Lögberg - 16.07.1942, Blaðsíða 8
8
LÖGBERG. FIMTUDAGINN 16. JÚLÍ, 1942
Úr borg og bygð
MATREIÐSLUBÓK
Kvenfélag Fyrsta lúterska
safnaðar í Winnipeg. Pantanir
siendist til: Mrs. E. W. Perry,
723 Warsaw Ave.; Mrs. E. S.
Feldsted, 525 Dominion Street.
Verð $1.00. Burðargjald 5c.
-t- -f -f
Mr. E. K. Breiðfjörð er einn
þeirra, sem sæti eiga í söng-
nefnd fslendiagadagsins, sem
Blaine, Bellingham og Van-
couver-búar, halda seinnipart
þessa mánaðar.
-f -f -f
Dr. og Mrs. S. E. Björnson
frá Árborg, lögðu af stað á mið-
vikudaginn í fyrri viku í mán-
aðarferð til Boston og fleiri
borga þar syðra, þar sem lækn-
irinn ætlar að dvelja við spítala
til þess að kynna sér nýjar
lækninga-aðferðir, en frú Björn-
son hefir verið boðið að sitja
ársþing General Alliance of
Liberal Christian Women sem
fulltrúi þess félags frá Canada.
-f ♦ -f
Gjafir til Belel í júní 1942
Mrs. J. B. Skaptason, $10 in
Canada War Savings Stamps;
Dr. B. J. Brandson, Wpg., 2
Chairs; Ónefnd, Wpg., $25; Ó-
nefnd, Wpg. $3; Mr. G. J. Ole-
son, Glenboro, Man., $2; River-
ton Þjóðræknis Society one half
proceeds of collection taken at
a showing of Icelandic pictures,
May 12, 1942, $5.
Kærar þakkir,
J. J. Swanson, féhirðir.
308 Avenue Bldg., Wgp.
-f -f -f
Þann 11. júlí voru gefin saman
í hjónaband af séra Sigurði Ól-
afssyni í Selkirk, Man. Jacob
Victqr Melvin Jóhasson, Selkirk,
Man. og Rannveig Sigurlaug
Stefánsson, sama staðar. Brúð-
guminn er sonur Jacobs bónda
-Klerofíiissonar Jónassonar og
konu hans Kristínar Sigurður.
Brúðurin er dóttir Mrs. Rann-
veigar Stefánsson og Stefáns
Guðmundar Stefánssonar manns
hennar, sem er látinn fyrir
nokkrum árum. Heimili ungu
hjónanna verður á óðali Jónas-
sons feðganna, austan Rauðar-
ár, um 11 mílur norðan Selkirk
bæjar, þar sem þeir reka bú-
skap í stórum stíl. Giftingin fór
fram á heimili brúðarinnar, að
viðstöddum ástvinum og mörg-
um vinum, var þar setin vegleg
veizla, að hjónavígslu aflokinni.
-f -f -f
Fréttir frá Langruth
Þær frú Anna B. Thómasson
og dóttir hennar frú Jóhanna
Thomson eru á förum héðan úr
bygð vestur til B.C. Anna
Thómasson hefir búið í þessari
bygð allan sinn búskap og kom-
ið upp mörgum mannvænlegum
börnum. Hún ór systir Jóhanns
heitins Jóhannssonar, sem hér
bjó lengi. Hann var tengdafað-
ir þeirra Erlendssons bræðra,
sem höfðu verzlun hér í bæ um
allmörg ár.
KonurT,angruth bæjar héldu
þessum konum kveðjusamsæti í
húsi frú E. Bjarnason nýlega
Var það all-fjölment.
Frú Eyjólfína Þorleifsson,
skólakennari, fer einnig vestur,
en aðeins um mánaðartíma —
skemtiför að sjá forna vini.
S. B.
TIL 1>ESS AÐ TRYGGJA
YÐUR SKJÓTA
AFGREIÐSLU
Skuluð þér ávalt kalla upp
SAROCNT
TAXI
PHONE
34555 - 34 557
SARGENT and AGNES
TRLIMP TAXI
ST. JAMES
Phone 61 111
Vegna óumflýjanlegra erfið-
leika og stríðsþarfa á þessum
tímum, hefir íslendingadags-
nefnd Bifröst sveitar ákvarðað
að hafa ekkert íslendingadags
Hátíðahald að Iðavelli við
Hnausa þetta ár, eða fyr en yfir-
standandi stríði er lokið.
-f -f -f
Veiíið alhygli!
Tvær skrifstofur, með aðgangi
að aðalskrifstofu og öryggis-
klefa, fást til leigu nú þegar í
megin verzlunarhluta borgar-
innar. Afar sanngjörn leiga.
Þeir, sem þessu vilja sinna, snúi
sér til Keystone Fisheries, Ltd.,
325 Main Street, (þriðja hæð).
-f -f -f
íslendingadagsnefndin í Wyn-
yard er nú önnum kafin að
undirbúa fyrir íslendingamót
annan ágúst, sem nánar verður
auglýst í næstu blöðum.- Is-
lendingar í Vatnabygðum og
víðar ættu að hafa það hugfast
og strengja þess heit að verða
viðstaddir hvað sem tautar.
Nefndin.
-f -f -f
Kristján Hannesson, smiður,
lézt á Grace sjúkrahúsinu á að-
faranótt sunnudagsins, er var;
hann var 76 ára að aldri, ættað-
ur úr Kolbeinsstaðahreppi í
Snæfellsnessýslu. Kristján var
sæmdarmaður hinn mesti, er
eigi mátti vita vamm sitt í
neinu; hann lætur eftir sig
ekkju, Sigríði Ólafsdpttur, ásamt
8 uppkomnum börnum. tJtför
hans fór fram frá Fyrstu lút-
ersku kirkju í gær. Séra Valdi-
mar J. Eylands jarðsöng.
-f -f -f
DÁNARMINNING
Sunnudaginn 28. júní andaðist
Solveig Arason á heimili sínu
í Mountain, N.D., eftir langan
sjúkdóm. Hafði hún verið
heilsutæp síðustu 7 árin eða
meira, og seinustu 7 mánuðina
var hún alveg rúmföst. Hafði
hún borið sjúkdómsstríð sitt
með stillingu og hugprýði, en
var löngum mjög þungt haldin.
Solveig sál. var fædd 4. maí
1859, á Hofi í Hjaltadal í Skaga-
fjarðarsýslu. Foreldrar hennar
voru Friðrik Nielsen, albróðir
Sylviu móður séra H. B. Thor-
grimsen og Lovísu móður séra
N. S. Thorlákssonar og kona
hans Guðrún Halldórsdóttir.
Solveig sál. giftist Jakob P.
Arason 22. júlí árið 1882. Þau
hjón fluttust til Ameríku árið
1887 og þá beina leið til Moun-
tain. Hafa þau ávalt síðan átt
heimili þar. Mörg síðustu árin
hafa þau búið þar í stóru og
vönduðu húsi er þau létu
byggja. Hefir það í mörgu ver-
ið fyrirmyndar heimili. Sóttu
margir fjölskylduna heim og
nutu þar ávalt gestrisni og góð-
gerðasemi sem hefir verið eftir-
minnileg öllum.
Þeim hjónum varð 9 barna
auðið. Þrjú eru dáin, en 6 lifa
móður sína.
Solveig sál. var góð kona.
Ástrík eiginkona og móðir, og
umhyggjusöm húsmóðir er ann-
aðist heimili sitt með mikilli
prýði. Hafði hún yndi af allri
fegurð, og þó ekki sízt af blóm-
um. Hafði ávalt nægtir fallegra
blóma kringum sig. Hún var
velgefin kona og myndarleg.
Gestrisni og höfðingsskapur
ríkti ávalt á heimilinu. Voru
þau hjón mjög samhent í gest-
risni og góðgerðasemi, svo sem
og í öðru. Var ástríki milli
hjónanna svo sem og milli for-
eldranna og barna þeirra. Vin-
semda naut hin látna líka hjá
samferðafólki sínu.
Jarðarför Solveigar sál. fór
fram frá heimilinu og kirkju
Víkursafnaðar á Mountain, sem
hún hafði um langt skeið til-
heyrt. Fylgdu fjöldamargir
hinni látnu til grafar. Mrs. H.
Sigmar söng “Kvöldbæn” eftir
Björgvin Guðmundsson við út-
förina. Var það eftir óskum
fjölskyldunnar. Séra H. Sigmar
jarðsöng. Og frændi hinnar
látnu, séra N. S. Thorláksson,
flutti líka ræðu við útförina.
Dr. Ingimundson verður í
Riverton þann 21. þ. m.
-f -f
Heimilisfang Aðalsteins Krist-
jánssonar, rithöfunds, er Riveira
Apartments, 1900 Franklin
Circle, Hollywood, Cal.
-f -f -f
Miss Pearl Pálmason, fiðlu-
snillingurinn víðkunni, kom til
borgarinnar austan frá Toronto
í heimsókn til foreldra sinna,
Mr. og Mrs. Sveinn Pálmason;
mun hún dvelja hér um slóðir
í þriggja vikna tíma.
-f -f -f
Síðastliðinn föstudag lézt að
heimili sínu, 618 Agnes Street
hér { borginni, hsúfrú Guðveig
Bjarnadóttir frá Hraunsási í
Borgarfirði hinum syðra, kona
Árna Sveinbjörnssonar frá Sig'-
mundarstöðum; hún var 69 ára
að aldri; auk eiginmanns síns,
lætur Guðveig eftir sig þrjár
dætur, Mrs. J. M. Barr, Ochre
Riv„er; Mrs. R. M. Sundt, Tor-
onto, og Mrs. J. P. Glendenning
í Winnipeg. Útför Guðveigar
fór fram frá Bardals þann 13.
þ. m., og fluttu þar kveðjumál
þeir séra Watson Argue og séra
Rúnólfur Marteinsson.
Fjölskyldan flytur íslending-
um innilegar hjartans þakkir
fyrir samúð og góðvild í garð
hinnar látnu eiginkonu og móð-
ur.
-f -f -f
Messuboð
Fyrsta lúlerska kirkja
Séra Valdimar J. Eylands
prestur.
Guðsjþjónustur fara fram á
íslenzku kl. 7 á sunnudagskvöld-
um í júlí og ágúst.
Engar árdegismessur né
sunnudagaskóli fyr en með byrj-
un september.
-f -f -f
Séra Rúnólfur Marteinsson
prédikar í Fyrstu lútersku
kirkju, kl. 7 á sunnudagskveldið
kemur.
* -f -f
Hr. Skúli Sigurgeirsson, guð-
fræðanemi, flytur guðsþjónustu
í Piney á sunnudaginn þann 19.
þ. m., eins og hér segir:
Kl. 2 e. h.—íslenzk messa
Kl. 8 e. h.—ensk messa.
-f -f. -f
Messur í Valnabygðum
Séra Philip M. Pétursson
messar væntanlega á þessum
eftirfylgjandi stöðum, í Vatna-
bygðunum í Saskathewan, n.k.
sunnudag, 19. þ. m.:
Hólar, kl. 11 f. h.
Leslie, kl. 2 M.S.T.
Wynyard, kl. 8 e. h.
Er vonast eftir að menn fjöl
menni við guðsþjónusturnar á
þessum stöðum.
-f -f -f
Preslakall Norður Nýja íslands
19. júlí—Árborg, íslenzk messa
kl. 11 f. h.; Riverton, ferming
og altarisganga kl. 2 e. h.
26. júlí—Mikley, messa kl. 2
eftir hádegi.
B. A. Bjarnason.
-f -f -f
Sunnudaginn 19. júlí tekur
séra H. Sigmar þátt í guðsþjón-
ustum hjá Rock Lake, Man., þar
sem ungmennanámsskeið Kven-
félagasambandsins stendur þá
yfir. í fjærveru hans messar
séra N. S. Thorláksson í Hallson
kirkju kl. 2.30 e. h.
En sunnudaginn 26. júlí verð-
ur ensk messa á Mountain kl.
11, þar verður ein stúlka fermd
og altarisganga fyrir þá, sem
óska að taka þátt. Á Garðar
verður þann dag messa kl. 2.30.
Og í Vídalínskirkju kl. 8 e. h.
sú messa á ensku. Veitið athygli
breytingum á messutíma. Allir
velkomnir.
ÞEGAR KÖTTURINN MINN
DÓ
Má ei kvarta, — manna því
margt er bölið stærra —
en þó finn eg enn á ný
einum vini færra.
Jónbjörn.
Byggja á nýjan
átúdentagarð
í sumar
Nefhd, sem kjörin hefir verið
til að hrinda af stað byggingu
nýs stúdentagarðs, sem kominn
verði upp fyrir næsta haust,
kom saman á fyrsta fund sinn
í gærdag. Var þar einróma
samþykt að hefja byggingu
stúdentagarðs, og það jafnvel
þegar í þessum mánuði.
Stúdentar telja þetta samt
ekki neina lausn á deilu sinni
við Breta. Bæði er það, að um-
sóknir um garðsvist hafa verið
meiri heldur en hægt hefir ver-
ið að taka á móti, og svo hitt,
að hinn nýi Garður verður að-
eins fyrir íbúðir. Þar verður
ekki leikfimisalur, mötuneyti
né samkomusalur, eins og í
gamla Garði, svo að stúdentum
er full þorf á að fá hann eftir
sem áður.
Sigurði Guðrhundssyni arki-
tekt hefir verið falið að gera
teikningar af hinu fyrirhugaða
húsi, en ekki er lokið við þær
teikningar að fullu ennþá.
Áætlað er að byggingarverð
þessa nýja stdentagarðs verði
ekki undir 600 þúsund krónum.
Stúdentagaþðurinn á nú um
100 þús. kr. í sjóði. Ríkisstjórn-
in hefir farið þess á leit við
Alþingi, að stúdentar fái 150,000
kr. styrk til byggingarinnar og
að ríkið ábyrgist 150,000 króna
lán fyrir fyrirtækið. Ekki er
enn ákveðið hvaða leiðir verði
farnar til að afla þess fjár, sem
á vantar, en búast má við, að
leitað verði til bæjar- og sýslu-
félaga, svo að einstaklinga og
stofnana um styrk, líkt og gert
var, er núverandi Garður var
reistur.
Stúdentar hafa trygt sér
byggingarefni, sement og járn.
Ætti það því ekki að standa
málinu fyrir þrifum.
Nefndina, sem sjá á um undir-
búning þessa máls, skipa þessir
menn: dr. Alexander Jóhannes-
son háskólarektor og próf. Ág.
H. Bjarnason, kjörnir af háskóla
ráði, Ásberg Sigurðsson, stud.
jur. og Lárus Pétursson, stud.
jur., kjörnir af Garðsstjórn,
Benedikt Bjarklind, stud. jur. og
Pétur J. Thorsteinsson, kjörnir
af stúdentaráði.. Sjöunda mann
skipar ríkisstjórnin, en hann
hefir enn ekki verði útnefndur.
X)r. Alexander Jóhannesson hef-
ir verið kjörinn formaður nefnd-
arinnar. ,
—(Mbl. 5. apríl).
“Brúin milli gamla
og nýja heimsins”
(Framh. frá bls. 1)
Bandaríkjaþegn, og mér er
sannarlega ekki vandara um en
’ öðrum. En úr því eg var send-
ur að heiman, er eg þakklátur
fyrir, að mér var falið að fara
hingað til ættlands míns, sem
eg hafði lengi þráð að kynnast
af eigin sjón og reynd.”
“Og hvað svo um stríðið og
stjórnmálin í heiminum,” spyr
eg að lokum.
Hjálmar Björnsson rís upp úr
stólnum og leggur hnefanr.
þéttingsfast á skrifborðið:
—“Um stríðið óg stjórnmálin
er bezt að hafa sem fæst orð nú.
En eitt er víst: Frelsi og sjálf-
stæði íslands, svo og fjárhags-
leg afkoma þess öll, er órjúfan-
le/a tengt frelsi og sjálfstæði
Bretlands og Bandaríkjann^.
Og nú verða allir að fórna
miklu fyrir frelsið, — einnig þið
hér á íslandi, ef vel á að fara.
Það fer alt vel, ef þetta er
munað. Um ísland liggur ríú
ein mikilvægasta brúin milli
gamla og nýja heimsins, og.um
þá bifröst þurfa boðberar nýrri
og betri tíma að vinna sitt við-
reisnarstarf.”
Sveinn Sigurðsson.
(Eimreiðin).
KAUPIÐ ÁVALT 1 1 ! 44 ió W 1 L
L IJ r* *\ Id K THE EMPIRE SASH & DOOR CO. LTD.
HENRY AVENUE and ARGYLE STREET Winnipeg, Man. - Phone 95 551
MinnL
Þegar Toscanini var forstjóri
La Scala óperunnar, kom ein-
hverju sinni ómentað tónskáld
með handrit að óperu og bað
Toscanini að líta á það og taka
það til meðferðar, ef honum
geðjaðist að því. Óperu þessari
var vísað frá. Tíu árum seinna
mættust Toscanini og tónskáld-
ið í New York,
“Jæja, herra minn, mig lang-
ar til þess að segja eitt við yður
út af óperunni minni, sem þér
neituðuð að sýna í La Scala
óperunni fyrir 10 árum síðan,”
sagði tónskáldið. “Eg er viss
um, að þér lásuð aldrei handrit-
ið og getið þessvegna ékkert um
óperuna sagt.”
“Vitleysa,” sagði Tosanini, “eg
man vel eftir þessari óperu.”
Þessu næst settist Tosanini að
píanóinu og spilaði mörg lög
úr óperunni, sem hann hafði
neitað að taka fyrir 10 árum’.
“Nei, þetta er ekki gott,” sagði
hann um leið og hann lék, “þessi
ópera er fyrir neðan allar hell-
ur.”
Lítil stúlka hafði orðið fyrir
mjög miklum áhrifum af ræðu
prestsins. Hann hafði sagt að
mennirnir væru sauðir guðs og
þess háttar.
Að kvöldi þessa sama dags,
þegar litla stúlkan vár háttuð
ofan í rúmið sitt, heyrði mamma
hennar að hún há-grét.
“Af hverju græturðu, barnið
mitt?” spurði móðirin.
“Eg er svo hrædd um, að eg
sé sauðkind og komist aldrei til
himnaríkis.”
“Elskan mín,” sagði móðir
hennar, “þú ert bara ungt og
saklaust lamb og guð tekur alt
af á móti þér.”
Orð móðurinnar höfðu áhrif á
litlu stúlkuna og hún sofnaði.
Næsta kvöld fór litla stúlkan
aftur að gráta, þegar hún var
komin upp í rúmið sitt. “Af
hverju græturðu nú, barnið
mitt?” spurði hin umhugsunar-
sama móðir.
“Það er aftur út af sauðkind-
unum,” svaraði litla stúlkan. —
“En eg hefi sagt þér, að þú
sért bara ungt og saklaust lamb,
sem kemst altaf til himnaríkis.”
“Já, mamma — eg veit það, en
eg er svo voðalega hrædd um
að þú sért sauðkind, því þú ert
svo gömul.”
“Gefðu mér 25 aura fyrir
kaffisopa,” sagði umrenningur
við mann á förnum vegi.
“Vinnur þú aldrei?” spurði
maðurinn, ■ sem var leynilög-
regluþjónn.
“Við og við.”
“Hvað vinnur þú?”
“Hitt og þetta.”
“Hvar?”
“Hingað og þangað.”
Lögreglumaðurinn fór með
umrenninginn á stöðina.
“Hvenær losna eg héðan?”
emjaði hann.
“Fyr eða síðar.”
MINNIST BETEL
í ERFÐASKRAM YÐAR
Tízkú
spegillinn!
Me5 þvl að líta yfir EATON’S
Verðskrá viðvíkjandi tízku-
hugsjðnum, fylgjast eanadisk-
ar konur með þvl öllu, sem
nýjast er 1 sniði og gerð —
ekki þð einvörðungu I sam-
bahdi við fatnað fyrir hvern
meðlim fjölskyldunnar, held-
ur og svo að segja I sam-
bandi við alt, er heimilishaldi
viðkemur.
Sðrhverjum hlut er svo ná-
kvæmlega lýst I myndum og
með orði — mörgum lýst með
litum, eins og hlutirnir sjálfir
eru — svo það að verzla um
EATON’S Verðskrá, er I
rauninni það sama, og kaupa
við búðarborð og velja per-
sðnulega. varning I einhverri
af böðum hinnar miklu
EATON’S búðakeðju.
Látið því ekki tlzku eða hús-
búnaðarspursmál valda yður
óþæginda. Opnið EATON’S
Verðslcrá yðar; þar fáið þér
svárið.
Verzliö urn EATON'S Verðskrá
"BÚÐIR MILLI SPJALDA"
'T. EATON
WINNmO C4NIH
EATON'S
’YvWVVWYWVVWVYWVWWVYWWVVVVVWWVW1
\erzlunarsköla
NÁMSSKEIÐ
Það borgar sig fyrir yður
að leita upplýsinga á
skrifátofu Lögbergs, við-
víkjandi námsskeiðum
við beztu verzlunárskól-
ana í Winnipeg ....
Veitið þessu athygli l
nú þegar.
XAAMfMfAAMAMAMÚAAAAMMAAAAAAMMMAMAM/
V