Lögberg


Lögberg - 30.06.1938, Qupperneq 2

Lögberg - 30.06.1938, Qupperneq 2
9 LÖGBÍIRG, FIMTUDAGLNN 30. JÚNl, 1938. Þriggja alda minning hins fyrála landnáms Svía í Ameríku Erindi flutt á kirkjuþingi í Argyle 1938 Eftir séra llúnólf Marteinsson “BJóðiÖ rennur til skyldunnar,” segir gamalt máltæki. _ Allar NorÖ- urlanda þjóÖir eru skyldar: Danir, NoÖmenn, Sviar, Í9lendingar og jafnvel Finnar. AÖ visu eru Finn- ar upphaflega af alt öðrum stofni, en J>eir voru svo lengi undir stjórn Svía, Sviar eru þar svo fjölmennir og samblöndun þjóðanna allmikil, að Finnar eru oft taldir með Norðtír- landaþjóðum. í þessum löndum er að finna hinn norræna kynstofn, með kostum hans og göllum. Vér Islendingar ættum að kannast við frændsemi vora við þessar þjóðir og láta oss varða sumt af því mark- verðasta, sem er að gjörast meðal þeirra. Ræktarsemi á því sviði er kostur en ekki löstur. Hún er bæði falleg og oss gagnleg. Atburður er að gjörast þessa næstu daga fmeðal frændk vorra, Svíanna, sem mér finst þess verður, að vér gefum honum gaum. Vona eg því að tiltæki mínu verði ekki illa tekið að vekja á honum athygli. Atburður sá, sem eg á við er há- tið nokkur er Svíar í Bandaríkjun- um eru að halda dagana 27.—30. júní. Feikna undirbúningur hefir átt sér stað í sambandi við þessa hátíð. Þrjú ríki Bandaríkjanna: Delaware, Pennsylvania og New Jersey taka í henni beinan og opin-. beran þátt. Öflugt félag, sem nefn- ist Swedish American Tercentenary Association, hefir verið stofnað til að annast hátíðarhaldið. Miklir söngflokkar hafa verið að æfa sig til þátttöku í þessu feikna móti. Skari fólks í Bandaríkjunum, Can- ada, Svíþjóð og fleiri löndum, er þegar lagður á stað, eða í undirbún- ingi með að fara til þess að sjá þá dýrð sem í vændum er. Hátíðar- peningar hafa verið gefnir út af Delaware-ríkinu og Svíþjóð til minningar um það sem mótið á að heiðra. I sama tilgangi hafa verið gefin út sérstök frímerki af sænska ríkinu og Bandaríkjunum. Sögu- legt minjasafn, sænskt, hefir verið stofnað í Philadelphia borg. Til þess að hýsa það hefir fögur bygg- ing þegar verið reist. Síðastliðna mánuðj hafa nefndir verið að verki út um öll Bandaríkin til að safna fé í geysimikinn sjóð, sem á að vera svo stór, ($750,000) að vextir hans geti staðið straum af stofnun- inni framvegis. Um 200 menta- stofnanir í Bandaríkjunum hafa boðið vísindamönnum frá Svíþjóð að koma og flytja hjá sér fyrirlestra. Margir ritlingar hafa verið gefnir út, og að minsta kosti ein mikil bók, “Swedes in Aimerica” sem í 'hafa rit- að margir hinna mikilhæfustu Svía í Bandaríkjunum. Eg ætla þá að segja með nokkrum orðum, frá þessari hátíð, eins og hún er áformuð. Má vera að eitt- hvað af þvi verði ekki framkvæmt. Líklega verður þó ekki mörgu breytt og eg segi söguna eins og hún er á- formuð. Mánudaginn 27. þ. m. að morgni siglir skipið Kungsholm upp Dela- ware-fljótið, í austurhluta Banda- ríkjanna, þangað til komið er að minni á, sem nefnist Christina River. Leiðin liggur svo einar tvær mílur upp þá á, þangað til komið er að (Wilmingfcon, stæsrstu borginni í Delaware-ríki. Hafskipið getur samt ekki farið upp Christina River. Þangað fer sumt farþega á minna skipi en sumt landveg á mótor- vögnum. Á skipinu Kungsholm er ríkiserfingi Svía, Gústaf Adolph, sömuleiðis kona hans Louise prins- essa, ásamt 50 manns sem er föru- neyti og fjölda fólks sem er á skemtiferð. Að einum sérstökum stað i Wilmington-borg stefnir alt þetta fólk á samt mörgu öðru. Það er klettur einn á árbakkanum. Um- hrverfis þennan klett hefir verið stofnaður listigarður sem nefnist Christina Park. Þar verður tekið á móti gestunum frá Sviþjóð af McMullen, rikisstjóra Delaware- ríkis, og Roosevelt, forseti Banda- ríkjanna. I þeiin listigarði hefir sænska ríkið reist úr svörtum mar- mara fá Svíþjóð, standmynd, sem nefnist ‘Kalmar Nyckel Monument.’ Á myndastyttunni standa þessi orð: “Detta monument restes ár 1938 sásom en gáva frán Sveriges folk til Förenta Statemas folk vid firandet av 300-ársminnet av den första svenska kolonien í Amerika.” Lista- verk þetta hefir verið gjört af sænska listamanninum Milles. Prins Svía flytur ræðu, afhjúpar lista- verið og afhendir Bandarikjþjóð- inni. Foresetinn tekur á móti og flytur þakklæti. Stutt guðsþjónusta verður flutt í kirkju þar í borginni er í daglegu tali er oft nefnd “Gld Swedes’ Church.” Þá fer fram afarmikil skrúðganga og söguleg sýning undir beru lofti. Næsta dag verður siglt til Phila- delphia borgar í Pennsylvania-ríki. Um 300 skip verða í förinni með Kungsholm. Þar rekur hver stór- veizlan og samkoman aðra, og stend- ur hátiðin þar fulla tvo daga. Guðs- þjóðnusta verður haldin í gamalli kirkju þar, sem nefnist í daglegu tali “Gld Swedes’ Church,” eins og sú i Wilmington, en heitir réttu nafni “Gloria Dei Church.” Enn- fremur verður haldin guðsþjónusta í stórum samkOmusal. í henni taka þátt, að minsta kosti einn biskup Svíþjóðar, forseti Augustana sýnód- unnar sænsku og formaður norsku kirkjunnar í Ameriku. Eitt hið mikil væga i Philadelphia hátíðinni verð- ur vígsla hins mikla sögulega minja- safns Svíanna. Verður sú samkoma haldin undir beru lofti. Er þar rúm fyrir 100,000 manns og er ekki ó- líklegt, að þar verði áskipað. Verð- ur þetta óefað hin stærsta samkoma sem Sviar í Vesturheimi hafa nokkurn tíma efnt til. Prinsinn framkvæmir aðal-athöfnina; en að henni lokinni fer fram fjölbreytt skemtun með al-miklum sænskum þjóðernisblæ. Eitt hið síðasta á Philadelphia-hátíðjnni verður söng- samkoma. Valdir söngmenn frá Svíþjóð, 65 að tölu, syngja þar, og ennfremur úrval úr sænskum söng- flokkum í Bandaríkjunum, 1,000 manns að tölu. Siðasta daginn verður vígður listigarður úti á Tinicum eyju í Delaware fljóti, og á hann að heita “Gov. Printz Park.” Þann dag verða einnig heimsóttir ýmsir sögu- staðir í New Jersey ríkinu. En hvers vegna er þessi hátíð haldin? Menn sjá af því sem sagt hefir verið af undirbúningnum og svo af hátíðinni sjálfri, að hér er ekkert smáræði á ferðum. Hér er í undirbúningi ein hinna mestu há- tíða, sem nokkurn tíma hafa verið haldnar í Vesturheimi. óhugsanlegt er að þetta sé ástæðulaust. Orsök- in er sú, að nú eru liðin 300 ár síð- an Svíar hófu sitt fyrsta landnám í þessari heimsálfu. Hinn 29. dag tt'arz-mánaðar 1638, sigldu tvö skip, Kalmar Nyckel og Fágel Grip, upp Delaware-fljótið, nákvæmlega sömu leið og Kungsholm fer nú hinn 27. júní, nema að þvi leyti að þau skip fóru alla leið upp að klettinum í Wilmington. Lítilsháttar vil eg nú leitast við að gjöra grein fyrir þessari för. Öllum, sem nokkuð þekkja ti! mannkynssögrmnar, er það ljóst að för Columbusar orsakaði all-mikið rót i Lífi Norðurálfuþjóðanna. Sú ferð var sjálf ávöxtur af miklum umbrotufn hugans, því þá var ný mentunaraldar að ryðja sér farveg, hugurinn var að leysast úr læðingi miðaldanna, og hinn nýi tími að slíta af sér böndin. Um rót í lífi manna var því bæði orsök og afleiðing af afreksverkum Columbusar. Afleið- ingin var aðallega löngun í ný æfin týri, og ný lönd. Spánverjar ásamt Portúgalsmönnum, voru fyrstir. Þeir voru sólgnir í lönd og auðæfi og lögðu furðu fljótt undir sig mik- inn hluta Suður-Ameriku og allan syðri hlutann af Norður-Ameríkm Englendingar sigldu í kjölfar þeirra en náðu ekki í gullið nema þegar þeir gátu rænt Spánverjana. Frakk- ar voru ekki langt á eftir, og Hol- lendingar komu furðu fljótt fram á sjónarsviðið. Er stundir liðu fram, voru Norðurálfuþjóðirnar komnar í kapphlaup um það að ná í sem mest af öðrum löndum heimsins. Jafnvel smáþjóðirnar urðu smittaðar af þessari nýju sýki, sem þó Var ekki algjörlega ný, því, þó þarna opnuð- ust ný tækifæri, var lundin gömul, að girnast semi mest. Eitt smáríkið, Danmörk, sendi Jens Munk til Hud- sonsflóans, árið 1619, til að nema þar lönd. Sú ferð hafði miklar hörmungar í för með sér og varð STYRKIR TAUGAR OG VEITIK NÝJA HEILSU N U G A-T O N E styrkir taugarnar. skerpir matarlyst, hressir upp á melt- ingaríæri, stuðlar að værum svefni. og bætir heilsuna yfirleítt. NUGA-TONE heíir gengið manna á meðal í 45 ár, og hefir reynst konum sem körlum sönn hjálparhella. Notið NUGA-TONE. pað fæst I öllum lyfja- búðum. Kaupið hið hreina NUGA- TONE, þvi fá meðöl bera slíkan árang. ur. því ekkert af því landnámi. En hvað er að segja um Svíþjóð? Árið ióii kom þar til ríkis hinn frægasti allra Svíakonunga, Gústaf Adolph. Langafi hans, Gustaf Vasa, hafði staðfest lútersku siða- bótina þar í landi og sjálfur lagði hann alt í sölurnar til að verja sið- bótina á Þýzkalandi tortíming. í þeirri baráttu lét hann lífið í bar - daganum við Lutzen, árið 1632. Þó hann léti lífið vann hánn samt frægan sigur og Svíþjóð náði meiri löndum og meiri völdum i hans tíð en í nokkurn annan tíma. Maður einn frá Hollandi, sem hafði stofnað aðal-verzlunarfélag Hollendinga 1621, en orðið síðar saupsáttur við landa sína, náði fundi Gústafs, og af því samtali leiddi það, að sænskt félag var stofnað til þess að 'hefja verzlun og stofna ný- lendur í Vesturheimi og i öðrum f jarlægum löndum. Styrjaldir hindr- uðu samt framkvæmdir. Kristín, dóttir Gústafs, tók #ið ríki eftir föður sinn í Svíþjóð. Meðan hún hafði ekki náð lögaldri var stjórnin í höndum hins fræga Gxenstjerna, sem má telja einn hinn vitrasta og göfugasta mann allra Svía. í hans tíð var hugmyndin um nýlendu og verzlunarfélag aftur vakin til lífs. Hollendingar áttu hluti í þessuni fyrstu verzlunarfélögum Svíanna; en svo kom að því, að Svíarnir vildu vera einir um hituna og keyptu Hollendingana út. Hollendingur, Peter Minuit, var það samt sem stýrði þessari fyrstu ferð Svíanna til Vesturheims. Skip- in tvö, sem nefnd voru, lögðu á stað frá Stokkhólmi í ágúst, 1637, en höfðu nokkra dvöl í Gautaborg. Þar var skipið útbúið með þeim vörum, og því fólki, sem það átti að flytja til hins nýja heims. Skips- höfnin var til helminga hollensk og sænsk. Á skipinu var nokkur hópur hermanna, 21 að tölu, alt Svíar. Þeir voru farþegarnir og hinir fyrirhug- uðu fystu nýlendumenn. Lagt var upp fá Gautaborg 20. nóv. I Norð- ursjónum hreptu skipin vont veður svo þau þurftu viðgerðar. Þess- vegna var farið inn á höfn á Hol- landi, Texel, og þar lagað það sem þurfti. Þaðan var látið í haf á gamlársdag, en lent við klettinn, sem áður var nefndur. Skipverjar notuðu hann eins og bryggju. Þetta var, eins og áður er sagt, 29. marz, 1638. Ferðin yfir hafið stóð því rétt að segja 3 mánuði, og það um hávet- ur. Fegnir urðu sjómenn lending- unni, því þeir nefndu hann Paradís- artanga. Fyrir fáum árum tók kvenfélag eitt part af þessum kletti, lét gjöra á hann sléttan kant og letra á hann það að Sviarnir hefðu lagt skipum þar að á áðurnefndum tíma. Ef einhver spyr: hvað vissu Sví- arnir um þetta land og hvaða rétt höfðu þeir til þess, verður þetta til svars: Þeir höfðu vitneskju um Delaware-fljótið og ætluðu sér þangað; en leyfi til landnámsins fengu þeir frá Englendingum árið 1634. Að visu má segja, að Eng- lendingar hafi lítið átt í þessu landi, en þeir þóttust eiga það. John Cabot, í þjónustu enska konungsins Hinriks VII. hafði siglt árið 1497 með fram miklirm hluta austurstrandar Norð- ur-Ameríku og gjört tilkall til alls þess lands Englandi til handa. Sögu þessarar sænsku nýlendu, ef aðeins er um beinagrind að ræða, má segja með undur fáum orðum. Varnarvirki var reist við lendingar- staðinn, sem nefnt var Fort Ghrist- ina og nýlendan nefnd Nýja Sví- þjóð. Seinna var annað vígi reist, ofar í Delaware-fljóti, á Tinicum eyju. Merkasti landstjóri Svía á næstu árum var Johan Björnsson Printz, 1643-53. Var hann mikil- hæfur imaður og stjórnaði nýlend- unni með mestu röggsemi. Af og til voru nýir hópar fólks að koma frá Svíþjóð, svo bygðin var að aukast að fólksfjölda. Hún var einnig að færast út um Delaware-dalinn. Áð- ur langt liði náði hún meðal annars þangað sem nú stendur hin mikla Philadelphia-borg. En alt var þetta skammgóður vermir. Árið 1613 stofnuðu Holendingar nýlendu þar sem New York borg nú stendur. Hvað langt nýlendusvæði þeirra náði hefir líklega verið nokkuð óákveðið; en fremur lítur svo út, að þeim hafi verið illa við landnám Svíanna. Ein- hverjir Hollendingar höfðu jafnvel gjört einhverja tilraun til að stofna bygð í Delaware-dalnum áður en Svíarnir komu þangað. Sú tilraun mistókst algjörlega, og álitu Svíarn- ir að Hollendingar ættu ekkert til- kall til dalsins; en áður en Printz landstjóri fór til baka til Svíþjóðar, voru Hollendingar búnir að reisa á norðaustur bakka Delaware fljóts- ins vígi sem þeir nefndu Fort Gasi- mir. Printz hafði ekki herafla á við keppinauta sina og fór ekki lengra en að mótmæla þessu tiltæki. Eftirmaður hans var ekki eins gæt- inn, tók vígið með valdi og nefndi Þrenningarvígi. Þar sáu Höllend- ingar sitt tækifæri. Árið 1655 sendu þeir sjö skip með hermönnum upp í Delaware-fljótið og tóku sænsku ný- lenduna herskildi. Þar með enduðu yfirráð Svía' í Norður-Ameríku. Það gegnir ef til vill furðu, að Sviar skyldu láta við svo búið standa. Ekki er þess getið að þeir hafi gjört hina minstu tilraun til að ná nýlendu sinni til baka. Ef til vill hefir orsökin verið sú, að þeir áttu fult í fangi með að verja lendur sínar á meginlandi Norðurálfunnar og stóðu í styrjöldum þar að lútandi einmitt um þær mundir. Má vera einnig að þeim hafi fundist þessi nýlendustofnan færði þeim lítinn gróða. Þeir biðu skaða á verzlunar- ferðunum og bygðin sjálf var þeim byrði. Ennfremur var það tilfell- ið, að maðurinn sem mestan áhuga hafði fyrir þessu nýlendumáli var dáinn. Að minsta kosti létu þeir Delaware-nýlenduna ganga úr greip- uro sér. Næstu ár var hún undir stjórn Hollendinganna og er ekki getið um neina sérstaka óánægju Svíanna undir þeirri tilhögun. Dómstólar þeirra og innibyrðisstjórn var mik- ið til með sömu ummerkjum og áð- ur. Fólk bættist jafnvel við í hóp- inn á þessum árum frá Svíþjóð og Finnlandi,. En svo stóð þetta held- ur ekki mjög lengi. Árið 1664 var styrjöld milli Hol- lands og Englands í Norðurálfunni. I þeirri styrjöld námu Bretar her- skildi hollenzku nýlendurnar í Vest- uríieimi og hurfu með því öll yfir- ráð Hollendinga á meginlandi Norður-Amieríku. Nú voru SvS- arnir í Delaware komnir undir enska stjórn og það voru þeir þangað til ensku nýlendurnar sögðu Bretum stríð á hendur, unnu sjálfstæði sitt og urðu Bandaríkin (1783).

x

Lögberg

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.