Lögberg - 06.10.1938, Page 1

Lögberg - 06.10.1938, Page 1
M.ARÖANGUR WINNIPEG, MAN., FIMTUDAGINN 6. OKTÓBER, 1938 NÚMER 40 FRÉTTIR Fjórar aukakosningar til sambandsþings Mr. King, forsætisráÖherra gerði þaÖ heyrinkunnugt í vikunni sem leið, að aukakosningar í fjórum kjördæmum fari fram þann 14. nóvember næstkomandi; þessi kjör- dæmi eru Brandon, Waterloo South, London og Montreal-Cartier; öll losnuðu þessi kjördæmi við dauða þingmanna sinna, er kosnir voru í almennum kosningum 1935. Mr. King lét þess getið, að sá væri ein- drægur vilji sinn, að hinn nýkjörni leiðtogi ihaldsflokksins, Dr. Man- ion, hlyti kosningu gagnsóknarlaust ef hann skyldi ákveða að bjóða sig fram í einhverju þessara fjögra kjördæma; mun nokkurn veginn mega telja það víst, að hann leiti kosningar í London kjördæminu. ♦♦♦♦♦ Tuttwgu og fimm ára afmæli Málgagn frjálslynda flokksins í Canada, The Canadian Liberal Monthly, átti tuttugu og fimnKára afimæli í síðastliðnum september- mánuði- Fyrsti ritstjóri þessa vin- sæla og fróðlega mánaðarrits, var núverandi forsætisráðherra cana- disku þjóðarinnar, Rt. Hon. W. L. Mackenzie King. I formála að hinu fyrsta eintaki mánaðarrits- i'ns, fórust Mr. King orð á þessa leið: 1 “Tilgangur þessa mánaðarrits er og verður alla jafna sá, að sam- eina í órjúfandi brjóstfylkingu þau öfl, er í frjálslyndisáttina stefna, og miða að andlegum og efnalegum þroska óskiftrar þjóðheildar.” Rit þetta hefir frá upphafi vega sinna verið prýðilega úr garði gert og átt ágætum mönnum á að skipa. Núverandi ritstjóri þess er Walter B. Hubert, B-A., sem um nokkurt skeið var búsettur í Winnipég og veitti forstöðu floksskrifstofu frj álslyndu stjórnmálasamtakanna. ♦♦♦♦♦ fírgnni þörf veltufjár en fólks Landbúnaðarráðherra sambands- stjórnarinnar, Hon. James G. Gar- diner, er nýkominn til Ottawa úr ferðalagi um Vesturlandið. I sam- tali við blaðamenn lét hann þannig ummælt, er heim kom:: “Eins og til hagar í Sléttufylkjunum um þess- ar mundir, er þar auðsjáanlega hrýnni þörf á auknu veltufé en fjeira fólki.” Setja mann til höfuðs Dr. Manion Símað er frá London, Ont., þann 30. f. m-, að C.C.F. flokkurinn hafi ákveðið að útnefna þingmannsefni til þess að keppa við Dr. Manion, foringja íhaldsflokksins við auka- kosningu þá til sambandsþings, sem fram fer í London-kjördæmi þann 14. nóvember næstkomandi. Fram- bjóðandinn verður E. O. Hall. Mr. Woodsworth, leiðtogi C C.F. flokks- ins segist ekki hafa verið spurður ráða í þessu tilliti; kjósendur ráði þar einir um; svo eigi það líka að vera. ♦♦♦♦♦ Aðdáandi Adolf Ilitlers Bandaríkja senatorinn Edward R. Burke, Demokrat frá Nebraska, er nýkominn heim úr ferðalagi um Mið-Evrópu; hann staðliæfir að innlimun Sudetenlands í Þýzkaland hafi margt og mikið til síns ágæfis; hann kveðst hvergi hafa orðið var við óánægju á Þýzkalandi; um at- vinnuleysi sé þar naumast að ræða; Hitler hafi útilokað það; enda se TVEIR FRÆ.GIR ENSKIR LEIKARAR r ' ' ..... —-f—- •' - Sir Cedric Hardwicke Charles Wkirburton Canadian Broadcasting Corporation hefir hlutast til um það, að leiknir verði yfir útvarpið 11 Shakespeare leikir á næstunni. Fyrsti leikurinn hefst þann 9. þ. m,, frá 9—10 e. h. Eastern Standard Tirne; er það “The Merchant of Venice.” Sir Cedric Hardwicke hefir með höndum hlutverk Shylocks, en Charles Warburton leikur hertogann af Venice.— ekki um það að villast, að hann sé meiri maður en Bismarck, jafnt i afskiftum utanrikismála sem innan- landsmálum. ♦♦♦♦♦ Skýlaus réttur til hlutleysis Mr. Georges H. Heon, K.C., sam- bandsþingmaður frá Montreal, flutti ræðu á fundi iðnráðs Winnipeg- borgar á fimtudaginn i vikunni sem leið. Mr- Heon er i tölu hinna allra yngstu sambandsþingmanna; hann fylgir íhaldsflokknum að málum. “Vér, fransk-canadiskir menn, lít- um þannig á, að Canada sé ekki framar ensk nýlenda, heldur full- veðja N’orður-Ameríku þjóð, sem fulla ábyrgð beri á meðferð utan- ríkismála sinna; þar af leiðandi geti hiún samkvpemt stjórnskipulegum rétti lýst yíir hlutleysi sinu þó Bret- ar lendi í stríði,” sagði Mr, Heon. ♦♦♦♦♦ Rússar óánægðir Fregnir frá Moscow láta þess getið, að rússnesk stjórnarvöld séu næsta óánægð út af fjórveldafund- inum í Munich og niðurstöðu hans i sambandi við Sudetendeiluna; eru þau þeirrar skoðunar, að Hitler hafi verið þar aðal sigurvegarinn og að með undirskrift þessa samnings hafi bolmagn hans í Mið-Evrópu verið styrkt til muna á kostnað lýð- ræðisþjóðanna. Megin málgagn rússnesku stjórnarinnar, dagblaðið Izvestia, fer lofsamleguni orðurri um tilraunir Roosevelts forseta i áttina til málamiðlunar og uppá- stungu hans um það, að kvatt yrði til alþjóðaráðstefnu viðvíkjandi fram- tíðarafstöðu Czechoslóvakíu. ♦♦♦♦♦ Páfinn ávarpár þjóðir heims Þann 29. f. m- flutti páfinn ræðu, sqm útvarpað var til allra þjóða heims; lét hann meðal annars þann- ig ummælt: “Með það fyrir aug- um, að afstýra yfirvofandi stríðs- hættu, vil eg skora á þjóðir heims, að leita styrks í hinu ósýnilega afli bænarinnar, sem eitt er líklegt til blessunarríkrar úrlausnar á vanda- málum mannkynsins.” ♦♦♦♦♦ Alit Runcimans lávarÖar ' Eins og þegar er vitað, dvajdi Runciman lávarður um hrið í Prag til þess að reyna að miðla málum vegna Sudetendeilunnar; um árang- urinn er þegar kunnugt. 1 álitsskjali sínu til hinnar brezku stjórnar, fór- ust honum meðal annars þannig orð : “Þáð er alla jafna hart aðgöngu, að láta óskyldan þjóðflokk ráða yfir sér; þetta nær engu síður til Sudeten Þjóðverja, en annara þjóðbrota, sem líkt er ástatt með: Skoðun mín er sú, af þeirri viðkynningu, sem eg hefi haft af Sudetum í Czechosló- vakiu, að þó ekki verði réttilega sagt, að þeir hafi verið beittir veru- legri harðstjórn, þá verði á hinn bóginn ekki um það vilst, að stjórn- ina hafi oft og einatt skort háttlægni í sambúðinni við þá og afstöðunni til hugðarmála þeirra. Hagsmuna- leg afkoma Sudeta var harla bág- borin, og þegar þeir fóru að virða fyrir sér uppgang þýzku þjóðar- innar, fanst þeim það lítt viðunandi, að verða Um aldur og æfi eftirbátar hennar.” Frá Islandi ISLENZU ... HLJÓMLEIKARNIR á norrænu tónlistarhátíðinni í Kaup- mannahöfn hafa vakið mikla athygli. Fara dönsk blöð yfirleitt viðurkenn- ingarorðum um þá, þótt eigi séu þau á einu máli. Bezta dóma hinna ís- lenzku tónskálda fær Páll ísólfsson. Eru blöðin yfirleitt á einu máli utn að telja hann eftirtektarverðagta tónskáldið, er komi fram á hátiðinni fyrir hönd íslendinga. Tónverk Jóns Leifs eru allmjög gagnrýnd af blöð- unum. Þó talar “Berlingske Tid- en'de” 'ttm “áhrifamikið hugarflug” i tónverkum hans og telur hann sjálfan “fjörmikinn hljómsveitar- stjórnanda.” Annars finst þessu blaði mest til um þjóðlög Sigfúsar Einarssonar, útsett af Felumb. María Markan fær einnig góða dóma. —Nýja dagbl. 6. sept ♦ ♦ ♦ FANNKOMA A NORDA USTURLANDI Veður hefir verið mjög hryss- ingslegt á Norðausturlandinu tvo síðustu daga. í gær var þar hríðar- veður af austri og gerði alhvíta jörð niður til sjávar í Þistilfirði, á Langa- nesi og í Vopnafirði. Hefir snjóað i þessum bygðar- lögum í öllum mánuðum ársins, þótt eigi hafi kveðið jafn mikið að því í júní og júlí sem nú. —Nýja dagbl. 30. ág. ♦ ♦ ♦ • SA UÐFJARSLATR UN HAFIN Sauðfjárslátrun var hafin í gær i Reykjavik, Hafnarfirði, Siglufirði, á Akureyri, Eyrarbakka og við Ölfusárbrú. Er það nokkuru siðar heldur en verið hefir undanfarin sumur. Verðið á dilkakjötinu hefir hér í Reykjavík verið ákveðið kl. 1.80 í heildsölu, en kr. 2.10 hvert kg. i smásölu. Jafnframt lækkar verð á frystu kjöti og verður það selt á kr. 1.20 hvert kg. í heildsölu, en kr.. 1.40 í smásölu. Verð á nýju kjöti er því hið sama og um þetta leyti í fyrra. —Nýja dagbl. 30. ág. 0r borg og bygð Veitið athygli auglýsingunni um þakkarhátíðar skemtunina, sem Kvenfélag Fyrsta lúterska safnaðar efnir til í kirkjunni. Er skemti- skráin hin vandaðásta, og þarf því ekki að efa að hún verði næsta f jöl- sótt. ♦ ♦ ♦ Til borgarinnar komu úr íslands- för á sunnudagsmorguninn, hr. 4s- mundur P. Jóhannsson bygginga- meistari ásamt frú sinni; Guttorm- ur J. Guttormsson skáld frá River- ton og frú Hólmfríður Danielsson frá Árborg. Þau Ásmundur og frú höfðu verið fimm mánuði að heim- an og dvalið lengst af á Islandi. Guttormur fór heim í vor sem gest- ur islenzku þjóðarinnar, og leit ís- land augurn hið fyrsta sinn í þess- ari för. Þetta var einnig fyrsta heimsókn frú Hólmfríðar til ætt- jarðarinnar. Auðséð var á öllu, að vel hafði ísland fóstrað þessi óska- börn sín i sumar; enda létu þau öll lofsamlega af dvölinni heima. ♦ ♦ Laugardagskveldið 24. sept. lézt á heimili sinu vestur af Garðar einn af hinum eldri bændum sveitarinn- ar, Björn Þórðarson, 82 ára að aldri. Björn sál. var fæddur 16. sept. 1856 á Neðri Torfastöðum í Staðarbakka- sókn í Húnavatnssýlu. Foreldrar hans voru Þórður Narfason oif Guðrún Árnadóttir. Fyrir 58 árum giftist hann Guðrúnu Teitsdóttur. Settust þau að i Garðarbygð um 1885. Eignuðust þau tvær dætur og fjóra syni og af þeim lifa nú ein dóttir og tveir synir. Björn sáh var merkismaður, dug- legur og starfsamur, bókhneigður og fróður. Jarðarför hans fór fram frá heimilinu og Garðarkirkju fimtudaginn 29. sept. Fylgdu hon- um margir til grafar. Séra H. Sig- mar jarðsöng. ♦ ♦ ♦ Mrs. Þórey Erlendsson, 82. ára gömul ekkja Guðmundar heitins Er- lendssonar, er lézt að Gimli sumarið 1935, andaðist á Almenna spitalan- um hér í borginni þ. 18. sept. -.1. Var ættuð úr Árnessýslu, fædd að Þórustöðum í Grimsnesi þ. 18. júlí 1856. Foreldrar hennar Sveinn bóndi Jónsson og Halldóra kona hans Sigurðardóttir. Bræður Þór- eyjar voru þeir Einar gullsmiður og Sigurður múrari, er lengi bjuggu á Gimli. Báðir látnir þar fyrir nokk- urum árum. Þriðji bróðirmn, hér vestra, er Eyjólfur simiður Sveins- son hér í borg. — Þórey var tví- gift. Fyrri maður hennar, Sigur- jón Ketilsson, andaðist á íslandi fyrir mörgum árum. Börn hennar eru tvö á lifi, Sigríður, Mrs. Paul Robertson, að Steep Rock hér fylki og sonur er Sveinn heitir og á heima í Borgarnesi á íslandi. Hin látna kona lá langa legu í innvortis krabbameinsemd. Skyldfólk henn- ar, dóttir hennar og Eyjólfur bróðir hennar, og fólk þeirra, sýndu henni alla ræktarsemi og ástríki sem þau gátu. Sömuleiðis Sigriður mág- kona hennar og Mrs. Sigríður Gísla- son á Gimli. Útförin, undir um- sjón Bardals, fór fram frá kirkju Gimlisafnaðar þ. 20. sept. Séra B. A. Rjarnason jarðsöng. Við útför- ina töluðu þau Miss Sigríður Jóns- son frá Lundar og séra Jóhann Bjarnason. Mrs. Þórey Erlendsson var þrekkona og dugnaðar og var komin af myndarfólki í báðar ættir. ♦ ♦ ♦ Síðastliðinn laugardag voru gefin saman í hjónaband í Fyrstu lútersku kirkju, þau Miss Agustina Jóhanna Hördal og Mr. S. W. Gatehouse. Séra Valdimar J. Eylands fram- kvæmdi hjónavígsluna. Brúðurin Norðurálfu styrjöld afstýrt um elleftu stundu Fjórveldasamningur undirskrifaður í í Munich á föstudagsmorguninn.. Að samningnum átóðu, og átaðfeátu hann með undirskrift sinni, Cham- berlain, Hitler, Daladier ogMussolini. Með Munich samningnum, var yfirvofandi Norðurálfustríði ha*il- að um elleftu stundu. Hitler hefir fengið Sudetenland á frið- samlegan hátt og h@.ldið hátiðlega innreið sína í landið. Pólverjar hafa fengið þann hluta Czhechosló- vakiu ,er þeir gerðu tilkall til, og nú er verið að semja um hliðstæðar kröfur af hálfu hinnar ungversku stjórnar. Þeir Chamberlain og Hitler hafa gefið út yfirlýsingu um það, að þjóðir þeirra skuli aldrei framar berast á banaspjótum. Daladier forsætisráðherra Frakka, fékk í gær traustsyfirlýsingu í þing- inu með feikna afli atkvæða, vegna Munich samningsins, jafnframt ó- takmarkaðri heimild til þess að f ram. kvæma sérhverjar þær fyrirætlanir, er hann teldi nauðsynlegar fjárhag þjóðarinnar til tryggingar. Snarpar umræður standa yfir í brezka þinginu út af Munich-samn- ingnum og afkvistun Czechosló- vakíu; búist við að umræðum ljúki í dag. Talið víst, að Chamberlain gangi sigrandi af hólmi, þó flokkur hans verði eitthvað klofinn. Stjórn Breta hefir heitið Czecho- slóvakíu stjórn $50,000,000 láni til þess að koma þjóðinni á kjöl eftir afkvistunina. er dóttir Mr. Jóns Hördal frá. Lundar, en brúðguminn ættaður úr W innipegborg.— Af utanbæjarfólki, auk föður brúðarinnar og Sigríðar dóttur hans, var viðstödd Mrs. Gunnar B. Björn- son frá Minneapolis, Minn., ásamt börnum sínum f jórum, þeim Valdi- mar, Birni, Helgu og Stefaníu. — Ungu hjónin fóru þegar að aflok- inni vígsluathöfn i brúðkupsferð til Chicago. Framtíðarheimili þeirra verður í Winnipeg. ♦ ♦ ♦ VERZLUN ARMENTUN Svo að segja á öllum sviðum viðskiftalífsins, kemur verzl- unarmentun að góðu haldi; enda er hennar nú alment kraf- ist af þeim, sem reka verzlun og iðnaðarfyrirtæki. Þeir, sem atvinnu leita, eru venjulegast fyrst spurðir um það, hvort þeir hafi verzlunarskóla próf. Lög-berg selur námsskeið við fullkomnustu verzlunarskóla Vesturlandsins. Spyrjist fyrir um skilmála; það verður yður til drjúgra hagsmuna. KARLAKLÚBBUR FYRSTA LÚTERSKA SAFNAÐAR Fundur klúbbsins á miðvikudgs- kveldið í vikunni sem leið var fjöl- sóttur og ánægjulqgur mjög. For- sæti skipaði Mr. Eggert S. Feld- sted. Aðalræðumaður var séra O. S, Thorláksson og fjallaði erindi hans um utanríkismái, og laut eink- um að viðskiftum og viðureign Japana og Kína; var erindið fróð- legt á margan hátt. Mr. Jóhann G- Jóhannsson kynti fundarmönnum ræðumann, en séra Valdimar J. Eylands þakkaði séra Octavíusi er- indi hans.— Tveggja mætra og merkra lát- inna félagsbræðra, þeirra Dr. Björns B. Jónssonar og Alberts C. John- son, ræðismanns, nrintust þeir Dr. A. Blöndal og Mr. J. J. Swanson. 1 virðingarskyni við minningu þess- ara tveggja merku manna, risu fund- armenn úr sætum. Auk séra Octaviusar var Jónas Jónsson alþingismaður gestur fund- arins þetta kveld, og flutti við þetta tækifæri ítarlega ræðu. Dr. B. J. Brandson kynti hinn góða gest að heiman meðlimum karlaklúbbsins með snjallri og íturhugsaðri tölu. Þetta var fyrsti fundur klúbbsins eftir sumarfríið; hin mikla aðsókn, og andi sá, er á fundinum ríkti, spáir góðu um starfsferil klúbbsins á nýbyrjuðu starfstímabili. Nýja skipið Pálmd Loftsson forstjóri Skipaút- gerðar ríkisins kom til landsins í gærmorgun. Nýja dagblaðið hafði tal af Pálma og spurði hann frétta úr förinni. —Eg hefi gengið frá samningum um sölu Esju, eins og ykkur er kunnugt, segir Pálmi. Ríkisjárn- brautirnar í Chile keyptu hana, á- samt öðru skipi frá Bornholmsfé- laginu. —Hvenær fer Eesja héðan? —Skipshöfnin, sem á að sigla henni til Chile, er lögð á stað þaðan og mun verða komin hingað eftir tæpan mánuð. —Verður Esjan afhent eins og hún er? —Fyrst fer fram á henni botn- skoðun. Að öðru leyti hafa kaup- endurnir skoðað hana í Englandi. —Hefir verið gengið frá samn- ingum um smíði nýja skipsins? —Ekki til fullnustu. Álitlegustu tilboðin í smíði þess komu frá Sví- þjóð og Danmörku. Vaxtakjörin á eftirstöðvum byggingarkostnaðar eru öllu hagstæðari í Svíþjóð, en danska tilboðið hinsvegar heldur lægra, sem stafar af lægra gengi dönsku krónunnar en þeirrar sænsku. Sendiráðið í Kaupmanna- höfn mun ganga frá samningunum fyrir hönd ríkisstjórnarinnar, en frá þeim er gengið að öðru en því, að ósamið er um vaxtakjör. —Hvenær verður nýja skipið til- búið ? —Verði gengið frá samningum «um smíði þess nú þegar, getur það orðið tilbúið seint í júlí næsta ár. —Hvað er nýja skipið ætlað fyr- ir marga farþega? —Það getur flutt 160 farþega á farrými sem hægt er að hafa sem eitt farrými eða skifta niður í 1. og 2. farrými. Tilheyrandi farrýminu eru stórir salir. —Hver verður hraði skipsins ? —Skipasmíðastöðin ábyrgist 15 milna hraða. Getur það því farið milli Glasgow og Reykjavíkur á ca. 2j4 sólarhring. —Hvað er að segja um þetta skip með tilliti til strandferða? —Það er mjög vel hæft til strand- ferða, betur en nokkurt annað skip, sem þær hefir stundað. Auk þess að vera þetta hraðsekreiðara en t. d. Esju, hefir það 5000 teningsmetra kælirúm, rúm fyrir skepnur o. s. frv. Er hér í stuttu máli sagt, um fullkomlega nýtizku skip að ræða. —Nýja dagbl. 6. sept.

x

Lögberg

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.