Lögberg


Lögberg - 11.01.1940, Qupperneq 1

Lögberg - 11.01.1940, Qupperneq 1
 PHONE 86 311 Seven Lines Servioe and Satisfaction A1‘3 ‘‘-JS saiofj ooss.mj3j -H -AaH qNE g6311 even Lines i s®*5 *S=SS. Ní C«Y' 0^ For Better Dry Cleaning and Laundry 53. ARGANGUR LÖGBERG, FIMTUDAGINN 11. JANÚAR, 1940 NÚMER 2 Hermálaráðherra brezku stjórnarinnar, Leslie Hore-Belisha, lætur af embœtti vegna ágreininga við ýmsa æðstu menn hersins, að því er símfregnir herma— Oliver Stanley, viðskiftaráðherra, tekur við hermálaráðherra embœttinu Þau tíðindi, sem útvarp og j dagblöð fluttu á laugardaginn, að hermálaráðherra brezku stjórnarinnar Hore-Belisha, hefði verið knúður til þess að láta af embætti, vöktu eins og vænta mátti óhemju athygli vítt um heim, og þá einkuin og sérílagi innan vébanda hins brezka veld- is; enda var ekki annað vitað, en Mr. Belisha væri einn af allra vinsælustu og áhrifamestu ráð- herrunum í ráðuneyti Mr. Cham- berlains; nú er embættisafsögn hans skýrð á þann veg, að.ýms- um yfirmönnum hersins hafi þótt hann næsta róttækur í uin- boðsstjórn sinni, og krafist þess, að lokum, að hann yrði látinn segja af sér embætti. Sjálfsögð og óhjákvœmileg samúð » Hjá því getur ekki farið, að í brjóstum þeirra manna, er hjart- að bera á réttum stað, ómi við- kvæmur strengur, þrunginn af samúð með finsku þjóðinni í baráttu hennar gegn ósvifnislegri árás hinna rauðu hersveita á sjálfstæði hennar og menning; vörn hennar er þegar víðfræg orðin, þó enn sé vitanlega flest á huldu um leikslok, eða jafnvel alt.— Síðastliðinn laugardagur var helgaður merkjasölu hér í borg til eflingar þeim sjóð, sem hér var nýverið stofnað til, finsku þjóðinni til stuðnings í frelsis- stríði hennar, því, er nú stendur yfir; með þessum hætti safnað. ist saman yfir daginn allmiklu hærri upphæð, en forvígismenn málsins mun hafa órað fyrir; mun upphæðin hafa numið sex þúsund og fimm hundruð dölum. Ánægjuefni mikið var það, hve íslendingar hér í borginni léðu málinu drengilegan stuðning, enda ætti fslendingum aldrei að vera nein góð mál óviðkomandi. Samúðin með inálstað Finna sýnist jafnt og þétt vera að víkka landnám sitt með hverjum deg- inum, sem líður. Á mánudaginn gerði Roosevelt Bandarikjafor- seti ritara Þjóðbandalagsins að- vart um það, að stjórn sín væri staðráðin í því, að veita finsku þjóðinni margháttaðan stuðning, og í sama streng tók Mr. Cham- berlain forsætisráðherra Breta í útvarpsræðu, sem hann flutti á þriðjudaginn; stuðningur þess- ara tveggja, voldugu þjóða, mun einkum verða fólginn í peninga- lánum, vistum og vopnabirgðum, því aðstöðu þeirra vegna getur vart um mannafla orðið að ræða; gæti enda ekki komið til mála um aðra þjóðina, Banda- ríkin, sem lýst hefir yfir hlut- leysi í núverandi styrjöld; svo verður það ekki heldur mann. ^flinn einn, er fullnaðarúrslitum ræður; þar koma önnur öfl al- varlega til sögunnar, svo sem efnahags-, vöru- og vopnabirgða- öflin. Annar ráðherra Chamberlain- stjórnarinnar, lávarður Mac- Millan, hefir einnig látið af em- bætti, en hann veitti forustu upp. lýsingaráðuneytinu; eftirmaður hans verður Sir John Reith, forseti flugfélagsins brezka.— Séra Bjarni Þórarinsson látinn Samkvæmt simskeyti lézt séra Bjarni Þórarinsson í Reykjavík á laugardaginn þann 6. þ. m., 84 ára að aldri. Símskeytið lmrst dóttur séra Bjarna, Mrs. Man- ning, sein búsett er hér í borg; önnur dóttir hans, sem heima á vestanhafs, er Mrs. Jón Hafliða- son i Bissett, Man.— Séra Bjarni hafði á höndum prestsþjónustu meðal fslendinga vestan hafs í 16 ár eða því sem næst. Eftir að hann hvarf heim til ættjarðarinnar gegndi hann skrifarastöðu í stjórnarráði fs. lands. Séra Bjarni var gáfu- maður mikill og fróður um margt. Hornsteinn lagður að sykurverksmiðju Síðastliðinn laugardag lagði Hon. John Bracken hornstein að hinni miklu sykurverksmiðju, sem reist verður í Fort Garry sunnan við Winnipeg, og ráðgert er að kosta muni tvær miljónir dala; er hér um hið mesta þarfa- fyrirtæki að ræða, sem veita mun fjölda manns atvinnu og glæða áhUga fyrir sykurrófnarækt hér í fylkinu; mannfjöldi mikill var viðstaddur hornsteinslagninguna, er árnaði forgöngumönnum fyr- irtækisins til heilla með framtíð þess og starfrækslu. Vinna við byggingar hefst nú þegar, og er áætlað að verksmiðjan verði starfhæf að fullu seinnipart næsta sumars. .li!llllil!;l!llllll!l!lll!llli!lllllllllllllllll!!!lllllll!li!l!l!lllll!ll!lll!lllllllllllllllll!IIIIIIIIHIIIII!l!!lllllll]|iii. Frá Islandi '''iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiniir Bílaleiðir út úr bænum tept- ust allmikið í gær. Ferðir milli Hafnarfjarðar og Reykjavíkur trufluðust mjög, enda var meiri snjór i Hafnarfirði en hér. Suð- ur á Suðurnes var ófært. Bílar komust ekki lengra en rétt upp fyrir Lögherg austur á bóginn. Bíll frá B. S. R. teptist i Vík í Mýrdal. Kjósarbill, sem átti að fara frá B. S. R., var ekki sendur af stað og illfært var i Mosfellssveitina. Fréttaritari vor í Vestmanna- eyjum símar í gær, að þar hafi verið aftakaveður og rokið svo mikið, að menn muni varla ann- að eins, og er þó oft stormasamt í Eyjum. Veðurhæðin var 11 vindstig um hádegi í Eyjum, og hvesti þó eftir það. Engar skemdir né slys urðu í Eyjum að öðru leyti en því, að léttbáta rak á land og ilt var að halda skipi, sem lá við bæjar- bryggjuna inni á höfn. Milliferðaskip, sem voru í Vestmannaeyjum, lágu vestur undan Hamrinum. Slvsavarnafélagið fékk i ga*r tilkynningu frá Sandgerði um að óttast væri, að stórt skip, sem sást skamt undan Eyrinni, myndi stranda þar. Töldu Sand- gerðingar, að skipið væri svo- grunt, að því væri hætta búin. Svo reyndist þó ekki vera. Skip þetta var gríðarstórt að því er \irtist, en, vegna þess hve skygni var slæmt, var ekki hægt að greina, hvaða skip það mvndi vera. Þetta ókunna skip lá seint i gærkvöldi enn á sama stað með fullum ljósum, en gaf ekk- crt merki frá sér, svo ekki var talið að því væri neitt að van- búnaði. —Morgunbl. 26. nóv. • Samkvæmt fregnum frá Akur- eyri, hefir starfræksla nýju raf- stöðvarinnar við Laxá i Þing- eyjarsýslu truflast af völdum kraps. Var það á laugardags- kvöld, sem aðrensli að stöðinni stöðvaðist af þessum sökum. Var ailmikil snjókoma þar nyrðra á föstudag og laugardag. Hlóðst krajiið í ána ofan við stíflugarð- inn, þar til vatnsþunginn ruddi því fram í uppistöðulónið og hindraði vatnsrensli í leiðslurn- Mr. Andrew Danielsson Þann 22. desember siðastliðinn, varð hinn víðkunni athafnamað- ur, Andrew Daníelsson i Blaine, Wash., sextUgur að aldri. í til- efni af þeim eyktamörkum, var afmælisbarninu haldið veglegt samsæti þar i bænum, og af- hentar mínjagjafir. Frá sam- sætinu er nánar skýrt á öðrum stað hér í blaðinu. ar. Á sunnudag var búið að því að hreinsa krapið burt og koina, vatnsrenslinu í eðlilegt horf. Erfitt var þó að komast með verkamenn austur yfir Vaðlaheiði því að þungfært var sökum snjóalaga. Gat stöðin eigi tekið til starfa fyr en síð- degis á mánudag. Á meðan Laxárstöðin var óstarfhæf, bjargaðist Akureyrarbær við raf- magn frá gömlu stöðinni við Glerá. • Að undanförnu hefir nokkuð orðið vart við sjaldséða íugla í Vestmannaeyjum, sem þangað hefir hrakið eða flækst hafa þangað á annan hátt. Hafa þar sézt gráþrestir, bláhrafn og fleiri fáséðir fuglar. Uglu hefir og orðið vart við í Eyjum í haust. í Vestmannaeyjum er til sjóð- ur, sem ætlaður er til að reisa minnismerki um druknaða sjó- menn og hrapaða menn í Vest- mannaeyjum og viðhalda því. Nýlega sótti stjórn sjóðs þessa um það til bæjarstjórnarinnar í Vestmannaeyjum, að fá eins stóran blett og unt væri úr svo- nefndu Stakagerðistúni, í miðjum Vestmannaeyjabæ, til þess að reisa þar kapellu fyrir fé sjóðs- ins, til minningar um druknaða og hrapaða Vestmannaeyinga. Þetta hefir eigi enn fengið end- anlega afgreiðslu, en verður til = lykta ráðið innan skamms. Mjög hart norðanveður geisaði norðanlands fyrri hluta þessarar viku. — Þriðjudagsnótt síðastl. j slitnaði flutningaskip Kaupfé- j lags Eyfirðinga, Sna’fell, úr fest- j um við bæjarbrvggjuna á Siglu- j firði og rak á grunn. Var verið j að skipa fiski til útflutnings í j Snæfell og munu 30—40 smá- j lestir hafa verið komnar í skip- j ið er það slitnaði frá byrggjunni. | Með morgunflóðinu losnaði skip- j ið af grunni að nýju og var reynt { að koma því út á fjörðinn, en f varð eigi auðið vegna ofviðris. { Rak það nú upp að bryggjum, f sem munu nokkuð hafa brotn- f að. í gær tókst að ná skipinu f og reyndist það óskemt, enda f enginn leki kominn að því. í Skipshöfnin var í skipinu meðan ! á þessum hrakningi stóð. Kafari I hefir verið fenginn frá Akureyri. til þess að athuga botn skipsins. —Tíminn 28. nóv. Finnar vinna einn sigurinn á fœtur • • Ap * oorum Fregnir frá Kaupmannahöfn á þriðjudaginn láta þess getið, að finski herinn hafi gereyðilagt heila rússneska hersveit á víg- stöðvunuin nálægt miðbiki Finn- lands; var þetta 44. herdeild hinna rússnesku rauðliða; er þetta talinn stærsti og mikilvæg- asti sigurinn, sem Finnar frarn að þessu hafi unnið yfir árásar- fylkingum Josefs Stalin. — For- sætisráðherra Finna hefir tilkynt alþjóð manna, að eins og sakir standi, ríði þjóð sinni mest af öllu á því, að fá auknar vopna- birgðir. Nýr sendiherra í Ottawa Roosevelt Bandarikjaforseti hefir skipað James H. R. Crom- well til sendiherra í Canada, og tekur hann við þvi embætti á næstunni. Mr. Cromwell er hag- fræðingur að sérmentun, og er giftur Doris Duke, auðugustu konu í heimi; safnaði faðir heníiar mestmegnis hinum feikna auðæfum á tóbaksiðnaði og víðtækri tóbaksverzlun. Þjóðþingi Bandaríkja stefnt til funda Á miðvikudaginn þann 3. yfir- standandi mánaðar, kom þjóð- þing Bandaríkjanna saman til funda. f ávarpi sínu til þings- ins, fór Roosevelt forseti fram á hærri fjárveitingu til hermála en dæmi eru áður til á friðartímum i sögu þjóðarinnar, eða $1,839,- 000,000. Á nálega öllum öðrum sviðum stjórnarstarfrækslunnar, lækka áætluð útgjöld til muna. Snjólfur J. Austmann látinn Þann 2. þ. m. lézt að heimili sonar síns i Kfenaston, Sask., Snjólfur J. Austmann trésmiður, kominn fast að áttræðu; hann fluttist til þessa lands af Aust- fjörðum ásamt konu sinni, árið 1883, og dvaldi lengstuin í Win- nipeg. Snjólfur var gerfilegur maður að vallarsýn, skáldmæltur og hneigður til fróðleiks; hann var manna tryggastur þar sem hann tók þvi, en revndist and- stæðingum sínum þungur í skauti. Af börnum Snjólfs eru á lífi: Joe, búsettur við Kenaston, Sask., Walter, leikari í New York; Mrs. Lillian Sanderson og Mrs. Clara Miller, báðar búsettar í Winnipeg. Barnabörn Snjólfs heitins eru níu að tölu. Norðurlandaþjóðir undir vopnum Símað er frá Kaupmannahöfn á mánudaginn, að Norðurlanda- þjóðirnar þrjár, Danmörk, Nor- egur og Svíþjóð, séu albúnar til víga ef á hlutleysi þeirra verði ráðist; þó þjóðir þessar séu ekki mannmargar eiga þær harðsnún- um herfylkingum á að skipa engu síður en Finnarnir. Eiga samtalsfund v Utanrikisráðherrar ftaliu og Ungverjalands áttu með sér fund i Venice síðastliðinn laug- ardag til þess að ræða um sam- eiginleg hagsmunamál þjóðanna beggja; fylgir það sögu, að ítalir hafi heitið Ungverjum herstyrk ef til þess kæmi að Rússar eða Þjóðverjar réðist á land þeirra. Markús Jónsson Og Margrét Jónsdóttir BALDUR, MAN. (Fimmtíu og fimm ára brúðkaupsafmæli) Að hafa verndað vorsins skjöld í vetur fimm og hálfa öld, það gera aðeins gæfumenn, sem geyma eldinn helga enn, er brendi inn í æfisvip hvert islenzkt ljóð sem minjagrip. Að hafa meir en hálfa öld í heimi ástar málað tjöld, og glaðst í sýn við geislann þar sem Gunnlaugs skikkjan rakin var, er æfisigur útlendings, sem á nú skamt til hinsta þings. Einar P. Jónsson. Hófatak Eftir Guðfinnu frá Hömrum Fáksins dunandi hófahljóð á hrynjandi guðlegs máls. Ert svipmótið hjó af næmi og náð náttúran eilíf og frjáls. Hún meitlaði brún og fallandi fax og fegursta brjóst og háls. Og drottinn blessar ’inn harða hóf, er hörpu vegarins slær. sem knýr fram tárin úr klökkri rót en kletturinn undir hlær. Þótt hófsporin blæði um særðan svörð, að sumri þar aftur grær. Við hófanna snild og leik og lag fá löndin hjarta og sál. Þeir töfra fagnandi sigursöng úr svelli um djúpan ál. Þeir kveða við grund og hvísla við sand og kveikja i urðum bál. Þey, þev, eg heyri hófatak, er hærra í Ioftin dró. Um Bifröst, er tengir himin og heim og hvelfist um land og sjó, fer ástin á drifhvítum draumafák og dauðinn á bleikum jó. Gegnum vorlöndin víða og fríð mig vakri fákurinn ber. Og ilmbjörkin titrar á traustri rót og teygir sig eftir mér. Sem höfugur niður um hljóða jörð hófaslátturinn fer. —Vaka.

x

Lögberg

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.