Lögberg - 09.07.1942, Qupperneq 8
8
LÖGBERG. FIMTUDAGINN S. JÚLÍ. 1942
Ur borg og bygð
MATREIÐSLUBÓK
Kvenfélag Fyrsta lúterska
safnaðar í Winnipeg. Pantanir
sendist til: Mrs. E. W. Perry,
723 Warsaw Ave.; Mrs. E. S.
Feldsted, 525 Dominion Street.
Verð $1.00. Burðargjald 5c.
-f ♦ 4
MINNIST BETEL
í ERFÐASKRAM YÐAR
+
Næsti fundur stúkunnar
Skuldar verður haldinn á heim-
ili Mrs. G. Brandson, 471 Queen
Street, St. James, fimtudags-
kvöldið þann 9. þ. m.
-► -f -t-
Með Goðafossi komu ti'
New York í júní, eftirgreindir
farþegar:
Hinrik Björnsson ásamt frú
sinni, og séra Jóhann Gunnars-
son. Hinrik er sonur Sveins
Björnssonar ríkisstjóra, og verð-
ur hann ritari íslenzku sendi-
sveitarinnar í Washington.
-f -f 4-
Jóhann Björnsson, kunnur af
vísum og blaðaskrifum, lézt
þann 3. maí siðastliðinn, að
iheimijli Olivers sonar síns i
Markerville-bygðinni í Alberta;
hann var 85 ára að aldri. Minn-
ingargrein um þenna sérstæða
frumherja eftir séra Rúnólf
Marteinsson, birtist hér í blað-
inu við fyrstu hentugleika.
PRATT & EGGERTSON
Barristerst Solicitors, Etc
ARNI EGGERTSON, K.C., EL.B.
(Member Manitoba Bar)
R. J. PRATT, LL.B.
WYNTARD, SASK.
Canada
Mr. Kristinn Thorsteinsson
húsagerðarmeistari frá Seattle,
Wash., var staddur í borginni í
vikunni, sem leið, ásamt frú
sinni og tveimur börnum.
I
♦ ♦ 4*
Mr. Gísli Eiríksson frá Camp-
bell River, B.C., hefir dvalið hér
um slóðir í þriggja vikna tíma;
hann átti heima alllengi að Oak
Point, og skrapp þangað norður,
og til Lundar, í heimsókn til
ættingja og vina. Mr. Eiríksson
hélt heimleiðis á miðvikudaginn.
-f -f -f
Mr. Gilbert Johnson, sonur
Mrs. J. K. Johnson, 352 McGee
Street hér í borginni, lauk ný-
lega Bachelor of Science prófi í
Group Work Education við
George Williams Y.M.C.A. Col-
lege í Chicago. Mr. Johnson,
sem er hinn efnilegasti maður,
hefir þegar fengið álitlega stöðu
við Broadview Y.M.C.A. í
Toromto.
-f -f -f
Nýlega voru geTin saman í
hjónaband í St. Simon’s kirkj-
unni í Toronto, þau Miss Pauline
Johnston og Squadron Leader
Robert Edward Waller, sonur
Mr. og Mrs. Wallace Waller þar
í borginni. Brúðurin er dóttir
Mr. og Mrs. Peter Johnston frá
Vancouver; móðir hennar er ís-
lenzk, Jónína Jónsdóttir, ættuð
úr Reykjavík; voru foreldrar
hennar þau Jón Hannesson og
Elín Pálsdóttir.
Canon C. A. Moulton fram-
kvæmdi hjónavígsluathöfnina.
Framtíðarbeimili ungu hjónanna
verður í Ottawa. Móðir brúðar-
inna, Mrs. Johnston, var við-
stödd vigslu athöfnina, og kom
hingað til borgar að austan
seinnipart fyrri viku.
ISLENDINGADAGURINN
í SAMUEL HILL MEMORIAL PARK
Blaine, Washington
26. JÚLÍ, 1942
Forseti dagsins: MAGNÚS ELÍASSON
Söngstjóri: L. H. THORLAKSON
Framkvæmdarnefnd:
Magnús Elíasson, Andrew Danielson, A. E. Kristjánson,
H. S. Helgason, Jakob Vopnfjörð.
Söngnefnd:
H. S. Helgason, L. H. Thorlakson.
SKEMTISKRÁ:
Ó guð vors lands Söngflokkurinn
Ávarp forseta Magnús Elíasson
Einsöngur Ninna Stevens
Kvæði: Minni íslands Dr. Richard Beck
Islenzkir söngvar Söngflokkurinn
Kvæði ..........................Jónas Pálsson
Ávarp Hon. Belle Reeves
(for the State Parks Board)
Ávarp Hon. K. L. Maitland
(for the Province of British Columbia)
íslenzkir söngvar Söngflokkurinn
Kvæði ..................f.....Jakobína Johnson
Einsöngur ......................Ninna Stevens
Kvæði Páll Bjarnason
íslenzkir söngvar ............Söngflokkurinn
Aðalræða dagsins Hon. Thor Thors
íslenzkir söngvar .....m.......Söngflokkurinn
GOD SAVE THE KING MY COUTRY ’TIS OF THEE
ELDGAMLA ISAFOLD
Snyrtileg . . . Þœgileg . . . Afnotugóð
Qatonia
FÖT
'Tneö tvennum buxum
$29.50
Búin til úr ekta ullar
tweeds og fallegu worsteds.
Einhnept og tvíhnept drapc
snið. Fötin samanstánda af
treyju, vesti og tvennum
löngum buxum.
fíoijs’ Clothing Section, Fifth Floor, Hargrave.
ST. EATON C?,m,TEo
Kvenfélag Fyrsta lúterska
safnaðar heldur saumafund til
arðs fyrir Rauða krosinn í
fundarsal kirkjunnar, kl. 2 e.h.
í dag, fimtudaginn þann 9. þ.m.
-f -f -f
Hin árlega iðnaðarsýning Ár-
borgarbúa, fer fram í Árdalsskól-
anum á föstudaginn þann 10.
þ. m. Til skemtana verður
meðal annars ihlaup .fyrir börn,
sýnishorn af “Adult Education”
í Manitoba og kvikmyndir af
stríðssókninni; vafalaust verður
sýning þessi fjölsótt, eins og að
undanförnu.
-f -f -f
Gefin saman i hjónaband á
prests'heimilinu í Selkirk af
sóknarpresti, þann 27. júní:
Bruce Thompson, Selkirk, Man.
og Grace Arline Jónasson, sama
staðar. Brúðguminn er af ensk-
um ættum, en brúðurin er dóttir
Jacobs Klemenssonar Jónasson-
ar og konu hans Kristinar
Sigurdur, eru þau búsett norður
með Rauðará austanverðri; rek-
ur Jacob þar búskap í stórum
stíl ásamt sonum sínum. Heimili
ungu hjónanna verður í Selkirk.
-f -f -f
TÍMARIT ÞJÓÐRÆKNISFÉL.
Kaupið Tímarit Þjóðræknisfé-
lagsins á meðan það fæst alt
frá byrjun. Sumir árgangarnir
verða bráðum ófáanlegir.
23 árg. óbundnir $ 8.05
23 árg. í góðu, gyttu
bandi, 6 bindi, án
auglýsinga .......... 19.00
21 árg. i góðu, gyltu
bandi og tveir árg. ó-
bundnir, 7 bindi, aug-
lýsingarnar bundnar
með ................ 20.30
Póstgjald aukreitis.
Sendið pantanir ykkar sem fyrst
til
BJÖRNSSON'S BOOK STORE
702 Sargenl Ave., Winnipeg.
Messuboð
Fyrsta lúterska kirkja
Séra Valdirnar J. Eylands
prestur.
Guðsjþjónustur fara fram á
íslenzku kl. 7 á sunnudagskvöld-
um í júlí og ágúst.
Engar árdegismessur né
sunnudagaskóli fyr en með byrj-
un september.
-f -f -f
Messa í Churchbridge:
Þ. 12. júlí verður messað i
Konkordia-kirkju og barna-
spurningar til undírbúnings und-
ir fermingu og sunnudagaskóli
á eftir messu. S. S. C.
-f -f -f
Prestakall Norðuf Nýja íslands
Sunnudaginn 12. júlí:
Víðir, messa kl. 11 f. h.;
Hnausa, messa kl. 2 e. h.; River-
ton, ungmennafélags stofnfund-
ur kl. 8 e. h.
Til þess er mælst, að væntan-
leg fermingarbörn í Víðir og
Hnausa gefi sig fram sem fyrst.
B. A. Bjarnason.
-f -f -f
Sunnudaginn 12. júlí verða
messur sem fylgir í prestakalli
séra H. Sigmar:
Fjalla, kl. 11 f. h.; Hallson
kl. 2.30 og Vídalín kl. 8 að
kveldi. Allar þessar messur á
íslenzku. Allir boðnir og vel-
komnir.
-f -f -f
Guðsþjónustur í Vatnabygðum
Westside School, kl. 11 f. h.,
íslenzk messa.
Foam Lake kl. 2.30 e. h.,
ensk messa
Leslie kl. 8 e. h., ensk messa.
B. T. Sigurdson.
Hjón ein í Van Nuys í Kali-
forniíu, sem vildu selja hús sitt
og kaupa annað, lögðu inn tilboð
á afgreiðslu blaðs, þar sem birst
hafði freistandi auglýsing um
hús til sölu. Þau komust að því
skömmu síðar, að þau höfðu
svarað sinni eigin auglýsingu.
-f
f ortland fór alsgáður lög-
regluþjónn ofan í vasa drukkin.s
manns og dró upp höggorm.
Rock Lake
Summer School
Suðvestur Manitoba á marga
fagra staði. Einn af þeim er
dalurinn, sem Rock Lake er í.
Nokkru vestar í dalnum er
Pelican Lake, og við enda þess
hið fræga Ninette Sanatorium.
Að Norðanverðu við Jlock Lake,
ekki alveg við austurenda þess,
er Rock Lake Hotel. Þar er
sími og ágætur staður til nætur-
gistingar. Nokkur hundruð
faðma vestar með ströndinni er,
eftir vegi með fjörumáli eru búðir
þær, þar sem unga fólkið hefir
undanfarnar vikur, haft bæki-
stöðvar sínar. Hver hópur um
vikutdma í senn. Okkur íslenzk-
um ungmennum er það keppnis-
mál að vera þarna sem flest
vikuna frá 13.—21. júlí. Þessa
viku dvelja’þar um 90 stúlkur.
Vikuna síðustu voru þar um 115
drengir. Flestir koma með bil.
En eins og áður er auglýst fer
lest frá Winnipeg hvern mánu-
dag kl. 9.50 f. h. til Glenora, og
munum við sjá um að mæta
þeim, sem þannig koma og
flytja 'þá til sumarskólans. Kom-
ið vel útbúin, því sumarið hefir
verið seint á ferð. Aðrar leiðir
til þessa sumarstaðar eru lestir
til Crystal Gity eða Clearwater,
sem <þó eru lengra frá og svo
Baldur, sem er lengra norður.
Mölbornar brautir liggja alstað-
ar að þessum veiði- og sumar-
verustað ferðafólks. Sumarskól-
inn eins og að undanförnu vill
verða að gagni hinum ungu, um
lífsleiðsögn og kristileg mál.
Undir berum himni getum við
lært að skilja Guð, og lesa úr
lögum hans í náttúrunni ótal
margt oss til góðs. “Guð, allur
heimur eins í lágu og háu, er
opin bók um þig er fræðir mig.
Já, hvert eitt blað á blómi jarð-
ar smáu, er blað sem margl
er skrifað á um þig.”
Beztu menn íslenzku Synod
unnar verða þarna ungdóminum
til leiðbeiningar. Gestir og trú-
boðar munu, og sækja oss heim.
Þér, sem kunnið að leika á eitt-
hvert hljóðfæri svo sem fiðlu,
guitar, banjo, accordion, mouth
organ eða því um líkt komið
með það. Svo við getum sung-
ið við kvöldeldana, og skemt
hvort öðru. Á sunnudaginn
þann 19. verður “Open Camp”
og erum við þá sérstaklega
reiðubúin að veit ykkur viðtöku.
En minnist þess líka að þér eruð
velkomin hvern dag sem þér
eigið hægt með að koma. Sex
dollara kostar að vera allan tím-
ann. Innan skamms vonum vér
að eignast okkar eiginn sumar-
bústað útbúinn eftir beztu föng-
um, en þar til það verður virki-
leiki, mætumst vér hingað og
þangað, undir misjafnlega góð-
um aðstæðum, o>g höldum hreyí-
ingunni og hugsjóninni vakandi.
Mætumst sem flest við Rock
Lake í þetta sinn. Þið, sem
þurfið með Winnipeg-Glenora
lestinni að koma, gleymið ekki
að kalla upp í tíma Mrs. H. F.
Danielson. Wpg. sími: 38 528.
Það mun spara ykkur álitlega
upphæð. Við mætum ykkur í
Glenora.
Fyrir hönd Bandalags
lúterskra kvenna.
E. H. Fáfnis.
TIL I>ESS AÐ TRYGGJA
YÐUR SKJÓTA
AFGREIÐSLU
Skuluð þér ávalt kalla upp
SAROCNT
TAXI
PHONE
34 555 - 34 557
SARGENT and AGNES
TRIJMIP TA\I
ST. JAMES
Phone 61 111
OÁNARFREGN
Miðvikudaginn 17. júní dó
Mrs. María Thorlacius á heimili
sínu suður af Garðar, N.D., eftir
næsta langa sjúkdómslegu. Hún
fæddist á Eyrarlandi í Eyja-
firði 22. desember 1865. For-
eldrar hennar voru Sigfús Jóns-
son Bergmann og Thorunn Jóns-
dóttir. María fluttist með for-
eldrum sínum til Ameríku árið
1882, og þá beina leið til Garðar-
bygðar þar sem hún bjó ávalt
síðan.
Haustið 1884 (28. nóv.) gift-
ist hún Hallgrími Thorlacius, er
dó hér í bygð 8. maí árið 1931.
Þeim hjónum varð 9 barna auð-
ið. Lifa 5 af þeim í N. Dak., en
4 í Wynyard, Sask.
María sál. var góð kona. Hún
var kyrlát og hæg í fasi, vinur
vina sinna og mjög vel látin.
Hún var meðal annars auðkend
af trúmensku vif sín störf og
hógværðarandú. Hún var mjög
ræktarsöm við heimili sitt og
ástrik eiginkona og móðir. Naut
hún og mikils ástríkis af sinum
nánustu. í ýmsu félagsstarfi
átti hún líka góðan Iþátt, einkum
í safnaðar- og kvenfélagsstarf-
semi bygðarinnar.
Jarðarför hennar fór^ fram
sunnudaginn 21. júní frá heim-
ili hennar og Garðar-kirkju.
Mrs. W. K. Halldórson frá
Mountain söng sóló. Séra H.
Sigmar jarðsöng.
Munurinn á öreiga og miljóna-
mæringi er m. a. í þvi fólginn,
að sá fyrnefndi fjargviðrast yfir
/því, hvað hann eigi að eta næst,
en sá síðarnefndi yfir þvi, sem
hann át siðast.
SMÆLKI
Húseigandi ' við tilvonandi
leigjanda: Við erum ákaflega
rólegt fólk og okkur er illa við
hávaða. Eigið þér börn?
—Nei.
—Píanó, útvarp eða grammó-
fón?
—Nei.
—Leikið þér á nokkurt hljóð-
færi? Eigið þér hund, kött eða
páfagauk?
—Nei, en það ískrar ögn i
sjálfblekungnum minum, er eg
skrifa með honum.
4-
Kona nokkur i Salt Lake City
var að bisa við að koma stóru
útvarpstæki gegnum dyrnar á
íbúð sinni. Alt í einu lcom hún
auga á karlmann á ganginum og
bað hann að aðstoða sig. Konan
skýrði manninum frá frá, að
hún væri að koma útvarpstæk-
inu undan, vegna þess að hún
byggist við að þá og þegar myndi
lögtaksmaður koma til að gera
lögiak i| tækinu fyrir ógreiddum
skatti. Þá kom í ljós, að mað-
urinn, sem hún hafði beðið um
aðstoð, var enginn annar en
lögtaksmaðurinn. — (Lesbók).
■f
í Ameriku er sögð þessi saga:
—Maður nokkur fékk bréf frá
ættingjum sínum í Þýzkalandi,
sem var á þessa leið: “Kæri
frændi í Ameríku! Okkur líður
prýðilega. Enginn hefir liðið
neitt. Hitler leiðir þjóðina til
velmegunar. Hendrick frændi,
sem ekki var á söimu skoðun,
var jarðaður í gær.”
4-
“Hitler mundi beinlínis
fagna yfir hinu
velsældarlega
útliti yðar!”
"Já, þú ert forsjál . . . eða ertu? Eg hafði
sömu hugmynd áður en kreppan skall á, en þá
lærði eg lexíu!"
"Við hefðum verið drjúgum forsjálli, ef við
hefðum lagt minna af peningum okkar í bún-
inga okkar, en meira til útbúnaðar piltunum,
sem eru að verja okkur. Hvernig? Með því
að skuldbinda okkur til þess að fara sem flesls
á mis, til þess að þeir gæti haft allan nauðsyn-
legan stríðsútbúnað!"
"Þér viljið að þeir sigri, eða er ekki svo? Þá
er um að gera að kaupa vikulega Stríðssparn-
aðarskírieini. Með þessum hælti getið þér
veitt þeim aðstoð. Samtímis því að spara,
stuðlið þér að því, að verðlag hækki ekki von
úr viti, og hafið bygt um nokkurn öryggissjóð,
sem grípa má lil, er mest reynir á. Sönnum
forsjálni vora að fullu í verkunum!"
Kaupið Stríðssparnaðarskírteini hjá
bönkum, pósthusum, hjfsölum,
matv0.ru- og smásölubúðum.
National War Finance Committee
3-8