Lögberg - 17.06.1943, Qupperneq 1
■
PHONES 86 311
Seven Lines
1 \
C°T'
For Belier
Dry Cleaning
and Laundry
56 ÁRGANGUR
LÖGBERG. FIMTUDAGINN 17. JÚNÍ 1943.
NÚMER 24
HELZTU, FRETTIR
AUKAKOSNINGAR TIL
SAMBANDSÞINGS.
Síðastliðinn laugardag lýsti
forsætisráðherrann, Mr. King,
því yfir, að aukakosningar í fjór
um kjördæmum til sam'bands-
þings, færu fram þann 9. ágúst
næstkomandi, en kjördæmin eru
þessi:
Selkirk, Montreal-Cartier,
Stanstead og Humboldt. Selkirk
hefir ve'rið án þingmanns frá
þeim tíma, er Hon J. T. Thor-
son var skipaður forseti í Ex-
chequerréttinum. Enn er eigi vit
að um frambjóðendur í Selkirk,
þó víst sé að C.C.F.-flokkurinn
haldi þar framboðsfund á næst-
unni. Þingmaður Humboldt kjör
dæmisins, Dr. H. R. Fleming,
lézt j. fyrra, og einnig Peter
Bercovitch, fulltrúi Montreal-
Cartier kjördæmisins. Stanstead
kjördæmið í Quebec losnaði við
það, er hæstiréttur Canada
dæmdi ógilda kosningu Mr.
Davidson’s vegna ósæmilegra
aðgerða af hálfu kosningaum-
boðsmanna hans í almennu
kosningunum 1940.
KOSINN
GAGNSÓKNARLAUST.
•
Síðastliðinn laugardag, er
framboðsfrestur við aukakosn-
ingu í Dufferin, til fylkisþings-
ins í Manitoba rann út, var Mr.
Earl T. Collins, bóndi við Miami,
kosinn gagnsóknarlaust. Mr.
Collins hefir alla jafna fylgt
íhaldsflokknum að málum en
bauð sig fram sem stuðnings-
maður 1 núverandi samvinnu-
stjórnar undir forustu Mr. Gar-
sons. Dufferin kjördæmi varð
þingmannslaust við fráfall Dr.
J. A. Munn, er lézt snemma á
síðastliðnu ári.
•f
SAMEINUÐU ÞJÓÐIRNAR
VINNA MIKIÐ Á.
Þrjár víggirtar eyjar, skamt
frá ítálíu, hafa fallið bandamönn
um í hendur; en það eru þær
Pantelleria, Lampedusa og
Linosa; hin fyrst nefnda ey er
stærst, en þó ekki nema 36 fer-
mílur að stærð; þær höfðu all-
ar mikilvæga hernaðarlega þýð-
ingu vegna legu sinnar, t>g voru
rammbyggilega víggirtar; þrálát-
ar loftárásir af hálfu sameinuðu
þjóðanna urðu þeim að falli.
Nú hafa hinar sameinuðu
þjóðir hafið snarpar loftárásir á.
Sardiníu og Sikiley, og valdið
þar geisilegu tjóni. UpplýsingaA
deild ítölsku stjórnarinnar hef-
ir gert ítölsku þjóðinni aðvart
um það, að hún megi vænta
innrásar á meginland Italíu, svo
að segja á hverri stundu.
f -f f
\ , •
COLDWELL LÆTUR TIL SÍN
HEYRA.
M. J. Coldwell, forustumaður
C.C.F.-flokksins í Canada, flutti
ræðu í sambandsþinginu þann
15. þ. m., þar sem hann veittist
þunglega að stjórninni fyrir þær
mörgu og mikílvægu ívilnanir,
sem hún hefði veitt Aluminum
félaginu upp á • síðkastið; kvað
hann félag þetta vegna hlunn-
inda af hálfu stjórnarinnar, raka
saman meira fé um þessar mund
ir, en dæmi væru áður til um
nókkurt fyrritæki í landinu
fram að þessum tíma.
Hergagnaráðherrann, Mr.
Howe, hélt .uppi vörn fyrir
stjórnina, og taldi ráðstafanir
hennar viðvíkjandi áminstu fé-
lagi, hafa verið óumflýjanlegar
vegna stríðssóknarinnar.
í herþjónustu
Lieut. Ásgeir Johannesson,
innritaðist í canadiska herinn
síðastliðið haust, og gaf sig við
æfingujn í Shilo herbúðum;
hann hefir nú nýlega hlotið
Lieutenantstign. Lieut. Jóhann-
esson er uppalinn í Winn’peg;
hann er meðlimur í fótgöngu-
liðinu.
f f ♦
Dr. Josefina Ása Kristjáns-
son—Mac Donell, sem útskrif-
aðist í læknisfræði við Mani-
tobaháskólánn síðastliðið vor, og
innritaðist í herinn, sem her-
læknir þegar að loknu prófi,
hefir hlotið Lieutenantstign, og
verið skipuð í embætti hjá
Army Reception Centre Wing,
Fort Osbarn Barracks, Winni-
peg. Foreldrar þessa unga og
efnilega kvenlæknis, eru þau
Mr. og Mrs. Friðrik Kristjáns-
son, 205 Ethelbert St., Winni-
Peg-
LÝKUR PRÓFI
í HJÚKRUNARFRÆÐI
Miss Jónína Eslher Stefánson.
Þann 20. maí síðastliðinn, lauk
prófi í hjúkrunarfræði við Al-
menna spítalann í Winnipeg,
Miss Jonína Ester Stefánson,
með hinum ágætasta vitr.isburði.
Þessi glæsilega hjúkrunarkona,
er fædd 1. sept. 1920, og er
dóttii* þeirra Mr. og Mrs. Oli
Stefánson,' Cypress River, Man.
Þá og nú
Forðum daga eg fegri sá,
er fjörið æsku réði;
fjöldi vina vildi þá
vera mér til gleði.
Er nú breyting undraverð
á æfigöngu minni;
nú er eg orðin einn á ferð
yzt í mannþrönginni.
S. E. B.
Lesið á Sumarmálasamkomu
Hún gengur fremst að fagna vori og sól
Hin frjálsa þjóð er norðrið kalda ól,
og festi á nyrstu nöfum sterkar rætur.
Sem þreytti fang við þorra dægur löng,
en þráði vorsins yl og gleði söng
og dreymdi ljós, um langar vetrar nætur.
Eg veit að allir elska vor og sól,
en íslands kyni ljóssins herra fól
að fagna í eining fyrsta sumar degi;
þó sundrung klyfi oftast okkar lið
var öllum fært að þola stundar grið
þann eina dag á ársins langa vegi.
•
Það elfdi kynsins kjark og hetju þrótt
að kveðast á við grimma hríðar nótt.
En hjátrú bjó í skammdegisins skugga.
Og það var eins og öllum létti þá,
og allir draugar hnigu í þögn og dá
en vorsins geislar vermdu bæjar glugga.
Og þeir sem hurfu feðra túnum frá
hún fylgir enn hin djúpa sumar þrá;
við fögnum ennþá fyrsta söng í lundi.
Og vofur þær er húm og hríðin ól
í helgi vorsins finna ekkert skjól *
er ljósið kveður líf af vetrar blundi.
•
Sú þrá sé æðri, önn um stundar kjör
að eiga þátt í vorsins sigur för,
og velja ljóssins leið enn húmsins eigi,
og hvar sem angi af íslands stofni rís
sé allri fegurð gisting frjáls og vís
og fagnað ætíð, fyrsta sumardegi.
Og beygjum hug í bæn og þakkargjörð,
og blessum þann, er sendir vor á jörð,
af fegurð klæðir fönnum barðar grundir,
við skiljum best hans mikla kærleiksmátt
er merki ljóssins vorið reisir hátt
með friðsæl kvöld, of fagrar morgun stundir.
Kristján Pálsson.
SUMARVEIÐI í WINNIPEG-
VATNI HEFST.
Síðastliðinn mánudag hófst
sumarveiði í Winnipeg-vatni;
samkvæmt fyrirmælum fiski-
veiðaráðuneytisins, skal hvítfisk
veiðin miðuð við 3,000,000, en
pickerelveiði má nema 150.000
pundum. Tala veiðileyfa nemur
150, en veiðitíminn stendur yf-
ir til 7. ágúst, þó vera megi að
hið ákveðna fiskimagn náist
nokkru fyr. í fyrra var verð
hvítfiskjar 10 cent pundið i
verstöðvum; því er spáð, að verð
muni verða eitthvað hærra í
m
sumar.
♦ ♦ ♦
VERKFÖLL
í AUSTUR-CANADA.
Svo rammt kveður að verk-
föllum austanlands um þessar
mundir, að ekki færra en tíu
þúsundir stáliðnaðarmanna
ganga auðum höndum í Quebec
og Ontario; verkamenn krefjast
þess að fá fastbundið lágmarks-
kaup og bindandi atvinnusamn-
inga, sem gildi að minsta fcosti
til e^is árs; að þessum kröfum
hafa verksmiðjueigendur ekki
viljað ganga enn sem komið er,
og eru því líkur til, að stjórnin
taki að sér rekstur verksmiðj-
anna í náinni framtíð.
♦ ♦ f
Íslenzka þjóðin hyllir minningu
síns mesta manns
Jón Sigurðsson, forseti.
I dag er fæðingardagur Jóns Sigurðssonar,
fslands mesta manns. Synir og dætur Islands,
heima og erlendis, minnast þjóðhetjunnar
með aðdáun og ævarandi þökk.
SYNJAR UM SAMVINNU.
Verkamannaflokkurinn á Bret
landi, hefir með miklu afli at-
kvæða synjað brezkum kommún
i'stum um samvinnu, sem þeir
kváðust eiga heimtingu á að fá,
vegna breytts stjórnmálavið-
horfs á Rússlandi.
Þakklœti
Andvöku hugleiðing
Hvaðan er þjáning um þögula nótt?
Því er ei rólegt í koti og höllum?
Af því að jarðlífið er ekki rótt
ófundin lækning við þjóðfélags göllum
freklega sóst eftir fjáraíla gnótt,
fórnar þar dýrseðlið •verðmætum öllum.
Herra ritstjóri E. P. Jónsson.
Eg get ekki setið á mér að
þakka þér fyrir greinina í Lög-
bergi 3. júní, “Djúp, sem þarf
að brúa”. Enn af þvj eg kann
ekki að skrifa í blöS þá verð
eg að gera það bara svona prívat
með þessum línum; það var sann
arlega orð í tíma talað. Elli-
styrkurinn er mál, sem alla
varðar, unga og gamla. Mig,
hefir oft furðað hvað fáir n.áls-
metandi mehn og konur láta
álit sitt opinberlega í ljósi um
þetta mál; eg vona að þú skor-
ir á bæði kvenna og kirkjuþing,
sem koma saman núna bráðum,
að taka þetta mál til alvarlegrar
íhugunar; það er búið að þegja
nógu lengi. Það er nú ekki ein-
asta að ellistyrkurinn er aðeins
20 dollarar, sem er auðvitað
altof lítið; sérstaklega fyrir fólk
í bæjum, heldur er reynt að
borga ekki nema 15 dali í eins
mörgum tilfellum, sem mögu-
legt er. Máske líka ef ellistyrk-
urinn væri hækkaður að hægt
væri að koma upp stærra elli-
heimili svo gamlir, einmana
ís.lendingar þyrfti ekki að vera
húsviltir þegar þeir eru hættir
að geta séð um sig sjálfir nema
einhver vandalaus skjóti skjóls-
húsi yfir þá, og þá hrökkva nú
15 dollarar skamt bæði íyrir
fötum og fæði og meðölum ef
með þarf.
Nú sé eg að það er minst á
£>etta í síðustu Heimskringlu;
kannske að fólk fari nú að
vakna, það er búið að sofa
nógu lengi; það mætti margt
skrifa um ellistyrkinn og um-
komuleysi gamla fólksins, eg
vona líka að það verði gert
bæði af viti og þekkingu, eg
sendi þessar línur bara af því,
að eg hef oft hugsað um þetta
mál, og mér finst skylda allra
að gera alt sem þeir og þær
geta til að lagfæra það.
Vinsamlegast,
Aldís Péturson. Víðir, Man
Hver getur reiknað út barnanna böl;
blóðið og tgrin og sorgirnar þungu,
hugarstríð mæðranna, harmur og kvöl,
hrópar til drottins á alþjóða tungu;
miskunarleysis í frostinu föl
falla þar dýrmætu lífs blómin ungu.
Kærleikans faðir vér köllum til þín,
kraftur þinn lækni öll sárin sem blæða;
armlegg þinn máttugan öllum þú sýn
óvinum grimmum er vitskertir æða.
Eilíf þín gæska sem aldrei dvín
ótaldar meinsemdir lífsins að græða.
Framkvæmd til umbóta hafin er hátt;
hugsjónir guðlegar útrýma tárum,
enginn í duftinu liggja skal látt
lifandi græðsla við tímanna sárum,
heimsandinn sigraður missir sinn mátt,
manngöfgi dafnar á komandi árum.
Höfðingi friðarins kemur hér kær,
Kristur — og máttinn til framsóknar gefur
eðli hjá mönnum ’ið guðlega grær,
glæpalífs ástríða lengur ei tefur,
lífsstefna þjóðanna ljómar þá skær;
ljóssins í þjónustu sigurinn hefir.
Framvegis aldrei skal sakleysið sært,
sorgir og þjáningar jarðlífsins dvína;
allar fá þjóðirnar lífs orðið lært,
líknar og mannúðar ylgeislar skína.
Auðga sig háttprýði öllum skal kæt,
andlegan þfoska í breytninni sýna.
Þá fagnar vor andi, og hjartað er hlýtt,
hugurinn dvelur við vonir sem rætast;
alt fer að verða hér umbreytt og nýtt,
aumir og veikir af hjálpræði kætast.
sumarið byrjar nú farsælt og frítt
friðarins blómreitir anda þar sætast.
Friðarins ríki sem þörf er að þrá
það meigi kom, vér grátklökkvir biðjum,
fyllingu vonanna sætt er að sjá,
sigrandi máttur að leysist úr viðjum.
Réttlætið eilífan framgang skal fá,
farsæld og velsæmi öll saman styðjum.
Ó, hversu ljúft væri að lifa þann dag
og líta á sumarsíhs útsýnið bjarta,
er aldheimur sýngur þar unaðarlag,
opið er kærleikans miskunar hjarta.
Guð er að blessa og græða vorn hag
grátandi enginn svo þurfi að kvarta.
Tileinkað sumardeginum fyrsta 1943.
. Kristín D. Johnson.