Lögberg


Lögberg - 12.11.1936, Qupperneq 7

Lögberg - 12.11.1936, Qupperneq 7
LÖGBERG, FIMTUDAGINN 12. NÓYEMBER, 1936 7 Æfiminning Guðmundur Thorlákson bóndi að M'arkerville, Alberta, fæddur I. nóvember 1859 að Gautshamri við Steingrímsfjörð í Strandasýslu á Islandi, varð bráðkvaddur að heim- ili sínu i Markerville, Alta., 1 nóv. r935- Foreldrar Guðmundar voru Thor- lákur Guðmundsson og Steinunn Sæmundardóttir Björnssonar prests í Tröllatungu. Tveggja ára misti Guðmundur móður sína og fjórum árum seinna föður sinn, ólst því upp frá sex ára aldri til 18 ára, seni munaðarlaus öreigi. Á þeim árum lærði hann búfjárgæslu um eyði- heiðar og hamrahlíðar; var þannig velmentaður undir framtíðarstarf sitt. Auk þess sem hann var að upp- lagi bókhneigður og trúr í hvivetna til orða og athafna. Árið 1885 réðist hann til afburða- mannsins Torfa í Ólafsdal, að vísu sem vinnumaður, en ekki sem skóla- sveinn. Mun hann þó, á þeim tveim árum, er hann dvaldi þar, hafa þroskast drjúgum á ýmsa vegu. Árið 1887 fór hann 'alfarinn vest- ur um haf og staðnæmdist í N. Dakota, en næsta ár flytur hann vestur til Calgary, Alberta, albúinn til þeirra starfa, sem útlendingum voru ætluð. Árið 1891 flutti hann, ásamt konu sinni frá Calgary norður til íslenzku sveitarinnar í hinum fagra og frjósama Medicinedal; naf þar bújörð; farnaðist honum jafnan vel, og um langt skeið var hann meðal efnuðustu bænda sveitarinnar, naut almennrar1 hylli; var ákveðinn og stefnufastur í bipdindis- og trú- málum. Til dæmik var hann fé- hirðir lestrarfélagsins “Iðunn” um mörg ár, sat og lengstum í stjórn- 'arnefnd rjómabúsins að Marker- ville, og fleira. Eins og áður var á minst, kvænt- ist Guðmundur Thorláksson 1890, ungfrú Guðbjörgu Björnsdóttur frá Hlíð við Kollafjörð i Strandasýslu. Er hún hin mesta ágætiskona, eins og hún á kyn til. Þeim hjónum varð þriggj'a barna auðið, dóu tvö í bernsku, 'en hið þriðja, Björn bóndi Thorláksson, rekur nú umfangs- mikinn búskap til móts við móður sína á jörðum föður síns. Kvænt- ur er hann Halldóru Björnsdóttur Sveinbjörnsson. Eignuðust þau hjón tíu börn mjög efnileg, af þeim eru 9 á lifi, en Guðmund son sinn, 14 ára gamlan mistu þau 1931, á svip- legan hátt; steyptist hann út af brú á Medicine-ánni við Hólaskóla og druknaði. Piltur þessi var að áliti þeirra, sem bezt þektu hann, gædd- ur óvanalega miklum gáfum og hæfileikum. Hann var fermdur á páskum, en greftraður á hvítasunnu i93i. Báðir eru þeir nú Guðinundarnir grátnir úr Helju til heimkynna frelsarans. A. J. C. Áttræð merkiskona Frú Elín Briem Jónsson er 80 ára á morgún. í tilefni áttræðisaf- mælisins fór fréttarritari frá Morg- unblaðinu í heimsókn til hennar, þar sem hún býr hjá fóstursyni sínurn, Sæmundi Helgasyni á Bókhlöðustíg 7, og konu hans frú Jórunni Krist- jánsdóttur. Það hittist svo á, að frú Elín var lasin og lá í rúminu, hafði haft kvef undanfarna daga. En hún hrestist brátt, og var hin fjörugasta í við- ræðum, því margt bar á góma okkar á milli. Það var ekki að sjá, að hér væri áttræð, lasburða kona. Nei, hér var svipmikil, höfðingleg kona, glöð og hress í viðmóti, viðbúin að ræða og segja sitt álit á hlutunum. Og það var au'ðheyrt að frú Elín íylgist vel með öllu því, sem gerist í kringum hana, athafnalífi bæjar- ins og framförum, enda les hún mikið og skrifar enn, þó hún sé komin þetta til ára sinna. Sýndi hún rnér t. d. handrit, er hún hefir samið á síðustu árum, en þau voru m. a. um æfiatriði hinna rnerku for- eldra hennar, Eggerts sýslumanns 1 irieni og Ingibjargar Eiríksdóttur Sverrisson, konu hans. Talið barst að uppvaxtarárum frú Elínar. Heimilislífið að Reynistað —Frá þeim tímum, segir frú Elín T. W. KHshaw Borgarstjóraefni fólksins, óháður öllum pólitískum flokkum. Mannúðarmálin skipíöndvegi! Skyldur ræktar hlutdrægnis- laust gagnvart öllum stéttum bæjarfélagsins. Kjósið til borgarstjóra — KAUPIÐ AVALT LUMBER hjð. THE EMPIRE SASH & DOOR CO., LTD. HENRY AVENUE and ARGYLESTREET Winnipeg, Man. - Phone 95 551 KiUhaw, T. W. 1 er mér minnisstæðast heimilislífið á Reynistað, þar sem faðir minn bjó lengstum, sem sýslumaður. Eg fæddist á Espihóli í Eyjafirði, en fluttist fjögra ára með foreldrum mínum og sytkinum til Skagafjarð- ar, þar sem vi'ð bjuggum fyrst á Hjaltastöðum og síðan á Reynistað. Eg á margar góðar endurminning- ar þaðan. Heimilislif alt var frá- bærlega skemtilegt og frjálslegt, og aldrei hefi eg skilið, segir frú Elín, og brosir við, þegar fólk er að tala um fásinnið og leiðindin í sveitun- um. Á okkar heimili ríkti glaðværð og samúð milli alls heimilisfólksins. Störf voru mikil og margvísleg, þvi að margt var jafnan í heimili. Við systkinin vorum 19, en af þeim náðu 13 fullorðinsaldri. Við höfðum heimiliskennara á vetrum og fengurn við góða mentun, bæði til munns og handa. Eldri systkinin hjálpuðu jafnan til við kenslu og önnur heim- ilisstörf eftir megni. En eins og eg sagði áðan, var heimilislífið alt svo frjálslegt, að allir fengu notið sín til fulls. Ýmislegt var gert sér til skemt- unar og tilbreytingar á þeim tímum. Til skemtunar töldum við kirkju- ferðir, og heima fyrir voru hús- lestrar, söngur og ýmislegt tilhald í mat og drykk. Mest voru hátíða- brigði um jólin. Og á gamlárskvöld var oft glatt á hjalla. Þá var dansað og leikið. —En síðar,—hvað er yður minn- isstæðast þá? Kœrustu endurminningar —Eftir tvítugsaldur eru mér minnisstæðastar, og ef til vill kær- astar, endurminningarnar frá þeim árum, er eg var forstöðukona við kvennaskólann í Ytriey, segir frii Elín, og lifnar öll við, við tilhugs- unina. —Er eg fór úr heimahúsum 21 árs gömul, tók eg við forstöðu skag- firska kvennaskólans og hafði hána á hendi í 2 ár. Síðar, er. kvennaskól- arnir tveir í Skagafirði og Húna- vatnssýslu voru sameinaðir í einn skóla, i Ytriey, varð eg forstöðu- kona hans 1883. Hafði eg þá dvalið í Danmörku og lokið kennaraprófi við Frk, Zahlesskóla og kynt mér nýjustu kensluaðferðir. Var eg í þetta sinn við skólann í 12 ár samfleytt. Frá Ytrieyjarskóla. Skólann í Ytriey sóttu stúlkur úr öllum sýslum landsins, og voru þær flestar í heimavist. Oft voru þær yfir 40 talsins. Kend voru ýms fræði, bæði til munns og handa, og saumaskapur bæði á kven- og karl- mannafatnaði. Þá var og mikið i gert að hvítum og mislitum útsaumi. “ Y trieyjar-skriftin.” | Einu sinni var skólasýning í Reykjavík frá skólanum, og voru ' þar sýnd ýms verkefni, er stúlkurn- ar höfðu af hendi leyst. Er mér enn í minni, bætir frú Elín við, að Valdi- mar heit. Ásmundsson fór miklum | lofsorðum um skriftarkensluna, í "Fjallkonunni,” og sagði að rithönd ■ sumra skólastúlknanna í Ytriey væri | aðdáanlega fögur! Yar skriftin stundum nefnd “Ytrieyjarskriftin.” ! En skriftarkenslu annaðist fyrst framan af auk kenslu í mörgum öðr- um námsgreinum, frú Sigriður Jónsdóttir frá Reynistað. ■— Fyrstu árin hÖfðum við frú Sigríður tvær alla kenslu á hendi, en síðar var kenslukonum fjölgað svo að þær voru fjórar. Heimilishœttir í sklóanum. Um heimilisháttu í skólanum mætti margt segja, heldur frú Elín áfram. Við gengum allar með lífi og sál upp í starfinu, er mér óhætt að segja, og alt af féll vel á með kenslukonum og nemendum. Eg gerði mér far um að stúlkurnar mættu kunna sem bezt við sig og una sér vel. Eg vildi að stúlkurnar fengju heimili þar sem skólinn var, og það varð lika í mörgum tilfell- um, og margar kölluðu þær mig “mömmu.” Venjulega áttu allar að fara að sofa að húslestri lokn- um, kl. 10 á kvöldin. En stundum kom það fyrir, að þær fengu að vaka svolitið fram eftir með okkur kenslukonunum. Og ef þær höfðu snemma lokið lestri, heimsóttu þær okkur. Var þá snerpt undir katlin- um og helt á könnuna, og einhver brá við og bakaði pönnukökur eða annað góðgæti með kaffinu. Kl. 7 að ganga 8 á morgnana var farið á fætur. —Já, þau árin, sem eg gegndi skólastýrustarfinu eru ríkust i huga minum eftir öll þessi ár. Og það var jafnan svo, segir frú Elín, að þó að eg hyrfi frá skólanum um stundarsakir, kom eg jafnan þangað aftur. Stofnun Húsmœðroskólans í Reykjavik Árið 1895 giftist eg fyrri manni minum, Sæmundi Ejólfssyni cand. theol. og fluttist suður til Reykja- víkur. En hann andaðist ári síðar. Eg bjó þó enn um 2—3 ára skeið hér fyrir sunnan, og á þeim tíma stofn- aði eg Húsmæðraskólann í Reykja- vík, en fekk Hólmfríði Gísladóttur forstöðu hans. Hvarf eg síðan aftur norður og tók við stjórn kvennaskólans, seni þá var fluttur til Blönduóss. Árið 1903 giftist eg seinni manni minum, Stefáni heitnum Jónssyni Páll Sveinsson fyr bóndi í grend við Gimli. Manitoba. “Og góðvinum, meðan þeim endast ár, þín ástúð fyrnast mun eigi, en fremst þínmn kceru’ er sorgin sár og saknaðar bitur tregi; Hve þung eru sporin þeim í dag á þínum síðasta vegi. Svo farðu nú vel — og foldar skaut þig faðmi með vori þýðu, þar leggur minning sitt laufaskraut hjá liljunum sorgarblíðu; þcr hclg veitist ró, en huggun þcim. sem hrifinn þú varst frá síðu.” (Stgr. Thorsteinsson). Því lengra sem æfileiðin sækist fram á veg, þess betur gerum við okkur grein fyrir þvL hveru margir af samferðamönnum á lífsins vegum falla fyrir hinum beitta ljá dauðans. Ein af fegurstu minningum er æfiár taka að fjölga, er minningin, seni þeijn er helguð, sem burtu eru flutt- ir af jarðlífsvegum að ströndinni hinu megin. Einn af slíkum ljúfum samferðamönnum, er sá er eg vil minnast með nokkrum orðum. Páll Sveinsson var fæddur 13. okt. 1870, í Gilkoti í Tungusveit í Skagaf jarðarsýslö. Foreldrar hans voru Sveinn Ásmundsson og Sig- riður Jónsdóttir, er bæði munu hafa verið af skagfirskum ættum. Þau dóu bæði frá honum ungum. Ólst Páll þá upp fyrst á Ánastöðum, en síðar á Gilhaga, með Jóni Ásmunds- syni, föðurbróður sínum, og Ingi- gerði konu hans Magnúsdóttur, og Magnúsi syni þeirra. 1 Gilhaga giftist Páll Ingigerði Bjarúadóttur frá Daðastöðum á Reykjaströnd árið 1892. Þau bjuggu í Breiðagerði í sömu sveit, einnig á Grimsstöðum og Goðdölum; síðar bjuggu þau að írafelli og Gilhaga- seli, en síðast í Gróargili í Seilu- hreppi, en fluttu þaðan til Canada árið 1904.• Þau settust strax að á Lóni við Ginili, þvi þar bjó Gísli bróðir Páls. Á Lóni dvaldi Páll og kona hans, ásamt börnutn þeirra hinn fyrsta vetur, en næsta ár sett- ust þau að á Gimli, bjuggu þau í bænum um hrið, en settust að á landi, utanbæjar og bygðu sér þar hús, árið 1906, og bjuggu þar unz þau árið 1926, fluttust til Argyle- bygðar, og dvöldu þaðan af hjá dótt- ur sinni og tengdasyni þar. Páll naut allgóðrar heilsu og gekk að allri vinnu með tengdasyni sínum, þar til fyrir tveimur árum, að heilsa hans fór þverrandi. Hann gekk undir uppskurð, sumarið 1935, en náði sér ekki að fullu eftir það. Hann fékk slag þann 15. júlí s.l. og leið mikið, síðustu þrjá mánuði æfi sinnar. Hann hafði rænu til hinztu stundar fram. Hann andaðist þriðju- daginn 15. sept., og var jarðsettur að Gimli, þann 17. s. m., að við- verzlunarstjóra á Sauðárkróki. Misti eg hann eftir 7 ára samúð, en bjó á Sauðárkróki enn um þriggja ára skeið. En enn einu sinni hvarflaði hug- ur minn að kvennaskólanum, og fór eg aftur til Blönduóss og tók við stjórn skólans. Dvaldi eg þar í 2 ár. —En skömmu síðar veiktist eg og fluttist eftir það suður til Reykja- víkur, árið 1915, og hér hefi eg nú búið siðan. —Þér hafið líka fengist mikið við ritstörf um æfina? Hvenær kom t. d. Kvennafræðarinn, sú ágæta bók, út? —Það var 1889. Eg vann að henni þau árin, sem eg var í Ytri- ey. Stúlkurnar áttu að læra mat- reiðslu, en lítið var um matreiðslu- bækur í þá tíð. Tók eg þá upp það ráð að skrifa niður og safna ýmsum góðum mataruppskriftum og ráðum. er þeim mætti að gagni koma. Það var upphaf “Kvennafræðarans.” Auk þess hefi eg skrifað smá- greinar í blöð og tímarit, skýrslur skólans o. fl. Hitavcitan stœrsta framfaramálið —Hvað segið þér um nútímann? —Eg veit varla, hvort eg, komin þetta til ára, á að leyfa mér að dæma um hann, svarar frú Elín, en það er stöddu mörgu fólki, og lagður til hinztu hvíldar í Gimli grafreit. Ótyírætt mun mega telja Pál Sveinsson til hinna kyrlátu í land- inu. /Efintýralítil og hávaðalaus mun æfi hans hafa liðið hjá, líkt og áin, er kemur af hálendinu, en fell- ur þögul og djúp að ósi sínum fram. Páll var meðal þeirra er hafa hægt um sig, en hann bar jafnan fullgild- an hlút frá borði. Hann var affara- sæll maður að hverju sem hann gekk: í þarfir heimilis sins og í öll- um störfum. Hann var ágætur samstarfsmað- ur í öllum félagsskap, tillögugóður og vinsæll. Hann, ásamt konu sinni og dóttur, var meðlimur Gimli safn- aðar; studdu þau söfnuðinn og störfuðu fyrir hann af mikilli stað- festu og hlýhug. Eg kyntist Páli heitnum fyrst, er eg gerðist sóknarprestur i suður- hluta Nýja íslands, og settist að á Gimli. Var hann þá starfsmaður í safnaðarnefnd lúterska feafnaðar- ins ásamt öðru mér ógleymanlegu starfsfólki. Páli auðnaðist að eign- ast hlýhug flestra þeirra, er hann kyntist. Að upplagi til, var hann þéttur í lund, einarður og fámáll, vakti hann því og hélt vaxandi til- trú manna, er hann átti samleið með. Vinum sínum tengdist hann traust- um böndum, því traustari er kynn- ingin lengur varði. Mun hann sein- gleymdur verða kunningjum og vin- um. en minningin um hann lætur jafnan birta til og hlýna í hugar- heimi. Páll var maður greinargóður og skír, söngelskur og mjög bók- htieigður og lestrargjarn. Var hann starfandi meðlimur og góður stuðn- ingsmaður lestrarfélagsins á Gimli, á dvalarárum fjölskyldunnar þar. Heimili þeirra Páls og Ingigerðar var jafnan fremur veitandi en þurf- andi, og gott þar að koma. Páll var ljúfur heimilisfaðir ástríkur faðir og umhyggjusamur eiginmaður. Tvö voru börn þeirra Páls og Ingi- gerðar: Sigríður, kennari, gift Ing- ólfi Jónassyni Helgasonar og Sig- ríðar konu hans í Argyle-bygð og ’ Sveinn, mannvænlegur piltur, er þau hjón mistu er hann var tólf ára að aldri. Páll var lipur verkmaður að hverju sem hann gekk og affarasæll við vinnu. Heima í átthögum sínum á íslandi, hafði hann stundað störf i þarfir búnaðarfélagsins í héraði sínu og farnast það vel. Sem þegar er að vikið fór útför Páls fram á Ginili, þar sem þau lijón höfðu lengi lifað of starfað. Fylgdu nánustu ástvinir likinu úr héraði sínu, til Gimli. Jarðarförin fór fram frá lútersku kirkjunni. Söfn- uðust Gimli-búar saman fjölmennir, til að kveðja látinn vin og ljúfan samferðamanna. S ó k n a r prestur safnaðar og sá er þetta ritar þjón- uðu báðir við athöfnina. Sigurður ólafsson. auðséð að hún hugsar sitt. —En það get eg sagt, að eg fylg- ist með öllum hinum margvislegu framförum seinni ára—og er hrif- in af. — Þó finst mér að margt hefði mátt betur fara í þessu landi, ef rétt hefði verið með farið, og á eg þar við sorglega ill áhrif krepp- unnar á landið okkar, og slæman f járhag. —En þegar á alt er litið, finst mér æfidagarnir hafa verið mér á- nægjulegir, mér hefir allstaðar liðið vel — og það sem mest er um vert, eg hefi alla tíð bartsýn verið og frjálslynd í skoðunum. —Og eitt vildi eg segja enn, áður en við slítum samtali okkar, segir frú Elín að endingu. — Úr því að eg hefi nú lifað svona lengi, vildi eg gjarna lifa það, að sjá hvert hús í Reykjavik, hitað upp með heitu hveravatni. Hitaveitumálið finst mér eitt stærsta framfaramálið, sem nú er á döfinni. Um leið og vér kveðjum frú Elinu Briem, með þakklæti fyrir góðar móttökur, ámum við henni allra lieilla i tilefni áttræðisafmælisins, og óskunt þess þjóðinni til handa, að hún megi eignast margar slikar dæt- ur, er helga sig ríku æfistarfi og góðum hugsjónum, er koma landi og lýð að gagni.—Mbl. 18. okt.

x

Lögberg

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.