Lögberg - 08.12.1938, Blaðsíða 3

Lögberg - 08.12.1938, Blaðsíða 3
3 LÖGrBERG, FIMTUDAGrlNN 8. DKSEMBEB 1938 Business and Professional Cards Á Baulu um sóiarupprás Hallur í Hrauni Vörubíllinn þýtur tneÖ flug- hraða inn Norðurárdalinn. Það er liðið að lágnætti og blundandi bygðin er litið eitt óljósari á- sýndum en við dagsbirtuna. Norðansvalinn er napur, þótt um miðsumar sé. Skröltandi billinn og mórauður mökkurinn, sem hann skilan aftur undan sér, er í æpandi ósamræmi við kvöldið og kyrláta sveitina. En fjörið ríkir hjá okkur, sem á bílnum erum. Við syngjum og tröllum með gáska og glað- værð þeirra í rómnum, sem vita hvað þeir vilja og eiga ákveðið takmark. — Og Baula er tak- rnarkið. —Þegar tjaldað hafði verið við Hreðavatn urn kvöldið, datt einhverjum það snjallraéði í hug, að ganga á Baulu um nóttina. Menn veltu þessu fyrir sér fram og aftur nokkra stund, gerðu qpp með sjálfum sér þreytu eftir ferðalagið um daginn, góndu út í napurleika næturinnar, skoðuðu fætur og skó, athuguðu andlegt og líkamlegt þrek. — Og eftir þessar athuganir umhugsun og heilabrot, ákváðum við að fara sjö, fimm piltar og tvær stúlk- ur. Við fengum svo vörubil- inn til þess að skjótast með okk- ur áleiðis. Og nú brunum við inn dalinn, kát og hress, og hlökkum til að klífa fjallið. “Hæ; tröllum á rneðan við tórum.” Og bíllinn beygir inn á Dalaveginn, þýtur frarn hjá Dalsmynni, upp Bjarn- ardalinn. Þá er aksturinn senn á enda. Við kveðjum bílstjórann, biðjum að heilsa svefnpurkun- um í tjöldunum og skundum svo af stað. “Frjálst er í fjallasal.”—Okk- ur er nú orðið nægilega svalt, til þess'að taka rösklega til fótanna Fyrstu brekkurnar eru vaxnar gróðri og lækirnir hjala ljúflega á leið sinni niður hliðina. Enginn |af okkur veit með vissu, hvar ganga skal á fjallið, en við verðum undir eins ásátt um að klífa það að norðvestan- verðu. Þar sýnist okkur upp- gangan álitlegust. Brátt fer úr okkur hrollurinn eftir bílferðina, enda er glíman nú hafin. Við höfum skilið fyrstu brekkurnar að baki, og Baula sjálf tekur við. Tilsýndar virðist fjallið ágætt uppgöngu. En við finnum það fljótt, er við þrömmum upp fjallsrótina, að vegur er ógreiður og torfær,.— aðeins stórgrýtis- urð. En þessi urð er skemtilegri en aðrar urðir, vegna þess, að hún er nær eingöngu samsett af stuðlabergsströnglum. Þeir liggja hér í óreglulegri kös, eins til tveggja metra langir, mjóir og sexstrendir, og sporðreisast þeg- ar maður stígur á þá. Þetta er ákaflega einkennilegt grjót, næst- ENÐURVEKIÐ ÆSKUFJÖRIÐ NUGA-TONE er dásamlegt meðal fyrir sjúkt og lasburBa fólk. Eftir vikuttma, e8a svo, veróur batans vart, og viS stöSuga notkun fæst góS heilsa. Saga NUGA-TONE er einstæS I sinni röt>. Miljónir manna og kvenna hafa fengiS af því heilsu þessi 45 ár, sem þa8 hefir verió í notkun. NUGA-TONE fæst I lyfja- búöum. KaupiÓ aóeins ekta NUGA- TONE, þvi eítirllkingar eru árang- urslausar. KaupiS aóeins ekta NUGA-TONE í ábyggilegum lyfjabúöum. NotiS UGA-SOL viS stýflu. petta úrvals hægSalyf. 50c. um því æfintýralegt, og maður fer að velta því fyrir sér, hvort ekki mætti byggja úr því ramm- gerða kastala, súlnagöng eða sig- urlxjga. En fjallgöngur eru ekki falln- ar til heilabrota, og sizt þessi, því að hún er erfið. Við nemum staðar öðru hvoru, lítum yfir farinn veg og njót- um útsýnisins. Dökkblár og svalur næturhimininn hvelfist yfir og boðar bjartan dag að morgni. Það þýtur og svarrar i ám og giljum í norðangjólunni, og hvín í tindum. Hljóðið berst til okkar í hviðum og eykur á einkennilegheit útsýnisins, því að alt er næstum ónotalega líflaust og íklætt annarlegum hjúp. Nóttin er ríkjandi. Því hærra sem dregur, því brattara verður fjallið. Nú má styðja sig með höndum, án þess að beygja sig til muna. Urðin er svo laus, að óvarlegt er að ganga hvert á eftir öðru, svo við dreif- um okkur nokkuð upp brattann. Nú koma í ljós þau einkenni, sem hvert okkar hefir fyrir sig við fjallgönguna. Sumir taka smáspretti og þjóðtal eins og ör- skot upp veltandi steina og skriðnandi urðina, og hvíla sig svo á inilli. Aðrir lalla með jafna hraða, gæta vel hvers fót- máls og luigsa mest um hvildina uppi. En upp komumst við öll að lokum. I fyrstu gætum við einskis nema, þess að njóta hvíldarinnar og kasta mæðinni eftir síðasta sprettinn, sem varð allharður, því hver um sig vildi verða fyrst- ur á leiðarenda. En brátt þokar þessi sjálfsum- önnun fyrir áhrifum að utan. Það, sem fyrst gripur athygli okkar hér uppi i 924 m. hæð, þegar kl. er tvö að nóttu, er eldrauð rák eða depill, sem við eygjum yfir fjöllin i norðri. Það er sólin að rísa. Hún er enn of lág til þess að orka á liti um- hverfisins, nema hvað hún roðar dökt og dimmblátt loftið yfir sér. Við horfurn, og sólin stíg- ur. Brátt tekur rauðleitur bjarmi hennar að lita land og loft. Og um leið og geislar hennar má af öllu kaldranalegan næturhjúp- inn og íklæðir fjöll og dali, láð og lög nýjum hjúpi, hjúpi dags og hlýju, þá fylgjum við eftir með augunum, hvernig þeir slá ljósi sínu á tindana, sem tak- marka sjónhringinn. Fannhvitir jöklarnir fá á sig rauðgulan blæ; og fjöllin standa i loga. — Og sólin heldur áfram að rísa, hærra og hærra, en um leið missir hún sinn rauða möttul. Við horfuin; það er altaf eitthvað hátignar- legt við sólarupprásina. Alt í einu veitum við því at- hygli, að á suðurloftinu er all- stórt fleygmyndað svæði, sem sker sig úr vegna þess, að það er dekkra en loftið í kring. Við athugum þetta hvert fyrir sig og reynum að gera okkur grein fyrir þvi, hverju þetta sæti. Við þessa athugun kemur í ljós, að þetta keilumyndaða, dökka svæði sker sig ekki aðeins úr á loft- inu, heldur einnig á láði og legi. Og Norðurárdalurinn, sem nú liggur fyrir fótum okkar, er al- veg í þessu dökka belti. Eftir litla stund áttum við okkur á dökka fleygnum. Það er skugginn af fjallinu, þar sem nú stöndum við, — skugginn af Baulu sjálfri. Fjallið er keilu- lagað, og þegar sólarljósið flæðir fram með því beggja vegna, myndast þessi mikli skuggi, sem réttur sé risafingur á loft upp. Útsýnið er hrifandi. Snjó- hringurinn takmarkast af víð- frægum tindum, sem eru ennþá tilkomumeiri vegna sólarupp- komunnar.—Aðeins örfáar stik- ur: Mælifellshnjúkur, Eiríksjök- ull, Botnssúlur, Hafnarfjall, Snæfellsjökull. fjöllin á Barða- strönd. En í suðvestri sér á haf út, svo langt sem augað eygir. Innan þessarar umgjarð- ar liggur láglendið með ám og vötnum, ásum og dælduni. Og bygðin blundar í dölunum. Þegar við höfurn fengið aug- anu fró við fagurt útsýnið, setj- umst við og leysum frá. malnum. —Fjallgöngur heimta slíkt jafn- an. Baula er einkennilega topp- myndað fja.ll. Hér uppi er að- eins örlítið svæði, svo sem eins og gott herbergi að flatarmáli, en óreglulega þríhyrnt. — Og þó hallar þessum litla toppfleti tölu- vert til suðurs. Og þegar flet- inum sleppir, tekur snarbrött brekkan við, og sumstaðar hengi- flug. Hér uppi eru tvær vörður, og i annari töluvert af miðum með nöfnurn og bætum við auð- vitað einum við. Við eruin kát og hress, þar sem við stöndum hér uppi og teygum að okkur tárhreint f jalla- loftið. Eftir litla stund hljómar söngurinn frá brjóstum okkar, eins konar lofgjörð fyrir stund og stað. Þessi næturferð hefir hepnast með afbrigðum vel, og aldrei er skapið eins gott og þá. Eftir klukkutíma dvöl á Baulu tindi leggjum við af stað aftur. Við höfum ákveðið að fara nið- ur að sunnan verðu, styztu leið. Þar er forsæla, því að sólin skin úr norðri. Hinn risafengni skuggi fjallsins hefir nú styzt nokkuð, Toppur hans er úti a Borgarfirði. Það er ógreitt að ganga niður; urðin er svo laus. Manni finst, að fjallið hljóti að vera að lækka, þvi að sífelt hrynur úr brúnun- um uppi, og skriður skríða nið- ur. Gróður er hér enginn. Við verðum að gjalda varhuga við að láta ekki hrynja hvert á annað, þvi að sumir eru kvikari að skoppa í skriðunni en aðrir. Alt gengur þó ágætlega, og innan stundar komumst við nið- ur í mosavaxnar hlíðar og gras- DR. B. J. BRÁNDSON 216-220 Medical Arts Bldg. Cor. Graham og Kenned> Sts. Phone 21 834—Office tímar 3-4.30 Heimili: 214 WAVERLEY ST. Phone 403 28S Winnipeg, Manltoba DR. ROBERT BLACK SérfrœCingur I eyrna, augna, nef og hálssjúkdómum. 216-2 20 Medical Arts Bldg. Cor. Graham & Kennedy Viðtalstlmi — 11 tll 1 og 2 til 5 Skrifstofuslmi — 12 211 Heimili — 401 9»1 Dr. S. J. Johannesson 272 HOME ST. STE. 4 THELMA APTS. á fyrsta gðlfi Talsími 30 877 Viðtalstími 3—5 e. h. H. A. BERGMAN. K.C. Menzkur lögfrœOingur Skrifstofa: Room 811 McArthur Bullding, Portage Ave. P.O. Box 1666 PHONES 95 062 og 39 043 LINDAL, BUHR & STEFÁNSSON Barristers, Solicitors, Notaries, etc. W. J. Iilndal, K.C., A. Buhi Björn Stefánsson Telephone 97 621 Offices: 325 MAIN STREET A.S. BARDAL 84 8 SHERBROOICE ST Selur llkkistur og annast um út- farir Allur útbúnaður sá bezti. Ennfremur selur hann allskonai minnisvarða og legstetna. Skrifstofu talslmi: 86 607 Heimilis talslmi: 501 66 2 brekkur endrum og eins. Rétt síðar komumst við svo í sól- skinið. Sólin hefir drjúgum hækkað á lofti meðan við geng- um niður fjallið. Skugginn af fjallinu nær nú aðeins út á hájendið hinum megin Bjarnardjflsins, í suð- vestri. Um fimmleitið löbbum við niður Norðurárdalinn. Morgun- inn er hreinn og fagur, sveitin hrífandi. Kyrðin er djúp, og manni finst eins og öll náttúran sé heillandi helgidómur. Niður- inn frá Norðurá stingur fyrst lítið eitt í stúf við kyrðina og þögnina, en von bráðar verður hann eins og seiðmagnaður sam- hljómur, sem suðar ljúflega í eyrum og við vanann hættir maður að skynja hljóðið. Ekkert kvik er á bæjum, hvergi bíll á ferð. Nú er sann- arlega næði til að njóta fegurð- ar héraðsins. Við göngum þögul. Alt i einu rís hundur upp af bæjarvegg og geltir. Hann gón- ir á okkur hálfilskulega, og gelt hans er eins og merki um það, hve alt er hverfult hér á okkar jörð. Friðurinn er úti. Von bráðar jarma kindur i hlíðum, hanar gala og fuglarnir taka að kvaka við hreiður sin. í raun og veru finst okkur þetta frið- rof, og þó er það aðeins fyrir- boði dagsins, sem færir með sér DR. B. H.OLSON Phones: 3 5 076 906 047 Consultation by Appointment Oniy Heimili: 5 ST. JAMES PLACB Winnipeg, Manitoba Dr. P. H. T. Thorlakson 2 06 Medlca! Arts Bldg. Cor. Graham og Kennedy Sts. Phone 22 8ð6 Res. 114 GRENFELL BLVD. Phone 6 2 200 DRS. H. R. & H. W. TWEED Tannlœknar 406 TORONTO GENERAL TRUSTS BUILDING Cor. Portage Ave. og Smlth 8t. PHONE 26 545 WINNIPHQ DR. A. V. I0HNS0N Dentist 506 SOMERSET BLDG. Telephone 88 124 Home Telephone 36 888 J. T. THORSON, K.C. ialenzkur lögfrœðingur 800 GREAT WEST PERM. BLJD Phone 9 4 668 J. J. SWANSON & CO. LIMITED 601 PARIS BLDG., WINNIPEG Fasteignasalar. Leigja hús. Ot- vega peningal&n og eldsftbyrgB «J öllu tægl. PHONE 94 221 ST. REGIS HOTEL 285 SMITH ST., WINNIPEQ pœgilegur og rálegur búalaOur mÁObiki borgarinnar Herhergi 22.00 og Þar yflr: met baCklefa $3.00 og þar yfir Agætar m&ltiBir 4 0c—60c Tree Parking for Queata líf og starf. Maður kemur út úr bæ einum, gáir til veðurs og hverfur svo inn aftur, til þess að vekja hjú sín til verka. Skömmu síðar mætum við svo fyrsta bilnum. Og innan stundar komumst við í grátt hraunið, og við þrömm- um áfram þungum skrefum. En að baki rís Baula og bíður þeirra næstu. —lAþýðubl. 6. nóv. Frambjóðanda einum var borið á brýn á fundi, að hann neyddi konu sina til þess að hafa sömu stjórnmálaskoðun og hann. Þessu svaraði frambjóðandinn þannig: “í fyrsta lagi hefi eg aldrei reynt að hafa áhrif á skoðanir konu minnar; í öðru lagi hefi eg aldrei talað um stjórnmál við lrana; í þriðja lagi hefir hún ekkert vit á stjórnmálum og minnist aldrei á þau; og í f jórða lagi á eg alls enga konu.” + + Frú A.: “Hvað á eg að gera til þess að maðurinn minn sé heima á nóttunni?” Frú B.: “Koma sjálf ekki heim fyr en undir morgun.” kaupið avalt LUMBER hjft THE EMPIRE SASH & DOOR CO. LTD. HENRY AVENUE and ARGYLE STREET Winnipeg, Man. - Phone 95 551

x

Lögberg

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.