Lögberg - 24.03.1938, Page 1
51. ÁRGrANGUR
WINNIPBG, MAN., FIMTUDAGINN 24. MARZ 1938
NÚMER 12
Frá íslandi
Veikindi
Úr borg og bygð
,Jóns Baldvinssonar
Jón Baldvinsson forseti Samein-
a'ðs Alþingis hefir ekki getaÖ gengt
J>ingstörfum ennþá, sakir veikinda.
hann hefir legiÖ rúmfastur siðan
þing kom saman og liggur ennþá.
Forseta efri deildar barst í fyrra-
dag bréf frá Jóni Baldvinssyni, þar
sem hann óskaði eftir að fyrsti vara-
maður Alþýðuflokksins tæki nú sæti
á Alþingi, því að J. Bald. bjóst ekki
við að heilsa hans leyfði honum
þingsetu fyrsta hálfan mánuðinn.
Fyrsti varamaður Alþýðuflokks-
ins er Erlendur Þorsteinsson, skrif-
stofustjóri Síldarútvegsnefndar á
Siglufirði. 'Ilann v|ar frambjóð-
andi flokksins i Eyjafirði við síð-
ustu kosningar.
Erlendur er staddur hér í bænum,
og var skotið á fundi í Sþ. í gær,
til þess að samþykkja kjörbréf hans.
Gekk það hljóðalaust. En þegar
hinn nýi þingmaður skyldi vinna
drengskaparheit að stjórnarskránni,
var honum fenginn rauður penni i
hönd, er hann skyldi skrifa með,
en svo einkennilega vildi til, að penn-
inn gaf ekkert blek frá sér og var
þó nýbúið að fylla hann. Var þing-
manninum þá fenginn penni með
öðrum lit og stóð þá ekki á blekinu.
Erlendur tekur sæti í Ed.
—Morbungl. 22. febr.
B jörgunarskútan
“ Sæbjörg”
Björgunarskútan “Sæbjörg” er
væntanleg hingað í dag og fer fratn
opinber móttaka í sambandi við
komu skipsins.
Skipið kemur á ytri höfnina kl.
1 e. h. Stjórn Slysavarnafélags ls-
lands og stjórn kvennadeildarinnar
í Reykjavík, hafnarstjóri og skipa-
skoðunarstjóri fara út í skipið á
hafnarbátnum; taka á móti skipinu
á ytri höfninni.
Kl. 2 legst “Sæbjörg” að Grcrfar-
# # #
bryggjunni. Fara þá út i skipið
ráðherrar, borgarstjóri, ræðismenn
erlendra rikja og vígslubiskup. For-
seti Slysavarnafélags íslands flytur
ræðu og þvínæst atvinnumálaráð-
herra. Fara síðan allir gestirnir i
land, nema vígslubiskup. Fer nú
fram vigsla skipsins með þeim hætti,
að biskup blessar starfsmennina,
skipið og skipshöfn, sem stendur á
þilfari meðan biskup talar.
—Morgunbl. 20. febr.
* # #
Maður druknar
í höfninni
Verkamaður á sextugsaldri, Gest-
ur Guðmundsson, Fálkagötu 8,
fanst druknaður í höfninni í gær-
morgun. —— Druknaði hann í fyrri-
nótt, en með hvaða hætti, er ekki
kunnugt.
Gests í gærmorgun um átta leytið,
vestanvert við hinn nýja Ægisgarð,
sem nú er í byggingu. Tilkynti
hann lögreglunni þegar málið, og
var líkið flutt á Rannsóknarstofu
Háskólans.
Gestur Guðmundsson mun hafa
haft umsjón með vélbát, sem liggur
í króknum við Hauksbryggju og fór
hann iðulega út í bát þenna til að
dæla úr honum sjó og líta eftir
festum.—Morgunbl. 20. febr.
* # #
Piltur drwknar
í Urriðaá á Mýrum
Síðastliðið þriðjudagskvöld um
kl. 19 druknaði í Urriðaár á Mýr-
um Erlendur Sigurðsson, 17 ára að
aldri, frá Lambastöðum í Álftanes-
hreppi.
Erlendur var á heimleið úr Borg-
arnesi með systur sina, er slys þetta
vildi til. Vöxtur var í Urriðaá, en
hún er jafnan lítil og hættulaus.
Systir Erlends segir þannig frá
atburðinum:
—Erlendur reið á undan út í ána
og eg sá illa til hans vegna myrkurs
og vissi eg ekki fyr til en hann var
orðinn viðskila við hestinn og horf-
inn. .
Stúlkan fór heim að Smiðjuhóli.
Á miðvikudag og fimtudag var
leitað, en árangurslaust.
—Morgunbl. 19. febr.
* # #
Svifflug f rá Esjmirt 1
til Reykjavíkur
Ungur maður, Helgi Filippusson,
er nýkominn heim frá Þýzkalandi
eftir fimm ára svifflugsnám í Rie-
sengebirge. — Helgi tók þar f jögur
próf í svifflugi og á nú aðeins eftir
að taka “silfur-c” prófið, en það er
afreks-próf. Hann er því nú þeg-
ar fullnuma svifflugmaður.
Svifflugfélag hefir nú starfað
hér í Reykjavík á annað ár. Félagar
eru fjörutíu, alt ungir áhugasamir
menn, sem hafa sett sér það mark
að efla flugíþróttina hér á landi.
Svifflug er einhver heilbrigðasta
jþrótt, sem iðkuð er, og hér á landi
bindur hún í sér hvorttveggja, heil-
næmi og hið þakkláta hlutverk, að
ryðja brautina fyrir almennu flugi
á íslandi. Það hefir minna heyrst
um Svifflugfélag íslands en skyldi,
en félagið á nú orðið allgóða renni-
flugu og fær í sumar (að gjöf)
fullkomna svifflugu. Með þessari
svifflugu ætla hinir ungu flugmenn
meðal annars að hefja sig á loft i
hlíðum Esju, hækka síðan flugið þar
til komið er í 1000 metra hæð yfir
Esju, en svífa síðan til Reykjavikur
og lenda hér í Vatnsmýrinni. Sú
firra verður þá væntanlega kveðin
niður, að svifflugmenn komist ekki
nema 2 metra frá jörðu!
Með renniflugunni, sem félagar i
Svifflugfélagi Islands hafa smíðað
þekkingu í flugeðlisfræði), hefir
hinum ísl. svif flugmönnum tekist að
komast 150—250 m. í loft upp.
Einir 10 félagsmenn hafa tekið
fyrsta prófið, hið svonefnda A-próf
með þessari flugu.
Svifflugfélagið hefir haft æfing-
ar við Skálafell og Sauðafell í Mos-
fellssveit og á Rauðavatni og Sand-
skeiði. Þar hafa þeir verið við æf-
ingar í öllum veðrum og notið heil-
brigði útilífsins.
Helgi Filippusson mun nú flytja
nýtt lif og blóð með sér inn í fé-
lagið. Hann var tvo mánuði i
Grunau í Riesengebirge og fór þar
48 flug, hið lengsta i 48 mínútur og
hið hæsta í 600 m. hæð. Síðan fór
hann til Bamborgar, og var þar
nokkra mánuði í svifflugu . og
“model—flugu-verksmiðjum.
—Og hvað ætlið þér að gera nú ?
spurði tíðindamaður Morgunblaðs-
ins Helga.
—Eg ætla að vinna af krafti að
áhugamáli mínu, svifflugi, hér á
landi og auk þess að kenna smiði
“model”-fluga. Með því að smíða
“model”-flugur vaknar áhuginn fyr-
ir flugi alment, og góð undirstöðu-
þekking í flug-eðlisfræði lærist.
Innan skamms verður stofnað hér
“Model”-félag og er búist við að
stofnendur verði að minsta kosti 60.
—Morgunbl. 17. febr.
DR. P. H. T. THORLAKSON
kjörinn meðlimur mikilvœgrar
stofnunar.
Símað er frá Ottawa þann 22.
þ. m., að Dr. P. H. T. Thorlakson,
prófess#r í skurðlækningum við
Manitoba háskólann, hafi verið kjör-
inn meðlimur þeirrar stofnunar, er
National Research Council nefnist.
SOCIAL CREDIT VINNUR
AUKAKOSNING
Á mánudaginn fór fram í Ed-
monton East kjördæminu auka-
kosning til sambandsþings, og urðu
úrslitin þau, að frambjóðandi Social
Credit flokksins gekk sigrandi af
hólmi. Þingsæti þetta losnaði við
frá fall Dr. Halls, Social Credit, er
kosinn var á sambandsþing 1935.
Atkvæði féllu þannig;
Orvis Kennedy (S. Credit) . . 9,920
Marshall (Liberal) .... 7,935
Cleverley (Conservative) .. 2,480
LEYSTUR tJR FANGELSI
Síðastliðinn mánudag var Joseph
Unwin, Social Credit þingmaðurinn
í Alberta, sem dæmdur var til fanga-
vistar fyrir ósæmilegan munnsöfn-
uð í rithætti, látinn laus samkvæmt
úrskurði dómsmálaráðuneytisins í
Ottawa.
MISS SNJÓLAUG
SIGURDSON
Seinnipart síðastliðins mánudags
hélt Women’s Musical Club ársfund
sinn í söngsal Winnipeg Auditorium
við mikla aðsókn. Að loknum
venjulegum fundarstörfum, lék Miss
Snjólaug Sigurdson á píanó allmörg
lög eftir fræga tónljóða höfunda,
svo sem Schumann og Cesar Franck.
Var að leik hennar gerður svo góður
rómur, að hún var margklöppuð
fram. Miss Sigurdson er jafnt og
þétt að ná ákveðnari tökum á hljóð-
færinu; enda lék hún nú eins og sá
sem vald hefir, þar sem kyngimagn
og grátblíða fallast í faðma; hún
dáleiddi áheyrendur í túlkun sinni á
Novellette Schumanns, Opus 21,
No. 2 og tóntöfrum Cesar Francks.
Að síðustu lék hún á eftir lófaklappi
sem aldrei æltaði að linna, Mendel-
shons lagið yndislega “On The
Wings of Song” í hátíðabúningi
Franz Lizt, með svo næmri og list-
rænni túlkan, að slíkt gera aðeins
snillingar einir. Vonandi er að Miss
Sigurdson veitist kostur að afla sér
frekara náms, því í henni býr sjald-
gæfur, listrænn efniviður.
Mr. Páll Sigurðsson, sem starf-
rækir stóra timbur og sögunarverk-
smiðju við Seven Sisters Falls, var
staddur í borginni á þriðjudaginn;
hafði Mr. Sigurðsson 160 manns í
þjónustu sinni í vetur.
Mrs. Walter J. Lindal, lagði af
stað um miðja yfirstandandi viku
vestur til Saskatoon, Calgary og Ed-
monton, í erindum verkamálaráðu-
neytisins í Ottawa í sambandi við
“Vocational Youth Training.” Frá
Edmonton fer Mrs. Lindal vestur
til Victoria og Vancouver; mun hún
verða um þrjár vikur á ferðalaginu.
Mrs. Gralham Pridham frá Tor-
onto, dóttur þeirra Mr. og Mrs. Wil-
liam Johnson^ Ste. 11 Acadia Apts.,
hér í borginni, kom fyrir nokkru
hingað í kynnisför til foreldra sinna
og dvelur hjá þeim i mánaðartíma.
Mrs. Sigurjón Sigurðsson frá
Árborg, var stödd í borginni i byrj-
un vikunnár.
“ Þráðarspottar. ’ ’
Til allra þeirra, sem gert hafa
fyrirspurnir og sent mér pantanir
fyrir bók minni “Þráðarspottar,”
geri eg það kunnugt, að bókin er
ekki kömin vestur um haf^enn. —
Með þökk og vinsemd til allra, sem
hér eiga hlut að máli.
21. marz, 1938.
Rannveig Kristín Guðmundsdóttir
Sigbjörnsson.
Dr. Ingimundson verður staddur í
Riverton þriðjudaginn 28. þ. m.
Mr. J. B. Johnson frá Girnli kom
til borgarinnar á laugardaginn norð-
an úr verstöð, og var samstundis
skorinn upp við handarmeini á Al-
menna sjúkrahúsinu; er hann á
- 'góðum batavegi. Dr. Hillsman gerði
uppskurðinn.
Mrs. J. B. Johnson frá Gimli kom
til borgarinnar á sunnudagskveldið,
til fundar við mann sinn; sem ligg-
ur á Almenna sjúkrahúsinu hér í
borginni. Mrs. Johnson hélt heim-
leiðis á þriðjudaginn.
Miss Rúma Johnson frá Gimli
kom til borgarinnar snöggva ferð á
þriðjudaginn.
Næsti Frónsfundur verður haldinn í
Goodtemplarahúsinu 7. apríl, kl. 8
e. h. Fjórir ungir ræðumenn, söng-
um og hljóðfærasláttur. Nánar í
næsta blaði. Allir velkomnir.
Frú Rannveig K. G. Sigbjörnsson,
skáldkona frá Leslie, Sask., dvelur
i borginni um þessar mundir; kom
hún til þess að vitja sjúkrar dóttur
sinnar. Mr. Sigbjörnsson kom
einnig hingað snöggva ferð í fvrri
viku.
íslenzka deildin af Manitoba
Social Credit League heldur fund
að heimili Hjálmars Gíslasonar, 753
McGee St., fimtudagskveldið 24. þ.
m., kl. 8. Allir meðlimir og aðrir
þeir, er styðja þessa nýju hreyfingu
velkomnir.
Mr.G. Lambertsen, skrautmuna-
kaupmaður frá Glenboro var stadd-
ur í borginni nokkra daga í vikunni
sem leið.
Mr. Sigurður Einarsson tinsmið-
ur frá Flin Flon, hefir dvalið í
borginni nokkra undanfarna daga.
Fólk er beðið að minnast barna-
samkomu íslenzka Laugardagsskól
ans, sem haldin verður í Fyrstu lút-
ersku kirkju, laugardagskvöldið í
þessari viku og byrjar kl. 8 Barna-
kórinn undir stjórn R. H. Ragnars
skemtir með einum 15 lögum. Einn-
ig eru 4 einsöngvar, 2 tvísöngvar,
banjo solo og margt fleira. Þessi
samkoma er sérstök fyrir það að
aðeins börn skemta þar, og þarf
fólk ekki að efast um skeintilegt
kvöld.
Halldór Erlendsson framkvæmd-
arstjóri, Bjarni Borgfjörð bílavið-
gerðarmeistari frá Árborg og Krist-
ján Thorarinsson frá Riverton,
komu tll bæjarins á þriðjudaginn.
Mrs. Paul Thorlakson er nýlega
komin heim eftir tveggja mánaða
dvöl í Toronto og Detroit.
The Young People’s Society of
the First Lutheran Church will
hold a Roller Skating party on Mon-
day, March 28. All memibers and
friends are requested to meet in the
church parlors at 8.00 p.m. Grace
Johnston and Cecily Bardal are in
charge of arrangements.
Mr. Guðmundur Sigurðsson frá
Aslhern, Man., kom til borgarinnar á
þriðjudaginn.
EXHIBITION OF MANITOBA
PICTURES IN THE ART
GALLERY
•
The Annual Exhibition of the
Manitoba Society of Artists is now
showing, admission free, in the
Civic Auditorium Art Gallery. Some
100 paintings in oils and water
colors, pastels, etchings and sculp-
ture are in the collection which has
already attracted much favorable
comment. Always a popular show,
this year the M.S.A. exhibition is
no exception judging by the often
crowded gallery where it is on dis-
play. 'l'he visítor is attractied at
once by the sense of color and the
empasis which is accorded to design.
Indeed the exhibition is the best the
Society has held in recent years.
Many of the pictures show scenes in
and around the city though places
further afield are in evidence also.
A number of figure and portrait
studies intermingle with pictures of
woodlatid and lake. Most of the
members and associates of the
Society are represented along with
quite a group of non-members for
the M.S.A. welcomes meritorious
work. The exhibition is open, ad-
mission free, daily from 2 to 5.30,
evenings 7.30 to 9.30 (except Satur-
days) and on Sundays from 2.30 to
5 p.m. The great advance which art
appreciation has made and the
rapidly growing interest in art in
Winnipeg are clearly demonstrated
in the attendance at the Art Gallerv
and no citizen should fail to see the
work of Manitboa artists before the
show is withdrawn on Mardh 3ist.
Að því var vikið í siðasta blaði,
að Mrs. H. F. Daníelsson í Árborg
myndi tala í útvarpið á næstunni að
tilhlutan Greater Winnipeg Youth
Council; nú er það ákveðið, að hún
talar þann 31. þ. m., kl. 10.15
kveldi. Er þess að vænta að sem
allra flestir Islendingar hlusti á mál
hennar.
Hjónavígslur
Gefin saman í hjónaband þ. 19.
marz s.l. voru þau Mr. Leifur Er-
lendson og Miss Margaret Bjarna-
son, bæði til heimilis hér í borg. Séra
Jóhann Bjarnason gifti og fór
Ihjónavígslan fram að heimili hans,
543 Greewood Place. — Brúðgum-
inn er sonur Erlendar heitins Er-
lendssonar, er síðast átti heima í
Langruth og konu hans, Margrétar
,sál. Finnbogadóttur frá Reykjum í
Mosfellssveit, en brúðurin er dótt-
ir Péturs heitins Bjarnasonar, er
síðast bjó á Breiðabólsstað á Mikl-
ey, og eftirlifandi konu hans, Sig-
ríðar Helgadóttur, Sigurðssonar,
fyrriun bónda á Sandnesi þar á ey.
Gefin voru saman í hjónaband,
laugardaginn 19. marz þau Estell
Violet Stefánson frá Selkirk og
Herold Russell Garnett frá Winni-
peg. Brúðurin er dóttir þeirra hjóna
Steinunnar og Stefáns kafteins
Stefánssonar í Selkirk, fædd og upp-
alin þar í bæ. Búðguminn er sonur
Mr. og Mrs. G. J. Garnett, Miami,
Man.; er hann lyfjafræðingur að
mentun, og hefir góða stöðu við
lyfjabúð Liggett-félagsins í Winni-
peg.
Að lokinni hjónavígslu, sem var
f ramkvæmd af séra V. J. Eylands,
voru rausnarlegar veitingar fram
reiddar á heimili brúðarinnar, þar
sem athöfnin fór fram fyrir allstór-
um hóp vina og ættingja er viðstadd-
ir voru. — Heimili ungu hjónanna
verður að Royal York Apts., Ste.
47 Winnipeg. Hugheilar blessunar-
óskir f jölda vina og velunnara fylgja
hinurn ungu hjónum úr garði.
V. J. E.
Only for Love
By Helen Swinburne,
Midnapore.
To a flower in my garden
A humming-bird flew,
He sipped at the nectar
He drank of the dew,
And I painted him there
Prom my window above,
Not for gold or for silver
But only for love.
On a bushin my garden
Grewraspberries red,
I took up my needle
Witli fine silken thread
And brodered my fruits
In my window above,
Not for gold or for silver
But ónly for love.
Vökumaður hafnarinnar fann lík sjálfir (og :með því hlotið staðgóða
Sólarlag í Arizona
Himinn allan skreytir rauðum rósum
röðull skær um fagurt sólarlag;
fjöllin hjúpa^t þúsundlitum ljósum,
logarósum skreytt, þau signa dag.-
Ljós og myrkur lýsa alheims mátt,
líf og dauði býður frið og sátt.
Blessuð sólin bak við fjöllin hnígur,
bjartur geisli dvín í vestri ótt.
Fuglinn glaði skjótt til skógar flýgur,
skuggar breiðast yfir landið fljótt.
Blóm og skógur blundar sætt og rótt.
Bygðir faðmar himnesk, vorblíð nótt.
V. J. Gwttormsson.