Lögberg - 14.07.1938, Side 1
51. ÁRGrANGUR
WINNIPBG, MAN., FIMTUDAGINN 14. JÚLl, 1938
NÚMER 28
Gullbrúðkaup Gríms|og
Sveinbjargar Laxdal
Veálur að hafi
hátíðlegt haldið með mikilli viðhöfn í Sambandskirkjunni á
föstudagskveldið þann 8. þ. m.
Börn þeirra merku hjóna, hr.'
Gríms og frú Sveinbjargar Laxdal,
efndu til virðulegs mannfagnaSar í
Sambandskirkjunni í Winnipeg síS-
astliðið föstudagskveld í tilefni af
gullbrúSkaupi þeirra; var þar sam-
ankominn auk nána^ta sifjaliðs,
fjölmennur vinahópur þessarar á-
gætu og glæsilegu hjóna.
Dr. Rögnvaldur Pétursson stjórn-
aði samsætinu, er 'hófst með þvi að
sungin voru þrjú vers úr brúðkaups-
sálminum víðkunna “Hve gott og
fagurt og indælt er. Þá flutti séra
Haraldur Sigmar bæn. Hr. Árni
Sigurðsson mælti fyrir minni gull-
brúðguma, en Mrs. Pred Swanson
fjTÍr minni gulbrúðarinnar; sagðist
þeirn báðum hið bezta. Miss Snjó-
laug Sigurðsson var við hljóðfærið
og stjórnaði margháttuðum söng, er
veizi.igestir tóku alment þátt í; auk
þess iék hún einleik á slaghörpu, en
nokkra einsöngva söng Miss Lóa
Davidson. Séra Haraldur Sigmar
fylgdi úr hlaði ýmsutn gjöfum frá
börnum til foreldra sinna með við-
eigandi ræðu, en hr. Árni Eggerts-
son mælti af hálfu gesta um leið og
hann afhenti þeim hjónum fyrir
þeirra hönd gjafir til minja um at-
burðinn. Einar P. Jónsson, sem þekt
hafði gullbrúðgumann frá unglings-
árum sínum, ávarpaði hann nokkr
um orðum með þökk fyrir ágæta við-
kynningu, um leið og hann árnaði
þeim hjónum allra heila. Kvæði
fluttu séra E. J. Melan og Mrs.
Sigurðsson, systir gullbrúðarinnar.
Af börnum og tengdabörnum þeirra i
Laxdals hjóna voru þessi viðstödd:
Mr. og Mrs. Arni G. Eggertson,
Wynyard; Dr. og Mrs. S. E. Björn-t
son, Árborg; Mr. og Mrs. B. J.
Thorlacius, Leslie; Mr. og Mrs.
Th. Laxdal, Kuroki, Sask., og Mr.
og Mrs. John Laxdal, Gimli. Fjar-
verandi voru Mr. og Mrs. Tait,
Miami, Florida, og Mr. og Mrs.
Dr. Robert J. Manion
«
kosinn foringi íhaldsflokksins
í Canada
Á flokksþingi íhaldsmanna í Can-
ada, sem hófst i Ottawa þann 5.
þ. m., var Robert J. Manion kosinn
eftirmaður R. B. Bennetts, sem
al'þjóðar leiðtogi íhaldsflokksins.
Dr. Manion er búsettur í Fort Wil-
liam; hann átti sæti í ráðuneyti Mr.
Bennetts sem ráðgjafi járnbrautar-
málanna; var fyrst kosinn á sam-
bands|þing ájrið 1917; framan af
æfi sinni, fylgdi Dr. Manion Liberal
flokknum að málum; hann er ját-
andi kaþólskrar trúar, og á kosningu
sína til flokksforustunnar að miklu
leyti Quebec-mönnum að þakka.
Fulltrúarnir frá Quebec, þeir, er
# flokksþingið sóttu, kröfðust þess, að
Canada skyldi eigi taka þátt í stríði
utan sinna eigin vébanda nema að
áður hafi farið fram þjóðaratkvæð:
um málið og þátttaka verið sam-
þykt; þessi uppástunga var feld
fyrir atbeina Senator Meghiens og
nokkurra annara kappsmanna, er
telja sig öðrum þjóðhollari; lét
nærri um hríð, að Quebec-fulltrúar
gengi af fundi, er sýnt varð um af-
drif uppástungunnar; þó lánaðist
það einhvem veginn að koma bráða-
birgðasáttum á. Mr. Herridge,
tengdabróðir Mr. Bennetts, taldi
flestar samþyktir flokksþingsins,
þó þær einkum, er að fjármálum
lutu, eitt hið herfilegasta kák. Þing-
ið tjáði sig með öllu andvígt sam-
steypu járndrautjarfélaganna, lýsti
Oli Laxdal í bænum Pas i Manitoba.
Elzta dóttir þeirra Gríms og Svein-
bjargar Laxdal, er búsett á íslandi,
hún heitir Rannveig. Þau Laxdals-
hjón eiga 27 liarnabörn, og voru
fimm þeirra viðstödd; einnig eiga
þau tvö barna-barnabörn.
Þau Grímur og Sveinbjörg Lax-
dal voru gefin satuan i hjónaband á
Akureyri þann 3. dag júlímánaðar
árið 1888. Tók Grimur snemma að
gefa sig að verzlun, fyrst á Húsa-
vík, en síðar á Seyðisfirði. Verzl-
unarstjórastöðu hafði hann með
höndum á Vopnafirði um langt
skeið, og aflaði sér hvarvetna f jölda
vina ; 'heimilið gestrisið og ahiðlegt;
fór saman hjá þeim hjónum glað-
værð og góðvilji. Það mun ekki of-
mælt, að þau Laxdals hjón, og börn
þeirra, eigi verulega sérstöðu i
mannfélaginu islenzka vestan hafs,
sakir frábærrar glæsimensku og at
orku. Vegpia tvisýns árferðis heima
á Fróni, og með hugann allan á vel-
ferð barna sinna, fluttu þau Lax-
dalshjón vestur um haf árið 1907, og
tóku rétt á bújörð í grend við Leslie
i Saskatchewanfylki. Aðstæður
voru vitaskuld harla ólíkar fyrst í
stað ; plógurinn f jarskyldur pennan-
um. Með frábæru þreki gerðu þau
hjónin sér vestræna mold undir-
gefna og knúðu fram hagnýtan
gróður; búnaðist þeim brátt vel, og
komu börnum sínum öllum vel til
manns. Þau Grímur Laxdal og á-
gæt kona hans frú Sveinhjörg Lax-
dal, hafa leyst af hendi umsvifamik-
j ið og nytsamt dagsverk ; reynst köll-
un sinni trú hvar sem leiðir lágu.
Og til minnis urn það, voru þau
í heiðruð með samsætinu á föstudags-
kveldið.
í lok skemtiskrár þakkaði brúð-
gumi fyrir sina hönd og konu sinn-
ar þá sæmd, er samsætið og gjafirn-
ar bæri vott um, og bað Canada og
íslandi guðsblessunar.
blessun sinni yfir tollverndarstefn-
unni og hét bændum gulli og græn-
um skógum.
Við atkvæðagreiðsluna hlaut Dr.
Manion 726 atkvæði, en sá, sem
næstur honum gekk, Murdock Mac-
Pherson frá Regina, fyrrum dóms-
málaráðgjafi Anderson-stjórnarinn-
ar í Saskatchewan, fékk 475 at-
kvæði. Um 2000 erindrekar úr öll-
um kjördæmum landsins, sóttu
þetta nýafstaðna flokksþing íhalds-
manna.
Silfurrefir
i
IyOÖdýraræktarfélag íslands hclt
aðalfund sinn hér i bænum 13. og
14. þ. m. og mættu á fundinum 57
fulltrúar víðsvegar að af landinu
Fóru þessir fulltrúar með samtals
176 atkvæði á fundinum.
Fundurinn gerði ýmsar samþykt-.
Dr. Sig. Júl. Jóhannesson
Seinni partinn i þessum mánuði
leggja þau læknishjónin, Dr. Sig-
urður Júl. Jóhannesson og frú hans
af stað vestur að hafi. Er læknir-
inn ráðinn til að flytja ræður á sam-
komum íslendinga vestra. ‘ Fyrst
talar hann á miðsumarsmóti fslend-
inga i Blaine, sunnudaginn 31. júli.
Á þeirri samkomu flytur skáldkonan
frú Jakobína Johnson frá Seattle,
kvæði, Thora Thorsteinsson-Smith
frá Vancouver, B.C., syngur ein-
söngva og sömuleiðis Ninna Stevens
frá Tacoma. Dr. Sigurður flytur
einnig fyrirlestur um íslenzkar bók-
mentir á ensku fyrir nemendum
Kennaraskólans í Bellingham. Enn-
fremur er hann ráðinn til að mæla
fyrir minni fslands á íslendinga-
deginum við Silver Lake, sunnudag-
inn 7. ágúst.
ir en merkustu samþyktirnar voru
um merkingu loðdýra og loðdýra-
sýningar í haust. Akveðið var að
láta fara fram merkingar á öllum
silfurrefum og blárefum um alt
land í haust.
Gjöld félagsmanna
Gjöld félagsmanna voru nokkuö
hækkuð frá því 'sem verið hefir.
Sama gjald verður fyrir hvern si’.f-
urref kr. 2.00, en hækkar úr 1 krónu
upp i kr. 1.50 fyrir bláref og úr 30
aurum upp í 75 aura á minka á ári.
Aukning félagsmanna
og loðdýrastofns
Þegar Loðdýraræktarfélag Islands
var stofnað snemma á árinu voru
stofnendur 27, sem áttu samtals
248 silfurrefi og 185 minka. Á aðal-
fundi 1936 var tala félagsmanr.a
komin upp í 35 og áttu þeir sam -
tals 297 refi og 185 minka. Á aðai-
fundi 1937 eru félagsmenn orðnir
121 og refafjöldinn 610, en minkar
211.
Nú á aðalfundi eru félagsmenn
um 330, en skrifstofa félagsins veit
um ca. 400 loðdýraeigendur á öllu
landinu. Ekki eru komnar ^kýrslur
frá öllum félagsmömíum, en áætlað
er að nú séu um 2,400 silfurrefir a
öllu landin, 500 blárefir og um 50
minkar.—Mbl. 17. júní.
Til Gríms Laxdal
%
(í gullbrúÖkaupi þeirra hjóna)
Margar raddir kvaka í kvöld
kveðju tímabæra-------
,Eg liefi engin gullin g.jöld,
Grímur, þér að færa.
Tíui úr laufi lítið blað,
legg í heiðurssveiginn,
heillaósk og þökk á það
þrykki báðumegin.
Sig. Júl. Jóhannesson,
SlLDIN KOMIN
Skip sem fóru út á síldveiðar frá
Siglufirði í fyrrakvöld, fengu góða
veiði i fyrrinótt.
“Stella" fékk í fyrrinótt 200 mál,
rétt utan við mynni Siglufjarðar.
“Ólafur Bjarnason” fékk 150 má!
út á iGrímseyjarsundi. Þar fengu
einnig “Grótta” og “Gloría” dágóða
veiði.
A eður var ágætt á Sigluíirði í
gær og gerðu menn ráð fyrir að
skip þessi myndu koma inn í nótt
eða dag með ágæta veiði. Nokkrir
bátar fóru einnig út á veiðar í gær-
kvöldi.
UM GUDMUND KAMBAN
, \
Kaupmannahafnarbl. “National
Tidende” flytur grein um Guðmund
Kamban skáld í tilefni af fimtugs-
afmæli hans og segir að Kamban sé
yngstúr þremeríninganna, Jóhanns
Sigurjónssonar og Gunnars Gunn-
arssonar, en hann sé á góðri leið
með að verða alþjóðlega kunnur-
rithöfundur.
HEYRT OG SÉÐ
Austfirskur kaupm. varð gjald-
þrota, eða eitthvert fyrirtæki,
sem hann var viðriðinn. Efna-
maður, bóndi er Jón hét, hafði verið
í miklum ábyrgðum fyrir hann. Varð
hann þá einnig gjaldþrota. Einhver
sem kallaði sig “Austfirðing” skrit'-
aði í blað Austfirðinga lof mikið um
Jón þennan er var einn af forvígis-
mönnum þess pólitiska fjokks sem
blaðið fylgdi. Líkti það honum
jafnvel við Krist. Um þessa at-
burði kvað alkunnur hagyrðingur
þar eystra, Pétur Sigurðsson:
“Austfirðingur,” allra fyrstftr
á það bendir mönnunum,
að Jón í Firði og Jesús Kristur
jafnir séu að mannkostum.
En þó að sumir sjái varla,
sá er stóri munurinn,
að Jesús píndist jafnt fyrir alla
en Jón dó fyrir kaupmanninn.
—Alþ.bl.
Frægur læknir, Baron að nafni,
fékk eitt sinn mikið lof hjá hrifn-
um sjúkling.
—Eg veit ekki hvernig eg á að
þakka yður að þér hafið get'ið mér
heilsu mina á ný.
—Eftir að Fönikíumenn fundu
upp peningana, br ekki neinn vatidi
að ráða fram úr slíku, svaraði lælcn-
irinn.
25 ára afmæli Fána-
dagsins
Veður var ekki gott, en þó ekki
rigning, meðan að dagskrá dagsins
fór frarn, sem var þessi: Sund-
menn úr Ægi og Ármanni sýndu
sundknattleik í stóru sundlauginni,
af mikilli snild, undir stjórn Jóns
Pálssonar. Áhorfendur voru mjög
hrifnir af leikni þeirra og þroska.
Framför sundlistarinnar fer vax-
andi með hverju misseri og er það
gleðilegur vottur um menningu vora
i sundlistinni. Næsti liður fór frarn
við leikhúsið. Drengir úr Ármanni,
unjir stjórn Vignis Andréssonar,
sýndu leikfimi af hinni mestu snild,
og var þeim fagnað mjög af áhorf-
endum, og er það mikil ánægja, að
sjá hvað hér eru mikil efni til og
áhugi rneðal drengja — lika í þessu
efni, og á Vignir mestan þátt í því,
Til Guttorms J. Guttormssonar
JÚLl, 1938
Guð'irnír sendi þér g'æfta bvr,
og gleði er kemur þú “heim. ”
—Hvre dýrmætt að eiga sér “ Draumaland,”
er dinmi fljúga skeyti með hatur og grand,
um mannsandans geislandi geim.
Eg kvíði því sízt að þú komir með dapraða sjón,
—kennir ei Reykliolt og Þingvmll og Víð’mýrarsel;
skiljir ei ljóðin hjá Gullfoss’ og lofgerðaróð—
lista verk Einars og Calders á hrjóstrugum mel.
Heit slá á Islandi hjörtu,
og hamrarnir geyma þér yl.
Hörpuna fagnandi stiltu,
og gerðu því skil!
Jakobína Johnson,
Seattle, Wash.
að halda áhuganum lifandi fyrir
starfinu. Vignir Andrésson fékk
Álafossmedalíu úr gulli afhenta að
lokum og fögnuðu allir því.
Þá talaði Benedikt Sveinsson
fyrv. Alþingisforseti nokkur orð af
mikilli mælsku, mintist isl. fánans,
þýðingu dagsins og Vestur-lslend-
inga, og var hrópað húrra fyrir
V'estur-íslendingum. Þá kallaði
S. P. Ásm. P. Jóhannsson upp á
ræðupallinn og mælti nokkur orð til
hans og afhenti honum fagran Ála-
fossjtappírshníf til minningar um
komu hans til staðarins þennan dag,
og hrópaði mannfjöldinn ferfalt
húrra fyrir honutn. Hann þakkaði
fyrir með snjallri ræðu um þá þýð-
ingu, er samstarf Vestur- og Austur-
Isl. hefði og þá gleði, sem ætti sér
stað meðal Vestur-íslendinga yfir
kveðjum héðan frá íslandi. Hann
mælti að lokum fyrir minni íslands,
og var vel tekið undir það af öllum.
Þá fór fram leiksýning á hinu
bráðskemtilega leikriti “Eilífðar-
bylgjurnar.” Leikendur voru Valur,
Alfreð, Ingibjörg Steinsd. og Hi!d-
ur Kalman. Allir þessir leikendui
fóru vel með hlutverk sin, en sér-
staka hrifningu vöktu Alfreð, Ingi-
björg og Valur. Mest gaman var
að sjá frúna undir rafmagnsáhaid-
inu, sem var stórskorið og virðu-
legt, og var auðséð á frúnni, hvaða
voða orka þar var, sem gat haldið
lienni svo fastri í stólnum, sem íaun
bar vitni um, — og altaf jókst
“spenningurinn” með hverri mínút.u,
þar til að frúin losnaði — og pá
“hárlaus.” — Leikendur voru klapp-
aðir fram og þeim þakkað fyrir sitt
starf.
Þá fór fram afhending á Björg-
unamedalíu Álafoss. Að þessu sinrú
voru þau afhent Guðlaugi Odds-
syni, Garði, fyrir afrekað mikið
hetjuverk, að bjarga 9 mönnum úr
sjávarháska á báti, þar sem stærri
bátar voru við, en treystu sér ekki.
Varafortnaður Slysavarnafélagsins,
Guðm. Kristjánson, talaði fyrir
minni Guðl. Oddssonar og afhenti
minjagripinn. Var Gull. vel fagnað.
Þá þakkaði S. P. öllum fyrir að-
stoðina, sem þar hefðu eitthvað gert
i dag, og mælti nokkur orð til fánans.
Slysavarnafél. íslands og íslands,
og var því tekið með fögnuði. Þar
með endaði dagskrá Fánadagsins 12.
júní 1938. V. V.
—Vísir 14. júni.
The Night Wind
I hear the night wind moving through the grasses,
Rustling their silken leaves, and whispering
Dreams to tþe flowers in slumber wrapped: she passes
Quietly on her way; I hear her sing
A song — half-sad, half-giad — with longing filled.
Then, swift in flight, ascend upon the wing.
Anon the night wind calls, now eerily,
Now wild and shrill, now íow with plaintive tone;
And laughing . . . mocking . . . wailing wearilv,
She rends the misty veils where she has flown:
Cloudward she soars, her voice grows faint and fainter,
Then silence follows her far-distant moan.
No more I hear the sound of song and sighing,
The gentle stir of quivering grass and tree:
Somewhere the wind in changeful mood is flying,
Now high, now swooping low, with pinions free;
Whilst I alone, I muse amid the silence
Drinking the draught of her strange mvstery.
—Helen Swinburne, Midnapore. '
Avarp
í tilefni af gullbrúðkaupi Gríms
og Sveinb.iargar Laxdal
Uppi í himnum örlaganna
Óþekt starfa leyndarráð.
Fimtíu árum fyrir síðan
Forlagadísir spunnu þráð.
Því gullinn síma bandi björtu
Bundu þær saman vkkar hjörtu.
Sumar ríkti of Sefafjöjlum.
Sáuð þið í framtíð inn;
Ykkur mót um víða vegu
Veröld breiddi faðminn sinn.
Þeim sem vorsins útsýn eiga
Engar leiðir dvljast mega.
Sumir leita gulls í grjóti
Grafa djúpt í myrkrin inn,
dæmdum huga dauðan málminn
Dýrka, en jarða anda sinn.
En þið, sem giftu gátuð sanna
Gull námuð úr hjörtum manna.
Ástar gull, sem aldrei þrýtur
Eða nokkur rana má,
Þó að yfir aftanfjöllum
Allir geislar falli á ská,
Ljómar ykkur á lífsins kveldi
Lýsigull úr hjartans veldi.
En þeir geislar vkkar flytja
Öskir hlýjar þetta kvöld.
Börn og vinir virða’ og þakka
Vináttuna í liálfa öld
Og biðja Guð með gæðsku sinni
Að gevma’ vkkur í framtíðinni.
E. J. Melan.
1