Lögberg - 12.02.1942, Page 8

Lögberg - 12.02.1942, Page 8
8 LÖGBERG, FIMTUDAGINN 12. FEBRÚAR, 1942 Or borg og bygð Gefin saman í hjónaband þann 4. febr. að heimili Mr. og Mrs. Arthur Brydges í Selkirk, Man. George Shields Barker, lyfja- fræðinigur frá Winnipeg og Dora Jeanette Brydges. Brúðguminn er sonur Mr. og Mrs. Geo. B. Barker, Melita, Man., en brúð- urin er dóttir Arthur Brydges og konu hans Margrétar Ceciliu Benson. Höfðingleg veizla var setin að giftingarathöfninni af- staðinni, voru nánustu ástvinir viðstaddir. — Framtíðarheimili ungu hjónanna verður í Winni- peg. fslenzki sóknarpresturinn gifti. ♦ ♦ ♦ FYRSTA LÚTERSKA KIRKJA Séra Valdimar J. Eylands prestur. Sunnudaginn 15. febrúar:— Guðsþjónustur með venjuleg- um hætti: á ensku kl. 11 f. h. á íslenzku kl. 7 e. h. ♦ ♦ ♦ LÚTERSKA PRESTAKALLIÐ í AUSTUR-VATNABYGÐUM Séra Carl J. Olson, B.A., B.D. Sunnudaginn 15. febrúar: Leslie s.s. kl. 11 f. h. Leslie kl. 7.30 e. h. AJlir eru boðnir og velkomnir- PRESTAKALL NORÐUR NÝJA ÍSLANDS Sunnudaginn 15. febrúar:— Árborg, ensk niessa kl. 2 e. h. Riverton, ísl. messa kl. 8 e. h. B. A. Bjarnason. ♦ ♦ ♦ LÚTERSKA KIRKJAN í SELKIRK Sunnud. í föstuinngang, 15. febrúar: Sunnudagaskóli kl. 11 árd. Ensk messa kl. 7 síðd. Um föstuna verða stuttar guðs- þjónustur á heimilum safnaðar- fólks í mismunandi hverfum bæjarins á miðvikudagskvöldum kl. 7.30 siðd. Miðvikudagskvöld- ið 18. febr. á heimili Mr. og Mrs. B. Kelly, á McClain Ave. — Allir boðnir velkomnir. , S. ólafsson. -f -f > Sunnudaginn 15. febrúar . átti að vera messa á Mountain kl. 1 e. h. En vegna samkomunnar sem haldin verður þann dag á Mountain fyrir foreldra drengj- anna, sem eru um þessar mundir að ganga í herinn; var messunni frestað til 22. febrúar. Verður þá (22. febr.) islenzk guðsþjón- u&ta á Mountain kl. 2.30 e. h. Fólk minnist að tíminn þá er Daylight Saving Time. ALMANAK 1942 INNIHALD Almanak3mánuðirnir, um timatalið, (. Veðurathuganir o. fl. FyrsU rfkisstjóri Islands, eftir Riehard Beck. Bellingham og Bellingham Islendingar, eftir Margréti J. Benedictson Sigurður Helgason tðnskáld, eftir Richard Beck. Höfðinginn og garðyrkjumennirnir, Æfintýri eftir J. Magnús Bjarnason. Einn af frumherjunum, Halldðr Arna- son, eftir G. J. Oleson. Öldungurinn Björn porbergsson, eftir Einar Sigurðsson. Helztu viðburðir meðal íslendinga l Vesturheimi. Mannalát. Verð: 50c THORGEIRSON COMPANY 674 Sargent Ave., Winnipeg DÁNARFREGN Sunnudagsmorguninn 1. febr. andaðist Þorgils Halldórsson á heimili sinu á Mountain, eftir alj- þunga legu. Þorgils fæddist í Dalasýslu á íslandi 10. marz 1857. Foreldrar hans voru Hall- dór Þorgilsson og Málfríður Thómasdóttir. Með þeim fluttist hann til Ameríku árið 1876. Sett- ist fjölskyldan að i Mikl«y, en Þorgils vann ýmist þar eða í Winnipeg. Til Norður Dakota fluttist þessi fjölskylda 1880. Tók þá Þorgils land suðvestur af Mountain. Hefir heimili hans ávalt síðan verið í þessari bygð. Tuttugasta október 1884 giftisl Þorgils eftirlifandi eiginkonu sinni, Kristínu Jónsdóttur, ætt- aðri úr Þingeyjarsýslu. Þau hjón eignuðust 7 dætur. Tvær dæturnar dóu í æsku, en hinar fimm lifa föður sinn, 3 hér í bygð og tvær í Ghicago, 111. Þorgils var einn af frumherj unum hér í bygð, hraustur mað- ur og duglegur eins og hann átti kyn til. Hann var ráðvandur maður, grandvar í orði og vel liðinn í sveit. Var hann mikið hneigður fyrir vélafræði og hafði mikla hneigð til uppfyndinga. f æsku hafði hann ekki mikið tækifæri til mentunar, en var bókamaður, las mikið og hugs- aði mikið og um mörg efni. Jarðarförin fór fram fimtu- daginn 5. febrúar frá heimilinu, og kirkju Vdkursafnaðar á Moun- tain, N.D. Mrs. H. Sigmar söng sóló. Mikið fjölmenni var við- statt, er bar vott um vinsældir hins látna og fjölskyldunnar. Séra H. Sigmar jarðsöng. -f ♦ -f SAMSKOT í ÚTVARPSSJÓÐ FYRSTU LÚTERSKU KIRKJU Áður auglýst og kvittað fyrir .................$72.85 H. M. Geysir, Man......... 1.00 Jónas Helgason, Baldur .. . 1.00 Mrs. Sigríður Helgason, Cypress River .......... 1.00 T. J. Torleifsson, Bottineau 1.00 Kvenfél. “Fjólan” Brown, Man.............. 5.00 Mr. og Mrs. T. J. Gíslason, Brown .................. 1.00 Mrs. Steina Hillman, Bantry, N.D............. 2.00 Mrs. Guðrún Eyjólfson, Lundar ................. 1.00 Dan. Lindal, Lundar 1.00 Mr. og Mrs. Daniel Peterson, Gimli 1.00 Mrs. H. G. Bennett, Garleswood ............. 1.00 Afhent í kirkju 8. febr.. 1.00 Mrs. Jón Goodman, Upham 1.00 Hjálmar Goodman, Upham 1.00 Jóh. Stefánsson, Piney .... 1.00 Theodor Thordarson, Hecla 0.50 ónefndur, Hecla ........... 1.00 Kristján Tómasson, Hecla 1.00 Wærar þakkir, V. J. Eylands. .... TIL ÞESS AÐ TRYGGJA YÐUR SKJÓTA AFGREIÐSLU Skuluð þér ávalt kalla upp 5ARGENT UXI PHONE 34355 - 34 557 SARGENT and AGNES TRLIMP TAXI ST. JAMES Phone 61 111 DÁNARFREGN: Þann 4. febrúar s.l. andaðist að heimili sínu í Baldur, Man., Vilhjálmur T. Frederickson, eftir langa legu í innvortis meini. Hann var fæddur að Gili i Fjörð- um í Suður Þingeyjarsýslu, 21. nóv. 1880, sonur hjónanna Vil- hjálms Tryggva Friðrikssonar og Sigríðar Þorleifsdóttur. Sum- arið 1883 fluttist hann með for- eldruin sínum vestur um haf og kom til Argyle. Á búgarði þeirra í Grundarbygðinni ólst hann UPP, °g fluttist með foreldrum sínum er þau brugðu búi, til Baldur 1905. 10. nóv. 1911 gekk hann að eiga ungfrú Margréti Guðnýju Dalmann, sem lifir mann sinn. Nokkur ár bjuggu þau á búgörðum rétt við Baldur bæinn, en settust svo að í húsi hans í Baldur og eftir það hafði hann ofan af fyrir fjölskyldu sinni með allskonar handvinnu, sem víða gafst, þar til kraftarnir voru þrotnir og veikindi bönnuðu frekara starf. Vilhjálmur var mikill starfsmaður, og vakinn og sofinn fórnaði hann öllum lífs og sálar kröftum til þess að sjá sér og sínum borgið. Samhent honum í þessu var kona hans, sem kunni vel að fara með það, sem unnið var fyrir, enda bless- aðist hinni stóru fjölskyldu und- ursamlega fyrirvinna eins manns. Þeim hjónum varð tíu barna auðið, sem eru: Irvin Tryggvi, Baldur, Man.; Irene Margaret (Mrs. H. A. Thompson) Oshawa, Ont.; Sylvia Sigurl., Winnipeg, Man.; Phyllis Charleen, Oshawa, Ont.; Christian, Oshawa, Ont.; og heima í föðurhúsum: Made- line Ida, Anna Eleanore, Kristín Ingibjörg, Winona Lorraine, Caroline June. Einnig lifa hann ifjórir bræður: Vilhjálmur Krist- inn í Glenboro, Man.; Páll T„ 755 Beverley St„ Wpg.; Ashdown i Selkirk og Jóhannes Björn, 584 Spence St„ Winnipeg. Þrjú barnabörn syr^ja afa sinn ung- an. Jarðarför Vilhjálms fór fram frá heimilinu og kirkju hans, ís- lenzku kirkjunni í Baldur, þann 8. febrúar að viðstöddu fjöl- menni vina af íslenzku og hér- lendu fólki, ásamt öllum nán- ustu ættingjum og ástvinum. Hann var lagður til hvíldar i Baldur grafreit. Séra E. H. Fáfnis jarðsöng. MINNIST BETEL í ERFÐASKRÁM YÐAR The Watch Shop Diamonds - Watchea - Jewelry Agrents for BULOVA Watche* Marriage Licenses Issued THORLAKSON & BALDWIN Watchmakers and Jewellers Tuttugasta og Þriðja Ársþing Þjóðrœknisfélagsins verður haldið í GOODTEMPLARAHÚSINU við Sargent Ave„ Winnipeg 23. 24. og 23. febrúar 1942 Samkvæmt 21. grein félagslaganna er deildum þess heimilt að senda einn fulltrúa til þings fyrir hverja tuttugu eða færri gilda félaga deildarinnar, gefi þær fulltrúum skrif- legt umboð til þess að fara með atkvæði sín á þinginu og sé þau staðfest af forseta og ritara deildarinnar. Áætluð dagskrá: 1. Þingsetning. 2. Ávarp forseta. 3. Kosning kjörb.nefndar. 4. Kosning dagsk.nefndar. 5. Skýrslur embættism. 6. Skýrslur deilda. 7. Skýrsjur milliþingan. 8. Útbreiðslumál. 9. Fjármál. 10. Fræðslumál. 11. Samvinnumál. 12. Útgáfumál. 13. Bókasafnið. 14. Kosning embættism. 15. Ný mál. 16. Ólokin störf og þingslit. Þing verður sett kl. 9.30 á mánudagsmorguninn 23. febrúar, og verður fundur til kvölds. Að kvöldinu hefir Junior Icelandic League skemtisamkomu í efri sal hússins. Þriðjudag allan verða þingfundir. Að kvöldi þess dags hefir deildin “Frón” sitt árlega Islendingamót. Á miðvikudaginn verða þingfundir, og fara þá fram kosn- ingar embættismanna. Að kvöldinu kl. 8 verður skemti- samkoma; verður þá, að forfallalausu, sýnd hin nýja kvik- mynd frá íslandi. Winnipeg 12. febrúar, 1942. 1 umboði stjórnarnefndar Þjóðræknisfélagsins RICHARD BECK, forseti V. J. EYLANDS. ritari Hjá EATON'S Handsniðin í vorri eigin klaeða-vinnustofu . . . úr ull, og mæld við einstaklingshæfi. “Thrift” Handsniðin eftir máli Föt með einum buxum $21.95 Samskonar föt með tvennum buxum $26.90 Pantið strax til að láta fatadollarinn leysa af hendi stórvirki I Made-to-Measure Rhop, The Hargrave Hhopx for Men, Main Floor. T. EATON C° LIMITED • CCNCECT • JUNIOR ICELANDIC LEAGUE to be held in the I.O.G.T. Hall, Sargent & McGee FEBRUARY, 23RD 1942 Commencing ai 8 p.m. Sharp 1. Chairman’s Address. 2. Volin Solo.................Irene Thorolfson at the piano ..........Frank Thorolfson 3. Girls’ Trio First Luth. Church Junior Choir at the piano .........Snjólaug Sigurdson 4. Address .....Valdimar Björnson of Minneapolis 5. Vocal Solo ..................Alvin Blondal at the piano .........Snjólaug Sigurdson Eldgamla Isafold — God Save the King Admission 25c THE EXECUTIVE. ISLENDINGAMOT Þjóðræknisdeildarinnar "FRÓN" verður haldið í GÓÐTEMPLARAHÚSINU Á SARGENT AVE. Þriðjudagskvöldið 24. febrúar SKEM TISKRÁ: 1. Ávarp Soffanias Thorkelsson, forseti 2. Karlakór. 3. Kvæði ....................Kristján Pálsson 4. Einsöngur ..............Birgir Halldórsson 5. Upplestur ..............Ragnar Stefánsson 6. Píanó Sóló ...............Agnes Sigurdson 7. Ræða ..............Guttormur J. Guttormsson 8. Einsöngur Birgir Halldórsson 9. Kvæði .................Lúðvík Kristjánsson 10. Karlakór. Islenzkar veitingar Dans verður stiginn við leik hljómsveitar Hannesar Kristjánssonar frá Gimli Dansstjóri verður Eddie Johnson Aðgöngumiðar fást hjá stjórnarnefndarmönnum “Fróns” og í bókaverzlun Davíðs Björnssonar, 702 Sargent Ave„ og kosta $1.00. Mófið byrjar stundvíslega kl. 8 e. h. The Business College i 1 of To-Morrow . . . TO-DAY ♦ WE CANNOI MEET THE DEMANO FOR OFFICE HELP, AND THE DEMAND IS STEADILY INCREASING. We now feel confident in stating that any average boy or girl can feel sure of a position at the end of his or her course. In addition to the private demand for office help the Dominion Government is engaging large numbers of clerks and stenographers for the Civil Service. The MANITOBA is especially well known for its training for Civil Service positions. Day and Evening Classes Evenings: Mondays and Thursdays 7.30 to . 10 p.m. flíllTOBfl COmiTKRCmL COLL€G€ Premises giving the most spacious accommodation per student in Western Canada. Originators of Grade XI Admission Standard 334 PORTAGE AVE. en™of etato™sor PHone 2 65 65

x

Lögberg

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.