Lögberg - 16.04.1942, Side 8
8
LÖGBERG, FIMTUDAGINN 16. APRÍL, 1942
Úr borg og bygð
MATREIÐSLUBÓK
Kvenfélag Fyrsta lúterska
safnaðar í Winnipeg. Pantanir
siendist til: Mrs. E. W. Perry,
723 Warsaw Ave.; Mrs. E. S.
Feldsted, 525 Dominion Street.
Verði $1.00. Burðargjald 5c.
♦ -f -t-
Með s.s. Brúarfoss komu lil
New York í byrjun þessa mán-
aðar, eftirgreindir íslendingar:
Jóhann Kristjánsson og Franz
Anderson, báðir kaupmenn, og
Hákon Loftsson, stúdent.
-f -f -f
Mrs. Guðlaug Eggertsson,
hjúkrunarkona, tekur að sér nú
þegar sjúkrahjúkrun; hefir hún
frcklega 30 ára æfingu við hjúkr-
unarstörf við góðan orðstír.
Heimili hennar er að 543 Victor
Street. Sími 33 695.
f -f -f
Nýkomnir eru hingað til borg-
arinnar af íslandi, Kristján
Jónasson læknir, til framhalds-
náms, sonur Jónasar Kristjáns-
sonar, fyrrum héraðslæknis á
Sauðárkróki, og þeir Alfred
Blíassn og Ásmundur Magnús-
son, til flugnáms.
f f f
Fjölmennið á lokasamkomu
Laugardagsskólans, sem baldin
verður i Fyrstu lútersku kirkju
á laugardagskveldið kemur, þann
18. þ. m. Auðsýnið góðu mál-
efni rækt, með því að láta hvert
einasta sæti í kirkjunni verða
skipað!
f f f
Á föstudaginn þann 3. þ. m.,
voru gefin saman í ihjónaband í
Edmonton, Thelma Eggertson-
Marlatt og Jóhann T. Jóhanns-
son iðjuhöldur þar í borginni.
Brúðurin er dóttir Árna heitins
Eggertssonar fasteignasala. Lög-
berg flytur þessum velmetnu
hjónum innilegar hamingjuóskir.
Rev. W. F. Nainsby framkvæmdi
hjónavigsluna.
f f f
Gefin voru saman í hjóna-
band, fimtudaginn 9. apríl, i St.
Stephens United Church hér í
bæ, þau Margaret Oddný Eiríks-
son og Guðmundur Eric Björn-
son, af presti safnaðarins, Rev.
H. A. Franue. Brúðurin er dóttir
þeirra Mr. og Mrs. ólafur E. Ei-
ríkson að Oak View, Man., en
brúðguminn er sonur þeirra Mr.
og Mfs. Björn Björnson, Lundar,
Man. — Eftir giftinguna vai
haldin mjög rausnarleg veizla
hjá Pickardy’s; |þvi næst fóru
ungu ihjónin i brúðkaupsferð tii
Port Arthur, Ont. Framtíðar-
heimili þeirra verður að Oak
Bluff, Man., þar siem Mr. Björn-
son er skólastjóri.
f f f
Frónsfundur
Mánudaginn þann 20. apríl,
kl. 8 að kveldi, heldur þjóðrækn-
isdeildin “Frón” opinn fund i
efri sal Goodtemplarahússins á
Sargent Ave. Allir, sem sækja
vilja fundinn, eru beðnir að
mæta stundvislega. Margt verð-
ur þar til skemtunar og fróð-
leiks: Jón .1. Bíldfell flytur
ræðu um veru sína í Norður-
Canada, og sýnir skuggamyndir
á eftir, Birgir Halldórsson syng-
ur, Dr. Sig. Júl. Jóhannesson
hefir tölu, Einar P. Jónsson, rit-
stjóri, les upp kvæði, o. fl. o. fl.
— Á þessum fundi verða tekin
samskot fyrir Rauðakróssinn, og
er þess vænst, að þeir, sem geta,
leggi þar fram eitthvað af mörk-
um.
Nefndin.
Mr. Árni G. Eggertson, K.C.,
lagði af stað vestur til Saskatoon
og Edmonton á fimtudagskvöld-
ið í vikunni sem leið í lögfræði-
legum erindum; hann bjóst við
að verða að heiman nokkuð á
aðra viku.
f f f
Mr. og Mrs. J. G. Stephanson
frá Kandahar, sem dvöldu hér í
borginni í vetur, en nú eru kom-
in heim, biðja Lögberg að flytja
vinum sínum og vandamönnum
í Winnipeg og Selkirk, hjartans
þakklæti fyrir ástúð og um-
hyggju þeim auðsýnda, er þeim
mun seint úr minni líða.
f f f
Veilið athygli!
Að forfallalausu verður árs-
lokasamkoma Laugardagsskól-
ans í Riverton, Man., haldin 8.
maí n. k. í “Parish Hall”. Auk
þess sem börnin taka þátt i
skemtiskránni verður sýnd hin
nýja “filma” sem Þjóðræknisfé-
laginu var send sem gjöf frá ís-
landi i vetur. Nánar auglýst
seinna.
f f f
Anniversary Bridge
The Jón Sigurdson Ghapter,
I.O.D.E. ihave aranged for their
Anniversary Bridge to be held
in the F'ederated Church, Ban-
ning St., Tuesday evening, April
21 st. The plans for a Birthday
celebration in March had to be
postponed; but we hope all our
gooid friends will help us to
celebraje as usual. Four good
prizes will be given, donated by
The T. Eaton and Hudsons Bay
companies. On this occasion the
draw for the knitted Afghan will
be concluded.
The Bridge will commence at
8.15 p.m. H. D.
♦ f f
Útvarp
Útvarpsmessa fer fram í Sam-
bandskirkjunni í Winnipeg
sunnudaginn 26. april, kl. 7,
undir umsjón hins Sameinaða
kirkjufélags. Séra Eyjólfur J.
Melan, j>restur Sambandssafnað-
anna í Nýja íslandi messar. út-,
varpað verður á íslenzku. Söng-
stjóri er Pétur Magnús, sólóisti
er Miss Lóa Davidson og organ-
isti Gunnar Erlendson. Söng-
flokkurinn syngur kórsönginn
“Lofið Guð” eftir Wennerberg.
f f f
Giftingafregnir:
Gefin saman í hjónaband al
séra Sigurði Ólafssyni, þann 6.
apríl, að heimili Mrs. Guðlaugar
Johnson, Selkirk, Man., sonur
hennar Gústaf Haraldur John-
son, og Guðrún Friðbjörg Elías-
son. Brúðguminn er sonur Jóns
trésmiðs Johnson, sem nú er
látinn, og eftirlifandi ekkju hans,
sem nafngreind er að ofan; en
bróðir Dr. E. Johnsn og þeirra
systkina. Brúðirin er dóttir
Elíasar Elíassonar, nú látinn, og
eftirlifandi ekkju hans Guðrún-
ar Thordardóttur; er hún upp-
alin í Saskatchewan-fylki, en
ættir foreldra hennar af ísafirði.
Framtíðarheimili ungu hjónanna
verður í Selkirk.
Gefin saman í hjónaband af
séra Sigurði ólafssyni að heim-
ili hans í Selkirk, Man., þann
10. april: Guðmundur Sigmar
Sigvaldason frá Árhorg, Man. og
Thorey Jakobson, sama staðar.
Brúðguminn er sonur Mr. og
Mrs. Guðm. Sigvaldason, Árborg,
Man. Brúðurin er d'óttir Mr. og
Mrs. Böðvar Jakobson, Árborg,
Man. Framtíðarheimili ungu
hjónanna verður við Árborg,
Man.
LEIKFÉLAG SAMBANDSSAFNAÐAR
sýnir
"TENGDAPABBA"
Gamanleik í 3 þáttum
í Samkomusal Sambandskirkju
MÁNUDAGSKVÖLD 4. MAÍ og
ÞRIÐJUDAGSKVÖLD 5. MAÍ
Byrjar kl. 8 - - - - Inngangur 50c
Þann 4. þ. m., gaf séra Valdi-
mar J. Eylands saman í hjóna-
band að heimili sínu, þau Ruby
M. G. Halldorson, og John C. I).
Mark, bæði frá Lundar, Man.
f f
Nýlátin er hér í borginni Sig-
ríður Hnappdal, 89 ára að aldri.
Kveðjuathöfn fór fram frá Bar-
dals. Séra Valdlinar J. Eylands
jarðsöng.
■f ♦ • ♦
Tengdapabbi
Eins og auglýst er á öðrum
stað í blaðinu verður þessi
skemtilegi leikur sýndur í Win-
nipeg mánudags- og þriðjudags-
kvöld, 4. og 5. maí. Leikfélag
Sambandssafnaðar er vel þekt
fyrir ágætar leiksýningar og eins
og undanfarin ár er allur frá-
gangur vandaður. Má fólk búast
við góðri skemtun þessi kvöld.
Aðgöngumiðar til sölu í Björn-
son’s bókabúð og hjá mieðlimum
leikfélagsins.
♦ ♦ f
Glenboro 2. apríl 1942.
Háttvirti Mr. Swanson:—
Fulltrúar Glenboro-safnaðar
hafa gengist fyrir ofurlitlum
samskotum fyrir Betel, hjá safn-
aðarfólki okkar hér og öðrum
Íslendingum hér í Glenboro, mér
þykir það minkun hvað íslend-
ingar hafa kipt að sér hendinni
á síðari árum í því að styrkja
Betel, það gæti verið töluverður
styrkur fyrir hælið ef almenn
samskot væru tekin meðal ísl.
jafnvel þó ekki væri mikið gef-
ið af hverjum. Hér fvlgir nafna-
skrá gefenda:
Jón Helgason ............$ 5.00
Mr. og Mrs. S. A. Anderson 5.00
Mr. og Mrs. G. J. Oleson 3.00
Mr. og Mrs. F. Frederickson 2.00
Mr. og Mrs. G. Lambertsen 2.00
Mr. og Mrs. E. H. Fáfnis 2.00
Mrs. Guðrún, Thorsteinson 2.00
Hans Jónsson ............. 2.00
Mrs. Sigurlaug Einarson .. 2.00
Mr. og Mrs. G. J. Olafson 1.00
Mr. og Mrs. Sigmar Bjarna-
son ................... 1.00
Mr. og Mrs. G. F. Goodman 1.00
Mr. og Mrs. T. E. Oleson 1.00
Mr. og Mrs. Arni Josephson 1.00
Mr. og Mrs. Hannes Ander-
son ................... 1.00
Mr. og Mrs. Matt. Swanson 1.00
Mr. og Mrs. B. B. Myrdal 1.00
Mr. og Mrs. Ingi Swainson 1.00
Mrs. Guðrún Swanson 1.00
Mrs. A. S. Arason 1.00
Mrs. H. H. Johnson 1.00
Mrs. Th. Goodmanson 1.00
Mrs. H. Oliver 1.00
Mrs. O. S. Josephson ..... 1.00
Mrs. Mary Sigmar 1.00
Albert Sigmar 1.00
Leo Johnson............... 1.00
Clarence Johnson 1.00
Mr. og Mrs. T. Hannesson 1.00
Mr. og Mrs. O. Josephson 1.00
Mr. og Mrs. S. E. Johnson 1.00
Mr. og Mrs. P. A. Anderson 1.00
Mr. og Mrs. Ben. Heidman 1.01)
Mr. og Mrs. Arman John-
son .................... 0.50
Mr. og Mrs. S. B. Stephen-
son .................... 0.50
Kvenfélag Glenborosafn.... 10.00
Alls .........j.........$60.00
Með beztu óskum til Betel.
Þinn einlægur
> G. J. Oleson,
Fors. Glenboro-safn.
Messuboð
Fyrsta lúierska kirkja
Séra Valdimar J. Eylands
prestur.
Sunnudaginn 19. apríl—
Guðsþjónustur með venjuleg-
um hætti: á ensku kl. 11 f. h.
á íslenzku kl. 7 e. h.
f f f
Lúierska kirkjan í Selkirk:
Sunnudaginn 19. apríl—
Sunnudagsskóli kl. 11 árd.
Ensk messa kl. 7 síðd.
Allií boðnir velkomnir.
S. ólafsson.
f f f
Hr. Skúli Sigurgeirsson, guð-
fræðanemi, flytur guðsþjónustur
á eftirgreindum stöðum og tíma
á sunnudaginn þann 19. þ. m.:
Foam Lake kl. 2.30 e. h., ís-
lenzk messa
Leslie kl. 7.30 e. h„ ensk
messa.
f f f
Sunnudaginn 19. apríl messar
séra H. Sigmar í Gardar kl. 11
^g í Eyford kl. 2.30 e. h. Báðar
messurnar á íslenzku. Messa að
Mountain 19. apríl. Sú messa á
ensku og byrjar kl. 8 að kveld-
inu. Fólk er vinsamlega beðið að
gjöra sitt itrasta til að sækja
messur vel.
f f f
Guðsþjónusiur í Vainabygðum
Sunnudaginn 19. apríl—
Wynyard, 3 p.m., isl. messa.
Kandahar, 7.30 p,m„ ensk
messa.
Sunnudaginn 27. april—
Westside School, 11 a.m. ísl.
messa.
Foam Lake, 2.30 p.m„ ensk
messa.
Leslie, 7.30 p.m., ensk messa.
B. Theodore Sigurdson.
f f f
Messa í Árborg
Messað verður á ensku í
kirkju Árdalssafnaðar næsta
sunnudag, 19. apríl, kl. 8 e. h.
B. A. Bjarnason.
f f f
Gimli prestakall
Sunnudaginn 19. apríl—
Betel, morgunmessa; Gimli, is-
lenzk messa kl. 3 e. h.
B. ,4. Bjarnason.
Dakota-fréttir
Sumarmála-sönghátíð á
Mounlain, N.D., 23. apríl, 1942.
Hr. ritstjóri Lögbergs:—
Eg tel það íréttir, sem vert sé
að geta um, að það sem eftir ei
af Karlakór ísl. hér i Dakota
ætlar að beita sér fyrir því, að
fagna sumrinu með söng og
hljóðfæraslætti. — Það minnir
mann ósjálfrátt á gömlu hetj-
urnar ,sem héldu velli, þó í mikl-
um minnihluta væru. En eins
og oft vildi til fyr á timuin, að
flokkar streymdu að úr ýmsum
áttum itil hjálpar þeim, sem i
minni hluta voru, eins hefir nú
þessum fáliðaða karlkaór auðn-
ast að fá mikinn liðsauka, til efl-
ingar söngmentinni. Og þó að
það iið sé ekki alt karlmann-
legt úttits, þá þarf enginn að
bera kinnroða fyrir það. — Ef
þið trúið mér ekki, þá komið þið
bara til Mountain, á sumardag-
inn fyrsta, og reynið að ná í
sæti í tíma. Sjáið flokkana þrjá,
r-Agfctt CWý—,
“In the direction of total war.”—From the Winnipeg Free
Press.
og hlustið á sönginn. “Sjón er
sögu ríkari,” og heyrn er blöð-
um betri.
Þeir, sem syngja á þessari á-
minstu samkomu ieru: Karlakór,
fjörutíu radda blandaður kór, og
miðskóla-ungmeyjakór, 14 radd-
ir; ennfremur tveir eða fleiri
einsöngvarar og slaghörpu-sóló.
Þessa kóra hefir hr. R. H.
Ragnar þjálfað i hjáverkum
sínum frá píanó-kenslu, en hann
hefir nú aðeins 85—90 nem-
endur. — “Sá ihefir nóg sér
nægja lætur,” sagði K.N. okkar,
þegar Guðni átti eftir “aðeins
8 dætur.” — Já, viö vorum hepn-
ir að fá Ragnar hingað. Vitan-
lega verður söngurinn undir
hans stjórn.
Dr. Beck heilsar sumrinu með
stuttri ræðu, og máske nökkr-
um ljóðlínum. Við vonum að
Halldór J. Stefánsson amist ekki
við þvi.
Forseti karlakórsins, St. J.
Hallgrímsson stýrir samkom-
unni.
Söngurinn byrjar kl. 8 að
kveldinu.
Fyrir hönd karlakórsins,
Th. Th.
Öttast um fjóra vélbáta
Frá fréttaritara Alþýðublaðs-
ins í Vestmannaeyjum seint i
gærkveldi:
Hér er óttast um þrjá vélibáta
með um 14 manna áhöfn, sem
fóru í róður í fyrrinótt klukkan
2 í sæmilegu veðri. Eftir því
sem bezt verður vitað leita 7 tog-
arar að bátnum og auk þeirra
varðbáturinn “Ægir.”
i fyrrinótt klukkan 2 réru
nær allir bátar héðan eða um
80. En í gærmorgun rauk hann
skyndilega upp og gerði ofsa-
veður og fóru bátarnir þá að
flýta sér heim. Voru fáir bátar
komnir í gærkveldi kl. 6, en þeir
voru að smátýnast inn í gær-
kveldi og í nótt. Snemma í
morgun vantaði fimm báta, en
tveir þeirra, “Frigg” og “Freyja”
komu rétt fyrir hádegið.
Bátarnir, s>em ekki komu upp
úr iniðjum degi í gær, "voru
langan tíma að hrekja vestan
við Eyjar.
i þessum hrakningum sökk
einn báturinn, “Bliki,” en öðr-
um vélbáti, “Gissuri hvila,”
tókst að bjarga skipshöfninni,
þó að við ákaflega slæmar að-
stæður væri að etja. Bátarnir,
sem vantar eru: “Aldan,” skip-
stjóri: Jónas Bjarnason, “Ófeig-
ur I” skipstjóri: Þórður Þórðar-
son og “Þuríður formaður,”
skipstjóri: Jón Sigbjörnsson.
Þegar vélbáturinn “Freyja"
komst til hafnar í dag skýrðu
skipverjar svo frá, að “Aldan”
hefði verið með bilaða vél í gær
og hafði “Freyja” tekið hana í
slef og verið með hana “í slefi”
í 4 tíma, en klukkan 10 í gær-
kveldi slitnaði tógin og týndist
“Aldan” út í myrkrið og of-
viðrið.
Bátar af Suðurnesjum lentu
og í ihrakningum — og vantar
einn þeirra enn, “Ægi,” sem
gengur frá Keflavík. — Hefir
ekkert spurst til hans, þrátt fyr-
ir leit.
“Sætojörg” fór út til aðstoðar
bátum og kom hún að vélbátn-
um “Aldan” frá Neskaupstað,
sem gengur frá Keflavík, þar
sem hann var í nauðum stadd-
ur. Var hún með hann í eftir-
dragi þegar síðast fréttist.
—(Alþbl. 3. marz).
MINNIST BETEL
í ERFÐASKRÁM YÐAR
%
V
Svo auðvelt að bæta
teskeið I pott í íyrsta
drykk unga yðar, til
þess að halda meltinK.
arfærunum t lagi og
tryggja ltfræna þróun. Viðskifta-
vinir segjast ekki geta verið áu
HAMBLBY'S CHICK ZONK
6 oz., 40c; 12 oz., 75c; póstfrflt
40 oz. $1.25, % gal. $1.50; 1 gal..
$2.75. Express krafa.
Skrifið eftir ókeppis verðskrá
með myndum
J. J. Hambley Hatcheries
Winnipeg, Regina, Saskatoon,
Calgary Edmonton_ Portage,
Dauphin, Brandon, Sioan Lake
TIL ÞESS AÐ TRYGGJA
YÐUR SIÍJÓTA
AFGREIÐSLU
Skuluð þér ávalt kalla upp
SARGENT
TXXÍ
PHONE
34355 - 34 557
SARGENT and AGNES
TRLMP TAXI
ST. JAMES
Phone 61 111
TILKYNNING
Arðmiðar af hlutabréfum í h.f. Eimskipafélagi fslands
verða nú til útborgunar hjá herra Árna G. Eggertson,
K.C., 300 Nanton Bldg„ Winnipeg, fyrir vestur-íslenzka
hluthafa.
Ásmundur P. Johannson.
LOKASAMKOMA
LAUGARDAGSSKÓLA ÞJÓÐRÆKNISFÉLAGSINS
verður haldin í
Fyrstu lútersku kirkjunni á Victor St.
LAUGARDAGINN 18. APRÍL, KL. 8.30 E.H.
SKEMTISKRÁ:
O Canada
1. Barnakór
2.
3.
4.
5.
6.
7.
8.
9.
10.
11.
(a) Haustkvöld
(b) Nýársnótt
(c) Álfadans
Ávarp samkomustjóra — Séra V. J. Eylands
Piano Solo — Richard Beck
Leikur, Brúðan hennar Rönku” — 4 börn
Framsögn — Miss Lilja Johnson
Accordion Solo — Neil Hanson
Leikur, “Kassinn hennar Pandóru” — 13 börn
Barnakór {g SmaladrenBnrinn
Ræða — Dr. Richard Beck
Piano Solo — Miss Thora Ásgeirson
Ávarp — Mrs. E. P. Jónsson
Eldgamla ísafold
God Save the King.
Aðgangur 25c — Ókeypis fyrir börn innan 14 ára aldurs.