagður að hafa átt frumkvæði að þessum samtökum. KRABBAMBINSSJÓÐ URINN Samkvæmt tilkynningu frá her- togafrú Bessborough, nemur það fé, er þegar er inn komið í hinn cana- diska krabbameinssjóð, $237,709. Að greiddum öllurn loforðum í þessu sambandi, mun upphæðin nema $420,529. LAVARÐUR BYNG AF VIMY, FYRRITM LAND .... STJÓRI1 CANADA LÁTINN Á fimtudaginn þann 6. þ. m., lézt að heimili sínu við Thorp-le-Soken á Englandi, lávarður Byng af Vimy og fyrrum landstjóri í Canada; hafði hann verið heilsuveill tvö síð- astliðin ár. Hinn látni herforingi og stjórnmálamaður var 72 ára að aldri; gegndi hann landstjóraem- bætti i Canada frá 1921—1926. Lá- varður Býng hafði með höndum forustu canadiska hersins á Frakk- landi í heimsstyrjöldinni miklu. Jarðarförin fór fram á laugardag- inn var frá sveitakirkju í bygðar- lagi þvi, er lávarður Byng átti heima í; hafði hann skipað svo fyrir, að athöfnin yrði eins látlaus og fram- ast mætti verða. DREGUR SIG I HLÉ Hon. E. N. Rhodes, fjármálaráð- gjafi sambandsstjórnarinnar, hefir formlega lýst yfir því, að hann hafi ákveðið að draga sig í hlé af stjórn- málasviðinu og að hann verði ekki í kjöri við næstu kosningar. Mr. Rhodes er allmjög bilaður á heilsu og hafa læknar ráðlagt hon- um að taka sér langa hvíld.

x

Lögberg

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.