Lögberg - 13.08.1942, Page 8
8
LÖGBERG, FIMTUDAGINN 13. ÁGÚST, 1942
Ur borg og bygð
Giflingarfregn:
Þann 4. ágúst voru gefin sam-
an í hjónaband í Lútersku
kirkjunni í Selkirk, séra Carl
J. Olson sóknarprestur í Flin
Flon, Man. og Ásta Laufey
Johnson, Selkirk, Map. Séra
Sigurður Ólafsson gifti. Að
giftingu afstaðinni nutu nánustu
ástvinir og vinir yndislegrar
stundar á heimili Mrs. Margrét-
ar Johnson, móður brúðarinnar.
-f -f -t-
Hjónavígslur framkæmdar af
séra Valdimar J. Eylands:
1. ágúst—
James Gordon og Olive Jean
Pottruff. Giftingin fór fram í
Fyrstu lútersku kirkju. Brúð-
urin er dótturdóttir Kristjáns
umboðsmanns Ólafssonar hér í
borg.
8. ágúst—
Lancelot Allan Farewell og
María Sigurbjörg Jónsson voru
gefin saman á heimili brúðar-
innar, 774 Victor St. Brúðurin
er dóttir Dr. Björns B. Jónsson-
ar og frú Ingiríðar ekkju hans
að 774 Victor St.
8. ágúst—
Peter John Scott og Irene
Swanie Swanson, dóttir J. J.
Swanson fasteignasala og frú
Kristínar konu hans. Athöfnin
fór fram í Fyrstu lútersku
kirkju.
♦ -f -f
Miðvikudaginn 28. júlí lézt
við Churchbridge, Sask., konan
Einarína Kristín Sigurðson,
kona Einars Sigurðssonar; eftir
langvarandi sjúkdóm. Hún var
jarðsungin þ. 31. s. m. af séra
S. S. Christopherson að við-
stöddu mörgu fólki. Hún lætur
eftir sig, auk manns síns, þrjú
börn þeirra hjóna og þrjár syst-
ur.
-f -f -f
MATREIÐSLUBÓK
Kvenfélag Fyrsta lúterska
safnaðar í Winnipeg. Pantanir
sendist til: Mrs. E. W. Perry,
723 Warsaw Ave.; Mrs. E. S.
F'eldsted, 525 Dominion Street.
Verð $1.00. Burðargjald 5c.
-f -f -f
Að 748 Home Street fást
nokkrar íslenzkar bækur með
gjafverði.
Þakklæti:
Jón Sigurdson félagið þakk-
ar fyrir $5.00 frá kvenfélaginu
“Sólskin”, Foam Lake, Sask.
Einnig fyrir $10.00 frá Mrs.
Rósu Hermansson Vernon, To-
ronto. Mrs. Vernon tók þátt í
“Folk Festival” á International
Lions Club Convention, þar sem
hún táknaði ísland. Afhenti fé-
lagið henni $10.00, sem hún
mátti verja í þágu stríðsins.
-f -f -f
Mrs. A. J. Anderson frá
Seattle, kom til borgarinnar um
síðustu helgi, ásamt Jóhanni
syni sínum, í heimsókn til ætt-
ingja og vina. Mrs. Anderson
er tengasystir Mrs. A. G. Paul-
son, 652 Golding Street hér í
borginni.
-f -f -f
Þann 29. júlí voru þau Narfi
Ólafson og Ethel Laakso gefin
saman í hjónaband að heimili
Rev. M. Aaandal, 1341 Wolseley
Ave. að viðstöddum foreldrum
brúðgumans, Mr. og Mrs. Óli
Ólafson. Brúðhjónin dvöldu í
bænum til föstudags; héldu þau
heimleiðis til Tantallon, Sask.,
þar sem hann er búsettur og
þau bæði fædd og uppalin í
grend við Tantallon.
f -f f
Eftirfylgjandi nemendur, Mrs.
Sylviu Kárdal, á Gimli, Man.,
tóku próf yið Toronto Conserva-
tory of Music:
Grade III, Piano—
Honors—Margaret Epp.
Grade VI, Piano—
, Honors—V. E. Joy Olson
Honors—S. Johann Tergesen.
f f f
Mrs. Guðný Sigurðsson, kona
Ágústs Sigurðssonar, fyrrum að
Ashern, en nú að 806 Victor
Street, lézt af barnsförum hér í
borginni á miðvikudagsmorgun-
inn; glæsileg ágætiskona 26 ára
að aldri; hún var dóttir Mr. og
Mrs. Th. Gíslason, sem búa í
grend við Steep Rock.
f f f
Gjafir iil Beiel í júlí 1942:
Miss Guðrún Thorsteinson,
Winnipeg, Candy; Mrs. Nanna
Bower, Hálifax, N.S., bækur
föður síns, Friðrik Swanson;
Mrs. H. Christopherson, Baldur,
Man., $2.00; Mr. J. G. Johnson,
Winnipeg, 6 lbs. Chocolates,
The Vikin^ Fisheries, 100 lbs.
Whitefish; Mrs. C. Adams, Wpg.,
bækur föður síns sál. Jón Finns-
son; Mr. S. Swanson, Edmonton,
Alta., $5.00; Mrs. G. Laxdal, Ár-
borg, Man., Candy; Mr. og Mrs.
Carl Goodman, Wpg., $25.00;
Miss Sigurbjörg B. Jónsson á
Betel, “í minningu um vinkonu
mína, Petra Jonasson,” $5.00;
Mr. og Mrs. G. F. Jonasson,
Wpg., $100.00.
Innilega þakkað fyrir hönd
nefndarinnar.
Mrs. Guðrún Eggertson lézt
að heimili sínu 707 Garfield
stræti í Winnipeg síðastliðinn
mánudag, 10. ágúst. Hún var
ekkja eftir Jón Eggertsson, 67
ára gömul, dóttir Þorbergs
Fjeldsteds frá Hreðavatni í
Norðurárdal í Mýrasýslu, og
Helgu konu hans.
Jarðarförin fer fram í dag,
fimtudaginn 13. ágúst, kl. 2.30,
frá útfararstofu A. S. Bardals.
Séra Philip Pétursson jarðsyng-
ur.
f f f
Hon. J. T: Thorson, National
War Services ráðherra hélt
heimleiðis til Ottawa á laugar-
dagskveldið var.
f f f
Mr. Sigurður Árnason frá
Chicago, 111., dvelur í borginni
þssa dagana.
Fáum dögum áður en Abra-
ham Lincoln Bandaríkjaforseti
var myrtur, sagði hann vini
sínum, Ward Hill Lamon, og
konu sinni eftirfarandi draum
sinn:
—Eg þóttist staddur í Hvíta-
húsinu, mælti Lincoln. — Gekk
eg stofu úr stofu, án þess að
eg rækist þar á nokkurn lifandi
mann, en allsstaðar heyrði eg
sár andvörp og stunur. Að lok-
um kom eg inn í hið svonefnda
Austurherbergi. Þar stóð lík-
pallur, og á honum lá lík, sveip-
að blæjum. Umhverfis líkpall-
inn stóðu hermenn á verði, og
þar stóð einnig hópur af fólki.
Horfðu sumir á líkið, daprir í
bragði, en aðrir voru grátandi.
Andlit líksins var hulið blæju.
—Hver er dáinn í Hvítahús-
inu? spurði eg einn af hermönn-
unum,
—Forsetinn, svaraði hann, —
hann var myrtur.
I sama bili kváðu við svo
mikil harmakvein frá fólkinu,
sem þarna stóð, að eg vaknaði.
Mér kom ekki dúr á auga það,
sem eftir var næturinnar, og
enda þótt þetta sé ekki annað en
draumur, hefir það valdið mér
miklum áhyggjum að undan-
förnu, mælti forsetinn að lok-
um. — (Samtíðin).
Messuboð
ff f
Messur við Winnipegosis og
Rd Deer Point þ. 16. þessa mán.:
Á Red Deer Point kl. 11 f. h. og
kl. 3 e. h. í Winnipegosis.
s. s. c.
f f f
Lúterska kirkjan í Selkirk:
Sunnudaginn 23. ágúst—
íslenzk messa kl. 7 síðd.
Allir boðnir velkomnir.
S. Ólafsson.
f/ f f
Sunnudaginn 16. ágúst messar
séra H. Sigmar í Hallson kl. 11
(ensk messa), í Eyford kl. 2.30
e. h. (íslenzk messa) og í Garðar
kl. 8 e. h. (íslenzk messa). Allir
velkomnir.
# + +
Preslkaall Norður Nýja íslands:
16. ágúst—;Hnausa, messa kl.
2 e. h.
23. ágúst—Mikley, messa og
ársfundur kl. 2 e. h.
Væntanleg fermingarbörn á
Hnausum eru beðin að mæta til
viðtals eftir messu þ. 16. ágúst.
B. A. Bjarnason.
f f f
"A Church of the Air"
guðsþjónustu verður útvarpað
frá Fyrstu lútersku kirkju á
sunnudaginn 30. ágúst, kl. 3.30
(C.S.T.). Þetta útvarp er tekið
upp af öllum stöðvum CBC kerf-
isins í Canada, og heyrist frá
hafi til hafs. Prestur Fyrstu
lút. kirkju flytur stutta prédik-
un, og yngri söngflokkur kirkj-
unnar aðstoðar með söng.
f f f
Skúli Sigurgeirsson, stud.
theol., gerir ráð fyrir að flytja
guðsþjónustu í Steep Rock,
sunnudaginn 23. ágúst.
Kristján Hannesson
F. 18. ágúst 1866
D. 12. júlí 1942
Það var getið um lát þessa
mæta manns hér í blaðinu 15.
f. m. og því lofað þar, að geta
hans frekar síðar, og er það til-
gangur þessara lína að efna það
loforð.
Kristján var fæddur í Yztu-
Görðum í Kolbeinsstaðahrepp í
Snæfellsnessýslu 18. ágúst 1866.
Foreldrar hans voru Hannes
Magnússon og Kristín Kjartans-
dóttir er þar bjuggu mest allan
sinn búskap. Var hann einn af
fimm systkinum er nú eru öll
dáin nema ein systir, Ragnheið-
ur, og heima á hér í Winnipeg.
Bróðir hans, Jón Hanneson, er
heima átti í Selkirk, Man., um
fjölda mörg ár, lé^t fyrir fáum
mánuðum. Ein systir þeirra
bræðra, Ólöf að nafni, var fyrri
kona Kristjáns Ólafssonar lífs-
ábyrgðarmanns hjá New York
Life félaginu. Önnur systir
þeirra, er til þessa lands kom,
var Þórný kona Bjarna Dags-
sonar og eru þær báðar dánar
fyrir mörgum árum.
Kristján heitinn kom til þessa
lands árið 1887 og stundaði ýmsa
vinnu í nokkur ár. En árið
1893 réðist hann til Canadian
Pacific járnbrautarfélagsins og
var hann í þjónustu þeirra þar
til árið 1933, er hann fyrir
aldurssakir, varð að hætta starfi.
Gegndi hann á þessum árum á-
byrgðarmkilu starfi hjá félag-
inu, sem hann leysti vel og
vandlega af hendi, sem og alt
annað er hann lagði hönd á.
Árið 1891 kvæntist hann Sig-
ríði ólafsdóttur Tómassonar frá
Eskiholti í Borgarhrepp í Mýra-
sýslu, og lifðu þau í farsælu
ag elskulegu hjónabandi í meir
en fimtíu ár. Þeim varð tíu
barna auðið og eru átta þeirra
á lífi, öll uppkomin og bráð-
myndarleg. Nöfn þeirra eru
eftir aldursröð:
Hannes, heima hjá móður
sinni; Ólafur E., kvæntur hér-
lendri konu og búsettur í Win-
nipeg; Karl Óskar, kvæntur hér-
lendri konu og búa þau í Van-
couver, B.C.; Skarphéðinn
Tómas, kvæntur íslenzkri konu
og býr í Winnipeg; Elín Ólöf,
gift hérlendum manni,- Allen að
nafni, búsett hér í bænum;
Kristín Ragnheiður, heima hjá
móður sinni; Sigurbjörg, einnig
heima, og Jórunn Guðlín, gift
hérlendum manni, Stewart að
nafni, og búa þau hér í borg-
inni.
Farsælu hjónabandi sagði eg,
og var það sízt ofsagt, því sam-
búð þeirra var hreinasta fyrir-
mynd í alla staði. Enda var
Kristján umhyggjusamur heim-
ilisfaðir, ástríkur eiginmaður og
elskulegur faðir; og ef nokkr-
um hjónum hefir tekist að upp-
fylla þá hugsjón, að maður og
kona væru eitt, þá tókst þeim
hjónum það. Og eins er með
börn þeirra, að ef nokkrum
börnum hefir lærst að heiðra
föður sinn og móður, þá hafa
þau lært það og iðkað í orð-
anna fylstu merkingu.
Kristján var dagfarsgóður
og glaðlyndur, en stiltur vel og
gætti hófs í öllu. Umgengni
mín og kunningsskapur við
Kristján heitinn minti mig oft
á vísuna hans Hannesar Haf-
stein, og því set eg hana hér:
“Lát ei víl þér veginn þyngja,
vert þú æ til taks að syngja.
Lát þér vera langt til tára,
létt um bros til hinztu ára.
Svo má lífsins sólskin fanga,
silfurhærur, rjóða vanga.”
Og það má með sanni segja um
Kristján að hann var sólarmegin
í öllu sínu líferni og framkomu,
enda gæfumaður alla æfi.
Kristján heitinn lét lítið yfir
sér og barst lítt á, en þar sem
hann var með, var hann heill
og óskiftur.. Hann t. d. heyrði
til Fyrstu lútersku kirkjunni
hér í Winnipeg öll þau 55 ár er
hann átti heima hér í borginni,
og sótti hann kirkju svo reglu-
lega- að fáir menn hafa oftar
komið. í þeirri kirkju var hann
giftur, þar voru börn hans skírð
og fermd og sum gift, og frá
þeirri kirkju var hann fluttur til
hinnar hinztu hvíldar 15. f. m.
að viðstöddum fjölda ættingja.
vina og kunningja.
Banalega hans var tiltölulega
stutt en ströng, og bar hann
þjáningar sínar með hinni sömu
föstu ró, er hann ávalt sýndi í
sínu daglega lífi. Hann kveið
engu, enda traustið óbilandi á
frelsara sinn og skapara. Hann
dó eins og hann hafði lifað í
friði og sátt við guð og menn. -
Vertu ætíð sæll og blessaður,
Kristján minn! og þökk fyrir
öll hlýindin og þægilegheitin er
þú ávalt sýndir mér og mínum!
J. J. Swanson, féhirðir.
308 Avenue Bldg., Wpg.
Renown Skyrtur
af ekta EATON gerð
VERÐ
$1.59
Endingargóðar baðmull-
ar broadcloth skyrtur;
hlaupa ekki við þvott,
fara öllum vel, og bera
þetta aðlaðandi snið með áföstum kraga. Hér er úr mikl-
um og margvíslegum sumartegundum að ræða, af stærðum
frá 14 til 17 að fullgerðarmáli.
<*T. EATON C?,m,teo
Sveinn Oddsson.
Modern Dairies Ltd,
• • •
"You Can Whip Our Cream But You Can't
Beat Our Milk"
• • •
SlMI
201 101
ROVATZOS
FLOWER and NOVELTY SHOP
Sérfræðingar í öllu, sem að blómum lýtur.
Fegurstu giftingablóm og Colonial blómvendir.
Búðarsími 27 989 — Heimasími 36 151
235 Notre Dame Ave., Winnipeg
KAUPIÐ ÁVALT
HJMBCC
hjá
THE EMPIRE SASH & DOOR CO. LTD.
HENRY AVENUE and ARCYLE 'STREET
Winnipeg, Man. - Phone 95 551