Lögberg - 14.05.1942, Blaðsíða 1

Lögberg - 14.05.1942, Blaðsíða 1
PHONES 86 311 Seven Lines ,uvvvvcA I>attO^ a“' For Better Coí' tV Dry Cleaning ________ and Laundry '»SS3fe> 55. ARGANGUR LÖGBERG, FIMTUDAGINN 14. MAÍ, 1942 NÚMER 20 Japanir sæta í sjóorustu í byrjun vikunnar, sem leið, loku að berast óljósar fregnir a* hrikalegri orustu í Coral-haf- inu milli japanska flotans ann- arsvegar. og flota sameinuðu bióðanna hinsvegar; var það Þegar auðsaett af fyrstu fregn- uui, að Japanir heíði beðið þar atakanlegan ósigur; um það varð ekki vilst, að þessari japönsku ^iotadeild væri beint að Ástralíu; Tilkynning frá skrifstofu íslenzka ræðismannsins í Winnipeg Ræðismaður fslands hér í ^org, Mr. Grrttir Leo Jóhanns- s°n, hefir nýverið fengið eftir- greindar upþlýsingar frá Sigurði Jónassyni lögfræðingi í Reykja- vik: Alþingi fslands hefir veitt I)r. Sig. Júl. Jóhannessyni 500 króna skáldastyrk; upphæðin send ræðisinanni í dollurum til út- h°rgunar. Fimm -hundruð króna skáldastyrkur til J. Magnúsar Rjarnasonar fyrir árið 1939, einnig sendur til ræðismanns til hrakförum nú hafa meginherstöðvar hinna sameinuðu þjóða í Ástralíu formlega tilkynl, að Japanir hafi í viðureign þessari, mist að minsla kosti 24 skip. þar af 12 herskip af ýmsum stærðum; enn hefir ekki verið skýrt frá tapi sameinuðu þjóðanna, með því að MacArthur yfirhershöfðingi lítur svo á, að á þessu stigi málsins gæti upplýsingar í þessa áit orðið óvinaþjóðunum lil hagsmuna. útborgunar í peningum. Bókaforlagið Edda í Reykja- vík hefir tekið að sér útgáfu á öllum ritverkum J. Magnúsar Bjarnasonar, auk þess sem Sig- urður Jónasson hefir gert Gretti ræðismanni aðvart um það með símskeyti, að ljóð Einars P. Jónssonar verði gefin út í Reykjavík í sumar jafnskjótt og handrit af þeim komist heim. SAMBÖNDUM SLITIÐ Frá Melbourne er símað á miðvikudagsmorguninn, að Jap- anir hafi nú svo um hnúta-búið. að öllum samböndum Filipps- eyja við umheiminn, sé gersam- lega slitið. Veitið Rauða krossinum fulltingi yðar Söfnun í sjóð Rauða krossins stendur nú yfir, og veltur mikið á, að hver og einn þegn þessa lands finni sér það skylt, að ljá þessu mikla mannúðarmáli alt hugsanlegt lið. Oft var þörf, en nú er nauðsyn, að allir leggist á eitt, og skipi sér í heilsteypta breiðfylking vegna þeirra mörgu mannúðarmála, sem að kalla. Rauði krossinn þarfnast mikils fjár til þess að geta fullnægt allra brýn- ustu þörfum; hafið það hugfast, að kornið fyllir mælirinn. KIRKJUÞING Hið fimtugasta og áttunda ársþing Hins evangeliska lúterska kirkjufélags fslendinga í Vesturheimi verður sett ineð opinberri guðsþjónustu og altarisgöngu kl. 8 að kvöldi föstudagsins 26. júní, 1942, í kirkju Selkirk- safnaðar í Selkirk, Manitoba. Áætlun um dagskrá gerir ráð fyrir að þingið standi yfir frá 26.—30. júni. Söfn- uðir hafa rétt til að senda einn fulltrúa á þing fyrir hverja hundrað fermda meðlimi eða brot af hundraði, en þó þannig að enginn söfnuður hafi flejri en fjóra fulltrúa á þingi. Allir söfnuðir eru beðnir að neyta rétt- ar síns og senda fulltrúa á þing. Embættismenn og fastanefndir áminnast um að allar skýrslur ber að leggja fram á fyrsta þingdegi. K. K. ólafson, forseti. Dagsett í Winnipeg, Man. 11. maí 1942. Áttræðisafmæli Frú Jónína Júlíus Síðastliðinn mánudag átti frú Jónina Júlíus, ekkja Jóns Júlíus, bróður Kristjáns Dakotaskálds. áttræðisafmæli, og heimsótli hana þann dag mannfjöldi mik- ill, eldri og yngri vina; hún hafði fyrir skömmu orðið fyrir því slysi að fótbrotna, en var nýlega komin heim af sjúkrahúsi, og komin á góðan bataveg. Frú Jónína er fædd að Rauðá i Bárðardal, og fluttist vestur á ungum aldri; hún er glæsileg og gáfuð korfa, er helt hefir geislum í ríkum mæli á veg sam- ferðasveitar sinnar; hún er til heimilis hjá dóttur sinni, Mrs. B. S. Benson, að 757 Home St., þar sem hún nýtur umhyggju og ástúðar allra aðstandenda. Frú Jónína hefir tekið mikinn og giftudrjúgan þátt í mannfé- lagsinálum íslendinga i þessari borg, og starfað ósleitilega að hag Fyrsta lúterska safnaðar; enda gengur hún jafnan heil og óskift að verki; hún þakkar af grunni hjarta síns gjafirnar og árnaðarskeytin, sem henni bár- ust á afmælisdaginn, en þó ekki sízt heimsókn ungra og aldinna vina, er stuðluðu að því, að gera afmælisfagnaðinn sem eftir- minnilegastan. Lögberg flytur frú Jónínu innilegar árnaðaróskir i tilefni af áttræðisafmælinu. VIÐ FÁUM GÚMMÍVÖRUR OG LANDBÚNAÐARVÉLAR FRÁ AMERÍKU Samkvæint fregnum sem ríkis- stjórninni hefir fyrir nokkru borist frá sendiherra okkar í Washington, er nú sennilega bú- ið að tryggja það, að við fáum keyptar vestra allar þær gúmmi- vörur, sem við þurfum á þessu ári og einnig allar nauðsynlegar vélar til landbúnaðarstarfrækslu. Þetta er okkur að sjálfsögðu ákaflega mikils virði, þvi að það er nú miklum erfiðleikum bund- ið að fá þessar vörur. Hinsvegar er mikil hætta á, .að stjórn Bandaríkjanna geti ekki látið okkur í té skipakost til flutninga á vörum hingað, og er það vitaskuld mjög bagalegt, því að skipastóll sá, er við eigum eða ráðum yfir, fullnægir ekki þörfinni. —• (Mbl. 19. marfc). TRAUSTI LÝST Á MR. KING Símað er frá Ottavva á mið- vikudaginn, að þrátt fyrir em- bættisafsögn Cardin’s ráðherra, hafi þingflokkur Liberala lýst fullu trausti á King forsætisráð- herra, að undanteknum ellefu þingmönnum frá Quebec, er fylgi Gardin að málum; það og talið iíklegt, að þessir ellefu átti sig áður en langt um líður. Arásirnar á Malta Þjóðverjar halda uppi jafnt og þétt loftárásum sinum á Malta, og sæta einni útreiðinni annari verri; mistu þeir þar á síðast- liðnum þremur dögum, eitt- hundrað og tvö loftför, að því er siðustu fregnir herma. í útvarpsræðu á sunnudaginn lýsti Churchill forsætisráðherra yfir því, að Gort lávarður hefði verið skipaður höfuðsmaður brezka varnarliðsins á Malta; er hann talinn einn af liinum allra ráðsnjöllustu herforingjum Breta í núverandi styrjöld, og þykir i hvívetna hinn mesti, fullhugi. ÍSLENZKUR MAÐUR SKOTINN TÍL DAUÐS Sá hörmulegi atburður gerðist skamt innan við Reykjavík s.l. laugardagskvöld, að amerískur varðmaður skaut á íslenzka bif- reið og beið farþegi í bifreið- inni, Gunnar Einarsson, bana af. Tildrög atburðarins voru þessi Um kl. 11 e. h. voru þeir Magnús Einarsson, forstjóri, og Gunnar Einarsson, vélfræðingur, á ferð um veg skamt frá amerísku her- búðunum innan við bæinn. Er vegur þessi opinn til umferðar. Amerískur varðmaður stöðvaði bifreiðina, en leyfði þeim síðan að halda áfram. Litlu siðar stöðvaði annar varðmaður bif- reiðina, hafði tal af þeim og Jeyfði þqim síðan að halda á- frain, að þvi er Magnúsi skildisl, en er þeir voru rétt komnir af stað aftur, reið af skot úr byssu varðmannsins og kom í hnakka Gunnars. Lézt hann á hjúkr- unarstöð ameríska hersins 2 klst. siðar. — Gunnar Einareson var niaður á fertugs aldri, sonur Einars Jónssonar, málara, er dvaldi alllengi hér í bænum um s.l. aldamót. — Hann var nýlega kvæntur Þóru Borg, leikkonu. —(Dagur 19. marz). Heill á húfi Capt. Njáll O. Bardal Um síðustu helgi bárust hing- að þau ánægjulegu tíðindi, að Capt. Njáll O. Bardal, sonur þeirra Mr. og Mrs. A. S. Bardal, væri heill á húfi í Hong Kong; hann var einn þeirra Canadamanna, er vörn héldu uppi gegn innrás- arhersveitum Japana í þessu landnámi Breta, sem Japanir, eftir harða viðureign, náðu haldi á; nú hefir hin lamandi óvissa um aðstæður þessa inæta Winni- peg-íslendings verið rofin með áminstri fregn, og er það eigi aðeins nánasta sifjaliði, heldur og hinum mörgu, öðrum vinum hans, ósegjanlegt fagnaðarefni. Einhverntíma slotar núver- andi gerningahríð, og þá kemur Njáll heim aftur. Flutningaskipi sökt í St. Lawrence fljóti Tilkvnt hefir verið að flutn- ingaskipi einu, állstóru, hafi verið sökt í St. Lawrence-fljótinu á mánudaginn var, af völdum ó- vinakafbáts; er þetta í fyrsta sinn í sögu hinnar canadisku þjóðar, að slíkur óvinafagnað- ur hafi gerst á þessum slóðum. Áttatíu og átta af skipverjum, er mælt að hafi bjargast, mis- munandi þjakaðir og meiddir. 75 ÁRA AFMÆLI BORGARNESS Borgnesingar héldu hátíðlegt 75 ára afmæli kauptúnsins á laugardaginn var, en þá voru liðin 75 ár síðan Borgarnes varð löggiltur verzlunarstaður. Afmælissamkoma var hahiin í samkomuhúsi bæjarins. Sátu það samsæti um 250 manns. Friðrik Þórðarson oddviti setti sanikoinuna með ræðu, þar sem hann í fáum orðum mintist sögu staðarins. Ivarlakór Borgarness söng þar undir stjórn Halldórs Sigurðs- sonar bókhaldara. Kvartett söng þar og nokkur lög. Á 50 ára afmæli Borgarness árið 1917 orkti Þorsteinn heitinn Gíslason afmælisljóð. Voru þau sungin við þetta tækifæri. Nokkrir menn úr héraðinu sóttu samkomu Jiessa, en flestir voru þar Borgnesingar. Skemtu menn sér hið bezta. Á 50 ára afmæli Borgarness árið 1917 voru lögð fyrstu drög að hafnargerð þar. Gaí Thor Jensen þá 10 þús. kr. til vænt- anlegra hafnarvirkja, en sam- skot komu til viðbótar, er námu 5 þús. krónum. Varð J>etta und- irstaða hafnarsjóðsins. Síðustu 25 ár hafa Borgnes- ingar oft haldið afmælið hátíð- legt, og þá notað það tækifæri hin síðari ár til Jiess að afla fjár til skrúðgarðsins, sem gerður er umhverfis Skallagrímshaug. Heit- ir garðurinn Skallagrimsgarður. Hefir kvenfélag staðarins annast garðinn með mikilli prýði. — (Mbl. 24. marz). Sæmdur skáldastyrk Dr. Sig. Júl. Jóhannesson Lögbergi hal'a borist þær iregn- ir, að AlJiingi íslands hafi veitl Dr. Sig. Júl. Jóhannessyni 500 króna skáldastyrk. Er hann fyr- ir löngu maklegur slíkrar viður- kenningar, og flytur Lögberg honurn í Jiessu tilefni, innilegar hamingjuóskir. SÆSÍMI YFIR SKERJAFJÖRÐ TIL BESSASTAÐA Póst- og smíamátastjóri hefir tilkynt vitamálastjóra, að mjög bráðlega verði lagður nýr sæ- símastrengvir yfir Skerjafjörð, hér um bil frá miðri eyrinni Vestan við Seiluna, þvert yfir fjörðinn til Skildinganess, skamt fyrir utan olíustöð Shell. Aljijóða sa'símamerki verða sett strax við bæði landtök. Eftir þvi sem blaðið hefir íregnað, frá öðrum hciinilduin, mun hér átt við sæsímastreng, sem í ráði er að leggja til bú- staðar ríkisstjóra, frá Reykjavik til Bessastaða. Sími Jiessi mun verða i sambandi við sjálfvirku miðstöðina í Reykjavík. —(Mbl. 19. marz). HERT Á SÓKN Frgnir frá Berlin á miðviku- dag, láta mikið yfir sigurvinn- ingum Þjóðverja á Krímskaga. Rússar hafa enn eigi staðfest fregnirnar. Háflug Eftir John Gillipsie Magee Petta kva'ði á enáku er fest upp U1 sýnis og lesturs I öllum helztu flugskólum brezka rikisins. pað er ort af 19 ára unglingi, seni féll I orustu konunglega flugliðsins t desembermánuði 1940. pví hefir verið jafnað við kvæði Ruperts Bro«ks: “Hermaðurinn” og kvæði McCrea’s "í Planders.” Pað er sýnt með báðum þeim kvæð- um á nýbyrjaðri sýningu í hinu svokallaða "pingbðkasafni” I deild er nefnist: “Trúar- og frelsisljóð.” Eg losnað hefi jarðarfjötrum frá, í frelsi kannað leiðir himingeims, mót sólu klifrað, klofið loftin blá og komist inn í fögnuð æðra heims. > Eg dansað hef’ við sólsprengd skúraský, sem skinu eins og þúsundlita glóð, og gert svo margt, sem enginn skilur í og aldrei fyrri dreymdi nokkra þjóð. Eg svifið hefi, sveiflast, hvolfst og steypst, og svifið aftur hærra og lengra en fyr; mér allir vegir lífsins hafa leyfst í ljóssins ríki — opnar hverjar dyr. Eg svifið hefi’ um sumarhlýjan geim, Þar sólbjört þögnin eins og draumsæng lá, og þaðan inn í kaldan hrykaheim, við hryðjustorma glímt og flogist á. Upp hærra en fleygum fugli væri kleift eg flaug í gegnum himniloftin blá; og miklu fleira en fyr var nokkrum leyft á ferðum þeim eg heyrði, skildi og sá. Er hljóður sveif eg, hvergi eygði strönd um heilagleikans veldi, engilfrjáls, eg út í loftði rétti hægri hönd og hafði snortið andlit drottins sjálfs. Sig. Júl. Jóhannesson þýddL

x

Lögberg

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.