Lögberg - 11.01.1940, Síða 4

Lögberg - 11.01.1940, Síða 4
4 LÖGBERGr, FIMTUDAGINN 11. JANÚAR, 1940 & ' -----------i.ögfafrg----------------------- OefiB út hvorn fimtudag af THJ2 COLiUMBIA PRESS, LIMITED 6#5 Sargent Ave., Winnipeg, Manitoba Utanáskrift ritstjórans: EDITOR LÖGBERG, 695 Sargent Ave., VVinnipeg, Man. Editor: EINAR P. JÓNSSON Verð $3.00 tim árið — Borgist fyrirfram The “Lcigberg" is printed and published by The Columbia Press, Limited. 69 5 Sargent Avenue, Winnipeg, Manitoba PHONE 86 327 Orð í tíma talað Tímaritið National Home Monthly, sem gefið er út hér í borg og Mr. L. E. Brownell er ritstjóri aS, flutti um áramótin grein, er vakið hefir víðtæka athygli um landið þvert og endilangt vegna þeirra hollráða, er hún hefir til brunns að bera; felur greinin í sér drengilega bending til iðnfyrirtækja cana- disku þjóðarinnar um frjáls framlög til stríðsþarfa með það fyrir augum, að koma í veg fyrir hækkandi þjóÖskuld að svo miklu levti, sem auðið má verða. Mr. Brownell sýndi Lögbergi þann góðvilja að senda því sérprentun af greini sinni, og kunnum vér honum alúðarþakkir fyrir. Nokkur kafli greinarinnar er á þessa leið: “Yér eigum í stríði, sem óhjákvæmilegt er að vér til fullnustu vinnum; þetta stríð er háð gegn einræðisöflunum, er engan rétt við- urkenna annan en hnefaréttinn; vér heyjum þetta stríð til verndar persónufrelsi, hugsana og athafnafrelsi; það kemur engri stétt manna annari fremur við; það grípur jafnt inn í tilveru vor allra. Sé lýðræðisfyrirkomulagiS starfhæft, og vér trúum því að svo sé, þá stendur oss nú til boða að sanna mátt þess og sigurmagn í baráttu vorri gegn miskunnarlausum ein- ræðisöflum. Styrkur vor er fólginn 1 því, að taka af fúsum vilja þátt í þessum hildar- leik; þrátt fyrir það telja einvaldarnir frjálsa þátttöku sýnilegan vott um vanmátr og veiklun; nú er það á voru valdi, að af- sanna þær staðhæfingar þeirra, er að þessu atriÖi lúta; lýðræði vort er starfhæft, og vér erum þess umkomnir, að sanna alþjóð manna að svo sé. Styðjist það við sannleik, sem lengi hefir verið haldið fram, að einn sjálf- boði sé virði margra herskyldaðra manna, þá er það nú í voru valdi, að taka af öll tví- mæli í því efni. Vér getum barist á vígvelli, og vér getum gefið oss við framleiðslu. 1 þessu stríði fáum vér ef til vill engu minna áorkað með því, að helga krafta vora fram- leiðslunni, en beinni þátttöku í hinum ýmsu greinum hernaðarins. 1 þessu stríði verður það vitaskuld stjórnin, er alla sanngjarna ábyrgð ber á þátttöku og starfrækslu; hún býður út loft- her og flota og kveður til vopna hinar ýmsu liðssveitir; hún beitir sér fyrir innkaup á vistum og vopnabirgðum; hún aflar peninga með hækkuðum sköttum eða nýjum sköttum; hún semur og fær samþykt þau löggjafará- kvæði, sem nauðsynleg teljast vegna þátttöku í stríðinu til verndar þegnunum heima fyrir og vegna stríðsathafnanna sjálfra; þessi á- byrgð, sem á stjórnarvöldunum hvílir, er eðlileg og réttlát, og hennar vegna ber oss öllum að inna af hendi vissar fórnir með til- liti til peninga og vissra takmarkana á venjulegu sjálfræði. En sá vræri lítilsigldur Canadaþegn, er vildi ekki með glöðu geði inna þær fórnir af hendi, sem nauðsynlegar eru til þess að tryggja Canada og samherj- um á sínum tíma fullnaðarsigur í stríði þessu. Margir hraustir menn hafa þegar af fúsum vilja gefið sig fram til herþjónustu vegna málstaðar hinnar canadisku þjóðar; með inngöngu í herinn hafa þeir lýst vfir því, að þeir séu þess albúnir, að inna af hendi hversk'onar fórnir, jafnvel fórnina mestu, fórnina þá að láta lífið til þess að trvggja Canada og brezku veldisheildinni framhald þess persónufrelsis, er einstakling- ar þeirrar þjóðakeðju nú njóta, og dýrkeypt reynsla margra alda veitti þeim; þeir eru fúsir til þess að leggja fram alt; alveg alt. Og þúsundir kvenna, víðsvegar um landið, hafa komið á hjá sér skipulagsbundnum sam- tökum vegna þátttöku Canada í núverandi frelsisstríði; þær hafa af fúsum og frjálsum vilja lagt fram mikinn tíma, og fórnað miklu af starfsorku í baráttunni fyrir verndun lýðræðisins; þetta eru persónulegar fórnir þeirra í þágu þess að stríðið vinnist af hálfu vorri og samherja. En hvað er um iðnað hinnar canadisku þjóðar? Um leið og slík spurning sem þessi er lögð fram, skal það fyrst og fremst tekið til gxeina, að núverandi stríð er háð með tvennum hætti; annars vegar er mannaflinn, en hinsvegar efnisöflin. Og á þessu stigi málsins, virðist svo sem hin síÖamefndu öflin, eða þau hagsmunalegu séu þyngri á metum en jafnvel sjálfur mannaflinn; þetta skýrist að nokkru með hliðsjón af vörubanni, siglingabanni og þeim öðrum truflunum, sem á vegi verða í alþjóða viðskiftum, að því leyti sem þá verður sýnt, að sú þjóÖin, sem úthaldsbezt reynist á sviði hinnar efnalegu afkomu, stendur margfalt betur að vígi en óvinaþjóð hennar.— Með þeita fyrir augum, er nú stungið upp á því hér, að canadiskur iðnaður — verksmiÖjur, námur, akuryrkjan og önnur náttúrufríðíndi, bjóði fram vissan smáhluta af framleiðslu sinni ókeypis, og fái í hendur nefnd þeirri, er fyrir hönd Oanadastjórnar annast um innkaup vörubirgða vegna stríðs- ins. Þetta sýnist vert hinnar fylstu íhug-unar. Hugsum oss að bílaframleiðandinn og sá, er framleiðir niðursoðin matvæli, tilkynti inn- kaupanefnd hinnar canadisku stjórnar, að hún mætti vænta ákveðins skerfs af hlutað- eigandi framleiðslu, er henni mest lægi á; hið sama gæti og gilt í sambandi við olíufram- leiðandann, timburfframleiðandann, eplafram- leiðandann og hveitiræktarbóndann er fús mætti verða til að láta af mörkum í þessu skyni einn hveitimæli af hverjum hundrað; þá gæti og hveitimyllueigandinn malað það hveiti, er innkaupanefnd fengi til umráða, og látið verkið verða tillag sitt; vörur þær, sem þannig væri gefnar, ætti að verða fluttar ókeypis til áfangastaðar með járnbrautum, skipum og vöruflutningabílum eftir því sem bezt hentaði í þann og þann svipinn. Þetta eru aðeins fáar uppástungur; allar þessar framleiÖslutegundir, og þúsundir að auk, eru óhjákvæmilegar með það fyrir augum, að oss verði trygður sigur í stríðinu. Engum kemur það til hugar, að einstakl- ingar leggi fram vinnu sína óekypis; vinnu- laun þurfa ávalt og á öllum tímum að verða greidd; allar þær vörur, sem innkaupanefnd samkvæmt ofanskráðum uppástungum fengi í hendur, yrði að sjálfsögðu að vera jafn- vandaður og þær væri ætlaðar til framboðs á markaði algengrar samkepni; vörur, sem þannig yrði gefnar, yrði í vörzlum hlutað- eiganda þar til innkaupanefnd, að fengnum upplýsingum, teldi þeirra þörf; oss skilst, að hér sé um það mikilvægt málefni að ræða, að það verðskuldi fulla athygli og fylstu samúð allra framleiðenda landsins; það er engan veginn óhugsanlegt, að með þessum hætti bærist innkaupanefnd í hendur miklar birgðir af auðsynjavörum til stríðsþarfa; vörur, sem lagðar væri fram stjórninni að kostnaðarlausu af fúsum og frjálsum vilja; vörur, sem að öðrum kosti hefði óhjákvæmi- lega kostað álitlega fúlgu, er vér vafalaust hefðum orðið að borga fyrir með nýju stríðs- láni eða nýjum sköttum; eigi aðeij^s vér, sem nú erum ofar moldu, heldur og komandi kynslóðir; í þessu yrði fólginn hreint enginn smáræðis sparnaður fyrir allan almenning, því allir verða að taka sinn þátt í þeim kostnaði, sem frá þátttöku vorri í stríðinu stafar; þjóðin á enn ógoldnar skuldir frá síðasta stríði, og þeim mun gildari er því ástæðan fyrir því, að beita hagfeldum sparn- aði og auka ekki á skuldir fram yfir það, sem óumflýjanlegt er; þó er ekki óhugsandi, að einn allra veigamesti liður hagnaðarins, er af ofanskráÖum uppástungum leiddi, yrði sálræns eðlis; því fegurri vitnisburð um canadiska þjóðeiningu gæti ekkert borið fremur en það, að sjálfviljug þátttaka vor í stríðinu hvað mannafla áhrærir, héldist í hendur við frjáls og fús framlög af hálfu canadiskra iðnstofnana.” Þarfur maður Islendingum Þó íslenzka þjóðin hafi löngum átt því láni að fagna, að eiga vítt um heim góða 'vlni, er helguðu krafta sína fræðslustarfsemi um þjóð og land, þá mnn hún fáa hafa eign- ast, er jafnist á við prófessor Watson Kirk- connell; tungumálaþekking hans er einstæð, og starfsþrek hans slíkt, að til undantekn- inga telst; hann er ekki hálfnaður með æfi- starf sitt, því enn er hann svo að segja á bezta aldri. A sunnudaginn var flutti Mr. Kirkconnell útvarpserindi um skáldið Guttorm J. Gutt- ormsson, og las upp nokkuð af kvæðum hans í hinum enska búningi sírium, þar á meðal hið glæsilega ljóð “Sandy Bar.” Vér höfum átt tal við nokkra menn, íslenzka og ensku- mælandi, er á erindið hlýddu, og bar þeim öllum saman um, að það hefði verið sérlega vandað' og meistaralega flutt. I fylkingarbrjóáti berklavarnanna frá byrjun Afmælis-samtal við Sigurð Magnússon sjötugan Sigurður Magnússon prófessor, fyrverandi yfirlæknir á Yífils- stöðum, á sjötugsafmæli í dag. Starfsbræður hans munu i kvöld minnast þess með samsæti. En fjöldinn allur af fólki, sem kynst hefir hinuin umhyggju- sama lækni, sendir honum hlýj- ar kveðjur í tilefni afmælisins. Það var um síðustu áramót, sem hann lét af læknisstörfum á Vífilsstöðum, eftir nálega 30 ára f-orustu fyrir þessu fyrsta heilsu- hæli landsins. Æfistarfi hans verður þannig bezt lýst í fám orðum, að allan þann tíma hefir hann staðið í fylkingarbrjósti í baráttu þjóðarinnar gegn berkla. veikinni. f gær átti eg tal við prófessor- inn á heimili hans hér í bænum. Hann á heima í nýju húsi við Laugaveg 82, horninu á Baróns- stíg Þangað flutti hann frá Vífilsstöðum í vor. —Það er vegna þessa merkis- dags yðar á morgun, að eg geri yður ónæði í dag, sagði eg við hinn sjötuga prófessor, er við vorum komnir inn í skrifstofu hans. Eigum við ekki heldur að kalla það sorgardag, sagði hann þá; því það er sannarlega ekkert gaman að því, að vera sjötugur. Og eg gat fyllilega skilið, að málið horfði þannig við fyrir hans augum, því hefði Sigurður Magnússon ekki verið orðlagð- ur sem sérstaklega áreiðanlegur maður, þá hefði eg átt erfitt með að trúa því, að hann væri svoiía gamall. Alt útlit mannsins mælir á móti því. En síðan spurði eg hann að því, hve langt væri síðan hann fór að gefa berklaveikinni sér- staklega gaum. Fyrir 37 árum. Síðan eru nú liðin 37 ár, segir hann. Og ef eg á að segja eins og er, þá finst mér það í raun og veru hafa verið tilviljun að berklaveiki og berklavörn vöktu sérstaka athygli mína og áhuga. Það var árið 1902, að eg var sem kandidat á “öresundshospi- talet” í Höfn. Árið áður, þá ný- útskrifaður, hafði eg verið hér heima í Reykjavík, og kent á læknaskólanum fyrir Guðmund heit. Magnússon. Eg kendi m. a. “kirurgi.” Það hefir sjálfsagt verið Iéleg kensla, því eg var ný- sloppinn frá prófborði og hafði engan praksis. En svo sigldi eg sem sagt til þess að vera á ýmsum spítölum. Þarna á öresundshospitalet var Fejlberg yfirlæknir. — Hann var einn af þeim fyrstu, sem byrj- uðu í Danmörku ^ því að láta berklasjúklinga fá þá heilsuhæl- ismeðferð, sem síðar breiddisl mjög út. Eitt af ^júkraskýlum spitalans var eitt fyrsta hæli í Danmörku í þeirri mynd. Þessi kynni min af hinni nýju meðferð berklasjúklinga vakti áhuga minn fyrir því, að gefa mig að þeim lækningum. Að vísu hafði eg kynst þessari “hreyfingu” á námsárum mín- um, því þá var um hana skrifað allmikið. Þnð var ekki sizt Saugmann, síðar berklalæknir á Vejle-heilsuhæli,' er skrifaði um þau mál. Jarðskjálftakippurinn og presturinn Eg var í Danmörku samfleytt til ársins 1907, á ýmsum spít- ölum þar, m. a. Boserup-heilsu- hæli, og eitt ár var eg “á flæk- ingi” um Danmörku, “vikarier- aði” fyrir lækna, sem áttu frí. Það átti vel við mig. Að breyta til og kynnast mörgu fólki og staðháttum. Bezt líkaði mér við Jótana. En einna sögulegasta læknis- vistin var á Anholt. — Það var lítið læknishérað, eyjan mest öll sandhólar, nema gróður í miðri eynni. Læknirinn sem þar var, fór altaf einu sinni á ári í trú- boðsferðalag. Hann var víst ekki sérlega mikill læknir. Þegar hann svndi mér meðalaskápinn sinn, fanst mér hann heldur fá- skrúðugur. Enda sagði hann við mig í trúnaði, að hann væri bú- inn að finna það út, að menn þyrftu ekki nema tvenskonar meðul, annað innvortis, kínin, og útvortis, joð. Það var aðallega joðið sem eg notaði þann mán- aðartíma, sem eg var þarna, því kvillasamt var þar ekki, nema hvað sjómennirnir fengu sifelt fingurmein. Talsvert litræði var frá eynni. Þegar læknirinn kom úr sínu trúboðsferðalagi, þá fór hann í kirkju, með fjölskyldu sinni. Það var á sunnudegi. Eg nenti ekki að fara. En meðan fólkið var í kirkjunni kom sá einasti jarðskjálftakippur, sem eg hefi fundið í Danmörku. Þegar læknirinn kom úr kirkj- unni spurði eg hann að því, hvort hann hefði ekki fundið jarðskjálftann. Nei. Var það jarðskjálfti?, sagði hann og var sýnilega von- svikinn. Eg skal segja yður nokkuð. Presturinn var í stóln- um og var nýbúinn að gefa söfn- uðinum reglulega kröftuga á- minningu. Eg hélt að Guð hefði tekið undir með honum, með því að hrista kirkjuna. Þér töluðuð um “heilsuhælis- hreyfinguna” og hina nýju með- ferð á berklasjúklingum. Hvern. ig var þeirri nýjung háttað? Helmingi meira en saddur Upphafsmenn hennar voru þýzku læknarnir Rehiner og Dett- weiler. Þeir tóku upp þá aðferð, að berklasjúklingar skyldu hafa nákvæmlega afmælda hvíld og hreyfingu, og vera altaf í góðu lofti; aldrei yrði látinn aftur gluggi, þar sem þeir væru. Þetta kom í staðinn fyrir meðul, sem áður voru notuð. Ennfremur var á þeir áruin lögð mikil á- herzla á, að sjúklingarnir yrðu sem feitastir. Yfirlæknirinn á Boserup, Strandgaard, hélt altaf dálítinn ræðustúf yfir hveríum nýkomnum sjúkling, og sagði meðal annars) þetta: “Þér skul- uð borða eins mikið og þér getið. Og þegar þér eruð saddur, þá skuluð þér borða helmingi meira.” En nú er þessi fitunar- aðferð úr sögunni. Traust bygging Eg kom svo heim árið 1907 og praktiseraði hér í tvö ár, þangað til eg var ráðinn að hinu tilvonandi Vífilsstaðahæli. Þá sigldi eg aftur og fór víða um lönd til þess að kynnast heilsu- hælum og berklasjúklingum. Þá var aðeins að byrja sú lækninga aðferð að þrýsta lunguin saman með lofti, til þess að sár lokuð- ust. — Sú aðferð var tekin upp hér 1912. Það var Heilsuhælisfélagið, sem gekst fyrir stofnun Vífils- staðahælis, sem kunnugt er. Það mál gekk alt greiðlega, eftir að á því var byrjað fyrir alvöru, fyrir forgöngu ýmsra mætra manna. Rögnvaldur ólafsson byggingameistari hafði umsjón með byggingunni. Viðkvæði hans var, að hann vildi hafa hús- ið svo traust, að það hryndi ekki þó jarðsk jálftakippur kæini. Hann enti það vel. Veggir eru þar svo þykkir og traustir, að slíkt er óvenjulegt með öllu. Hann var því miður meðal fyrstu sjúklinganna á hælinu. Þó hann kæmist þaðan aftur um tíma, átti hann skamt eftir ólifað. Hvernig var berklaveikin í landinu þegar hælið komst á fót og þér byrjuðuð starfsemi yðar? Sveitabæjirnir voru einangraðir Ástandið var ískyggilegt í alla staði. Síðustu 20 átin hafði berklaveikin aukist ákaflega mikið. Það er mín skoðun, að hún sé gömul hér í landi. En breyttir staðhættir í landinu juku útbreiðslu hennar síðasta áratug 19. aldarinnar. Hvað kom þar helzt til greina? Sjáið þér til! Meðan mestur hluti þjóðarinnar bjó í sveit, þá vorij heimilin svo einangruð, að ekki voru önnur eins smitskil- yrði, eins og þegar fólkið fór að hópast í kauptún og kaupstaði. Þó menn komi snöggvast á berklasmituð heimili, þá smitast þeir varla. Það er mín skoðun, að menn smitist ekki af berkl- um, nema að þeir verði fyrir mörgum áhlaupum sóttkveikj- anna, bakteríunum sé ausið yfir þá hvað eftir annað. Já, en er ekki talið, að flest- allir smitist af berklum ein- hvern tíma á æfinni? Jú, vissulega. En þó menn smitist, þá eru það svo margir, sem betur fer, er hafa nægilegt móteitur eða mótstöðuafl í lík- amanum. til þess að “hrinda árásinni,” svo smitunin kemur ekki að sök. Nema, eins og eg sagði áðan, þegar hver árás berklanna af annari getur lamað mótstöðu Hkamans. Margt af því fólki, sem til kaupstaðanna kom, fékk þar öllu verra húsnæði, en það hafði haft í sveitinni. Þó baðstofurn- ar væru slæmar, þá er eins og útivist sveitafólksins á daginn hafi orðið til mikillar heilsubót- ar. —En breytt mataræði. Mun það ekki lika hafa aukið berkla- útbreiðsluna? —Það má telja vist. T. d. fjörefnaskorturinn i kaupstaða- fæðunni, eða þverrandi fjörefni í fæðu almennings, er vitanlega dregur úr mótstöðuaflinu gegn sjúkdómnum. En verst af öllu er það, ef fólk hefir lélegt, einhæft fæði eða beinlínis líður skort og hefst við í óhollum húsakynnuin, þá þverr mótstöðuaflið mest gegn berkla- veikinni. Spítalar voru engir fyrir sí- fjölgandi berklasjúklinga, fyrri en hælið komst upp. Flest allir urðu að liggja i heimahúsum. Og lítil þekking var meðal al- inennings um það, hvernig með- ferð þeir ættu að fá, og hvernig verjast ætti smitun. Á Korsiku og íslandi Hvernig var Vífilsstaðahælinu tekið i byrjun? Hælið tók til starfa i október 1910. Það kom vitanlega strax í Ijós, hve þörfin var mikil fyrir hælið. Sjúklingarnir komu fljótt og var hvert rúm fult þar um áramót, að mig minnir. En úti á meðal fólks voru ekki allir jafn trúaðir á nytsemi hæl- isins. T. d. sagði Þorsteinn heit. Gíslason, að til hans hefði komið merkur maður með grein til birt- ingar, þar sem hann andæfði kröftuglega þessum nýju lækn- inga aðferðum á Vífilsstöðum með alla þessa opnu glugga. Því allir vissu, sagði hann, að ekkert væri brjóstveikum eins nauðsyn- legt eins og hlýindin. Það gátu menn skilið, að hægt væri að fá lækningu með útilofti suður á Korsíku, eins og Björn Olsen rektor hafði reynt, en hann fór þangað eitt sinn sér til heilsubótar. En að ætla sér að lækna berklasjúklinga með úti- lofti hér á íslandi, og það að * vetrarlagi, það fanst ýmsuin nokkuð fjarstæðukent. Koníakkslækningin Olsen rektor hafði þá trú, og svo var um fleiri, að hægt væri að lækna berkla með koníakki. Koníakkslækning kom víða við sögu um skeið. Brehmer gaf sjúklingum reglur um göngulag sér til styrkingar, og lét fólk ganga ákveðinn spöl upp í móti,

x

Lögberg

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.