Lögberg - 13.08.1942, Qupperneq 7
LÖGBERG, FIMTUDAGINN 13. AGÚST, 1942
7
Eyfjörð
og Skagfjörð
Jón og Bensi finnasl.
Það var eitt sinn um upp-
skerutímann, að Jón var sendur
inn í borgina með stykki, sem
bilað hafði í bindaranum. Vertu
nú fljótur, Jón minn, sagði Ei-
ríkur, taktu hann skjóna og
skokkaðu á hestbaki, þér þykir
gaman að því. Jón hafði mesta
yndi af þessu. Á eg að segja
manninum að gjöra þetta fljótt.
Já, já, sagði Eiríkur, gefðu hon-
um ekkert undanfæri; segðu
honum frá mér að hann verði að
gjöra það strax, það þarf að slá
hveitið sem fyrst. Eg þarf að
vinna fram á nótt í kvöld fyrir
þennan tíma, sem eg missi í
morgun. Alt gekk vel fyrir
Jóni; hann fékk stykkið brasað
saman í flýti, borgaði verkið
og hélt svo til baka. Hann var
kominn spöl frá bænum, sér
hann þá hvar maður gengur
veginn sömu leið og hann fer.
Þetta mann-grey er labbandi,
hugsaði Jón, það er gustuk að
taka hann á hestbak lítinn spöl.
Nei, nei, hver skyldi það vera
annar en hann Bensi. Jón
stanzaði hestinn. Halló, Bensi,
komdu á hestbak, svo þú þurfir
ekki að telja hvað mörg spor
eru í mílunni, sagði Jón hlæj-
andi. Bensi leit snögglega á
Jón og varð svo niðurlútur. Nei,
eg á það ekki skilið af þér, Jón,
farðu leiðar þinnar. Komdu
strax, sagði Jón, eg er ekkert
reiður við þig. Bensi stökk nú
á bak. Eg skal muna þér þetta.
Jón, sagði Bensi, það gefur mér
kinnroða hvað þú ert góðvilj-
aður. Eg skammast mín. Því
gerðir þú þetta, Bensi, spurði
Jón. Eg sem var svo reiður við
strákinn hann Bjössa, hann er
sterkur eins og fíll og þvættir
mér eins og dulu; mér fanst
eg þurfa að taka það út á ein-
hverjum, en eg var asni og ill-
menni, en það skal ekki koma
fyrir aftur, enda held eg eg
heyri aldrei það síðasta af þess-
ari flónsku minni. Gleymum
því með öllu, sagði Jón, en
heyrðu Bensi, hvernig fór með
boltaleikinn í gær? Okkar
flokkur vann frægan sigur,
sagði Bensi, við höfðum átta
móti tveimur. Harla gott, sagði
Jón. Eg var við dansinn í
fyrrakvöld, sagði Bensi þarna í
nýju kornhlöðunni hjá West-
fold, þar var margt fólk saman
komið, og fallegar stúlkur.
Hana nú, sagði Jón, þú er't þó
ekki farinn að hugsa. um stúlk-
ur. Nei, nei, svaraði Bensi, eg
ætla mér aldrei að hugsa um
stúlkur, þær vilja mig ekki, eg
er svo ljótur. Hvað vitleysa,
sagði Jón, þú ert víst nógu
riddaralegur þegar þú ert upp-
strokinn ög ekki ertu feiminn.
Nú er eg næstum kominn heim
sagði, Bensi, eg skal gera eitt-
hvað fyrir þig, Jón minn, þegar
mér gefst tækifæri. Hann
stökk af baki og kvaddi Jón.
Þegar. heim kom, sagði Jón
fólkinu frá þessum samfundum
við Bensa. Jæja, sagði Ásta, þú
ert búinn að gera þinn part í
leik þessum, Jón minn, þú ert
búinn að gjalda ilt með góðu,
og við ættum að vita og muna
hver það var, sem bauð okkur
það. Halldór var nú á öðru
máli. Ekkert skil eg í þér, Jón,
hvað þú ert ólíkur forfeðrunum,
sagði hann, mér hefði þótt gam-
an að sjá gömlu mennina, taka
mann á hestbak, sem búinn var
að svívirða hann í orði og verki
— þeir hefðu líklega dustað
hann til og það eftirminnilega.
Það er gott, sagði Ásta, að sá
villudómur er lagður niður. Já,
þú talar eins og Sigríður mín,
sagði Halldór, en það kom fram
sem Ásta sagði. Bensi reyndist
Jóni tryggur góðkunningi eftir
þetta, og var boðinn og búinn
að gera Jóni alt til þægðar.
Fyrirmyndar bóndinn hann
Jón Eyfjörð.
Nú eru liðin æskuár Jóns með
vinnu, lærdóm og leiki. Nú
hefir hann verið bóndi á bú-
jörð sinni í fjögur ár, giftur
Margréti Skagfjörð. Þau eiga
ungan son, sem Halldór heitir.
Nú eru þau að tala saman úti
eitt fagurt kvöld í júní.
Nú eru fjögur ár síðan gift-
ing okkar fór fram, sagði Jón.
Já, það hafa verið unaðsleg ár,
sagði Margrét, þó ekki sé auð-
legð og prakt. Ánægjan er fyr-
ir öllu og meira verð en rík-
dómur og glys. Já, gleðin, sagði
Jón, einkum síðan drengurinn
kom; hann er sólargeisli húss-
ins, bjartur og hlýr. Afi held-
ur að ekkert barn jafnist á við
hann, sagði Margrét. Jón brosti.
Það eru nú fleiri en hann, sem
álíta það, sagði Jón. En hérna
er blaðið, sem segir frá gift-
ingu okkar. Eg æ,tla að lesa
greinina. í gær fór fram eink-
ar myndarlegt brúðkaup hjá
þeim hjónum, Mr. og Mrs.
Matthías Skagfjörð, þegar faðir
brúðarinnar leiddi dóttur sína
til brúðgumans, eru brúðhjón
þessi einkar mannvænleg og
fagrir steinar í bygging mann-
félagsins, er mikils af þeim að
vænta. Eftir giftinguna voru
höfðinglegar veitingar fram-
bornar og þar næst skemtun,
sem unga fólkinu er kær. Má
svo segja um . þennan fyrir-
myndar bónda, að hann sé ein-
stakur í dugnaði og vitri fyrir-
hyggju, alt. er þar prýtt þrifnaði.
Líta skepnurnar út sem á fyrir-
myndar búi, hreinar, feitar og
gljáandi. Það fyrsta, sem mæt-
ir auganu þegar heim er komið,
er fegurð og smekkvísi; hann
hefir gott bú og snoturt heimili,
gripahúsin eru sterkbygð, hlý og
vel máluð. Garðar og blómreitir
eru svo ágætlega hirtir, það er
eins og ógresið sneiði sig hjá
landinu hans Jóns; hann hefir
mikið af engjum og umgirt
beitilönd, en eigi stóra akra.
Jón er uppfyndinga maður og
hefir látið gera tvo stóra
brunna, annan á kornakrinum
en hinn í griparéttinni; hefir
síðan vatnslyfting og sprautu og
OPPORTU NITY
IS KNOCKING
FOR YOUNG PEOPLE WHO
WISH TO EMBARK UPON A
BUSINESS CAREER
The demand for TRAINED office help now exceeds the
supply and we expect the demand will steadily increase. Why
not take advantage of this opportunity NOW by attending
our Day or Evening Classes?
Write or telephone for our 1942 prospectus.
III
flniTOBfl
commaciAL
COLL£G£
301 ENDERTON BLDG., 334 PORTAGE AVE.
(4 DOORS WEST OF EATON’S)
Phone 2 65 65
The Business College of Tomorrow . . . TODAYi
vatnar þannig- akri, beitilandi,
blómum, aldinreitum og görðum
með langri togleðurs-slöngu. —
Vér óskum þessum ungu hjónum
lukku og farsældar.
Þetta er nú ágætt, sagði Jón.
Við höfum margt, sem við get-
um minst með þakklæti og ætíð
gleður það mig að eg lærði ís-
lenzkuna sæmilega; það er gam-
an að koma til Winnipeg, þar er
glæsilegt félagslíf; þar eru ís-
lenzkar kirkjur, Þjóðræknisfé-
lagið góða og Jóns Bjarnasonar
skólinn, þar var eg í tvo vetur
og leið mæta vel, kennarar
skemtilegir, rektorinn valmenni
og íslenzkan svo viðfeldin og
hljómfögur. Það er verulega
gaman, sagði Margrét, að lesa
íslenzkar sögur; amma hefir
heilmikið af þeim, þær eru svo
hressandi og vekjandi, meir en
sögur á ýmsum málum. Amma
segir þær séu samdar í vís-
dómsanda trúarinnar og því
trr,ustar og styrkjandi. Jón
þótti einkennilegur í sumum
skoðunum og fastheldinn við
það, sem hann áleit rétt að
vera. Eitt var það: hann sagðist
aldrei ganga í ábyrgð fyrir
skuld annars manns, það væri
kæruleysis vogun að ætlast til
að menn gangist undir skuldir
sínar, því þegar betur er að
gætt, þá eru það vanalega ein-
hver stórræði, sem maðurinn
getur komist! af fyrir utan, þar
til hann sjálfur stendur á sínum
eigin merg og getur borgað sín
eigin stórræði. Þetta hefir
komið mörgum á kaldan klaka,
gert menn eignalausa og vald-
ið óánægju og gremju. Annað
var það: Jón lagði aldrei eggjárn
að nokkurri skepnu, sagði það
væri synd að eyðileggja skepn-
urnar; maður hefði svo mikið
gagn af þeim samt, og þegar
skepnur verða gamlar er það
skylda manns að vægja þeim
og láta þeim líða vel eins og
gömlum vinum. Jón afsagði að
vera í skuldum, því skyldi eg
ætlast til að menn láni mér, ef
mig vantar eitthvað, bíð eg þess
með þolinmæði þar til eg get
keypt það, og borgað út í hönd.
Þá er eg frí og frjáls og á það,
sem eg hef, hitt er ánauð og
ófrelsi á báðar hliðar. Þetta
svokallaða lánstraust er skortur
sannrar fyrirhyggju. Sannleik-
urinn er, maður ætti að gefa,'ef
einhver er í þröng, en ekki að
lána; það skal aldrei tefja fyrir
mér, að halda skuldareikninga.
Þetta sézt bezt þar sem alt er
borgað út í hönd; þar er mestur
ávinningur á báðar hliðar. Það
hlýtur svo að vera þar sem rétt-
lætið ræður, eru menn ánægðir
og frjálsir. Sjálfstæði og frelsi
eru dýrgripir lífsins, þá er mað-
ur glaður og syngjandi við verk-
ið sitt, sagði 'íón. Að vera í
skuldum svo tugum ára skiftii
er niðurdrep, veldur áhyggjum
og^ svefnleysi; eg vil vera laus
við þetta, sofa rólegur og vakna
glaður. Þá hafði Jón orð á sér
fyrir það, að hann borgaði
vinnufólki sínu betur en alment
gerðist. Mitt er ekki minna
fyrir það, sagði Jórff Sjáið
hvort ekki birtir yfir heimin-
um þegar efnin jafnast og sjálfs-
elskan hættir að kreppa hnef-
ann um smáskildinginn og stór-
skildinginn, og segja mitt en
ekki þitt. Verkalýðnum er
aldrei borgað nóg, hann vinnur
og vinnur og rakar saman auö
legð fyrir þá alt of ríku. Jón
fór snemma á fætur, opnaði
biblíuna, las kafla. Það er bless-
uð sálarfæða, styrkjandi og
gleðjandi, sagði Jón, eg hefi
yndi af orðskviðum Salomons,
hér er ein fögur: Son minn,
gleym eigi kenning minni, því
langa lífdaga og farsæl ár og
velgengni munu þau veita þér,
eg \ísa þér veg spekinnar, leiði
þig á braut ráðvendninnar; kær-
leiki og réttvísi sé höfuðdjásn
þitt.
Krislín í Waterlown.
MINNIST BETEL
í ERFÐASKRÁM YÐAR
Mrs. Guðrún H. Friðriksson
Fædd j6. ágúst 1868 — Dáin 8. maí 1942
Dánardægurs þessarar merkiskonu var minst í ís-
lenzku vikublöðunum fyrir nokkru síðan.
Hún hét fullu nafni Guðrún Helga; var fædd að bæn-
um Búrfelli í Hálsasveit í Borgarfjarðarsýslu 16. ágúst
mánaðar 1868. Foreldrar hennar voru þau hjónin Jör-
undur Sigmundsson og Auður Grímsdóttir. — Auður var
eitt af þeim mörgu valinkunnu systkinum, sem kend
voru við Grímsstaði í Reykholtsdal í sömu sýslu. —
Guðrún ólst fyrst upp með foreldrum sínum að Búrfelli,
og svo um nokkur ár hjá þeim hjónum Páli og Helgu á
Steindórsstöðum í Reykholtsdal.
Árið 1885 fluttist hún til þessa lands 17 ára að aldri
og taldi sig til heimilis hjá móður sinni, fyrstu dvalarár
sín hér. Móðir hennar hafði flutt vestur 1882 og bjó við
rætur Pembinafjallanna 4 mílur norðvestur frá bæjar-
þorpinu Garðar í North Dakota, U.S.A. Fyrstu árin vann
Guðrún sem vinnukona í ýmsum vistum bæði hjá sam-
löndum sínum og annara þjóða fólki. Giftist árið 1894
eftirlifandi manni sínum, Gunnari Friðrikssyni, þingey-
ingi að ættum. Fyrsta búskaparár sitt áttu þau heima í
Winnipeg; fluttu þaðan til Ontario og stjórnuðu þar
matsöluhúsi fyrir C.P.R. járnbrautarfélagið. Þaðan
fluttu þau árið 1899 til Winnipegosis, Man., og bjuggu
um nokkur ár í íslenzku bygðinni á Red Deer Point,
sem þá var rétt byrjuð að myndast. Atvinna þeirra var
fiskveiði og griparækt. Þaðan fluttu þau til bæjarins
Winnipegosis og hafa búið þar síðan.
Þau eignuðust níu börn, tvö þeirra dóu í æsku, hin
lifa nú fullorðin og gift; flest búsett hér í Manitoba.
Þau eru þessi sem hér verða talin: Jörína Auður, kona
Halldórs Stefánssonar; Óskar Gunnar, giftur Petronellu
Crawford; Stearne Jónas, giftur Elen Martin af enskum
ættum. Þessi sem hér eru talin eru búsett í Winnipeg-
osis; Skarphéðann Kjartan, giftur Helgu Jónasdóttur
Pálssonar söngkennara, eiga heima í Geraldton, Ont.
Björg Margrét, gift LaVerne Hawn, þau hafa átt heimili
í Mafeking hér í fylkinu; Svava Friðrika, gift Ernest
Ransom af enskum ættum; Guðrún Thyri, gift Ben
Grimmalt, eiga heimili í námubænum Flin Flon, Man.
Alsystir Guðrúnar er Björg ekkja Mr. Stearne Tight,
býr í bænum Saskatoon, Sask., önnur alsystir var Guð-
rún, kona Jóhannesar Thordarson við Mozart, Sask. Tvö
hálfsystkin af seinna hjónabandi Auðar, eru Kristín,
kona Gunnars Guðmundssonar, þau búa í Winnipeg, og
Þórður, giftur Þórdísi Thómasson, búa nálægt Mozart,
Sask. ^
Við fráfall þessarar mætu merkiskonu er stórt skarð
autt í hópi íslendinga í Winnipegosis, ekki aðeins hvað
áhrærir mann hennar og börnin þeirra, sem nú harma
ástríka konu og móður, heldur allra Islendinga í því
bygðarlagi, því það má með sanni segja, að hún var lífið
og sálin í öllu því, sem laut að félagsmálum íslendinga
þar. Hún var forseti Lúterska safnaðarins þar um mörg
ár, einnig forseti þjóðræknisdeildarinnar Hörpu, og enn-
fremur forseti Kvenfélagsins Fjallkonan um langt skeið.
Það er líka að allra þeirra dómi sem unnu að nefndum
félagsmálum með henni, að aldrei hafi neitt af þeim
staðið fagurlegar að ætlunarverkum sínum, en þau árin,
sem hún veitti þeim fylgi sitt. Þessi látna kona var
mörgum þeim kostum gædd sem hverja konu prýða,
hún var fríð ásýndum, gáfuð og einkar skemtileg í við-
ræðum, hafði þíðan og aðlaðandi málróm, hún var prýði-
lega máli farin á ræðupalli og þótti þá fáum of langt
að hlusta meðan hún talaði.
Nokkur síðustu æfiár sín þjáðist hún af sjúkdómi
þeim, sem læknarnir kalla blóðþrýsting, og úr þeirri
veiki dó hún, sátt við lífið, sátt við alla menn, og sátt
við síðasta gestinn, sem kom og bar hana á örmum
sínum, svo hátt upp í daginn mikla.
Nú ertu horfin úr augsýn okkar allra, hjartans þökk
fyrir allar þær skemtistundir, sem við nágrannarnir
þínir áttum með þér í lestaferð lífsins, þú varst sönn
kona! Góður orðstír deyr aldrei.
Gamall nágranni.
BUMcaem
'WrtYvwtwvywywwvwvwvwvwvvwvvvvvvvvwx.
\erzlunarskola
NÁMSSKEIÐ
Það borgar sig fyrir yður
að leita upplýsinga á
skrifátofu Lögbergs, við-
víkjandi námsskeiðum
við beztu verzlunarskól-
ana í Winnipeg ....
Veitið þessu athygli f
nú þegar.
XAMAWAWAAMAAMAAAAAMÁÁMAAAAWAAAAAAAM/'