Lögberg - 28.05.1936, Blaðsíða 1

Lögberg - 28.05.1936, Blaðsíða 1
I % / 49. ÁRG-ANGUR WINNIPEG, MAN., FIMTUDAGINN 28. MAl, 1936 NÚMER 22 Stórmerkilegt þjóðrœknis atriði Arnljótur B. Olson gefur háskóla Manitoba fylkis glœsiiegt bókasafn—2,500 bindi— Háskóla forsetinn, Sidney Smith, þakkar með fögrum orðum þessa virðulegu gjöf Forseti háskólans í Manitoba, herra Sidney Smith, hefir lýst yfir þvi, a8 Arnljótur Björnsson Olson, hafi gefið háskólanum verðmikiS og merkilegt íslenzkt bókasafn. Arnljótur er fæddur í Húna- vatnssýslu á íslandi 17. janúar 1864. Ilann fluttist til Canada i september mánuði 1888 og hefir átt heima í Manitobafylki frá þeim tíma til þessa dags. í desembermánuði 1895 kvæntist hann ungfrú Jórunni Ólafsdóttur í Pembina í Norður Dakota. Hún dó 1. september 1933. Mr. Olson á eina dóttur og tvo syni. Frá árinu 1888 til 1901 átti Arn- ljótur heima í Winnipeg; vann hann þá á sumrum við búnaðarstörf í Norður Dakota og Manitoba, en á vetrum við járnbrautarvinnu. Árið 1901 festi hann sér bújörð hálfa fjórðu mílu fyrir vestan Giimli og bjó þar þangað til 1909. Þá flutti hann til Gimli til þess að geta veitt börnum sínum fullkomnari mentun. Frá árinu 1909 til 1916 var hann lögtaksmaður héraðsréttarins á Gimli og fylkislögregluþjónn. A þeim áruim var hann einnig sveitar- ráðsfulltrúi Gimli-sveitar eitt kjör- tímabil. Til Winnipeg flutti hann árið 1916 og dvaldi þar þangað til 1929; þá flutti hann aftur til Girnli og var þar til ársins 1933; f lutti hann þá enn til Winnipeg og hefir átt þar heima síðan. Arnljótur útskrifaðist í búfræði frá Hólaskóla á íslandi. Hefir hann frá æsku verið mjög bók- hneigður og sílesandi þegar tími gafst frá daglegum önnum. Þegar hann komi frá íslandi. var hans dýrasti og kærasti fjársjóður fult koffort af bókum. Þrátt fyrir það þótt hann hafi alt af verið fá- tækur maður- hefir hann ár frá ári bætt við þetta litla safn- sem hann flutti að heiman, þangað til nú að það er orðið eitt allra merkasta og dýrasta bókasafn einstakra manna íslenzkra í Canada og Bandaríkjum. Það er þettá merkilega safn, sem hann hefir nú gefið Manitoba há- skólanuim. Mr. Olson hefir óbifandi trú á mentagildi íslenzkrar tungu og ís- lenzkra bókmenta. Það er því ósk hans og von að í náinni framtíð verði mögulegt að stofna varanlegt kennaraembætti í íslenzku eða forn- norrænu við háskólann í Manitoba. Eins og allir vita eru fleiri ís- lendingar i Winnipeg saman komnir en á nokkrum öðrum stað í öllutn heimi, að undantekinni Reykjavík, höfuðstað íslands. Manitoba há- skólinn er þess vegna betur fallinn staður en nokkur annar í allri Norður Ameríku til þess að stofna slíkt embætti. Þessi myndarlegja og merkilega gjöf Mr. Olsons er í því skyni af hendi látin, að hún megi flýta fyrir þeirri stuud að kennarastaða í ís- lenzkum fræðum verði stofnuð og einnig til þess að þegar hún hefir verið stofnuð þá geti hún notið góðs og nauðsynlegs bókasafns. Þetta bókasafn verður nefnt “Olsons safnið” og hæfilegt nafn- spjald búið til fyrir það. Um leið og forstöðumaður há- skólans veitti safninu móttöku fór- ust honum orð á þessa leið: Eg er sérlega stoltur af þessari gjöf, sér- staklega vegna þess- hversu margt framúrskarandi námsfólk af ís- lenzku bergi brotið háskólinn hefir haft; er það stofnuninni heiður að hafa mentað fjölda manna og kvenna hinnar ágætu íslenzku þjóð- ar hér i landi.” VALINTIL VIRÐINGAR- FARAR Mrs. E. L. Johnson Sá heiður hefir fallið Mrs. E. L. Johnson í Árborg í ,skaut. að verða valin sem fulltrúi hinna Sameinuðu bændakvenna félaga í Manitoba, til þess' að sitja þing þeirra samtaka, er nefnast “The Associated Women of the World,” sem háð verður í Washington, D.C., dagana frá 1. til 5. júní næstkomandi, þar sem rædd verða ýms þau mál, er heimilið sér- staklega varða. Mrs. Johnson (Andrea), er dóttir hr . Tryggva Ingjaldssonar og systir Ingimars heitins Ingjaldssonar. er um eitt skeið var þingmaður Gimli kjör- dæmis. Mrs. Johnson er um þess- ar mundir forseti United Farm Wo. men of Manitoba, og mætir á fyr- greindu þingi sem fulltrúi Mani- tobafylkis. FLUGKAPPAR HEIÐRAÐIR Hermálaráðgjafi sambandsstjórn. arinnar í Ottawa, Hon. Ian Mac- kenzie lýsti því yfir í þinginu síð- astliðið þriðjudagskvöld, að þeir flugkapparnir Hollick-Kenyon og J. H. Lymburner, hefðu af stjórninni verið heiðraðir þannig, að hinn fyr- nefndi hefði verið gerður “Air Commodore,” en sá síðarnefndi “Group Captain.” GÓÐIR GESTIR Hingað komu til borgarinnar um síðustu helgi Mr. og Mrs. Joseph McGraw frá Tryon, Nebraska, og dvöldu hér fram á miðvikudags- •morguninn sem gestir Ásmundar P. Jóhannssonar, 910 Palmerston Ave. Mrs. McGraw er af íslenzku bergi brotin, ættuð úr Miðfirði, systur- dóttir bændahöfðingjans Hjartar Líndal, hreppstjóra á Núpi; heitir hún Hrefna, og er dóttir Finnboga Guðmundssonar. Þau Mr. S. W. Melsted eru bræðrabörn. Hrefna er fyrsta íslenzka konan vestan hafs, er lauk prófi í læknisfræði; var það árið 1907. Er hún fluggáfuð kona og hefir getið sér ágætan orðstír i fræðigrein isinni sem öðru. Maður hennar er lögfræðingur, prúður í viðkynningu. Mrs. McGraw er enn ótrúlega fim í islenáku, þrátt fyrir hina löngu einangrun frá þjóðflokki sínum. Svo mikils yndis kvaðst hún hafa notið af heimsókninni til Islendinga, að það myndi fylgja sér æfina á enda. I för með þeimi Mr. og Mrs. Mc- Graw vestan, frá Wynyard, Sask., var frú Ingibjörg Lindal; eru þær Hrefna og hún systkinadætur. KONUNGSKRÝNINGIN Símfregnir frá Lundúnum á þriðjudaginn láta þess getið, að krýning hans hátignar Edwards Rretakonungs muni fram fara þann 27. maí 1937. Vinnur námsverÖlaun MISS BEATRICE FELDSTED Þessi unga stúlka, sem er dóttir þeirra Mr. og Mrs. Eggert Feldsted, hlaut heiðursverðlaun í peningum fyrir hæfileika og ástundun við nýafstaðin háskólapróf. JULIUS ANDERSON STEPHEN M.D. THORSON, M.D. JÚLIUS ANDERSON, M.D. Þessi ungi og efnilegi maður, sem nýlokið hefir læknaprófi við háskóla Manitobafylkis með ágætum vitnis- burði, er sonur þeirra Mr. og Mrs. Björn Anderson að Baldur, Man. SIGRUN ANN A ERICK HERBERT JOH ANNSSON BERGMAN SIGRÚN ANNA JÓHANNSON, B.A. Miss Jóhannson er er dóttir þeirra Sigurjóns og Önnu Jóhannson, er búa í grend við Gimili. Hún er íædd 8. júní 1915, og lauk stúdents- prófi við Manitobaháskólann í vor. STEP1IEN B. TIIORSON, M.D. Þessi nýútskrifaði læknir, er að- 'eins 23. ára að aldri, og mun senni- lega vera yngsti maðurinn í hópi Vestur-íslendinga, semi lokið hefir fullnaðarprófi í þessari vísindagrein. Hann er sonur þeirra Mr. og Mrs. John Thorson að 880 Sherburn Street hér í borginni. Að loknu 12. bekkjar prófi við Daniel Mclntyre miðskólann, inn- ritaðist Stephen í læknadeild Mani- toba háskólans árið 1930. Á skóla- árinu Í934-35 vann hann hin svo- nefndu Isbister verðlaun, og skar- aði yfir höfuð mjög fram úr öðrum við nám í flastum námsgreinum Enda er elju hans og ástundun við- brugðið, auk þess sem hann er gædd- ur frábærum námshæfileikum. Stephen Thorson hefir einkum vak- ið á sér athygli fyrir þekkingu sína i sjúkdómafræði. Fram til næsta vors starfar hann á hinum Almenna spítala Winnipegborgar. VISINDAFÉLAG ISLANDS HEIÐRAR DR. RICIIARD BECK Samkvæmt fréttagrein i blaðinu Grand Forks Herald, hefir Vísinda. félag íslendinga í Reykjavík kjörið Dr. Richard B.eck, prófessor í Norð- urlandamálum við háskóla North Dakota rikis, að bréfafélaga i virð- ingarskyni fyrir mikið og þarft bók- mentastarf. í félagi þessu eru helztu visindamenn íslenzkir, og nokkrir nafnkendir visindamenn erlendir. Af íslendingum í Vesturheimi eru bréfafélagar í Vísindafélagi Islend- inga, auk Dr. Becks, þeir Vilhjálm- ur Stefánsson landkönnuður og pró- fessorarnir Halldór Hermannsson og Thorbergur Thorvaldson. NEFND FISKIMANNA Allf jölmenn nefnd fiskimanna frá Manitobavatni, vitjaði á fund nátt- úrufríðindaráðgjafans, Hon. J. S. McDiarmid á miðvikudagsmorgun- inn, í sambandi við ýms nýmæli við- víkjandi veiðinni á þeim svæðum. Lagði nefndin fyrir ráðgjafann upp. ástungur í fernu lagi. 1. Leyfi til þess að mega byrja fiskiveiðar á Manitobavatni 10. nóvember. 2. Um 3J4 þml. möskva fyrir Sauger og Tulibees. 3. Að starfrækja til fyllri nota klakstöðvar við vatnið og koma á fót einni nýrri við Ebb and Flow vestan við Narrows. 4. Að n)dfæra sér þau veiðivötn í fylkinu, sem nú eru lítið sem ekkert notuð til veiða, með það fyrir aug- um áð flytja þaðan hrogn til klak- stöðva, og að notaðar verði flug- vélar til slíks flutnings.— Sendinefndinni var tekið hið bezta og hét Mr. McDiarmid því, að taka mólið til nákvæmrar yfirvegun- ar frá öllum hliðum. í sambandi við kröfuna um möskvastærðina verður að sjálfsögðu að fara fram afar nákvæm rannsókn á því hverj- ar afleiðingar yrðu viðvíkjandi fiskimagni, ef leyfið yrði veitt. EIRIKUR HERBERT BERGMAN, B.A. Þessi gáfaði og efnilegi námsmað- ur lauk í vor stúdentsprófi, fimm ára (Honours Course) við háskóla Manitoba. Foreldrar hans eru þau merkishjónin Mr. og Mrs. Hjálmar A. Bergman. Eftirminnilegur mann- fagnaður Komist var til forna svo að orði, að allar götur lægi til Róm. En livað sem um það er, þá er hitt víst, að síðastliðið sunnudagskveld sýnd- ust allar götur liggja til Hnausa- þorps, norður við hið faðmvíða Winnipegvatn. Þann dag, eða á sjálfan Drotningardaginn, áttu þau sæmdarhjónin Gísli Sigmundsson verzlunarstjóri og frú Ólöf Sig- mundsson, f jórðungsaldar hjóna- bands afmæli: hafði sá atburður seitt að sér fjölda af vinurp þeirra hjóna víðsvegar að, þannig, að hin reisulega og rúmgóða samkomuhöll þeirra Hnausabúa var þéttskipuð fagnandi gestum frá stafni til dyra. Mr. S. V. Sigurðsson útgerðar- maður í Riverton hafði veizlustjórn á hendi og fórst honum það í alla staði hið bezta. ViÖ háborð sátu þau Sigmundsson hjón ásamt börn- um sínum og öðru sifjaliði. Séra Sigurður Ólafsson flutti bæn og lét syngja þrjú vers úr sálminum “Hve gott og fagurt og indælt er.” Að því búnu hófust ræðuhöld. Tók fyrstur til máls hinn framtakssami oddviti Bifrastar, Mr. B. J. Lifman, er mælti fyrir minni silfurbrúðgum- ans. Dr. Sveinn E. Björnsson mint- ist silfurbrúðarinnar, en Mr. Sveinn kaupmaður Thorvaldsson kom næst- ur á vettvang, flutti allítarlega tölu i garð silfurbrúðhjónanna og af- henti þeim fyrir hönd viðstaddra og fjarverandi vina, margar forkunnar fagrar og verðmætar gjafir. Á tmdlli ræðanna lét veizlustjóri syngja ís- lenzka söngva, er fyltu salinn glað- værum hljómþunga. Mr. Nikulás Ottenson flutti silfurbrúðhjónunum drápu, skrautritaða af mikilli list. Þá tóku til máls frá Valgerður Sig- urðsson, Tryggvi Ingjaldsson, Gutt. ormur J. Guttormsson skáld, Arin- ARNLJÓTUR B. OLSON, sá, er gefið hefir háskóla Manitoba fylkis hið mikla, islenzka bókasafn sitt, 2,500 bindi. björn S. Bardal, séra Sigurður Ól- afsson og ritstjóri þessa blaðs. Langborð öll svignuðu undan margbreyttumi veizlukosti, er konur bygðarinnar höfðu af sinni alkunnu risnu tilreitt. Um miðnætti lagði ritstjóri þessa blaðs af stað heim- leiðis ásamt ferðafélögum sinum, þeim Mr. og Mrs. Arinbjörn S. Bardal; var skemtiskrá þá enn eigi lokið, og var það mieðal annars eftir- sjárvert, að eiga þess ekki kost að hlýða á silfurbrúðgumann, sem hef- ir orð á sér fyrir fyndni í ræðu.— Lögberg gripur þetta tækifæri til þess að óska þeim Sigmundsons hjónum margfaldra heilla í fram- tíðinni. -------------- ÚR BORG OG BYGfí Hr. Skúli Sigfússon þingmaður St. George kjördæmis í fylkisþing- inu, hefir tjáð Lögbergi það, að von muni vera allmikilla vegabóta um héröðin milli vatnanna í náinni framtið. Kvað hann Mr. Thorson hafa sýnt af sér hina mestu*rögg- semi í sambandi við málið. Mr. Árni Eggertson, Mrs. Elding, Miss Asta Eggertson og Mr. Gísli Jónsson fóru vestur til Elfros, Sask. á laugardaginn var, til þess að taka þátt í sjötíu ára afmælisfagnaði J. Magnúsar Bjarnasonar skálds. Ferðafólk þetta kom heim á aðfara. nótt miðvikudagsins. Athygli skal vakin á því, að frú Elma Gfslason aðstoðar við nem- endahljómleik R. H. Ragnars í Chalmers United Church í kveld, í stað Vera McBain, einnig leikur ungfrú Irene Diel á fiðlu. Mr. Axel Vopnfjörð, skólastjóri frá Belmont, Man., kom til borgar- innar á laugardaginn var ásamt frú sinni. Brugðu þau sér norður til Selkirk í heimsókn til frænda og vina. -------- Þeir Gunnlaugur Eiríksson, Cari Björnsson og Jóhannes Hannesson frá Wynyard, komiu til borgarinnar síðastliðinn föstudag. --------------------------------------------+ Harmsýn (Helen Welsliimer) Þeir ganga í hópum liér um þessa storð, er handtak fá ei neitt við iðju dags. Þeir gömlu, stúrnir, eiga ei lengur orð, er intu mesta fórn til þjóðarliags. En æskan vondauf veit ei handaskil. 1 vafstri þess að hafast ekki að, hún leitar út um hæðir, hóla, gil, og hvergi finnur tryggan næturstað. Þú sagðir, Drottinn, oss það áður fyr, að öllum þjónum bæri sanngjörn laun. Nú liíma börn þín hungruð fram við dvr með hræðslusvip og blása þar í kaun. Þau leita brauðs en úrlausn enga sjá, þó áður rigndi Manna himni frá. Einar P. Jónsson.

x

Lögberg

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.