Alþýðublaðið - 24.07.1960, Side 3
Sigga Vigga
ÍS, 60. Sigurfari BA, 150. Noniii
KE, 50. Eyjaberg VE, 50. Sjöfn
VE, 190. Blíðfari SH, 100.
Raufarhöfn: Síldin veiddist
(A) NNA 55-60 mílur af Hraun-
hafnartanga (ágæt saltsíld) og
(B) SA af Gerpi 30 mílur, léleg
söltunarsíld. Ægir var nú syðst
á Héraðsflóa og voru þar SSA
5 vindstig og 6 á Dalatanga,
svo að veiðiveður var slæmt
þar.
A) Hamar GK, 200. Leó VE,
300. Ólafur Magnússon EA,
350. Auðunn GK, 500. Stefnir
GK, 150. Árni Geir KE, 200.
Hrönn II. GK, 550. Gylfi EA,
100. Sæljón RE, 150. Eldborg
K, 200. Askur GK, 400. Sigur-
fari SF, 150. Jón Guðmundss.
KE, 400. Guðfinnur KE, 500.
Örn Arnarson GK, 400. Erling-
ur III. VE, 200. Víðir II. GK,
400. Akurey SF, 150. S'næfugl
SU, 250. Helga ÞH, 150. Þor-
björn GK, 250. Magnús Mar-
teinsson NK, 120. Reynir AK,
100. Jón Jónsson SH, 50. Jón
Gunnlaugs GK, 50.
B) Þráin NK, 500 mál. Sfef-
án Árnason SU, 200. Fjarða-^
klettur GK, 800. Bjöm Jóns-
son RE, 650. Bergur VE, 600.
Gissur hvíti SF, 150. Gunnar
EA, 150. Gullfaxi NK, 500. —
Hafnarey SU, 150. Ásgeir RE,
370. Víðir SU, 800. Ljósafell,
SU, 250. Stuðlaberg SU, 350.
Hoffell SU, 100. Ólafur Magn-
ússon KE, 400. Hilmir KE, 400.
Þorlákur ÍS, 300. Hafrún ÍS,
200. Bjögvin KE, 150. Hugrún
200. Hjálmur NK, 200.
\>er viu® v/sr tm gera mer þamn
6BEIOA AD KLÓBA MÉR Á MA6ANUM?
Vínlaust mót i ■
Hússafellsskógi
Alls hafa verið hér 86 skip
með samtals yfir 20 þúsund
mál og tunnur.
UM Verzlunarmannahelgina
verður lialdið mót bindindis-
manna í Húsafellsskógi. Að-
dragandinn að móti þessu, var
sá, að Vorþing Umdæmisstiik-
unnar nr. 1, sem háð var í
Reykjavík dagana 28. og 29.
maí s. 1. samþykkti að um-
dæmisstúkan hefði forgöngu
um, að lialdið yrði mót templ-
ara og bindindismanna í Húsa-
fellsskógi þessa helgi.
retinn sateftir
meðsártennið
Brezka blaðið News Chron-
icle segir frá flotaæfingum, sem
Atlantshafsbandalagið beitti
sér fyrir á Norðursjó og brezk,
dönsk og norsk skip tóku þátt
í.
Brezkur aðmíráll var fyrir
flotanum.
Þegar líða tók á æfingarnar,
barst honum skeyti frá dönsku
freigátunni Bellona og baðst
hún leyfis til að fá að hætta og
snúa sér að landhelgisstörfum.
Bretinn veitti leyfið.
Danska freigátan tók þá strik
ið á tvo brezka togara, sem sak
aðir höfðu verið um veiðar í
danskri landhelgi — og hirti
báða!
Umdæmisstúkan hafði síðan
samband við flest bindindissam
tök á landinu, og bauð þeim til
þátttöku í mótinu. Hafa undir-
tektir verið góðar, og m. a.
munu ungtemplarasamtökin
fjölmenna á mót þetta.
Forráðamenn mótsins segja
tilgang þess vera, að gefa fólki
kost á, að koma saman um
þessa helgi á stað, þar sem eng-
inn drykkjuskapur er. En það
hefur oft viljað bregða við, að
einmitt um 'Verzlunarmanna-
helgina hefur verið mikið um
drykkjuskap á þeim stöðum,
sem hafa verið mest sóttir.
Dagskrá mótsins hefst laug-
ardaginn 30. júlí kl. 22.00 með
ávarpi Kjartans Ólafssonar, for
manns mótsnefndar. Það kvöld
verður ýmislegt til skemmtun-
ar. Á sunnudag verða göngu-
ferðir um nágrennið, og þá m.
a. í Surtshellir, að Bæjarfelli,
niður í Odda og á fjallið Tungu.
Um kvöldið verður dansað ef
veður leyfir. Á mánudag verð-
ur svo mótinu slitið.
Allir eru velkomnir á mót
þetta, sem ekki neyta áfengis.
Áætlunarferðir verða í Húsa-
fellsskóg kl. 2 á laugardag. -j~
Engin greiðasala verður á staðn
um, en fólk getur fengið keypta
nýmjólk á Húsafelli.
— 24. júlí 1960 3
Lundgaards |
málið til
ráðuneytis j;
ALÞÝÐUBLAÐIÐ spurð-
ist fyrir um það hjá í;
Þórði Björnssýni, rann- ;•
sóknardómara, hvað liði ;!
rannsókn síðasta frí- ;|
merkjamálsins, þess sem |
kennt hefur verið við !;
Lundgaard verkfræðing. ;;
Þórður tjáði blaðinu að !;
málið hefði verið sent til !;
dómsmálaráðuneyfísins í ; |
gæmorgun, og mundi það !;
samkvæmt venju taka á- ;!
kvörðun um frekari máls- !!
meðfierð;. Þórður varðist !!
annars allra frétta af rann ;!
sókninni, en sagði að máls !;
skjölin væru áttatíu og ;[
sex síður vélritaðar og j!
vitnaleiðslur hefðu verið !;
töluverðar. ;!
twwwwwwwwwwwwwww
ÖLL SÍLDIN, sem barst til I
Siglufjarðar í nótt, veiddist 24
—30 mílur N-A af Siglufirði.
Virðist síldin færast SSV að
landinu, um 10 mílur á dag. —
Síldin er léleg til söltunar. -—
Ágætt veður er fyrir norðan
Langanes.
Eftirtalin .skip hafa landað á
Siglufirði: Ásbjörn ÍS 40 tunn-
ur. Sigurfari ÁK, 100. Ingjald-
ur SH, 80. Geir KE, 50. Stefán
Þór ÞH, 60. Sigurður SI, 90.
Særún SI, 350. Brynjar ST, 100.
Snæfell EA, 400. Þorleifur
Rögnvaldsson ÓF, 250. Bjarmi
EA, 250. Mummi GK, 100. Hann
es lóðs VE, 70. Sigrún AK, 200.
Tálknfirðingur BA, 150. Bald-
ur 'VE, 100. Frigg VE, 140.
Freyja VE, 50. Gulltoppur VE,
50. Hannes Hafstein EA, 350.
Gnýfari SH, 350. Hringur SI,
150. Helguvík KE, 100. Björg-
úlfur EA, 300. Björgvin EA,
120. Smári ÞH, 70. Sigurður
Bjarnason EA, 50. Reykjanes
GK, 50. Guðbjörg GK, 160.
Sigurfari SH, 70. 'Vörður ÞH,
320. Mímir ÍS, 50. Straumnes
ÍS, 100. Guðmundur á Sveins-
eyri BA, 250. Einar Hálfdáns
00 laxar
r Elllða-
am i sumar
ALÞÝÐUBLAÐIÐ fékk þær
upplýsingar frá veiðimálastjóra
í gær, að laxveiði í nágrenni
Reykjavíkur hefði gengið með
bezta móti það sem af er sumr-
inu. 21. þ, m. höfðu m a; veiðzt
900 laxar í Elliðaánum, en á
sama tíma í fyrra höfðu aðeins
veiðzt 400 laxar
Sömu söguna er að segja frá
Laxá í Kjós, en þar hafa nú
veiðzt um 500 laxar (ekki ná-
kvæm tala). Á sama tíma í
fyrra höfðu veiðzt þar um 300
laxar. 19. jþ. m. höfðu veiðzt í
Laxá í Leirársveit 350 laxar, og
er það einnig helmingi meira en
hafði veiðzt á sama tíma í fyrra.
Yfi'rleitt má segja að laxveiði
á Suður- og Vesturlandi hafi
gengið mjög vel í sumar, og eins
og fyrr segir, þá sýna þær tölur,
sem komnar eru, að laxveiði er
nú miklu meiri en í fyrra.
Á Norðurlandi hefur laxveið-
in gengið treglegar, og hefur
laxinn gengið þar í árnar með
seinna móti'. Engar tölur um
veiði er að hafa þaðan, en allt
bendir til, að veiði sé með líku
móti og var í íýrra.
lEinnig hefur veiði gengið
treglega í Dalaánum, en
virðist vera að glæðast núna.
Sama er að segja um árnar í
Borgarfirði.
Veiðimálastjóri' sendi í vor
skýrslur til útfyllingar á flesta
veiðistaði. Var það gert til að fá
betra iheildaryfirlit yfir al-
menna veiði. Skýrslur þessar
átti að útfylla og senda honum
jafnóðum. Heldur hefur þó
gengið treglega að íá þær út-
fylltar, og er því borið við, að
meiri á'hugi ríki fyrir veiðinni
en útfylllingu skýrslanna.
Heildaryfirlit yfir veiðina i
Framhald á 10. síðu.
Alþýðublaðið