Lögberg - 22.04.1937, Blaðsíða 1
PHONE 86 311
Seven Lines
ioifö
• C°r'
>o
<v> '
V.v
>0'
vo-
For
Better
Dry Cleaning
and Laundry
50. ÁRGANGUR
WIXNIPEG, MAN., FIMTUDAGINN 22, APRÍL, 1937
NUMER 16
Lögberg óskar öJlum Islendingum góðs
Frá Islandi
Pét,ur Ottesen heldur fund í
Reykholti út af fjársýkinni
Fréttaritari útvarpsins í uppsveit-
utn BorgarfjarÖar simar í dag:
í gær hélt Pétur Ottesen, alþing-
' ismaður, fund í Reykholti til Jess
að ræða um Deildartunguveikina.
Fundinn sóttu 50 bændur úr Reyk-
holtsdal, Hálsasveit og Hvítársíðu.
Lögðu þeir fram skýrslur yfir fjár-
dauðann í þessum þrem hreppum—
Fjártala í Hálsasveit veturinn 1936
var 2,669 kindur. Þar af eru nú
dauðar 852 kindur, eða einn þriðji
hluti. í Hvítársíðu voru sömu
hlutföll. í þessum tveim hreppum
breiddist veikin íyrst út fyrir al-
vöru síðastliðið sumar og er ný-
komin á suma bæina.
Fjártala í Reykholtsdal veturinn
1936 var 5,122 kindur 6g eru þar af
dauðar 2,577 kindur. I Bæjarsveit
eru lík hlutföll. Veikin grípur stöð-
ugt um sig og er alt sauðfé vonar-
peningur. Þar seiu hún hefir fest
rætur, verður ekkert að gert.
Þeir einu bæir, sem ennþá eru ó-
sýktir í þessum sveitum eru Háafell
í Hvítársíðu, Augastaðir í Hálsa-
sveit og Hrísar í Flókadal.
Að Úlfsstöðum í Hálsasveit voru
144 kindur siðastliðinn vetur. Nú
eru þar aðeins eftir 25 kindur. Á
þessu sýkta svæði hefir fé verið
gefið inni síðan stuttu eftir vetur-
nætur,. og þarf þannig tvöfalt meira
fóður en venjulega.
Víðast er nú haglitið um Borgar-
fjörð og með öllu haglaust í flestum
dalabygðum.
Inflúenzan er komin að Reyk-
holti og víðar.—Vísir 13. marz.
# # #
tslendingum hoðin þátttaka t
alþjóða-uppeldismála-
ráðsfefnu t Japan
Veit ekki annað en að það sé
fremur sjaldgæft að Asíumenn
Or borg og bygð
“TVÆR FLUGUR 1 EINU
HÖGGl” 4
Þann 29. þ. m. verður flutt fróð-
legt erindi og f jörugt i Goodtempl-
arahúsinu. Gunnlaugur kaupmað-
ur Jóhannsson flytur þar 50 ára
endurminningar. Verður það lýsing
á mönnum og málefnum, háttum og
högum, landi og lýð, bæði hér í álfu
og á Islandi, eins og alt hefir litið
út fyrir hans athugulu sjón. Þeir
sem þekkja Gunnlaug, efast ekki
uni að hann flytji óhikað bæði lof
og last, lýsi hlífðarlaust og án alls
tillits til þess hver í hlut á. Hann
sér ýmislegt með öðrum augum en
flestir aðrir og getur látið aðra sjá
hlutina með sér í öðru ljósi en þeir
gerðu áður.
Þessi samkoma verður ókeypis,
en samskot tekin til arðs fyrir
sjúkrasjóð stúknanna. Úr þeim
sjóði hafa margir sjúkir og sælu-
vana notið liðs og líknar. Hér er
því hægt að slá tvær flugur í einu
höggi; njóta ágætis skemtunar við
hláturskapandi fyndni og styrkja á-
gætt málefni, sem alla snertir. Gleð-
in og Gunnlaugur eiga alt af sam-
leið; hvar sem hann er staddur og
lætur til sín heyra, þar er gleðin i
hásæti.
Munið eftir kvöldinu 29. þ. m.
Fyllið fundarsalinn og hressið ykk-
ur á heilnæmum hlátri; hann hefir
samskonar áhrif á sálina og sól-
skinið á likamslíðanina.
Sig. Júl. Jóhannesson.
SKARAR FRAM CR í SINNI
GREIN
I hinni árlegu hljómlistar sanv
kepni Manitobafylkis, sem yfir
stendur um þessar mundir hér í
borginni, hlaut Richard Leonard
Beck, 10 ára gamall sonur þeirra
Mr. og Mrs. J. Th. Beck, 975
Ingersoll Street, langhæztu ein-
kunn í elementary pianospili, 89 stig
af hundraði. í þessum flokki voru
56 keppendur. Fór prófdómarinn,
Mr. Benjamin, einkar lofsamlegum
orðum um frábæra ’hæfileika þessa
unga sveins. Sveinn þessi hefir
notið kenslu hjá hr. Ragnari H.
Ragnar píanókennara.
muni eftir íslandi, þegar þeir gang-
ast fyrir alþjóðafundum, og tel því
rétt að geta um, að mér hefir ný-
verið borist boðsbréf til að sækja
alþjóða - uppeldismálaráðstefnu í
Tokio í Japan 2.—7. ágúst komandi
sumars, og tilmæli um að segja lönd-
um mínum frá, ,að þeir séu fleiri
velkomnir þangað austur.
Stefna þessi heitir fulu nafni á
ensku: “VII. World Conference of
the World Federation of Education
Associations.” Formaður þessa al-
þjóðasambands er Dr. Paul Monroe,
Ameríkumaður, en boðsnefndin er
skipuð Japönum einum.
Aðalfundarefnið heitir einu
nafni: “Stefánuskrá 20. aldarinnar i
uppeldis- og menningarmálum,” en
því verður aftur skift í 17 flokka,
þar sem ýmsar greinar þessara mála
verða teknar til meðferðar, — t. d.
barnafræðsla, kennaramentun, sveita
menning, heilbrigðismál, háskólar,
útvarp o. s. frv. Alt á það að stefna
MR. J. RAGNAR JOHNSON
lögfræðingur
Þær fregnir hafa nýverið borist
hingað til borgarinnar, að Mr. J.
Ragnar Johnson, lögfræðingur^ son-
ur þeirra Mr. og Mrs. Finnur John-
son, hafi tekist á hendur fram-
kvæmdarstjórastarf hjá voldugu fé-
sýslufélagi Crown(Trust Company,
sem setti á fót útibú í Toronto þann
15. þ. m. Félag þetta hefir aðal-
bækistöð í Montreal og var stofnað
1909 með 35 miljón dala höfuðstól.
til eflingar bræðralags og samvinnu í
æskuleiðtoga allra þjóða. Ræðu-
menn verða úr mörgum löndum.
Erlendtim fundarmönnum er
heitið niðursettum fargjöldum yfir
heimshöfin, “einkum þeim, sem
skreppa um leið umhverfis hnött-
inn,” — og mikílli gestrisni í Japan.
—S. A. Gíslason, — Vísir 13. niarz
!937-
# # #
Kveldúlfur byggir
síldarverksmiðju á Iljalteyri
Fyrir nokkru fóru allmargir iðn-
lærðir byggingamenn héðan úr
Reykjavík norður og í gærkveldi fór
annar hópur til viðbótar. Fyrir
norðan hafa um 40—60 manns unn-
ið að undirbúningi að bryggjum,
síðastliðnar 3 vikur.
Hjalteyri liggur fremur innarlega
við Eyjafjörð að vestan verðu.
Fyrir allmörgum árum var þar mik-
ilí útgerðarrekstur og þó einkum
eftir 1913 er Kveldúlfur tók að hafa
þar síldarsöltun. €á rekstur stóð
um 10 ára skeið en á þeim árum
ntunu hafa verið verkaðar um og
yfir 20,000 tunnur af síld á ári.
Síðustu árin hefir verið þar nokk-
ur fiskverkun, sem Kveldúlfur hef-
ir haldið uppi, en félagið eignaðist
Hjalteyri fyrir um 10 árum síðan.
Hjalteyri liggur mjög vel fyrir
síldveiðarnar. Hún liggur hérumbil
jafnlangt frá Horni og Langanesi
—hún er svo að segja í hjarta Gld-
armiðanna fyrir Norðurlandi.
Yerksmiðjan, sem félagið er að
iáta reisa á að geta unnið úr 2400
málum á sólarhring.
Aðal vélahúsið á að vera úr stein-
steypu og að stærð 64x16 metrar.
Norður af þeirri byggingu kemur
yfirbygð steinþró, sem tekur um
30,000 mál. Ofan á síldarþrónum
er tnjölgeysmluhúsið, 60x25 metrar,
er tekur um 4000 tonn af mjöli.
Verksmiðjuhúsin verða á milli 25
og 26 liundruð fermetrar að gólf-
fleti. (Til samanburðar um stærð
verksmiðjunnar má geta þess, að
skv. lóðamælingum Reykjavíkur er
aðalbygging Kveldúlfs við Skúla-
götu aðeins um 1200 fermetrar).
Auk verksmiðjuhúsanna verða
bygðir tveir geymar fyrir lýsi er
taka milli 3500 og 4000 smál. Einn-
ig verður bygð ein stór bryggja við
verksmiðjurnar og verður aflanum
skij»ð upp með sérstökum löndun-
artækjum. Gert er ráð fyrir að
hægt verði að skipa uj>p með þeim
tækjum, sem þegar eru fengin, um
10 þús málum á sólarhring, en að
líkindum verður það magn aukið
upp í 20 þús. mál.
Auk þess eru næg mannvirki á
Hjalteyri til þess að hægt verði að
salta síld af 4 togurum í einu. Mun
vera fyrirhugað að svo mikil söltun
verði á staðnum, sem framast verð-
ur leyfð.
I’y&g'ngar fyrir þá sem að þess-
um rekstri starfa eru til ,frá fyrri
tíma. Á Hjalteyri eru um 10 íbúð-
arhús, sem félagið á og lætur til af-
nota fyrir starfsfólkið.
Eins og áður er sagt hafa undan-
farið starfað nokkurir tugir manna
að undirbúningi verksmiðjubygg-
ingarinnar. Svo heppilega vill til að
allur uppgröftur úr grunni verk-
smiðjunnar er ágætis byggingarefni
—bæði möl og sandur svo af slíku
þarf ekkert að flytja að.
Alla umsjón með verkinu hefir
Helgi Eyjólfsson byggingameistari.
Það ætti að vera öllum lands-
mönnum gleðiefni á þeim tímum,
sem gjaldeyrisvandræði og atvinnu-
skortur sverfa fast að, er ný og stór-
Frú Guðrún Briem látin
Á sunnudaginn var lézt að heimili
sínu, Grund í Riverton-bæ, merkis-
konan Guðrún Pálsdóttir Briem,
kona bændaöldungsins Jóhanns
Briem þar á staðnum, bróður Valdi-
mars heitins vígslubiskups og sálma-
skálds. Frú Guðrún var dóttir
Páls Péturssonar frá Reykjahóli í
Skagafirði, fædd þann 17. dag aprí 1
mánaðar árið 1863. Var Guðrún
mannkosta kona hin mesta; regluleg
landnámshetja, er við hlið síns á-
gæta eiginmanns ruddi sér glæsi-
lega braut og átti sinn gifturika þátt
í því að gera garðinn frægan í hinni
farsælu frumbygð á bökkum íslend-
ingafljóts. Frú Guðrún var gáfuð
forustukona, og heimilið auðug/ af
alúð og mannkærleika; enda venju-
legast þar gestkvæmt 'ntjög. Auk
hins háaldraða eiginmanns sins læt-
ur frú Guðrún eftir sig eftirgreind
börn:
1. Veighildur Mabel Wood’ i
Saskatoon.
2. Valdheiður Lára Ford í Tor-
onto.
3. Marino Páll, ókvæntur; bú-
stjóri á Grund
4. Valgerður Helen Coghill í
Riverton.
5. Sigtryggur Hafsteinn, kvænt-
ur Ingibjörgu dóttur Guðjóns Ingi-
mundssonar; búsett í Riverton.
6. Eggert Ólafur, kvæntur konu
af enskum ættum, búsettur í To-
ronto.
Öll eru börnin mannvænleg og
njóta almennra vinsælda.—
Með frú Guðrúnu Briem er til
moldar gengin ein af afbragðskon-
um Vestur-íslendinga; kona, sem
allir virtu og allir sakna, er einhver
kynni höfðu af benni.
Útför hennar fór fram á fimtu-
daginn þann 22. þ. m. frá heimilinu
og kirkju Bræðrasafnaðar.
Lögberg vottar hinum syrgjandi
öldungi og fjölskyldu hans innilega
samúð í hinum þunga harmi.
feld framleiðslutæki rísa upp eins og
nú verður norður á Hjalteyri.
Þessi staður, sem nú á i vændum
að verða á ný blómlegt atvinnu-
hverfi, liggur á ágætum stað og
miklar og góðar sveitir eru í nánd,
sem mega vænta njargra hlunninda
i sambandi við þennan nýja at-
vinnurekstur. Hin miklu mið fyrir
Norðurlandi verða nú enn betur
nofuð en áður var þegar svo stór
verksmiðja, sem fyrirhuguð er á
Hjalteyri, ris þar upp og er afkoma
þjóðarinnar í heild betur trygð en
áður, er slíkar framkvæmdir eru
hafnar, sem miða að því að auka
framleiðsluna á verðmætustu út-
flutningsvörum landsmanna.
Sjómennirnir, sem í ^ramtiðinni
fá atvinnu við hina nýju verksiniðju
munu ekki minst fagna því að hún
er bygð og þeir munu einnig fagna
því að H. f. Kveldúlfi var veitt
leyfið til byggingarinnar svo vinsæll
atvinnurekandi sem félagið er með-
al starfsmanna sinna,—Visir 5 marz.
og gleðilegs sumars!
Albert C. Johnson, konsúll,
Dannebr. Rdr.
Undanfarin þrettán ár hefir Al-
bert C. Johnson verið ræðismaður
Dana og íslendinga hér í Winnipeg.
1 viðurkenningarskyni fyrir ágæta
ea’bættisfærslu hefir nú konung-
ur Dana og íslendinga, Christian
X, sæmt hann krossi og kjörið hann
Riddara af Reglu Dannebrog. í til-
efni af þeim atburði komu ættingj-
ar konsúlsins og nánustu vinir sam-
an i veizlusal Moore's hér í borginni
siðastliðið miðvikudagskvöld. Var
|>ar veizlukostur góður og glaðværð
yfir borðum. Veizlustjóri var dr.
B. J. Brandson, en þeir séra Björn
1!. Jónsson og dr. Charles C. S.
Fremming, vice-konsúll Dana,
fluttu ræður.
Albert Christofer Johnson er
tæddur 2. nóv. 1866 á Akureyri við
Eyjafjörð. Hétu foreldrar hans
Jón Jónasson og Gúðný Guðmunds-
dóttir. Fimtán ára að aldri fór hann
úr foreldrahúsum, var nokkur ár í
Skagafirði og gegndi búðarstörfum
á Sauðárkróki, þar til hann, tvitug-
ur, fluttist til Vesturheims 1886.
Kom hann síðla sumars til Winni-
j>eg, og var í vinnu á járnbraut
fram undir hátiðir. Skömmu eftir
nýárið gerðist hann prentari við
vikublaðið “Lögberg,” sem þá hóf
göngu sína. Stundaði Albert prent-
iðn í allmörg ár bæði í Winnipeg
og Minneapolis. Þar eftir rak hann
kjötverzlun í Winnipeg í nokkur ár
og græddi allmikið fé á verzlaninni.
Fyrir fjórðungi aldar hóf hann
starf það, er síðan hefir hann haft,
og hefir enn, en það er fasteigna-
verzlun og húsaleiga. Hefir hann
látið reisa nokkur stórhysi í borg-
inni og keypt önnur, og hefir um-
yáð yfir híbýlum fjölda fólks. Á
hinum betri árum græddist Albert
fé á atvinnu þessari, og hefir hann
verið talinn með efnuðustu íslend-
ingum í Canada.
Árið 1893 kvæntist Albert John-
son. Heitir kona hans Elízabet Sig-
ríður og er dóttir þeirra merkis-
hjóna Sigurðar J. Jóhannessonar,
skálds, og Guðrúnar Guðmunds-
dóttur, sem alkunn voru hér í borg
á sinni tið. Börn þeirra Alberts og
Elíziabetar eru fimm á lífi: Albert
Valtýr, tannlæknir i Winnipeg;
Guðný, gift dr. Deeks í W!innipeg;
Guðrún, gift Mr. Grey, starfsmanni
hjá Ford-félaginu í Calgarv: Alma,
ógift í foreldrahúsum; Helen, gift
Mr. Peterson, málara í Winnipeg.
Son, Harald að nafni, mistu þau,
rúmlega tvítugan, fyrir nokkurum
árum. Heimili konsúls-hjónanna
er að 414 Maryland St.
í fslenzku mannfélagi hefir Al-
bert Johnson látið til sín taka aðal-
lega í tveimur félögum: “Helga
magra,” félagi Eyfirðinga í Winni-
neg, og Fyrsta lúterska söfnuði.
Um langt skeið hefir Albert verið
einn af máttarstólpum safnaðarins
og gegnt þar embættum með alúð
í mörg ár. Hann er jafnan heill og
óskiftur fylgismaður þeirra rnála og
manna, er hann leggur lag sitt við.
Það verður lengst í minnum haft
um Albert C. Johnson, hver líkn og
hjálparhella hann 'hefir alla daga
reynst bágstöddum. Hjálpfýsi hans
og gjafmildi er á margra vitorði, þó
sem minst hafi hann viljað láta á
því bera. ÓtePjandi eru þeir menn,
islenzkir og aðrir, sem í. erfiðum á-
stæðum hafa knúð á drengskap Al-
berts, og aldrei árangurslaust. Fyrir
því verður nafni hans lengi á lofti
haldið.
Fjöldamargir eru það óefað, sem
nú í huga sínum óska Albert C.
Johnson til hamingju með þann hinn
verðskuldaða 'heiður, sem honum
hefir i skaut fallið.
—B. B. J.
Þingrof á Islandi
0
Nýjar kosningar fara fram 20. júní
Reykjavík, 21. apríl.—Alþingi var rofið áþriðjn*
dagskvöldið vegna klofnings á milli stjórnar-
flokkanna. Almennar kosningar 20. júní.
UMMÆLI BLACKMORE
Foringi Social Credit fylkingar-
innar frá Alberta í sambandsþing-
inu, . Mr. J. H. Blackmore, var
staddur í börginni á heimleið að
loknu þingi, síðastliðinn fimtudag.
í samtali við blaðamenn lét hann
meðal annars þannig ummælt:
“Liberal stjórnin í Ottawa reynir
í einlægni að gera alt, sem í valdi
hennar stendur, til þess að ráða
fratn úr atvinnuley9Ínu. Þetta tekst
henni ekki, vegna þess að ráðstaf-
anir hennar eru gerðar samkvæmt
hinu gamla fyrirkomulagi, þó við
splunkurný viðfangsefni og breytt
viðhorf sé að glíma.”
WINNIPEG MONARCHS
VINNA GLÆSILEGAN
SIGUR
Siðastliðinn laugardag unnu
Winnipeg Monarch í úrslita kapp-
leik í Toronto, Canada titilinn í
Junior hockey. Tiðindum þessum
var, sem vænta mátti, tekið með
miklum fögnuði hér í borginni.—
A TVINNULE YSISSTYRKUR
Roosevelt forseti hefir krafist
þess að þjóðþingið veiti $1,500,000,-
000 til atvinnuleysisstyrks fyrir
næsta f járbagsár.
\
/