Lögberg - 21.07.1938, Blaðsíða 6

Lögberg - 21.07.1938, Blaðsíða 6
ö LÖGBERG, FIMTUDAGINN 21. JÚLÍ, 1938 Qlfllftí'INN j Eftir GEORGE ( OWEN , 11 BAXIER | Benn Plummer svaraði (*kki með öðru en {>ví, að hann fnæsti; svo hlupu þeir hlið . við hlið inn á skrifstofu Shriners.. Varðmennirnir tveir, sem stóðu þar, viku til hliðar, er þeir sáu þá koma. A gólfinu lá sheriffinn. Hann hafði getað velt sér þannig, að nú lá hann í miðju herberginu, og komið sér þannig fyrir, að hann studdi baki upp að skrifborðinu. I þessum stelling-um starði liann á flóttamennina með reiðibólgnu and- litinu. Var það að þakka vasaklútnum, sem var vel troðið upp í hann. Benn Plummer stundi. Hann var sár- gramur af að sjá þessa þrjá menn svona ná- lægt sér og geta ekki hefnt sín á þeim. Því Tom ýtti á eftir honum með skammbyssuna á lofti. Með reiðiöskri þaut Plummtu í gegn- um litla anddvrið og út á dyraþrepin. Með að líta einu sinni niður eftir göt- unni sá Tom, að nú var hver sekúndan dýr- mæt. Fólkið hljóp fram og aftur. Frá veit- ingahúsinu kom })að hlaupandi í áttina til lians. Hann sá einnig, að þar var kominn gestur hinum megin við götuna, beint á móti fangelsinu. Af forvitni hafði hann stokkið af baki til að vita, hverju þetta sætti. Hest- urinn var grár, háfættur og allur fallegur að sjá, en eigandinn skálmaði inn í búðina með byssuna í hendinni. Tom var sem fyr fljótur að ákveða sig. Því stökk hann í einu kasti niður þrepin. Það fyrsta var að koma Benn á bak Captain. Svo varð hann að ná þeim gráa hinum megin göt- unnar. “Farðu á bak þessum hesti,” skipaði liann Benn. “Hamingjan góða,” sagði Benn og greip andann á lofti. “Captain- Svo . . . svo þú ert . . “Skugginn, ef það getur komið þér af stað. Flýttu þér á bak og út úr básnum, skil- urðu það?” Bldfljótt augnatillit, fult af aðdáun og virðingu, var svarið, sem Tom fékk frá Benn, því tíminn var naumur. Hann veifaði hend- inni til merkis um, að hann væri tilbúinn að ríða gegnum helvíti. ef Skugginn skipaði lionum það og stökk á bak Captain. Þegar Tom kom niður á götuna, sneri hann sér við og sá Benn steita hnefann í átt- ina til veitingahússins. Svo hljóp hann yfir götuna, hann sá gestinn og kaupmanninn miða á sig byssum í gegnum gluggann. Ilann skaut í efstu rúðuna, og brotin voru ekki öll dottin, er þeir beygðu sig niður. Þá langaði ekki til að vera skotmark Skuggans. Það heyrðust skothvellir niðri á götunni, það var skotið úr gluggum og dyrum, enda sendi Tom þeim nokkur skot á móti. Hann miðaði hátt til að láta þá vita, að hann væri með skammbyssu, og réttast væri fyrir þá að gæta að sér. ( Ömeiddur náð'i hatnn Grána. Á næstu sekúndu sat hann í hnakknum. Um leið kváðu við böllxenir innan frá búðinni, þar sem að gesturinn sá, að hann fengi að súpa seyðið af þessu. Hann hefði ekki brugðið svona við, ef hesturinn hefði ekki verið jafn góður og hann leit út fyrir að vera — eða jafnvel betri. Tom snéri hestinum við og þaut eins og ör niður götuna, og skotin hvinu alt í kring- um hann. Einungis var það heppnin og flýtirinn, sem höfðu bjargað Tom frá morðkúlum þess- um. Þetta skeði alt á nokkrum sekúndum. Varla hafði maðurinn, sem var að leita að Joe Shriner, byrjað að kalla uppreisnina, þegar Tom og Benn lögðu af stað út úr þorp- inu. Þegar þeir beygðu fyrir götuhornið, voru þeir komnir í hlé fyrir kúlunum. Tom sá nú, að Benn beið eftir honum í stað þess að bjarga sjálfum sér. Tom gat ekki annað en virt það við hann, og þetta var fyrsta vina- lega tilfinningin, sem hann fann til gagnvart þessum manni, sem hann hafði hætt lífi sínu fyrir. 1 fyrsta skifti sá Tom Captain á ferðinni. Skepnan var jafn undursamleg að sjá og vera á baki hennar, og þó hann hefði meira en nóg að hugsa þessa stundina, varð hann að láta eftir sér að dáðst að hans langteygða, svíf- andi valhoppi, honum fanst eins og það væri skuggi, sem svifi áfram, en ekki líkamningur. Gráni var ekki jafn sveigjanlegur, þó hélt hann alveg taktinum við Captain. Það var ekki-að undra, þótt Skugginn á þessum hesti hefði getað hæðst að þeim, sem voru að elta hann sí og æ. í þorpinu hafði alt komist á hingulreið. Hófatakið og köllin heyrðust á bak við þá. Þeir voru komnir út á autt svæði og voru á hann, en Skugginn liafði á tdfinningunni, að fyrstu hæðinni, þegar þeir sáu reykjarmökk í götu endanum. Það bar vott um, að eltinga- leikurinn var hafinn. Þrátt fyrir hina löngni reið um nóttina, mundu þeir aldrei ná í Captain. Tom áleit sér sæmilgea borgið á Grána, hann var fjor- ugur og óþreyttur. Einhver stríðnislöngun fékk Tom til ða hægja á sér og líta við. Við hliðina á honum var Benn náfölur, þótt- hann væri freknóttur. Það var samt auðséð, að það var ekki fölvi, sem kom af hræðslu, held- ur af hrifningu yfir gerðu hreystiverki. Aug-u hans glömpuðu. Hann vogaði sér ekki að yrða á jafn mikinn mann og Skugg- ann, fyr en hann sjálfur yrti á hann — það sást greinilega — að hann brann af eftir- væntingu. Tom rétti út höndina og dró riffil úr hylki, sem var við hnakkinn á Captain. Það var riffill Skuggans, og þegar Tom tók hann og reyndi jafnvægið, gat hann ekki að því gert að láta í ljósi aðdáun sína og undrun. Riffillinn var eins og smíðaður til að hafa á hestbaki. Ef honum var haldið með báðum höndum, virtist hann ekki þyngri en skamm- byssa í annari hendinni. Tom miðaði. “I þessa átt? ” sagði Benn Plummer og greip andann á lofti. Hn rifilskotið stöðvaði hann. “Einn — tveir — þrír hvellir. Fyrir framan hópinn, sem elti þá, sáust nú þrír mekkir af kúlum. Þeir stöðvuðu því hesta sína, örvinglaðir við þessari aðvörun, meðan skothvellirnir bergmáluðu milli fjallanna. “Þetta hefði eg svarið við himin og jörð, að þér gætuð skotið svona, þó eg vissi að þér væruð góð skytta.” Tom hló glaðlega um leið og hann setti aftur rifflinn á sinn stað. Þetta mundi fá þá til að hugsa sig um, áður en þeir kæmu of nærri. Þeir mundu gefa honum svolítið svig- rúm, og það var einmitt það, sem hann þurfti með í héraði, sem hann var jafn ókunnugur, og á hesti, sem hann þekti ekki. Ilann gaf honum lausan tauminn, og svo riðu þeir niður fyrir hæðina. Og mennirnir bak við þá héldu nú áfram að elta þá. En Tom eyddi ekki miklum hugsunum á þá. Við- burðirnir í Carlton mörkuðu margar myndir í huga hans, en upp úr þessu öllu kom ein mynd í ljós, sem hafði brent sig í sálu hans. Það var myndin af ungu stúlkunni á silfurgráa hestinum. Það var hennar vegna, sem hann hafði lagt alt þetta á sig, og sem mundi koma öllu í uppnám um alt héraðið. Hann hafði yfirunnið hinar gífurlegustu hættur, og nú gat hann líka fært henni að gjöf uppfylling heitustu óskar hennar. XX Sylvía fær fáheyrða fregn. Sama dag sat Sylvía alein í herbergi sínu og hugsaði um Skuggann og afbrot hans. Jess Shermans-morðið hafði haft feikna mikil áhrf á hana, ekki það í sjálfu sér, hvað það var mikil óþokkaskapur, heldur af því að maðurinn hafðl hagað sér svo dýrslega. Um leið og hann hafði verð búinn að hefná sín, hafði hann komið til hennar og viljað bindast henni að eilífu. Það fór um hana hrollur, er henni datt í hug morðingjahendur hans, og hún hugsaði með ótta og skelfingu til þess loforðs, sem hún hafði gefið honum: Loforð um að hún skyldi verða hans og fylgja honum, ef hann næði Benn út úr fangelsinu. Eins og hún óskaði þess innilega, að fósturforeldrar hennar fengju soninn aftur, eins var hún hrædd að hugsa til þess, sem hún átti að borga fyrir. Dauft blísturshljóð heyrðist langt í burtu í kvöldkyrðinni. Það var þetta langdregna hljóð frá einmana uglu — einmanalegasta hljóð, sem til var í náttúrunni. En þegar ugluvælið endurtók sig, stökk hún upp og rauk með það sama út í gluggann. Henni datt alt í einu í hug, hvernig Benn Plummer fyrir langa löngu hafði æft sig í að væla eins og ugla og verið að reyna að kenna henni það líka. En hún hafði aldrei orðið jafn fær í þeirri list og hann. Hún smeygði sér út í gluggann. Enn heyrðist hljóðið langdregið og blítt. Nei, það var ekki eins langt frá og hún liafði haldið fyrst. Líklegast ekki lengra en ofan frá hæðinni, og það var eitthvað í hljóð- inu, sem kom henni til að halda, að það hlyti a vera Benn Plummer. Það var ekki alveg eins vonleysislegt og annars, auðvitað af því að hann vantaði æfinguna núna. En ef þetta var Benn, því kom hann þá ekki nær? Fanst honum ástæða að vera að spauga fyrst? En svo mundi hún það, að hann varð að leynast einhversstaðar. Hefðu þeir brotist út úr fangelsinu, mnndi verða leitað að honum, og þá auðvitað fyrst og fremst á heimili hans. Gat það annars virkilega verið liann? Var }>að mögulegt, að Jim, þrátt fyrir alt, hefði rðið til Carlton og brotist inn í fang- elsið til að frelsa Tom? Iljartað stöðvaðist næstum í brjósti hennar við tilhugsunina. Hið hræðilega loforð, sem hún liafði gefið Skugg- anum, fylti hana skelfingu. Nú heyrðist ugluvælið í þriðja sinn. Nú var hún alveg viss. Hann hætti í miðju kafi. Hann hafði ætlað að herma eftir uglunni, en mishepnaðist algjörlega. Þetta var Benn að kalla á liana. Það hlaut að vera hann, livað sem skyn- semin tautaði. Skynsemin sagði henni, að liann væri langt í burtu, sæti í Carlton-fang- elsi. En kannske var hann — já, liversu un- aðsleg tilhug.sun — kannske hafði hann brot- ist út upp á eigin spýtur. Nú sá hún til ferða Benn. Hann var alveg að komast að húsinu. Hún fyltist fögnuði við að sjá uppeldisbróður sinn frjálsan á nýjan leik. Hún hlakkaði til að sjá gleði fóstur- foreldranna, þegar þau fréttu, að sonur þeirra væri laus úr prísundinni. Uppeldissystkinin heilsuðust í flýti, og strax eftir fyrstu kveðjuorðin spurði Sylvía: “Hvernig slapstu út, Benn?” “Skugginn bjargaði mér út. Hann kom aleinn inn í fangelsið, yfirbugaði Shriner og alla hans menn, tók af þeim lyklana og hleypti mér út. Þú hefðir bara átt að sjá, hvað þeir voru hræddir við hann.” Benn var auðsjáanlega yfir sig hrifinn af afreksverki Skuggans. En Sylvía var ekki eins gagntekin af lirifningunni. Hún hafði gefið Skugganum ákveðið loforð, ef hann ynni þetta verk fyrir hana. Hann hafði nú staðið við sinn hluta samningsins. Hvernig átti hún þá að geta veigrað sér við að standa við hann af sinni hálfu? , Þungbúin á svip spurði hún: “Hvað drap hann marga ? Hvað marga, Benn?” “Ekki einn einasta,” sagði ungi maður- inn. “Ekki svo mikið sem einn. Hann vildi ekki einu sinni leyfa mér að gera eins og eg vildi. Hann þorði ekki að trúa mér fyrir skammbyssu, af því að hann var hræddur um, að eg myndi nota hana. ” Sylvía vissi ekki, hvað hún átti að lialda um þetta. Það var ekki líkt Skugganum, sam- kvæmt þeim sögum, sem um hann gengu, að þyrma lífi fjandmanna sinna. En ef til vill voru þessar sögur allar helber uppspuni, ef til vill hafði ást hans á henni yfirunnið grimd hans. Hvernig svo sem í þessu kynni að liggja, ákvað hún að standa við loforð sitt. “Eg kem með þér, Benn,” sagði hún ein- beittnislega. Hún skrifaði kveðjuorð til fósturfor- eldra sinna, þar sem hún bað þá fyrirgefn- ingar á þeirri sorg, sem hún kynni að hafa valdið þeim. “En nú er Benn frjáls, og þess- vegna verð eg að fara.” Þannig endaði hún bréf sitt. Síðan læddust uppeldssystkinin á brott. Um leið og þau fóru á bak hestunum, heyrðu l>au hófadyn í fjarska. “Það eru einhverjir að koma,” sagði unga stúlkan. , “Það eru margir. Heil hersing. ” Hin glöggu eyru Benns höfðu heyrt, að hófdynurinn var frá fjölmörg-um hestum. Ifann lyfti hendinni til að vara hana við að segja nokurt orð, og sneri hesti sínum gegn vindinum, sem blés úr þeirri átt, sem reið- mennimir komu úr. “Þeir koma þjóðveginn, lield eg,” hvísl- aði liann. Hann hinkraði við eina mínútu. “Nú hafa þeir snúið inn á hliðarveginn. Þeir eru alveg komnir upp að húsinu.” Þau þurftu ekki að hlusta lengur til að fylgjast með stefnu reiðmannanna. Frá hæð- inni gátu þau séð f jölda marga reiðmenn, sem þeystu heim að býli Plummers. “Það er eg, sem þeir eru að leita að,” sagði Benn Plummer. “Flýttu þér heim, Sylvía. Eg fer einn. ’ ’ Áður en hann hafði talað út, staðnæmdist reiðmannahópurinn fyrir framan húsið með miklum hávaða og köllum, sem orsökuðu, að Plummer opnaði gluggann augnabliki síðar til að spyrja um, livað væri á sevði. XXII. Skugginn aftur. Því meir sem Jim Co'chrane velti fyrir sér þeim möguleika, að Sylvía Rann mundi hitta Tom Oonverse, því órólegra varð hon- um innanbrjósts. Hann þekti ungu stúlkuna nógu vel til að hafa vitneskju um hið róman- tíska skaplyndi hennar, sem komið hafði henni til að taka málstað hans sjálfs. Ein- göngu vegna þess að allir hötuðu hann og óttuðust, hafði hún tekið upp hanskann fyrir hann af blindri þrákelkni. Hún hafði að vísu aldrei nefnt neitt í þá átt, að hún elskaði það væri atriði, sem komið var undir hreinni og skærri tilviljun. Nii inundi hún hitta alt annan maim, mann, sem svikinn hafði verð á hinn lúaleg- ast ahátt og lífi hans stofnað í hættu af þeim manni, sem hún fram til þessa hafði borið traust til. Það var sjálfsagður hlutur, að hún mundi trúa því, sem frelsari bróður lienn- ar mundi segja henni. Og hvaða áhrif mundi það hafa á hana ? Þetta hafði alt farið á aðra lund en Skugginn hafði áætlað. Tom Converse hafði gert hvert þrekvirkið öðru meira, svo að þau skygðu alveg á djörfustu afrek Skuggans sjálfs. Skugginn gat ekki annað en undrast fífldirfsku hans. En bak við undrunina fólst ótti. Var það ekki merkilegt, að maðurinn, sem hann hafði fest við nafn sitt og orðstír, skyldi búa yfir eiginleikum, sem sköpuðu meiri styr um nafn lians en nokkru sinni áður ? Nafn Skuggans, hestur lians og frægð hafði skyndilega færst yfir á annan mann. Og livað nú — eftir að Tom Converse hafði gert ungu stúlkunpi, sem Skugginn elskaði, svona stórkostlegan greiða? Hver mundi árangurinn af því verða ? Það var ekki nema um einn kost að velja — aðeins einn: Að koma í veg fyrir, að hún liitti Tom Converse. Og um það varð Skugg- inn sjálfur að sjá. En í fyrsta lagi var Tom Converse liættulegur andstæðingur, og í öðru lagði hafði hann Benn Plummer auðvitað á sínu bandi, og sá maður, sem gerði Benn mein, skyldi ekki voga sér að láta Sylvíu sjá sig. Miklu hyggilegra væri að láta hina lög- legu réttvísi útkljá málið. Hjákátleikinn í að- ferðinni féll honum vel. Glæpamaðurinn notaði arm laganna í þjónustu sína ! Hann hélt rakleiðis til Carlton-borgar- innar. Eins og hann hafði búist við voru á kreiki allskyns sögur um þenna ótrúlega atburð, sem gerst hafði. En það, sem undraði hann mest og særði liann um leið, var það, að nú lieyrði hann löghlýðna borgara í fyrsta skiftið tala um Skuggann með nokkurri hluttekningu. “Hann hefði getað myrt Shriner og þrjá af mönnum lians,” var sagt. “Iiann liefði getað opnað livern einasta klefa í fangelsinu. 1 því voru þrjátíu glæpamenn af hinni allra verstu tegund. Þeim hefði hann getað slept á Carlton-borg, látið þá ræna og rupla og sleppa inn á milli fjallanna með fenginn.” En ekkert af þessu hafði Skugginn gert- Hann liatði í rauninn ekki gert annað en að taka ein kyndil úr bálinu. Benn Plummer var aðeins álitinn barn, sem fremur bæri að hlæja að en meðliöndla sem glæpamann. Það var ekki auðvelt að skilja, hvað gengið hafði að manninum. Hann var annars ekki vanur að koma vel fram eða láta nokkurt tækifæri ónotað til að gera öðrum mönnum mein. Hinn raunverulegi Skuggi lilustaði 'og skildi. Fyrsta þrekvirkið, sem Tom Converse gerði í nafni hans, undirstrykaði mismuninn á æfintýramanninum og glæpamanniimm. Við athugun á hinum drengilegu aðferðum Tom Converse sá hann sín eigin afbrot eins og þau voru, í öllum þeirra blóðuga and- styggilegleika — og liann liataði Tom Con- verse og allan heiminn miklu meira en áður. “Ætli þeir nái í hann ?” spurði Skugg- inn einn af þeim, sem nálægt voru. “Nái í hann ? Það veit eg ekki. Það hefir fyr verið sagt, að ekki væri hægt að höndla Skuggann, en úr því að tekist hefir að sjá framan í hann, ætti það ekki að vera eins erfitt. Að minsta kosti hafa þeir spor- liundar, sem elt liafa liann hingað til, aldrei jafnast á við þá, sem nú ern að verki.” “Ekki það ?” “Nei. Algie Thomas hefir tekið for- ustuna, og Joe Shriner reið burt frá Carlton strax og liann var laus. Hann fór beina leið til Algie Thomas. Hann sagði ekki margt, heldur krafðst aðeins að fá að vinna undir forustu lians sem einskonar aðstoðarmaður. Og nú er Algie hérna hæstráðandi. ” “Vill Shriner fara eftir skipunum ann- ara?” “Þótt undarlegt megi virðast, þá gerir hann það. Shriner er alveg utan við sig af því sem gerst hefir. Þetta er í fyrsta skiftið, skal eg segja þór, sem illa hefir farið fyrir honum, þetta er í fyrs.ta skiftið, að manni hefir tekist að sleppa úr fangelsinu síðan liann varð sheriffi, og þetta er í fyrsta skiftið, sem nokkur maður hefir leikið hann svona grátt. Hann hefir ekki eirð í sínum beinum fyr en hann nær í Skuggann dauðan eða lif- andi. ’ ’ “Eru þeir að safna liði?” “Já. Og þeir eru vandlátir. Þeir hafa aðeins menn, sem hafa fráa hesta, og það eiga að vera menn, sem ekki eru hræddir og kunna að fara með riffil og skammbyssu. Ef þú ætlar þér að komast í liðið, verðurðu að flýta þér að segja til þín.”

x

Lögberg

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.