Lögberg - 18.07.1935, Qupperneq 3
LÖGBERG. FIMTUDAGINN 18. JÚLÍ, 1935.
3
leyna, að undiröldur afar-þungar
vagga þessu veika skipi voru, og er
því hugarástand sumra farþega slíkt,
að þeir vilja helzt hafast við einir i
káetu sinni, en lítt á þilfari ganga.
Skipshöfnina brestur samhygð og
tiltrú sín á milli. Samherja-fögnuð-
ur fyrri ára er horfinn mörgum.
Sami andinn illi, sem frá segir í
Eddu að læðst hafi í íkorns-liki um
greinar eikurinnar Yggdrasils og
borið grunsemi milli goðanna, hefir
og verið að verki í greinum trjánna
í vestur-íslenzku mannfélagi. Fyrir
því fá menn ekki notið sín félags-
lega. Svo þó kyrt sé að kalla á
yfirborði, er óró, tortrygni og af-
brýði í djúpinu undir.
Guði sé lof að á margt má benda,
sem er til fagnaðar og hvatningar í
kirkjulegu starfi samtíðar vorrar.
Kemur þar aðallega til greina fram-
kvæmdarmagn og starfstækni bæði
sumra presta og safnaðar-stjórna
heima fyrir, svo og nútíðar samtök
kvenna og ungmenna innan Kirkju-
félagsins. En nú kemur að því, sem
er mergur máls.. Kristnin lifir ekki
á einu saman brauði. Félaga-mergð,
fundafjöldi og hátíðahöld er alls
ekki sönnun fyrir andlegu lífi. Yfir
því er kvartað mjög alment í kirkj-
unni nú, að andinn sé að kafna í
félagslegu umstangi.
Ef vér svo viljum horfast í augu
við bláberan sannleikann, þá stoðar
ekki að dyljast þess, að andlegt vald
er vikið frá Kirkjufélaginu. Borið
saman við það sem áður var, streym-
ir nú lítill andans kraftur út frá
hjartarótum félagsins, er til þess
verði að hreyfa hjarta og snerta
sál almennings. Nú er í riti eigi
annar eldur á arni Kirkjufélagsins
en “Sameiningin,” er í hálfri stærð
við það sem áður var, berst rólega
hvern mánuð til sífækkandi kaup-
enda og enn færri lesenda. Aldrei
hefir urnrót meira verið í heimi en
nú. Aldrei hefir bogastrengur
mannlegs huga verið spentur jafn
hart sem nú. Aldrei hafa logað
heitari eldar í hjörtum manna en
nú. Líklega aldrei knúð verið fast-
ar á dyr kirkjunnar en nú. Senni-
lega kirkjan aldrei átt þess fremur
kost en nú, að verða þreyttu mann-
fólki til hjálpræðis. Einmitt á tím-
urn herleiðinga og hörmunga risu
upp stóru spámennirnir í ísrael.
Stórir spámenn, logandi ljós, birt-
ast nú og víða á landi lifenda ann-
arsstaðar. Hví loga þá ekki andleg
bál í voru félagi? Eru stóru spá-
mennirnir allir dauðir? Má enginn
voga sér að hreyfa andlegan Iegg né
lið af ótta við árekstur einhverra
félagsmála eða vegna grunsemi
bræðra sinna?
Áður vorum vér oft í sárum og
nærri lætur að segja megi að vorir
beztu menn áður fyr hafi dáið af
sárum. Vér erum líka í sárum, en
sár vor,—það eru aðallega andleg
legusár.
Guðs ríki verður aldrei flutt eins
og hey á hestum, bundið í bagga
með sterkum félagsreipum. Guðs-
ríkið kemur sem sjálfkrafa hreyf-
ing, þá andi mannsins er vaktur til
vits í Guði.
Annan tilverurétt veit eg ekki
nokkurt trúarbragðafélag hafa, og
þá heldur ekki þetta kirkjufélag, en
þann, að kveikja á lömpunum í sál-
um félagsmanna, kynda andleg bál í
hjörtum mannanna.
Ef eg, syndugur maður, mætti
biðja Guð,—biðja Guð um afmælis-
gjöf handa þessu kirkjufélagi, þá
myndi eg biðja á þessa leið: Guð,
gefðu nú Kirkjufélaginu andlega
leiðtoga; vek þú, Drottinn, af nýju
upp stóra spámenn i ísrael.
VERÐA MUN—
Er um framtjð þessa félags ræð-
ir, verður ágizkunin grundvölluð
einungis á orsaka-samböndum þeim,
er oss eru nú kunn og vísa til á-
kveðinna afleiðinga.
Lítt skal hér frá eigin brjósti
spáð í eyðu framtíðarinnar, en stutt-
lega drepið á það, sem í hugi manna
hefir komið og við orð hefir haft
verið.
Það er þá fyrst, sem næst liggur
og auðveldast er, að hugsa sér nokk-
urra ára framhald félagsins eins og
það er, huignandi ár frá ári og deyj-
andi innan skamms. Ógeðfeld er sú
hugsun í bili, Hrörnun sjálfs sín og
dauði er hverjum manni óþægileg
tilhugsun, þar til maður rís upp yfir
þá smámuni og fagnar yfir þvi einu,
sem hann hefir borið gæfu til að
vinna til gagns meðan dagur hans
stóð. Svo er með öll félög og fyrir-
tæki. Þait eiga sinn dag og svo sina
hugarró i því einu, sem þau hafa
lagt af mörkum tilverunni til heilla,
meðan þau lifðu. Og það er öllum
fullkomin umbun.
Ef vér höldum í þessum huga út í
framtíðina næstu, er það augljóst
og getur ekki valdið skiftum skoð-
unum, að þá beri oss að sameina á
ný sem bezt vér getum krafta vora
um þau mál, sem eru sameiginleg og
viðráðanleg áhugamál fólksins í
Kirkjufélaginu, en sleppa hinum,
sem skoðanir skiftast um og sundra
mönnum, eða þeim er reynslan sann.
ar, að vér fáum ekki ráðið við..
Störfum svo í einingu áfram þann
stutta tíma, sem eftir er til sólar-
lags.
Annað hefir sumum mönnum til
hugar komið og byggja á því von
um lengdan æfidag og aukna atorku
i nálægri framtíð. Það er samein-
ing eftirlifandi Islendinga hér í álfu,
og þar með og fyrst og fremst,
sarneining islensku kirkjufélaganna
beggja og innhýsing allra trúar-
flokkanna undir einu þaki. Menn
'finna víst til þess ' fremur nú en
nokkru sinni áður, hve sundrungin
er skaðleg og tekur nú neyðin að
kenna naktri konu að spinna. Með
því að óðum fækkar nú hinu is-
lenzka mannfólki, verður það aug-
ljóst, að áratugnum lengur að minsta
kosti, eða jafnvel mannsaldrinum
lengur, mætti íslenzkt félagslif
standa, ef allir nú drægi sig saman
í einn hóp, þeir sem eftir eru, Ann-
markar augljósir eru þó á þessari
hugmynd, að því er viðkemur ein-
ingu í trúarbragðalegum félagsskap,
Það er ekki rétt auðvelt að festa þá
mynd í huga sér, að þeir, sem i
Sambands-félaginu eru af sannfær-
ingu Únitarar og þeir i voru félagi,
sem eru ákveðnir gamalfræðingar
(fundamentalistar) syngi á sömu
bók, fylgli sömu helgisfðum, geti
notið samskonar guðsdýrkunar.
Yrði að leggja í sölur eitthvað mik.
ið af helgustu trúarvitund einstakl-
inga, væri jafnvel lif heildarinnar
alt of dýru verði keypt Annars er
það allmjög þoku hulið, hvernig
hinu verulega trúarlífi er farið í ís-
lenzku trúflokkunum. Það er oss
islenzkum guðfræðingum hér í landi
til ámælis, að vér ekki höfum haft
manndáð og drengskap til þess að
ræðast við, nema þá “fullir og f júk-
andi reiðir,” um trúar-grundvöll og
kirkjulega aðstöðu í kirkjufélögun-
um báðum. íslenzkt guðfræðinga-
mót, þar sem rætt væri með kristi-
legu hugarfari og .hreinskilni um
trúmálin, væri fyrsta spor til þess
menn geti litið hver annan réttu
auga. Vitur maður hefir sagt:
“Eini maðurinn, sem mér er illa við,
er maðurinn, sem eg þekki ekki.”
Islenzku guðfræðingarnir í Vestur.
heimi eru þeir menn, sem minst
þekkja hverir aðra, nema hver í
sínum hóp.
Þá er það sumra manna vakin
von, að nýju frjómagni megi veita
inn í félagslíf vort með nýju og
nánara sambandi við ættjörð vora,
fsland. Það býr í hugum margra
sú vitund, að svo sé komið nú, að
kristindómsstefna sú, er mestu ræð-
ur í þjóðkirkju íslands, sé mjög við
hæfi og hugsunarhátt velflestra
kristilega hugsartdi íslendinga i
Vesturheimi. Gæti því andlegu lífi
hér vestra stafað heill af auknu
samneyti við andlega leiðtoga á ætt-
jörðinni og trúarlíf vort auðgast við
notkun ágætra bóka og rita að
heiman, jafnframt því, sem aukið
samband í þessa átt héldi hér við
tungú og íslenzku þjóðerni nokkuru
lengur. Mér er um það kunnugt,
hve hlýjan bróðurhug beztu leiðtog-
ar kristninnar á íslandi bera til
þessa Kirkjufélags nú. Nokkurri
vakning ætti það að valda og til
andlegrar næringar verða, ef and-
legt mötuneyti gætum vér átt með
bræðrum vorum “heima.”
i
Þá hugsað er til framtíðarinnar,
varðar auðvitað mestu máli hverj-
ar vonir menn gera sér um œsku-
lýffinn. Eg sé engan æskulýð nein-
staðar, sem glæsilegri er, en æsku-
lýður vor, kynslóðin íslenzka, önnur
og þriðja í þessu landi. Á næstu
árum kemur það í ljós, hvort æsku-
lýðurinn tekur við kirkjufélagi voru
og hvað úr því verði í hans höndum.
Sem betur fer mun rní hvarvetna
vera farið að búa kirkjuniálin í
hendur kynslóðarinnar nýju. Kirkja
vor hefir á síðustu árum hagað svo
starfi sinu, að hið unga og ensku-
mælandi fólk fái notið sín. Þar sem
eg er kunnugastur er vaxandi áhugi
hjá æskulýðnum og kirkjusókn af
hans hálfu mjög ánægjuleg. Nýtt
allsherjar ungmennafélag hefir
stofnað verið og spáir það góðu.
En hvað verður, þegar þessi hin
enska kynslóð tekur við að öllu
leyti? Er liklegt að það fólk, dreift
um bygðir og borgir tveggja landa,
eftir er íslenzkan er úr sögunni,
finni nauðsyn bera til þess, að það
haldi áfram að vera hópur út af
fyrir sig? Eða má fremur búast
við því, að það fólk sameinist öðrum
enskum kirkjulegum félagsskap á
þeim stöðvum þar sem það á heima ?
Svo er ástatt með suma þá hópa, að
þeir eru innan um annað fólk, sem
svipað stendur á fyrir og þeim, eru
enskir afkomendur innfluttra lút-
erskra manna. Það tíðkast nú meir
og meir í Bandaríkjum að fólk slær
sér saman og myndar einn enskan
lúterskan söfnuð úr mörgum lút-
erskum söfnuðum, sem áður voru
útlendir. Á hinn bóginn er mestur
þorri safnaða vorra búsettur aðal-
lega innan um fóllc, sem annað
kirkjunafn hefir en hið lúterska.
Svo er það yfirleitt í Canada. Munu
þá afkomendur vorir í því landi
halda áfram að vera út af fyrir sig
undir lútersku nafni eða sameinast
aðal-kirkjudeildum landsins?
Nú hefir svo farið í þessu landi,
að íslenzkir hafa lítið blandast sam-
an við útlendu þjóðflokkana hina,
hvorki Þjóðverja né Skandinava, en
afar-mikið blandast saman við aðra
íbúa landsins. Nú eru það Þjóð-
verjar og Skandinavar, sem lútersk-
ir eru. Hér í Winnipeg hefir ekki
auðnayst að samrýma Islendinga hið
minsta félagslífi Þjóðverja eða
Skandinava. Varla á sér stað, að
íslendingar hér giftist Þjóðverjum
eða Skandinövum. Aftur á móti
giftist nú langflest íslenzkt fólk í
Winnipeg fólki í United Church of
Canada, Að því leyti sem það
sækir aðrar kirkjur, sækir hið yngra
fólk þangað, og kirkjulíf og siði
tekur það eftir United Church of
Canada, en ekki eftir smákirkjun-
um lútersku hér í borginni. Það
var því ekki út í hött talað, er þá-
verandi forseti Leikmannafélagsins
í Fyrsta lúterska söfnuði, ungur
læknir og áhugamaður um kristin-
dóm, vakti máls á því í fyrirlestri,
að sá möguleiki kæmi alvarlega til
greina, að fyrir afkomendum vor-
um i Canada lægi það, að sarnein-
ast Canada-kirkjunni Sameinuðu.
Þetta kemur því fremur til greina
sem kunnugt er, að báðar aðal-deild-
ir mótmælenda kirkjunnar í Canada,
“Sameinaða kirkjan” og “Enska
kirkjan” stefna að því nú, að hér í
landi verði ein mótmælendakirkja,
canadisk þjóðkirkja.
Timinn leiðir í ljós hvert félags-*
legt skipulag verður með kristnum
afkamendum vorum í þessu landi.
Um það spái eg engu. En þess er
eg fullvís að Drottinn leiðir kom-
andi kynslóðir eins og hann leiddi
oss og vora feður. Eg er og rólegur
og í anda glaður yfir mörgum jar-
tegnum þess á allra siðustu tíð, að
æskulýður vor elskar Krist og vill
fylgja honum. í rauninni varðar
minstu um félagsbönd og ytra skipu-
lagj A það hefir löngum verið alt
of mikil áherzla lögð. Hitt varðar
að eilífu, að menn sé kristnir—lifi
og þjóni Jesú Kristi.
Eg sagði rétt áðan, að hvað fram-
tiðinni viðkemur, þá væri mest undir
því komið, hvernig æskulýðurinn
snýzt við kirkjumálunum. En þó er
eitt, sem ennþá meiru máli skiftir.
Framtíð vor, og það nú þegar á
næstu grösum, já, líf vort sjálft
sem kirkjufélags, er undir því
komið, að nú hefjist tíff nýrra and-
ans hreyfinga. Hvarvetna um
mannheim allan eru þáttaskifti nú
á leiksviði lifsins. Tjöldin hafa
fallið á hverju sviði þar í leik sem
Oddur biskup, máttvana fyrir rang-
læti Herleifs, mænir bænaraugum út
í víbláinn í von um aðventu síns
vaska sonar. En tjöldin fara nú
upp að nýju þar sem Árni Oddsson
hleypir Léttfeta yfir urðargrjótið
upp á Þingvöll með boðskap kon-
ungs og viðreisn mála.
Nú fer fortjaldið upp. En kem-
ur þá þetta fimtuga félag á leik-
sviðið í anda Árna? Ekkert erindi
á þetta Kirkjufélag inn á leiksvið
framtíðarinnar nema svo, að það
beri í hendi bréfið konungs og boði
sigur og bættan hag i bændabygðum
og borgarsölum. Hugur er dapur
um heim víðan, en hjálpræði Drott-
ins er til staðar. Konungsbréfið var
kirkjunni i hendur fengið, að hún
læsi það líknarorð öllum lýðum. Of
lengi hefir kirkjan falið konungs-
bréfið í barmi sínum og tafist við
tizkupunt kjóla sinna. Vort kirkju-
félag hefir í höndum, þótt smátt se
og fátækt, konungsbréf til þeirra
sálna, er konungur himna hefir trú-
að því fyrir. Nú átt þú þess kost,
Kirkjufélag, að fara eldi á ný um
landareign þína og kveikja bál trú-
ar og hugrekkis í hugum manna.
Fólk í þessu félagi þráir styrk til að
lifa og stríða þessa dimmu daga.
Það þráir úrlausn sinna hversdags-
inála, það heimtar ljós á mannfé-
lagsins vandamála. Ætlar þú,
Kirkjufélag, að leggja fólkinu til
þenna styrk, veita því þessa úrlausn,
kveikja því þessi ljós? “Mene,
tekel,” er þér á enni ritað ef ekki
átt þú andans-orð til þess að hugga
með fólkið. Hafi ekki kennimenn
þínir konungsbréf í anda sínum og
eldlega tungu í hjarta sínu, þá er
Drottinn hvorki með þínum né
þeirra anda. Komi i söfnuðum kaffi-
kanna í kaleiks stað og sprengikvöld
í hvitasunnu stað, þá brennur borg-
in, og það jafnt fyrir þvi þótt Neró
leiki hátt á fiðlu sína á meðan.
En eg trúi því að hvarvetna roði
nú fyrir nýjum degi. Eg trúi því,
að andleg endurfæðing sé i aðsigi.
Eg trúi því, að í krafti heilags anda
eigi Kirkjufélag þetta enn ógengin
sín helgustu spor.
Eg trúi á Guð og það, sem verffa
mun.
NIÐURLAGSORЗ
Nú er eg hefi lokið ræðu minni,
geng eg J>ess ekki dulinn, að ein-
hverjum muni hafa fundist litill há_
tíðar-fögnuður í ræðunni og lítið
lof borið á afmælisbarnið. Þá vænt-
anlega aðfinstu set eg ekki fyrir
mig. Mér hefir lærst það sjálfum
á efri árum að minnast á afmælis-
dögum mínum yfirsjóna .minna,
fremur en að hreykja mér í sjálfs-
vitund minni. Svo vildi eg þá einn.
ig hafa gert á þessu afmæli Kirkju-
félagsins, það því fremur, sem eg
hefi fyrir all-nokkuru komið auga á
það, að á yfirstandandi tíð er yfir-
lætið bæði hér og á Islandi skaðleg-
asta veilan í að mörgu leyti góðri
skapgerð íslendinga — sjálfshól og
mont vort mesta ,mein.
Þeirri bæn viþii eg helzt blásið
hafa í brjóst Kirkjufélaginu, sem
eg nú ber að siðustu fram í sjálfs
mín nafni og þeirra nafni, er undir
hana vilja taka: Guff, vertu mér
syndugum Uknsamur.
Aðalfundi Ræktunarfélags Norð_
urlands er nýlokið. Samþykti hann
m. a. að reisa á næsta ári í Gróðrar-
stöðinni á Akureyri minnismerki
Páls Briems amtmanns, fyrsta for-
manns félagsins. Minnismerkið
verður brjóstmynd úr bronsi, gerð
af Ríkharði Jónssyni. Minnisvarða-
nefnd, kosin árið 1005, gefur og
afhendir félaginu myndina, gegn
því að það leggi til stað.
Veffriff. 1 gær var töluvert suð-
austan hvassviðri við suðvestur-
ströndina. Á Norðurlandi var hæg-
viðri og heiðríkt. Hiti yfirleitt 10
stig, en sumstaðar 13—15 stig í inn.
sveitum. Víða mikið moldrok á
Suðvesturlandi.
N. dagbl. 20. júní.
Business and Professional Cards
PHYSICIANS and SURGEONS
DR. B. J. BRANDSON DR. B. H. OLSON
216-220 Medical Arts Bldg. Cor. Graham og Kennedy Sts. Phone 21 834—Office tímar 2-3 216-220 Medical Arts Bldg. Cor. Graham og Kennedy Sts.
Heimili 214 WAVERLEY ST. Phone 21 834—Office tímar 4.30-6
Phone 403 288 Heimili: 5 ST. JAMES PL.ACE
Winnipeg, Manitoba Winnipeg, Manitoba
DR. J. STEFANSSON — ] Dr. P. H. T. Thorlakson
216-220 Medical Arts Bldg. Talsimi 26 688 206 Medical Arta Bldg.
Stundar augna, eyrna, nef og kverka sjúkdóma.—Er a8 hitta Cor. Graham og Kennedy 8ta. Phonea 21 211—21 144
kl. 2.30 til 5.30 e. h. Heimili: 638 MeMILLAN AVE. Talslmi 42 691 Res. 114 GRENFELL BLVD. Phone 62 200
Dr. S. J. Johannesson G. W. MAGNUSSON
Nuddheknlr
ViBtalstimi 3—5 e. h. 41 FURBY STREET
218 Sherburn St.—Sími 30877 Phone 36 137
SlmiS og semjiS um samtaistima
BA RRISTERS, SOLICITORS, ETC.
H. A. BERGMAN, K.C. tslenzkur lögfrœOingur Skrifstofa: Room 811 McArthur Building, Portage Ave. P.O. Box 1656 PHONES 95 052 og 39 043 G. S. THORVALDSON B.A., LL.B. tslenzkur lögfrœOingur Skrifst. 702 CONFEDERATION LIFE BUILDING Main St., gegnt City Hall Phone 97 024
J. T. THORSON, K.C. tslenzkur lögfrœOingur 801 GREAT WEST PERM. BLD. Phone 92 755 W. J. LINDAL K.C. og BJORN STEFANSSON lslenzkir lögfrœOingar 325 MAIN ST. (á Ö8ru gólfi) PHONE 97 621 Er aS hitta aS Gimli fyrsta miSvikud. í hverjum mánuði, og aS Lundar fyrsta föstudag
E. G. Baldwinson, LL.B.
tslenzkur lögfrœöingur
Phone 9 8 013
604 McINTYRE BLK.
DRUGGISTS DENTISTS
DR. A. V. JOHNSON tsienzkur Tannlœknir Drs. H. R. & FL W. TWEED Tannlœknar
212 CURRY BLDG., WINNIPEG Gegnt pósthtlsinu Simi 96 210 Heimilis 33 328 406 TORONTO GENERAL TRUSTS BUILDING Cor. Portage Ave. og Smith St. PHONE 26 545 WINNIPEG
Phone Your Orders Roberts Drug Stores Limited Dependable Druggists DR. T. GREENBERG Dentist Hours 10 a. m. to 9 p.m. PHONES: Office 36 196 Res. 51 455
Prompt Delivery. Nine Stores Ste. 4 Norman Apts. 814 Sargent Ave., Winnipeg
BUSINESS CARDS
A. S. BARDAL 848 SHERBROOKE ST. Selur likkistur og annast um út- farir. Allur útbúnaSur sá beztl. Ennfremur selur hann allskonar minnisvarða og legsteina. Skrlfstofu talsími: 86 607 Heimilis talsími: 501 562 J. J. SWANSON & CO. LIMITED 601 PARIS BLDG., WINNIPEG Fasteignasalar. Leigja hús. Út- vega peningalán og eldsábyrgð af öllu tægi. Phone 94221
A. C. JOHNSON
907 CONFEDERATION LIFE C. E. SIMONITE TLD.
BUILDING. WINNIPEG
Annast um fasteignir manna. DEPENDABLE INSURANCE
Tekur aS sór aS ávaxta sparifé SERVICE
fðlks. Selur eldsábyrgS og bif_ Itcal Estate — Rentals
reiða ábyrgSir. Skrlflegum fyrir- Phone Office 95 411
spurnum svarað samstundis. 806 McArthur Bldg.
Skrifst.s. 96 7 57—Helmas. 33 328
UÓTEL 1 WINNIPEG
ST. REGIS HOTEL THE MARLBOROUGH
285 SMITH ST„ WINNIPEG SMITH STREET, WINNIPEG
pœgilegur og rólegur bústaOur i "Winnipeg’s Dovm Toum HoteF
miObiki borgarinnar. 220 Rooms with Bath
Herbergi $.2.00 og þar yfir; meC Banquets, Dances, Conventions,
baöklefa $3.00 og þar yfir. Jinners and Functlons of all kinds
Agætar máltlSir 40c—60c Coffee Shoppe
Free Parking for Ouests F. J. FALD, Manager
CorntoaU ^otel SEYMOUR HOTEL
Sérstakt verS á viku fyrir námu- 100 Rooms with and without
og fiskimenn. bath
KomiB eins og þér eruS klæddir. RATES REASONABLE
, J. F. MAHONEY, f ramkvæmdarstj. MAIN & RUPERT WINNIPEQ Phone 28 411 277 Market 8t. C. G. Hutchison, Prcp. PHONE 28 411