Lögberg - 14.01.1937, Blaðsíða 1

Lögberg - 14.01.1937, Blaðsíða 1
PHONE 86 311 Seven Lines H"0' íot a a co<‘ c For Better Dry Cleaning and Laundry 50. ARGANGUR WINNIPEG, MAN., FIMTTJDAGINN 14. JANÚAR 1937 NÚMER 2 Frá Islandi Bygging 55 nýbýla dreifðra um alt landið Það orkar ekki tvímælis að lang- mikilvægasta framtíðarmálið, sem stjórn Hermanns Jónassonar hefir beizt fyrir, er stofnun nýrra heimila í sveitum. Með lögunum um ný- þýli og samvinnubygðir, sem af- greidd voru á seinasta þingi, hefir verið stigið stærsta sporið til að end- urreisa hina föllnu bygð í landinu og skapa æskunni skilyrði til að reisa >ar heimili í stað þess að þurfa að sækjast eftir óvissum og stopul- um atvinnumöguleikum við sjávar- síðuna. Strax á fyrsta ári þessarar lög- gjafar hefir reynslan sýnt að unga fólkið tekur henni með mikilli feg- inshendi og er þess alráðið að hag- nýta J>á möguleika, sem hún býður, til fulls. I sumar hefir með tilstyrk laganna verið hafin bygging ekki færri en 55 nýbýla og auk þess hafa verið veitt lán til 15 býla, sem hafin var bygging á áður. Flest eru þessi býli reist á órækt- uðu landi, sem stófnendur nýbýl- anna hafa fengið úr landi eldri jarða. Sumum fylgir >ó stráx nokk- uð ræktað land. Styrkurinn og lán- veitingin gengur bæði til húsbygg- inga og ræktunar, þó einkum til hins fyrnefnda, en skilyrði fyrir hvort- tveggja er þó, að ræktað land býlis ins hafi náð ákveðinni stærð innan tiltekins tíma. Hverju nýbýli má veita 3,500 kr. styrk úr rikissjóði, og auk þess jafn- hátt lán úr nýbýlasjóði, sem verður sérstök deild í Búnaðarbankanum. Styrkur og lán samanlagt mega þó ekki nema hærri upphæð en 14/17 af stofnkostnaði býlisins. Lánin eru veitt gegn fyrsta veð- rétti, en styrkurinn er óafturkræft framlag ríkisins. Eins og áður segir hefir í sumar verið hafin bygging 55 nýrra býla, sem hafa fengið styrk úr ríkissjóði og einnig lán úr nýbýlasjóði, ef þess hefir þurft. Bygging íbúðarhúsa mun lokið eða langt komið á flest- um þessuim býlum. í styrk til nýbýlanna eru áætlað- ar 180 þús. kr. á fjárlögum og eru allar líkur til þess, að þessi upphæð muni notuð til fulls. Úr nýbýlasjóði munu hafa verið veitt lán, sem nema samanlagt ca. 100 þús. kr. Tala býlanna skiftist þannig eftir sýslum: Gullbringusýsla 1, Kjósar- sysla 6, Árnessýsla 7, Rangrávalla- sýsla 4> Vestur-Skaftafellssýsla 2, U,stur/Skaftafellssýsla 2, Suður- Múlasýsla 1, Norður-Múlasýsla 2, Norður-Þingeyjarsýsia ^ Suður mgeyjarsýsia Eyjafjarðarsýsla 3 Skagl(j„8„,ýsla ^ AJur_ Hunavatnssysla Vatur-Hfaa- vatnssysla 2, Strandasýsia 1 Norð- ur-ísafjarðarsýsla 5> Ves;urísa_ fjarðarsysla 2, Barðarstrandarsýsla 2, Dalasýsla 3, Snæfellsnessýsla 2 Mýrasýsla 2, Borgarfjarðarsýsia 4’ Af þeim býlum, sem hér hafa ver- ið talin, eru fimtán, sem byrjað hef- ir verið að reisa fyr en í sumar, en fengið hafa styrk og lán samkvæmt lögunum um nýbýli og samvinnu- bygðir. Alls eru það því 70 býli, sem notið hafa styrks á þessu fyrsta ári. Um framkvæmd laganna sér ný- býlastjóri og nýbýlanefnd. Nýbýla- stjóri er Steingrímur Steinþórsson jhúnaðarmálastjóri, en í nýbýlanefnd ejga sæti: Bjarni Ásgeirsson alþm., gjarni Bjarnason alþm. og Björn K^fáðsson bústjóri. Nefndin hefir opnað sérstaka skrifstofu í Búnað- arfélagshúsinu um seinustu mánaða- mót. Nýbýlasjóður tók til starfa uim seinustu helgi og eru útborganir því byrjaðar. Um miðja seinustu viku kom út reglugerð um nýbýli og eru þar skýrð og útfærð nánara ýms ákvæði laganna um nýbýli og sam- vinnubygðir.—N. dagbl. 18. des. * * * Maður druknar í Lagarfljóti Það slys vildi til í fyrrakvöld, að Baldur Sigurbjörnsson frá Ekkju- felli druknaði í Lagarfljóti. Varð það með þeim atvikum, að Baldur og tveir menn aðrir, Sigfús Kristjánsson frá Meðalnesi og Jón Jónsson frá Skeggjastöðum, ætluðu yfir fljótið að Egilsstöðum. Gengu þeir út á nýlagðan ál, sem liggur upp með landinu, en annars var góður ís á þessum slóðum. Sigfús féll fyrstur í vökina, en þá var svo mikil ferð á hinum, að þeir gátu ekki stöðvað sig, og hent- ust fram af skörinni. Jóni og Sig- fúsi skaut þegar upp og komust þeir nauðulega upp úr. Baldur sáu þeir aldrei. Hans var leitað í fyrra- kvöld árangurslaust, en í gær fanst lik hans. Baldur var 22 ára gamall. —Morgunbl. 13. des. * * # • j > ; .y • / ■ • ■ 6',5jj króna gjajir til Slysvarnafélags Islands Slysavarnafélagi Islands hafa bor- ist tvær stórgjafir, að upphæð 6,500 krónur samtals. Önnur er frá ó- nefndum manni, afhent Sveini Björnssyni sendiherra í Khöfn, en hin er arfur frá Gamalíel Jónssyni, Stokkseyri, sem lézt síðastliðið sum- ar. Formaður Slysavarnafélagsins hefir beðið Morgunblaðið fyrir eft- irfarandi þakkarávarp. • Sendiherra Islands í Kaupmanna- höfn, hr. Sveinn Björnsson, hefir með bréfi dags. 24. f. m. ritað Slysa- varnafélagi íslands, að ónafngreind- ur gefandi hafi afhent honum kr. 3,000.00 — þrjú þúsund krónur — sem gjöf og beðið hann að ráðstafa þeirri upphæð til að bæta úr neyð eða þörf í sambandi við slys af sjáv- arháska við ísland. Sendiherrann hefir að yfirveguðu máli talið rétt gagnvart tilgangi gef- andans að ráðstafa fénu til' Slysa- varnafélagsins og tilkynt félaginu þetta. Fyrir þessa stórhöfðinglegu og eftirbreytnisverðu gjöf hins óþekta gefanda þakka eg hjartanlega. Og sendiherranum færi eg mínar beztu þakkir fyrir hans happasælú milli- göngu og bið hann að færa hinum óþekta gefanda beztu þakkir félags vors. Önnur stórgjöf. Sýslumaður Árnesinga hr. Magn- ús Torfason hefir með bréfi dags. 7. þ. m. tilkynt Slysavarnafélaginu, að Gamalíel Jónsson frá Stokkseyri, er dó á s.l. sumri hafi arfleitt Slysa- varnafélagið að helmingi eigna sinna og að eignir hans séu í vörslum sýslumannsins og nemi alls rúmum 7»ooo kr. Bögur hugsun og sannarlega eftir- breytnisverð er þetta að láta þannig gott af sér leiða, til þess meðal ann- ars að eiga þátt í að varna sjóslys- um eftir því sem mögulegt er. \ inum og ættingjum hins látna heiðursmanns, sem kunna að hafa átt þátt í að slik arfleiðsluskrá sem þessi var gerð, þökkum við hjart- anlega. F. h. Slysavamafélags Islands. Þorsteinn Þorsteinsson. —Mbl. 13. des. PAUL BARDAL bæjarfulltrúi I byrjun yfirstandandi árs, var Paul Bardal, bæjarfulltrúi, endur- kosinn forseti nefndar þeirrar, er um atvinnuleysismálin fjallar. Er þetta margbrotið ábyrgðarstarf ; svo hefir Mr. Bardal leyst það vel af hendi, að hann hefir hlotið að laun- um aðdáun allra þeirra, er til þekkja, án tillits til allrár flokkaskiftingar. HRYLLILEGT . HERMDARVERK Frá því var nýlega skýrt hér í blaðinu, að ungu'm syni Dr. Matt- sons í Tacoma, Wash., hefði verið rænt og $28,000 lausnarf jár krafist. Nú hefir það komið upp úr kafinu, að piltur þessi, sem var 10 ára gam- all, hefir verið myrtur. Fann ung- ur veiðimaður líkið, nakið og illa til reika, um 50 mílur suður af bænum Everett. Boðnir hafa verið $i0,000 til höfuðs morðingja hins unga sveins. LÆKKUNINNFLUTNINGS- TOLLA A VEFNAÐARVÖRU Símfregnir frá Ottavva telja lík- legt, að innflutningstollar á ýmsum tegundum vefnaðarvöru verði lækk- aðir til muna á næsta sambands- þingi, einkum að því er brezka vöru slíkrar tegundar áhrærir. Mun það og valda nokkru um, hvern feikna á- góoa ýms canadisk vefnaðarvöru- framleiðslufyrirtæki fengu í fyrra, semkvæmt því sem Turgeon-nefndin leiddi í ljós. EIGNAST FJÓRBURA Á þriðjudaginn þann 5. þ. m., eignaðist kona nokkur í Lithuaniu (Lithaugalandi), Trinilene að nafni, fjórbura, tvo pilta og tvær stúlkur; öllurn heilsast vel. Nokkrum árum áður hafði þessi sama kona eignast þríbura. FYLKISÞING KEMUR SAMAN Forsætisráðherra Ontario-fylkis, Hon. Mitchell F. Hepburn, hefir lýst yfir því, að fylkisþingið þar verði sett þann 19. þ. m. Búist er við að þingið taki til meðferðar enn á ný, ef til vill eitthvað í breyttu formi, orkusamningana milli Ontario og Quebec-fylkja. Nokkrar likur þykja til þess, að nýjar kosningar fari fram í Ontario innan tiltölulega skamms tíma, þó enn sé langt eftir af hinu reglu-bundna kjörtímabili. VILL STUÐLA AÐ INNFLUTNINGI Rt. Hon. R. B. Bennett, fyrrum forsætisráðherra, flutti nýverið út- varpsræðu i Lundúnum, þar sem mikil áherzla var lögð á það, að auka innflutning fólks til Canada frá brezku eyjunum; taldi Mr. Ben- nett fólksfæðina standa Canada mjög fyrir þrifum; ekki kvað hann sér standa á sama hvaða fólki yrði hrúgað inn í landið; aðeins þeim skyldi landsvist leyfð, er treysta mætti að yrði fjárhagslega sjálf- stæðir. Amma kvað Eftir Örn Arnarson. Ekki gráta unginn minn. Amma kveður við drenginn sinn, gullinhærða glókoll þinn geymdu í faðmi mínum. Elsku litli ljúfurinn, líkur afa sínum. Afi þinn á Barði bjó, bændaprýði, ríkur nóg. Við mér ungri hugur hló. —Eg hnasaði fyr en varði. Ætli eg muni ekki þó árið mitt á'Barði. Man eg enn hve hlýtt hann hló hversu augað geislum sló og hve brosið bað og dró— blendin svör og fyndin. Eg lést ei vita en vissi þó að vofði yfir mér syndin. Dýrt varð mér það eina ár. —Afi þinn er löngu nár.— Öll min bros og öll mín tár eru þaðan runnin, —gleðin ljúf og sorgin sár af sama toga spunnin. Elsku litli ljúfur minn leiki við þig heimurinn, ástin gefi þér ylinn sinn þótt einhver fyrir það líði. Vertu eins og afi þinn allrá bænda prýði. —Lesbók Morgunbl. 1 1 i' i . ’ < ' i:/11 j 1 j SÖLMYRKVI Þann 8. júní næstkomandi fer fram sólmyrkvi, sem stendur yfir í sjö mínútur og fjórar sekúndur. Sézt hann einungis af hafi að und- anskilinni smáræmu Peruvíustrand- ar. JOLIANA HOLLANDS PRINSESSA OG PRINS BERNARD ZU LIPPE- BIESTERFELD GANGA I HJÓNABAND Þann 7. þ. m., voru gefin saman í hjónaband í borginni Hague á Hollandi, þau Júlíana krónprinsessa Ilollands og prins Biernard Z u Lippe-Biesterfeld. Hjónavígslan var með tvenns konar hætti; fyrst borg- araleg athöfn, er borgarstjórinn, Dr. S. G. R. De Monchy framkvæmdi, en síðar kirkjuleg athöfn. Brúð- guminn er af þýzkum ættum, en varð með kvonfangi sínu hollenzkur þegn. Mikill f jöldi stórmenna víðs- vegar að, var viðstaddur vígsluat- höfnina. Hertoginn af Kent, bróð- ir Georgs Bretakonungs, var þar mættur sem umboðsm^ður brezl^u krúnunnar. Sigbjörn S. Hofteig látinn Á þriðjudaginn þann 5. þ. m., lézt að heimili dóttur sinnar Mrs. A. O. Kompelien, norðaustur af Minneota, Minn., bændaöldungurinn Sigbjörn S. Hofteig, 95 -ára að aldri, fæddur á Breiðumýri í Vopnafirði þann 31. dag desembermánaðar, ár- ið 1841. Voru foreldri hans þau Sig- urður Rustikusson og Solveig Sig- urðardóttir. Þann 8. október 1868 kvongaðist Sigbjörn og gekk að eiga Steinunni Magnúsdóttur frá Skeggjastöðum á Jökuldal; þar bjuggu þau hjón fyrstu sex árin af búskap sínum, en fluttust næst að Mýrnesi i Eyða- þinghá, en hingað til lands komu þau 1878 og festu bygð í grend við þorpið Minneota í Minnesotaríkinu. Konu sína misti Sigbjöm 1. októ- ber 1933; hafði þeim búnast vel alla æfi og verið samhent í öllu, er til Dr. Kristján Dr. Kristján J. Austmann, sem undanfarin ár hefir stundað læknis- störf að Wynyard, Sask., hefir nú handsalað Dr. B. J. Bíldfell umdæmi sitt þar vestra, sem héraðslæknis, og er nú á förum til Chicago, Lundúna og Vínarborgar til þess að stunda sérfræðinám í augna, eyrna, nef og kverka sjúkdómum. Mun hann að námi loknu setjast að í Winnipeg- borg, sem sérfræðingur í þeirri læknisgrein. Dr. Austmann útskrifaðist frá Háskóla Manitobafylkis árið 1914, með ágætis einkunn, sem Bache- laureus Artium, en hafði numið náttúruvísindi sem sérfag. Hafði hann hlotið verðlaun fyrir dýra- og jurtafræði. Var hann skipaður til kenslu og rannsóknarstarfa það sama haust við efnafræðisdeild há- skólans. Næsta ár var hann færður í líffræðisdeild háskólans (Dept. of Physiology) til samslags starfa og var þar til vorsins 1916, að hann gekk í herinn. Haustið 1917 var hann og aftur kvaddur til kenslu við sömu deild háskólans, en byrjaði um leið læknisnám sitt. Lauk hann því framsóknar og þroska miðaði. Þeim hjónum varð tíu barna auðið og eru sex þeirra á lífi. Sigbjörn S. Hofteig var heil- steyptur maður og drenglundaður; trúr drotni sínum, samferðasveit- inni, sjálfum sér og lífinu sjálfu. Hann var jarðsunginn frá hinni ís- lenzku lútersku kirkju Vesturheims- safnaðar á laugardaginn þann 9. þ. m., af séra Guttormi Guttormesyni, presti íslenzku safnaðanna við Minneota, Minn. ELZTI MAÐUR I HEIMl Þess er getið í símfregnum frá Rússlandi þann 12. þ. m., að þar í landi sé uppi maður, Yekup Shoua að nafni, er sé eitt hundrað fimtíu og sjö ára að aldri. Fylgir það sög- unni að öldungur þessi sé enn næsta tindilfættur, og gangi sér til heilsu- bótar og hressingar nálægt tveim mílum á dag. ÍBÚATALA FRAKKLANDS Samkvæmt nýjustu símfregnum frá París, nam íbúatala Frakklands þann 1. þ. m., 41,885,968. Fólks- fjölgunin siðan 1931 nemur 51,045. J. Austman námi 1921, með ágætis einkunn. Var hann aftur sama haust nefndur til kenslu og rannsóknastarfa við líf- fræðisdeild læknaskólans. U'm vor- ið 1922 tók hann meistara-stig í Artium með fyrstu ágætis einkunn, og hlaut verðlaun, Physiologia Re- search Prize, fyrir frumlegar rann- sóknir. Fór hann þá um vorið að gegna læknisstörfum að Wynyard, Sask. En um haustið var hann aft- ur kvaddur til kenslu og rannsókna- starfa við líf f ræðileild læknaskólans. Var hann þá skipaður Lecturer, og næsta ár Assistant Professor í þeirri grein. Var hann þar þangað til 1926, að hann sagði af sér og fór enn á ný að stunda læknisstörf að Wynyard. 1934 var hann skipaður héraðslæknir þar, er breyting kom á heilbrigðis fyrirkomulagið þar. Dr. Austmann er hinn mesti gáfu- og lærdómsmaður, og íslenzku mannfélagi til sæmdar, hvar sem spor hans liggja. Er það Wlinnipeg- íslendingum mikið fagnaðarefni að eiga von á honum hingað til lang- dvalar, að loknu framhaldsnámi hans. IIJ ÓNASKILNAÐIR AUÐFENGNIR Þingið á eynni Mön hefir með þingsályktunartillögu gengið svo frá málum, að upp frá þessu geta dóm- stólar þar kveðið upp fullnaðarúr- skurð í hjónaskilnaðarkröfum. Áður þurfti til þess sérstaka löggjöf af hálfu þingsins í hverju einasta og einu tilfelli. FYRSTI BELGISKUR SENDIHERRA I CANADA Þann 1. þ. m. yfirstandandi mán- aðar kom til Ottawa og tók þar við sendiherraembætti, barón De Silver- •cruys. Er hann fyrsti sendiherra í Canada, sem hingað hefir verið sendur af hálfu hinnar belgísku stjórnar. TRÝBOÐ í ABESSINIU Simað er frá Vatican City þann 5. þ. m., að stór hópur trúboða frá ítalíu sé í þann veginn að leggja af stað til Abessiníu til þess að boða hinum innfædda lýð þar í landi ka- þólska trú.

x

Lögberg

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.