Lögberg - 26.10.1939, Síða 5
LÖGBERG, FIMTUDAGINN 26. OKTóBER, 1939
5
í
\
\
f
f
Vísir
THE ICELANDIC ASSOCIATION OF CHICAGO
2350 NORTH KEDZIE BOULEVARD
The Annual Young People’s meeting will be held
Friday, November 3, 1939, commencing at 8 p.m.
“By” Hawley and his orchestra will preside.
Prizes will be awarded for the best and most original
costumes. There also will be ladies’ and men’s door
prizes.
For those who don’t care to dance there will be
bridge downstairs. If you have cards, please bring
them. Refreshments will be served during inter-
mission.
Everybody is welcome. Bring your friends to
enjoy this gala occasion.
Admission : ■Ladies 25c — Men 35c
YOUNG VIKING COMMITTEE.
smára með í stað hafragrass
einvörðungu. ólafur hefir
einnig gert tilraunir um rækt-
un kartafla, bæði með breyti-
legan áburð og margvísleg af-
brigði, þar á meðal úrval úr
íslenzkum kartöflum. ólafur
býst við, að kartöfluuppskera
sin í haust muni nema um
eða yfir 200 tunnum. Áður
hefir hún mest orðið 160
tunnur. f fyrra sumar feng-
ust 60 tunnur af kartöfluin úr
sama landi og nú er öll von til
að hún gefi 200 turmur eða
meira.
—Tíminn 16. sept.
*
Ríkið og flugmálafélag fs-
lands eiga í sameiningu land-
flugvélina TF-Sux. Hún hefir
nú verið starfrækt í eitt ár,
einkum til ýmissa rannsókna
um möguleika til flugsam-
gangna hér. Á þessu eina ári
hefir flugvélin flogið 42,000
kílómetra vegalengd og hafa
3,600 kilómetrar af því flugi
verið í þágu sildarleitar. Flug-
ferðirnar hafa alls verið 498,
þar af 16 áætlunarflug til
Hornafjarðar og 6 í sjúkra-
erindum. Flugvélinni hefir
verið lent á 26 stöðum víðs-
vegar um land, í bygð og ó-
bygð, án þess að um neinar
umbætur á lendingarskilyrð-
um hafi verið að ræða. 260
manns hafa tekið sér far með
flugvélinni og 683 kílógrömm
pósts hafa verið flutt með
henni. Þótt tekist hafi að nota
þessa flugvél til landflugs og
lenda víðsvegar á landinu, án
þess að neinn undirbúningur
undir það hafi farið fram, er
ósannað og ólíklegt, að unt
sé að nota stórar flugvélar og
lenda á þeim nema til reglu-
legrar flugvallagerðar komi
eða að minsta kosti lagfæring-
ar á lendingarstöðum.
*
Hvalveiðunum er nú lokið
að þessu sinni og eru skipin
komin til Reykjavíkur og
verða hér í vetrarlagi. Alls
veiddust í sumar 130 hvalir
og hefir ekkert veiðst síðan
síðast var skýrt frá afla skip-
anna hér í blaðinu, hinn 12.
september. í fyrra veiddust
147 hvalir, en veiðar byrjuðu
mánuði siðar nú en þá. Starfs-
fólk hvalveiðastöðvarinnar er
nú flest komið heim til sín, en
enn er þó verið að ganga frá
ýmsu við hvalveiðastöðina á
Suðureyri undir veturinn.
Þingstúka Reykjavíkur á-
kvað á sínum tíina, að gangast
fyrir því, að haldin yrði hind-
indismálavika i haust. Var
Pétur Sigurðsson formaður
nefndar þeirrar, er haft hefir
undirbúning þess með hönd-
um. Nú er ákveðið, að láta
þessa útbreiðslustarfsemi hefj-
ast 5. októbermánaðar. Munu
b i s k u p, fiæðslumálastjóri,
fjármálaráðherra og skáta-
iiöfðingi þá flvtja ávarp í fri-
kirkjunni. Auk Reglunnar,
hafa Kennarasambandið, í-
þróttasamband íslands, skátar,
ainband ungmennafélaganna,
Samband bindindisfélaga í
skólum, Slysavarnafélagið,
Bandalag kvenna og fjögur
verklýðsfélögin í Reykjavík,
D a g s b r ú n, Sjómannafélag
Reykjavíkur, Iðja og Fram-
sókn, heitið fulltingi sínu.
—Tíminn 21. sept.
*
Allir togararnir liggja enn
inni í höfn. í bænum er um
það talað, að, að líkur séu
til, að senn rætist úr þessu.
Tíminn hefir snúið sér til
framkvæmdastjóra ýmissa út-
gerðarfyrirtækja, meðal ann-
ars Kveldúlfs og bæjarútgerð-
arinnar í Hafnarfirði, og
spurzt fyrir um horfur á þessu
sviði. Samkvæmt svörum
þeirra eru ekki líkur til, að
togararnir haldi til veiða
næstu dagana, en þó líklegt,
að það geti orðið innan
skamms, þegar ráðið hefir
verið fram úr ýmsum málum,
er hið óvenjulega ástand hefir
í för með sér. Er nú meðal
annars verið að semja við sjó-
mennina uin kjör þeirra og
kaupuppbætur vegna aukinnar
áhættu í starfi þeirra sökum
styrjaldarinnar. Þá er og ver-
ið að koma í lag stríðsvá-
tryggingum skipa og manna.
Loks er þess biðið, að Eng-
lendingar ákveði hámarksverð
á fiski á brezkum markaði.
Munu útgerðarmenn yfirleitt
hyggja á að láta Englendinga
frhmur sækja á ínn fiskkaup-
in héðan.
—Tíminn 26. sept.
Glæsileg hátíðarhöld
líátíðahöld miðskólans á
Mountain (The Homecoming
Festivities of the Mountain
High School) sem fór fram
20.-22. október, hepnuðust
mæta vel. Ungdómurinn
skemti sér hið bezta á föstu-
dagskveldið við “brennuna”
og eldsýninguna (fireworks)
og síðar við dansleikinn. Um
kl. 10 það kveld var drotning
hátíðahaldsins (Homecoming
Queen) krýnd með mjög
smekklegri athöfn. Var það
Margaret Sigmar, sem varð
fyrir þeim heiðri. Hinir ýmsu
munir, sem skólafólkið hafði
tilbúið og voru til sýnis og
sölu á laugardaginn, voru
mjög haglega gjörðir og prýði-
legir í alla staði.
Sunnudagurinn 22. október
var aðal hátíðisdagurinn.
Guðsþjónustan, sem byrjaði
kl. 11 f. h. fór hið bezta frain
og var sæmilega fjölsótt.
Söngflokkur úr skólanum, sem
H. Sigmar, Jr. stýrði, beitti
sér fyrir við sönginn. Söng
hann fagran kórsöng auk
sálmanna. Þótti allur sá
söngur takast mjög vel. Jók
það á ánægju allra, sem hlut
áttu að máli að bæði séra N.
S. Thorláksson og Miss Lauga
Geir voru þarna viðstödd. En
séra Steingrmur var fyrsti
skólakennarinn i bygðinni,
sem byrjaði að kenna þar í
litlu bjálkahúsi á heimilis-
réttarlandi sínu nálægt Moun-
tain, haustið 1881, og Miss
Geir var fyrsti kennarinn í
miðskólanum á Mountain, sem
hóf göngu sína haustið 1918.
Við máltiðina í kjallarasal
samkomuhússins sem fram fór
eftir messuna, var ekki marg-
ment. En máltíðin var ágæt
og prýðilega framborin. Voru
þar nokkrar stuttar en skemti-
legar smátölur fluttar.
Einn stærsti þáttur hátiðar-
haldanna, og sá sem langbezt
var sóttur, var samkoman í
efrisal samkomuhússins, sem
byrjaði um kl. 2.30 e. h. á
sunnudaginn. Fluttu kennar-
arnir, Mrs. T. V. Bjornson og
H. Sigmar, Jr„ og líka Miss
Quam frá Cavalie (Supt. of
Publ. Instruction in Peinbina
Co.) sitt stutt ávarpið hvort.
En aðalræðurnar fluttu þau
séra N. S. Thorláksson, Miss
Lauga Geir og Dr. Richard
Beck frá Grand Forks. Hér
er ekki rúm að tala mikið um
ræðurnar, annað en að segja,
að þær voru allar ágætar,
efnisríkar, fjörugar og skemti-
legar. Séra H. Sigmar flutti
kveðjur frá Judge G. Grimson
og H. B. Thorfinnson. Báða
langaði þá að vera viðstadda,
en gátu ekki anna vegna, en
sendu þessar vinsamlegu
kveðjur. Dr. Beck las kveðju-
hréf frá Dr. West, forseta
ríkisháskólans í Grand Forks.
Til viðbótar við ræðurnar var
góður söngur. Karlakór fs-
lendinga í N. Dakota söng
tvisvar, og ágætlega í bæði
skiftin. H. M. Eastvold, lög-
maður frá Canton, S. Dak. og
Eric Sigmar sungu sólósöngva.
Var söng þeirra líka vel tek-
ið.
Kennarar og nemendur mið-
skólans voru vel og drengi-
lega studdir af ýmsum í hin-
um mikla undirbúningi og
margvíslega* starfi við þessi
hátíðahöld. Ekki sízt voru
það mæður nemendanna, sem
lögðu fram mikla og ómetan-
lega aðstoð, sem mjög var
þakkarverð. Fleirum mörgum
ber og að þakka, svo sem þeim
1 Þjónuálu
Námamannsins
pað var mikið um að vera
vorið 1896, þegar gull fanst I
Klondyke; samgöngur voru
erfiðar og seinfara og þrautir
ferðalaganna tóku þungan
skatt í mannslífum. Vöruverð
var geypihátt, og hvorki hægt
að kaupa varning né aðstoð
nema við frágangsverði —
reykt svínakjöt og egg hljóp
upp á $3.50 máltiðin, og flutn-
ingsgjald yfir sex mílur af
Chilkoot Pass nam 50c á
pundið.
Lífið á námasvwðunum er
nokkuð öðruvlsi I dag. Hröð
og fullkomin samgöngutæki
hafa rofið múra vegalengd-
anna, og nú fær námaleitarinn
við Red Lake, radium náma-
maðurinn við Great Bear
Lake og gullneminn að Daw-
son EATON verðskrá, er rýf-
ur múrana á vegi viðsldfta-
iífsins.
Aðeins stór póstpantana-
verzlun eins og EATON getur
veitt dreifðu fólki það mikla
úrval af vörum, er EATON
verðskráin sýnir. pessvegna
er það, að við flugvelli, hafn-
ir og járnbrautarstöðvar, er
til námanna liggja, sjáið þér
póstpoka og vörubirgðir frá
EATON — óyggjandi sönnun
þess trausts, er fjarlægir við-
skiftavinir bera til vor.
EATONS
er komu langar leiðir til að
liðsinna með fleirum og fleir-
um.
Má ætla að hátíðahöld þessi
verði miðskólanum hér og
mentamálum bygðarinnar til
stuðnings og eflingar, jafn-
framt þvi að vera bæði kenn-
urunum og nemendunum til
mikillar sæmdar.
H. S.
SvÖl og SAFARÍK
British Columbia Ápple Growers