Lögberg - 21.07.1938, Page 2
o
LÖGBERG, FIMTUDAGINN 21. JÚLí, 1938
Er trúin hégómi?
Markúsarguðspjall skýrir svo frá,
aÖ Jesús hafi eitt sinn sagt þessi
djörfu orÖ: “Sá getur alt, sem
trúna hefir.’’ Mörg önnur orÖ
Krists ganga í sömu átt og sýna það
svo ljóslega að ekki verður um vilst,
að Jesús hefir litið á trúna sem eitt
af allra dýrustu verðmætum manns-
andans. Hann er ekki aðeins sann-
færður um, að trúin veiti mönnun-
um kraft og styrk í starfi þeirra og
stríði, heldur sé trúin einnig megn-
ug þess, að hrinda af stað undur-
samlegum lækningum líkamlegra
meina, ef hún er heil og sterk, og að
með hennar tilstyrk megi jafnvel
gera undur og kraftaverk.
Þessi ummæli Krists um trúna
eru nú orðin nær 19 alda gömul,
og margt hefir breyzt síðan þau
voru sögð. Tímarnir hafa breyzt.
Menningin hefir beyzt. Og menn-
irnir hafa breyzt líka að ýmsu leyti.
Ýmsir telja sig nú vita miklu meira
og betur um þessi mál heldur en
Kristur, og segja að kenning hans
um mátt og ágæti trúarinnar sé nú
orðin úrelt og barnaleg.
Slikir menn halda því nú fram,
að trúin sé i raun og veru ekki ann-
að en meinlaus vitleysa, ef vitleys-
an er þá nokkurn tima meinlaus, sem
að visu einstaka gamalt fólk efast
klárlega um, vitleysa, sem að vísu
einstaka gamalt fólk og taugaveikl-
aðar konur séu ennþá að burðast
með, en sem brátt nnini þó hverfa
mðe öllu, og dagar trúarinnar verða
taldir. Þeir telja trúna ekki vera
annað en einskonar nautnameðal,
sem fáeinir volaðir vesalingar gleypi
i sig sér til tjóns, líkt og ópíum eða
þá tóbak og brennivín, svo að maður
noti orð eins hinna nýju spámanna.
Þessvegna beri að útrýma trúnni og
vernda fólkið gegn áhrifum henn-
ar.
Hér er nú um tvær svo andstæð-
ar skoðanir á trúnni að ræða, að
ekki virðist ástæðulaust, að menn
athugi þær með gætni og stillingu,
ef verða mætti til þess, að menn
fyrir þá athugun gætu nálgast rétt-
látt og skynsamáegt mat á trúnni.
Þegar hugsað er um þessi mál, þá
liggur það strax í augum uppi, að
önnurhvor þessi skoðun á trúnni
hlýtur að vera röng. Ekki getur
trúin verið hvorttveggja i senn
æðsta hnossið og aumasti hégóminn.
Báðar þessar skoðanir gætu líka
verið rangar og sannleikurinn legið
einhvers staðar á milli öfganna.
En það er ekki aðeins að það sé
full ástæða til að reyna að gera sér
rétta grein fyrir gildi trúainnar. Það
er ófvíræð s'kylda. Ef trúin er ein-
hver hégómi og vitleysa, þá á ekki
að viðhalda henni með þjóðinni. Og
þá er það algjörlega óforsvaranlegt,
að rikið styðji trúarlega starfsemi í
landinu á nokkurn hátt. Þjóðin hef-
ir áreiðanlega ekki efni á þvi að
verja árlega tugum og jafnvel
hundruðum þúsunda til þess eins að
viðhalda og efla vitleysuna í land-
inu, jafnvel þó vér gengjum svo
langt, að nefna þá vitleysu “mein-
lausa,” eins og andstæðingar trúar-
innar hafa gert. En ef trúin aftur
á móti er andlegur kraftur, ein ör-
uggasta hjálpin í lífsbaráttunni, eitt
dýrasta verðmætið, sem mannsand-
inn geymir, þá ber oss einnig og
ekki síður skylda til að vernda hana
og efla, styrkja hana og glæða í
hvers manns sál. Mat vort á trúnni
hlýtur því að skapa viðhorf vort til
hennar. Rétt mat trúar er því
grundvöllurinn að réttu viðhorfi til
hennar. En til þess að geta fram-
kvæmt slík^ mat er fyrsta skilyrðið
það, að gera sér vel og rækilega
Ijóst, hvað raunverulega felst í orð-
inu trú. Hvað er trú? Það þurf-
um vér fyrst að vita ákveðið og
greinilega, ef vér eigum að geta orð-
ið hæf til þess að mynda oss rök-
studda skoðun um ágæti hennar eða
fánýti.
Eg hefi nokkura ástæðu til að
ætla, að mikið vanti enn á það, að
öllum þorra manna sé fyllilega
ljóst, hvað trú í raun og veru er. Og
mér hefir virzt þetta oft koma á-
þreifanlega i ljós í deilum manna og
umtali um þessi mál. Það er held-
ur ekki laust við, að málvenjan sjálf
villi hér sýn og rugli fyrir mönn-
um því, sem raunverulega er fólgið
i orðinu trú. Venjulega þegar tal-
að er um trú, þá er í rauninni alls
ekki verið að ræða um trúna sjálfa,
heldur um það sem trúað er, trúar-
kenningarnar, trúarlærdómana, trú-
arsannindin. Það er þetta, sem svo
oft í daglegu tali er ranglega nefnt
trú. I þessum ranga skilningi töl-
um vér um margskonar trú og nefn-
um ihana ýmsum nöfnum, kristna
trú, Bramatrú, Búddatrú eða Mú-
hameðstrú, svo nefnt sé það allra
algengasta og eigum þá æfinlega við,
ekki trúna sjálfa, heldur það sem
trúað er, þau trúfræðikerfi og þær
kenningar, sem einkenna hvert þess-
ara trúarbragða um sig. Og af því
að trúarlærdómarnir eru mismun-
andi og ólikir, jafnvel hver öðrúm
gagnstæðir að ýmgu leyti, þá leiðir
hinn rangi skilningur á orðinu trú
einnig til þess, að vér förum að tala
um rétta trú eða ranga, eftir því
hVernig oss falla lærdómarnir i geð.
Þegar Búddatrúarmaðurinn ' til
dæmis telur kristindóminn ranga
trú, þá eru það trúarkenningarnar,
sem hann á við en ekki trúin sjálf.
Á sama hátt telja kristnir menn
Múhameðstrú ranga trú af því, að
trúarkenningar hennar eru öðruvisi
og aðrar yn kenningar kristninnar
Trúarkenningar og trú eru alveg
sitt hvað, og má því aldrei rugla því
saman. Trúarkenningarnar eru þau
sannindi eða lærdómur, sem hinn
trúaði maður trúir eða treystir á, og
þær kenningar eru misjafnar í hin-
um einstöku trúarbrögðum. En
trúin er hæfileiki eða hneigð í
mannsbrjóstinu sjálfu. Til þess að
skýra þetta nánar getum vér tekið
aðra tilfinningu eða hneigð náskylda
trúnni. Það er ástin. Ástin er
ekki það sama og það sem elskað er.
Jafnvel þó vér i daglegu tali rugluni
þessu tvennu oft- saman. “Sofðu
unga ástin min” lætur Jóhann Sig-
urjónsson Höllu í Fjalla-Eyvindi
syngja við barnið sitt. Og mörgum
manninum verður það, að nefna
konuna sem hann ann ástina sina
eða elskuna. En ástin sjálf, hún
er hvorki konan sem vér unnum eða
barnið sem vér elskum, fremur en
trúin er trúarkenningarnar, heldur er
ástin tilfinning í brjósti vor sjálfra.
En eins og ástin beinist jafnan að
einhverju sérstöku, hvort heldur það
eru aðrir menn, ættland og óðal eða
hugsjónir og hugðarefni, þannig
beinist einnig trúin í vissar áttir,
verður trú á eitthvað, trú á sjálfa
oss á mátt vorn og megin trú á aðra
menn eða málefni og trú á æðri
verur guði eða Guð.
Nú geta verið mjög skiftar skoð-
anir manna um það, hvers virði það
raunverulega sé, sem oss þykir vænt
um. Það, sem eg elska heitast.
kann þér að standa gjörsamlega á
sama um. Og ekki eru siður skift-
ar skoðanir um hitt, hvers virði þær
trúarkenningar séu, sem menn trúa
á og hafa trúað á á hinum ýmsu
tímum. Um þær kenningar má
lengi deila og hefir löngum verið
deilt. Það, sem eg trúi heitast á og
treysti bezt, kann þér að virðast hé-
gómi og fjarstæða. En trú og ást
verða aldrei réttilega metnar eftir
því, hvað menn elska eða hverju
þeir trúa. Það er ekki hægt að
tala um rétta ást og rétta trú, eða
ranga ást og ranga trú. Nei, vér
verðum að nota á þetta annan mæli-
kvarða og aðra vog. Vér verðum
að meta trúna eins og aðrar tilfinn-
ingar vorar eftir magni Jiennar og
styrkleika. Trúin er þá ýmist mikil
eða lítií, veik eða sterk. Þannig
dæmdi líka Kristur um trúna. Hann
talaði aldrei um rétta trú eða ranga.
en hann talaði oft um mikla eða
litla trú.
Af því, sem eg hefi nú tekið fram,
vildi eg að öllum yður mætti verða
það ljóst, að trúin og trúarkenn-
ingarnar eru alveg sitt hvað, og að
þessu tvennu má ekki blanda saman.
Trúin er á sama hátt og ástin til-
finning mannshjartans, hneigð, sem
þó ávailt beinist að einhverju sér-
stöku, því sem vér elskum, eða því
sem vér trúum á.
í raun og veru eru trú og ást ná-
skyldar og fylgjast oft og iðulega
að. Þeim, sem vér elskum, treyst-
um vér einnig, trúum á þá að meira
eða minna leyti. En kjarni allrar
PROFESSOR LAMBERTI
Professor Lamberti is a new face and a new
idea for outside shows. His appearance at the
Winnipeg Summer Fair marks his first appear-
ance in this particular branch of the amusement
world, after having toured Europe on eight oc-
casions.
He is recognized as the greatest of all pantomime
comedians, and has headlined every large theatre
programme in the United States for the last seven
years, besides having been the outstanding fea-
ture in over twenty musical comedy productions.
Lamberti is only one of the many dozen attrac-
tions at the Winnipeg Summer Fair, which will be
held at beautiful Polo Park during the entire week
x>f August 8.
trúar er traustið, og það traust er
venjulega ofið og styrkt af ást vorri
og lotningu fyrir því, sem vér trú-
um á.
Eg hygg nú, að um það munið
þér öll geta orðið sammála, að ástin,
kærleikurinn sé svo áhrifa- og af-
drifaríkur þáttur i lífi voru og
breytni, að ef hafin yrði nú öflug
herferð gegn honum og hann upp-
rættur úr mannshjartanu, þá myndi
nú lifið gerast harla dapurlegt og
snautt. Og eg býst satt að segja
ekki við, að mörg yðar mundu vilja
taka þátt í slíkri herferð á móti
kærleikanum. Hitt mun sqpnu nær,
að mörg yðar mundu vilja taka
undir með skáldinu sem segir:
Án kærleiks sólin sjálf er köld
og sérhver blómgund föl
og himinn likt og líkhústjöld
og lífið — eintóm kvöl.
Svo mikið finst oss til um gildi
kæleikans. Svo mikill yrði tóm-
leikinn og kuldinn, ef vér yrðum
honum sviftir.
En hvernig er þá með trúna, þessa
sýstifrtilfinnin'ju kærleikans? Er
hún oss síður nauðsynleg? Getum
vér upprætt hana, slitið hana með
rótum úr hjarta voru án þess að
bíða við það skaða og tjón? Og eg
bið yður að muna, að eg tala hér um
trúarkenningarnar. Og nú ætla eg
trúarkenningarnar. íOg nú ætla eg
að koma hér fram með fullyrðingu,
sem yður kann að furða á í bili, og
finnast vera fjarstæða og öfgar, en
eg vona nú samt að geta síðar fært
að henni fullnægjandi rök. En full-
yrðingin er þessi: Það getur bók-
staflega enginn maður starfað neitt,
ekki framkvæmt neitt vitandi vits
nokkurn skapaðan hlut. án trúar.
Svo sterkur þáttur, svo máttugt afl
er trúin i lífi vor allra, ef að er gáð.
Sumir yðar kunna að brosa ofurlítið
góðlátlega að svona fullyrðingu, sem
þér enn íeggið engan trúnað á. En
nú skulum vér hugsa oss, að á þessu
augnabliki komi fyrir yður öll mjög
einkennilegt atvik. Eg vona, að það
komi aldrei fyrir yður í raun og
sannleika. Vér skulum hugsa oss,
að þér mistuð alt í einu trú yðar á
það, að þér gætuð staðið á fætur
Hver yrði afleiðingin ? Sú, að eng-
inn yðar mundi svo mikið sem gera
tilraun til þess að standa upp. Og
þetta kemur af því, að alt vort starf,
hið smæsta sem hið stærsta byggist
á trú, trú á það að vér getum fram-
kvæmt það. Vér getum aldrei haft
fyrirfram neina óyggjandi vissu um,
að vér getum þetta eða hitt. Vér
höfum ekki einu sinni vissu fyrir
að lifa næsta augnablik. Vér verð-
um að trúa því eins og öllu öðru,
sem heyrir framtíðinni til.
Því sterkari og heilli sem trúin
er á það, að eitthvert starf hepnist
fyrir oss, þvi ótrauðari og örugg-
ari leggjum vér fram krafta vora til
þess. Því veikari sem trúin er, þvi
meiri verður hálfvelgjan og hikið.
Og vanti trúna með öllu, verður
starfið heldur aldrei hafið. Þannig
verður þá trú vor jafnvel í þessum
allra hversdagslegustu efnum oss
meginhjálpin í störfum og fram-
kvæmdum. Það er trúin, sem vekur
viljann til átaka, það er hún, sem
leysir úr læðingi orkuna í sjálfum
oss, og beinir henni í eina átt, að
einu marki þangað, sem trúin vísar.
Vanti trúna, þá vantar líka viljann
og máttinn, eða réttara sagt mátt-
urinn og orkan eru að vísu til, en
þeim er ekki hægt að beita af því
að trúna vantar. Leitið þér nú bara
sjálf í hugum yðar og reynið að
muna eftir þvi, hvort þér hafið
nokkurn tíma á æfinni ótilneydd
hafið það starf, sem þér höfðuð
ekki minsta snefil af trú á, að mundi
hepnast fyrir yður? En úr því vér
erurn nú farin að tala um þetta, þá
langar mig til að spyrja yður að
einu. Hafið þér nokkurn tima séð
móðursjúkan sjúkling? Líkami
hans virðist vera alveg heilbrigður.
En þó fæst sjúklingurinn ekki til
þess að klæða sig. Hann getur ekk-
ert vik gert, og naumast hreyft sig
í rúminu. Hvernig stendur á þessu?
Hvað er að ? Það er bara þetta, að
trú hans, þessi frumstæða trú á eigin
mátt og megin, hún er lömuð. Hann
hefir ekki framar neina trú á, að
hann geti klætt sig eða yfirleitt gert
nokkurt vik. Þessvegna liggur
hann í rúminu. Eg býst nú við,
þegar þér farið að hugsa um það,
sem eg nú hefi sagt, þá fari yður
að skiljast betur gildi trúarinnar og
að hún er enginn hégómi, skiljast,
að jafnvel þessi frumstæða ófull-
komna og takmarkaða trú á eigin
rnátt og megin er ekki aðeins grund-
völlurinn og undirstaðan að dagleg-
um störfum vorum og framkvæmd-
um, sem án hennar væru gjörómögu-
leg, heldur býst eg einnig við því, að
þér hafið oft mjög greinilega fund-
ið hjálp og mátt þeirrar trúar við
hin ýmsu störf. Hafið þér til dæmis
ekki fundið, hve mikil hjálp og
styrkur er í því, þegar þér eruð að
læra eitthvað, hvort heldur er bók-
legt eða verklegt, ef þér hafið þeg-
ar i byrjun getað öðlast sterka trú
á, að námið mundi takast fyrir yð-
ur ? Þá leysir trúin viljann úr bönd-
um, vekur áhugann á náminu og
beinir athyglinni óskertri að verk-
efninu.
Varla er hægt að velja sér ógæfu-
samlegri förunaut í nokkurum skóla
en vantrúna, vantrúna á eigin mátt
og getu, sem sífelt hvíslar að nem-
andanum:: Þetta hepnast aldrei
fyrir þér. Þetta getur þú aldrei lært.
En þessi trú á sjálfan sig, trúin
á mátt sinn og megin, eins og for-
feður vorir orðuðu það, hún er að-
eins trú í þrengsta og ófullkomnasta
skilningi þess orðs. Og af því að
hæfileikar vorir og geta eru ávalt
harla takmörkuð, þá getur trúin á
oss sjálf auðveldlega orðið að of-
trú, að heimskulegu sjálfstrausti og
hlægilegu gorti, eins og hjá Birni
úr Mörk, er Njála segir oss svo
snildarlega frá. En sé þeirri trú
haldið innan skynsamlegra tak-
marka, er hún þó ihverjum manni
geysileg hjálp i lífsbaráttunni. Hún
vekur viljann og áræðið og knýr oss
til að leggja fram krafta vora og
orku alla og óskifta. Og vanti oss
þá trú með öllu, þá erum vér orðnir
veiklaðir menn og ósjálfbjarga
vesalingar.
Annað stig trúarinnar og nokk-
uru viðtækara er trúin eða traustið
á aðra menn. Sú trú er svo langt
frá þvi að vera hégómi, að á henni
byggist hvorki meira né rninna en
öll samskifti og samfélag manna á
þessari jörð. Orð og loforð annara
manna fá gildi sitt frá þeirri trú,
sem vér höfurn á þeim og því tausti,
sem vér berum i brjósti til þeirra.
Og þessi trú, trúin á mennina, hún
hefir tvent i för með sér. Hún leys-
ir bundna krafta í oss sjálfum, sem
svo koma fram í félagslegu starfi
og samstiltum átökum og hún opnar
sálir vorar fyrir innstreymi hugsana
og krafta og oft og tíðum ómetan-
legrar hjálpar og huggunar frá öðr-
um mönnum. Flestir munu sam-
mála um það, að það sé ekki aðeins
æskilegt, að sjúkur maður hafi
traust á lækni sinum, heldur sé það
bein nauðsyn. Og vart mun sá mað-
ur geta veitt þér mikla huggun eða
styrk í andstreymi og raunum, sem
þú treystir í engu og hefir enga trú
á. Eða hvernig stendur á því, að
ókunnur maður getur ekki huggað
grátandi barn, þó hann hafi einlæg-
an vilja á því og leggi sig fram til
þess, en um leið og móðirin tekur
barnið í fang sitt, hættir það að
gráta? Það er af því, að barnið
trúir og treystir móðurinni, en ekki
ókunnuga manninum. Trúin er því
skilyrðið fyrir því, að hægt sé að
hugga það. Og trú vor á mennina
verður altaf skilyrðið fyrir því, að
vér getum öðlast mikilsverðustu
hjálpina, sem þeir vilja og geta látið
oss í té. Eg get ekki séð möguleika
fyrir neinum félagsskap, vináttu, eða
samstarfi án trúar, án trausts á aðra
menn. Og því er það, að ef við
glötum algerlega þeirri trú, trúnni
á mennina, þá erum vér áreiðanlega
ver farin eftir €n áður, þá eru um
leið öll vináttu og félagsbönd rof-
in, og grundvellinum undir mann-
legu samstarfi í burtu kipt. ‘Hrörn-
ar þöll, sú es stendr þorpi á, hlýr
at henni börkr né barr,” segir i
Hávamálum. Og þeim verður lifið
áreiðanlega ömurlegt og snautt, sem
engum trúir og engum treystir. Það
tnunu menn sanna og það hafa þeir
sannað.
En trúin á aðra menn, ekki siður
en .trúin á eigin mátt og megin, get-
ur orðið viðsjárverð ef skynsamlegs
hófs er ekki gætt. Oftrú á aðra
menn getur leitt margan í gönur og
valdið sárum vonbrigðum, vegna
þess að ýmsir menn eru svo ófull-
komnir og gallaðir, að þeir verð-
skulda eigi fullkomið traust. Þeir
misnota traustið eða bregðast því,
jafnvel þegar mest reynir á. En
engu að síður, er trúin á mennina
oss nauðsynleg í skynsamlegu hófi.
Og alger vöntun áslíkri trú er bein-
linir veiklun, sálarleg veiklun, á
sama hátt og trúleysi manna á sjálfa
sig er veiklun, sem gerir menn að
lítt sjálfbjarga vesalingum.
Þá kem eg að þriðja og víðtæk-
asta stigi trúarinnar, trúnni á æðri
verur, trúnni á Guð. Enda þótt
trúin á mátt sinn ög megin og trúin
á mennina sé oss öllum harla mikils-
verð hjálp, þá er slíkri trú ávalt
þröngur stakkur skorinn og henni
oft harla ömurleg takmörk sett.
Þessvegna hafa menn heldur aldrei
getað látið sér nægja slika trú ein-
göngu, að minsta kosti ekki til
lengdar. .Þeir hafa stefnt hærra
Þeir hafa trúað á tilgang og tak-
mark í tilverunni og mannlífinu.
Þeir hafa trúað á æðri mátt en þann,
sem bjó í þeim sjálfum. Þeir hafa
trúað á eilifðina og GuÖ. Og þá er
að spyrja: Er slik trú hégómi ? Er
hún vitleysa eða veiklun, sem á að
vinna gegn og uppræta ? Eða er hún
það dýra hnoss, sem oss öllum ber
tn
untin,
f
s,
etvice
INCLUDES not merely a fine and correct mechanical equip-
ment. It means also the willing co-operation of a trained
and experienced staff, whose wide experience goes far
towards satisfying the exacting demands of those customers
who are particular about the appearance of their office
stationery and their business announcements.
Over Forty Years of Printing — Publishing — Engraving
is the record of the
COLUMBIA PRESS LIMITED
695 SARGENT AVENUE,
WINNIPEG
TELEPHONES 86 327-8