Lögberg - 20.11.1941, Síða 1

Lögberg - 20.11.1941, Síða 1
PHONE 86 311 Seven Lines Cot %o* *d Servioe d*rer ^ and Satisfaction PHONE 86 311 Seven Lines A V^C d Cot For Better Dry Oleaning and Laundry 54. ÁRGANGUE LÖGBERG, FIMTUDAGINN 20. NÓVEMBER, 1941 NÚMER 47 Kaupskipafloti Bandaríkjanna vopnast Löggjafarþing Bandaríkjanna hefir nú numiÖ úr gildi helztu ákvæði hlutleysislaganna. Næsí stærsti kaupskipafloti heimsins er nú frjáls að sigla til hvaða hafna sem hann vill og hefir rétt til að vopnast og verjast, ef á hann er ráðist. Á tímabili var tvisýnt um afdrif þessa frum- varps; einangrunarsinnar börð- ust af kappi gegn því að það næði fram að ganga og héldu hverja æsingaræðuna á fætui annari á þinginu; daginn áður en atkvæði skyldi greidd sner- ist stór hópur demokrata frá Suðurríkjunum gegn Roosevelt sérstaklega fyrir aðgerðaleysi hans og stjórnarinnar í verk- fallsmálunum. Demokrötum leist nú ekki á blikuna, leit svo út að utanrikismálastefna Roosevelts myndi bíða tilfinnanlegan ósig- ur. Þingforseti neðri málstofunn- ar, Rayburn, fór í skyndi til Hvíta hússins, á fund Roosevelts. Næsta dag, fimtudag, fór fram ein sú mesta kappræða, er nokk- urn tíma hefir heyrst innan veggja þinghússins; kappræða þessi um frumvarpið stóð yfir margar klsit. Áheyrendapallar voru þéttskipaðir og andrúms- loftið þrungið af eftirvæntingu. Rétt áður en atkvæði skyldu greidd kom bx-éf frá Roosevelt og las Rayburn þingforseti það fyrir þingheim. í bréfinu mælti forsetinn fastlega með því að frumvarpið yrði samþykt; hitt myndi sityrkja öxulríkin og vekja fögnuð þeirra, þvi þau myndi álíta það merki innlxyrðis sundrungar í Bandaríkjunum og ennfremur myndi ósigur frum- varpsins veikja afstöðu stjórnar- innar í innanrikismálum; for- setinn lofaðist og til að gera nauðsynlegar ráðstafanir til þess að verkföllunum linti. Bréf Roosevelts reið baggamuninn; frumvarpið var samþykt með 18 atkvæða meirihluta, 212 gegn 194. Þetta er það þýðingarmesta spor er Bandaríkin hafa stigið í þá átt, að styðja Bandamenn, siðan láns og leigu lögin voru samþykt. Nú geta þeir sjálfir jflutt hergögn og aðrar nauð- synjar til brezkra jafnt og ann- ara hafna. Frétt þessi vakti afarmikinn fögnuð á Bretlandi og er álitið að nú muni ekki langt að bíða þar til Bandaríkin verði fullkominn þátttakandi i baráttunni gegn árásarríkjunum. Herskylda einungis til canadiskra landvarna Nazistar láta sér hvergi bregða Nazistar kvarta mjög undan því að Rússar hafi tekið upp á því, að senda stúlkur í fallhlíf- um niður á Moskva vigstöðvar þeirra í þeim tilgangi, að töfra þýzka hermenn og á þann hátt afla sér tækifæra til þess að fremja einhver skemdarverk. Þeir segjast hafa handtekið 12 slíkar stúlkur “allar með máluð andlit og ltlæddar nærskornum kjólum,” og séu þær frá háskól- anum í Moskva, kosnar til þess arna sökunx tungumálakunnáttu þeirra. Nazistar segja að stúlk- urnar hafi glaðlega kannast við að þeim hafi verið vippað úr há- skólanum yfir í snyrtistofu; þar hafi þær verið fegraðar í skyndi, síðan flogið með þær að nóttu til yfir þýzku víglínuna °g ýit þar út úr flugvélinni. Fylgir það þessari kyndugu sögusögn, að þýzkir hermenn hafi sýni hina mestu festu í karakter og næma tilfinningu fyrir skyldum sínum og hafi ekki látið dáleið- ast af ástleitni þeirra, en hafi þegar tekið þessar uppgerðar töfradísir og sent þær í fanga- búðir. • -------V------- Nazistar sigla undir fölsku flaggi Bandarikja beitiskip hertók þýzkt kaupskip í suður Atlants- hafinu 6. nóv. Bandaríkjafán- inn var málaður á hliðar skips- ins og þilfar og bandarískt nafn á stýrishús og skut. Skipshöfn- in reyndi að sökkva skipinu þeg- ar svik þess voru uppgötvuð, en tókst það ekki; að öðru leyti veittu þeir ekkert viðnám. Það er auðvitað gegn alþjóðalögum að sigla undir fölsku flaggi, en Nazistar eru ekki þektir að þvi að hirða um slikt. Þetta er í fyrsta skifti i þessu stxnði að Bandaríkjaskip hefir beitt sér að fyrra bragði gegn óvinaskipi. Islendingur bíður fjörtjón af völdum amerískra hermanna Á fimtudagskveldið í vikunni sem leið, flutti útvarpið þá fregn, að tveir amerískir her- rnenn hefði skotið til dauðs ung- an íslending á kaffihúsi í Reykjavík, Þórð Sigurðsson, 22 ára að aldri; ekki er enn vitað hérna megin hafs hverjar þær orsakir voru, er til þessa at- burðar leiddu, né heldur hver hafi orðið refsing hlutaðeigandi hergesta landsins, sem útvarpið þó skýrði afdráttarlaust fiá, að auðsjáanlega væri valdir að til- verknaðinum. —------—v------_ Mikil hveitisala Símað er frá Ottawa á þxiðju- daginh, að stjórn Breta hafi ný- lega samið um kaup á 120 milj- ónum mæla af canadisku hveiti fyrir milligöngu hveitiráðs sanx- bandsstjórnar. Þrjátíu og sex framhjóðendur í kjöri til bœjarstjórnar og skólaráðs þann 28. þ.m. Hér fer á eftir skrá ylir þá frambjóðendur, er leita kosning- ar til bæjarstjórnar og skólaráðs í hinum ýmsu kjörd'eilduin Win- nipegborgar, við kosningarnar, sem fram fara á föstudaginh þann 28. yfirstandandi mánað- ar: 1. Kjördeild, frambjóðendur til bæjarstjórnar:— Ald. Hilda Hesson Ald. C. E. Simonite Ald. F. G. Thompson James F. Róllason. 2. kjördeild, frambjóðendur til bæjarstjórnar:— James Black Ald. Thomas Flye Ald. V. B. Andérson, prentari, útnefndur af Mrs. Jean Rid- dell og A. N. Robertson. H. B. Scott Mrs. S, McNeil 2. kjördeild, frambjóðendur til bæjarstjó^nar fyrir eins árs kjörtiiiiabil:— E. E. Hallonquist Mrs. Jessie Kirk Stanley Knowles. 3. kjördeild, frambjóðendur til bæjarstjórnar:— Ald. J. Petley Ald M. J. Forkin Ald. J. Blumberg Peter Cornes Peter Charleton M. Evanishen J. Stepniuk. I. kjördeild, frambjóðendur til skólaráðs:— D. A. Mulligan W. S. McEwen Dr. F. E. Warriner Mrs. R. F. Rorke 2. kjördeild, frambjóðendur til skólaráðs:— Bergthor Emil Johnson, út- nefndur af Paul Bardal og Hannesi Péturssyni. Mrs. Jessie Maclennan H. A. Chappell A. N. Robertson Alex. Chambers Adam Beck J. Campbell Haig. 3. kjördeild, frambjóðendur til skólaráðs: C. E. Knox M. Averbach A. MacKay Mrs. Alice Hunt A. Zaharychuk J. Zuken. Canadiskur her í Hong Kong Á sunnudaginn lenti stór her- sveit canadiskra hermanna und- ir forustu Brig. J. K. Lawson á Hong Kong eyjunni. Hong Kong er ein af flotabækistöðvúm Breta í Austurálfunni og hefir næstum eins mikla þýðingu í hernaðar- málum eins og Singapore. Sjó- vígi þetta er nálægt suðurströnd Kína, 750 mílur norðvestur af Manilla. Á eyjunni eru alls 2 miljónir manna. Canadiska her- sveitin, sem mun ^efla setulið eyjarinnar, kom öllum að óvör- um, en var vel fagnað af eyjar- skeggjum. Japanar hafa borið sig all-vígamannlega þessar síð- ustu vikur; koma hinnar cana- disku hersveitar til Hong Kong er enn ein bending til þeirra að þeim sé fyrir beztu að lækka seglin og hafa sig hæga. ------V----- Frá Islandi Klukkan rúmlega 7 á mið- vikudagsmorgun vöknuðu bæj- arbúar við merki um að hætta gæti verið á loftárás. Heyrðust þá og samstundis byssuskot i grend við bæinn og flugvélar setuliðsins hófu sig til flugs. Klukkan tæplega 8 var gefið merki um að hættan væri liðin hjá. Merki um árásarhættu mun einnig hafa verið gefin á Akur- eyri, Ástæðan var sú, að þenn- an morgun steypti þýzk flugvél sér snögglega niður úr skýja- þykkninu yfir bænum, en lofL Var þungbúið um nóttina, og flaug lágt yfir flugvöllinn og telja þeir, sem viðstaddir voru, að þeir hafi séð flugmennina teygja sig út úr flugvélinni. En þýzka flugvélin hækkaði flugið jafn slcyndilega og hún birtist og lét skýin skýla sér. Skothríð- in sú, sem á hana var haíin, mun ekki hafa sakað hana, og flugvélarnar, er sendar voru að leita hennar, urðu að snúa við jafn nær. * ★ * í aprílmánuði siðastliðnum hvarf verðbréfapoki úr pósti frá Hólmavík. Varð eigi fyrir það komist, hvað af pokanum hefði orðið, þrátt fyrir mildar eftir- grenslanir. í síðastliðinni viku kom póstpolci þessi þó í leit- irnar í rannsóknarstofu háskól- ans. Var hann þar i ýmsu dóti, er brenna skyldi. Var hann í pappírsumbúðum, merktum rannsóknarstofunni, og hélt starfsfólk þar þetta vera glös, er endursent hefðu verið utan af landi. Margir stimplar voru á pokanum, og bendir það til þess, að hann hafi þvælst milli iilargra póstafgreiðslustaða. í böglinum var verðmæti, er nær 10 þúsund krónum. * Það var starfsþtúlka |í ranrisóknarstof- unni, Anna Hallgrímsdóttir, er fann böggulinn. * * * Að tmdanförnu hefir ýmsu þótt áfátt um mjólkurstöðina hér í Reykjavík. Hafa þvi ráðstaf- anir verið gerðar til undirbún- ings þess að endurbæta vélakost stöðvarinnar og ýmsir sérfræð- ingar fengnir til að vera ineð í ráðum. Var um skeið fyrirhug- að að fá vélar frá Danmörku, en vegna hernámsins komst það aldrei í framkvæmd. Þegar öll sund lokuðust um að fá vélar þessar frá Danmörku, var tekið að leita fyrir um slík kaup í Englandi. En lítill árangur hef- ir fengist af þeim eftirgrenslun- Fundum samband'sþings hefir verið frestað- á ný fram í seinni- hluta næstkomandi janúaVmán- aðar; sennilega til þess 21 Skömmu áður en þingfrestun fór fram, flutti King frsætisráð- herra ræðu, þar sem hann enn á ný lýsti afdráttarlaust yfir því, að eins lengi og hann hefði stjórnarforustuna á hendi, kæmi það ekki til mála, að canadisk- Ark Royal Margoft síðan stríðið hófst hafa Nazistar hælst yfir því i út- varpinu, að þejr væru búnir að sökkva flugvélaherskipinu fræga, Ark Royal, en það var ekki fyr en s.l. viku að þeim varð að ósk sinni og tókst að hæfa skipið með tundurskeyti, þar sem það var á ferð í Miðjarðarhafinu; skipið sökk þó ekki fyr en eftir 12 klst. og var þá aðeins 24 míl- ur frá Gibraltar. Ark Royal var 22,000 smálestir að stærð; kost- aði 16 milj. dollara og var aðeins þriggja ára gamalt. Það hafði um 1600 manna skipshöfn og flutti með sér 60 flugvélar. All- ir mennirnir björguðust nema einn og flugvélarnar komust til Gíbraltar. Þetta er þriðja flug- véla herskipið, sem Bretar hafa tapað síðan i stríðsbyrjun; hin voru Courageous og Glorious. -------V-------- Tuttugu bátsfarmar af Nazistum sendir til heljar Frá Moskva kemur sú fregn að 20 bátar hlaðnir af þýzkum hermönnum hafi læðst að norð- urströndinni nálægt Murmansk; þeir héldu víst að þar væru engir á verði; en Rússar höfðu fengið einhverja nasasjón af ferðalagi þessu ög sendu þangað sveit hermanna, sem tóku gestina glóðvolga og gengu af þeim dauðum. um enn sem komið er. Hefir því mjólkursölunefndin hneigst að því ráði að leita vestur um haf til vélakaupa. Til vestur- farar í þessu skyni hefir hún ráðið Stefán Björnsson mjólkur- fræðing. Fer hann vestur mjög bráðlega og leitar fyrir sér um hentug vélakaup. * * ★ Fregnir berast víða að um það, að ný bruggöld sé i aðsígi og jafnvel skollin á. Mun sum- staðar farið að bera talsvert á slíku, þótt sykurskamturinn hafi hingað til hamlað því, að slíkl komist í algleyming. Lögreglan hefir þegar klófest tvo bruggara hér í Reykjavík. Var annar, Guðm. Bæringsson, telcinn í síð‘ astliðinni viku. Fundust 300 litrar i gerjun í kjallara undir íbúð hans. — Hinn, Benedikt Jóhannesson, trésmiður, var tek- inn nýlega. Hafði hann selt hálfflösku af áfengi sínu á 30— 40 krónur. Litlar birgðir fund- ust í fórum hans. , * ★ * Garðyrkjufélag íslands er að reisa sýningarskála mikinn á horni Túngötu og Garðastrætis. Á að efna þar til garðyrkjusýn- ingar, þegar smiíi skálans er lokið. Skálinn er 42 metra langur og 17 metra breiður. —Tíminn 29. ág. ir menn yrði skyldaðir til her- þjónustu handan við höf. Mr. King kvað þajp deginum ljósara, að í síðustu sambandskosning- um hefði skoðún þjóðarinnar á herskyldumálinu fundið þann hljómgrunn, er eigi yrði misskil- inn; fólkið sjálft yrði að skera úr því við atkvæðagreiðslu hvort það teldi herskyldu æskileg;a, cða það gagnstæða. Senator Meighen kjörinn leiðtogi íhaldsflokksins Svo hefir skipast til að Sena- tor Meighen hefir fyrir þrábeiðni * l'lokksbræðra sinna gengist inn á að taka' að sér forustu íhalds- flokksins, og verður hann þar af leiðandi að afla sér þingsætis til þess að geta tekist á hendur flokksforustuna í neðri málstof- unni. Hann lét það verða sitt fyrsta verk að krefjast her- skyldu, bræðingsstjórnar, og hvers þess annars, er minti á ástandið, í landinu 1917. --------V_------ Hull og Kurusu roeðast við Erindreki Japana, Saburo Kurusu, sem nýkominn er til Washington, situr um þessar mundir á ráðstefnu við þá Roosevelt forseta og Cordell Hull utanríkisráðherra, með það fyr- ir augum, að leita hófanna um samkomulag milli þessara tveggja þjóða; en sambúðin hef- ir, sem vitað er, ekki verið sem ákjósanlegust upp á siðkastið, vegna landránsstefnu japönsku stjórnarinnar. Fundúrinn er enn ekki það langt á veg kom- inn, að séð verði að nokkru fyr- ir um árangur. --------V------- Frá austurvígstöðvum Þrátt fyrir frosthörkur og snjó, hafa Þjóðverjar enn á ný hafið grimmúðlega sókn að Moskva, og hefir þeim, fyrir at- beina skriðdreka sinna, orðið nokkuð 'ágengt, einkum í sókn- inni að Tula, þó orðið hafi þeim sérhvert fetið dýrkeypt, að þvi er rússneska útvarpið skýrir frá. Af viðureigninni á Krímskaga, er einnig það að segja, að þýzk- um hersveitum hefir skilað all- verulega áfram í áttina til Kákasusfjalla, en þangað er för- inni heitið þó rnörg kosti manns- lífin, vegna hinna auðugu olíu- brunna, sem þar eru fyrir. Á svæðunum umhverfis Leningrad hafa Rússar hafið stranga gagn- sókn við góðuni árangri, og hrakið Þjóðverja á ýmsum stöðum til baka frá 8 til 10 milur. --------V------- Bretar skifta um herstjórn Þau tiðindi gerðust í London á þriðjudaginn, að Gen. Sir John Dill, yfirforingi brezka hersins, lætur af herstjórn í næsta mán- uði, og verður frá þeim tíma skipaður landstjóri í Bombay. Eftirmaður hans verður Gen. Sir Allan Brooke, sem nú er talinn færastur brezkra herfor- ingja í sérhverju því, er að véla- hernaði lýtur. No Coin to Pay » By Helen Swinburne Wind and cloud weave pictures in the sky— For such as these there is no coin to pay— Wind and cloud weave mystery in the sky With golden thread, Ór maybe silver-white, or dusky red Or some elusive colour fading fast: O, changeful is the pageant passing by. The river moulds and carves its banks with slow Unyielding force — there is no coin to pay For carving such as this — the sunset glow Changes to wine The gleaming water-way; and all is thine To muse upon — the glory of the sky Above, the mirrored sky, swift-borne, below. Upon the earth the sun pours forth its gold; Rain-beaded trees fling down their glittering gems On velvet moss and flower; bright wings unfold, Fair-fashioned wings and gay; And there is music in the wakening wood, Sweet silver notes, then hlissful quietude— For such as these there is no coin to pay.

x

Lögberg

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.