Lögberg - 27.11.1941, Blaðsíða 8
LÖGBERG, FIMTUDAGINN
— - ■ .
Úr borg og bygð
Dr. A. B. Ingimundson verð-
ur staddur í Riverton þann 2.
desember.
♦ ♦ ♦
Séra Sveinbjörn ólafsson frá
Thief River Falls, Minn., var
staddur í borginni í fyrri viku.
♦ ♦ ♦
Mr. og Mrs. G. J. Oleson frá
Glenboro, hafa dvalið í borginni
síðan um^helgina.
♦ ♦ ♦
Mr. Jóhannes Einarsson frá
Calder, Sask., dvelur í borginni
þessa dagana.
♦ ♦ ♦
í kvæðinu eftir Indo, sem birt
var í síðasta Lögbergi misprent-
aðist eitt orð í 7. ljóðlínu þriðje
erindis, “holds” í staðinn fyrir
“halds”.
♦ ♦ ♦
Mr. Grettir L. Jóhannson, ræð-
ismaður, flutti við mikla aðsókn
ágætt erindi fyrir Junior Ice-
landic League síðastliðið sunnu-
dagskveld.
♦ ♦ ♦
Fyrirlestur sá, er Mr. J. J.
Bíldfell flutti í Fyrstu lútersku
kirkju á miðvikudagskveldið
þann 19. þ. m., var afarfjölsótt-
ur, og þótti að öllu fróðlegur og
skemtilegur.
♦ ♦ ♦
Mr. Búi Thorlacius .frá
Ashern, Man., hefir legið á
sjúkrahúsi hér í borginni hátt á
aðra viku, en er nú kominn á
fætur og orðinn nokkurn veg-
inn hress.
♦ ♦ ♦
Til íslendinga
í 2. kjördeild!
Mr. Bergþór Emil Johnson
leitar kosningar til skólaráðs í
2. kjördeild á föstudaginn kem-
ur. Mr. Johnson er áhugamað-
ur, sem sakir sérmentunar og
reynslu í mentamálum, er vel
til þessa starfs fallinn og leyfi
eg mér að gefa honum mín beztu
meðmæli.
Virðingarfylzt,
PAUL BARDAL,
bæjarfulltrúi.
TAKIÐ EFTIR
Göðar bækur eru gróðir vinir!
Látið bækurnar njðta þesa að
þær eru yður til nytsemdar og
gleði. Hafið þær einnig til prýði
í bókaskápnum yðar. Sendið þær
I band ef þær eru óbundnar, og
látið gera við þær séu þær í
ólagi. Hvergi fáið þér betra
band, né ðdýrara en í BÓKABÚ£>
DAVtÐS BJÖRNSSONAR að 702
Sargent Ave., Winnipeg. Og
munið eitt — þetta er eina ís-
lenzka bðkabúðin í Vesturheimi.
Látið hana njðta viðskifta yðar.
Styðjið íslenzk þjððræknismál.
TIL ÞESS Atí TRYGGJA
YÐUR SKJÓTA
AFGREIÐSLU
Skuluð þér ávalt kalla upp
SARöENT
TAXI
PHONE
34355 - 34 557
SARGENT and AGNES
TRIJMP TAXI
Mr. Th. Hallgrímsson fisk-
kaupmaður frá Riverton, var
staddur í borginni á þriðjudag-
inn.
♦ ♦ ♦
Þann 4. þessa mánaðar fór
fram giftingarathöfn í Aedins
kirkjunni í Toronto, Ont., er
séra Dr. B. B. Englis gaf saman
í hjónaband þau Birgittu Guð-
laugu Guttormson og Roy
Kitchener Russel. Brúðurin er
dóttir Einars Guttormsonar og
konu hans, þau búsett að Poplar
Park, Man. Brúðguminn er
sonur Mr. og Mrs. J. B. Russel,
hann nú látinn. Framtiðarheim-
ili þeirra verður í Toronto.
♦ ♦ ♦
Jón Sigurdson Chapter, I.O.
D.E., heldur sinn næsta fund á
miðvikudagskveldið 3. desember,
kl. 8 e. h., að heimili Mrs. G.
Salverson, 608 Stradbrooke Ave.
Veitið athygli að fundurinn
verður á miðvikudagskveldið, en
ekki á venjuleigum fundardegi,
í þetta sinni.
♦ ♦ ♦
When you try to pass a car
that is going forty miles an hour,
it is as though you tried to pass
a standing string of cars 300 feet
or more, depending on your
speed in passing. In other words,
it is like passing at least eighteen
cars parked bumper to bumper
in the road. I you keep this
startling fact always in mind,
the chances are that you would
never pass the car ahead of you
unless you were absolutely sure
that there were no oncoming
cars for a good long distance
ahead, but accidents will hap-
pen, so insure your car with
J. J. SWANSON & CO„ LTI).,
308 Avenue Bldg., Winnipeg.
Man.
♦ ♦ ♦
ÁRSFUNDUR
deildarinnar “Frón” verður hald-
inn í Góðtemplarahúsinu mánu-
dagskvöldið þann 1. des. n.k.,
klukkan 8.15. Þá er áríðandi
að allir fslendnigar, sem láta sér
ant um hag og velferð deildar-
innar í framtíðinni, komi á
fundinn, því þá fer fram stjórn-
arkosning. Og þar sem við
höfum mist frá okkur tvo ágæta
starfsmenn og vinsæla, úr nefnd-
ínni, ríður á að vel sé skipað
í þessa nýju stjórnarnefnd, svo
ekki dofni yfir félagsstarfsemi
vorri, þó við höfum mikils mist
og þótt miklir erfiðleikar séu á
að viðhalda öllum félagsskap nú
á timum. Lagðir verða fram
reikningar og skýrslur, sem allir
þurfa að heyra, sem fylgjast
vilja með starfsrekstri þessa vin-
sæla félagsskapar.
Að kosningum afstöðnum, fer
fram stutt en ágæt skemtiskrá.
Þar fáið þið að hlusta á ungan
og gáfaðan íslending að heiman,
sem þið hafið ekki ^ieyrt eða
kynst fyr. Hann heitir Jóhannes
Snorrason og er frá Akureyri,
en stundar hér fluglistarnám hjá
K. Johannesson. Það er okkur
öllum gleðiefni að kynnast sem
flestum íslendingum, sem að
heiman koma, því þeir segja
okkur altaf eitthvað fræðandi
og skemtilegt. Og eg er viss
um að þið verðið ekki fyrir von-
brigðum. Auk þessa verðui
bæði söngur og hljóðfærasláttur
o. fl.
MUS-KEE-KEE
Áhrifamikið kvefmeðal, búið til
úr gömlum Indíána jurta for-
skriftum. petta er verulegur
heilsugjafi, sem veldur eðlilegri
starfsemi hins mannlega líkams-
kerfis.
RáOgist við lyfsalann
i dag viövíkjandi
MUS-KEE-KEE
ISLENDINGAR!
R.œkið skyldur yðar við ís-
lenzkt þjóðerni með því að
greiða þeim Victor B. Ander-
son og B. E. Johnson for-
gangsatkvæði á föstudaginn.
Það er ekki til of mikils mælst,
að íslendingar hafi að minsta
kosti einn mann i hæjarstjórn,
og einn mann i skólaráði.
Greiðið atkvæði á föstudag-
inn, og gerið það % tima!
♦ ♦ ♦
FUNDARBOÐ
Ársfundur Fyrsta lúterska
safnaðar verður haldinn þriðju-
dagskveldið, klukkan 7.30 stund-
víslega, 2. desember, 1941, í
kirkju safnaðarins.
Fyrir hönd safnaðarfulltrúa,
G. L. Johannson,
skrifari.
♦ ♦ ♦
Þeir Mr. Thor Ellison, fram-
kvæmdarstjóri Armstrong-Gimli
Fisheries á Gimli, Mr. J. B.
Johnson og Mr. Dori Peterson,
báðir starfsmenn þessa sama fé-
lags, komu heim á föstudaginn
var úr hálfsmánaðar ferðalagi
vestan af Kyrrahafsströnd; fóru
þeir félagar meðal, annars tii
Alaska, og höfðu yndi mikið af
ferðalaginu.
♦ ♦ ♦
The Junior Ladies’ Aid of the
First Lutheran Church held their
annual meeting on Nov. 18th in
the church parlors. The follow-
ing were elected to office:
Hon. Pres.—Mrs. B. B. Jónsson
Pres. — Mrs. A. H. Gray
Vice-Pres.—Mrs. G. Finnbogason
Sec. — Mrs. B. Guttormson
Corresponding Sec. — Mrs. E.
Stephenson
Treas. — Mrs. B. C. McAlpine
Asst. Treas.Mrs. K. Johannesson
Membership—Mrs. G. F. Jonas-
son and Mrs. T. E. Thorstein-
son.
Publicity—Mrs. L. T. Simmons.
The Junior Ladies’ Aid have
decided to hold a Christmas
Festival on December 9th.
Further information in next
paper.
♦ ♦ ♦
ÍSLENDINGA DA G URINN
Aðalfundur íslendingadagsins,
var haldinn í Goodtemplarahús-
inu á mánudagskveldið við laka
aðsókn, sem því miður sýnist
vera venja til; en fundurinn fór
afar skipulaga fram undir for-
ustu Dr. B. J. Brandson. Skrif-
araembætti skipaði á fundinum
Mr. G. F. Jónasson í fjarveru Mr.
Davíðs Björnssonar, og las hann
jafnframt upp ársskýrslu ritara.
Mr. Jochum Ásgeirsson gerði
grein fyrir fjárhag fslendinga-
dagsins frá því í sumar, sem var
í ágætu ásigkomulagi. Skýrslur
embættismanna samþyktar ó-
breyttar, og var nefndinni þakk-
að gott starf með því að fund-
armenn risu úr sætum. Samþykt
var í einu hljóði að greiða Mr.
Birgi Halldórsyni $25 þóknun
fyrir prýðilegan söng hans á
síðasta fslendingadegi að Gimli.
Að afstöðnum embættismanna-
kosningum, skipa sæti í nefnd-
inni eftirgreindir menn:
Dr. B. J. Brandson
G. F. Jónason
ólafur Pétursson
E. A. ísfeld
Dr. A. Blöndal
Steindór Jakobsson
Jochum Ásgeirsson
Davið Björnsson
Thorður Thorðarson, Gimli.
Albert Wathne
Halldór M. Swan
Sveinn Pálmason
Séra Philip M. Pétursson.
Endurskoðunarmenn: Guðmann
Levy og Friðrik Kristjánsson.
ST. JAMES
Phone 61 111
Munið næsta mánudagskvöld,
kl. 8.15. Komið öll.
Nefndin.
Lögberg inn á hvert einaáta íslenzkt heimili
fyrir jólin!
The Columbia Press, Limited,
695 Sargent Avenue,
Winnipeg, Man.
Sendið LÖGBERG sem jólagjöf til
frá
$3.00 innlagðir sem ársgjald.
27. NÓVE'MBÍR, 1941
Messuboð
FYRSTA LÚTERSKA KIRKJA
Séra Valdimar J. Eylands
Heimili: 776 Victor Street.
Síini 29 017.
Sunnudaginn 30. nóvember:
Ensk messa að morgninum
kl. 11; sunnudagsskóli kl. 12.15
e. h. íslenzk messa að kvöldinu
kl. 7.
♦ ♦ ♦
Sameiginleg guðsþjónusta með
fslendingum og Dönum í Van-
couver, verður ef G. 1., haldin í
dönsku kirkjunni á E. 19th Ave.
og Burns St., næsta sunnudag,
30. nóvember. og hefst kl. 7.30
að kvöldinu. Danski presturinn
stýrir guðsþjónustunni en ís-
lenzki presturinn prédikar. Allir
velkomnir.
Rúnólfur Marteinsson.
♦ ♦ ♦
Guðsþjónusta í Kandahar á
sunnudaginn þann 30. þ. m„ kl.
3 e. h. Séra B. Theodore Sig-
urðsson prédikar.
♦ ♦ ♦
L ú TERSKA KIRKJA N
1 SELKIRK
30. nóv„ lsta sd. í Aðventu—
Sunnudagaskóli kl. 11 árd.;
íslenzk messa og altarisganga
kl. 7 síðd. — Allir boðnir vel-
komnir.
S. ólafsson.
♦ ♦ ♦
LÚTERSKA PRESTAKALLIÐ
í AUSTUR-VA TNABYGÐUM
Séra Carl J. Olson, BA., B.D.
Sunnudaginn 30. nóv. 1941:
Foam Lake kl. 3 e. h.
Leslie, kl. 7 e. h.
Altarisganga í þáðum kirkjun-
um. Allir boðnir og velkomnir!
♦ ♦ ♦
Sunnudaginn 30. nóv* verður
messað i Wynyard kl. 1 e. h.
Umræðuefni: “Kristindóms á-
standið á Fróni eftir því sem
mér virðist það.
Á eftir þessari guðsþjónustu
heldur iþjóðræknisdeildin . pró-
grams samkomu. Allir velkomn-
ir. H. E. Johnson.
♦ ♦ ♦
GlMLl PRESTAKALL
Sunnudaginn 30. nóvember:
Betel, morgunmessa;
Viðines, messa kl. 2 e. h.
Séra Sigurður ólafsson pré-
dikar við báðar messur.
B. A. Bjarnason.
♦ ♦ ♦
PRESTAKALL NORÐUR
NÝJA ISLANDS
Sunnudaginn 30. nóvember:
Hnausa, mesa kl. 11 f. h.;
Riverton, íslenzk niessa kl. 2
eftir hádegi. Allir boðnir og
velkomnir.
B. A. Bjarnason.
-------v-------
Elzta lýðræðisþjóðin
og meáta lýðræðisþjóðin
(Framh. frá bls. 1)
borið í hendi sér kyndil frelsis-
ins. Sá kyndill frelsisins hefði
lýst þeim leiðina til þessa fjar-
læga eylands.
Það væri því auðsætt, að ís-
lendingar teldu alla baráttu fyr-
ir frelsi og lýðræði, hvar sem
hún væri háð og hvenær sem
hún væri háð, í fylsta samræmi
við þær hugsjónir, sem þeir
héldu mest í heiðri.
Að lokum kvaðst ræðumaður
ekki geta borið fram aðra ósk
betri en þá, að þessi för hinna
erlendu blaðamanna til íslands
mætti verða þeim eins ánægju-
leg og fróðleg og för íslenzku
blaðamannanna til Bretlands.
Mr. M. Gander, blaðamaður
við Daily Telegraph tók þá til
máls. Lýsti hann þvi m. a. hve
stórfenglegum áhrifum gestir
yrðu fyrir, er þeir sæju ísland í
fyrsta sinn.
Hann mintist á, hve almenn-
ingur í Bretlandi væri vankunn-
andi um alt, sem kæmi íslandi
við, og kvaðst vera ánægður yfir
því, að hann hefði fengið það
hlutverk að útbreiða þekkingu
á fslandi meðal þjóðar sinnar.
Þó viðkynning hans væri ekki
löng við ísland og fslendinga, þá
vissi hann, að hin íslenzka þjóð
bæri í hjarta sínu heilagan eld
frelsisástar og lýðræðisanda og
því ættu þessar tvær þjóðir, Bret-
ar og íslendingar, sainleið.
Hið kaldranalega nafn lands-
ins, sagði hann, hrindir mönn-
um frá að kynnast því. En
allur kunnleiki, sem eg hefi haft
af landinu og þjóðinni, bendir í
gagnstæða átt, landið, sem kallað
er “Iceland” er í mínum aug-
um “a nice land,” sagði blaða-
maðurinn, og var gerður góður
róinur að máli hans.
f dag fara hinir brezku blaða-
menn í ferðalag til Norður- og
Austurlands og verða í því ferða-
lagi vikutíma. Að því loknu
verða þeir hér í Reykjavík
nokkra daga, áður en þeir hverfa
heim.
Nokkrir íslenzkir blaðamenn
fara með þeim í þetta ferðalag,
gestunum til leiðbeiningar.
— (Mbl. 12. sept.)
The Watch Shop
Diamonds Watches - Jewelry
Agents for BULOVA Watchee
Marriage Licenses Issued
THORLAKSON & BALDWIN
Watchmakers and Jetoellers
69» SARGENT AVE., WPQ.
Minniát BETEL
í
erfðaskrám yðar
SF.NDIÐ FATNAÐ YÐAR
TIL ÞURIIREINSUNAR
TIL PERTH’S
pér spariC tfma og peninga. Alt
vort verk ábyrgst aO vera hiO
bezta I borginni.
Símið 37
eftir ökumanni vorum
i einkennisbúningi
Perflís
Cleaners - Dyers - Launderers
ÚTVARP Á ISLENZKU
Á sunnudaginn kemur, 30. nóvember, verður kvöldguðs-
þjónustunni frá Fyrstu lút. kirkju útvarpað yfir stöðin;i
CKY kl. 7. Samkvæmt fengnu leyfi hlutaðeigandi yfir-
valda fer útvarp þetta fram á íslenzkri tungu.
Hér fer á eftir útvarpsskráin:
Forspil.
“Lofið Guð, lofið hann hver sem kann”—Söngflokkurinn
Sálmur nr. 9 —- ó, syng þínum Drotni, Guðs safnaðar
lijörð.”
Messuform og söngsvör.
Pistill, Róm. 13:11-14.
Einsöngur — Mrs. Grace Johnson.
Guðspjall, Matt. 21:1-9.
Offur
“Vér allir trúum á einn Guð” — Gamla sálmabókin,
nr. 1, lsta v.
“ó drottinn, ljós og lífið mitt” — Gamla sálmabókin,
nr. 519, lsta vers.
“Hve gott og fagurt og indælt er” — Ganila sálmabókin,
nr. 589, lsta vers.
“Hér þá um Guðs son heyrði” — 26. Passíusálmur.
Söngflokkurinn.
Prédikun.
“Skapa i mér hreint hjarta, ó Guð” — Allir.
“Hátíð öllum hærri stund er sú, himnakonungs fæðing
oss er boðar.”
Söngflokkurinn
Faðir vor — Drottinleg blessan — God Save the King
Eftirspil.
KAUPIÐ AVALT
LUMBER
hjá
THE EMPIRE SASH & D00R C0. LTD.
HENRY AVENUE and ARGYLE STREET
Winnipeg, Man. - Phone 95 551
JUNIOR ICELANDIC LEAGUE
LAN C E
to be held in
THE BLUE ROOM, MARLBOROUGH HOTEI.
FRIDAY, DECEMBER 5th, 1941
— Don Carlos Orchestra —
Icelandic Boys in Uniform Free
Soinething Different — Come and See
Proc.eeds donated to thé I.O.D.E. Jon Sigurdson Chapter
Admission 50c
Commencing at 0.00 p.m.
-f.
For Good Fuel Values
WARMTH - VALIJE - ECONOMY
— ORDER —
KLIMAX COBBLES “Sask. Lignite”
M. & S. COBBLE “Sask Lignite”
WESTERN GEM “Drumheller”
FOOTHILLS “Coal Spur”
CANMORE BRIQUETTES POCAHONTAS NUT
ELKHORNSTOKER
PHONESjll |J|
ICQURDY
LICENSE No. 51
SUPPLY r^O. Ltd.
SUPPLIES ^Jand COAL
1034 ARLINGTON ST.