Lögberg - 08.12.1938, Blaðsíða 6

Lögberg - 08.12.1938, Blaðsíða 6
6 LÖGBERG, FIMTUDAGINN 8. DESEMBER 1938 ---GUÐSDÓMUR----1 “GuÖ hjálpi mér!” kallaÖi munkurinn. “Hvað kemurðu þarna með?” “Villistúlku!” svaraði Jörgen mjög hátiðlega, “en þó er ekkert að óttast, því að tamin er hún.” Munkurinn virti ungu stúlkuna forðviða fyrir sér. Hún var enn lítt komin af bernskuskeiði, grann- vaxin, liðleg, feimin og barnaleg, dökk á brún og brá og óvanalega litilf jörlega til fara. “Hérna er nú hún Jovíka!” mælti Jörgen eins og þar með væri alt sagt sem segja þyrfti. Munkurinn lét sér þó eigi þessa skýringu nægja, en vikli fá að vita, hvað manna Jovíka þessi væri, og hvaðan komin svo að Jörgen varí^ að gefa lengri skýrslu. “Fyrir tveim dögum réðum vér á nokkra moldar- og grjótkofa, sem menn kalla hér þorp, og var barist af mestu ákefð, unz íbúarnir lögðu á flótta og fann eg þá þessa vesalings télpu, sem faldist þar í skúma- skoti, dauðsvöng og skjálfandi af hræðslu.” “Ilún hefir óefað vænst þess, að eg myndi þegar reka spjótið gegnum hana, því að hún skalf og titr- aði,” mælti Jörgen ennfremur. “En nú hefir hún fengið betra álit á hermönnunum frá Tyrol—er ekki svo, Jovika?” Unga stúlkan skildi auðsjáanlega ekki eitt orð af því, sem Jörgen sagði, en horfði stórum augum á munkinn, og þrýsti sér sem fastast að Jörgen, er hélt áfram máli sínu á þessa leið: “Gerald skilur ögn í slavnesku, og urðum vér þess því vísari, að hún átti alls ekki heima í þorpi þessu, en var nýkomin þangað ásamt ýmsum flótta- mönnum og vissi sjálf ógjörla hvar hún átti heima, en gat aðeins gjört mér skiljanlegt að foreldrar henn- ar væru báðir dánir og varð eg þvi að ganga henni i foreldra stað.” Þetta sagði Jörgen svo hreinskilnislega og blátt áfram, að Eeonhard gat ekk.i stilt sig um að brosa, en sag.ði þó engu að síður: “Eg hygg, Jörgen, að réttast sé að þú biðjir mig fyrir hana.” “Gerald var sömu skoðunar,” svaraði Jörgen, “og því er eg hingað kominn með hana. — En það verður gamanlaust fyrir yður, þvi að hún er voða- legur heiðingi, sem þekkir hvorki krossmark né kirkju og kallar guð Allah.” "Þá er hún að öllurn líkindum múhameðstrúar,” mælti munkurinn, “og sé það satt sem hún segir, að hún sé foreldralaus einstæðingur, verðum vér auðvitað að annast hana; en vandræði eru hvað við hana á að gera.” "Skíra hana,” svaraði Jörgen, mjög hátiðlega. “Það má gera það hér í kastalanum; en skírnarvottur vil eg vera.” “Það getur ekki gjörst svo fljótlega,” svaraði munkurinn. “Fyrst er að kenna henni kristindóminn.” Það var auðséð, að Jörgen féll þetta illa. en svaraði þá: “Jæja, þér vitið það bezt; >en heiðið má þó vesl- ings barnið ekki vera.” “Fyrst um sinn verður hún hér og stundar sjúkl- ingana mína,” mælti munkurinn, “og með því að ein hjúkrunarkonan talar mæta vel slavnesku, getur hún verið túlkur og sjáum svo hverriig gengur.” Að svo mæltu tók munkurinn í hendina á Jovíku, og ætlaði að leiða hana burt, en hún stritaðist á móti. eins og hún gat, og fór þegar að gráta og mælti eitt- hvað við Jörgen í bænarrómi, sem hann auðvitað ekki skildi. Jörgen gekk þá til hennar, tók í hönd henni og mælti mjög alvarlega; “Það verður að fara öðruvisi að henni, svo að hún fari ekki að gráta, því að það er mér mjög illa við. — Veslings barnið er feimið og hrædd við alla, nema mig. — Maður verður að tala við hana eins og faðir talar við barn sitt, og það getur enginn nema eg-” Jörgen klappaði því næst með hendinni á hrafn- svarta hárið hennar og fór að halda áminningarræðu. sem var býsna skrítin, þar sem hann skaut hér og hvar inn í hana stöku slavneskum orðum, er hann hafði numið af tilviljun. Engu að síður virtist þó ræða þessi hafa tilætluð áhrif á Jovíku, því að hún stritaðist eigi á móti. er Jöreen leiddi Jiana aftur til munksins og revndi með mörgum orðum að gera henni skiljanlegt hvílíkur ágætismaður hann væri. Munkurinn beið þá eigi lengur boðanna, en leiddi Joviku burt, enda þótt tárin glitruðu enn í augum hennar. Jörgen horfði ánægjulega á eftir þeim og ætlaði að fara að ganga brott, er félagi hans, Bertel að nafni, kom þan inn með skilaboð til Geralds. "Nú, hvernig gengur, Jörgen?” mælti hann hæðn- islega. “Hefirðu komið uppeldisbarninu þínu fyrir?” “Hvað segir séra Leonhard um trúna hennar og því um líkt?” mælti hann enn frernur. “Ætlar hann að skíra hana?” “Gáðu að þér, Bertel,” mælti Jörgen. “Þú ert vinur minn og landi minn, en látirðu ekki mig og Jovíku í friði, þá fer illa fyrir þér.” Bertel lét sér þó eigi áminningu þessa að kenn- ingu verða, en hélt áfram ertni sinni á þessa leið: “Hún er annars laglegasta tökubarn! Hund- heiðin galdranorn, kolbrún í framan eins og flökku- kind og alveg eins ræflalega til fara eins og—” Meira fékk hann eigi mælt, því að Jörgen hand- langaði honum svo duglegt högg, að hann hrökk upp að veggnum og greip báðum höndum um höfuð sér, til þess að jafna sig aftur. “Svona fer sérhverjum er illa talar um Joviku!” mælti Jörgen ofurrólega. “Reyndu að muna eftir þvi, og segðu lagsbræðrum okkar frá því að eg lú- berji hvern, sem ekki heldur sér í skefjum.” Að svo mæltu gekk Jörgen brott, í meira lagi rogginn, með nefið upp í loftið.— Eins og Gerald hafði ráðgjört fór hann þegar á fund Leonhards munks, er hann fékk tíma til þess. Það var ekki á honum að sjá, að ófriðurinn og örðugleikarnir sem honum voru samfara hefðu fengið á hann nema hvað hann var sólbrendur í andliti. Leonhard munkur veitti því og eftirtekt, að Ger- ald virtist nú öllu fjörlegri en áður og það þótti honum furða, að hann mintist ekki einu orði á unn- ustuna og enda eigi á borgina Cattaro, þó að margt bæri á góma. Gerald og munkurinn höfðu báðir numið staðar við gluggann og voru að skoða sólarlagið, sem fagur- roðaði skýbólstrana á kvöldhimninum. "Eg er að virða himininn fyrir mér,” mælti Gerald, er hann sá að munkurinn leit á sig. “Maður venst því smátt og smátt að geta ráðið í það af farinu i loftinu hvernig veðrið muni verða, og nú þykist eg sjá, að hann fari að hvessa, svo að eg er því feginn að menn mínir geta hvílst hér í kastal- anum nokkra daga.” “Hvíldar þarfnist þér óefað allir, svaraði munk- urinn, “og ekki sízt þér, sem eigi hafið unt yður neinnar hvíldar seinustu vikurnar.” “Það er óhjákvæmilegt,” svaraði Gerald. “Upp- reisnarmennirnir gefa oss ærinn starfa, — Það er sonur I. Obrevics, sem nú er örðugastur viðureignar, eins og þér hafið óefað heyrt.” “Já, hann þykist eiga föður síns að hefna, þar sem þú ert annars vegar,” mælti Leonhard, “og þvi hefi eg oft verið mjög áhyggjufullur þín vegna, Gerald, enda hafa félagar yðar sagt mér, þótt eigi hafið þér sjálfur minst neitt á það, að það hafi oft verið stærsta furða, hvernig þér hafið komist lífs af.” Gerald ypti öxlum. “Alt er í æðri hendi,” mælti hann, “og — það er hverju orði sannara — eg hefi í seinni tíð aftur og aftur frelsast úr svo bersýnilegum lifsháska, að eg hefi lært að treysta vernd forsjónarinnar.” “En sá, sem býður hættunni byrginn, eins og eg heyri hina liðsforingjana segja að þér gerið, hann freistar og guðs,” mælti Leonhard, “og megið þér ekki gleyma að lif yðar er eigi aðeins yðar, heldur eiga og aðrir kröfu, til þess.” “Móðir mín — já!” mælti Gerald dræmt. “Eg gleymi því stundum, hve hrædd hún er um mig.” “En unnustan ?” mælti Leonhard. Gerald þagði og leit niður. “Þér hafið óefað frétt af henni?” mælti Leon- hard, “þar sem bréfin berast hingað nokkurn veginn reglulega frá Cattaro.” Gerald leit upp og hefir þá að líkindum þózt ráða það af augnaráði munksins að hann væri kunn- ugri en hann þóttist vera, því að hann spurði nú fljót- lega: “Hefir Arlow ofursti ritað yður?” “Nei,” svaraði Leonhard, “en hitt er það, að eg hefi úr annari átt komist eftir því, sem þér hafið leynt mig.” “Gerald svaraði engu en sneri sér út að gluggan- um, eins og liann vildi hætta þessari samræðu. Munkurinnf gekk þá til hans, lagði hendina á öxl honurn og mælt.: “Gerald! Þér hafið að vísu verið sjaldan heima seinni árin, en vitið þó óefað að eg er enginn gestur á heimili móður yðar. — Viljið þér nú eigi trúa mér sem tryggum vin foreldra yður og sálusorgara, fyrir leyndarmál^ yðar?” Þetta mælti munkurinn svo þýðlega, en þó jafn framt svo alvarlega, að ekki gat hjá þvi farið, að það hefði áhrif á Gerald, enda. strauk hann nú hend- inni um ennið og mælti: “Hvað á eg að segja yður; Eg veit naumast sjálfur hvað að mér amar. — En satt er það, að hjá mér ríkir efablendni, að því er vilja sjálfs mín snertir. llefði Edith og faðir hennar treyst orð- heldni nrinni, myndi þau eigi hafa iðrað þess.” “Ung unnusta, treystir eigi aðeins orðheldni unn- usta síns, og telur hana vísa, heldur þykist hún eiga heimtingu á ást hans,” mælti Leonhard alvarlega, “enda hefir fourstinn sagt yður, að alt standi við sama, ef þér óskið þess einlæglega. — Hafið þér ritað unnustu yðar?” “Nei,” mælti Gerald, og var allþungt niðri fyrir. "Hefir yður fundist að þér gætuð það ekki?” “Mér hefir eigi fundist eg geta það,” svaraði Gerald. “Óhugsandi, Gerald!” mælti Leonhard. Þetta hvorki má né getur verið.” “Óhugsandi ?” tók Gerald upp aftur og var beiskja i röddinni. “Er það eigi alkunnugt, að þegar sá sem í svefni gengur er vakinn snögglega, svo að hann sér djúpið fyrir fótum sér, þá svimar hann? En hefði hann eigi verið vakinn, hefði hann gengið leið sína óhikað. Svipað fór mér að eg taldi það ómögulegt að tilfinning gæti vikunum saman dulist í djúpi sálar minnar, án þess eg vissi af henni, unz eldingunni laust niður, er breytti öllu tilfinninga- og hugsanalífi mínu. Hefði eg dvalið í Cattaro, hefði eg ef til vill getað sigrast á tilfinningum mínum, en nú er eg hefi verið einn með hugsanir minar, viku eftir viku, finn eg, að mér er það ómögulegt, og því fæ eg eigi séð, að það sé rétt af yður að áfellast mig fyrir það þó að eg leiti hættunnar og óski helzt að eiga ekki heim- kvæmt, en þrái kúluna, er bundið gæti enda á sálar- kvalir rnínar.” Meðan Gerald mælti þetta, varð hann æ æstari og ákafari, svo að munkinum var nieira en nóg boðið. “Eg hefði aldrei vænst þess að sjá þig í svona skapi, Gerald,” mælti hann. “Það er þá svo komið, að þú leitar dauðans, pg—” “Hermenn hafa jafnan dauðann fyrir augunum,” svaraði Gerald, “og munurinn er eigi annar en sá, að eg er hættur að óttast hann.” “En við ættuin annars að sleppa þessu tali,” mælti Gerald enn fremur, “ekki sízt þar sem eg ætlaði að minnast á annað málefni við þig. — Eg heyri sagt að Jörgen hafi beðið þig fyrir tökubarnið sitt. — Hann var ekki ánægður fyr en eg leyfði honum að koma með stúlkuna hingað; en nú er eftir að vita hvað af henni á að gjöra.” Gerald sýndi á þenna hátt ljóslega, að hann vildi eigi tala meira um fyrra umtalsefnið, enda mintist Leonhard eigi aftur á það, heldur spjölluðu þeir um Jovíku í nokkrar minútur, unz Gerald sætti færi og kvaddi. "Hvernig skyldi þetta enda,” tautaði munkurinn við sjálfan sig, er Gerald var farinn. “Engu líkara en að hann hafi orðið fyrir gjörningum1, eins og Jörgen sagði.” Nóttina eftir samræður þessar gjörðist ekkert sögulegt í kastalanum, unz menn, er fyrst tók að roða fyrir degi, vöknuðu við það, að blásinn var herlúður. Leonhard munkur, er sint hafði sjúklingum sín- um framan af nóttinni, hrökk upp eins og aðrir, og var að koma út úr herberginu, er Jörgen kom i flasið á honum. “Liðsforinginn sendi mig til að segja yður, að vér verðum þegar að fara af stað,” mælti Jörgen. “Átti eg ekki kollgátuna, að þessir bannsettir þrjótar myndu fara að ónáða oss, þegar vér ætluðum einu sinni aðl sofa í næði?” "Hvað er þá um að vera?” spurði munkurinn. Hafa uppreisnarmennirnir ráðist á kastalann?” “Nei,” svaraði Jörgen, “en þeir hafa í nótt ráðist á einn liðsforingja vorn, er berst við þá, i hér um bil tveggja milna fjarlægð frá kastalanum og hefir liann beðið, að senda sér lið til hjálpar og því vérðum vér þegar að fara. — En annars var líka erindið að biðja yður að annast Jovíku vel, því að nú fer hún að gráta, veslings barnið, er hún sér nrig ekki i dag, þar sem eg geng henni í föðurstað.” “Vertu óhræddur um það,” svaraði Leonhard: “en hvar er bardaginn?” Jörgen er eigi hafði hugann á 'öðru en föður- skyldum sínum, svaraði spurningu þessari alls eigi, en mælti ofur óðamála:

x

Lögberg

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.