Lögberg - 02.06.1942, Blaðsíða 1

Lögberg - 02.06.1942, Blaðsíða 1
PHONES 86 311 Seven Lines , X Vöv^ RS&rss35* Cot- For Beller Dry Cleaning and Laundry s5. ARGANGUR LÖGBERG, FIMTUDAGINN 2. JÚNÍ, 1942 NÚMER 23 Stórkostlegasta loftárás, sem sögur fara af— 1,500 flugvélar veitast að Cologne og Rínarhéruðum Krupps vopnaverksmiðjurnar Síðastliðinn laugardag hófu ^retar og Canadamenn þá stór- Kostlegustu loftárás á Cologne °k Rínarhéruðin þýzku, sem sögur fara af; tóku þátt í árás- lr>ni hvorki meira né minna en CöOO orustuflugvélar, sem áætl- 1a® er að varpað hafi að ininsta k°sti sex miljónum punda af sprengjuin yfir þau svæðí, sem t)aer einkuim og sér i lagi veittust aÓ- Staðhæft er, að sjö áttundu hlutar Colognehorgar hafi brunn- til ösku, en þar hefir jafnan v«rið, eins og vitað er, afarmikið Uin hergagnaframleiðslu. Tjónið 1 Rinarhéruðunuin varð einnig M^ysilega mikið. Aðeins 44 brezkar orustuflug- 'eiar fórust í þessari risafeng- legu atsókn, og má það smá- va*gilegt teljast í samanburði við tap Þjóðverja i sumum árásun- uni á London 1940. Reir Ohurchill ‘forsætisráð- ^erra Rreta, og Mackenzie King, torsætisráðberra Canada, sendu ytirstjórn flughersins faguryrtar kveðjur í tilefni af árásinni á Cologne og Rínarhéruðin; kvað ^tr. Churchill þetta .einungis lit- lr|n forsmekk af því, sem Þýzka- land ætti í vændum. Herbert Morrison, innanríkisráðherra I)rezku stjórnarinnar, lýsti yfir því í útvarpsræðu^ að ef Þjóð- 'erjuni væri ant uim að komast kJá loftárásum, þá yrði þeim k°Hast, að losa sig sem allra tyrst við Hitler. Á mánudaginn sendu Bretar °g . Ganadamenn 1,036 orustu- flugvélar til Essen, þar sem Reinhard Heydrich veitt banatilrœði Hinn svonefndi “verndari” Hohemiu og Moldaviu, Reinhard Heydrich, öðru nafni “erkiböð- UH” leynilögreglunnar þvzku, ók 1 hi| sínum um eitt meginstræt- >ð í Prague á föstudaginn var, nýkominn úr heimsókn írá Herlín; var þá skotið á bílinn, °g hlaut Hevdrich við það á- 'erka svo mikinn, . að tvísýní Pykir um lif hans; vegna þessa otburðar, voru imargir þegar bandtoknir í Prague, og hat'a að sögn fjörutiu verið teknir af lífi, t*ar á meðal tólf konur. Prá austurvígstöðvunum Orustu þeirri hinni miklu. seni staðið hefir yfir á þriðju viku umhverfis Kharkov, er að sögn lokið, að minsta kosti um stundarsakir; fregnum um úrslit ber engan veginn saman. Þjóð- 'erjar segjast hafa unni{5 þar á- kveðinn sigur, en berstjórn Hússa er nokkuð á öðru máli, 'l'ú hún mótmæli þvi ekki, að Hjóðverjum hafi í viðureign þessari vegnað vitund betur. Á binn bóginn hafa hinar þýzku bersveitir farið halloka i nám- unda við Leningrad, sem og á uiiðvigstöðvunum i grend við Kalinin. Þjóðverjar háfa á <">11- u,n þessum orustusvæðum, sætt 8eysilegu mannfalli, auk þess seni þeir hafa mist mestu kynst- Ur orustuflugvéla og skriðdreka. miklu hafa bækistöðvar; stað- 'hæfa brezk hernaðarvöld, að tjón á þeim stöðvum hafi orðið geysi- mikið, þó örðugt væri að ná glöggum ljósmyndum vegna reyks og elds. Er það mjög rómað, hve cana- diskir flugmenn hafi gengið djarfmannlega fram i báðum þessum sögufrægu atrennum gegn hinum inikilvægu fram- leiðsluborgum óvinanna. Veitt makleg sæmd Próf. Watson Kirkconnell Þessurn merka og áhrifamikla fslandsvini, prófessor Watson Kirkconnell, hlotnaðist nýverið sú maklega viðurkenning, að viera kjörinn heiðursfélagi i Royal Ganadian Society fyrir bókmentaafrek sín.— KREFST STRÍÐSYFIRLÝSINGAR Roosevelt foreeti hefir i er- indisbréfi til þjóðþingsins í Washington, kraíist þess, að Bandaríkin segi umsvifalaust Búlgaríu, Ungverjalandi og Rú- meníu strið á hendur, með þvi að það sé fyrir löngu vitað, að þau sé tól í höndum Hitlers, og vilji koma Bandaríkjaþjóðinni fyrir kattarnef hvað sem það kosti. Þjóðrœknisfélag Islendinga í Reykjavík heldur mannfagnað á Þingvöllum Samkvæmt simskeyti, er Lög- bergi barst i gærmorgun frá for- manni utanrikismálanefndar, hélt Þjóðræknisfélag Austur-fs- lendinga hátið mikla á Þing- völlum á sunnudaginn var, er helguð var íslendingum vestan hafs. Stjórn félagsins, þeir Árni G. Eylands, ófeigur læknir ófeigsson og Valtýr Stefánsson, efndu til mótsins. Séra Jakob Jónsson prédikaði i Þingvalla- kirkju. Benedikt Sveinsson skýrði sögustaði. Siðar um dag- inn var sýnd Sogsvirkjunin og garðyrkjuskólinn á Rieykjum. Ferðin hin ánægjulegasta. - • Frumvarp Bjarna Ásgeirsson- ar um að ríkið kosti árlega einn Vestur-fslending til móður- málsnáms við Háskóla íslands, samþykt. Mexico segir öxulríkjunum stríð á hendur Þjóðþing Mexicoríkis, báðar deildir, hefir í einu ljóði fall- ist á, að Mexico segi öxulríkj- unum þremur, Þýzkalandi, ítaliu og Japan stríð á hendur, og hefir forseti staðfest þar að lút- andi yfirlýsingu með undirskrift sinni. Kafbátar öxulríkjanna hafa sökt svo vitað sé, fimm vöruflutningaskipum úr verzl- unarflota Mexicobúa, og er slikt athæfi tilefni stríðsyfirlýsingar- innar. Hundruð Norðmanna hneptir í þrœlakvíar Þær eru alt annað en glæsileg- ar, fregnirnar, sem nú svo að segja berast daglega frá Noregi; hundruðum iðjuhölda er varpað í þrælakvíar án nokkurra minstu saka; hefir þetta, einkum í seinni tið, komið hart niður á útgerðarmönnum og skipaeig- endum, £r eigi vildu skilyrðislausl kyssa á Nazistavöndinn. Að því er fregnir frá Washington herma, voru á tímahilinu frá 10. til 14. maí síðastliðinn, 250 norskir framtaksmenn, er við skipaútgerð gáfu sig, teknir úr umferð, og komið fyrir i þrælk- unarkvium Hitlers i grend við Veistvold. Frá Lybiu Hrikalegar orustur hafa verið háðar undanfarna daga í eyði- mörk Lybiu um 40 mílur suð- vestur af Tobruk; höfðu öxul- rikin sent þangað öflugar skrið. drekafylkingar, því nú átti auð- sjáanlega að skríða til skarar i bið fimta sinn á þessum glóandi vettvangi stríðssóknarinnar. Sam- einuðu þjóðirnar voru vel við- búnar áhlaupi þessu, bæði að mannafla og vopnabúnaði, og er nú Iþannig komið, að sveitir öxulríkjanna hafa látið undan síga við miklu tapi mannafla og vigvéla. FYRRUM ÞINGFORSETI LÁTINN Síðasbliðinn föstudag lézt að heimili sonar sins hér í borginni Samuel Jacob Jackson, sá er gegndi þingforseta embætti i Manitobaþinginu á árunum 1891 —1894; hann hafði átt heima í Manitoba i frekkga sjötíu ár. Mr. Jackson var 94 ára íjð aldri, er dauða hans bar að. Á árun- um frá 1904 til 1908, átti Mr. Jackison sæti á sambandsþingi fyrir Selkirk kjördæmi; hann var í hinum fyrsta hóp eitthvað um tuttugu bænda úr Ontario- fylki, er hingað fluttust vestur árið 1871. SPARNAÐUR FITUEFNA Neytendadeild landbúnaðar- ráðuneytisins i Ottawa, hefir ný- verið gefið út bækling, sem brýn- ir mjög f'yrir almenningi þörf- ina á sparnaði fituefna, og veitir uþplýsingar um það, hvernig nota megi við sem beztum á- rangri hinar mismunandi fitu- tegundir. Bækling þenna má fá með (þvi að skrifa Gonsumer Section, Dominion Department of Agriculture, Ottawa, Ont. Kominn til Englands Pilot Officer Edward Eggertson Þessi ungi og efnikgi maður, er sonur frú Guðlaugar Eggert- son, 543 Victor Street hér í borginni; hann er frábær náms- maður, og lauk i fyrra þriðja árs prófi með ágætiseinkunn við Science ddld Manitobaháskólans; rétt á eftir innritaðist Edward í konunglega, canadiska flugher- inn, en lauk flugnámi við Air Observers skólann í Rivers; var hann, svo að segja að nýloknu prófi, skipaður í íoringjastöðu, og lagði af stað skömmu á eftir, austur um haf. Sumarnámsskeið ungmenna Um nokkur undanfarin ár hefir Samband lútersku kvenfé- lágana staðið fyrfr sumarnám- skeiði ungmenna, sem haldið hefir verið á landi Canadian Sunday Schoöl Mission að Gimli. Þetta fyrirtæki hefir reynst injög vinsælt og aðsókn að námsskeið- inu hefir aukist með ári hverju. Auk hins almenna mentunar- # gildis sem slík námsskeið bafa, og tækifæris til sérstaks undir- búnings fyrir kenslustarf í sunnudagaskólum, veitist hið á- gætasta tækifæri til útiveru og leikja til styrktar líkama og sál. Síðla á umliðnum vetri kom það í ljós að í isumar verður ekki hægt að hafa námsskeiðið á Gimli, vegna þess að hús Cana- dian Sunday School Mission eru ekki fáanleg ti'l leigu, em um önnur pláss er þar ekki að ræða. Sjálfsagt þótti þó að náms- skeið yrði haldið í sumar eins og að undan'förnu. Hefir því ver- ið ákveðið að námsskeið þetta fari fram i Carman Camp við Rock Lake dagana 13.—22. júlí n. k. Þetta plássi er 4 mílur frá Crystal City, 18 mílur frá Baldur, 30 mílur fná Glenboro. Næsta járnbrautarstöð er Glenora i 2% mílu fjarlægð. Er þetta pláss talið bið prýðilegasta i álla staði. Er þess að vænta að fólk færi sér þetta tækifæri i nvt að gefa ibörnum sinum tækifæri til úti- veru og fræðslu, sem nauðsynleg er þeim, er verða vilja leiðtogar í kriistilegum efnum í söfnuðum sinuni eða bygðarlögum. F'rekari upplýsingar gefa þau Mrs. A. S. Bardal i Winnipeg, Mrs. Lára Tergesen, Gimli, og séra E. H. Fáfnis í Glenboro. REIÐHJÓLA FRAMLEIÐSLA Vegna þeirra margauknu hamlana, sem er verið jafnt og þétt að leggja á bilanotkun í Canada, hafa stjórnarvöldin hlut- ast til um það, að ekki verði allir til þess neyddir, að ferðast á hestum postulanna, eins og þar stendurj nú hefir það verið formlega tilkynt frá Ottawa, að •framleiða megi á yfirstandandi ári í landinu, 150,000 reiðhjól. Þýzkar flugvélar eru daglega yfir Fœreyjum Þýzkar flugvélar eru á hverj- um degi yfir Færeyjum og á hverjum einasta degi, frá þvi i byrjun ágúst þar til i miðjum desemher leið ekki sá dagur, að ekki x^eri gefin loftvarna- merki á eyjunum. Tjón á mönn- um og mannvirkjum af völdum loftárása í Færeyjum er þó til- töluliega lítið. Færeyingar eiga í mikfum erfiðleikum, hafa mist mörg skip, atvinnulevsi er mikið og matvæla- og þó einkum mjólkurskortur tilfinnanlegur. Lárus ólafsspn lyfjafræðingur skýrði hlaðinu frá þessu í gær En 'hann er nýkomtnn heim eftir fimm mánaða dvöl i Þórshöfn á Færeyjum, þar sem hann starf- aði i lyfjabúð. — Það var sem sagt ófrávíkj- anleg regla, að þýzku flugvél- arnar komu á hverjum degi uni hádegið, einis og eftir áætlun, segir Lárus. Stundum komu þær oftar en einu sinni á dag. Aðallega voru Iþetta “Dornier”- sprengjuflugvélar. Flugmennirn- ir virtust sækjast mest eftir að granda skipum og hafnarmann- virkjum. Þær flugu mjög lágt til þesis að loftvarnabyssur ættu verra með að ná til þeirra. Enn- fremur skutu flugmennirnir úr vélbyssum fná flugvélunum. Hverfandi tjón. Tjón er þó hvenfandi lítið af völdum loftárásanna, en oft hef- ir hurð iskollið nærri haelum. Einu sinni virtist svo sem flug- mennirnir væru að reyna að hitta olíugieyma, sem eru skamt frá sjúkrahúsinu. Sprengja kom niður mitt á milli sjúkrahússins og geymanna. Sprungu svo að segja allar rúður í gluggum sjúkrahússins, þeim sem vissu að geymunum. Sprengjubrot þeyttist inn um einn gluggann og lenti í miðstöðvarofni og braut hann, en sjúklinga, siem í stofunni voru sakaði ekki. Einkennilegt var hve margar af isprengjunmm, isem þýzku flugmennirnir vörpuðu niður sprungu ekki. Ekki vissi al- menningur af hverju þetta staf- aði. Einu sinni féll sprengja á tún nokkrum metrum frá htisi einu og stóð hópur fólks fyrir utan húsið, en sprengjan sprakk ekki og engum varð meint af. öðru sinni hitti sprengja allstórt skip miðskipis. Sprengjan lenti á ldefa einum, þar sem kona nokkur var stödd. En sprengj- an sprakk ekki og konan slapp ómeidd. Yfirleitt má segja, að sérstök bepni hafi verið með Færíeying- um í loftárásum Þjóðverja. Mikið var um flugxélar yfir Ivlaksvig og um tíma var fólk að flýja bygðina. Aldrei sá Lárus neina flugxél skotna niður, en ýmsar sögu- sagnir gengu um að flugvélar hefðu orðið fyrir iskofi. Eftir þvi, isem leið á haustið, urðu Iflugmlennirnir ágengari og á- gengari, en um miðjan desem- ber var eins og hlé á heimsókn- úm binna (þýzku flugvéla, en þær hófu komur sinar aftur á ný um áramótin. Færeyingar vöndust furðu fljótt þessuim ferðum hinna þýzku flugvéla og sprengjuvarpi þeirra, en verst var mönnum við vélbyssuskoithríð Ifrá flugvélum. Vinna truflaðist mjög af loftá- rásum Þjóðverja. Venja var að gefið var inerki með þvi að dreg- ið var upp flagg í Þórshöfn, ef frést hafði til þýzkra flugvéla yfir nálægum eyjum. Ekki átti fólk að leita hælis í skýlum er þetta merki var gefið, en það var varað við að vera nálægi höfninni. Út af þessu var skrif- stofum við 'höfnina oft lokað hálfa og heila daga á meðan hættuflaggið var uppi. Tröllasögur, Síðan eg kom heim, segir Lárus ólafisson, hefi eg heyrt hinar ótrúlegustu tröllasögur um loftárjásirnar á Færeyjar og um tjón af völdum þeirra. Allar þessar sögur eru, ósannar með öllu, eða griðarlega ýktar og langt frá sannleikanum. Þær eru álíka isannar eins og sög- urnar, siem við heyrðum til Fær- eýja frá fslandi. Einu sinni var t. d. fullyrt, að Vestmannaeyj ar væru í rústum eftir loftárás og í annað sinn var fullyrt, að Reykjavík hefði orðið fvrir gífurlegri og eyðileggjandi loftárá^. Færeyingar eiga við ýmsa lerfiðleika að striða. Atvinnu- leysi er mikið á eyjunum. Þai er lítið sem ekkert um “Breta vinnu” ei.ns og hér. Ekkert hefir fiskast að ráði við Færleyjar i haust.. Kjöt er af is'kornum skamti, en þó eru mjólkurvandræðin tilfinnanleg- ust. Við mjólkursölubúðina í Þórshöfn stóð fólk í biðröð eftir að ná í mjólkurdreitil. Var að- sóknin að injólkurbúðinni ekki ósvipuð því, sem crbér við kvik- myndahúsin. Færeyingar hafa nóg af kartöflum og svo eru það marsvinin, eða grindin, siem er þeim hin mesta búbót, svo sem oft fyr. Tundurduflareki er mikill við eyjarnar og stónhættulegur, enda 'hefir oft orðið tjón af völdum tundurdufla, bæði á sjó og svo við það að duflin hafa sprungið í flæðarmáli og valdið skemd- um á húsum og imannvirkjum. En til allrar hamingju hefir einnig verið lán með Færeying- um, í þessu óláni. — T. d. var það einu sinni um fótaferðatima, að tvö tundurdufl voru komin inn á höfn í Þórshöfn og börðust þar i flæðarmálinu. Héfði vafa- laust orðið mikið tjón, ef þau hefðu sprungið, en sem betur fór tókst að eyðileggja duflin áður en þau sprungu, 40 skip hafa farist. Einna verst hafa Færeyingar orðið úti í skipatjóni. — Þeir hafa mist um 40 iskip. Sum hafa ifarist vegna hernaðaraðgerða, önnur farist á tundurdufluin, sum rekið á land, eða sokkið i ofviðrum og þar fram eftir göt- unum. Má ölluin vera ljóst hverl gifurlegt tjón þetta er fyrir Fær- eyinga. Allmikið fá Eyjaskeggjar af vörum frá Englandi. Það er þvi ekki hægt að segja, að þar ríki beinn skortur, en um úrval í mat er ekki að ræða. Fiiskkaup Fær- evinga hér við land hafa gengið nokkuð stopult. — Eitt skip, sem kom úr frsksöluferð daginn áður en eg fór frá Færeyjum hafði verið 13 vikur í þessari einu ferð. Söinu sögu er að segja um annað Skip, er nýlega var komið úr 'fisksöluferð. Að lokum segir Lárus Ólafs- son: —Það verður ekki sagt annað en að Færeyingar eigi við mikla og þunga örðugleika að striða, en þeir bera örðugleikana með karlmensku. —(Mbl. 12. febr). t

x

Lögberg

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.