Lögberg


Lögberg - 31.03.1938, Qupperneq 1

Lögberg - 31.03.1938, Qupperneq 1
51. ÁRGANGUR Frá Islandi Tjón af völdum ofviðrisins Fréttir eru enn að berast um tjón aí völdum ofvíð'risins þann 5. þ. m. Hér fara á eftir síÖustu fréttirnar samkvæmt Fréttastofu Útvarpsins. H allormsstað: 1 Jökuldal fauk þak af nýreistu steinhúsi og fólk flutti úr því á næsta bæ. Á EiÖum skemdist til muna þak og gluggar á skólahús- inu. í BorgarfirÖi eystra tók út báta. HeyskaÖar urÖu í ýmsum nálægum sveitum og víða fuku þök af hlöðum. Nemur það tjón mörg- um þúsundum króna. Á Héraði og sumsstaðar á Austfjörðum stóð veðrið af norðvestri þegar hvassast var. Eskifirði: Auk þess tjóns, sem getið var í gær, er þetta: Á Sólvangi fauk fjós og hlaða. Fjárhús yfir 20 kindur hvarf alveg. Snjóhús Jóhanns Þorvaldssonar fauk. Sex árabátar brotnuðu i spón. Að Svínaskála fuku tvær hlöður og eitthvað af heyi og sömuleiðis hesthús. Á Búð- areyri urðu nokkrar skemdir, en ekki stórfeldar. Fauk aðallega járn af ibúÖarhúsum og útihúsum og eitthvað af hlöðum og heyi. Simakerfi og rafveitukerfi bilaði og eitthvað af bátum skemdist. Skemd- ir á útihúsum hafa orðið á; Eyri, Borgargerði. Sléttu, Stuðlum og ef til vill víðar. Eitthvað hefir líka fokið af heyi. Sauðárkróki: Hér fauk þak af íbúðarhúsi og geymsluskúr. Símaþræðir og ljósa- þræðir slitnuðu. Vélbátur sökk við hafnargarðinn. Var hann dreginn á land eftir óveðrið mjög brotinn. Raufarhöfn: Á laugardaginn var hér ofsarok af vestri og norðvestri. Fylgdi því snjókoma eftir kl. 17. Þak síld- arverksmiðjunnar skemdist. Glugg- ar brotnuðu og símastaurar. Á Rifi fauk þak af hlöðu. í Höskulds- staðanesi fauk þak af fjósi og kýrnar hálffenti. Fólk var ekki á bænum sakir húsbruna, er þar varð fyrir skömmu. Norðfirði: 1 ofviðrinu aðfaranótt hins f jórða > og að morgni hins firnta þessa mán- aðar urðu hér ýmsar skemdir, þar á meðal ónýttust fimm bátabryggj- ur og tveir skúrar, og járn fauk af húsaþökum. Veðurhæð var afar- mikil. Akwreyri: í afspyrnu vestanroki, er gekk yfir síðari hluta nætur og náði há- marki um kl. 5.20 um morguninn, urðu allmiklar skemdir á rafmagns- kerfi bæjarins. Brotnuðu þá staur- ar í háspennulínunni, og var bær- inn ljóslaus um morguninn. Unnið var að viðgerð allan daginn. 1 brunanum á Oddeyrartanga 3. þ. m., sem fyr er getið, brann nýsmíð- aður trillubátur, er stóð inni í hús- inu. Búið var að ganga frá vél í bátnum. Báturinn var eign Gústavs Andersen. Skúlar: Á Skálum á Langanesi fauk mik- ill hluti af þaki og gafl úr stóru fiskihúsi, eign hlutafélagsins Tjald- ur í Reykjavík. Á Sauðanesi fauk alt járn af annari þakhlið á íbúðar- húsi prestsins. í Bakkafirði fauk sláturhús og nokkuð af þaki af vörugeymsluhúsi Kaupfélagsins. Undanfarandi hefir verið auð jörð að mestu og hagstæð tíð. —Alþ.bl. 8. marz. Stórtjón af ofviðrinu í Borgarfirði eystra Eaust fyrir kl. 8 í gærkveldi bárust útvarpinu fyrst ljósar fregn- ir um stórtjón í Borgarfirði eystra af völdum óveðursins 5. þ. m. Eru torvaldar samgöngur við bygðarlag- ið og símar slitnuðu allvíða á þess- um slóðum í óveðrinu, og átti það þátt í því, að fréttir töfðust. Síma- stjórinn á staðnum — þ. e. i Borg- arfirði eystra — segir þannig frá: Hér varð mikið tjón af völdum óveðursins 5. þ. m. í Húsavik fauk timburhús, en fólkið komst út úr rústunum, — þrjú systkini eitthvað meidd. Við íbúðarhúsið var bað- stofa, skúrar og fjós. Fauk alt, en kýr sakaði ekki. Tvær hlöður, 200 kinda hús og þak af fiskhúsi fauk einnig — alt eign fjögra bræðra, er keyptu jörðina fyrir nokkrum árum. Á Dallandsparti fauk þak af íbúð- arhúsi. — í Hólshúsum fauk járn af annari hlið íbúðarhússins. 1 Bakkagerðisþorpi fauk þak af húsi Björns Jónssonar og áfastur skúr. Fiskgeymsluhús Pöntunarfélagsins fauk og 3 trillubátar, sem í því voru. mikið skemdir eða ónýtir. Hlaða, 20 hestar hey, 60 kinda fjárhús og hesthús fauk algerlega —eign Sigbjörns Guðmundssonar. Þá fauk hlaða, 10 hestar af heyi og fjós, eign Björns Helgasonar. Sami átti og tvo af áðurnefndum trillu- bátum. Trillubáturinn Svanur fauk og er algerlega ónýtur. Þá fauk þak af hlöðu, sem Bjarni Steinsson er eigandi að. Enn fauk þak af fiskhúsi, sem Björgvin Vil- hjálmsson á. 1 Geitavík fauk skemma og þak af ábúurðarhúsi.— Þess utan fuku víða 8 til 10 hest- burðir af heyi og járnplötur af peningslhúsum og íbúðarhúsum. ÁIikið tjón varð á eldiviði. Auk alls þessa eru mörg íbúðarhús og peningshús skemd á ýmsan hátt og röskuð á grunni, þar á meðal skólahús hreppsins. —Alþ.bl. 8. marz. * # * Sigurður Nordal kjörinn heiðursdoktor 10. þ. m. verður prófessor Sig- urðúr Nordal kjörinn heiðurdoktor háskólans í Osló. Fara þá fram hátíðahöld við háskólann, þar sem- þeir menn verða kjörnir doktorar, er varið hafa doktorsritgerðir við skólann síðastliðin fimm ár. Háskólinn i Osló hefir boðið pró- fessor Sigurði Nordal að vera við- staddur þessa athöfn, en hann hefir ekki getað þegið boðið að því er hann hermir.—N. dagbl. 4. marz. Karlakór Reykjavíkur boðið til Ámeríku Annað stærsta útvarpsfélagið í Bandaríkjunum, Columbia Broad- casting Corporation hefir boðið Karlakór Reykjavíkur að heimsækja sig í Ameríku á næsta ári. Yrði kórinn vestra nokkurn þess tíma, sem New York-sýningin stendur yfir. Jafnframt lætur CBC þá ósk í ljós, að Sig. Þórðarson verði stjórnandi kórsins, en Stefán Guð- mundsson einsöngvari.— Ilafði kórinn skrifað CBC fyr- ir tveim árum og sent því ummæli blaða á Norðurlöndum, með þeirri von að það myndi vilja styðja för kórsins. Af því varð þó ekki, að svo stöddu, en það fylgdi svari CBC, að ummæli blaða í Mið- Evrópu yrði metin meira. Kórinn fór svo utan s.l. sumar og söng víða um Mið-Evrópu. WINNIPEG, MAN., FIMTUDAGINN 31. MARZ, 1938 Rev. V. J. Eylands who will address a special dinner meeting of the Men’s Club of the First Eutheran Church next Tues >day, April 5th, at 6.30 p.m. Hafði kórinn þá samband við um- boðsmenn CBC og lét umboðs- manninn í Vínarborð fá öll ummæli blaða í öðrum löndum. Sendi hann þau vestur um haf, en svarið kom t fyrradag í skeyti, þar sem segir að félagið bjóði a. m. k. 35 manna kór vestur og verður það meðlimum hans að kostnaðarlausu, frá því' stigið er á skipsfjöl hér og stigiö hér á land aftur. Viðtal við Svein G. Björnsson, formann kórsins. Tíðindamaður Vísis átti í morgun viðtal við Svein G. Björnsson, for- mann kórsins, og spurði hann nán- ara um hina fyrirhuguðu vesturför körsins, tildrög hennar, hvenær förin yrði farin o. s. frv. “Að öllum líkindum fer kórinn vestur um haf í þessa för sina 1939, er heimssýningin mikla stendur yfir. Væri að minni hyggju sjálfsagt að nota þetta tækifæri til þess að vekja athygii á íslenzku deildinni á heims- sýningunni með því að láta kórinn syngja þar, en þá þyrfti að ganga" þannig frá samningum við Colum- bia Broadcasting Co., að þetta væri leyft.” “Samningarnir við C.B.C. hafa þannig ekki verið undirritaðir enn?” “Nei. En kórnum hefir borist skeyti frá C.B.C. þess efnis, að það fallist á skilmála kórsins, um kostn- aðarlausa för milli íslands og Ame- ríku o. s. frv. Má því víst telja, að af’ förinni yerði. Annað musik- firma hafði sent okkur tilboð, sem var að sumu leyti gott, en þó ekki eins aðgengilegt og tilboð C.B.C.” “Hverjir áðstoðuðu ykkur við að vekja athygli C.B.C. á frægð- arferli ykkar um Evrópu?” 1 veir ágætir Vestur-íslending- ar, þeir Ásmundur P. Jóhannsson fasteignasali og Árni Helgason verksmiðjustjóri í Chicago. Fleiri ágætir lanclar vestra hafa haft á- huga fyrir því, að við færum vestur, þótt eigi séu hér taldir.” * * # Það má vera mikið fagnaðarefni öllum vinum kórsins, að honum hefir verið sá sómi sýndur, sem að framan greinir. En það ætti einn- ig að vera gleðiefni öllum, sem vilja að vegur lands og þjóðar sé sem mestur erlendis, því að slíkar farir sem þessar eru hin bezta aug- lýsing um land og þjóð, og mun ferðin auk þess, að þvi er vænta má ef hún verður farin á sýningartím- anum 1939, hafa mikið viðskifta- legt gildi. 1 þessu sambandi má sninna á, að frægur norskur kór á að' syngja á norsku deildinni á heimssýningunni í New York. Ætt- um vér að fara eins að og Norð- menn í þessu efni. Tekur sýning- arráðið þetta mál vafalaust til at- hugunar.—Vfsir, 2. marz. 1 Mentaskólanum á Akureyri. fór í dag fram minningarathöfn um Jón Ófeigsson. — Athöfnin hófst með því, að sungið var Integcr vite Þá flutti Sigurður skólameistari Guðmundsson minningarræðu. Að henni lokinni var sunginn sálmur- inn “Á hendur fel þú honum.” —Vísir, 8. rnarz. Uppbúið herbergi til leigu að 591 Alverstone Street; fæði ef óskast. Mr. Th. Thordarson kaupmaður á Gimli, liefir dýa/lið í borginni nokkra undanfarna daga. Mr. Björn B. Johnson frá Gimli var staddur í borginni fyrri part yfirstandandi viku. Mr. Steingrímur Johnson frá Kandahjár kom til borgarinnar á föstudaginn og dvaldi hér fram, á þriðjudag. Mrs. Hermann Johnson frá Kandáliar dvelur í borginni þessa dagana. Mr. og Mrs. Hallgrímur Sigurðs- son frá Foam Lake, Sask., hafa dvalið í borginni nokkra undan- farna daga. 1 Fólk er beðið að veita því athygli að námskeiði þvi, sem getið var um í síðasta blaði að haldið yrði í Ár- borg, befir óviðráðanlegra orsaka vegna verið frestað til þess 12. apríl næstkomandi, og stendur það yfir að minsta kosti í tvo daga. Kvenfélag Fyrsta lúíerska safn- aðar heldur sinn næsta fund á fimtudaginn 7. apríl; flytur Mrs. S. Ólafson, Árborg, Man., erindi um Hallgrim Pétursson. Meðlimir eru beðnir að veita því athygli, að það verður enginn fundur þessa viku. Sjónleikur: Meðlimir í goodtemplara stúk- unni Skuld, eru nú að æfa skop og skemti-leik, sem verður leikinn í fyrsta sinn, miðvikudaginn 13. april kl. 8 e. h. — Sjónleikurinn heitir “Frá einni plágu til annarar” í fjór- um, þáttum, eftir Dr. S. J. Johann- esson. Þetta verður auglýst nánar síðar í íslenzku blöðunum. Edmonton 23. marz, 1938 Herra rittjóri Lögbergs:— 1 dánarfregn Ingibjargar Ás- geirsson í síðasta Lögbergi, er villa, sem höfundur greinarinnar hefir beðið mig um, að fá leiðrétta. Þar er sagt að Noah Ásgeirsson sé lög- maður, en það átti að vera að ihann væri lögregluþjónn( policeman). Vinsamlegast, Y. Guðmundson. Miss Matthildur Hávarðson, hjúkrunarkona, er fyrir nokkru farin suður til Rochester, Minn., þar sem hún befir fengið góða stöðu við sjúkrahús. Matthildur er út- skrifuð af AJmenna sjúkrahúsinu í Selkirk og er dóttir Jóns Hávarðs- sonar og Maríu konu hans frá Ilayland, sem látin er fyrir mörg- um árum. Men’s Club The Men’s Club of the First Lutheran Church will hold a special dinner meeting next Tuesday, April 5th. The Principal purpose of the meeting will be to welcome Rev. Mr. V. J. Eylands into membership in the Club. AIl members are urged to take advantage of the opportunity this meeting will afford to meet Rev. Eylands and to lend emphasis to the welcome by their presence. Rev. Eylands will give the ad- dress of the evening and his subject will be: “Has the Church Failed?” The. dinner will start at 6:30 p.m. Mr. Guðmundur Elíasson frá Árnes, Man., dvelur i borginni um þessar mundir. Stórt og bjart herbergi fæst til leigu á Sherburn Street; nægilegt fyrir tvo menn. Fæði á staðnum ef óskað er. Srmi 35 909. Fiskimanna dansleikur verður haldinn í Riverton á föstudagskveki- ið þapn 8. apríl næstkomandi. Má þar búast við margmenni miklu og góðri skemtun. Jón Sigurdson Chapter, I.O.D.E., heldur sinn næsta fund að heimili Mrs. T. E. Thorsteinson, 140 Gar- field St., á þriðjudagskveldið, 5. apríl kt. 8 e. h. Mr. Gústaf Williaims, kaupmað- ur frá Hecla, kom til borgarinnar á mánudaginn ásamt frú sinni og ungum syni, og dvelst hér fram á föstudag. Séra Jóhann Bjarnason og kona hans eru flutt til Gimli og búast við að verða þar fyrst um sinn. Utan- áskrift þeirra verður þar Box 459. Með simtali má ná til þeirra með Tel. 41, sem er talsími séra B. A. Bjarnasonar.— The members of the Young Péóples’ Society of the Lutheran Church of Selkirk, Manitoba will be the guests of the Young Peoples Society of the First Lutheran Church on Monday, April 4. The meeting will be held in the church parlors at 8.30 p.m. An interesting programme has been arranged and refreshments will be served. All young peole are welcome. Næsti Frónsfundur verður hald- inn á venjulegum stað og tíma þann 7. apríl næstkomandi. Verður þar margt til skemtana. Fjórir ungir menn halda þar stuttar. ræð- ur, þeir Sigurður Helgason, Gizzur Elíasson, Einar Árnason og Thomas Oleson. Með söng skemta Guð- mundur Stefánsson og Hafsteinn Jónasson. Telja má víst að fundur þessi verði næsta fjölsóttur. Ákveðið er að hið þriðja útvarp Hins. ev. lút. kirkjufélags fari fram fimtudaginn 7. apríl kl. 8.30 til kl. 9 síðdegis, frá CJRC stöð- inni. Séra Haraldur Sigmar flytur ræðuna, en nokkrir úr söngflokki Fyrsta lúterska safnaðar aðstoða með söng við það tækifæri. Fólk er vinsamlega beðið að hafa þetta í minni og einnig veita athygli auglýsingu í næsta blaði, ef einhver breyting á þessari áætlun hefir orðið nauðsynleg. Siðustu forvöð Nú fer mjög að liða að sáningar- tíma, og þar af leiðandi óumflýj- anlegt, að menn skygnist um eftii útsæði og blómfræi. Lögberg hefir í undanfarin nokkur ár, veitt skil- vísum kauiændum, sem og nýjum kaupendum, koStaboð viðvíkjandi frætegundum frá einni allra víð- kunnustu fræverzlun Vesturlands- ins; hafa margir fært sér þetta í nyt, þó fleiri mætti þeir að visu vera. Enn er tími til stefnu ef brugðist er skjótt við til þess að fá fræ, sam- kvæmt þar að lútandi auglýsingu í blaðinu. Sendið inn andvirði blaðs- ins nú þegar, og verðúr yður svo sent fræið saimkvæmt yðar eigin vali. NÚMER 13 Ann T. Ólafson Þessi efnilega stúlka útskrifaðist i hjúkrunarfræði, með ágætasta vitnisburði, að Ancker sjúkrahúsinu i St. Paul, Minnesota, 19. maí 1937. Hún er dóttir þeirra hjónanna Mr. og Mrs. S. J. Ólafson að Garðar, N.D.—Ann er fædd í Eyfordbygð- inni 7. desember 1914* Nám sitt stundaði hún af rniklu kappi og varð árangurinn að sama skapi. Er það til marks um það, að hún fékk verðlaun fyrir ritgerð, sem hún skrifaði um “Epidemic Meningitis” (mænuveiki.). Var ritgerð þessari sýndur sá sómi, að hún var prent- uð i tímaritinu “The Trained Nurse and Hospital Review” í desembei síðastliðnum. — Miss Ólafson hef- ir nú fengið stöðu við Ancker sjúkrahúsið. Afmœlishátíð Dr. Sigurður Júlíus Jóhannesson átti nýlega 70 ára afmælisdag. 1 tilefni af því hefir verið ákveðið að halda Dr. Jóhannesson og frú hans hjeiðurssamsæti í Goodtemplara- húsinu í Winnipeg 25. apríl næstk. Af því Dr. Jóhannesson er svo vel kyntur meðal íslendinga fyrir lækn- isstarf hans, fyrir rit hans bæði í bundnu og óbundnu máli, og fyrir starfsemi hans í þágu íslendinga og islenzks félagsskapar hér vestra, þá verða þeir margir sem heiðra vilja Dr. Jóhannesson og frú hans við þetta tækifæri. Allir, sem hafa í hyggju að taka þátt í samkvæminu, eru beðnir að gefa sig fram við einhvern af nefndarmönnum. Utan- bæjarmenn, sem ekki geta verið viðstaddir, en vilja vera með, geri svo vel og sendi sín skeyti og tillög til Mr. Berþórs E. Johnson, 1016 Dominion St., Winnipeg. Það er nauðsynlegt bæði upp á húsrúm og veitingar, að nefndar- menn viti fyrir 18. apríl, hvað margir veizlugestirnir verða. Nefndarmenn: Jón J. Samson, 273 Simcoe St., forseti Gunnbjörn Stefánsson, 638 Alverstone St., skrifari Bergthor E. Johnson, 1016 Dominion St., féhirðir Rúnólfur Marteinsson, 493 Lipton St. Friðrik Kristjánsson, 205 Ethelbert St. Gunnlaugur Jóhannson, 757 Sargent Ave. Ólafur Pétursson, 123 Home St. J. G. Jóhannson, 586 Arlington St. Jóh. Th. Beck, 975 Ingersoll St. Soffonías Thorkelsson 738 Arlington St. Jón Bjarnason Academy Gjafir: Sofíanías Thorkelsson, $100.00; Dr. P. H. T. Thorlakson, Winni- peg, $100.00; Á. P. Jóhannsson, Winnipeg $75.00. Með vinsamlegu þakklæti. S. W. Melstcd, gjaldkeri skólans. i

x

Lögberg

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.