Lögberg - 26.09.1935, Page 1
48. ÁRGANGUR
—t—
MUNAR UM MINNA
Á tímabilinu frá 1926 til 1930
námu útfluttar vörur frá Canada til
brezku eyjanna $2,077,278,253.00.
King-stjórnin fór þá meS völd. f
stjórnartíð Bennetts frá 1930 til
1934 nam útflutningurinn heðan til
Bretlands aÖeins $805,252,654.00.
Á árunum 1926 til 1930 námu út-
fluttar vörur héðan úr landi til ann.
ara þjóða en Bretlands $1,768,-
334,914.00. En á hinum fjórum
fyrstu stjórnarárum Mr. Bennetts
lækkuðu þessi viðskifti ofan í $701,-
526,639.00.
1 FÖTSPOR BRÓÐUR SINS
Dr. George S. Long, bróðir Huey
Long, þess er myrtur var nýlega í
stjórnarbyggingunni í Louisiana,
hefir ákveÖið aÖ leita kosningar til
öldungaráös Bándaríkjanna á sömu
stefnuskrá og hinn látni senator
fylgdi. Dr. Long er búsettur í
borginni Tulsa í Oklahomaríkinu.
KOSNINGUM FRESTAÐ
SimaÖ er frá Lundúnum þann 20.
þ. m., aS kosningum til brezka
þingsins muni verÖa frelstað til
næsta vors, eða jafnvel lengur. Á-
stæður sagðar að vera þær, hve
horfurnar séu tvísýnar viðvíkjandi
deilumálunum milli ítalíu og Ehti-
ópíu. Jhaldsflokkurinn, eða sá
flokkur, sem Baldwin stjórnin eink-
um og sérílagi styðst við, heldur al-
þjóðar flokksþing bann. 4. október
næstkomandi, og þykir eigi ólíklegt,
að þar komi fram meðal annars
spurningin um þingrof og nýjar
kosningar. Það brot frjálslynda
fiokksins (National Liberals), er
enn fylgir stjórninni að málum, er
sagt að vera því andvígt, að kosn-
ingarnar verði að óþörfu dregnar á
landinn.
KATBROSLEG
STAÐHÆFING
Á laugardaginn var flutti Mr.
Bennett ræðu í Victoria, B.C. Gerði
hann þar meðal annars þá kátbros-
legu staðhæfingu, að atvinnuleys-
ingja hópurinn frá British Colum-
bia, sem stöðvaður hefði verið í
Regina á leið sinni til Ottawa, hefði
ætlað að ræna sér og koma á fót
soviet-stjórn í Canada.
FRA FUNDUM MR.
THORSONS
Mr. J. T. Thorson, K.C., þing-
mannsefni frjálslynda flokksins i
Selkirk, hefir verið á ferð og flugi
um kjördæmi sitt undanfarið og
haldið fundi með kjósendum. Um
fundi þessa alla er það sama að
segja, að aðsókn hefir verið hin
bezta og síaukið fylgi þingmanns-
efnisins hvarvetna komið i ljós.
Á fimtudaginn þann 19. þ. m.,
hélt Mr. Thorson afarf jölmennan
fund á Stoney Mountain. Auk
frambjóðandans, flutti ræðu á fundi
þessum, Mr. McKinnell, þingmaður
Rockwood kjördæmisins í fylkis-
þinginu.
Á laugardaginn þann 21., hélt Mr.
Thorson fundi í Fisher-kjördæminu
á fjórum stöðum, að viðstöddu
rniklu fjölmenni. Meðal annars
sótti fundinn á Hodgson yfir tvö
hundruð manns; er það sá langfjöl.
mennasti stjórnmálafundur, sem
nokkru sinni hefir haldinn verið á
þeim stað . Á öllum þessum fundum
mætti þingmaður Fisher-kjördæmis-
ins í fylkisþinginu, Mr, Bachynsky,
og mælti eindregið með Mr. Thor-
f L" T5 > ' T» jjjoVh.’c
son.
H. P. ALB. IIERMANSON
þingmannsefni fjálslynda
flokksins í Mið-Winnipeg kjör-
dæminu hinu nyrðra.
Framtak Mr. Hermansonar er
talandi vottur um það, hvað í menn
þá ýmsa var spunnið, er hingað
komu til lands um aldamótin síðustu
og gerðu sér mold Vesturlandsins
undirgefna.
Mr. Hermanson er fæddur í Sví-
þjóð árið 1881, en fluttist til Can-
ada 1903; tók hann þegar heimilis-
rétt á landsvæði í Saskatchewan,
og stundaði nýræktina með svo
mikilli prýÖi, að hvarvetna vakti
hina mestu aðdáun; tók hann
snemma að gefa sig við meðferð
opinberra mála, var kosinn skrifari
sveitar sinnar að Buchanan 1910 og
gegndi. þeirri sýslan fram á árið
1020. Jafnframt hafði hann með
höndum embætti friðdómara frá
1912 til 1025.
Árið 1917 bauð Mr. Hermanson
sig fram til fylgisþingsins í Saskat-
chewan fyrir hönd frjálslynda
flokksins í Canora kjördæminu, og
náði kosningu með meira atkvæða-
magni en nokkur annar frambjóð-
andi í það sinn; var hann endurkos-
inn 1921, og sat á þingi fram á árið
1925, er hann dró sig í hlé af sviði
stjórnmálanna og tókst á hendur
framkvæmdarstjóra stöðu við Swed-
ish-American eimskipafélagið hér í
borginni, auk þess sem hann gegnir
vara-konsúlsembætti fyrir hönd
stjórnarinnar sænsku.
Mr. Hermanson er maður einkar
vinsæll og samvizkusamur í athöfn-
um sinum; hann er áhugamaður
mikill um landsmál og fer ekki dult
með skoðanir sínar. Frjálslyndi
flokkurinn á góðum liðsmanni á að
skipa þar sem Mr. Hermanson er.
Árið 1909 kvæntist Mr. Herman
son og gekk að eiga Miss Ruby M.
Harmer, frá Kingston, Ont., gáfaða
konu og víðmenta; eiga þau hjón tvö
börn á lífi.
FLYTUR RÆÐU 1
WINNIPEG
Rt. Hon. W. L. Mackenzie King,
leiðtogi frjálslynda flokksins í Can.
ada, flytur ræðu í Winnipeg Audi-
torium á miðvikudagskvöldið þann
2. október næstkomandi. Hefir Mr.
King aðeins skamma viðdvöl í borg-
inni og leggur af stað austur á bóg-
inn að lokinni ræðu sinni.
HON. WM. ABERIIART
Hinn nýi forsætisráðgjafi i Al-
berta, Hon. William Aberhart, kom
til borgarinnar þann 18. þ. m., og
flutti þá um kvöldið ræðu í Walker
leikhúsinu við svo mikla aðsókn, að
margir urðu frá að hverfa. Snerist
ræða hans að mestu um hið svokall-
aða Social Credit fyrirkomulag, er
harin taldi einu hugsanlegu leiðina
út úr núverandi f járhagsörðugleik-
um mannkynsins.
WINNIPEG, MAN., FIMTIIDÁGINN 26. SEPTEMBER, 1935.
NÚMER 39
Frá Islandi
Sviplegt slys við Ljósafoss
Síðdegis á sunnudaginn vildi til
sorglegt slys við Ljósafoss í Sogi.
Fóru þau ungfrú Elísabet Sig-
urðardóttir forstöðukona “Heitt og
Kalt” og Árni Daníelsson verkfræð-
ingur út á bát fyrir ofan fossinn.
Hættu þau sér of nálægt straumn.
um og hreif hann bátinn með sér og
varð ekki við neitt ráðið. Elísabet
barst niður fossinn, en Árni gat
náð taki á kletti á fossbrúninni og
hékk þar, unz honum barst hjálp.
Tilraunir voru gerðar til að bjarga
Elísabetu, en þær báru ekki árang-
ur. Var lík hennar ófundið þegar
blaðið frétti í gærkvöldi.
Árni mun ekki hafa meiðst veru-
lega og vildi hann ekki að læknir
yrði sóttur.—N. dagbl. 3. sept.
Síldarfólkið.
Síldarfólkið hefir nú óðum verið
að flykkjast að norðan, úrkula von.
ar um .meiri veiði í sumar, margt
eða flest allslaust, undan þessari
hörmulegu vertið.
Af sjálfsdáðum hefði þetta fólk
ekki komist heim til sín. En skip
ríkisir.s og Eimskipafélagsins hafa
flutt flest fólkið og látið því ókeypis
í té far og fæði. Af skipum Eim-
skipafélagsins hafa Dettifoss, Gull-
foss og Lagarfoss tekið þátt í þess-
um flutningum og i gærkvöldi kom
Goðafoss að norðan með nál. 300
farþega, og mun fullur helmingtsr
þeirra hafa verið tekinn á Siglu-
firði, og mun það vera með því síð.
asta, sem eftir var. — Er þetta mjög
myndarlega gert af Eimskipafélag-
inu, að bregðast svo vel við í þessu
nauðsynjamáli.—N. dagbl. 3. sept.
Útbreiðsla mœnuveikinnar.
í tilefni af útbreiðslu mænuveik-
innar náði blaðið i gær tali af Vil-
mundi Jónssyni landlækni.
Sagði hann, að þrír væru dánir af
þeim fjórum, sem veiktust á Siglu-
firði. Á fsafirði væru nú 3 börn
töluvert veik og líkur bentu til þess,
að barn, sem þar hefði látist nýlega,
hefði látist úr mænuveiki. í Bol-
ungarvík hefði nýskeð veikst eitt
barn og annað á Hofstöðum í Staf-
holtstungum. Auk þess, sem eins og
kunnugt væri, hefði látist starfs-
stúlka á dagheimilinu í Grænuborg,
væri vitað um tvö tilfelli grunsam-
leg, hér í bænum. Væri ekki séð að
um beina smitun væri að ræða og
eigi hefðu börn, sem voru á Grænu-
borg, orðið veik.
Ennfremur gat landlæknirinn
þess, að eigi gætu læknar sagt um
það með hverjum hætti veikin bær-
ist og að allar strangar varúðarráð-
stafanir virtust tilgangslausar, en
vitanlega yrðu og væru allir sjúkl-
ingar einangraðir. Læknar gætu
lítið við veikina ráðið, nema að oft
tækist síðar að veita þeim nokkra
bót, sem hefðu lamast. Veikin væri
ráðgáta og ekkert örugt kennimerki
um hana nema lömunin. Auk þess
væri byrjunarstig veikinnar með
ýmsu og ólíku móti og misjafnlega
áköf.
Að lokum gat landlæknirinn þess,
að samkvæmt niðurstöðum erlendra
lækna væri þetta sumar- og sveita-
sjúkdómur. Bæri oft á henni í júní
og júlí og næði hún oft hástigi í
ágúst og jafnvel september og októ.
ber. Á vetrum væri hún miklu
sjaldgæfari. Ennfremur væri hún
rriiklu algengari 1 sveitum heldur en
bæjum.—N. dagbl. 3. sept, w
BATNANDI FJARHAGUR
Samkvæmt yfirlýsingu frá Mr.
Gardiner, forsætisráðgjafa Saskat-
chewan fylkis, höfðu tekjur fylkis-
sjóðs við lok síðastliðins ágústmán-
aðar aukist um freka miljón dala
frá því á tilsvarandi tímabili í fyrra.
KIRKJUHÖFÐINGI
A FERÐ
Hingað kom til borgarinnar á
mánudaginn, hávelborinn Rev. Hew-
lett Johnson af Kantaraborg. Er
hann formaður þess félagsskapar á
Bretlandi, er það hefir að markmiði,
að útrýma örbirgð úr mannheimum,
og er eindreginn talsmaður Social
Credit stefnunnar.
HEIMSÆKIR PRINCE
ALBERT
Foringi frjálslynda flokksins, Mr.
King, hefit^ nýverið haldið 3 stjórn.
málafundi í kjördæmi sínu Prince
Albert og verið hvarvetna tekið með
ágætum. Lætur blaðið Winnipeg
Evening Tribune þess getið, að um
5,000 manns hafi sótt fyrsta fund
Mr. Kings og fagnað komu hans.
Er það víst sá lang fjölmenriasti
stjórnmálafundur, sem nokkru sinni
hefir haldinn verið í kjördæminu.
VEITIR MAYBANK AÐ
MALUM
Mr. Hjálmar A. Bergman, K.C.,
flutti stutta tölu yfir útvarpið á
þriðjudagskvöldið til stuðnings Mr.
Maybank, frambjóðanda f-rjálslynda
flokksins í Mið-Winnipeg kjördæm.
inu hinu syðra. Rakti Mr. Bergman
í fáum en skýrum dráttum þroska-
feril frambjóðandans og hvatti kjós.
endur til þess að veita honum óskor-
ið fylgi þann 14. næsta mánaðar.
IÐNSÝNING 1 WINNIPEG
Bæjarstjórnin í Winnipeg hefir
nýverið heimilað þeim Col. Ralph
H. Wfebb fyrrum borgarstjóra, og
Mr. John H. Roe, að stofna til ak-
uryrkju og iðnsýningar næsta ár á
sýningarsvæðinu gamla í norður-
bænum.
RÓSTUSAMUR FUNDUR
Bennett forsætisráðgjafi hélt
kosningafund í Vancouver síðastlið-
ið mánudagskvöld fyrir eitthvað um
tólf þúsundum manna, að því er
simfregnir herma. Var fundur þessi
all-róstusamur framan af, og iðu-
lega gripið fram í fyrir ræðumanni.
Þó lét Mr. Bennett þetta ekki mikið
á sig fá, heldur hélt áfram ræðu
sinni og var næsta harðorður í garð
þeirra, er mestri truflun ollu. Kvað
hann vatn og brauð vera það eina,
er þeir ætti nokkuð tilkall til.
ÓFRIÐAR HORFURNAR
Siðustu fregnir af miðlunartil-
raunum þjóðabandalagsins milli
ftala og Ethiópíumanna, láta þess
getið, að Sir Eric Drummond hafi
sannfært Mussolini um það, að.hin
ákveðna afstaða Breta gagnvart
deilumálum þessara tveggja þjóða
sé að engu leyti grundvölluð á ó-
vildarhug gagnvart ítalíu, heldur sé
hún bygð á siðferðismeðvitund og
sáttmálahelgi þjóðar sinnar gagn-
vart skýlausum fyrirmælum þeirra
grundvallaratriða, er Þjóðabanda-
lagið hvíli á. Mussolini hélt ráð-
gjafafund á þriðjudaginn, og er þess
getið til, að þar hafi niðurstaðan
orðið sú, að sem skilyrði fyrir friði,
skuli ftaliu veitt stjórnarfarslegt og
lagalegt umböð yfir Ethiópíu. En
að til slíks komi sýnist þó ekki geta
ko'nrið til nokkurra mála, með því að
Stefnuskrár atriði
frjálslynda flokksins
1. Nýjar og ákvéðnar ráðstafanir í þá átt, að
bæta úr atv'nnuleysinu.
2. Endurheimt tapaðra sölusambanda erlendis.
3. Aukning innanlands viðskifta.
4. Ráðstafanir undirstöðu-iðnaðinum til eflingar.
5. Stjórnarumsjón til öryggis lánstrausti.
6. Stjórnareftirlit með öllum tryggingum.
7. Vernd og viðhald þjóðeignabrautanna.
8. Lýðræði i iðnmálum.
9. Stjóm, er lúti þingviljanum.
.. . W »
10. Oryggi persónufrelsisins.
11. Endurbætt kosningalög.
12. Fjárlög án tekjuhalla.
13. Góðvilji gagnvart umheiminum.
14. Samfélagslegt jafnrétti innanlands.
þá væri um beina uppgjöf að ræða
af hálfu Bandalagsins. Stjórnar-
formaður Frakka, Laval, virðist
þeirrar skoðunar, að óumflýjanlegt
sé að beitt verði við ítalíu þeim fyr-
irmælum Bandalags sáttmálans, er
heimila f járhagslegar hömlur og
viðskiftabann.
Til þess að afstýra vandræðum í
lengstu lög, hafa Bretar styrkt Mið.
jarðarhafsflota sinn að miklum
mun.
HNEFALEIKUR
Á þriðjudagskvöldið var, fór
fram hnefaleikur í Yankee Stadium
í New York, milli þeirra Joe Louis
og Max Baer. Rimman stóð ein-
ungis yfir í tólf mínútur og lauk
henni þannig, að hinn fyrnefndi
gekk fyrirhafnarlítið sigrandi af
hólmi. Sigurvegarinn er af Negra.
kyni, og gekk hann í heilagt hjóna-
band rétt áður en til hólmgöngunnar
kom.
Or borg og bygð
Mrs. Sigurður Landy frá Glen-
boro var stödd í borginni seinni part
vikunnar sem leið.
Mr. Skúli Jónasson frá Vogar
kom til borgarinnar á þriðjudags-
morguninn.
Mr. Páll Jakobsson, ættaður af
Akureyri, er dvalið hefir vestan
hafs síðastliðin sjö ár, lagði af sta<5,
heimleiðis til íslands í gær.
Mr. Herbert Martin frá Hnausa,
kom til borgarinnar á mánudaginn
og dvaldi hér fram á þriðjudags
kvöld.
Mr. og Mrs. Jóhannes Baldyins'
son frá Glenboro, voru í borginni
nokkra daga í vikunni sem leið í
heimsókn til kunningja og vina.
Mr. og Mrs. Björn J. Hansen frá
Humboldt, Sask., dvöldu í borginni
nokkra daga í vikunni sem leið.
Með þeim fór vestur til stuttrar
dvalar, Stefán sonur þeirra háskóla-
stúdent.
Mr. J. T. Thorson, K.C., þing-
mannsefni frjálslynda flokksins i
Selkirk kjördæmi, lagði af stað i
kösningaleiðangur norður' að Marii-
tobavátni síðastliðinn mánudag.
Mr. Ásbjörn Eggertsson, 614
Toronto St., fór í skemtiferð vestur
til Churchbridge, Sask., um síðustu
helgi. Hann kom heim aftur á
þriðjudaginn.
Mr. E. S. Thompson frá Lang-
ruth, kom til borgarinnar seinni part
vikunnar sem leið.
Mr. Ólafur Ólafsson frá Old
Wives, Sask., fyrrum búandi að
Mortlack, kom til borgarinnar í vik-
unni sem leið í viðskiftaerindum.
Mr. Ólafsson er víðkunnur maður
fyrir búpeningsrækt og hefir árum
saman farið til Ottawa til þess að
tala þar máli þeirra, er þann at-
vinnuveg stunda vestanlands.
Mrs. Hugh Robson (áður Berg-
þóra Johnson), kom til borgarinnar
á þriðjudagsmorguninn austan frá
Toronto, ásamt ungum syni sínum.
Er hún dóttir þeirra Mr. og Mrs.
Gísli Johnson að 906 Banning St.
hér í borginni og mun dvelja hjá
þeim um hálfsmánaðartíma eða svo.
Með Mrs. Robson kom systir henn.
ar, Miss Ragna Johnson, er dvalið
hafði eystra í þrjár vikur.
Mr. og Mrs. B. M. Pálsson frá
Árborg voru stödd í borginni um
helgina í gistivináttu þeirra Mr. og
Mrs. August Polson að 118 Emily
St.
Mrs. B. Bjarnason frá Langruth
dvelur í borginni um þessar mundir
hjá foreldrum sínum Mr. og Mrs.
August Polson 118 Emily St.
Mrs. Ó. Hallson frá Eiriksdale
kom til borgarinnar í fyrri viku í
heimsókn til barna sinna, sem hér
dvelja.
Mr. F. O. Lyngdal kaupmaður á
Gimli, var staddur í borginni ásamt
frú sinni seinni part fyrri viku.
Undirritaða vantar eldri konu til
að leigja með sér þriggja herbergja
íbúð fyrir $1.50 um mánuðinn.
Skrifið til Mrs. Sigr. J. Eiríkson,
Lundar, Man.
Jón Bjarnason Academy Ladies
Guild hélt sinn fyrsta fund á þessu
skólaári, 11. þ. m. og ákvað að halda
samkomu til arðs fyrir skólann 17.
október í skólanum. Nánar auglýst
síílar. ’.iri