Lögberg - 19.11.1936, Blaðsíða 1
49. ARGANGUR j
WINNIPEG, MAN., FIMTUDAGINN 19. NÓVEMBER 1936
NUMER 47
Ferðahugur
Eftir Jakobínu Johnson
Eg finn að fyrsti vorblær
um Faxaflóa þýtur,
E'g veit að blóðberg vaknar
á veðurteknum mel.
Þá vík eg heim á Vífilsfell,
—um víðsýnið mig dreymir,
ef veður leyfir sumarlangt þar dvel.
Eg gekk þar eitt sinn áður,
r—mig Unga Island studdi,—
eg örugg sveif með liugann
á fjallsins hæsta tind.
En þyngra varð með þróttinn,
—hann þraut í miðjum hlíðum,
eg þráði livíld og svalan úthafs vind.
Frá lágu^repi leit eg
hve létt er ungum fótum
að leggja brattann undir
og ryðja nýjan veg,
—mun Elli heilsa þannig
að þyngist brjóst af mæði,
en þráin li'fi — söm og guðdómleg?
1 apríl 1936 —Dvöl.
Frá Islandi
Lungnapest í
Borgarfjarðarsýslu
Borgarfirði 17. okt.
Lungnadrep í sauðfé geisar hér
um efri hluta héraðsins og breiðist
óðum út.
Margir hallast að þeirri skoðun,
að hér sé um að ræða áður óþekta
tegund lungnapestar,, sem berist
milliliðalaust frá einni kind til ann-
arar. Flestum lömbum er nú lógað
af ótta við drepsóttina.
Prófessor Níels Dungal hefir gert
ráðstafanir til þess að fá héðan frá
nokkrum bæjum sjúkt fé til rann-
sóknar, og sömuleiði.g hefir hann nú
fengið héðan hey frá nokkrum bæj-
um og af ýmSri gerð til rannsókn-
ar.—Vísir 19. okt.
* * #
Úr vísum Orms
Loftssonar
(Hann var elztur sona þeirra
Lofts ríka Guttormssonar og Krist-
inar Oddsdóttur).
Við meyjarnar leika margir glatt,
mest í orðum hæla;
ætla þær að alt muni satt,
það ýtar kunna að mæla.
Nýta fá þeir nistils grund,
og njóta mælsku ginnar;
eg hef goldið alla stund
óeinurðar minnar.
Auka gera þeir angur og imiein
ungum silkispaungum;
þá fengið hafa þeir falda rein, *
fúlsa þeir við henni laungum.
—Vísir 19. okt.
# # #
Ilafisar
Þeir hafa það til, að leggjast að
Norðurlandi á Þorra eða Góu eða
jafnvel fyr og liggja þar langt fram
á sumar, til ágústloka eða lengur.—
Þykir bændum það slæmur gestur,
sem von er. Og ekki verður tölum
talið alt það tjón, sem hafísinn hefir
unnið þessu landi frá upphafi Is-
landsbygðar.—
Veturinn 1801 varð íslendingum
þungur í skauti.
“Með miðjum marz harðnaði
veðrátta til muna,” segir i heimild
þeirri, sem þetta er eftir haft.
“Hinn 11. s. m. var stórhríð um alt
land; fyltust þá Vestfirðir og Norð-
urlandshafnir með hafís, og gengu
alt til 13. apríl ofviðri, frost og
byljir, svo varla var farandi bæja á
milli án lifsháska, þótt bylurinn á
Góuþrælinn tæki yfir. Girti hafís
alt land, frá Barðastrandarsýslu að
vestan, alt til Reyðarfjarðar að
austan. Varð þá skepnufellir meiri
eða minni í flestum sveitum, einkum
Múlasýslum, þar sem sífeld ótið
hafði haldist frá allra heilagramessu.
Var haft eftir Stefáni amtmanni
Þórarinssyni, að nær 50,000 sauð-
fjár hefði fallið i hans umdæmi. . . .
Hestafellir varð og allmikill um
Skagafjörð og víðar. . . . Músa-
gangur var þá svo mikill, að sagt
var að þær hefði lagst með svo mik-
illi græðgi á sauðfé, að á einum bæ
hafi sökum þess orðið að lóga 12
kindum. Þótt veðrátta tæki að ger-
ast vægari eftir fardaga, kom eigi
verulegur bati fyr en um Jónsmessu,
og sumstaðar seinna, þegar hafísinn
tók að rýma frá.”
Ivenjulegt roun það vera, að haf-
ísar liggi fyrir Austjförðum sunn-
anverðum mjög langt fram á sumar.
Þetta hendir þó stundum. Þannig er
það í frásögur fært, að “eitt af Spá-
konufellshöfða kaupskipum, tilheyr-
andi Kristjáni Gynther Schram,”
hafi strandað fyrir norðan land
síðla sumars 1802 “eftir að það
hafði orðið að hleypa inn á Beru-
fjörð í.miðjum ágúst vegna hafíss.”
—Vísir 19. okt.
# # *
Pétur Sigurðsson
sonur Sigurðar Péturssonar skip-
stjóra á Gullfossi, hefir nýlega lok-
ið burtfararprófi á danska sjóliðs-
foringjaskólanum með ágætiseink-
unn.—Visir 14. okt.
# * #
Jarð skjálft akippir
um alt Norðurland
Þrír allsnarpir jarðskjálftakippir
fundust um alt Norðurland í fyrra-
kvöld. Snarpastir voru kippirnir í
Dalvík og annarsstaðar við Eyja-
fjörð og er álitið að upptök jarð-
skjálftanna séu á sömu slóðum eins
og sumarið 1934, er mest tjón varð
að völdum jarðskjálfta í Dalvík,
eftir þvi seml Þorkell Þorkelsson
veðurstofustjóri hefir reiknað út af
jarðskjálftamælunum hér.
Engar skemdir urðu af völdum
jarðskjálftanna, en viða færðust
smáhlutir úr stað.
Smá jarðhræringar fundust víða
um Norðurland í alla fyrrinótt þar
til klukkan 6 í gærmorgun.
Fyrsti kippurinn kom kl. 10.40 í
fyrrakvöld og var hann mestur.
Næsti kippur kom 10 mínútum síð-
ar og siðan fylgdi sá þriðji 2 mín-
útum síðar.
1 Dalvík. — Fréttaritari Mbl. í
Dalvík segir svo frá:
Flestir menn hér á Dalvík voru
gengnir til náða er fyrsti jarð-
skjálftakippurinn kom. Þustu menn
út úr húsum sínum óttaslegnir, því
enn eru ríkar í huga fólks endur-
minningar frá jarðskjálftunum
1934, sem mestan skaðann gerðu
hér.
Fyrsti kippurinn og um leið sá
stærsti var þó ekki nærri því eins
skarpur eins og stærstu kippirnir
1934-
Stærsti kippurinn 1934 var sagður
hafa styrkleikann 9. Eftir því að
dæma mun fyrsti kippurinn hér í
fyrrakvöld hafa haft styrkleikann 4,
eða þar um bil. Fyrsti kippurinn
stóð ca. 15—20 sek. Annar kippur-
inn var minni, en afar snöggur;
þriðji kippurinn var lítill. Smáhrær-
ingar fundust alla nóttina til kl. 6 1
gærmorgun.
Á Akureyri urðu menn varir við
jarðskjálftakippina og hræringar
fram eftir nóttu. — Annarsstaðar
við Eyjafjörð fundust jarðskjálft-
ar, en hvergi varð tjón af.
A Húsavík voru kippirnir all-
snarpir. Myndir sem stóðu á borð-
um féllu niður og smáhlutir færðust
úr stað. Jarðskjálftarnir fundust
einnig víða í Kelduhverfinu.
Á Raufarhöfn voru kippirnir all-
snarpir og töluverðar hræringar alt
þangað til kl. 8 í gærmorgun.
í Siglufirði urðu menn varir við
jarðskjálftakippina, en þar voru þeir
heldur daufir.
Á Sauðárkróki urðu menn varir
við jarðskjálftana, en þar voru þeir
afar daufir.
Eftirfarandi er samkvæmt FÚ.:
Blönduós. — Um kl. 11 fundust
hér 3 landskjálftahræringar, allar
vægar. — Sú fyrsta mest, en sú síð-
asta minst. Voru þær nneð nokk-
urra mínútna millibili.
í Ólafsfirði fanst snarpur land-
skjálftakippur. Alls fundust 5
kippir fram til kl. 5 í gærmorgun, en
síðari kippirnir voru minni en sá
fyrsti. Mönnum virtist landskjálft-
arnir koma úr sömu átt og land-
skjálftarnir sumarið 1934.
Þórshöfn.—Rétt fyrir kl. 11 varð
í Þórshöfn vart við 2 landskjálfta-
kippi. Báðir voru vægir.
Vopnafirði.—Um kl. 11 varð víða
í Vopnafirði vart við þrjá land-
skjálftakippi. Var sá fyrsti svo
sterkur að hús hristust verulega.
Um kvöldið sást einnig úr Vopna-
fjarðarkauptúni greinilegur eld-
bjarmi á lofti í suðvestri. Bjarm-
inn var miestur frá kl. 8—9.
Mbl. 24. okt.
# # #
Fyrirlestrar um nýrri
bókmentir Svía
Hingað korni með Dettifossi síð-
ast nýr sænskur lektor við Háskóla
íslands, fil. mag. Sven Janson.
Fil. mag. Sven Janson stundaði
nám við háskólann i Stokkhólmi.
Undanfarin ár hefir hann fengist
við vísindarannsóknir, sérstaklega
rannsóknir á rúnaristum. Hann hef-
ir og verið lektor við háskólann í
Greifswald í Þýzkalandi.
Lektorinn tók þátt í norræna stú-
dentanámskeiðinu, sem hér var hald-
ið í vor. Eftir það ferðaðist hann
um Vestur- og Norðurland, en fór
aftur til Svíþjóðar til að ljúka við
rúnarannsóknir sem hann hafði með
höndum þar.
Fil. mag. Sven Janson hefir
nokkra þekkingu á íslenzkum bók-
mientum, því að hann skilur málið,
þótt hann hafi enn eigi fengið mikla
æfingu í að tala það. Fyrirlestrar
hans hefjast í háskólanum annan
miðvikudag. Ræðir hann um nýrri
bókmentir Svía.
# # #
Fjárpest í
Húnaþingi
Deildartunguf járpestin er nú
komin i vestanverða Húnavatns-
sýslu og hefir hennar a. m. k. orðið
var á 17 bæjum í Hrútafirði og
Miðfirði.
Á Torfastöðum í Miðfirði hefir
hún drepið 47 kindur, á Haugi,
Heggstöðum og Bessastöðum um 30
kindur á hverjum bæ. Á Staðar-
bakka, Hvoli og í Mýrdalstungu
hafa drepist frá 10—20 kindur.
Álitið er að hér sé um smitun að 1
ræða og hafi borgfirskt sauðfé, sem
gengið hefir með fé Húnvetninga á
afréttum í suimiar, borið veikina.—
N. dagbl. 1. nóv.
# # #
Hönsk gjöf til
Mentaskólans
1 gærmorgun kl. 11 var afhjúpuð
í Mentaskólanum minningartafla um
Niels Ryberg Finsen, sem skólanum
hafði borist að gjöf frá dönskum
manni, Peter Schannong stein-
höggvarameistara í Kaupmanna-
höfn.
Vdð athöfnina töluðu Pálmi Hann-
esson rektor, seml bauð gesti vel-
komna, og gat þess að töflunni
myndi verða valinn góður staður í
skólanum, legatfonsraad Bruun,
sem afhenti myndina, dr. med.
Gunnlaugur Claessen og Haraldur
Guðmundsson kenslumálaráðherra.
Gunnlaugur Claessen talaði aðal-
lega um vísindamensku N. R. Fin-
sen.
Svo sem kunnugt er, voru vís-
indaafrek hans fólgin í því, að rann-
saka áhrif sólarljóssins frá sjónar-
miði líffræðinnar (biologi) og líf-
eðlisfræðinnar (fysologi). Leiddu
rannsóknir hans í ljós ýmsar stór-
imierkar staðreyndir, sem sköpuðu
einn þýðingarmesta þátt nútima-
læknisfræðintiar, ljóslækningafræð-
ina. Eins og átt hefir sér stað um
margar merkilegar uppgötvanir varð
mjög hversdagslegt atvik til þess að
beina huga Finsens að viðfangsefni
sínu. Munu margir kannast við sög-
una um köttinn á húsþakinu fyrir
utan glugga Finsens; kötturinn
hreyfði sig ætið á þakinu, þegar
skuggi féll á hann, en hélt sig þar
sem sólskinið var. Umhugsun Fin-
sens um þetta atvik og einfaldar at-
huganir á áhrifunn hinna ýmsu lita
sólarljóssins á skordýr skópu vís-
indagrein, sem halda mun nafninu
Niels Ryberg Finsen á lofti og blessa
það um aldaraðir.
N. Dagbl. 28. okt.
VICTOR B. ANDERSON
bœjarfulltrúi
Mr. Anderson leitar endurkosningar
til bæjarstjórnar í Winnipeg, við
kosningar þær, sem fram fara á
föstudaginn þann 27. þ. m.
EIRIKUR BJÖRNSSON
LATINN
Síðastliðinn þriðjudag var borinn
til moldar frá útfararstofu Bardals
hér í borginni, Eiríkur Björnsson
frá Lýtingsstöðuiml í Vopnafirði, er
andast hafði í hárri elli á heimili
sonar síns í Árborg, Dr. Sveins E.
Björnssonar og frú Maríu Björns-
son, þar sem hann hafði dvalið all-
mörg síðustu ár æfinnar. Kona Ei-
ríks er látin fyrir nokkrum árum.
Af börnum þeirra á lífi eru: Dr.
Sveinn í Arborg, og Aðalbjörg og
Mrs. Sigvaldason í Winnipeg.
Eirikur Björnsson var hið mesta
vaímenni, prúður í umgengni og
byggjuhreinn. — Séra Eyjólfur
Melan jarðsöng.
C. RIIODES SMITH
BÆJARFULLTRÚI
Mr. Smith er fæddur í Winnipeg
og hefir átt heima í 2. kjördeild síð-
astliðin fjórtán ár; hann var þrjú ár
í styrjöldinni imáklu. Árið 1919 hlaut
hann Rhodes námsstyrkinn og stund
aði framhaldsnám í lögum á Eng-
landi. Er hann nú fyrirlesari í lög-
um við Manitoba háskólann.
Mr. Smith er formaður sérstakr-
ar nefndar í bæjarstjórn Winnipeg
borgar, er fjallar um málefni at-
vinnulausra, einhleypra manna; alls
á hann sæti í átta bæjarstjórnar-
nefndum og nýtur hvarvetna virð-
ingar og trausts. Mr. Smith býður
sig fram til bæjarstjórnar i 2. kjör-
deild við kosningarnar þann 27.
þ. m.
KOSNINGAR 1
ST. BONIFACE
Á föstudaginn þann 13. þ. m.,
fóru framl kosningar til borgarráðs-
ins í St. Boniface. Urðu úrslit þau,
að George C. MacLean var kosinn
borgarstjóri með allmiklu afla at-
kvæða umfram tvo keppinauta sína.
Hinn óháði verkamannaflokkur beið
tilfinnanlegan ósigur í kosningum
þessum. Jafnvel núverandi borgar-
stjóri, Mr. G. H. Barefoot, er bauð
sig fram til bæjarfulltrúa í 5. kjör-
deild, varð undir. Mr. MacLean
hefir áður gegnt borgarstjóraem-
bætti í St. Boniface, og er alment
talinn þó nokkur áhrifamaður.
Skemtisamkoma sú, “At Horne,”
er Eldri söngflokkur Fyrsta lúterska
safnaðar efndi til í fundarsal kirkj-
unnar á föstudagskvöldið þann 13.
þ. m., var ágætlega sótt og skemti
fólk sér hið bezta við margháttað-
an söng, upplestur, skrautdansasýn-
ingar og rausnarlegar veitingar.
Söngstjóri flokksins, Mr. Paul Bar-
dal bæjarfulltrúi, skipaði forsæti.
MR. J. J. VOPNI ENDUR-
KOSINN 1 FRAMKVÆMD-
ARRAÐ WINNIPEG
GENERAL HOSPITAL
Á nýlega afstöðnum ársfundi Al-
menna sjúkrahússins í Winnipeg,
var Mr. J. J. Vopni endurkosinn í
framkvæmdarráð þessarar mikil-
vægu stofnunar í sjötta sinn til
þriggja ára tímabils. Er. Mr. Vopni
eini tslendingurinn, að því er vér til
vitum, er átt hefir sæti i þessari
framkvæmdarne fnd fyrir utan þá
íslenzka bæjarfulltrúa, er í nefnd-
inni sitja af hálfu bæjarstjórnar.
KARLAKLÚBBUR FYRSTA
LÚTERSKA SAFNAÐAR
Dr. B. J. Brandson hélt virðulegt
gestaboð í amlkomusal Fyrstu lút-
ersku kirkju á þriðjudagskvöldið
var, þar sem hann bauð til veizlu
meðlimum karlaklúbbsins, er nálægt
áttatiu manns tóku þátt í. Var þetta
í rauninni aðaifundur klúbbsins.
Forsæti skipaði Mr. T. E. Thor-
steinson.
Mr. Hjálmar A. Bergman, K.C.,
þakkaði Dr. Brandson fyrir hönd
klúbbsins, þetta virðulega heimboð,
með fjörugri og skiplegri ræðu, en
Dr. Brandson svaraði með þeim
skörungsskap, sem hann er kunnur
að.
1 stjórnarnefnd klúbbsins fyrir
næsta ár voru kosnir:
S. W. Melsted, forseti
Norman eBrgimán, vara-forseti
Ásgeir Bardal, f jármálaritari.
Meðstjórnendur:—
Baldwin Baldwin
Eric A. ísfeld.
1 sjálfboðanefnd til aðstoðar
framkvæmdarnefndinni viðvíkjandi
fjárhagsmálum safnaðarins, eiga
sæti:
O. G. Björnson
Dr. P. H. T. Thorlakson
Albert Wathne
Snorri Jónasson
T. E. Thorsteinson.
Fjörugar umræður um starfsemi
og framtíðarhorfur klúbbsins urðu
á fundinum, er margir tðku þátt í;
báru þær vott um lofsverðan áhuga
hjá félagsmönnum.
FYRSTU SNJÓAR
1 gær var norðan hvassviðri um
alt land. Er snjór töluverður sum-
staðar. Sunnan lands var úrkomu-
laust að mestu, en orðið er alhvít
jörð víða í uppsveitum. Austan
lands var 2—4 stiga hiti og úrkomu-
laust, en o stig hiti á Norður- og
Vesturlandi.—N. dagbl. 27. okt.
FRAMBJÓÐENDUR VIÐ
BÆJARSTJÓRNAR KOSN-
INGARNAR I WINNIPEG
ÞANN 27. Þ. M.
Fimm eru í kjöri um borgar-
stjóraembættið, svo ekki verður ann-
að sagt en úr nægu sé að velja.
Menn þessir eru þeir núverandi
borgarstjóri, John Queen, Lt.-Col.
Ralph H. Webb, fyrrum borgar-
stjóri; Dr. F. W]arriner, tannlækn-
ir; T. W. Kilshaw, uppboðshaldari,
og T. O. Woods, er tjáist hlyntur
vera Social Credit hreyfingunni;
hann nýtur samt sem áður hvorki
stuðnings né meðmæla af hálfu
miðstjórnar þessa nýja stjórnmála-
flokks.
Eftirgreindir imlenn bjóða sig
fram til bæjarfulltrúa á hlutaðeig-
andi kjördeildum:
1. kjördeild—
C. H. Morrison, lögfræðingur
George G. Bradley, umboðsmaður
R. V. Waitt, forstjóri
W. B. Lowe, prentari, núverandi
bæjarfulltrúi
R. A. Sara, raffræðingur
E. D. Honeyman, lögfræðingur,
núverandi bæjarfulltrúi.
2. kjördeild—
Henry B. Scott, brauðgerðarm.
Victor B. Anderson, prentari, nú-
verandi bæjarfulltrúi
James Simpkin, trésmiður, núver-
andi bæjarfulltrúi
C. Rhodes Smith, lögfræðingur,
núverandi bæjarfulltrúi
Garnet Coulter, lögfræðingur
John J. Daniels, málari
John McNeill, vélamaður
E, Belledeau, málari.
3. kjördeild—
Dan McLean, umboðsmaður, nú-
verandi bæjarfulltrúi
M. J. Forkin, járnbrautarþjónn,
núverandi bæjarfulltrúi
M. A. Gray, bókhaldari, núver-
andi bæjarfulltrúi
Peter Wolanski, starfsmaður líkn-
armála
D. M. Elcheshen, laganemi
J. A. Jastremsky, umboðsmaður
Fred C. White, bókhaldari.
Meðal þeirra, sem bjóða sig fram
til skólaráðs í 2. kjördeild, þar sem
íslenzkra áhrifa gætir mest, eru
Lawrence Van Kleck, Henry B.
Smith, W. A. Milton, Aubrey Brock
og Adam Beck.
ÓPERUSÖNGKONAN
Schuinann-Heink, lézt í Hollywood,
Cal. á miðvikudaginn var. Átti hún
75 ára afmæli þann 15. júlí síðast-
liðinn.