Lögberg - 18.06.1942, Blaðsíða 1

Lögberg - 18.06.1942, Blaðsíða 1
PHONES 86 311 Seven Lines nVW' »S2 Cot- * Aí* For Beller Dry Cleaning and Laundry iot PHONES 86 311 Seven Lines Cot* and Satisfaclion i5. ARGANGUR LÖGBERG, FIMTUDAGINN 18. JÚNÍ, 1942 NÚMER 25 ÞRÍVELDA SÁTTMALI UNDIRSKRIFAÐUR Þau stórmerku tíðindi voru sanitímis gerð heyrinkunn á löstudgginn þann 12. þ. m. i Washington, London og Moskva, öð Bandaríkjamenn, Bretar og Hússar, hefði þá nýverið skrifað l|ndir órjúfandi vináttusáttmála, það markmið hefði fyrst og Iremst, að binda sigursælan enda á núverandi heimsstyrjöld, og vinna að því loknu i sameiningu, að skipulagningu varanlegs frið- ar, sem stofnað skvldi til á breiðum bræðralagsgrundvelli. Svo leynt var farið með undir- búning þessa nýja sáttmála, að ekki var vitað fyr en eftir samn- ingu hans og staðfesting, að ulanrikisráðherra Rússa, Moio- tov, liafði bæði heimsótt London og VVashington í þessum erind- um. Sáttmálágerð þessi hin nýja, hefir vakið fögnuð mikinn i stjórnarsetrum sameinuðu þjóð- anna. Atök um herskylduna Kappsamlegar umræður standa nú yfir 1 sambandsþinginu um það, hvort nauðsyn sé á her- skyldu nú þegar, eða hvort sjálf- hoðaaðferðin sé fullnægjandi. Af hálfu ráðuneytisins hafa tal- að þeir King forsætisráðberra, og Gardiner landbúnaðarráð- gjafi; eru þeir báðir þeirrar skoðunar, að herskyldu ineð það fýrir auguni, að senda nýjan liðssafnað austur um haf, sé ekki þörf, sem stendur, og eng- an veginn vist, að hennar verði nokkru sinni þörf, þó vitað sé að nauðsynlegt sé að fá liðssafn- aðarlögunum breytt; meðal ann- ars til þess, að geia komið til fulltingis við nágrannaþjóðina sUnnan landamæranna. Mr. Hanson, foringi íhalds- Uokksins, krefst skilyrðislausr- ax herskyldu nú þegar, en Mr. Coldwell, leiðtogi C.C.F. heimtar það, að öll auðæfi þjóðarinnar verði herskylduð samtímis mann- afla þjóðarinnar. Fjórða atrennan á Port Darwin Á þriðjudaginn gerðu Japanir hina fjórðu loftárás sína á Port llarwin, og höfðu í árás þessari yfir þrjátíu sprengjuflugvélar; svöruðu Ástralíumenn eldkveðj- um þessum ineð loftvarnabyss- um sinum, og urðu úrslit þau að tíu árásarvélar Japana voru skotnar niður án þess að verj- endur hafnarvirkisins mistu eitt einasta loftfar; árás Japana or- sakaði lítið tjón. Mrs. Jessie MacLennan látin Síðastliðinn mánudag lézt að heimili sínu, 247 Ruby Street hér í borginni, Mrs. Jessie Mae- Lennan, freklega 64 ára að aldri; hún hafði legið rúmföst í fimm vikna tima. Mrs. MacLennan kom til Win- nipeg frá London árið 1920, og leið eigi á löngu að hún tæki að gefa sig hér að opinberum mál- uni; hún átti sæti í skólaráði Winnipegborgar i seytján ár, og var fyrsta konan, er hlotnaðist sú sæmd, að verða skólaráðsfor- seti. Mrs. MacLennan var gáf- uð kona og víðsýn, er jafnan har fyrir brjósti velfarnan þeirra, er höllum fæti stóðu í lífsbarátt- Unni; hún naut hvarvetna trausts þar sem leið hennar lá, og steig mörg hljóðlát en giftudrjúg skref i sanna umbótaátt. Allan þann langa tima, sem Átrs. MacLennan sat í skólaráði, fór hún með umboð 2. kjör- öeildar. Uppþot í Hamborg vegna vistaskorts Um siðustu helgi varð all- alvarlegt uppþot i Hamburg vegna vistaskorts, eða heinlínis hungurs; ,að þessu kvað svo ramt, að Svartahöndin, en slíkt er nú viðnotað nafn á leynilög- reglu Hitlers, var kvödd á vett- vang í þúsundatali til þess að skakka leikinn; i viðureign þessari, létu sjö leynilögreglu- menn lífið, auk þess sem all- margir úr hópi borgara voru ýmist skotnir til dauðs eða særð- ir. Samkvæmt nýjustu fregn- um, bafa tuttugu og fimm þýzk- ir horgarar verið teknir af lífi er sakaðir voru um, að hafa verið viðriðnir upþþot þetta, en marg- ir settir í fangelsi til yfirheyrslu. Frá íslandi Kauplagsnefnd og Hagstofan hafa nú reiknað út vísitöluna fyrir febrúarmánuð, og er hún óbreytt frá því, í janúar, eða 183. — Þetta er í fyrsta skifti um all-langt skeið, sem vísi- talan ihefir staðið í stað. Venjan hefir verið, að visitalan hefii hækkað jafnt og þétt hvern mán- uð, og hafa stökkin oft verið stór. — Eru það aðgerðir ríkis- stjórnarinnar i dýrtíðarmálun- um, sem hafa haft þessar verk- anir á vísitöluna. — (Mbl. 21. febrúar). • Merkjasala Rauða krossins á öskudaginn var meiri en dæmi eru til áður hér í bænum. Komu inn um 16,000 krónur fyrir merki þenna dag. Merkjasala fór einnig fram úti á landi, en fréttir hafa ekki borist um, hvernig söfnunin hef- ir gengið þar. Yfirmaður Rauða kross Banda- ríkjanna hér á landi, Mr. Mac- Donald, færði félaginu að gjöf álitlega peningaupphæð frá Rauða krossi Bandaríkjanna. — (Mbl. 2. febr.). Húsið Nr. 102 við Hafnarstræti á Akureyri brann á föstudags- morguninn og er talið ónýtt. Eldsins varð vart kl. rúmlega 8 um morguninn. Læsti hann sig á augabragði um alt húsið, sem er timbunhús, bygt nokkru eftir aldamótin, og brann alt innan úr því á tæpum tveimur timum, en þá hafði tekist að slökkva eldinn Slökkviliðið á Akureyri og brunalið setuliðsins unnu í sameiningu að þvi að ráða niðurlögum eldsins og tókst það áður en útveggir hússins brunnu það mikið, að húsið hryndi. Veður var kyrt, svo að létt reyndist að koma i veg fyrii frekari útbreiiðslu eldsins, en UMBOÐSMENN VESTUR-lSLENDINGA í framkvæmdarítjórn Eimskipafélags Islands Ásmundur P. Jóhannsson, byggingameistari Hr. Ásmundur P. Jóhannsson byggingameistari, hefir átt sæti í framkvæmdarnefnd Eim- skipaféliagsins í 21 ár, og á ný- afstöðnum ársfundi i Reykja- vík verið endurkosinn til tveggja ára; hann hefir oft farið til íslands á aðalfundi félagsins. mikið er af gömlum timhurhús- um þarna rétt við, svo sem Hótel Gullfoss og Hótel Akureyri, á- samt ýmsum smærri húsum. Húsið, sem brann, var eign Jóns Stefánssonar fyrv. ritstjóra á Akureyri og var vátrygt fyrir 100 þús. krónum. Brezka setuliðið hafði húsið á leigu frá því i júní sumarið 1940 og voru engir aðrir í húsinu en setuliðsmenn. Upptök eldsins voru ókunn siðast er blaðið frétti.— (Timinn 17. marz). • Aðalfundur Þjóðræknisfélags fslendinga var haldinn i Kaup- þingssalnum miðvikudaginn 4. inarz. Bræðurnir Björn og Hjálmar O. Björnsson komu á íundinn og fluttu kveðjur frá löndunum vestra. Formaður fé- lagsis, Ájrni G. Eylands, gaf skýrslu um störf félagsins á ár- inu. Meðal annars hafði félagið gengist ifyrir, að dr. Brandson i Winnipeg væri boðið hingað heim síðstliðið sumar, en hann hafði ekki getað tekið boðinu að þessu sinni. Þá hafði félaginu *áskotnast kvikmyndin “Island á sléttunum,” sem er stutt lýsing á lífi islendinga í Canada. Mynd þessi var sýnd á fundinum. Tímarit Þjóðræknisfélagsins verður árbók félagsins framvegis og fá skuldlausir félagsmenn það innifálið í ársgjaldinu. Mikill áhugi kom fram á fundinum um aukið samband rið fslend- inga i Vesturheimi og var sérstök áherzla lögð á nauðsyn þess, að útbreiða vesturheimsblöðin Lög- berg og Heimskringlu hér heima. f stjórn voru kosnir: Árni G. Eylands, Valtýr Stefánsson og Ófeigurs J. Ófeigsson. — (Tíminn 10. marz). • Félag Snæl'ellinga i Reykjavík hefir ýms nýmæli á prjónunum. M. a. er það eitt af verkefnum þeim, sem félagið beitir sér fyrir að rituð verði “Héraðssaga Snæ- fellinga.” Er þegar hafinn und-, irbúningur að þessu verki. Þá er félagið að safna ýmsum gögn- um með það fyrir augum að gefa út bók með stuttum æfi- ágripum og myndum af sem flestum Snæfellingum. Félagið telur mjög mikilsvert að jarðir heima í héraðinu lendi ekki i brasski og niðurníðslu og hygst að koma í veg fyrir það, að svo Árni G. Eggertson, K.C. Hr. Árni G. Eggertson, K.C., hefir á ársfundi Eimskipafé- lagsins i Reykjaviik, verið kjör- inn til eins árs í framkvæmd- arstjórninia í stað föður síns. Hann tekst einnig á hendur umboð fyrir félagið vestan hafs. Þrjú hundruð brezkar orustuflugvélar veitast að Ruhrhéruðunum Þó veður væri engan veginn hagstætt, veittust yfir þrjúhundr- uð bezkar orustuflugvélar að Ruhrhéruðunum á aðfaranótt miðvikudagsins, við þó nokkr- um árangri; skeytum þéssum var einkum beint að hinurn miklu Krupps vopnaverksmiðj- um; enn er eigi nákvæmlega vit- að hve víðtækt tjón hlauzt af þessari sprengjuárásarför, þó sjá mætti um langan veg elda all- mikla. Bretar mistu átta loft- för í þessum leiðangri. Skipalestir greiða háan skatt Tvær brezkar Skipalestir hafa, þrátt fyrir þrálátar árásir af hálfu öxulríkjanna, náð að lok- um til Malta og Tobruk. ftalska útvarpið staðhæfði á mánudag- inn, að þýzkar og ítalskar sprengjuflugvélar hefði sökt því nær tuttugu skipum úr þessum tveim skipalestum, þar á ineðal einu beitiskipi og þremur tundur- spillum; þessum staðhæfingum hafa hernaðarvöldin í London mótmælt, þó þau nú á hinn bóg- inn viðurkenni, að leiðangur þessi hafi orðið Bretum ærið kostnaðarsamur. ítalir töpuðu að minsta kosti einu beitiskipi, og freklega tuttugu árásarflug vélum i viðureign þessari í Mið- jarðarhafinu. Frá austurvígstöðum Svo að segja á allri hinni löngu viglínu Rússlands, hefir barist verið af kappi miklu undanfarna sólarhringa; einkum hafa þó vigaferlin náð hámarki í ná- munda við Kharkov og Sebasto- pol; hafa árásir Þjóðverja á þessum vígstöðvum verið hinar grimmilegustu, og orsakað gif- urlegt mannfall á báðar hliðar. Fregnir frá Moskva og Berlín um viðhorí á þessum vettvangi stríðssóknarinnar, hafa verið næsta ósamhljóða og erfitt á þeim að byggja, þó nokkurn vegin þyki sýnt, að Þjóðverjum hafi unnist eitthvað á i árásun- um á Sebastopol; er mælt, að Þjóðverjar hafi nú i grend við hafnarborg þessa stórbyssur, er svipi til Big Bertha, er þeir skutu með á París i fyrri heimsstyrj- öldinni. Utvarpsmessa 28. júní íslenzkri guðsþjónustu verð- ur úivarpað frá Fyrstu lút- ersku kirkju sunnudaginn 28. júní frá kl. 11—12.15. Séra Guitormur Guttormsson flytur Séra Guttormur Guttormsson prédikun er hann nefnir "Kristsmyndin." Séra E. H. Fáfnis syngur einsöng. Eldri söngflokkur Fyrsta lúterska safnaðar aðstoðar við sönginn. Horfurnar í Libyu Naumast verður réttilega sagt, að horfurnar i Libyu sé glæsileg- ir eins og sakir standa; sveitir öxulrikjanna sækja að Tobruk úr þremur áttum, og eru á ein- um stað, að minsta kosti, sagðar að vera einungis tíu mílur frá þessari mikilvægu virkisborg. Bretar hafa ilátið undan síga á ýmsum stöðum, en nú búið um sig rambyggilega við nýja víg- línu; steikjandi hitar á eyðimörk Libyu, ásamt snörpum og þrá- látuin sandbyljum, gera hernað- araðiljum næsta örðugt fyrir um sókn og vörn; og frá Berlín var símað á þriðjudaginn, að liðs- sveitir öxulríkjanna á stöðvum þessum mvndi nafa hægt um sig fyrst um sinn, vegna hins af- skaplega hita. Fáni og merki ríkisstjórans í nýútkomnum Stjórnartíðind- um eru birtar inyndir af fána og merki rikisstjóra íslands. Um gerð fánans segir svo i ríkisstjóraúrskurði 9. des.: “Fáni ríkisstjóra íslands skal vera hinn íslenzki tjúgufáni, en á hann miðjan sé markað stórt, gullið R í hvítum ferstrendum reit.” En um merki ríkisstjóra segir svo: “Merki ríkisstjóra íslandg skal vera skjöldur, sem á hvilir stórt, gullið R, en á skjöldinn mark- aður fáni íslands. Skjöldurinn hefir sama útlit og lögun og skjöldurinn i skjaldarmerki ís- lands.” — (Morgunbl. 20. febr.). VARAR VIÐ FALLI ÁSTRALÍU Forsætisráðh. Ástralíu, John Curtin, varaði þjóð sína við því á þriðjudaginn i útvarpsræðu, að Ástralía gæti fallið nema því aðeins, að hvert einasta manns- harn vekti sí og æ á verði. miklu leyti, sem við slíkt verð- ur ráðið. Loks ha.fa félagsmenri mjög mikinn áhuga fyrir auk- inni skógra'kt heima i héraðinu. Hefir félagið farið fram á, að fá Ihiluta af Búðahrauni til umráða í því skyni að hafa þar nokkurs- konar skógræktarstöð, en þar er mjög gróðursælt, svo sem kunn- ugt er. —(Tíminn 10. inarz). Lífsgátan (Tileinkað G. E. Eyford) Hér getur ekkert staðið við í stað, því straumar tímans hreyfa sérhvað það, sem er og var og altaf verða mun og ekkert mark er til að stefna að. En lífsins straumur, líkt og jökul á, sem líður út í fimbul-víðan sjá, sér velur braut, sem engin tímatöf né takmörk geta hindrað — stór eða smá. Ein lítil eind, sem augað greint ei fær, er orðið tré, sem hátt mót sólu grær. En takmörk binda það við stund og stað, nú stendur visnað, líf hvar bjó í gær. En fræ í moldu fyllist nýjum þrótt, og finnur líf, þó köld sé dauðans nótt, þar endurfæðist — en í nýrri mynd hið aldna tré, sem nú er orðið frjótt. Ein lítil eind — er byggir smátt og smátt í smiðju lífsins — eilífleikans mátt vort auga merkir — ótal sólna fjöld þar efna og smíða lífsins tengiþátt. En hvaðan kom svo þetta alt sem er? Það enginn veit, né heldur hvert það fer. Vort auga starir — alt og ekkert sér, og enginn skilur hvað er — þar og hér. Það lífsins afl, sem byggir heilan heim, ja, hver má skilja í dularöflum þeim! Það éitt er víst, að áfram rennur tíð, en ei til baka — fram um lífsins geim. Ó, kæra jörð! Vor ást er öll til þín. Vér erum hér á meðan sólin skín. Þó voru lífi séu takmörk sett, vér sækjum áfram — þar til æfin dvín. Hér getur ekkert staðið við í stað, því straumur tímans ræður einn um það. En saga heimsins setur á oss mark, er sýnir fram — þó neinu stefnt sé að. Og þó vor örlög ættu að vera jöfn — og ýmsir beri stór og voldug nöfn, þá fer oft svo, að sérþóttans í raun vér siglum hátt, en náum hvergi höfn. S. B. Benediclsson.

x

Lögberg

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.