Lögberg - 27.11.1941, Qupperneq 3
LÖGBERGr, FIMTUDAGTNM 27. NÓVEMBER, 1941
ekki á löngu unz hann sá þa
von sína rætast.
Svo stóð á, að skip eitt, erlent,
stundaði hvalveiðar úti fyrir
Vestfjörðum þetta sumar. Voru
á því 180 menn, og þóttu heldur
miklir fyrir sér. _ Það verður nú
fangaráð Jóns, að leita til þess-
ara manna og espa þá upp gegn
Eggert og öðrum Vestfirðingum.
Héldu þeir fyrst inn á Patrekp-
fjörð. Guðmundur hét bóndinn
i Hænuvík, Hann hélt að hér
væru á ferðinni meinlausir
“duggarar,” og fór því um borð
til þeirra á fleytu sinni. Var
honum vel tekið í fyrstu og veitt
vín, óslpitilega. Fór svo að hann
varð þéttkendur og vildi halda
til lands. Skipverjar vörnuðu
honum þess, og tóku nú að færa
sig upp á skaftið. Skipuðu þeii
honum að segja sér alt af létta
um Eggert Hanneson, og hversu
fjölmennur hann muni vera.
Guðmundur varðist allra frétta
og lenti brátt í harki miklu. Var
hann loks tekinn, bundinn og
píndur til sagna. Héldu þeir
glóandi járni við fætur honum,
létu drjúpa heitt flesk á bak
hans, og kvöldu hann á alla
vegu. En þar sem alt slíkt varð
árangurslaust, höfðu þeir hann
i haldi hjá sér á skipinu. Síðan
fóru 40 þeirra í lana, alvopnað-
ir og héldu til Hænuvíkur. Þar
tóku þeir dreng Guðmundar.
bundu á hann snæri, og ráku
hann á undan sér, eins og rakka.
Skipuðu þeir honum að halda
skemstu leið til Bæjar á Rauða-
sandi, bústaðar Eggerts Hannes-
sonar. Gengu þeir alla nóttina
og komu á áfangastað snemma
morguns, nokkru fyrir fótaferð-
artima.
Svo bar við á Bæ þennan
morgun, að gömul kona fór fyrst
af öllum til að reka úr túninu.
Sá hún þá hvar mikill flokkur
manna kom og stefndi á bæinn.
Áttu þeir skamt eftir í hlað, og
hertu nú förina, er þeir sáu,
að einhver var út kominn. Kon-
an fór inn hið bráðasta, og
sagði hvað fyrir sig hefði borið.
Eggert var heima við fjórða
mann, og lá hann enn í rekkju.
Hann gat þess strax til, að ræn-
jngjar og illþýði væri á ferð-
inni, hljóp upp úr rúmi sinu á
skyrtunni einni saman, stökk
inn i baðstofu og skreið þar
undir pallinn. Menn Eggerts
báru fyrir dyrnar mjöltunnur
og annað, sem tiltækilegt þótti,
en ræningjar brutust brátt inn,
og var Jón Nesten fyrirliði
þeirra. Hugsaði hann Eggerti
þegjandi þörfina og hljóp þegar
að rúmi hans. Sá hann þar
autt rúmið, en fann aftur á móti
að sængurfötin voru volg, og
vissi því, að Eggert myndi ekki
vera langt í burtu. Tóku þeir
nú að leita i bænum og stungu
spjótum sínum undir rúin og
bekki. Þegar þeir komu í bað-
stofn og lögðu vopnum undii
pallinn, hljóðaði Eggert upp af
hra'ðslu, og gekk fram í hend-
ur þeirra. Var hann strax tek-
inn og færður í bönd. Að því
búnu gengu ræningjar um hús
og kirkju, brutu upp fjárhirzlur
og tóku alt, sem fémætt var.
Einnig birgðu þeir sig upp af
mat og drykkjarföngum, þvi
nóg var til. Að því búnu tóku
þeir hesta Eggerts, bundu feng
sinn í klyfjar, og færðu til
klakks. Héldu þeir síðan leiðar
sinnar og höfðu Eggert með
sér. Var hann í haldi um hríð,
og hlaut heldur illa meðferð.
Fóru rummungar þessir víða um
Vestfirði, og rændu þar og rupl-
uðu á mörgum stöðum. Spurð-
ust þessi tiðindi brátt um næstu
sveitir og þóttu bæði mikil og
ill. Urðu margir óttaslegnir
mjög, báru það sem fémætt var
burt af bæjum isínum og flúðu
á fjöll eða í afdali.
f Þpgar Magrkús prúði frétti
það, hvernig komið var fyrir
tengdaföður sínum, brá hann við
skjótt og bauð að leysa hann út
með fég/aldi. Kröfðust ræn-
ingjar hvorki meira né minna
en 8 þúsund Lýbikumarka í
lausn^argjald, en það var ó-
hemju mikið fé. Voru nú hafin
samskot víða um Vestfirði.
Brugðust menn vel við og greið-
Iega,, enda var Eggert vinsæll-
maður, og Magnús ekki síður.
Fengu ræningjar upphæð þá;
sem tilskilin var og segir sagan,
að þeim hafi aldrei þótt nógu
vel mælt silfrið, fyr en Ragn-
heiður Eggertsdóttir kastaði
gullfesti ofan á hrúguna, for-
kunnarfögrum grip. Létu þeir
þá Eggert lausan, sigldu á brott
sem ákafast, og sáust ekki við
ísland eftir það.
Nokkurn rétting fékk Eggerl
þessara mála. Voru ránsmenn-
irnir teknir ytra og forsprakk-
arnír hengdir.
Eftir atburði þá, sem nú hef-
ir verið sagt frá, festi Eggert
ekki yndi hér á landi. Hann
hafði nú komið miklu af fjár-
munum sínum fyrir í Hamborg.
Þar bjó einnig Jón murti, isonur
hans, auðugur maður og vei
metinn. Tók Eggert þá ákvörð-
un árið 1580, að flytja til Ham-
borgar og dvelja þar, það sem
eftir væri æfinnar. Rétt fyrir
burtförina sló hann upp veislu
mikilli og bauð til sín ættmenn-
um öllum og vinum. Voru þar
saman komnir flestir höfðingjar
á Vestfjörðum og margt annað
stórmenni. Veitti Eggert kapp-
samlega og voru drykkjur stór-
ar. í veislulok fylgdu menn
Eggent á skipsfjöl og kvöddu
hann þar i hinzta sinni. Að
skilnaði mælti hann fram vísu
þesisa úr Vöslungarimuin hinum
fornu:
Eitt sinn kemur lífs endadægur
öllum lýð um siðir;
en sá finstenginn sikling frægur
er sinum dauða kvíðir.
4
Litlar sögur ganga af Eggert
eftir að hann fluttist til Ham-
borgar. Þó segja sumir, að
hann hafi kvænst þar í þriðja
sinn. Fylgir það sögunni, að
fráfall hans hafi orðið með
þeim hætti, að honum var kipt
fram úr rúminu frá konu sinni,
og lá hann dauður á gólfinu, er
að var gáð. Vissi enginn hver
verkið hafði unnið.
Hvont sem nokkur fótur er
fyrir þessari sögu eða ekki, þá I
er hi-tt víst, að fá ár lifði Eggert
RÚSSAR HARÐIR í HORN AÐ TAKA
Eins og mynd þessi gefnr til kynna, er vígahugnr mikill hjá
hinum Rauðu hersveitum Rússlands; sjást þarna vélbyssu
hermenn tilbúnir í hvað sem er.
eftir að til Hamborgar kom.
Sézt það á því, að í Alþingis-
dómi frá 1585, er hann kallað-
ur “Eggert Hannesson, sálugur
í guði.”
-*-(Vísir 10. ágúst).
--------V---------
Það, sem
Gyðingar hafa
kent mér
Eftir Faith G. Wintlirop.
(Samandregið úr grein í Forum ).
Friðrik Sveinsson íslenzkaði.
Eg má teljast heiðingi heið-
ingjanna gagnvart Gyðingum; eg
er kominn af ameriskum Puri-
tana-ættbálki — allir minir nán-
ustu vinir og flestir af kunningj-
um mínum eru fráskildir Gyð-
ingum, og hvte fráskildir flestir
þeirra eru! Eg heyri miklu oft-
ar andróður gegn Gyðingum
heldur en meðmæli, því þessir
Júða-hatandi vinir mínir fara
ekkert dult með það. Aftur á
móti hafa Gyðingar sem eg þekki
eitthvert stolt eða ættarsjálfs-
virðingu er gerir þá fámáluga
og varkára í orðum.
Um 20 ára skeið hefi eg liaft
náin kynni af Gyðingum af öll-
um stéttum. Eg þekki auðuga
Gyðinga, gáfaða og vitra Gyð-
inga, rabbína, fátæka hógværa
verkamanninn, og smákaup-
manninn.
Eg hefi verið svindlaður af
Gyðingum, hefi lánað Gyðingum
peninga, og fengið lán hjá þeim.
Eg hefi haft Gyðinga í þjón-
ustu minni og !eg hygg að eg sé
eins fær um að “fílosófera” um
þá eins og hver annar.
Hvað er það þá, sem aðskilur
þetta fólk frá öðrum? Eg hygg
að það sé einkum almenn og
alger karakter-einkenni, sem
merkja hvern einn einasta Gyð-
ing, sem eg hefi kynst sem frá-
brugðinn “heiðingjunum”
(gentiles) sem flokkur. En
þessi einkenni eru ekki þau, sem
alment er álitið að séu einkenni
Gyðinga. Til dæmis ier mér ó-
mögulegt að tileinka Gyðingum
sem kynflokki undinferli og
snuð i kaupmensku. Reynslan
hefir sannfært mig um það, að
þó snuðarar séu til, þá eru þeir
aðeins lítill minnihluti Gyðinga
í heild.
Af þeim Gyðíngum, sem eg
þekki, eru vissulega færri en 1
af 5 sem myndi nota óheiðar-
leg ráð til að skaða mig i við-
skiftum sér í hag. Eg hefi
margfalda reynslu fyrir þessu.
Gyðingar hafa neitað að þiggja
rentur af peningum, sem þeir
hafa lánað mér.
Gyðingar hafa vakað yfir min-
um hag í viðskiftuin stundum
sér í óhag.
Þegar Gyðingur er svindlari
er venjulega hávært um það.
Þegar hann er ekki svindlari er
oftast hljótt um það.
Fyrsta karakter-einkennið,
sem sérstaklega fráskilur Gyð-
inginn frá öðrum er þetta: Að
hann einn af öllum kynþáttum
dýrkar vitsmuni. Sálin í hverj-
uin einasta Gyðing, sem eg liefi
þekt, hvort heldur miljónerar eða
öreigar, svindlarar eða börn,
hneigir sig í lotningu fyrir altari
andans.
Venjulega er alþýðufólk grun-
samt gagnvart vitsmunum, en
ekki Gyðingurinn; hann setur
alt sitt traust á vitsmuni, mann-
vit.
Það er þessi vitsmunadýrkun,
sem kemur stundum fram á ó-
viðfeldinn hátt, sem hefír alið
þá eiginleika sem taldir eru gyð-
inglegir og hvumleiðir, svo sem
tortryggni og stærilæti.
Þegar þú setur alt þitt traust
á hugsunina ómengaða, þá er
ekkert of smátt til að hafa þýð-
ingu.
Gyðingurinn dýrkar stundum
mannvitið án þess að hafa þær
hömlur sem siðfágað fólk setur
sér. Hann er dramblátur vegna
| þess að hugsjónin hrífur hann;
3
Pantið pakica af
WCSTINGHCLSE
MAZDA LAMPAGLÖSUM
frá Iiydro-manni yðar, sem skoðar rafeyðslumœlinn.
Pakka með 15-25-40-60-75 og 100 watt lampa-
glösum má panta C.O.D., eða leggja andvirðið við
Ijósareikninginn.
ciry cyccc
Boyd Building - - Sími 848 131
hann ætlast til að þú berjist fyrir
þeirri hugsjón með sama kappi
og sannfæringu, einkanlega ef
það er rökræðuefni — efni tit
vitsmuna-skilnings. H o n u in
hættir við að hártoga, því hvert
smáatriði hefir þýðingu til fullr-
ar þekkingar.
Annað einkenni Gyðinga kyn-
flokksins alment er það, að Gyð-
ingurinn er fjær meðalmensk-
unni en einstaklingar annara
þjóðflokka. Gvðingurinn er —
til ills eða góðs — ti! yztu tak-
marka.
Þegar eg mæti Gyðing, veit eg
að eg mæti manni, sem hrifur
mig meira eða minna en meðal-
maður.
í flokki Gyðinga finnur maður
Jesús og Júdas, Einstein og
idíota, Rothehilds og öreiga.
Af því þeir eru svo mismun-
andi og ákaflyndir, þá gildir það
einnig um þá, sem eru hvim-
leiðir. Það eru þessir hávaða-
sömu, frömu, hvrkulu gasprar-
ar, sem of oft eru látnir tákna
kynflokkinn í heild sinni.
Gyðingar þekkja hina flokk-
ana, en fólk alment ekki.
Eg þekki hinn viðkvæma,
feimna Gyðing, skáldhneigðan,
kraminn og kvalinn af sífeldum
olnbogaskotum, hatri og andúð
— andlit hans er lifandi “trage-
día”, rituð af hinum grimmu
forlögum þjóðar hans. Eg þekki
hinn aldna, mjúklynda, bók-
elska, listhneigða Gyðing, ást-
rikan heimilisföður.
Eg þekki hinar holdugu Gyð-
inga húsmæður, léttlyndar
spaugsamar, hagsýnar, gestrisn-
ar. Eg sé hana á stjái innan um
potta sína og pönnur.
Eg þekki kátu Gyðinga meyj-
una, þróttmikla, forvitna, gleyp-
andi í stór-svelgjum þekkingu,
dansa, hljómlist, listasýningar.
Hvernig gat eg hrúgað öllu
þessu fólki ,í eina heild og grett
mig framan í það sameiginlega?
Nei. Þvert á móti befir mér
farið — kannske óviljandi —
að þykja innilega vænt um það.
Hjá Gyðingum hefi eg fundið
meiri einlæga trygð, meiri skiln-
ing, meiri hjálpsemi og með-
aumkun og göfuglyndi, heldur
en hatursmenn Gyðinga mundi
gruna að væri til.
Þar sem “gentile” gefur 5.00
til líknarstarfs, gefur Gyðing-
urinn $100.00.
Eg hefi reynt það af Gyðing-
um að leyndarmáli af hvaða teg-
und sem er, er alveg óhætt í
þeirra höndum.
Það er naumast nokkuð, sem
vinur biður um, sem Gyðingur
lætur ekki í té hvað mikil óþæg-
indi sem það kann að valda hon-
um.
Einn af vinum mínum, sem er
óvinur Gyðinga er formaður
taflklúbbs. Við mig sagði hann
þetta: “Okkar klúbbur er um
2/3 Gyðingar hvað höfðatölu
snertir, en þegar taflkeppni fer
fram, gætirðu vel haldið að eng-
inn “gentile” væri í klúbbnum.
Þeir eru svo hrifnir og ástund-
unarsamir.
Ef þú gefur “gentile” dreng
tafl, þá kannske teflir hann dá-
lítið, gengur kannske í taflfélag.
En Gvðingadrengurinn lærir ekki
aðeins inannganginn. Áður en
þig grunar er hann farinn að
ígrunda flókna leiki — kaupir
sér bækur um tafl — gefur sig
allan við taflinu — og áður en
þú veizt, er kominn annar tafl-
meistari.”
Þetta var óviljugur vitnisburð-
ur um árvekni og gáfur Gyð-
ingsins.
Þegar einhver gerir eitthvað
sem þig langar til að gera og ger-
ir það betur en þú, þá annað
hvort dáist þá að honum eða þú
hatar hann.
Einmitt vegna þess að Gyð-
ingurinn dýrkar gáfur og vits-
muni og einmitt vegna þess að
Gyðingurinn er gæddur ifleiru
andlegu fjöri—meiri taugaorku
sem hann verður að gefa útrás,
þá gerir hann oft sitt verk með
meiri starfsgleði, meiri áhuga
og þar af leiðandi meiri snild en
annara kynflokka fólk. Og af
því hann er ekkert gefinn fyrir
að blygðast sin vegna frægðar —
þó hann fari tíljóðlega með gjaf-
ir sínar til liknarstarfa — þá ei
afleiðingin sú, að fyrir hvern
“gentile” sem dáist að honum,
þá eru tveir, sem hata hann.
Gyðingurinn fagnar yfir þekk-
ingu sinni — og er dæmdur
gortari og óþolandi. Hann vinn-
,ur námskeið með ástundun sinn\
og hurðum háskólanna er skeit
á nasir honum.
Hann vill eignást sumarbú-
stað, og fasteignasalinn segist
ekkert boðlegt hafa á sinni skrá.
Hvert sem hann snýr sér, er al-
staðar stigið á hann.
Gyðingurinn verður oft að
vera tvígildi á við “gentile” til
þess að fá hálft tækifæri. Hann
þrælar, vinniir, þráir, sigrar —
og verður hataður.
Eg hefi lært mikið af Gyðing-
unum: örlæti, trygð, vitsmuna-
iega ráðvendni. Eg hefi numið
þakklæti, ástúð, langlundargeð.
Eg hefi lært hugrekki gegn ó-
vissu, erfiðleikum og hættum. Eg
hefi lært að virða fjölskyldu
ástúðaranda, sem er fagur og
varanlegur.
Eftir því sem reynsla mín vex
og eg prófa oftar góðvild, speki
og trygð Gyðinga vina minna,
hvað get eg annað gert en að
þykja vænt um þá og sýna þeim
virðingu. Ef eg vissi hvernig
eg gæti umvent vinum minum,
sem hata Gyðinga, til minnar
skoðunar, þá myndi eg gera það.
Það er ekki hægt að sanna
með orðum, að Gyðinga kyn-
flokkurinn sé ekki það, sem ó-
vinir hans halda að hann sé, svo
eg hefi ritað þessa grein í stað-
inn.
Innköllu narmenn LÖG6ERGS
Amaranth, Man
Akra, N. Dakota
Árborg, Man
Árnes, Man Magnús Einarsson
Baldur, Man
Bantry, N. Dakota ....Einar J. Breiðfjörð
Bellingham, Wash
Blainc. Wash
Bronn, Man J. S. Gillis
Cavalier. N. Dakota B. S. Tborvaldson
Cypress River, Man
Dafoe, Sask
Edinburg, N. Dakota
Elfros, Sask ...Mrs. J. H. Goodman
Foam Dake, Sask
Garðar, N. Dakota
Gerald, Sask
Geysir, Man
Gimli, Man O. N. Kárdal
GIenl>oro, 3fan
Hallson, N. Dakota
Ilayland P.O., Man .Magnús Jóhannes6on
Hnausn, Man
Husavick, Man O. N. Kárdal
Ivanhoc, Minn
Kandahar, Sask
Lungruth, Man
I.eslie. Sask
Dan. Liindal
Mlnneota, Minn B. Jones
Mountain, N. Dakota Páll B. Olafson
Mozart, Sask S. S. Anderson
Otto, Man Dan. Lindal
Point Roberts, Wash. ... S. J. Mýrdal
Reykjavík, Man Ami Paulson
Riverton, Man Bjöm Hjörleifsson
Seattle, Wash J. J. Middal
Selkirk, Man ,.S. W. Nordal
Siglunes P.O., Man .Magnús Jóhannosson
Svold, N. Dakota B. S. Thorvardson
Tantallon, Sask J. Kr. Jolmson
Ppham, N. Dakota ...Einar J. Breiðfjörð
Víðir, 3Ian
Vogar, Man ..Magnús Jóhannesson
WestlKmrne, Man
Winnipeg Beach, Man.
Wvnvard. Sask