Lögberg - 26.05.1938, Síða 1
51. ÁRGANGUR WINNIPEG, MAN., FIMTUDAGINN 26. MAl, 1938
Góður gestur — gott
málefni
Þann 33. júní næstkomandi eiga
Uundarbúar von á góðuim gestum.
Þá verða þar á samkomu tveir
merkir menn og þjóðkunnir: þeir
professor Kirkconnell frá Wesley
skólanum og Guttormur skáld Gutt-
ormsson frá Riverton.
Kirkconnell er alveg einstakur
maður í sinni röð og hefi eg tvisvar
sinnum áður skrifað um hann í ís-
lenzku blöðin.
Hann er talinn mesti tungumála-
maður, sem nú er uppi, ekki ein-
ungis hér í Canada — heldur í víðri
veröld. Hann er skáld og bók-
mentamaður og hefir þýtt ljóð á
enska tun<gu af 52 (fimmt'íu og
íveimur) tungumálum. Hefir hann
verið sæmdur nafnbótum og heið-
ursmerkjum í svo að segja öllum
löndum Evrópu, að imeðtöldu ís-
landi. Hann hefir sérstaklega ritað
mikið og lofsamlega um íslendinga
og virðist hafa tekið andlegu ást-
íóstri við þá. Hann hefir hiklaust
lýst því yfir í ritum sínum, að
Stephan G. Stephansson sé mesta
skáld allra þjóða, sem Canada hafi
átt; hefir hann þýtt heilmikið eftir
Stephan.
Kirkconnell er einn hina afkasta-
mestu manna í bókmentalegum
störfum, semi sögur fara af. Hefir
hann t. d. núna nýlega ort hvert
kvæðið á fætur öðru í bókmenta-
deild Free Press (laugardagsblað-
ið). Eru það alt myndumskreytt
söguljóð úr frumbýlingslífi Mani-
toba. Kirkconnell hlakkar til að
koma í þanrf bæ, sem honum hefir
verið sagt að alíslenzkastur væri
allra bæja í öjlum heimi utan fslands.
Það er Lundar. Efast eg alls ekki
um að Lundarbúar hlakki eins mik-
ið til þess að sjá hann og heyra,
eins og Ihann hlakkar til þess að
mæta þeim.
Um hinn gestinmþarf ekki margt
að segja. Guttormur J. Guttorms-
son J>arf ekki neinnar kynningar.
Sá sem orti “Sandibar,” “Sál húss-
ins,” “Þorra,” “Eldfluguna,” “Góða
nótt” o. f 1., á sér svo veglegt og
varaníegt sæti meðal íslenzkra
skálda, að hann þarf hvorki á lýs-
ingu né meðmælum að halda.
Guttormur fer til íslands í sum-
ar, sem heiðursgestur; boðinn þang-
að af íslenzku þjóðinni í virðingar-
skyni fyrir þann mikla skerf sem
hann hefir lagt til íslenzkra bók
menta og skáldskapar.
Þessir tveir imerku menn verða
gestir að Lundar 3. júní næstkom-
andi. Koma þeir þar fram á sam-
komu, sem haldin verður til ^rðs
fyrir gptt málefni: Það er til að-
stoðar sumarheimili barna, sem
stofnað hefir verið af Sambands-
kirkjunni og er bygt að Hnausum,
aðallega í því skyni að íslenzk börn
frá Winnipeg fái tækifæri til þess
að lyfta sér upp, skemta sér og
styrkjast í sumarfriinu.
Það verður óefað fjölm-ent að
Lundar 3. júni; þar styðja góðir
gesttr gott málefni.
Slg. Júl. Jóhannesson.
Góður gestur væntanlegur
Fullvíst þykir nú, að fyrir atbeina
Þjóðræknisfélagsins komi hingað á
næstunni í fyrirlestra erindum hjá
íslendingum vestan hafs, 'hr. Jónas
Jónsson, fyrruim. dómsmálaráðherra
fslands og núverandi formaður
Framsóknarflokksins. Er hann,
sem kunnugt er, einn af allra á-
hrifamestu stjórnmálamönnum ís-
lenzku þjóðarinnar um þessar
mundir.
Dr. lngimiundson verður staddur
i Riverton þann 31. þessa mánaðar.
Mr. og Msr. Daníel Backman frá
Clarkleigh, Man., dvelja í borginni
uun þessar mundir hjá syni sínum
Dr. Kristjáni Backman og frú hans.
Kvenfélag Fyrsta lúterska safn-
aðar heldur fund í fundarsal kirkj-
unnar á fimtudaginn þann 26. maí
kl. 3 e. h. Mæður fermingarbarn-
anna verða gestir félagsins.
Miss Florence Johannson, kenslu-
kona frá Zhoda, Man., er nýkomin
til borgarinnar í hemisókn til for-
eldra sinrfa, þiéirra Mr. og Mrs.
Johann G. Johannson.
To rent for summer months,
furnished cottage at Gimli, t'nree
bedroomis, living room with open
fireplace, large grounds fenced in.
Apply to Columbia Press.
Old Timers’ Dans verður í River-
ton Hall á föstudaginn þann 27.
maí kl. 9 e. h. Woodland Orchestra
undir forustu Hannesar Kristjáns-
son frá Gimli spilar við dansinn.
Mr. Steve Sigurðsson verður dans-
stjóri. Búist er við miklrf fjölmenni.
Mr. Sq/fanias Thorkelsson verk-
smiðjueigandi, kom heim um síð-
ustu helgi úr sex vikna ferðalagi
suður ufti Bandaríki. Hitti hann all-
margt íslendinga í Californiíu,
Washingtonríki, Vancouver og ef til
vill víðar.
í kvæði S. E. Björnssonar til
Lifmans hjónanna, sem birt var í
síðasta blaði slæddist inn prentvilla
í 2. linu 3. erindis; þar stendur
“land” fyrir “lund.” Þetta eru les-
endur vinsamlega beðnir að taka til
athugunar.
Mr. Gunnar B. Björnson, frá
Minneota, Minn., og börn hans þrjú,
Valdimar, Jón og Helga, komu til
borgarinnar á laugardagsmorguninn
til þess að vera við útför Kristjáns
heitins Backmans frá Lundar, sern
fraim fór frá útfararstofu Bardals
hér í borginni þá um daginn.
OTVARP
Ákveðið er að hið fjórða útvarp
Hins. ev. lút. kirkjufélags fari frarn
fimtudaginn 26. maá (í kveld) kl.
8.30—9, frá útvarpsstöðinni CJRC.
Séra E. H. Fáfnis flytur ræðuna og
söngflokkur frá Argyle aðstoðar.
Meðlimum Heimilisiðnaðarfélags-
ins er hér með tilkynt að hin fyrir-
í.iugaða heimsókn til Mrs. Churchill
í Sturgeon Creek, verður á laugar-
dags eftirmiðdaginn 28. maí 1938,
ef veður leyfir. Þær félagskonur,
er ætla sér að vera með, eru beðriar
að tilkynna Mrs. Hannes Líndal,
46948; Mrs. Albert Wathne,
35 663; eða Mrs. P. J. Sivertson,
33 400.
HEIMBOÐ
í tilefni af gullbrúðkaupi foreldra
okkar, bjóðumi við vinum þeirra og
fjölskyldunnar, að heimsækja þau
á heimili þeirra, 118 Emily street
hér í borginni á sunnudaginn þann
5. júní næstkomandi, frá kl. 2 e. h.
og fram eftir kveldinu. Allir, sem
kynnu að vilja heimsækja foreldra
okkar, þau Mr. og Mrs. A. G.
Polson þenna áminsta dag, eru
hjartanlega velkomnir.
Winnipeg, 23. mai 1938.
Börn Polson fjölskyldnnnar.
Mr. Walter J. Lindal, K.C., er
nýlega kominn austan frá Ottawa
af ársþingi Liberal samtakanna i
Canada.
Fregnir af veglegum hátíðahöld-
um i tilefni af gullbrúðkaupi þeirra
séra N. Steingríimis Thorlákssonar
og frúar hans, verða að biða næstu
viku vegna rúmleysis í blaðinu.
Árslokahátið Jóns Bjarnasonar
skóla er ákveðin i Fyrstu lútersku
kirkju á Victor St. á föstudaginn i
þessari viku (27. maí) ; samkoman
hefst kl. 7.30. Ræðumaður er
mentamálaráðgjafj Manitoba-fylkis,
Hon. Ivan Schultz. Allir velkoimin-
ir. Gjöfum til skólans veitt mót-
taka.
Frú Jóhanna Jónasson, kona
Jónasar Jóassonar, áður mjólkur-
sala í Selkirk, kom hingað frá Is-
landi á sunnudagsmorguninn í heim-
sókn til 'Sona sinna þriggja, þeirra
Hafsteins, Gúðmundar og Ottos, er
allir eiga heima í þessari borg.
Samkepni í framsögn á íslenzkum
ljóðum fer fram í kirkju Gimli lút-
erska safnaðar, mánudaginn 30. maí,
kl. 8.30 e. h. Fer samkepnin fram
í tveirn þáttuim;: (1) börn innan
tólf ára, og (2) börn. fyrir ofan
þann aldur. Börn þau, sem að áliti
dómara koma bezt fram, taka þátt
i alsherjar samkepni, sem væntan'-
lega fer fram á ársþingi Bandalags
lúterskra kvenna snemma í júlímán-
uði, Ýnrfslegt fleira á skemtiskrá.
Frekar auglýst heimafyrir.
Nefnd “íslendingadagsins” fyrir
yfirstandandi starfsár, er sem hér
segir:
-Jón J. Samson, forseti
Séra Philip Pétursson, vara-fors
Davíð Björnsson, ritari
Jóh. Sigurðsson, vara-ritari
Jochum Ásgeirsson, gjaldkeri
Asb. Eggertsson, vara-gjaldkeri
Th. Thordarson, eignavörður
Eiríkur A. ísfejd
Erlendur Anderson
Sveinn Pálmason
Guðm. Féldsted, Gimli
Th. S. Shorsteinson, Selkirk.
Auk þess eiga ritstjórar íslenzku
blaðanna venju samkvæmt sæti í
nefndinni.
Öldungurinn Jón Sveinbjörnsson
Oddsted andaðist miðvikudaginn 11.
maí að heimili sonar síns Jóns Svein-
björnsonar í grend við Elfros, Sask.
Hann var fæddur 30. nóv. 1852 á
Oddstöðum í Lundareykj adal í
Borgarf jarðarsýslu, sonur Svein-
björns Arnasonar og Guðlaugar
Kristjánsdóttur. Hann kvæntist
1876 Guðnýju Andrésdóttur, systur
Andrésar Fjeldsted yngra á Hvitár-
völlum og Þorbergs, sem dó hér
vestra. Fluttust þau til Ameríku
1887, dvöldu í Argylebygð þar til
1903, fluttu þá vestur að hafi.
Bjuggu í nánd við Blaine og síðar
í bænum sjálfum. Fluttust til Sas-
katcewan 1929 og voru þar til heim-
ilis síðan. Dó Guðný fyrir þremur
árum. Börn þeirra eru þessi:
Thorkell í Braslorne, B.C., Jón J.
við Elfros, Sveinbjörn og Guðjón
við Kandahar, og Andrés í San
Francisco. Voru þessi hjón merk
og nrfkilsmetin hvar sem þau
bjuggu. Jón var búhöldur góður, á-
reiðanlegur og tryggur í lund, rétt-.
sýnn og góðviljaður. Hans verður
nninst sem göfugs skýrleiksmanns af
samferðamönnum á lífsleiðinni.
K. K. Ó.
FUNDARBOD
Almennur fundur Fyrsta lúterska
safnaðar verður haldinn í fundar-
sal kirkjunnar á þriðjudagskveldið
31. maí 1938, kl. 8. Tilefni fundar-
ins er að kjósa erindreka til kirkju-
þings, útnefninga til prests hér í
söfnuðinum og önnur mál er lögð
verða fyrir fundinn.
(Signed) Albert IVathne,
skrifari safnaðarins.
Vegna feykilegs annrikis í prent-
smiðjunni, sem og vegna Drotning-
ardagsins, sem er lögskipaður helgi-
dagur, var ekki unt að koma Lög-
bergi út ií fullri stærð þessa viku,
en fyrir þetta verður bætt seinna á
árinu.—
ÞAKKARÁV ARP
Okkur langar til að þakka öílum
kunningjum okkar og vinum sem
hafa aukið ánægju okkar með þvi
að senda okkur góðar gjafir og
heillaóskir í tilefnj af giftingu okk-
ar.
Með kærri þökk til kunningja
okkar og vina.
Þorleifur K jartanson
Margrét Kjartanson.
Frá Edmonton
(19. maí 1938)
Herra ritstjóri Lögbergs:—
Tíðarfarið hér um slóðir, hefir
verið hagstætt fyrir allan jarðar-
gróður það sem af er sumrinu, og
bændur víðast hvar að ljúka við að
sá í akra sína.
Þann 7. maí vory gefin saman í
hjónaband Mr. John D. McNaugh-
ton og Joyce Marguerite Payzant,
af Rev. Ilarold Stibbards, presti
McDonald Baptista kirkjunnar. Er
John D. McNaughton íslenzkiy i
móðurættina, sonur þeirra W. S. og
Kristjönu McNaughton í Edmon-
ton; brúðurin er af enskum ættum
og er ihér velþekt fyrir sönghæfi-
leika sína. Hefir- hún verið um
langan tíma “cotralto soloist” í “The
Lyric Ladies Club Choir,” og oft
skemt með söng sínum á opinberum
samkomum; allir ættingjar og vinir
ungu hjónanna óska þeim til lukku
og farsældar í framtíðinni.
Mis Salome Halldórson, M.L.A.
frá Winnipeg var hér nýlega, til að
sitja á fúndi sem Premier Aberhart
kallaði til að mynda “Socjal Credit
Association” fyrir Alberta, Saskat-
chewan og Manitoba. Var Mr
Aberhart nefndur til að vera for-
maður þessa félagskapar, og eru
nokkrir úr ráðuneyti hans embættis-
menn í þessum félagskap. Aðalstöð
þessa félagsskapar verður hér í Ed-
monton.
Mr. Wm. Johnson, kaupmaður
frá Markerville, var staddur hér i
borginni síðastliðna viku; var hann
i verzlunarerindum.
Þann 18. apríl vildi það slys til
hér á járnbrautinni í East Edmon-
ton, að maður lenti undir lestinni,
sem var að fara á stað, og runnu
tveir vagnar yfir ihann, áður lestin
varð stönzuð; var maðurinn svo
slasaður, að hann dó ,samstundis.
Var lögreglunni strax tilkynt um
slysið. Komu þeir strax og létu
flytja líkið til útfararstofu Andrews
Bros. Það fundust bréf í pjönk-
úm, sem hinn framliðni hafði með-
ferðis til Peter Jónasson, Stump
Lake, Sask. Var bréfið frá bróður
hans í Parkside, Sask. \ ar strax
sent skeyti til lögreglunnar í Prince
Albert, Sask. Kom bráðlega svar
frá þeim, að hinn látni væri Peter
Jónasson, 31 árs, frá Stump Lake
Sask. Hann ætti konu og foreldra,
Mr. og Mrs. J. Jónasson í Parkside,
Sask., og var líkið sent þangað til
greftrunar. Eg get umi þetta slys,
því það virðist efalaust hafa verið
íslendingur eftir nöfnuftum að.
dæma.
Það sem veitir mesta eftirtekt
fólks nú á dögum, er það heimsæk-
ir dýragarðinn í Borden Park hér
í Edmonton, er gamla “Goldy”, 14
ára gamall (rfn, stór, sterkur og
grimmúðlegur. Til að sýna að
að hann er engin “nusta” má
geta þess, að þegar vængir hans eru
breiddir út, þá nú þeir yfir 9 fet.
“Goldy” var náð á ungdómsárum,
hátt uppi í klettaf jöllunum, suður
í Bandaríkjum. Er hún búin að
lifa hér í búri sínu í dýragarðinum
einsömul og aldrei verið við karl-
fugl kend, en hefir samt eignast
tvo unga, sem ihenni virðist þykja
mjög vænt um. Sagan um þessa
fjölgun í fjölskyldu “Goldies” er
þetta: Eins og áður er getið um, þá
er'Goldy stór og grimm, svo eng-
inn vogar sér inn i búr hennar, nema
eftirlitsmaðurinn í dýragarðinum.
Goldy er búin að læra það, að hann
keaiur þar æfinlega faerandi hendi
með blóðugan héra, hænu eða þá
dúfu, sem Goldy þykir sælgæti, og
hún gerir sér gott af. Fyrir liðug-
um mánuði síðan tók eftirlitsmaður-
inn sig til, og bjó til bezta hreiður
í búrinu hjá Goldy, hnuplaði svo
tveimur eggjutn frá einni af gæsun-
um sem þar eru og setti þau í hreiðr-
ið hjá Goldy. Eftir nokkra yfir-
vegun fór Goldy og settist á eggin
og sat á þeim, eins og lög gjöra ráð
fyrir í 30 daga. Þegar úr eggjunum
komu tveir gæsarungar. , Enginn
veit hvað Goldy hugsar um þessa
vansköpuðu arnarunga sína, en það
lítur út fyrir að henni þyki vænt um
þá. Mikið var rætt uim. þetta hér, á
meðan Goldy sat á eggjum. Flestir
spáðu þvi, að þegar Goldy sæi þessa
unga sina, mundi henni ekki lítast
á þá, og gjöra sér máltíð af þeim
strax. Ekki var eftirlitsmaðurinn
á því. Hann sagðist búast við þvi
að Goldy mundi þykja eins vænt um
þá, eins og þó þeir væru reglulegir
arnarungar. Nú er Goldy búin að
hafa þá í búrinu hjá sér í tíu daga,
og alt farið vel, Nú eru margir að
spyrja um það, hvort Goldy sé móð-
ir eða stjúpa gæsarunganna. i
-f " 4 4
STJÓRNMÁL
Þá hefir kosningadagurinn í Sas-
katchewan verið ákveðinn 8. júní.
Premier Aberhart og helmingurinn
úr ráðuneyti hans, lögðu strax af
stað til Saskatchewan til að leið-
beina kjósendum þar, hverjum þeir
skuli gefa atkvæði sín. Sagt er að
fjöldi af Social Credit þingmönnum
héðan, þeim, sem eitthvert kjaftavit
hafi, sé stefnt þangað til að veita
Aberhart liðveizlu. Er þetta víst í
fyrsta sinni í sögu Canada, að ein
fylkisstjórn beiti sér fyrir þvi að
ráða kosningaúrslitum í öðrum
fylkjum með liðsöfnuði. Er ekki
þetta að apa eftir öðru mesta ofur-
menni heimsins, Hitler hinum þýzka.
Þó þessi innreið Aberharts í Saskat-
chewan sé-aðeins eitt af hans skripa-
látum, þá sýnir það, eins og svo
margt annað, sem hann hefir gjört,
hvað honum mundi verða það þókn-
anlegt, að geta orðið hér einráður,
eins og Hitler á Þýzkalandi. Það
er ekki ástfeðulaust, að í mörgum
pörtum Canada, og i Bandaríkjun-
um, er farið að benda á Alberta sem
gróðrarstöð fyrir fasisma i Canada.
Ekki er það líklegt að Soeial
Credit skútan fái eins góðan byr í
seglin í Saskatchewan, eins og hún
fékk í Alberta 1935. Þar er af-
staðan alt önnur en var í Alberta á
þeim tíma. Social Credit var þá
nýtt og óreynt. Margir af þeirn,
sem ekki lögðu neinn trúnað á öll
þau öfgafullu loforð Mr. Aberharts
og “yes” manna hans, voru samt svo
talhlýðnir, að þeir gáfu þeim at-
kvæði sín, til þes að gefa þeim tæki-
færi til að sýna það, að þeir gætu
gjört eins og þeir Iofuðu. 55% af
kjósendum í Alberta gaf þeim at-
kvæði sín, svo þeir unnu 56 þing-
NTlMER 21
MISS FREDA OLIVER
Þessi unga og efnilega stúlka
Freda Oliver, R.N., er dóttir Mr.
og Mrs. G. M. Oliver í Selkirk Hún
er uppalin þar í bænum, og fékk
mentun sína á barnaskóla og “Col-
legiate” bæjarins.
Nítján ára byrjaði hún að læra
hjúkrunarfræði á Almenna spítal-
anum þar i bænum, og útskrifaðist
þaðan í fyrra með bezta vitnisburði
(Honors).
A síðastliðnu hausti tók hún
einnig próf hjá Manitoba Asociation
of Registered Nurses.
Freda leysis starf sitt afbragðs vel
af hendi, er dugleg og ástundunar-
söm og hvers manns hugljúfi, er
kynnist henni.
sæti af 63. Nú hafði þeim verið
veitt meira en þeir beiddu um. Nú
hafð Aberhart og hans stjórn alt i
sinni hendi. Meira vald en nokkur
stjórnmálaflokkur hafði áður haft
i Alberta.
Það er nú flestum kunnugt um
afrek “hinnar fyrstu Social Credit
stjórnar í heiminum”; nú í nærfelt
þrjú ár. Það imá skrifa þeirra
stjórnmálasögu í fjórum orðum;
óefnd loforð, táldrœgni og úrrœða-
leysi.
Þetta er þeirra saga á öllum svið-
um.
Nú er ekki nein ástæða fyrir kjós-
endur í Saskatohewan að greiða at-
kvæði sín i blindni með Social
Credit. Nú geta þeir haft okkar
þriggja ára reynslu i Alberta sér til
leiðbeiningar.
Ekki er það neitt ólíklegt, að
reynt verði að brúka sömu tálbeit-
una í Saskatchewan eins og brúkuð
var í Alberta og reyndist svo vel
þar. Svona til vonar og vara, þá
hefir Mr. Wm. Irwin ex. M.P.
verið fenginn til Saskatchewan á
meðan á kosningum stnedur, til að
minna Social Crediters á ýmislegt
héðan, sem þeir nnáske vildu gleyma
að geta um, og eins til þess að leið-
rétta þá, ef þeir skildu fara óvar-
lega með sannleikann. Mr. Trwin
er öllu því kunnugur sení hefir
gjörst hér á stjórnmálasviðinu, síð-
an hin svonefnda Social Credit-
stjórn komst hér til valda. Það
er alveg óhætt að trúa honum til
þess að leysa það verk vel af hendi.
Þegar þetta er skrifað ’hafa
Liberalar i Saskatchewan útnefnt 5i
þingmannsefni, C.C.F. 30, og Con-
servativar 22. Social Credit ætlar
að útnefna mann úr sinnm flokki i
öllum kjósdæmum.
Kosningarnar, sem fóru fram í
Saskatchewan 1934 féllu þannig:
Liberalar fengu 206,191 atkvæði,
og kusu 50 þingmenn; C.C.F., 103,-
582, og kusu 5 þingmenn, Con-
servativar fengu 114,973 atkvæði,
en enginn þeirra manna náði kosn-
ingu.
Það er fróðlegt að hafa þessi
kosninga úrslit í Saskatchewan 1934
til samanburðar við úrslitin, sem
verða í næsta mánuði.
N. Guðmundson.