Lögberg - 18.07.1940, Page 8
LÖGBEBG, FIMTUDAGINN 18. JÚLÍ, 1940
SVALT OG
HRESSANDI
a
0r borg og bygð
MA TREIÐSLUBÓK
Kvenfélaga Fyrsta lúterska safn-
aðar í Winnipeg. Pantanir
sendist til: Mrs. E. W. Perry, 723
Warsaw Ave.; Mrs. E. S. Feld-
sted, 525 Dominion St. Verð:
$1.00. Burðargjald 5c.
f f +
íslenzkur miðaldra, eða rosk-
inn kvenmaður, óskast til léttrar
vinnu hér í borginni þar sem
einungis hjón eru fyrir; góð að-
húð ábyrgst, og kaup greitt eins
og um semst. Upplýsingar á
skrifstofu Lögl>ergs.
-f f f
Archibald Magnús Johnson,
Langruth og Sveinbjörg Tlhor-
gerður Eiríkson, Lundar, voru
gefin saman í hjónaband af séra
Valdimar J. Eylands að heimili
hans 776 Victor St. á föstudag-
inn 12. júli. Heimili ungu hjón-
anna verður að Langruth.
f f f
I Lögbergi þann 6. mai síðast-
liðinn birtust afmælisvísur til
frú Helgu T. Johnson í Seattle.
Visurnar voru eftir Jón skáld
Magnússon í Seattle. En nú
hefir þess verið æskt að þess sé
jafnframt getið, að frú Helga sé
kona Tryggva Jónssonar frá
Húsafelli, er dvalið hefir síðast-
liðin ár á Sturlureykjum í Reyk-
holtsdal.
f f f
Á miðvikudaginn voru gefin
saman í hjónaband af séra Valdi-
mar J. Eylands, þau Miss Sylvia
Thorkelsson frá Lundar, og Mr.
Bogi Jónasson, sonur Mr. J. K.
Jónassonar óðalsbónda að Vogar.
Hjónavígslan fór fram á heimili
bróður brúðgumans, Mr. G. F.
Jónasson og frú Jónasson, að
195 Ash Street hér í borginni.
Framtiðarheimili ungu hjónanna
verður í grend við Mafeking,
Man., þar sem brúðguminn tekst
á hendur forstjórn umsvifa-
mikils griparæktarbús.
f f f
Látinn er nýlega í bænum
Watertown í South Dakota, Mr.
Ghristian Jöhnson, 91 árs að
áldri; fæddur á fslandi 1849;
hann var tvíkvæntur; fyrri kona
Sigurbjörg ólson, og komu þau
til Bandaríkjanna 1887, og sett-
ust að í grend við Marshall,
Minn., og þar misti hann konu
sína. Eftir 13 ára dvöl við Mar-
shall fluttist Christian til Water-
toiwn, og kvæntist þar Sigríði
Johnson, sem einnig er látin;
stóð heimili Christians heitins í
þeim bæ í 40 ár. Mr. Johnson
Jætur eftir sig einn son, John
K. Johnson í Brookings; tvær
stjúpdætur, Mrs. Kristinu Jo-
sephson í Watertown, og Mrs.
L. C. Gilliland, Washington, D.C.
Einnig tvo stjúpsonu, Henry
Johnson í Watertown og Rev.
Aðalstein Johnson að Grinnell,
Iowa.
Útför Mr. Jrthnsons fór fram
frá Grace lútersku kirkjunni í
Watertown. Rev. O. C. Hanson
jarðsöng.
Thorlakson & Baldwin
699 SAIMÍKIVT
You can possibly afford to
lose your car in an accident, but
you cannot afford to be sued for
injury or death to a person
caused by your car. Liability
insurance protects you against
this.
In addition to insurance of all
kinds we arrange the financing
of automobiles being purchased.
J. J. SWANSON & CO., LTD.
308 Avenue Bldg.
f f f
Þann 11. júlí voru gefin sam-
an í hjónaband af sóknarpresti
í Árborg, Man., að heimili hjón-
anna .Guðbjargar og Elísasar
Elíassonar, yngri sonur þeirra
Marinó Sæmundur að nafni, og
Guðlaug Helga dóttir Mr. og Mrs.
Jón Eiríksson, Riverton, Man.
Fjöldi vina, frændaliðs og sam-
bæjarfólks frá Árborg og River-
ton og umhverfi sat ríkmannlega
veizlu að hinu fagra heimili
Elíassons hjónanna að athöfn-
inni aflokinni. Framtíðarheim-
ili unigu hjónanna verður í
Riverton, þar sem að Mr. Elías-
son er skólakennari við ágætan
orðstír.
f -f f
TIL BÖÐVARS
Á LAUGARVATNI:
Eg er nýbúinn að veita við-
töku hinni fögru Víkingalækjar-
ættartölu eftir Pétur Sóffónías-
son, sem þið Einar Pálsson
bankastjóri á Selfossi voruð svo
hugulsamir að senda mér; við
það að horfa á myndirnar i bók-
inni vöknuðu hjá mér viðkvæm-
ar endurminningar um æsku-
stöðvar mínar á íslandi, er fluttu
mig í anda heim. Eg er búinn
að láta binda bókina í fagurt
band, og fer með hana eins og
sjáaldur auga míns.
Með alúðarkveðju til þín, fjöl-
skyldu þinnar og annara vina,—
Winnipeg 16. júlí 1940.
Viglundur Vigfússon,
frá úthlið.
f f f
Síðastliðinn sunnudag lézt ”á
AIm^nn|a sjúkrajhúisinu »hér í
borginni, Eggert Stefánsson,
fyrrum búsettur í Selkirk, 84
ára að aldri; hann lætur eftir
sig eina dóttur, ólöfu, konu Jó-
hannesar Ohristie verzlunar-
manns í Winnipeg. útförin fór
fram frá Bardals á þriðjudaginn.
Séra Philip Pétursson jarðsöng.
-f f f
Fimtudaginn 11. júlí s.l. and-
aðist á Almenna spítalanum í
Winnipeg ekkjumaðurinn Pálmi
Sigtryggsson fyrrum bóndi að
Brú í Manitoba. Hann var
fæddur að Tyrfingsstöðum í
Akrahreppi, Skagafjarðarsýslu,
17. ágúst 1862. Um tvítugt kom
Ihann til Winnipeg og vann á
járnbrautunum um tíma. Byrj-
aði búskap nálægt Sandilands í
Manitoba en fluttist til Argyle
og í Brúarbygð 1910 og bjó þar
æ síðan að undanteknum 2 árum
sem hann seinast dvaldi hjá
Haraldi stjúpsyni sínum, skamt
vestur af Glenboro. Banamein
hans var afleiðingar beinbrots,
sem hann hlaut við heimastörf
í vetur seint, en sem ekki fékst
ifullur bati við. Pálmi var hæg-
ur i framgöngu, fámæltur en
gat þó kátur og reifur verið í
sínum hóp. Vel gefinn og les-
inn talsvert. Bústörf sín annað-
ist hann vel og hafði jafnan nóg;
karlinenni að hurðum og bar sig
jafnan vel. Jarðarför hans fór
fram laugardaginn 13. júlí frá
Brúarkirkju. Nánustu ættingjar
og vinir fylgdu hinum látna til
grafar. Séra E. H. Fáfnis jarð-
söng.
KAUPIÐ AVALT
LUMBER
hjft
THE EMPIRE SASH & DOOR CO. LTD.
HENRY AVENUE and ARGYLE STREET
Winnipeg, Man. - Phone 95 551
Messuboð
FYRSTA LÚTERSKA KIRKJA
Séra Valdimar J. Eylands
Heimili: 776 Victor Street.
Sími 29 017.
Engar guðsþjónustur í júlí mán-
uði.
f f f
Guðsþjónusta og sunnudaga-
skóli í Konkordia kirkju 21. júlí
kl. 1 e. h. — Sama dag guðs-
þjónusta í Lögbergs kirkju,
ferming og altarisganga kl. 3
eftir hádegi.
S. S. C.
f f f
VA TNABYGÐIR
Sunnudaginn 21. júlí:
Kl. 11 f. h. (fljóti tíminn)
messa í Leslie; kl. 2 e. h. (seini
tíminn), messa í Mozart; kl. 7
e. h., messa í Wynyard.
Jakob Jónsson.
-f f -f
Séra Jakob Jónsson, kona
hans og börn leggja af stað á-
leiðis til fslands i næstu viku.
f f f
LÚTERSKA PRESTAKALLIÐ
t VATNABYGÐUM
Séra Carl J. Olson, B.A., B.D.
prestur
Guðsþjónustur 21. júlí:
Mozart kl. 11 f. h.
Kandahar kl. 7.30 e. h.
Foam Lake kl. 11 f. h.
Westside kl. 3 e. h.
Leslie kl. 7.30 e. h.
íslenzk messa og mjög áríðandi
fundur að Mozart 28. júlí kl. 2
eftir hádegi.
f f f
Sunnudaiginn 21. júlí messar
sésa H. Sigmar í Fjallakirkju
kl. 11 f. h„ í Garðar kl. 2.30 e. h.
og í Mountain kl. 8 að kveldi
—messan á Mountain á ensku.
f f f
Séra K. K. ólafson flytur guðs-
þjönustur sem fylgir sunnudag-
inn 21. júlií:
Otto, kl. 11 f. h.
Lundar, kl. 2 e. h.
Mary Hill, kl. 8 e. h.
f f f
GlMLl PRESTAKLL
21. júlí—Betel, morgunmessa;
Árnes, messa kl. 2 e. h.; Gimli,
íslenzk messa kl. 7 e. h.
28. júlí—Betel, morgunmessa;
Víðines, messa kl. 2 e. h.; Gimli,
íslenzk messa kl. 7 e. h.
Hvern sunnudag í júli og
ágúst verða enskar “campers”
messur i Gimli lútersku kirkju,
kl. 10.30 f. h.
B. A. Bjarnason.
♦ f f
Safnaðarfundur eftir messu í
Geysissöfnuði þann 21. júlí.
Mesisan byrjar kl. 2 síðd.
S. ólafsson.
Séra Kristinn K. ólafsson, for-
seti kirkjufélagsins, kom vestan
frá Seattle um miðja fyrri viku,
og þjónar nú um hrið íslenzku
söfnuðunum við Manitobava'tn.
f f f
Síðastliðinn sunnudag voru
gefin saman í hjónaband í
kirkju lúterska safnaðarins á
Gimli, Mr. Agnar Magnússon
skólakennari hér í borginni, og
Miss Guðlaug ólafsson frá Sin-
clair, Man. Brúðguminn er son-
ur þeirra Mr. og Mrs. Ágúst
Magnússon að Lundar, en brúð-
urin dóttir Mr. og Mrs. Thor-
grímur ólafsson við Sinclair.
Séra Valdimar J. Eylands fram-
kvæmdi þjónavígsluathöfnina.
Framtíðarheimili þessara giftu-
vænlegu hjóna verður í Winni-
peg.
f f
Hin árlega útiskemtun (“gar-
den party”) Gimli lúterska safn-
aðar verður haldin fimtudaginn
25. júlí, kl. 8.30 e. h„ við heim-
ili Mr. og Mrs. John Josephson,
TTiird Ave„ Gimli. Ræður og
söngur, hljóðfærasláttur, kaffi-
drykkja og samræður við vini
og kunningja gera þessa kvöld-
stund, eins og endranær við þessi
tækifæri, ánægjulega og skemti-
lega. Inngangurinn mun kosta
aðeins 25c.
Gefin saman í hjónaiúfcd af
sóknarpresti í Árborg, Man„
þann 13. júlí: John Timehshin,
Rosenburg, Man. og Elsie Weik,
sama staðar. Framtíðarheimili
þeirra verður í Rosenburg.
f f f
Síðastliðinn sunnudag voru
gefin saman í hjónaband á
heimili þeirra Mr. og Mrs. S. W.
Melsted, 673 Bannatyne Ave„
hér í borginni, þau Miss Jónína
Sigríður Jorgenson frá Selkirk
og Wilfred Thomas Lane frá
Grand Pointe, Man. Rev. L. G.
Bald, prestur ensk-lútersku
kirkjunnar í Winnipeg fram-
kvæmdi hjónavtigsluathöfnina;
að henni lokinni, var setin veg-
leg veizla i Blackstone matsölu-
húsinu. Framtíðarheimili ungu
hjónanna verður í Winnipeg.
Brúðurin er dóttir Mr. og Mrs.
Sigurður Jorgenson i Selkirk.
Móttökumenn
framlaga í minnisvarðasjóð
K. N. Júlíusar
Kristján Kristjánsson,
Garðar, N. Dakota
G. B. Olgeirsson,
Garðar, N. Dakota
W. G. Hillman,
Mountain, N. Dakota
Th. Thorfinnsson,
Mountain, N. Dakota
B. Stefánsson,
Hallson, N. Dakota
B. Thorvardson,
Akra, N. Dakota
Ásgrímur Ásgrímsson,
Hensel, N. Dakota
S. S. Einarsson,
Upham, N. Dakota
ólafur Pétursson,
123 Home St.
Winnipeg, Man.
Friðrik Kristjánsson,
205 Ethelbert St.
Winnipeg, Man.
Mrs. B. S. Benson,
695 Sargent Ave.
Winnipeg, Man.
Mr. Sveinn Thorvaldson,
Riverton. Man.
Dr. S. E. Björnsson,
Árborg, Man.
Séra Guðm. Árnason.
Lundar, Man.
Séra E. H. Fáfnis og
G. J. Oleson,
Glenboro, Man.
Mr. Rósmundur Árnason,
Leslie, Sask.
Mr. Fred Thorfinnson og
Mr. Oli Magnússon,
Wynyard, Sask.
Mr. Gunnar Björnson.
Minneapolis. Minn.
Mr. Chris. Johnson,
Duluth, Man.
Mr. Bjarni Dalmann,
Selkirk, Man.
Séra Albert Kristjánsson,
Blaine, Wash.
Mr. Hannes Kristjánsson,
Gimli, Man.
Mr. W. G. Gíslason,
Minneota, Minn.
Canada meginn línunnar ætti að
sendast til einhverra þeirra, sem
tilnefndir eru í Winnipeg.
f umboði nefndarinnar,
Th. Thorfinnson.
Frá Vogar
(14. júlí)
Góð var tíðin í vetur, og kalla
má að framhald hafi verið á
henni til þeissa. Þó hefir hún
ekki verið einsi hagstæð hér eins
og i vetur, því regn hefir skort.
Það kom varla dropi úr lofti
hér fram í miðjan júni. Síðan
hafa komið smáskúrir af og til
en ekki nærri nógir, því jörðin
var svo þur. Það lítur því illa
út með heyskap hér, ef ekki
rignir það sem eftir er af þess-
um mánuði. Garðar líta illa út
og kartöflur eru víða ónýtar.
Akrar líta betur út, en ekki
nærri vel. Það er því dauft hljóð
í bændum þrátt fyrir veðurblið-
una.
Félagslíf er hér fremur dauft
í vor, því fáir lífgandi straumar
berast hingað frá mentamönn-
um. Þó lifnaði nokkuð yfir
því 14. júlí, þá kom Dr. Richard
Beck hingað í erindum Þjóð-
ræknisfélagsins, og safnaði hér
allmörgum meðlimum fyrir fé-
lagið. Hann hefir komið hingað
tviisvar áður og ætíð þótt góður
gestur. Við sættum því laigi og
höfðum samkomu fyrir lestrar-
félag okkar meðan hann dvaldi
hér, þvi nafn hans er ætíð nóg
til þess að fá hér vel sótta sam-
komu. Hann hefir eitthvað það
til að bera, sem laðar að honum
fólk, unga sem gamla, en slíkir
gestir eru hér fáséðir.—
ólafur Magnússon, póstaf-
greiðslum. að Hayland veiktist
snögglega 30. marz og var flutt-
ur til Winnipeg samdægurs. Var
þar gjörður á honum holskurð-
ur og dvaldi hann þar nær 7
vikur. Hann er nú kominn
heim aftur og virðist hafa feng-
ið bót meina sinna, en á langt í
land með að ná fullri heilsu.
Að öðru leyti hefir heilsufar
manna hér verið í góðu lagi.
Um giftingar hér í bygð hefi
eg litið getið í fréttagreinum.
Þær eru ætið auglýstar i hlöð-
unum af prestum þeim er fram-
kvæma þær, og frétta þá frænd-
ur þeirra og vinir um þær jafn-
óðum; en fyrir aðra hafa þær
fréttir lítið igildi. Þá má geta
þess, að nú má kalla að þessi
bygð sé alskipuð ungum bænd-
um. Gömlu landnemarnir eru
nú flestir til grafar gengnir, eða
hættir búskap og dvelja nú hjá
börnum sínum. Má því vona
að ný framfaraöld sé hér i vænd-
um, ef unga kynslóðin fær að
njóta sin, fyrir utanaðkomandi
örðugleikum.
Guðm. Jónsson,
frá Húsey.
LEIÐRÉTTING
i grein minni í síðasta Lög-
bergi um samsæti Fáfnis hjón-
anna í Glenboro var af vangá
ekki minst á einn ræðumann-
inn. Hr. óli Stefánsson flutti
þar ávarp fyrir hönd Fríkirkju
safnaðar og talaði hann mjög
fallega og vingjarnlega til prests-
hjónanna. Er hlutaðeigandi hér
með beðinn velvirðingar á þess-
ari yfirsjón.
G. J. Oleson.
Jón Sigurdsson Chapter,
I.O.D.E.
Appeal for Funds
Amount as of July 11, 1940 $186.55
Miss Inga Johnson, Gimli... 3.00
Miss Jennie Johnson, Wpg. 1.00
Mrs. W. J. Burns, Winnipeg .. 1.00
Miss G. Johnson, Winnipeg. .. 1.00
Mr. Fr. Kristjanson, Wpg... 1.00
Mrs. Kr. Gmodman, Winnipeg 1.00
Mrs. B. Nimmons, Winnipeg 1.00
Mrs. J. G. Snidal, Winnipeg 1.00
Mercer’s Dry Goods Co. Wpg. 1.00
$197.55
The Jon Sigurdson Chapter
I.O.D.E., has forwarded to the Na-
tional Chapter the sum of $200.00
toward the purchase of a Bolling'
broke Bomber.
This Bomber ($100,00.00) was pre-
sented to the Dominion Government
at a very impressive ceremony last
Saturday, in Ottawa.
We wish to express to our many
friends our very sincere thanks for
their assistance, in enabling us to
reach our objective on this and on
many other occasions.
On behalf of the Chapter:—
MRS. J. B. SKAPTASON, Regent,
378 Maryland St>
MRS. B. S. BENSON,
695 Sargent Ave.
Minniál BETEL
í
erfðaskrám yðar
Til þess að tryggja yður
skjóta afgreiÓslu
Skuluð þér ávalt kalla upp
SARGENT
TAXI
FRED BUCKLE, Manager
Light Delivery Truck
PHONE
34 555 - 34 557
SARQENT and AQNES
i
printinq...
L distinctrDe s
and persuasi^e
D
[pUBLICITY that attracts and compels action on
the part of the cusitomer is an important factor
in the development of business. Our years of experience
at printing and publishing it at your disposal. Let us
help you with your printing and advertising problems.
Hlie COLUMBIA PRESS LIMITED
695 Sargent Ave. WINNIPEG Phones 86 327 -8