Lögberg - 17.11.1938, Side 1

Lögberg - 17.11.1938, Side 1
PHONE 8G311 Seven Lines ,# ^ A> & •y „# a'or Better I»ry Clennins and Launtlry 51. ARGANOUR_________LÖGBERO, FIMTUDAGINN 17. NÓVEMBER, 1938 ______________NÚMER 46 Karlaklúbbur Fyráta lúterska safnaðar MR. PRANCIS H. STF.VENS Karluklúbburinn heldur fund í samkomusal kirkjunnar á fimtu- dagskveldiS þann 24. þ. m. Verður þar venju samkvæmt fram- reiddur kveldveröur og sest að borðum stundvislega kl. 6.15. Ræðumaður klúbbsins að þessu sinni verður Mr. Francis H. Stevens hinn víðförli, er meðal annars vitjaði Islands að áliðnu síðasta hausti, og skrifað hefir um land og þjóð margar ritgerðir hverja annari skemtilegri, er birtsti hafa í dagblaðinu Winnipeg Free Press. Mun Mr. Stevens skýra í ræðu sinni frá einu og öðu næsta nýstárlegu, er fyrir augu og eyru bar á íslandi, sem honum hefir hvorki unnist tími né rúm til þess að flétta inn i ritgerðir sínar. Þarna gefst okkar ungu mönnum sjaldgæft tæki- færi til fræðslu um land feðra sinna og mæðra; þeir ættu því að fjölmenna. Annars má vænta þess að þetta verði einn allra fjölsóttasti fundur K'arlaklúbbsins. FRÉTTIR SÆMD BÖKMENTA- VERÐLA UNUM NOBELS Ameríski rithöfundurinn, frú Pearl Buck, hefir hlotið bókmenta- verðlaun Nobels fyrir yfirstandandi ár; er þetta einkum fyrir bók henn- ar “Good Earth,” sem út kom fyrir sjö árum. Frú Buck er að mestu uppalin og mentuð í Kína, þar sem foreldrar hennar störfuðu að trú- boði; hún er fædd árið 1892, og er tvígift; skildi við fyrri mann sinn. Er hún önnur í röð þeirra ame- rískra rithöfunda, sem unnið hafa Nobels verðlaunin; hinn fyrri var Sinclair Lewis. ♦ VIDSKIFT ASAMNÍNGAR VIÐ BANDARIKIN Forsætisráðherra Canada, Mr. King, sem nýkominn er til Ottawa úr mánaðarferðalagi sér til heilsu- bótar, hefir lýst yfir þvi, að við- skiftasamningar milli Canada og Bandaríkjanna verði undirskrifaðir einhvern hinna næstu daga. Nú gildandi samningar milli þessara tveggja þjóða falla úr gildi þann 1. desember næstkomandi. Liklegt þykir að hinir væntanlegu samning- ar gangi canadisku þjóðinni mjög í hag. -f FRÁ BANDARIKJA- KOSNINGUNUM Fullnaðarúrslit þjóðþingskosn- inganna í Bandaríkjunum, sem fram fóru þann 8. þ. m., eru nú orðin kunn, og féllu.á þann veg, er Lögberg vék að í síðustu viku, þó eigi væri þá nema óljósar fregnir við hendina. Flokki Republikana jókst allmjög þingfylgi; bætti við sig 81 sæti í neðri málstofunni, en 8 í öldungadeild. Þó nýtur stjórn Roosevelts eftir sem áður yfirgnæf- andi meirihluta i báðum deildum þings. I Minnesotaríki gengu Re- publikanar sigrandi af hólmi; fengu kjörinn til ríkisstjóra Harold Stas- sen, frækilegan lögmann nýjan af nálinni, rúmlega þrítugan að aldri. t North Dakota, náði frambjóðandi Demokrata, John Moses, lögfræð- ingur, ríkisstjórakosningu, jafn- framt því sem senator Nye var endurkosinn með allmiklu afli at- kvæða umfram fráfarandi ríkis- stjóra, William Langer . Meðal sögulegustu atburða, er þessar nýafstöðnu kosningar leiddu fram á sjónarvsiðið, má hiklaust telja ófarir LaFollette í Wisconsin og Bensons samábyrgðarinnar í Minnesota. -f STÓRVELDIADOLF HITLERS Fréttaritari Winnipeg Free Press í London, Mr. Grant Dexter, komst nýverið þannig að orði í einni af ritgerðum sínum um Evrópumálin, að afstöðnum fjórveldasamningn- um í Munich: “Skoðanir manna eru margar og mismunandi um það, hvaða áhrif Munich-samningurinn hafi á fram- tíð brezka veldisins. Um eitt atriði sýnast þó flestir vera sammála; þeim kemur saman um það, að nú sé Þýzkaland orðið að stórveldi, margfalt umfangsmeira en því, sem Vilhjálmur keisari réði yfir. Þjóð Hitlers telur nú 80 miljónir íbúa, auk þess sem hún býr við aukið landrými og auknar auðsuppsprett- ur; hún ræður svo að segja lofum og lögum í Mið- og Suðaustur- Evrópu. Við slíkt hafði Bretland aldrei áður sætt sig, að nokkur ein þjóð yrði henni ofjarl í Mið- Evrópu.” -f FÆRIR SIG UPP Á SKAFTIÐ Símað et' frá Prag þann 14. þ. m., að Adolf Hitler krefjist enn á ný all áiitlegrar sneiðar af Czecho- slóvakíu, þó ekkert þýzkra manna búi á því landsvæði. Ekki er enn vitað hvaða undirtektir krafa þessi fær. -f ÞORSTEINN GÍSLASON SKÁLD LÁTINN Samkvæmt nýkomnum Islands- blöðum lézt Þorsteinn skáld Gísla- son að heimili sínu í Reykjavík þann 20. október síðastliðinn tæpra 72 ára að aldri. í fyrra lá hann á sjúkrahúsi um nokkurt skeið, hrest- ist þar nokkuð og komst á fætur, þó ávalt kendi hann sama sjúk- dómsins upp frá því. Þorsteinn var vinsælt ljóðskáld og einn af áhrifa- mestu blaðamönnum íslenzku þjóð- arinnar. Meðal systkina hans er Hjálmar rithöfundur í Winnipeg. Mr. og Mrs. L- C. Parmenter of Newport, Vermont, are visiting Mrs. Parmenter’s sister, Mrs. Fred Thordarson, 996 Dominion St. Mrs. Parmeter was formerly Jónína Thorbergson of this city. Ur borg og bygð Dr. Richard Beck, prófessor við ríkisháskólann i North Dakota, kom til borgarinnar á föstudaginn og dvaldi hér fram á sunnudag. Hann kom til þess að sitja fund fram- kvæmdarnefndar Þ jóðræknisfé- lagsins. -f -f Gefin saman í hjónaband þ. 9. nóv. s.l., voru þau Mr. Vilhjálmur Thomas Fedor Thórðarson frá Hecla og Miss Caroline Clementine Stevenson frá Matlock Beach. Séra Jóhann Bjarnason gifti og fór hjónavígslan fram^að heimili hans á Dorchester Ave., í Selkirk. — Heimili hinna ungu hjóna verður í Mikley.— -f -f Ungur maður, Helgi Christo- pherson frá Baldur, Man., lézt í Carman á fimtudaginn í vikunni sem leið af völdum bílslyss; hann var sonur þeirra Péturs Christo- pherssonar og konu hans Sigur- veigar, systur Gísla heitins Ólafs- sonar kaupmanns hér í borginni. Fjórir menn aðrir voru í bílnum og meiddust eitthvað, en eru sagðir úr hættu. -f -f Frézt hefir að eftirgreindir ís- lendingar hafi hlotið kosningu í op- inberar sýslanir í Pembina County við ksoningarnar, sem fram fóru þann 8. þ. m.: State Attorney: Fred Snowfield. County Commissioner: Freeman Einarson. Sheriff: Stone Hillman. Maður hverfur Þorleifur Jónatansson að Hömr- um í Eyrarsveit á Snæfellsnesi hvarf heiman að frá sér síðastlið- inn miðvikudag. Undanfarna daga — einkum fimtudag, föstudag og laugardag — hafa margir menn leitað hans, en einskis orðið vísari um hvarf hans. Milli 30 og 40 manns tóku þátt í leitinni þegar flest var. Bærinn Hamar stendur á sjávar- bakka og ætla sumir að Þorleifur kunni að hafa fallið í sjóinn, en strumar eru þar miklir með landi fram.—Morgunbl. 18. okt. Miss May Morris látin Ungfrú May Morris andaðist síðastliðinn sunnudag á heimili sínu Kelmscott Manor á Englandi og mun hafa verið komin nokkuð yfir sjötugt. Faðir hennar var stórskáldið Wil- liam Morris, maður, sem mjög kynti nafn íslands á meðal erlendra þjóða. Ást hans til íslands tók dóttir hans í arf. Hún unni mjög íslandi og reyndist hún ágætlega þeim íslendingum, sem í einhverj- um efnum leituðu liðsinnis hennar. Hún nam íslenzku til þeirrar hlýt- ar, að hún las islenzkar bækur, en ekki mun hafa mátt segja, að hún talaði málið. Hún ferðaðist tvisvar hér á landi og leitaði þá einkum til þeirra staða, sem faðir hennar hafði heimsótt. A þessum ferða- lögum var með henni aldavinkona hennar ungfrú Lobb. Ungfrú Morris gaf út af mikilli prýði rit föður síns nokkru fyrir ófriðinn mikla. Er útgáfan í 24 bindum stórum með forspjallsrit- gerðum eftir Miss Morris. Tvö viðaukabindi samstæð gaf hún svo út fyrir tveimur árum og er þar í meðal annars þýðing Morris á Egils sögu, sem ekki hafði áður birst og ekki var fullger þegar þýð- arinn lézt. (3. okt. 1936). Fimm þúsund króna gjöf D a n s k Ligbrændingsforening liefir gefið Bálfarafélagi íslands fimm þúsund krónur til byggingar bálstofu í Reykjavík og er tilkynn- ing um þessa rausnarlegu gjöf kom- in frá próf. dr. Knud Secher, sem er formaður félagsins. Dansk Ligbrændingsforening hefir frá öndverðu liðsint íslenzka félag- inu með ýmsu móti. Þessi kærkomna gjöf er snotur vottur um vinarþel ýmsra danskra manna í okkar garð. —Morgunbl. 20. okt. HOMER S. CUMMINGS dómsmálaráðherra, B a n d a r í kja- stjórnar hefir látið af embætti, og ráðgerir að gefa sig við mála- færslustörfum i framtíðinni fyrir eigin reikning. Mrs. J. B. Skaptason vann hina fögru ábreiðu, sem dregið var um á samkomunni, sem haldin var í Sam- bandskirkjunni þann 8. þ. m. til arðs fyrir sumarheimili barna. Happanúmerið var 108. Nýja kirkjan á Akureyri Séra Friðrik Rafnar vígslubisk- up kom snöggvást inn á skrifstofu blaðsins í gær. Kirkjubygingin á Akureyri barst í tal. I haust verður gengið frá grunni og kjallara kirkjunnar, segir hann. Kirkjan á að standa uppi á höfð- anum beint upp af Torfunefinu. Guðjón Samúelsson hefir gert upp- drætti hennar. Hún á að snúa dyr- um í austur, út að firðinum og verður hún tvíturna. Hvað búist þið við að hún kosti ? Það bá gera ráð fyrir að hún kosti 160—200 þús. kr. En nú vantar fé til þess að halda bygging- unni áfram. Akureyrarkirkja er lénskirkja. En söfnuðurinn hefir boðist til þess að taka hana að sér. Hefir kirkjuráð mælt með því við ríkisstjórnina, að söfnuðinum yrði afhent kirkjan með 30 þús. kr. til- lagi úr ríkissjóði, en söfnuðurinn hefir boðist til að taka hana með 50 þús. kr. álagi. Kirkjan átti um 45 þús. kr. í sjóði, og Akureyring- ar hafa safnað 15 þús. kr. til bygg- ingarinnar. Svo handbærar voru 60 þús. kr. þegar byrjað var á byggingunni. Til hvers er kjallarinn ætlaður undir kirkjunni? Þar á að vera salur fyrir ung- lingafræðslu og önnur prestsverk, svo og ræstingarherbergi o. fl. —Morgunbl. 20. okt. Nýja fjárpestin Það stóð til að Rannsóknarstofa Háskólans fengi sendar hingað lif- andi kindur frá Hólum í Hjaltadal, til þess að fá úr þvi skorið hvort þar væri um að ræða hina sömu fjárpest og fundist hefir í fé í Breiðdal og Hæli í Hreppum. En samkvæmt upplýsingum sem prófessor Niels Dungal gaf Morg- unblaðinu í gær verður ekki hægt að koma því við, að fá hingað lif- andi kindur frá Hólum. Verður því að láta sér nægja að fá hingað innýfli kinda, sem sjúkar eru og eru þau væntanleg bráðlega. Fæst þá væntanlega úr því skorið hvort um sama sjúkdóm sé að ræða. —Morgunbl. 18. okt. Hljómboðar, I. og II. Nýkomið er heiman af íslandi II. hefti af sönglögum Þórarins Jóns- sonar. Bókin er af sömu stærð og blaðsíðufjölda og fyrsta héftið. 1 þessu hefti eru 26 lög — sum að mun lengri en í fyrr heftinu, öll eru lögin frumleg og hljómþýð og standa framar flestu, sem nú er út gefið á íslenzku af sama tæi. Bæði heftin hafa hlotið einróma lof heima á föðurlandinu. Aðeins ör- fá eintök hafa borist hingað vestur. Þeir, sem keyptu fyrra heftið, geta fengið það síðara fyrir 1 dollar. En þeir sem vildu eignast bæði heftin í einu ,fá þau fyrir $3.00 — alls 66 lög.— Er það innan við 5 cent lagið — sjálfsagt ódýrasta fyrsta útgáfa, sem nokkursstaðar hefir verið gefin út. Söluna hafa með höndum: E. P. Johnson, ritstj. Lögbergs og Gísli Johnson, 906 Banning Street, Winnipeg.

x

Lögberg

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.