Lögberg - 18.06.1942, Blaðsíða 7

Lögberg - 18.06.1942, Blaðsíða 7
LÖGBERG, FIMTUDAGINN 18. JÚNÍ. 1942 7 Bókaútgáfa Menningars j óðs og Þjóðvina- félagsins Eftir Magnús Finnbogason. I. Alt frá öndverðu hafa fslend- ingar verið bókmenta'þjóð flest- um öðrum þjóðum framar. I’eir hafa iðkað og dáð list orðsins bæði í lausu og bundnu máli. Á dögum þjóðveldisins unnu fs- lendingar í skjóli frelsis og efna- legrar hagsældar bókmentaafrek svo ágæt, að endast munu þeim til vegs og hróðurs, meðan nokk- ur skilur eða mælir íslenzka tungu. íslendingar í fornöld gengu oft á fund konunga og annara stórhöfðingja, fluttu þeim kvæði eða sögðu sögur við hirðir þeirra, rituðu jafnvel æfisögur suinra þeirra, — og þágu fé og metorð að launum. En önnur og dýpri rök en girnd til fjár og metorða liggj a vissulega til þess, að bókmentir fslendinga á þjóðveldistímannm ber hátt yfir bókmentir annara vastrænna þjóða á miðöldum: Listgáfa og bókmentahneigð hef- ir frá uiiphafi verið snar þáttur ’ eðlisfari fslendinga og þeiin í Wóð lK>rin. Annars hefði alt and- legt lff dáið smám saman út með íslendingum, eftir því sem fjötr- ar ánauðar, harðinda og örbir’gð- ar færðust fastar um J)á, — ann- ars væri saga hinna mörgu og dimmu hnignunaralda ekki vörð- uð nöfnum, sem Ijómi stendur af enn i dag, svo sem Eysteini Ásgrínissyni, Jóni Arasyni, Hall- grími Péturssyni og Jóni Vidalín. Á hnignunartímabilinu leituðu fslendingar sér huggunar og hug- svölunar í Ijóðum og söguin, í Þeim fundu þeir J)á fegurð og þann glæsileik, sem þeir þráðu, en veruleikinn gat ekki veitt þeim. En auk þess sem bókmentir fs- iendinga og bókinentaiðkanir hafa veitt þeim þrek og rauna- hót, eiga þær ef til vill drýgri þátt í því en margan grunar, að fslendingar eru nú frjáls inenn- 'ngarþjóð ineð sérstakri menn- ingu og tungu. Hér er ekki stað- ur né rúm til að færa að þessu ‘ull rök, en nærri liggur að ætla, að tunga íslendinga hefði ekki staðist eldraun siðskiftanna, hefði hún ekki verið þaulræktað hókmenta- og menningarmál, tamin við torvelda bragarháttu °g glæsilega frásagnarlist, þegar öldurót siðskiftanna skall yfir þjóðina. Og hefði tungan týnst, hvað hefði J)á orðið uin menn- ingu fslendinga og önnur þjóð- ,eg verðmæti? — Þess er varlá að vænta, að barátta Jóns Sig- urðssonar og annara góðra fs- lendinga fyrir frelsi þjóðarinn- ar hefði borið þann árangur, sein raun ber vitni um, ef hann hefði ekki haft grundvöll sérstakrar tungu, þjóðernis og menningar að standa á í baráttunni. Og hvers ættu íslendingar að vænta að lokinni styrjöld Jæirri, er nú geisar, ef fsland hefði verið dönsk hjálenda, er það var her- uuniið, bygt fámennri þjóð, sem glatað hefði tungu sinni og erfðamenningu fyrir 400 árum? II. Alt fram um 1800 varðveittust þjóðlegar ibókmentir fslendinga °g hárust manna á milli að u^estu leyti í handritum. Menn skrifuðu upp bæði nýtt og gam- alt af þrotlausri elju og alúð, og •ullnægðu inenn þannig furðu 'el lestrarþörf sinni og fróðleiks- 'lýsn, enda var ifærra, sein glapti menn — og dreifði kröftuin þeirra en nú og fjölmenni á tlestuin heimilum. Prentverk húfst að Vfsu hér á landi skömmu lyrir siðskifti, en prentsmiðjan Var i höndum kirkjunnar og þvi Htið prentað annað en guðsorða- bækur fram undir lok 18. aldar. Á 17. öld tóku Danir og Svíar að safna íslenzkum handritum, og á þeirri öld og hinni næstu var mikill fjöldi hinna beztu hand- rita fluttur úr landi. Og upp frá því verður æ minna um hand- rit i landinu, og eru þau nú öll komin í söfn erlendis eða hér- lendis eða þá glötuð. Fyrsta viðleitnin til að bæta þjóðinni missi handritanna kom fram já frömuðum upplýsingar- stefnunnar undir lok 18. aldar, er þeir hófu útgáfu tímarita, nokkurra fornrita og annara bókmenta. Á 19. öldinni blómg- ast jafnt og þétt bókaútgáfa í landinu og hefir vaxið stöðugt það, sem af er Jæssari öld. Lengst af hefir bókaútgáfa í landinu að mestu verið bundin við góð og gagnleg rit og verði Jieirra oftast verið stilt mjög í hóf. Og enn í dag starfa bók- mentafélög og önnur útgáfu- fyrirtæki, sem unnið hafa og eiga enn eftir að vinna mikið og þjóðnýtt starf með útgáfu heim- ildarrita, íræðirita, tímarita og bókmenta frá fyrri og síðari tímum — og gefa þau mönnum kost á að eignast þessi rit við sanngjörnu verði. En því miður geta þessi félög af ýmsum ástæð- um ekki fullnægt þörfum þjóð- arinnar nema að mjög litlu leyti. En athugum nú, hvernig út- gáfustarfsemi í landinu er toátt- að að öðru leyti hin síðari ár. Ekki vantar það, að nóg sé gefið lit og varið sé til þess ógrynnum verðmæta, þ\á að fjöldi einstak- linga og útgáfufyrirtækja fæst við útgáfustarfsemi. Surnt af því, sem út er geíið, er gott og nýtilegt, t. d. nútíðar- bókmentir og fleira, en flest af því er miklu dýrara en svo. að alþýða manna geti eignast liað, og ber einkum tvent til þess: 1) að þjóðin er mannfá og óvissa um sölu á frjálsum markaði, 2) að útgáfustarfsemin er yfir- leitt rekin í gróðaskyni. Hins gætir og injiig, einkum á allra síðustu árum, að litt sé vandað til vals þeirra rita, sem út eru gefin. ómerkilegar er- lendar toækur, sem eiga ekkert rrindi til íslenzkra lesenda, og eru oft illa þýddar, — og stund um jafnvel sorprit, innlend og erlend, sem miðuð eru við smekk þroskalítilla og fávdsra lesenda, koma í hrönnum á toókamarkað— inn á hverju ári, einkum fyrir jólin. Síðan eru þessar bækur auglýstar óspart og gyltar fyrir mönnum með gegndarlausu skrumi. Séð er um að setja verð þessara bóka svo hátt, að kaupendur hyggi, að um fágæta kostgripi sé að ræða. Oft er máli og frágangi þannig háttað á þessum ritum, að ekki hallast á um efnið og menningargildið. Af því sem nú hefir verið sagt, er ljóst, að alþjóð manna hér á landi á nijög ógreiðan aðgang að góðum og nýtilegum bókment um. Má íslenzka þjóðin að minsta kosti illa við þvi, að hennar eigin bókmentir glatist henni að miklu leyti, svo drjúg- an þátt sem þær hafa átt í menn- ingu hennar og manndómi og munu eiga í framtíðinni, ef hún fær að njóta þeirra. III. Á öndverðu ári 1940 gengust stórhuga menn og framsýnir fyrir því, að Menningarsjóður og ÞjóíWinafélagið hófu í samein- ingu\ stórfelda og fjölbreytta bókaútgáfu á skipulögðum grundvelli. — Að vísu höfðu all- margar bækur verið gefnar út áður á kostnað Menningarsjóðs, en lítt hafði verið gætt að breiða þær bækur út meðal almennings — Tilgangurinn með útgáfustarf- seini þessari var sá að bæta úr því ófremdarástandi, er rikt hafði i bókaútgáfumálum J>jóð- arinnar. , Jafnskjótt og J>að varð að ráði að hefja útgáfuna, var þjóðinni til kvnt J>að og mönnum gefinn kostur á að gerast áskrifendur að ritum hennar gegn 10 króna árstillagi. Þjóðin tók þessu boði tveim höndum, og hafði íyrir- tækið fengið yfir 12000 áskrif- endur í Iok ársins. Ekkert út- gáfufyrirtæki í landinu hefir hlotið svona skjótar vinsældir, því að Jægar á fyrsta starfsári hafði það fengið meira en tvö- falt fleiri lesendur að ritum sin- um en nok'kru öðru útgáfufyrir- tæki hefir tskist að afla sér með margra ára starfi. Undirtektir þjóðarinnar sýna glögglega, að þörfin fyrir þessa starfsemi var næsta brýn, og þær hugsjónir, er horfa til heilla, eiga vísan stuðning hennar. Þjóðin hefir fylkt sér um útgáfuna og skap- að henni þannig frábaira aðstöðu til að vinna mikið hlutverk i þágu menningar og menta. Verður nú stuttlega gerð grein fyrir ritum Jjeim, sem útgáfan hefir látið frá sér fara þau tvö ár, er hún hefir starfað. Árleg rit úgtáfunnar eru And- vari, timrit Þjóðvinafélagsins, og Almanak Þjóðvinafélagsins. — Andvari er rúmar 6 arkir að stærð hvort ár og flytur ágætar greinar, fróðlegar og fjöl- breyttar að el'ni. — Almanak- ið er um 7V2 örk að stærð hvort ár, er læsilegt og gott rit og flyt- ur ritgerðir og ýmis konar fróð- leik. Önnur rit útgáfunnar árið 1940 eru þessi: / Thomas E. Lawrence: Upp- reisnin á eyðimörkinni, fyrri hlutinn, 11 arkir að stærð. (Sjá bækur ársins 1941). Knut Hamsun': Sultur. Bókin er tæpar 13 arkir að stærð og er eitt af inerkari ritum Ham- suns, sem er alkunnur höfundur hér á landi. Hún er þýdd af Jóni Sigurðssyni frá Kaldaðar- nesi. Virðist J)ýðingin víðast vera góð og suinstaðar ágæt. Aldous Huxley: Markmið og leiðir. Bókin er tæpar 17 arkir að stærð, þýdd af Guðmundi Finntoogasyni. Hún fjallar um J«að, hvernig aga þurfi stjórn-. skipun, fjármálum og uppeldis- málum, svo að horfi til mests þroska og velfarnaðar. Því mið- ur er bókin fremur þur og þung- skilin almennum lesendum. Lytton Strachey: Viktoría drotning. Bókin er tæpar 17 arkir, þýdd af Kristjáni Alberts- syni. Hún gefur allgóða hug- mynd um uppeldi og starfsæfi Viktoríu drotningar og dregur upp svipmyndir úr lífi ensku há- stéttanna á dögum hennar. En því miður er bókin ekki vel þýdd og virðist auk þess eiga heldur litið erindi til hinna mörgu lesenda, sem búa við svo mikipn bókaskort, að þeir þekkja naumast til helztu íslenzkra rit- höfunda og skálda. Jóhann Sæinundsson: Manns- líkaminn. Bókin er 15 arkir að stærð, glögt og gott rit í sinni grein og prýdd fjölda mynda. Rit útgáfunnar 1941, auk ár- legu ritanna, eru þsesi: Jónas Hallgrímsson: Ljóð og sögur. Bókin er 10 arkir, gefin út af Jónasi Jónssyni. Hún hefst með smekklegum formála eftir útgefandann. Annars eru í henni mörg hin beztu ljóð skáldsins og nokkrar smásögur og æfintýri. Prófarkalestur þess- arar bókar hefir Björn Guðfinns- son lektor annast, enda er hann mjög vandaður. Alþýða manna mun taka Jæssari bók fegins hendi, því að fyrir hana og aðr- ar slikar bækur hefir hún brýna þörf. En sjálfsagt mundu marg- ir óska, að hún hefði verið stærri, jafnvel þótt bækur útgáf- unnar hefðu orðið einni færri fyrir það. Thomas E. Lawrence: l 'pp- reisnin i eyðimörkinni, síðari hlutinn, rúniar 14 arkir. Bókin er öll þýdd af Boga ólafssyni, á gott og viðfeldið mál. Hún er fremur skeintileg — og gagnleg þeim, sem kynnast vilja Austur- landamálefnum. J. Rummey: Um mannfélags- fræði. Bókin er tæpar 8 arkir. Þvi miður er hún ærið J>ur og tyxfin, og er því hætt við, að hún komi almenningi að litlum not- um. Leo Tolstoi: Anna Karenina, fyrra bindi. Bókin er rúmar 10 arkir að stærð, þýdd af Magnúsi Ásgeirssyni. Hún er eitt af fremstu verkum höfundar, sem hlotið hefir heimsfrægð, auk þess er hún þýdd af mikilli smekkvísi. Munu því lesendur taka henni vel. Skúli Þórðarson: Almenn stjórnmálasaga síðustu tuttugu ára, fyrra bindi. Bókin er tæpar 10 arkir að stærð. Hún hefst með stuttu yfirliti yfir upptök og þróun stórveldastefnunnar, sem á raptur sinar að rekja til iðnbyltingarinnar, er gekk yfir Norðurálfu á siðari hluta 18. aldar og öndverðri 19. öld. Sýnt er fram á, hvernig þjóðfélags- leg vandamál, sem iðnbyltingin hafði í för ineð sér, einkum jafnvægisröskun framleiðslu og kaupgetu, valda harðvitugri sam- kepni um markaði og auðlindir heimsins og eiga drjúgan þátt í því að hrinda af stað stórvelda- styrjöldinni miklu 1914—1918. Annars er stjórnmálasagan eftir styrjöldina meginefni bókarinn- ar. f litilli bók eins og Jiessari verður að vísu að stikla á stærstu atriðunum, en eigi að siður er frásögnin skýr, skilmerkileg og lifandi. Gætir höfundur yfirleitt vel hinnar vísindalegu skyldu sagnfræðingsins að rekja orsakir stjórnmálaatburðanna til hinna félagslegu fyrirbæra og vanda- mála. Bækurnar eru prentaðar i ríkisprentsmiðjunni Gutenberg, flestar á góðan og fallegan pappir. Er prentvinna öll á bók- unum hin ágætasta, enda ber flest, sem kemur frá þeirri prent- smiðju, vitni um vandvirkni og smekkvísi. Það vekur athygli, hve vel pappírsrúinið er nýtt og mikið Iesmál á hverri síðu, mið- að við stærð brotsins. Bækurnr frá fyrra ári eru saintals um 85 arkir, en bækur J>essa ás um 71 örk. Þetta les- mál hafa áskrifendur fengið fvrir 10 krónur hvort ár. Til sainan burðar má geta J>ess, að algengt verð á 15—20 arka bók á Jiessu ári mun verða 15—30 krónur. Hið lága verð bókanna er vitan- lega fyrst og fremst því að þakka, að þjóðin fylkti sér þegar ií upphafi um útgáfuna, enda þótt Menningarsjóður eigi einnig yfir nokkru öðru fé að ráða en fpamlögum kaupenda og geti gripið til þess, ef framlög kaup- enda hrökkva ekki til. Áður en eg lýk máli minu þyk- ir mér skvlt að geta þess, að mjög margir lesendur — og' eg þar á meðal — eru ekki alls kostar ánægðir með val sumra þeirra bóka, sem útgáfan hefir látið frá sér fara fram að J>essu. fslenZkir lesendur æskja þess fyrst ok fremst að eignast islenzk skáldrit, islenzk fræðirit og öpn- ur rit þjóðlegs efnis. Hins vegar mundu menn sjálfsagt taka því vel, þótt nokkuð erlendra rita flyti með, ef þau væru í senn gagnleg og læsileg. Mér er fullljóst, að óskir 12000 —13000 iesenda geta aldrei orðið á einn veg og erfitt er að gera öllum til hæfis. En spá mín er sú, að vinsældir útgáfunnar inundu enn aukast, ef horfið væri að þvi ráði að færa lesend- um aðallega íslenzkt, þjóðlegt lestrarefni. Avik þess ber útgáf- unni skylda til að hlynna fyrst og fremst að þjóðlegri mentun íslendinga, gefa þeim færi á að kynnast því, sem toezt hefir verið hugsað og ritað á þeirra eigin tungu, og kynnast þeim stefnum, sem góðir menn berjast fyrir og til menningar horfa. íslenzkar bókmentir þurfa að ná til alþjóð- ar, en mega ekki halda áfram að vera dýr munaðarvara, sem efna- menn einir geta veitt sér. — Þarna blasir við hlutverk, sem Bókaútgáfa Menn.ingarsjóðs er sjálfkjörin til að leysa af hendi. Ef útgáfunni tekst það, mun sú hugsjón, sein hratt henni af stað, verða þjóðinni til menningar og þroska um ófyrirsjáanlega fram- tíð. Reykjavik 28. des. 1941. —(Mbl. 18. febr.). Fréttir frá Islandi úr Dalasýslu er blaðinu skrif- að 22. fyrra mánaðar: Tíð hefiv verið einmuna góð og hagstæð það sem af er þessum vetri. Snjór hefir ekki komið á lág- lendi, nema nokkra daga í einu. I góðviðriskaflanum, nú seinni hluta þorra, mátti orðið sjá grænan lit í túnum og jafnvel útsprungin grös á stöku stað. Klaki hefir svo að segja ekki komið i jörð hér um slóðir i vet- ur, enda mun það einsdæmi, að ha*gt sé að vinna vegavinnu hér á þorra, sem um hásumar væri, en það mun hafa verið gert eitt- hvað litilsháttar. Sauðfé hefir verið sérstaklega létt á fóðrunum í vetur, og eru þess dæmi nú, að engin hev hafa verið gefin sauð- fé, það sem af er vetrinum, heldur aðeins sildarmjöl eða annað kjarnfóður. -f Björn Halldórsson i Austur- görðum skrifar Tímanum: Heilsufar var yfirleitt gott síðast- liðið ár og tíðarfar með afbrigð- um gott, en einkum þó það sem af er þessum vetri. Muna elztu menn ekki jafn snjólausan vet- ur. Hefir Reykjaheiði verið bil- fær allan veturinn nálega óslitið. Aftur á móti hefir verið nokkuð veðrasamt á kiiflum, einkuin i janúar. Seint i J>eim mánuði gerði aftaka austanveður á ná- lega auða jörð. Var þá sand- fok af leirum og söndum Jökuls- ár og svo dimt sem stórhríð væri. Tún eyðilögðust að verulegu leyti á tveim jörðum og stórskemdust á öðrum tveim. Komu sand- skaflar á túnin á annan metra, þar sem þykkast var, aðeins hól- ar og hávaðar standa upp úi* sandinum. -f Búskapur Kvelduhverfinga og híbýlakostur hafa mi.klum fram- förum tekið í seinni tið. Á sið- ustu 12—-14 árunum fyrir stríð- ið voru reist steinsteypt íbúðar- hús, vönduð og hlý, á 25 jörð- um af 35 í hreppnum. Tún all- viða stækkuð um helming eða þ\á sem næst og girðingar lagð- ar sem skifta tugum kílómetra. Steinsteyptar hlöður og safnþrær eru á flestum bæjum. Sauðfénu, sem er aðalbústofn Kveldhverf- inga, hefir fjölgað mjög síðan um 1920. Á nokkrum bæjum befir tala }>ess tvöfaldast eða meir. Afurðir þess hafa og auk- ist fyrir bætta nieðferð fjárins. Á sama tíma hefir sjö einbýlis- jörðum verið skift og jafnmörg nýbýli reist. Þó heimilum hafi fjölgað, hefir fólkstala i hreppn- um ekki gert betur en að standa i stað. Vinnufólk er sárfátt og litið um kaupafólk. Heyvinnu- vélar eru notaðar á flestum bæj- um, nýræktuð tún eru véltæk og engjar vfirleitt. ♦ Nokkuð hefir á því borið í Kelduhverfi og nágrannasveitun- um, að ungt fólk, •einkum }>að, • sem burtu fer til náms, tapast sveitunum fyrir fult og alt. Þó hefðu Keldhverfingar ekki þurft að óttast þetta svo mjög, ef ekki hefði nýtt afl komið til, .er legst á sömu sveif, en það er hin þing- eyska mæðiveiki í sauðfé, sem svo er kölluð. Hún fór fyrir al- vöru að gera vart við sig í Keldu- hverfi síðastliðinn vetur og er nú orðin útbreidd um mestalla sveit- ina. Sýkin hefir þegar eytt meiri hlutanum 'af sauðfé nokkurra bænda, þar sem hún fyrst kom upp. í Kelduhverfi ieru ekki, fremur en í öðrum sveitum norð- ur þar, skilyrði fyrir aðrar at- vinnugeinir en sauðfjárræktinni, svo teljandi sé. Hér er þvi mik- ið alvörumál á ferðum. —(Tíminn 21. marz). Guðjón og Hannes, sem lengi höfðu verið svarnir óvinir, hitt- ust á förnum vegi. Þá réttir Guðjón Hannesi höndina og segir: — Nú skulum við takast í hendur og láta allar deilur vera gleymdar. Hannes: — Sjálfsagt. Eg óska þér alls þess, sem þú óskar mér, Guðjón : — Farðu nú bölvaður. Altaf ert þú jafnmiikið rótar- úrþvætti. —Tók hann inótlæti sínu eins og inaður? Já, já, hann lét það alt bitna á konunni sinni.

x

Lögberg

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.